Hvað í ósköpunum er í gangi, tilkynningum um aukaverkanir fjölgaði um 88 síðan í gær!

Hvað veldur þessari gríðarlegu aukningu á aðeins einum degi? Er þetta út af "örvunar"sprautunum? Það er að minnsta kosti það fyrsta sem manni dettur í hug.

Og athugið, allar 88 eru tilkomnar vegna P F I Z E R!

Tilkynntar aukaverkanir 20.10.21.

2010d

Hér sjáið þið þetta svart á hvítu:

Tilkynntar aukaverkanir 19.10.21.

1910k

 

Örvunarskammar

Bóluefnið Pfizer er notað í örvunarskammta.

Örvunarskammtar eru í boði fyrir þessa hópa:

  • Fólk sem fékk Jansen og meira en 28 dagar eru liðnir frá bólusetningunni.
  • Fólk sem er 70 ára og eldra ef 3 mánuðir eru liðnir frá seinni skammti.
  • Fólk sem er 60 ára og eldra ef 6 mánuðir eru liðnir frá seinni skammti. 

Heimild.

Hvað er hægt að gera til að stöðva þetta?

Ég hef því miður ekki svarið við því, en ráðlegg þeim sem eru að hugsa um að fara í þriðja skotið eða eiga ættingja eða vini sem ætla að fara, að staldra aðeins við og hugsa hvort það sé áhættunnar virði.

Þetta tiltekna "bóluefni" hefur valdið lang mestum skaða á fólki hér á landi, og valdið dauða að allra minnsta kosti 24 manns.

Ég treysti bara Þórólfi, hann er sérfræðingurinn!

Þetta er því miður viðhorfið hjá allt of mörgum ennþá. Hann virðist hafa endalausar áhyggjur af "smitum" og útbreiðslu "faraldursins", en ég man ekki til þess að hann nokkurn tímann tjáð sig um áhyggjur af öllum þessum aukaverkunum, né um þá sem eiga um sárt að binda eftir sprauturnar. Eða alla þá sem eru látnir eftir þær.

Eftir yfirlýsingar svo mánuðum skipti um miklar væntingar til þessara efna sem áttu að leiða heimsbyggðina út úr "faraldrinum", þá byrjaði bólusetningarhátíðin með pompi og prakt í byrjun þessa árs.

Byrjað var á hrumasta hópnum, 8 létust í janúar, en það kveikti greinilega ekkert á neinum viðvörunarbjöllum, ekki frekar en öll hin 24 í kjölfarið.

Vonbrigðin og "örvunar"sprauturnar

Eftir að hann lýsti yfir vonbrigðum með virkni þessara efna í sumar, þá var farið að kynda undir tilhugsunina um "örvunar"sprautur, og eru þegar tæplega 57.000 manneskjur búnar að fá þær núna.

Og í þetta skiptið, þrátt fyrir að hann viðurkenni að engar rannsóknir liggi fyrir um áhrif þess að gefa fólki einn skammt af einu efni og annan af öðru, þá var þetta keyrt af stað. Hann viðurkennir jafnframt að það hafi ekki verið gert annars staðar.

Semsagt, með þessu er hann að viðurkenna að hann sé að gera tilraunir með fólk!

En það er ekki bara hér á Íslandi sem þessi tilraunaefni eru að stórskaða og drepa fólk, heldur líka um allan heim.

2010g

Hér getið þið séð opinberlega tilkynntar aukaverkanir í Bandaríkjunum, og talið er að ekki sé nema 1-10% aukaverkana rati þarna inn.

Spurning er þá hvernig þessu er háttað hér á landi, hvort allt rati inn til Lyfjastofnunar?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Yfirvöld sitja uppi með töluvert magn "bóluefna" sem eiga frekar stuttan "notkunartíma" eftir (þau eru að komast á síðasta söludag) og það má ekki eyða ónotuðu efni, samkvæmt samningi og þar af leiðandi VERÐUR að koma þessu efni í notkun.  Þá liggur beinast við að "búa" til notkunarmöguleika svo að börnin eru næst á dagskrá og hvað er betra en að "búa" til veikindi hjá þeim í fjölmiðlum svo fólk sjái að það VERÐUR að "bólusetja" þau...........

Jóhann Elíasson, 20.10.2021 kl. 21:10

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jóhann,

Já, það er deginum ljósara að það stendur hreint ekkert til að hætta þessum eiturgjöfum, alveg sama hvað margir skaðast fyrir lífstíð eða deyja.

Og nú er einmitt verið að kynda undir "nauðsyn" þess að sprauta þessu eiturglundri í börnin. Ég trúi ekki einu orði af því sem þessi maður segir eða allir sem eru að hvetja fólk í þessar sprautur.

Ótta fólks er viðhaldið með þessum glæpsamlegu fölsku PCR prófum og því að senda fólk endalaust í einhverjar fáránlegar sóttkvíar og einangranir.

En sofandi Íslendingar treysta bara Þórólfi sínum.

Kristín Inga Þormar, 20.10.2021 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband