Hverju hefur þessi "bólusetning" skilað? 2.318 tilkynningum um aukaverkanir. Telst það góður árangur?

1907Einmitt, "Svandís seg­ist telja að ekki sé um að ræða stefnu­breyt­ingu hjá stjórn­völd­um, þrátt fyr­ir að mark­miðið und­an­far­in miss­eri hafi snúið að bólu­setn­ingu lands­manna og í kjöl­farið að aflétt­ingu tak­mark­ana."

Tókuð þið eftir þessu, markmiðið undanfarin misseri hafa snúið að bólusetningu landsmanna.

Og já já, og í kjölfarið að aflétta takmörkununum. Sem á samt núna að herða aðeins aftur!

Já en þið lofuðuð virkni og öryggi þessara tilraunalyfja fyrirfram!

„Við sjá­um til dæm­is núna að bólu­setn­ing­arn­ar eru ekki að virka eins vel og við vonuðum vegna Delta-af­brigðis­ins og við verðum því að hafa var­ann á. Við reyn­um að tryggja fyr­ir­sjá­an­leika eins og hægt er.“

Ég veit að margir kusu Janssen lyfið því það þurfti bara eina sprautu af því, nú er sagt að líklega þurfi fólk að fá aðra.

Og nú er verið hægt og rólega að undirbúa fólk undir að það muni "þurfa" að fá þriðju sprautuna til að verjast gegn nýjum afbrigðum af einhverjum afbrigðum veirunnar.

Við skulum aldrei gleyma fyrirfram loforðum núverandi sóttvarnarlæknis árið 2009 um virkni og öryggi svínaflensubóluefnanna sem gerðu að minnsta kosti hundruðir unglinga að öryrkjum fyrir lífstíð bæði hér á landi og annars staðar.

"Spurð hvort að kom­andi kosn­ing­ar og kosn­inga­bar­átta setji strik í reikn­ing­inn er varðar sótt­varn­araðgerðir stjórn­valda seg­ir Svandís:"

„Ég vona ekki. Það hef­ur verið okk­ar gæfa að glím­an við veiruna hef­ur ekki verið póli­tískt bit­bein. Stak­ir þing­menn hafa lýst efa­semd­um á ein­hverj­um tíma­punkt­um en í meg­in­at­riðum höf­um við verið sam­mála. Ég vona að svo verði áfram.“

Hún, allir þingmenn og allir þeir sem stjórna aðgerðum hér á landi eru búin að fá ótal fyrirspurnir og upplýsingar um þessi líftæknilyf sem ranglega eru kölluð bóluefni, með tölvupóstum og jafnvel ábyrgðarbréfum.

Viðbrögðin hafa verið lítil sem engin, og fáir svarað nokkru. Við skulum hafa í huga að þetta fólk er í vinnu hjá okkur og á fyrst og fremst að bera velferð okkar sér fyrir brjósti.

Og við skulum líka hafa í huga að það er alveg að koma að kosningum....

Tilraunalyfin

Svo að þessum tilraunalyfjum sem nú er búið að sprauta í stærstan hluta fullorðinna hér á landi, og einhvern fjölda ungmenna með undirliggjandi sjúkdóma.

Hvernig sem á því stendur, þá þykja 2.318 tilkynntar afleiðingar vegna þeirra eitthvað svo lítið fréttaefni að það er nánast aldrei minnst á þær í fréttum, það er greinilega meira fréttaefni að svo og svo margir hafi "greinst" deginum áður.

Smellið á myndina til að sjá helstu veikindin og afleiðingarnar sem fólk hefur tilkynnt til Lyfjastofnunar.

1907a

Er þetta tákn um virkni og öryggi þessara lyfja? Eru 2.318 tilkynningar, þar af um 146 alvarlegar og lífsógnandi og (að minnsta kosti) 26 andlát ekki nógu merkilegar til þess að fjallað sé um þær í fjölmiðlum?

Hugsið ykkur, árið 1976 var bólusetningum hætt í USA eftir að 3 eldri borgarar létust. Hér á landi eru að minnsta kosti 26 látnir á þessu ári í kjölfar sprautanna, hvers vegna er ekki löngu búið að stöðva þetta?

Ef t.d. ný bílategund væri búin að valda svona skelfilegum skaða, væri löngu búið að taka hana úr umferð, því allir væru eðlilega brjálaðir yfir því að svona stórhættulegur og vanprófaður bíll væri á götunum!

Mikið getur mannskepnan verið skrítin!

 

 

 


mbl.is Svandís segir aðgerðirnar „mjög mildar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Nú eru að birtast ógnvekjandi tölur um afleiðingarnar í löndum ESB. 800.000 alvarleg tilfelli aukaverkana, 18.000 dauðsföll. https://healthimpactnews.com/2021/17503-dead-1-7-million-injured-50-serious-reported-in-european-unions-database-of-adverse-drug-reactions-for-covid-19-shots/

Þorsteinn Siglaugsson, 19.7.2021 kl. 20:47

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Þorsteinn,

Já þessar tölur eru skelfilegar, og hugsaðu þér, þær eru unnar upp úr opinberum gögnum!

Fólk verður að fara að viðurkenna fyrir sjálfu sér og öðrum að það hafi verið stórkostlega blekkt í þessum "heimsfaraldri".

Þessar "bólusetningar" hafa aldrei snúist um að vinna bug á neinni veiru, heldur að sprauta mannkynið með þessum efnum sem eru þegar farin að valda ómældum skaða, og við vitum að ekki nema hluti aukaverkana/afleiðinga er tilkynntur.

Sumir telja aðeins 1 - 10%, enda vita margir ekki að þeir eigi að tilkynna þær eða hvernig, svo reikna má með að skaðinn sé enn stærri en þetta.

Kristín Inga Þormar, 19.7.2021 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband