Sameinuðu þjóðirnar og heimsmarkmiðin 17

Mig langar að benda fólki á útvarpsþátt sem Valgerður Snæland Jónsdóttir stjórnandi þáttanna Menntaspjallið bauð mér og Leifi Árnasyni að taka þátt í.

Umræðuefnið var Sameinuðu þjóðirnar (SÞ), undirstofnanir þeirra, og svo heimsmarkmiðin 17.

Efnið er svo viðamikið að ákveðið var að þetta yrði tveggja tíma þáttur.

Leifur byrjaði á ítarlegri yfirferð yfir SÞ, fasisma og fleira, og þar kom ýmislegt fram sem fæstir hafa hugmynd um, og í seinni hlutanum byrjaði ég á að fara yfir þessi skelfilegu heimsmarkmið sem verið er að innleiða af fullum krafti hér á landi í boði Katrínar Jakobsdóttur.

Þar sem tími vannst ekki til að klára að fara yfir þau öll, mun það verða gert í Menntaspjallinu næstkomandi miðvikudag.

Valgerður

Það er gríðarlega mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því hvað er að eiga sér stað fyrir framan nefið á okkur án þess að við höfum hugmynd um!

Ég vil því hvetja sem flesta að að gefa sér tíma til að hlusta á þennan þátt sem þið getið fundið hér.

 

 

 

 


Viljum við fulltrúa WEF og Davos klíkunnar á Bessastaði?

Ég óttast að fólk sé grunlaust um hættuna af því að fá fólk sem er tengt WEF og Davos klíkunni inn á Bessastaði, enda hafa fæstir líklega heyrt um hana.

En hvað er þessi Davos klíka?

Í örstuttu máli sagt, þá er þetta hópur forríkra elítuglóbalista úr fjármála-, viðskipta- og fjárfestingageiranum, sem hittast í janúar á hverju ári í Davos í Sviss, og þangað kemur líka fólk úr ríkisstjórnum og stórfyrirtækjum víðsvegar að úr heiminum, ásamt frægum poppstjörnum, leikurum, og jafnvel kóngafólki.

Greta Thunberg er þar líka tíður gestur, eins og "mannvinurinn mikli", Bill Gates, og þar hefur sést til forstjóra lyfjafyrirtækjanna sem bjuggu Covid "bóluefnin" til á undraverðum hraða, og að sjálfsögðu mæta þangað líka fulltrúar Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninnar (WHO), Sameinuðu þjóðanna (SÞ), Nato og sjálfsagt fleiri.

Al GoreOg ekki má gleyma Al Gore, sem er búinn að reyna að hræða úr okkur líftóruna með alls kyns dómsdagsspádómum um bráðnun íss og jökla, útdauða ísbjarna, að hafið sé að suðu komið og fleira í þeim dúr.

Þrátt fyrir stjarnfræðilegar greiðslur til hans hafa engir spádómar hans ræst, og hér má sjá 50 ára yfirlit yfir dómsdagsspár sem hafa að sjálfsögðu ekki ræst heldur.

Þessar Davos ráðstefnur eru haldnar að undirlagi Alþjóðaefnahagsráðsins/The World Economic Forum (WEF), sem var stofnað árið 1971 af Klaus Schwab, en lærimeistari hans var Henry Kissinger (horfið á þetta!)

Þar tekur þetta fólk ákvarðanir um framtíð mannkynsins, ræðir næstu "heimsfaraldra", og hefur sagt að Covid hafi veitt (þeim) einstakt tækifæri til að endurræsa heiminn (The Great Reset), og vinna að því að koma á einni alheimsstjórn, að sjálfsögðu til að "bjarga heiminum".

Bak við tjöldin er endatakmarkið þó að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda".

Þetta fólk flýgur til Davos í einkaþotum sínum, á meðan það prédikar um hamfarahlýnun af völdum okkar hinna, og að við verðum að fara að venja okkur á að éta pöddur.

Ég er búin að skrifa 20 blogg síðan árið 2021 þar sem WEF kemur við sögu, yfirlit yfir þau má finna hér.

Ógnin af "The Great Reset"

Hér er frábær yfirferð yfir hrollvekjandi plön þeirra um örlög okkar hinna, og hvernig Kína er mikil fyrirmynd þeirra.

Það er líka fróðlegt að lesa ummælin undir vídeóinu.

Forsetakosningarnar

Eins og staðan er í dag, þá eru þrjár konur í framboði til embættis forseta Íslands sem hafa tengingar við, og/eða eru að vinna fyrir WEF, Katrín Jakobsdóttir, Halla Tómasdóttir og Halla Hrund Logadóttir.

Ég hef nýlega skrifað tvær færslur um Katrínu Jakobsdóttur, þá fyrri um störf hennar "í þágu" Íslands fyrir WEF, WHO og SÞ, og í þeirri síðari spyr ég hvort forseti Íslands eigi að verja hagsmuni Íslendinga, eða ókjörinna erlendra alþjóðastofnana.

Hallur Hallsson skrifaði nýlega beinskeytta grein um kolsvart elítu-framboð Höllu Tómasdóttur, sem lesa má hér.

Halla Hrund Logadóttir er "Agenda Contributor" hjá WEF.

Nái einhver þessara þriggja kvenna kjöri, sérstaklega Katrín, þá óttast ég að það muni hafa skelfilegar afleiðingar fyrir þjóðina, miðað við hversu mikið hún hefur þjónað þessum erlendu glóbalista öflum í forsætisráðherratíð sinni, í stað þjóðar sinnar.

Þess má líka geta að sökum starfa sinna hefur hún hitt og fundað með mörgum þjóðarleiðtogum sem hafa útskrifast úr "The Young Global Leaders" skóla Klaus Schwab, t.d. Emmanuel Macron, Jacinda Ardern, Angela Merkel og Justin Trudeau.

Það hefur ekki farið framhjá neinum að hún, og ríkisstjórn hennar hafa sent háar fjárhæðir (milljarða!) til Úkraínu, og nú síðast til vopnakaupa í vonlausu stríði þar, svo hægt sé að drepa fleira fólk.

Heimurinn stendur á stórhættulegum tímamótum núna, við virðumst vera á barmi heimsstyrjaldar, og þessi illu öfl eru á góðri leið með að koma á einni alheimsstjórn, WHO reynir lævíst valdarán í 194 aðildarlöndum sínum (líka á Íslandi), og SÞ vinnur að innleiðingu þessara skelfilegu 17 heimsmarkmiða sinna (líka á Íslandi).

Ég er búin að skrifa 91 blogg síðan árið 2021 þar sem WHO kemur við sögu, yfirlit yfir þau má finna hér.

Aldrei í fréttum á RÚV "okkar allra" né öðrum meginstraumsfjölmiðlum:

Svo hvað segir íslenska þjóðin?

Er hún sátt við að fulltrúi WEF og Davos klíkunnar verði næsti forseti Íslands, eða ætlar hún að hafna því?

Það kemur í ljós 1. júní 2024.

The Great Resist

 


Á forseti Íslands að verja hagsmuni Íslendinga, eða ókjörinna erlendra alþjóðastofnana?

Alltaf fjölgar þeim sem bætast í baráttuna um sætið á Bessastöðum í sumar.

Nokkrir hafa þegar náð tilskildum meðmælendafjölda, svo baráttan mun standa á milli þeirra sem hafa náð þeim fjölda þegar framboðsfrestur rennur út þann 24. apríl n.k.

Hættan er því á að sá eða sú sem nær kjöri muni því ekki hafa stóran hluta atkvæða á bak við sig, ef þau dreifast jafnt.

Vöndum því valið þegar í kjörklefann er komið!

Í mínum huga á næsti forseti Íslands ekki að vera fyrrverandi forsætisráðherra sem segist ætla að gæta hagsmuna Íslands á alþjóðavettvangi, en hefur verið að gera akkúrat hið gagnstæða, eins og þið getið séð hér.

Hér ætla ég að fjalla nánar um djöfullegar áætlanir um örlög mannkynsins sem koma frá ókjörnum erlendum stofnunum og milljarðamæringum, og verið er að innleiða af fullum krafti undir hennar stjórn hér á landi, eða ...

Agenda 2030

Þessi orð hér fyrir neðan eru hluti af opnunarávarpi Katrínar Jakobsdóttur fyrrverandi forsætisráðherra á velsældarþingi í Hörpu 14. júní 2023, sem haldið var í tilefni þess að framkvæmdastjóri WHO í Evrópu afhenti henni skýrslu um velsældarhagkerfið á Íslandi.

Við sama tilefni var hún skipuð sendiherra stofnunarinnar fyrir þetta verkefni til næstu tveggja ára.

Við erum nú hálfnuð með dagskrá 2030 (Agenda 2030, innsk. mitt) og þurfum að sýna fordæmalausa einbeitni í því að hraða aðgerðum á heimsmarkmiðunum.

Á heimsvísu eru aðeins 12% tilkynntra sjálfbærra þróunarmarkmiða (SDG) á réttri leið og fjöldi fólks sem býr við mikla fátækt hefur aukist síðan 2019, sem er mjög mikið áhyggjuefni.

Við á Íslandi erum staðráðin í að leggja okkar af mörkum. Ísland er tiltölulega ofarlega í innleiðingu SDG (17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni, innsk. mitt), en það er pláss fyrir umbætur á mörgum sviðum, sérstaklega hvað varðar skilning og stjórnun á skaðlegum áhrifum okkar.

En hvað er Agenda 2030?

Oft er sagt að ein mynd segi meira en þúsund orð, og hér má sjá raunverulegar fyrirætlanir um afdrif mannkynsins (reyndar að því forspurðu), teknar saman á einni mynd.

Agenda 2030

Er það svona heimur sem við viljum fyrir börnin okkar, og myndum við samþykkja innleiðingu heimsmarkmiðanna ef við gerðum okkur grein fyrir því hvað raunverulega býr að baki þeirra?

Við erum nú hálfnuð með dagskrá 2030 og þurfum að sýna fordæmalausa einbeitni í því að hraða aðgerðum á heimsmarkmiðunum.

Það vantar ekki að þau er sett fram á afskaplega fallegan hátt, þar sem nánast á að gera allt fyrir alla og skapa himnaríki á jörð, en hvert "göfugt" markmið þeirra þýðir akkúrat hið gagnstæða, ef grannt er skoðað.

Hér eru heimsmarkmiðin 17 í átt að þrældómi okkar þýdd á mannamál í stuttu máli.

Við ættum ekki að trúa því að ýmsar ókjörnar alþjóðastofnanir eða gráðugir milljarðamæringar hafi einhverjar hugsjónir um eða áhuga á að útrýma fátækt og hungri, stuðla að menntun fyrir alla, koma á friði í heiminum, "bjarga loftslaginu" (sem er enn ein blekkingin) eða neitt slíkt.

Þá væru þeir löngu búnir að gera eitthvað í því, það hljóta allir að sjá það.

Ég skrifaði fyrir rúmu ári síðan um hvað býr að baki heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og ég mæli sterklega með því að allir horfi þar á vídeó þar sem Rosa Koire fer yfir þessi heimsmarkmið, sem áður voru þekkt sem Agenda 21.

Síðar fjallaði ég um hvað býr að baki fjórða heimsmarkmiðinu, og er það raunverulega eitthvað allt annað en um menntun og jöfn tækifæri fyrir alla.

Við erum nú hálfnuð með dagskrá 2030 og þurfum að sýna fordæmalausa einbeitni í því að hraða aðgerðum á heimsmarkmiðunum.

Það er búið að koma þessum heimsmarkmiðum inn í borgarstjórnir, bæjarstjórnir, skóla, og jafnvel kirkjurnar, og má víða sjá merki um það, þ.e.a.s. ef maður veit hvað býr að baki þeirra.

Því miður óttast ég að margir þeirra sem vinna að innleiðingu þeirra hér á landi geri það í góðri trú, og geri sér enga grein fyrir hvaða djöfullegu aðgerðir þetta í raun eru.

Það sem við þurfum að vita um Agenda 2030, en hefur "gleymst" að segja okkur:

Hér má sjá hluta af því sem Katrínu Jakobsdóttur liggur svo á að hraða hér á landi.

Ný frétt frá Bretlandi:

Öllum flugvöllum í Bretlandi fyrir utan þá allra stærstu verður búið að loka árið 2029 og nautakjöt og lambakjöt til manneldis verður bannað til að ná markmiðum um loftslagsmálin samkvæmt skýrslu bresku ríkisstjórnarinnar.

... eða öllu heldur loftslagssvindlinu, en þetta er partur af Agenda 2030, The Great Reset, New World Order, eða hvað sem við viljum kalla það.

Það sama má segja um 15-mínútna borgirnar og pödduátið sem við eigum að fara að venja okkur við.

Við erum nú hálfnuð með dagskrá 2030 og þurfum að sýna fordæmalausa einbeitni í því að hraða aðgerðum á heimsmarkmiðunum.

Fólk þarf að gefa sér tíma til að kynna sér sjálft þessar aðgerðir sem Katrín  Jakobsdóttir er löngu byrjuð á að innleiða, og vill hraða hér á landi.

Þetta eru engar samsæriskenningar, eins og fólk ætti að gera sér grein fyrir núna, heldur napur sannleikur um áætlanir illra afla um örlög okkar og okkar afkomenda.

Frændur okkar, Svíar, eru farnir að bakka út úr Agenda 2030, og ég tek hattinn ofan fyrir þeim að sýna það hugrekki.

Mun ný ríkisstjórn Íslands líka sýna slíkt hugrekki? Ég stórefast um það.

 

 

 

 


Nei takk, ég vil ekki svona manneskju í embætti forseta Íslands!

Þetta eru stór og fögur orð og fyrirheit hjá fráfarandi forsætisráðherra Íslands, sem bætist nú í stóran hóp umsækjanda um embætti forseta Íslands.

„Þetta er mik­il­vægt embætti. For­set­inn þarf að skilja gang­verk stjórn­mála og sam­fé­lags. Þarf að geta sýnt for­ystu og auðmýkt. Að gæta hags­muna Íslands á alþjóðavett­vangi. Hann þarf að geta tekið erfiðar ákv­arðanir óháð stund­ar­vin­sæld­um,“ seg­ir Katrín m.a.

Reyndar er langt síðan ég hef séð forystu og auðmýkt hjá þessari manneskju, og ég velti fyrir mér hvað hún meinar með því að gæta hagsmuna Íslands á alþjóðavettvangi, þegar hún hefur ekki einu sinni gætt hagsmuna okkar hér innanlands, að minnsta kosti lengi vel að mínu mati, og margra annarra.

Og hvers vegna ekki? - Nokkrar ástæður:

Katrín Jakobsdóttir WEF Agenda ContributorFyrir það fyrsta, þá kæri ég mig ekki um útjaskaðan pólítíkus í þetta embætti, og hún er orðin það umdeild að hún mun aldrei geta orðið sameiningartákn þjóðarinnar.

Alþjóðaefnahagsráðið (WEF)

Svo er hún s.k. Agenda Contributor hjá The World Economic Forum (WEF).

Fyrir þá sem enn ekki vita hvað WEF er, þá eru það í stuttu máli samtök ókjörinna milljarðamæringa og annarra sem eru að reyna að koma á alræðisvaldi (Global Governance) yfir heiminum með því sem þeir kalla The Great Reset.

Þessi samtök stæra sig af því að hafa komið ungum heimsleiðtogum fyrir í stjórnum margra ríkja, ég skal játa að ég veit ekki hvort hún sjálf sé útskrifuð úr heimsleiðtogaskóla WHO, en hún er í góðu vinfengi við marga þeirra, eins og t.d. Emanuel Macron, Justin Trudeau, Boris Johnson og Jacinda Ardern.

Þess má líka geta að annar forsetaframbjóðandi, Halla Tómasdóttir er forstjóri B Team, sem er í samstarfi við WEF.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO)

Svo má líka nefna það að árið 2023 hélt Katrín velsældarþing í Hörpu fyrir ókjörnu stofnunina WHO, þar sem hún fékk afhenta skýrslu þeirra um "velsældarhagkerfið" á Íslandi. Það verður að segja að sú lesning er vægast sagt hrollvekjandi.

Af því tilefni var hún skipuð sendiherra þessa velsældarverkefnis WHO á Íslandi til tveggja ára.

WHO vinnur nú að því markmiði að ná einræði yfir heilbrigðis- og farsóttamálum heimsins, eins og ég hef skrifað margoft um, sjá t.d. hér og hér.

Sameinuðu þjóðirnar (UN)

Ríkisstjórnin undir forystu Katrínar hefur tengt hin skelfilegu 17 heimsmarkmið þeirra inn í stefnur sínar og áætlanir til ársins 2030, ársins þegar við munum ekkert eiga, og vera hamingjusöm.

Eitt af þessum heimsmarkmiðum, það fjórða, gengur út á innrætingu LGBT stefnunnar, þótt opinber skýring á þeim sé hið fallega markmið um að tryggja sanngjarna gæðamenntun og símenntunartækifæri fyrir alla.

Kynvæðing barnanna okkar

Ekki má gleyma þessari skelfilegu kyn, kynlífs - og transvæðingu íslenskra skólabarna, allt niður í leikskólaaldur, en það er komið beint frá UN, WEF, WHO og öðrum slíkum stofnunum og aðilum.

Sex education for childrenHér getið þið sjálf náð ykkur í skjal sem sýnir "Standards for Sexuality Education in Europe".

Á myndinni hér til vinstri sjáið þið leiðbeiningar um "kynfræðslu" fyrir 0-4 ára börn, sem hafa engar hugmyndir ennþá um kynlíf, kynferðislega ánægju, hvernig börn verða til eða neitt slíkt.

Lítil börn eru ekki kynverur, og það er stórskaðlegt fyrir þau að fá svona "fræðslu" svona ung!

Í sama skjali má sjá sambærilegar "leiðbeiningar" fyrir aðra aldurshópa.

Ég vísa svo í önnur skrif mín um kynvæðingu íslenskra barna, sem er í boði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Þar finnið þið líka hlekki á önnur blogg og vefsíður um skyld efni.

Covid

Ég ætla ekki að fjalla hérna um bóluefnakaup ríkisstjórnar Katrínar upp á marga milljarða, eða leynilegu bóluefnasamningana sem eiga að vera læstir inni í 70 ár eða svo.

Ekki heldur um þennan svokallaða "heimsfaraldur", nógu mikið hafa ég og margir aðrir fjallað um þetta tímabil undanfarin ár.

Við ættum öll að vera búin að gera okkur grein fyrir blekkingunum sem við höfum verið beitt síðan árið 2020, og skaðanum sem þessi "bóluefni" hafa valdið þjóðinni, en er haldið tryggilega leyndum fyrir okkur.

Svo þá er það spurningin

Fellur allt sem hér hefur verið ritað undir það að gæta hagsmuna Íslendinga á alþjóðavettvangi, þegar búið að innleiða erlendar tilskipanir, - margar frá ókjörnum alþjóðastofnunum, og þar af margar sem vinna gróflega gegn hagsmunum og velferð þjóðarinnar?

Er manneskju með þennan bakgrunn og stjórnmálaferil treystandi til þess að gegna æðsta embætti þjóðarinnar með velferð hennar í huga?

Svar mitt er einfaldlega, nei.

 


mbl.is Katrín býður sig fram til forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta samsæriskenning eða sannleikur?

Í nýlegum pistli skrifaði Björn Bjarnason sjálfstæðismaður og fyrrverandi ráðherra um það sem hann telur trúnaðarbrest gagnvart WHO, og í stórum dráttum var þar gefið í skyn að ótti við væntanlega samþykkt á farsóttasáttmála þeirra væri óþarfur, og frekar í ætt við samsæriskenningu. Pistilinn má finna í viðhengi hér neðar.

Skoðum þetta aðeins nánar.

Ótti viðmæl­and­ans vakti áhuga á að kanna málið. Reynd­ist auðvelt að afla upp­lýs­inga um stöðu þess á vefsíðu WHO og í sam­tali við spjall­menni. Tíma­lín­an er nefnd hér að ofan til að sýna að texta­gerðin hef­ur þró­ast fyr­ir opn­um tjöld­um hjá WHO. Niðurstaðan er að ís­lenska ríkið af­sal­ar sér eng­um rétti með því að til­kynna ekki fyr­ir­vara vegna umræðuskjals­ins fyr­ir 1. des­em­ber 2023.

Hér dettur skrifari í þá gryfju að trúa og treysta upplýsingunum sem fram koma á þeirra eigin vefsíðu, og frá einhverjum hugbúnaði keyrðum af gervigreind sem gera má ráð fyrir að búið sé að forrita fyrirfram til að gefa aðeins ákveðnar upplýsingar.

Þær upplýsingar eru alveg jafn "áreiðanlegar og sannar" og t.d. fullyrðingar lyfjarisanna, stjórnvalda, lækna og vísindamanna um "öryggi og virkni" þessara svokölluðu "bóluefna", sem löngu er búið að sanna að hafa valdið ómældum skaða og dauða um heim allan.

Sóttvarnalæknir okkar er jafn trúverðugur og WHO (og spjallmenni), eða þannig, og lýgur áreynslulaust í fjölmiðlum um "öryggi og virkni" þessara eiturefna.

Sannleikann er oftast að finna allt annars staðar, hafi maður fyrir því að leita hans.

Sá sem fullyrti þetta við Björn sagði satt

Við þann sem þetta rit­ar var full­yrt að umræðulaust og með leynd væri unnið að því að lauma í gegn alþjóðasátt­mála þar sem WHO yrði í raun veitt umboð til að ráðskast með líf okk­ar og lík­ama kæmi til nýs heims­far­ald­urs. 

Í stuttu vídeói á þessari síðu má sjá Dr. Abdullah Assiri segja:

"Forgangsröðun aðgerða sem geta takmarkað frelsi einstaklinga ... eru ... nauðsynlegar meðan á heimsfaraldri stendur".

Svo þar höfum við það!

Við erum mörg hér á landi sem tökum undir þessa ósk, en við vitum að hún mun ólíklega rætast:

Var þess ein­dregið farið á leit að stuðlað yrði að op­in­ber­um umræðum um málið áður en það yrði um sein­an og við yrðum of­urseld WHO.

Í þessum skrifum mínum frá 10. ágúst s.l. má lesa um hvernig WHO er þegar farið að herða krumlurnar, og hlekki á eldri skrif mín um stofnunina, meðal annars hvernig Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands tengist henni og er í sendiherraembætti fyrir.

Brynjar Níelsson

Ég var að hlusta á áhugavert viðtal sem Frosti Logason á Brotkast.is tók við Brynjar Níelsson flokksbróður Björns og fyrrverandi þingmann nú á dögunum.

Í lok viðtalsins spurði Frosti Brynjar út í þennan heimsfaraldurssáttmála, og hvort hann þekkti til hans. Brynjar svaraði því játandi og sagði jafnframt að lýðræðið væri í hættu því við værum búin að færa völdin til umboðslauss fólks sem er ekki kjörið, t.d. ýmissa alþjóðastofnana. Að lýðræðið sé á undanhaldi.

Aðspurður sagði hann líka þekkja til lokafrestsins 1. desember um að segja sig frá eða samþykkja sáttmálann. Honum hugnast ekki að færa þetta vald í annarra hendur, og að sífellt sé verið að þrengja meira og meira að einstaklingnum.

Áskrifendur Brotkasts geta hlustað á þetta hér, og þessi hluti byrjar á c.a. mínútu 67.

Jaðarsvæðin

Að því er virðist fullur yfirlætis og vandlætingar segist Björn hafa þurft að fara út á jaðarsvæði til að finna upplýsingar um farsóttarsáttmálann á heimamiðum. Það er ekki skrítið, því litlar eða engar upplýsingar er að finna um hann á þessum helstu meginstraumsfjölmiðlum, ekki einu sinni RÚV.

Undir þessi jaðarsvæði falla að hans mati Útvarp Saga, sjónvarpstöðin Kla.TV, og undirskriftasíðan gegn yfirtöku WHO á Mittval.is.

WEF/WHO Power Grab

Af þeirri síðu les hann upp ýmsa efnisliði, en segir ekki skýrt hverjar þessar breytingar eru. Samt eru u.þ.b. 40 greinar á síðunni sem hann hefði getað lesið, hefði hann nennt því.

Það eru akkúrat svona "jaðarmiðlar" sem fjalla um mikilvæg málefni eins og WHO og blekkingarnar í kringum Covid og "bóluefnin", sem ríkisstyrktu fjölmiðlarnir þora - eða mega ekki að snerta á.

Hvað eru vandaðar upplýsingar að mati Björns?

Vegna skorts á vönduðum upp­lýs­ing­um magn­ast rang­hug­mynd­ir sem sum­ar minna á sam­særis­kenn­ing­ar.

Samflokksmenn ósammála Birni

Þarna segir meðal annars:

Samþykki Ísland aðild að sátt­mál­an­um geng­ur hann í gildi þegar nægi­lega mörg ríki hafa full­gilt hann. Sátt­mál­inn skuld­bind­ur ekki ís­lenska ríkið nema alþingi samþykki og það sam­ræm­ist stjórn­ar­skrá Íslands.

Jón Steinar Gunnlausson lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari er ekki á sama máli, frekar en Brynjar.

Fyrir hverja vinna íslensk stjórnvöld?

Þau virðast tilbúin að veita ókjörinni og ólýðræðislegri stofnun sem stýrt er af hryðjuverkamanni og fjármögnuð að stórum hluta til af Bill & Melinda Gates Foundation, þetta ægivald yfir heilbrigðismálum okkar og heimsins alls.

Fyrir utan það að hafa hagnast óhemju mikið á Covid "bóluefnunum", þá hefur Bill Gates lagt það til við heimsleiðtoga að byrja að tala um "dauðanefndir", sem dæmi venjulegt fólk til dauða fyrir það eitt að vera einskis nýtt elítunni. Hér má líka lesa sitthvað um svarta sögu hans.

Því miður er fyrirhuguð valdayfirtaka WHO á heilbrigðismálum heimsins allt annað en samsæriskenning, heldur sannleikur.

Til eru víðtækar heimildir um það, bæði hér og víðar, síst þó á meginstraumsmiðlunum, reynsla undanfarinna ára hefur kennt manni það.

Dagar samsæriskenninganna eru löngu liðnir, enda hafa þær flestar, ef ekki allar ræst.

Hlustið á ESB-þingkonuna Christine Anderson:

The Fight Is On! - EUROPEAN CITIZENS’ INITIATIVE against WHO Power Grab

 

Umfjallanir á "jaðarsvæðum" um fyrirætlanir WHO

 

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Getur lesbía ekki bara áfram verið amma og hommi afi?

Ég er sem betur fer ekki ein um að blöskra frekjan í þessum háværa minnihlutahópi hér á landi sem virðist fá öllu sínu framgengt, í góðri samvinnu við íslensk yfirvöld.

Hvers vegna þarf að búa til kynhlutlaust orð yfir foreldri foreldris, hvaða rugl er þetta? Eigi samkynhneigt fólk börn, þá voru þau getin með eggi konu og sæði karlmanns, þeirra einu tveggja kynja sem til eru og geta getið af sér afkvæmi saman.

Hvernig í ósköpunum er hægt að gera það kynhlutlaust? Er það til að móðga ekki öll þessi 100 kyn sem núna er búið að "skilgreina"?

Ég sjálf er amma, og frábið mér þann möguleika að vera kannski kölluð stórforeldri.

Stórforeldri er kynhlutlaust orð yfir foreldri foreldris. Það sem flestir þekkja sem ömmu eða afa.

Þetta er alveg stórkostlegt!

Aðkynhneigð er svo þýðing á orðinu allosexual. Allosexual er fólk sem finnur fyrir kynferðislegri hrifningu á öðru fólki. Kynhneigð þeirra getur verið hver sem er. 

Það hljóta þá líka að vera til einhver nýyrði yfir þá sem hneigjast kynferðislega að t.d. sokkum, geitum eða snjóblásurum, annað væri bara móðgun við það fólk.

Það þyrfti að gefa út orðabók með þessu:

Önnur orð sem hafa verið valin í samkeppninni fyrri ár eru kvár, stálp, mágkvár, svilkvár og eikynhneigð. Í fyrra voru í keppninni valin hýr tákn í táknmál. 

Hrífst fólk sem er mágkvár og svilkvár kynferðislega að mágum sínum og svilum? Spyr sú sem ekki veit!

Það hlýtur að fara að koma að aðför gegn fallega starfsheitinu ljósmóðir og gera það líka kynhlutlaust, væri t.d. fæðingatæknir ekki fínt og nógu hlutlaust?

Ég, um mig, frá mér, til mín

Það er mikilvægt fyrir hinsegin fólk og sjálfsákvörðunarrétt þess að geta talað um tilfinningar sínar, sjálfsmynd og samfélagsformgerðir á íslensku og það er enn fremur forsenda fyrir því að samfélagið sé í stakk búið að ræða málin,“ segir í tilkynningunni.

Getur þetta blessaða fólk ekki bara talað um þetta sín á milli, gæti aldrei hvarflað að því að það t.d. særði tilfinningar okkar sem eigum barnabörn að vera kölluð orðskrípinu stórforeldri en ekki amma eða afi, gæti það ekki skemmt sjálfsmynd okkar?

Hvers eigum við að gjalda sem viljum ekki sjá þetta í íslensku samfélagi og íslensku máli, en viljum að sjálfsögðu að allir hafi sömu mannréttindi, ekki að sumir hafi meiri en aðrir?

Ég hef persónulega engan áhuga á eða þörf fyrir að vita nokkuð um kynhneigðir eða kynhvatir annarra, hvað þá að sjá einhver íslensk nýyrði yfir þetta allt saman.

Eru kynhlutlausir foreldrar næstir?

0513aVerður bannað að tala um foreldra sem móður og föður, svona til að móðga engan af öllum hinum kynjunum og kynhneigðunum, eins og lagt var til í Frakklandi?

Fólk verður að fara að átta sig á að þessi trans, hinsegin og LGBTQ áróður og réttindabarátta er hreint engin tilviljun, og ekkert eðlilegt við það hvað þessir hópar fá mikið pláss í fréttum og samfélagsmiðlum, og (fjárhagslegan) stuðning frá stjórnvöldum.

Hér á landi eins og víðast hvar annars staðar er unnið eftir þessum skelfilegu Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og þetta er innifalið í því fjórða, sjá blogg mitt um það hér.

Að umbera allt er uppskrift að hörmungum - og ákall til foreldra skólabarna!

Að umbera allt er uppskrift að hörmungum sagði maður að nafni Stephen Hilton meðal annars í vídeói sem þið sjáið hér neðst.

Þessi orð hans urðu mér hugleikin, því erum orðin svo vön því að eiga að fagna fjölbreytileika mannlífsins og vera umburðarlynd gagnvart minnihlutahópum eins og t.d. samkynhneigðum, semsagt, að vera fordómalaus.

Það höfum við svo sannarlega verið og þykir flestum sem betur fer eðlilegt að styðja við mannréttindabaráttu samkynhneigðs fólks, sem hefur fært þeim sjálfsögð réttindi sem þau höfðu ekki áður.

Þetta hér að ofan er yfirskriftin á bloggi sem ég skrifaði 9. maí 2023, lesið það endilega!

Þessi hópur fólks er búinn að berjast fyrir sjálfsögðum mannréttindum í áratugi og hefur sem betur fer unnið marga sigra, en þetta bakslag og hatursorðræða sem það kvartar hástöfum yfir núna á það sjálft algjörlega skuldlaust.

Ég hef aldrei áður séð jafn mikið hatur og núna gegn fólki, sérstaklega öðru samkynhneigðu fólki sem frábiður sér þennan fordæmalausa áróður þeirra.

Bara ein skoðun er leyfð, og það er þessa freka og háværa hóps.

Umburðarlyndið getur verið stórhættulegt!

Að umbera allt sem rétttrúnaðurinn, samfélagsmiðlarnir, fjölmiðlarnir - og stjórnvöld segja okkur að fagna og umbera getur svo sannarlega verið uppskrift að hörmungum.

Áður en við vitum af verðum við komin í 15 mínútna borgirétum pöddur til að "bjarga lofslaginu", og verðum neydd í sprautur, jafnvel með lögregluvaldi þegar hryðjuverkamaðurinn Thedros forstjóri WHO verður kominn með einræði yfir heilbrigðismálum okkar og heimsins alls.

Ekki spyrja þá: Ha, hvernig í ósköpunum gat þetta gerst?

Spyrjið heldur: Hvers vegna gerði ég ekki allt sem í mínu valdi stóð til að koma í veg fyrir að þetta gæti gerst?

 

 

 


Dauðaskotin

Nýlega kom út heimildarmyndin Shot Dead, en þar er talað við foreldra tveggja ungmenna sem dóu eftir sprautur með "bóluefnunum" frá glæpafyrirtækinu Pfizer, og móður sem neyddist til að fara tvisvar í sprautur með þessu sama efni á meðgöngu til þess að halda vinnunni.

Hún fæddi barn með það mikla fæðingargalla að það lifði aðeins í einn sólarhring eftir fæðingu.

Einnig eru þar viðtöl við virtan hjartalækni, fæðingalækni og hjúkrunarfræðing um það sem þau hafa séð og upplifað í sínum störfum síðan byrjað var að "bólusetja" heimsbyggðina. Þarna má líka sjá glæpsamlegan sprautuáróður í Bandaríkjunum.

Þarna kemur fram að Danmörk hafi síðla árs 2022 - að gefnu tilefni stöðvað þessar sprautur fyrir fólk undir fimmtugu, og Bretland fyrir fólk undir tólf ára, kannski vegna þessa faraldurs meintra óútskýrðra andláta unglinga þar í landi, sjá færslu mína frá 2021.

En hér á Íslandi?

Hér hafa verið slegin met í umframdauðsföllum, og hvorki landlæknir né sóttvarnalæknir kannast við að sprautunum geti verið um að kenna, og Guðrún Aspelund sló líklega met í lygum og þvættingi í nýlegu viðtali.

Enn er verið að bjóða viðkvæmum hópum, allt niður í börn í enn eitt Covid bústið, plús flensu sprautu. Hér má sjá að það er kannski ekki svo góð hugmynd.

Sóttvarnalæknir mælir með því að eftirtaldir áhættuhópar fái forgang við bólusetningar við Covid-19:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum eða eru ónæmisbæld af völdum lyfja eða sjúkdóma.
  • Barnshafandi konur.
  • Heilbrigðisstarfsfólk sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Læknastéttinni er að sjálfsögðu fullkunnugt um skaðann sem hlaust af því að gefa barnshafandi konum lyfið Thalidomide við morgunógleði, en það hefur aldrei stöðvað hana í að hvetja barnshafandi konur hér á landi í þessar mRNA sprautur.

Hér á landi er eftir því sem ég best veit núorðið eingöngu notast við Pfizer "bóluefnið", sem kallast í dag Comirnaty, einmitt það sem olli dauða þessara ungmenna og nýbura.

Hverjir eru að ljúga?

Opinberar tölur yfir andvana fæðingar Kaliforníu í Bandaríkjunum 2017-2022:

Andvana fæðingar í Bandaríkjunum

Þetta má hinsvegar finna á fylgiseðli Comirnaty (Pfizer) í tilkynningu frá landlækni um bólusetningu gegn COVID-19 veturinn 2023-2024:

Meðganga

Umtalsverðar upplýsingar úr áhorfsrannsóknum (observational data) frá þunguðum konum sem bólusettar voru með Comirnaty á öðrum og þriðja þriðjungi meðgöngu hafa ekki sýnt aukningu á óæskilegum útkomum meðgangna. Þrátt fyrir að upplýsingar um útkomur úr meðgöngum eftir bólusetningu á fyrsta þriðjungi meðgöngu séu enn takmarkaðar, hefur ekki sést aukin hætta á fósturláti.

Dýrarannsóknir benda hvorki til beinna né óbeinna skaðlegra áhrifa á meðgöngu, þroska fósturvísis/fósturs, fæðingu eða þroska eftir fæðingu (sjá kafla 5.3). Nota má Comirnaty á meðgöngu.

Ég held að spurningunni hér að ofan sé auðsvarað!

Eitt af fórnarlömbum Pfizer sem fjallað er um í myndinni er hin átján ára Trista Martin, sem fór í sprautu án þess að láta foreldra sína vita, og þurftu þau að bíða í á annað ár eftir niðurstöðum krufningar á henni.

Þetta kemur fram í lok myndarinnar:

Þann 4. ágúst 2022 skilaði Oklahoma Medical Examiner’s Office skýrslu sinni til Martin fjölskyldunnar, þar sem fram kom að Trista hefði verið með með bráða öndunarbilun, bráðan lungnabjúg, lítið lungnasegarek, bráða nýrnabilun, bráðan heilakvilla, hjartabilun í hægri slegli, blóðrásarbilun, blóðsýring, storkukvilla, bráða blóðleysi, blóðþurrð í þörmum, hækkuð skjaldkirtilsörvandi hormón, blóðpróteinhækkun, blóðkalíumlækkun, blóðnatríumhækkun, hækkuð lifrarensím, og blóðsykurshækkun.

Frekari greining leiddi einnig í ljós heilabjúg, þung lungu, byrjun á hjartadrepi og blæðingar í meltingarvegi.

... Niðurstaða krufningarinnar var, að opinber dánarorsök sé "óútskýranleg."

1111b

Þetta er dauðans alvara!

Það er sorglegt að vita til þess hversu lengi íslensk heilbrigðisyfirvöld og læknastéttin hafa fengið að komast upp með að ljúga að okkur um allt sem varðar "heimsfaraldurinn" og þessi svokölluðu "bóluefni" - og eru enn að.

Enginn ætti að fara í fleiri Covid sprautur segir Dr. Peter McCullough hjartalæknir!

Horfið á myndina, þetta er umfjöllun sem getur ekki skilið neinn eftir ósnortinn og vekur vonandi marga til umhugsunar, sérstaklega þá sem hafa treyst og trúað stjórnvöldum, læknastéttinni og heilbrigðiskerfinu hingað til.

Þetta fólk er búið að ljúga að okkur í tæplega fjögur ár núna, og það sama hefur átt sér stað um heim allan - með skelfilegum afleiðingum fyrir tugi eða hundruðir milljóna manna, kvenna og barna.

Og bíðið bara, okkur eru ætlaðar enn meiri "bólusetningar" ef/þegar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin verður komin með alræði yfir heilbrigðismálum okkar og heimsins alls, og þá verður hægt að neyða okkur í þær með lögregluvaldi.

Allar líkur eru á því að íslensk stjórnvöld samþykki þetta þegjandi og hljóðalaust!

Hvaða "herrum" er allt þetta fólk að þjóna?

 

 

 


Nokkrar athugasemdir við viðtal við Guðrúnu Aspelund sóttvarnalækni

Enn og aftur fær sóttvarnalæknir að vaða uppi með gaslýsingum og lygum í drottningarviðtali í íslenskum fjölmiðli, og nú þegar hún var meðal annars beðin að tjá sig um frábæra grein eftir Helgu Birgisdóttur hjúkrunarfræðing og ljósmóður sem birtist í Morgunblaðinu nýlega, en hana má finna í viðhengi hér neðar.

Þarna var skautað yfir ansi margt af því sem Helga gerir að umræðuefni í grein sinni, og það er eftirtektarvert að Guðrún var ekki krafin svara við mörgu af því sem þarna kemur fram, heldur fékk hún að dásama þessi "bóluefni" algjörlega gagnrýnislaust, og gera eins og venjulega lítið úr aukaverkunum.

En í rauninni er það kannski ekkert eftirtektarvert, heldur akkúrat það sem mátti búast við af þessum aumu meginstraumsfjölmiðlum hér á landi.

Skoðum nokkur ummæli hennar:

Þetta á ekki við rök að styðjast. Bóluefnin eru mjög örugg og virka gegn veikindum, sérstaklega alvarlegum veikindum og andlátum í Covid.

Það er vægast sagt undarlegt af henni að reyna að hrekja rök með engum rökum til að sanna mál sitt, heldur órökstuddri og ósannaðri fullyrðingu. Og hvers vegna var hún þá ekki beðin um heimildir til að sanna ummæli sín um öryggi og virkni þessara "bóluefna"?

Sóttvarnalæknir segist hafa orðið vör við aukna gagnrýni á bólusetningar. Raddirnar hafi orðið háværari í kórónuveirufaraldrinum. Hún telur óþarfa að óttast, langflestir séu bólusettir. Aukaverkanir hafi verið sjaldgæfar og flestar vægar.

Já er það Guðrún? Yfir 400 læknar frá 34 löndum lýstu yfir alþjóðlegu neyðarástandi (medical crisis) vegna sjúkdóma og andláta sem tengjast Covid-19 "bóluefnunum" í september 2022, og yfir 1.000 ritrýndar (Peer reviewed) rannsóknir segja að bóluefnin séu hættuleg.

Krabbameinin

Það eru engin bóluefni sem valda krabbameinum. Og þar að auki veit ég ekki hvaðan þetta kemur, að krabbamein hafi aukist. Það eru upplýsingar á síðu Krabbameinsfélagsins, þar eru töflur og mælaborð, og þar er hægt að skoða tíðni krabbameina hér á Íslandi aftur í tímann.

Hér eru nokkrar heimildir Guðrún:

Og hvað tölfræði varðar hér á Íslandi, þá treysti ég henni ekki fyrir horn, sérstaklega varðandi allt sem viðkemur "faraldrinum" og þessum eitursprautum, þöggunin var nánast áþreifanleg, og ég persónulega veit um fólk sem er að glíma við eða hefur látist úr krabbameinum undanfarin tvö ár eða svo, stundum sjaldgæfum og illviðráðanlegum - og jafnvel á stuttum tíma.

.... fyrir utan allt blessaða fólkið sem verður bráðkvatt, slíkar dánartilkynningar má lesa nánast á hverjum degi, jafnvel tvær til þrjár.

Ef þetta eru ekki lygar, þá veit ég ekki hvað eru

Guðrún segir bóluefnin hafa verið gefin í milljörðum skammta og að því væri komið í ljós ef það væri „stóraukning á fylgikvillum“ í tengslum við bóluefnin. Hún segist ekki ætla að deila við höfund greinarinnar, til dæmis með því að kalla skrifin óábyrg, og leggur áherslu á mikilvægi bóluefna.

Hefurðu séð þetta, þetta eða þetta Guðrún, eða þetta?:

Já einmitt, mjög sjaldgæfar og fátíðar ....

Síðan hafa verið sjaldgæfar og alvarlegri aukaverkanir. Hjartabólgur og gollurshúsbólgur í hjarta þar á meðal. En voru mjög fátíðar og miklu sjaldgæfari heldur en þessir sömu fylgikvillar eftir Covid-sýkinguna.

Það sem Guðrún Aspelund og aðrir læknar og vísindamenn "gleyma alltaf" að nefna varðandi Covid sprauturnar er að þær innihalda ekki eiginleg bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.

Munurinn á hefðbundnum bóluefnum og mRNA Covid líftæknilyfjunum

Bóluefni er efni sem bætir ónæmiskerfi dýra gagnvart tilteknum smitsjúkdómi. Bóluefni eru unnin úr veikluðum veirum eða bakteríum eða innihalda efni sem finnast í sýklum. Bóluefnið virkar þá þannig að þegar því er sprautað inn í líkama bregst ónæmiskerfi dýrsins við með því að mynda mótefni gegn bóluefninu. Þannig ber ónæmiskerfið kennsl á efnið næst þegar það kemst í tæri við það og myndar þá öflugri vörn en ella.

Markvissar og almennar bólusetningar barna hafa dregið úr tíðni margra barnasjúkdóma, svo sem mislinga, barnaveiki, kíghósta og lömunarveiki.

Fyrsta bóluefnið var þróað gegn bólusótt og dregur því nafn sitt af því. Með því að sýkja viljandi einstaklinga af mildara afbrigði bólusóttar, það er kúabólu, urðu einstaklingarnir ónæmir fyrir svæsnara bannvæna afbrigðinu. Af því dregur ennfremur enska heitið nafn sitt frá latínu, vacca - kýr.

Wikipedia

mRNA COVID-19 efnin eru enn kölluð "bóluefni", jafnvel þó að þau uppfylli allar skilgreiningar á genameðferð og enga skilgreiningu á bóluefni.

Sú staðreynd að þau eru genameðferð, og heilu þjóðfélögin voru skylduð til að fara í þessar sprautur án fullnægjandi prófana, bætir enn einu svívirðilegu lagi við hin mörgu grimmdarverk sem áttu sér stað í COVID-19 heimsfaraldrinum.

Raunveruleikinn

Hér er nýtt skjáskot úr Facebook grúppu sem heitir Died Suddenly News, en þar fær fólk að tjá sig um reynslu sína og/eða ástvina af þessum "góðu og öruggu bóluefnum".

Aukaverkanir og andlát eftir Covid

Ég er búin að lesa þúsundir svona frásagna undanfarin tvö ár í sambærilegum grúppum og víðar og hef birt þær í eldri bloggum mínum.

Hvað varð um Hippókratesareiðinn: Fyrst, ekki skaða?

Hippókratesareiðurinn er eitt af elstu bindandi skjölum í sögunni, skrifaður af Hippókratesi, og enn haldinn heilagur af læknum: Að meðhöndla sjúka eftir bestu getu, að varðveita friðhelgi sjúklings, að kenna næstu kynslóð leyndarmál læknisfræðinnar og svo framvegis.

Okkur ætti að vera orðið ljóst að hann er ekki lengur haldinn heilagur af Guðrúnu Aspelund, Ölmu Möller, Þórólfi Guðnasyni, Kára Stefánssyni og öðrum slíkum sem blekktu þjóð sína í þessar sprautur.

Og það er orðinn ansi holur hljómur í Guðrúnu sem kannast sjaldan eða aldrei við neitt neikvætt við "bóluefnin" eða afleiðingarnar fyrir marga af þeim, eða við rannsóknir sem henni hefur verið bent á.

Hér getið þið séð hvað læknastéttin hefur brotið á okkur undanfarin ár, og einnig er þar hlekkur á eina af mörgum þeim færslna sem ég hef skrifað, sem sýnir hvað liggur þarna að baki.

Það mun taka langan tíma fyrir marga að fara að treysta heilbrigðiskerfinu aftur, ef það mun þá nokkurn tímann gerast.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Hvað er svona erfitt að skilja eða horfast í augu við?

StopTheWHOVilja Íslendingar ekki skilja hvað er í húfi fyrir okkur þjóðina, og í raun heiminn allan ef Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin fær einræði yfir heilbrigðismálum heimsins?

Forstjóri stofnunarinnar er glæpa- og hryðjuverkamaður, svo hvernig gat það átt sér stað að maður sem vílaði ekki fyrir sér fjöldamorð á sinni eigin þjóð sé um það bil að verða einráður í heilbrigðismálum heimsins?

Hvers vegna hann var skipaður í þetta embætti, og svo endurkjörinn í það?

Þykir þér hann vera rétti maðurinn til að fá lögbundið leyfi til að svipta þig sjálfsákvörðunarrétti yfir þínum eigin líkama og þinni eigin heilsu?

Svari hver fyrir sig!

Hvað þýðir það ef hann fær þessi völd?

Hafið þið kynnt ykkur heimsfaraldurssáttmálann sem hann og WHO eru að reyna að koma í gegn, og hvers vegna við þjóðin verðum að hafna honum? Hann gengur í stórum dráttum út á það að hann getur lýst yfir "neyðarástandi í heiminum" út af einhverjum smitfaröldrum sem stofnunin er búin að boða næstu 10 árin - eða jafnvel "neyðarástandi í loftslagsmálum".

Stofnunin mun ekki lengur vera ráðgefandi, heldur munum við þurfa að hlýða öllum skipunum sem frá henni kemur, eins og að loka okkur inni, loka fyrirtækjum, nota grímur, fara í líkamsskoðanir (jafnvel með lögregluvaldi) og láta sprauta í okkur einhverjum "bóluefnum" sem stofnunin segir "nauðsynleg" til að ná tökum á einhverjum "smitfaraldri".

Orð forstjórans verða lög.

0724 WHO

Ritskoðunin verður algjör, og okkur verður ekki leyft að birta neinar skoðanir sem ekki samræmast þeirra aðgerðum og tilmælum. Ég fjallaði ítarlega um drögin að heimsfaraldurssáttmálanum nýlega, sjá hér.

Hafi ykkur þótt Covid tímabilið erfitt, þá skuluð þið átta ykkur á að það var barnaleikur miðað við það sem koma skal þegar Tedros verður kominn með einræðið yfir heilbrigðismálum okkar og lýsir yfir næstu faröldrum.

Áætlanir WHO um börnin

0424bHér ættu allir sem umhugað er um börn sín og annarra að staldra við. Íslensk stjórnvöld unnu stefnu fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 í samstarfi við WHO - sem er að stórum hluta til fjármagnað af Bill & Melinda Gates Foundation.

Inni í þessari stefnu eru staðlar um hvernig kynfræðslu barna skuli háttað, en hún felst meðal annars í því að kenna þeim að vera kynverur frá unga aldri, að kynin séu fjöldamörg, og að það sé bara eðlilegt að vera trans.

Þegar maður kynnir sér hvað felst í þessari svokölluðu "kynfræðslu", þá getur maður ekki annað en fyllst óhugnaði og viðbjóði.

Því miður er þegar búið að innleiða þetta "kynfræðsluefni" í mörgum skólum hér á Íslandi, jafnvel án þess að það hafi verið kynnt fyrir foreldrunum.

Ég hvet ykkur til að kynna ykkur þessar djöfullegu áætlanir WHO um börnin, og sérstaklega að lesa líka öll skrif mín um mál þessu tengt, alla hlekki á þau má finna þar.

Þess má geta að mannréttindasamtökin Mín Leið - Mitt Val birtu í vor opið bréf til ríkisstjórnar Íslands, Ásmundar Einars Daðasonar, Willums Þórs Þórissonar, starfsmanna Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi, umboðsmanns barna og grunnskólakennara á Íslandi með áskorun til þeirra um að stöðva þetta sem er ekkert annað en óhugnanleg og skaðleg kynvæðing barna hér á landi.

Það náði ekki eyrum neinna frekar en önnur áköll og jafnvel bréf með stefnuvottum til þeirra, allt er hunsað af öllum, líka af forseta Íslands.

Nú er skólastarf um það bil að hefjast aftur hér á landi, og allir foreldrar þurfa nauðsynlega að kynna sér námsskrár barna sinna, í hvaða námsgreinum kynfræðslan á að eiga sér stað, og ekki hvað síst hverjir eigi að sjá um hana.

Ég skora á ykkur foreldra skólabarna að gera það strax áður en skólastarfið hefst, ef þið kærið ykkur ekki um að börnin ykkar fái svona "kynfræðslu"!

En hvernig getur þetta gerst hér á Íslandi?

0102aÞótt Alþingi hafi enga heimild til þess, þá virðist það vera smátt og smátt að framselja vald til erlendra stofnana, þar með talið til WHO.

Með því er verið að gera það kleift að evrópskar reglur verði teknar fram yfir íslenskar lagareglur.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari segir forgangsreglu ESB og bókun 35 (sem verið er að reyna að koma í gegn á Alþingi), gangi í berhögg við stjórnarskrá Íslands, og vera fullveldisafsal!

Við hljótum öll að vera farin að sjá að það er eitthvað mikið að í íslensku stjórnkerfi núna.

Við, þessi friðsama þjóð erum orðnir þátttakendur í stríðsrekstri annarrar þjóðar með milljarða fjárframlögum sem við fáum ekkert að vita um hvernig er varið, og nú eru skæðustu sprengjuþotur heimsins mættar á Keflavíkurflugvöll!

Hér er gegndarlaust innstreymi fólks frá öðrum þjóðum sem kostar okkur að minnsta kosti 20 milljarða á ári, fyrir utan allan óbeinan kostnað eins til dæmis heilbrigðisþjónustu.

Nýjasta fréttin er að Hótel Glymur í Hvalfirði muni hætta starfsemi í 24 mánuði til að hýsa allt að 80 hælisleitendur í boði Vinnumálastofnunar sem er í eigu ríkisins, og í allt þetta fara skattpeningarnir okkar.

Á meðan eru innviðir okkar sársveltir og heimilislausir Íslendingar fá ekki sama skilning og ókunnugir útlendingar um heimilisleysi sitt, hvað þá úrræði.

Ekki fæst betur séð en að við séum þegar orðin ofurseld erlendum tilskipunum - sem við erum búin að samþykkja að gangast undir. Reyndar ekki við þjóðin, heldur íslensk stjórnvöld.

Ætlar þjóðin bara að hafa augun áfram lokuð og hunsa þetta?

Og nú ætla þau að samþykkja einræði WHO í heilbrigðismálum þjóðarinnar án þess að við þjóðin höfum nokkuð um það að segja, enda er séð til þess að þetta fái enga umfjöllun á RÚV eða þessum helstu fjölmiðlum hér á landi.

En þótt við sjáum þetta ekki í fréttum þessara miðla, þá er þetta að gerast á bak við tjöldin.

Er erfitt að skilja - eða horfast í augu við að þetta sé raunverulega að gerast, og ef svo, þá hvers vegna?

Er það vegna þess að við sjáum þetta ekki í fréttunum eða að við viljum ekki trúa því að íslensk stjórnvöld séu að gera okkur þetta?

Ég verð að játa að ég er mjög hugsi yfir öllum þeim þúsundum manna og kvenna  hér á landi sem búin eru búin lesa allar upplýsingarnar og sannanirnar fyrir þessu yfirvofandi skaðræði, en virðast bara láta það sem vind um eyrun þjóta.

Ef þið trúið þessu ekki, leitið þá endilega sannana fyrir því gagnstæða.

Vandamál hverfa aldrei með því bara að stinga hausnum í sandinn - eða ætlast til þess að einhverjir aðrir leysi þau fyrir mann.

Það er á ábyrgð okkar allra að veita stjórnvöldum aðhald, og nú er svo komið að við verðum að senda þeim skýr skilaboð og segja hingað og ekki lengra, við ætlum ekki að leyfa ykkur að komast upp með að samþykkja þennan landráðasamning og krefjumst þess að við yfirgefum WHO!

Það gerum við hér með því að skrifa undir til að segja NEI við yfirvofandi einræði WHO í heilbrigðismálum þjóðarinnar með glæpa- og hryðjuverkamanninn Tedros Ghebreyesus í forsvari!

Þegar þið skrifið undir undirskriftalistann þá fáið þið strax tölvupóst þar sem þið eruð beðin um að smella á hlekk til að staðfesta að ykkar netfang hafi verið notað til að skrifa undir, og til að undirskriftin ykkar verði virk, þá verðið þið að smella á hann.

Margir póstþjónar hafa öflugar varnir og senda marga pósta í ruslmöppuna, svo það er gríðarlega mikilvægt að þið leitið þar ef þið finnið póstinn ekki strax.

Sameinumst núna áður en það verður of seint fyrir okkur öll

Sameinumst um að stöðva þetta landráð áður en það verður allt of seint fyrir okkur, þegar þessi lög verða komin á, þá verða þau ekki aftur tekin!

Stop the Global Agenda

Nokkur ný ummæli þátttakenda sem vita hvað er í húfi:

  • Sjálfsákvörðunarréttur fólks er smám saman að verða að engu. Stórhættuleg þróun.
  • eg er á móti því að einkafyrirtæki sé gefið alræðisvald yfir velferð okkar í heilbrigðismálum og það til manns sem á heima fyrir dómstólum fyrir stríðsglæpi
  • WHO á ekki hafa neitt vald yfir Íslandi eða neinni annari þjóð
  • Ísland er fullvalda ríki, og ræður sér sjálft, og við höfnum svona innrás í landið
  • Vil ráða sjálf yfir mínum líkama
  • Stoppa þessa glæpamenn og föðurlandsvikara
  • Ísland ræður fyrir íslendinga
  • ég vil að forseti og ríkisstjórn íslands og aðrir ráða menn,hafni fyrirhuguðum breytingum á alþjóðlegri heilbrigisreglugerð WHO, IHR og alþjóðlegum heimsfaraldurssamningi.
  • Ástæða mín fyrir þátttöku er að ég vil hafna yfirþjóðlegri stjórn yfir fullveldi lýðveldisins Íslands.
  • Sjálfstæði og sjálfræði Íslands skiptir höfuðmáli og verndun lýðræðis á dögum aukins fasisma og ofstækis á heimsvísu!
  • Að gera who æðra íslenskum lögum er glæpsamlegt alræði,brot á stjórnarskrá hegningarlögum og þetta fólk eru landráðamenn og ætti að setja umsvifalaust í fangelsi!

 

 


Ert þú samþykk/ur því að hryðjuverkamaður fái algjört einræði yfir heilbrigðismálum þjóðarinnar - og alls heimsins?

Tedros the Criminal

Trúirðu ekki að það sé mjög líklega að gerast? Dokaðu þá aðeins við og kynntu þér málið!

Sjónvarpstöðin Kla.TV hefur birt ítarlega umfjöllun um glæpa- og hryðjuverkamanninn sem er forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, og við hverju við megum búast ef (þegar?) hann nær völdum.

Þarna kemur meðal annars fram að hann hafi skipað þáverandi forseta Zimbabwe, Robert Mugabe sem velvildarsendiherra WHO.

Í því samhengi má geta þess að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands hefur verið útnefnd sendiherra velsældarverkefnis WHO á Íslandi til næstu tveggja ára.

Hann varð síðan að afturkalla embætti Mugabe eftir ofsafengin mótmæli.

Tedros

Hér er umfjöllunin í íslenskri útgáfu, horfið á hana til enda, lesið textaskýringarnar fyrir neðan líka, og kynnið ykkur heimildirnar, það er mjög mikilvægt.

„Tedros skjölin“ afhjúpa miskunnarlaust glæpafortíð núverandi framkvæmdastjóra WHO og afhjúpa hann sem hryðjuverkamann og alvarlegan glæpamann! Að mestu án vitundar almennings ætlar Tedros nú að verða valdamesti maður í heimi með nýjum alþjóðlegum samningum.

Það er rétt sem hér segir, þetta er að mestu að gerast án vitundar almennings, enda er gætt þess að þetta fái engar umfjallanir í þessum helstu meginstraumsfjölmiðlum.

Aðeins örfáir frjálsir og óháðir fjölmiðlar hér á landi hafa sýnt þá samfélagslegu ábyrgð að reyna að vekja þjóðina til vitundar um þennan yfirvofandi hrylling, og svo einhverjir einstaklingar eins og ég og fleiri.

RÚV hefur stórkostlega brugðist lögbundnum skyldum sínum varðandi fréttaumfjallanir, eins og berlega hefur komið í ljós undanfarin þrjú ár.

Er ég þá sérstaklega að vísa í Covid fárið - sem Tedros ætlar endurvekja núna.

Það er meira að segja búið að senda fréttastofu RÚV fyrirspurnir um hvenær hún ætli að fjalla um fyrirætlanir WHO, en engu er svarað, allt er hunsað.

Reyndar kemur það ekki á óvart.

Þetta hef ég skrifað undanfarið um WHO:

Í þessum greinum hef ég farið ítarlega yfir heimsfaraldurssáttmálann og breytingarnar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðunum sem þessi ókjörna stofnun er að reyna að ná í gegn. Og athugið, hún er að stórum hluta fjármögnuð af lyfjarisunum og Bill Gates, sem er einstakur áhugamaður um alls kyns bólusetningar.

Og kynnið ykkur sérstaklega hinar djöfullegu áætlanir WHO um börnin!

Alþjóðlegt ákall til vakningar fólks allra landa

Það virðist því miður vera mjög erfitt að vekja flesta Íslendinga til vitundar um hættuna sem bíður okkar allra, nái þessir siðblindu illvirkjar með þennan hryðjuverkamann í forsvari fram áformum sínum.

Það er kannski skiljanlegt, því þöggunin er algjör hér á landi, og engir af þessum helstu fjölmiðlum hér á landi hafa skrifað eitt orð um þetta grafalvarlega mál.

Ef þið gefið ykkur tíma til að kynna ykkur málin og skoða allar sannanirnar þarna að baki, þá sjáið þið að þetta er raunverulega að eiga sér stað - og í rauninni verðið þið að gera það.

Tími "samsæriskenninganna" er löngu liðinn, enda hafa þær flestar, ef ekki allar ræst.

Alþjóðasamfélagið, nánast allt fólk á jörðinni, stendur nú á tímamótum! Þrælkun þjóðanna er komið svo lævíslega fyrir að breytingarnar á alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðinni sem lýst er munu öðlast sjálfkrafa gildi nema þeim sé klárlega hafnað! Sá sem þegir - samþykkir því sjálfkrafa! Getum við leyft þessum spillta manni að hafa slíkar valdheimildir?

Samtök í mörgum löndum hafa sett í gang undirskriftalista til að mótmæla þessum landráðasamningum sem ríkisstjórnir flestra aðildarlanda WHO virðast ætla að samþykkja. Það væri ekki gert nema rík ástæða væri fyrir því.

Við í mannréttindasamtökunum Mín Leið - Mitt Val höfum að þeirra fyrirmynd hrundið af stað undirskriftasöfnuninni Íslenskt ákall gegn WHO: Nei við einræði í heilbrigðismálum.

Til að fræðast meira um hana og skrifa undir þá smellið þið hér, og það er gríðarlega mikilvægt að við sendum íslenskum stjórnvöldum skýr skilaboð, við ætlum ekki að láta ykkur komast upp með þetta!

Þegar þið skrifið undir undirskriftalistann þá fáið þið strax tölvupóst þar sem þið eruð beðin um að smella á hlekk til að staðfesta að ykkar netfang hafi verið notað til að skrifa undir, og til að undirskriftin ykkar verði virk, þá verðið þið að smella á hann.

Margir póstþjónar hafa öflugar varnir og senda marga pósta í ruslmöppuna, svo það er gríðarlega mikilvægt að þið leitið þar ef þið finnið póstinn ekki strax.

Viðbót:

Hvernig eru ákvarðanir teknar í Evrópu og hjá WHO? Hvar liggja völdin? Geta ókjörnir launaðir aðilar verið að fyrirskipa heilbrigðisákvarðanir hvers ríkis og á heimsvísu í einkahagnaðarskyni?

Wolfgang Wodarg, M.D., Ph.D., fyrrverandi þingmaður og þingmaður Evrópuráðsins fer yfir glæpastarfsemina í kringum heimsfaraldra, og ótta- og áróðursherferðirnar í fyrsta hluta nýrrar þáttaraðar um WHO með James Corbett og Meryl Nass, M.D.

Horfið á þetta hér.

Alþjóðlegt ákall vegna heimsfaraldurssáttmála WHO

Nokkur ummæli þátttakenda:

  • Vil ráða sjálf yfir mínum líkama . Þetta verður hryllingur , get ekki hugsað mér tilveruna ef þetta verður ekki stoppað .
  • Það er minn fæðingarréttur að hafa vald yfir mínum líka og ég mun aldrei afsala þeim rétti til einhvers annars, who er spillt stofnun inn í merg og það á að leggja hana niður.
  • Ég mótmæli yfirgangi alþjóðastofnana við að taka sér vald yfir öðrum.
  • Ný ákvæði WHO fela í sér framsal á persónufrelsi Íslendinga
  • Ég segi nei við einræði í heilbrigðismálum.
  • I want Iceland to maintain its sovereignty.
  • Ísland á ekki að láta erlend öfl, taka þátt í ákvörðunum varðandi líðheilsu almenns borgara. Og ef svo fer að t.d. verði teknar ákvarðanir um bólusetningar skyldu, er um mjög alvarlegt brot a mannréttindum að ræða.
  • ég treysti ekki who fyrir málefnum íslendinga
  • Fyrir börnin mín og okkar allra
  • Ég vil að Íslendingar geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir varðandi sína heilsu og velferð en séu ekki ofurseldir gerspilltum alþjóðlegum stofnunum sem vinna fyrir lyfjafyrirtækin.
  • Það er gegn öllum lýðræðislegum forsendum að veita WHO vald. WHO er ekki rekin á neinum forsendum lýðræðis.
  • Eg treysti ekki stjórnmála mönnum fyrir minni heilsu.
  • Óásættanlegt að Alþingi fremji landráð gagnvart Íslendingum
  • WHO eru eiginhagsmunasamtök með völd frekar en velferð mannkyns efst í huga. Ef þú trúir öðru þá lífiru í draumaheimi! Ísland ætti að segja sig undan þessum völdum STRAX

 

 

 

 

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband