Þetta er bara pólitík í læknisleik, trúðu engu af því sem búið er að segja þér!

2108Þetta segir virtur kanadískur læknir sem talar hér tæpitungulaust um þennan meinta heimsfaraldur.

Þetta sé heimsfaraldur hræðslu sem var af ásettu ráði settur í gang og viðhaldið með þessum fölsku PCR prófum, og því að öll önnur umræða en "sú leyfilega" sé miskunnarlaust þögguð niður og bönnuð.

Hann segir líka að læknavísindin séu algjörlega ófær um að ná stjórn á öndunarfærasjúkdómum og að við verðum bara að lifa við þá eins og hverja aðra flensu.

Miðað við hvað illa hefur tekist að ná stjórn á "faraldrinum" hérna, þá má svo sannarlega taka undir það!

Og hvað þá þessi svokölluðu "bóluefni" sem eru sannanlega búin að valda gríðarlegum skaða og tugþúsundum dauðsfalla um allan heim. Að minnsta kosti eru 27 manneskjur látnar hér á landi eftir sprauturnar, 157 fengu lífsógnandi aukaverkanir, og 2.747 aðrir hafa líka fundið fyrir einhverjum afleiðingum vegna þeirra.

2008bÞrátt fyrir fyrirfram og marg ítrekuð loforð um öryggi og virkni þeirra, þá er hún ekki meiri en svo að nú á fólk að láta sprauta sig með einhverjum örvunarskömmtum, jafnvel af annarri tegund!

Þjár konur eru núna lamaðar eftir þessar "örvanir á ónæmiskerfum þeirra", og svo þessi móðir sem er komin með Bells Palsy sem er þekkt aukaverkun, og þekkir ekki lengur eiginmann sinn og unga dóttur.

Vonandi ná allar þessar blessuðu konur heilsu aftur.

Svei öllu þessu glæpahyski sem er búið ljúga að þjóðinni í meira en heilt ár núna og tæla stærstan hluta hennar í þessar sprautur og er nú byrjað að ráðast á börnin!

2108c

2108a

2108b

Nokkrar athugasemdir undir vídeóinu

"Politics playing medicine is a good way to put it.  People who are controlled by the feelings of their constituents ought not to be in charge of anything, especially medicine.  That the medical world went along with this fraud is also quite shocking."

"It is easier to fool someone than to convince one they have been fooled."

"Amazing. Thank you Dr. for your succinctly exposing these deadly lies."

"If ‘forced or threatened’ to get the ‘kill-Shot’, demand they prove the ‘alleged’ virus has even been scientifically ‘isolated’ ... it has NOT ! Question: How can you create a ‘vaccine’ for a virus if, you can not even prove it exists ..? The answer is obvious. The psychopaths are basing everything on a computer model and nothing more. This is all about population reduction under the Satanic United Nations ‘Agenda 21/2030’ and Bill Gates EVENT 201."

Vídeó frá 2013 um Agenda 21

Það er ekkert nýtt í sögunni að veruleikafirrtir og valdasjúkir aðilar taki sér það vald að skapa ótta meðal fólks um einhverjar yfirvofandi eða yfirstandandi "hættur".

"Create the problem. Create the solution to the problem. Sell the solution."

Það er löngu búið að ákveða að koma á nýrri heimsskipan (New World Order), og það fer ekkert á milli mála að aðgerðinni hefur verið hrint af stað núna af fullum krafti með þessum svokallaða heimsfaraldri.

Það þýðir ekki lengur að berja hausnum í steininn, afneita sannleikanum og treysta stjórnvöldum, þríeykinu og Kára áfram fyrir lífum okkar og heilsu.

Það sem Ann Bressington fjallar um í vídeóinu er hægt að finna á netinu ef fólk nennir að leita, og áhugasamir ættu líka að skoða Event 201 sem var æfing í heimsfaraldri sem var haldin kortér í heimsfaraldur.

Svo er The World Economic Forum með áætlanir sínar fyrir hönd okkar allra sýnilegar á heimasíðu sinni, og þær eru vægast sagt skelfilegar!

Að lokum legg ég til að orðuhafarnir verði allir sviptir orðum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

"Það er löngu búið að ákveða að koma á

nýrri heimsskipan (New World Order),

og það fer ekkert á milli mála að aðgerðinni hefur verið hrint af stað núna

af fullum krafti með þessum svokallaða heimsfaraldri".

--------------------------------------------------------------------------------------

Sæl Kristín; þú ert ,með þetta allt á hreinu

og ættir að fá fálkaorðuna fyrir RIT-VÖRNINA.

Lítur þú á forseta íslands og ríkislögreglustjórann 

sem glæpahyski eða stökkva þeir bara á vagninn í sinni fávisku?

Jón Þórhallsson, 21.8.2021 kl. 20:29

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jón,

Það hefur lítið heyrst frá forseta vorum í þessum meinta heimsfaraldri, nema þá helst umfjöllun og mynd af hans eigin "bólusetningu" (með placebo?)og hvatningarorð hans til þjóðarinnar um að láta sprauta sig.

Er ríkislögreglustjórinn ekki yfir orðuhafanum Víði sem hefur verið í framlínunni í eitt og hálft ár núna?

Sé þetta fólk vísvitandi að blekkja þjóð sína, þá er það ekkert annað en glæpahyski í mínum huga.

Kristín Inga Þormar, 21.8.2021 kl. 21:15

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvernig er Miðflokkinn?

Myndi hann samþykkja allt sem að kæmi frá þrýeykinu án þess að deppla auga

eða myndi hann standa undir nafni sem STJÓRNAR-ANDSTAÐA?

Jón Þórhallsson, 21.8.2021 kl. 21:35

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Jón,

Hefurðu heyrt þingmenn Miðflokksins tjá sig mikið um áhyggjur af öllum þessum sóttvarnaraðgerðum eða tala gegn þessum "bólusetningum"?

Ég verð annars að viðurkenna að ég fylgist ekki mikið með þeim þingflokki, enda ekki mikill aðdáandi hans.

Viðsnúningur Helgu Völu í Samfylkingunni á nokkrum dögum er hálf pínlegur, fyrst vildi hún herða aðgerðir, svo allt í einu nokkrum dögum seinna segir að við verðum að læra að lifa með veirunni.

Við skulum líka hafa í huga að það eru að koma kosningar með tilheyrandi kosningaloforðavaðli, svo fáir eru líklega viljugir til að rugga bátnum og eiga á hættu að missa stólana sína.

Kristín Inga Þormar, 21.8.2021 kl. 22:19

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sælt veri fólkið! Nei Fálkaorðuna frá forseta sem var vainn og auglýstur á Rúv,þegar heitir Íslandsvinir reyndu af veikum mætti að koma sínum mönnum að og var þá verðið að berjast gegn inngöngu í ESB.Kristín verðskuldar hreina viðurkenningu frá ærlegum Íslendingum. Stoppa hér augnablik aður en löggan þurkar allt út hja mér.

Helga Kristjánsdóttir, 22.8.2021 kl. 02:11

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæl Kristín! Ég hef dálæti á Sigmundi en margir hafna honum vegna fyrrverandi Framsóknarmanni.-Hann var gabbaður í viðtal við Svía og það í ráðherrabústaðnum meðan hann var ennþá forsætisráðherra valinn af Ólafi Ragnari forseta.flestir vita um hvað það snýst um en íslenskir Kratar vinna líkt og Amerískir snúa öllu sér í vil með fjölmiðlum. Ekki er mikið um að menn kunni þeim þakkir fyrir,úthald fram á rauða nætur i tilraun að soppa af Orkupakka til Evropusambandsins,  

Helga Kristjánsdóttir, 22.8.2021 kl. 02:26

7 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Helga,

Já það má alveg hrósa honum fyrir það sem hann hefur gert vel, eins og í baráttunni gegn þessum orkupökkum.

Kristín Inga Þormar, 22.8.2021 kl. 11:55

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl aftur Helga,

Ég er að miklu leyti til hætt að fylgjast með þessum svokölluðu fjölmiðlum hérna, enda blöskrar mér einhliða fréttaflutningurinn og stöðugi hræðsluáróðurinn sem er þar alla daga, sérstaklega hjá RÚV sem á víst að vera okkar allra en er það svo sannarlega ekki.

Það hefur heyrst ákaflega lítið komið frá forsetanum held ég í þessum meinta faraldri, og ef hann hefur sem sagnfræðingur að mennt ekki hugmynd um hvað raunverulega er í gangi í heiminum í dag, þá hef ég misst allt álit á honum.

Kristín Inga Þormar, 22.8.2021 kl. 12:06

9 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Æ,takk fyrir vona að Íslendingar kjósi sjálfstæði sitt aftur.

Helga Kristjánsdóttir, 22.8.2021 kl. 22:03

10 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Helga,

Ég er ekkert viss um það, fólk virðist trúa vaðlinum frá þessu liði aftur og aftur fyrir hverjar einustu kosningar, þótt sagan sanni að flest fögru kosningaloforðin eru fallin í gleymsku og dá eftir kjördag.

Sama má segja um fólkið sem hefur því miður lagt allt traust sitt á þríeykið, Kára og stjórnvöld í þessum meinta faraldri, og látið sprauta sig með einhverjum tilraunaefnum sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda.

Þúsundir hafa tilkynnt aukaverkanir, og líklega annar eins fjöldi ekki gert það, og ég veit um margt fólk sem er enn að glíma við aukaverkanir mörgum mánuðum eftir tilraunaglundrið og dauðsér eftir að hafa látið blekkjast.

Nú hafa mörg ungmenni á landsbyggðinni þegar verið sprautuð, og Laugarvaxhöllin opnar dyrnar sínar á morgun og hinn fyrir börn á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta er martröð sem við erum að upplifa núna.

Kristín Inga Þormar, 23.8.2021 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband