Hefur sóttvarnalæknir ekki frétt af 28.103 andlátum og 2.637.525 aukaverkunum eftir sprauturnar í Evrópu?

2904bNú er búið að senda þúsundir hressra Íslendinga í sýnatökur með prófum sem gefa allt að því 97% falskar jákvæðar niðurstöður, og úr því varð til ný "bylgja", sem hefur enn og aftur leitt til samkomutakmarkana og grímuskyldu.

Sjáiði ekki hversu auðvelt er að gera þetta? Daglegar "fréttir" og hræðsluáróður í fjölmiðlunum um "smittölur" gærdagsins og fólk hvatt til að fara í sýnatökur.

Og veiruhræddur landinn, jafnvel "fullbólusettur" (sem þýðir víst "grunnbólusettur" núna) hleypur til og hlýðir (Víði), og veltir ekkert fyrir sér hvers vegna endalaust eru að koma upp "bylgjur" hjá einni mest sprautuðu þjóð í heimi!

Snýst þetta um að koma út þessum 1.4 milljónum skammta af Pfizer sem búið er að skuldbinda okkur til að kaupa og nota?

Ef þessir 160.000 sem boðaðir verða í "örvunar"sprautur á næstunni þiggja þær, þá verða eftir 1.24 milljónir skammta, og athugið, það á að sprauta þessum efnum í fólk allt fram á árið 2023!

Það er greinilega skelfilega auðvelt að skella í nýjar "bylgjur" til að koma út fleiri skömmtum. Ætlar fólk virkilega endalaust að trúa þessu og láta sprauta sig á hálfs árs fresti með einhverjum efnum sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda?

Glórulaus ósannindi hjá heiðursorðuhafanum, allt til að fá fólk í sprauturnar!

„Það er ekki nokk­ur spurn­ing að fólk á að þiggja bólu­setn­ingu. Við sjá­um að bólu­setn­ing er svona 50% virk við að koma í veg fyr­ir smit og við náum ekki hjarðónæmi með henni. Engu að síður er hún áhrifa­rík við að hindra smit og sér­stak­lega að koma í veg fyr­ir al­var­leg veik­indi. Þetta sýna töl­ur er­lend­is frá sem passa við okk­ar töl­ur sem sýna þetta mjög glöggt,“ seg­ir Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir við Morg­un­blaðið.

Mér þætti fróðlegt að sjá hvaðan þessar tölur erlendis frá sem sóttvarnalæknir vísar í, í þessu viðtali.

Á myndinni hér fyrir neðan sjáið þið tilkynntar aukaverkanir og andlát í þeim 27 Evrópulöndum sem eru í Evrópusambandinu, og senda þær til EudraVigilance.

Fjöldi landa sem tilheyra Evrópu er um það bil 50, svo það gefur augaleið að aukaverkanir og andlát í álfunni eru miklu fleiri.

Hér getið þið séð sundurliðaðar aukaverkanir eftir hvert "bóluefni", miðað við 19. október 2021, og þær er hroðalegar.

Þessi svokölluðu "bóluefni" skaða fólk og/eða drepa

0611c

 

Sóttvarnalæknir segir alla eiga að þiggja bólusetningu

Það blasir við öllum sem sjá vilja að hann er ekki að vinna fyrir þjóðina, og hann er ekki að virða læknaeiðinn sinn, svo hvaðan fær hann fyrirskipanir?

Hvaða heiðvirður læknir hvetur fólk til að láta sprauta sig með efnum sem valda svona gríðarlega miklum skaða?

 

0611d

Prófið að gúggla "died suddenly" (án gæsalappa) og smella á news/fréttir. Þá munuð þið sjá ótal fréttir um fólk, allt niður í unglinga sem varð bráðkvatt.

Þótt auðvitað sé ekkert hægt að fullyrða um að dánarorsakirnar hafi verið út af sprautunum, þá eru þessar fréttir átakanlega margar, og sérstaklega þær af ungu fólki.

Hér eru nokkur dæmi sem komu upp í minni leit, þið getið fengið aðrar leitarniðurstöður.

Umhugsunarefni:

Ég fékk þetta að láni frá Facebook færslu:

  • "89% landsmanna fullbólusett
  • Eða 283.301 einstaklingar
  • 12 ára og eldri....
  • 12.000 börn hafa verið bólusett með tilraunalyfi...
  • Það hafa bara 5 dáið á þessu ári 2021 útaf Covid-19
  • 29 Íslendingar dóu í fyrra
  • Árið 2005 dóu 29 Íslendingar úr flensu
  • 14 af 29 voru yfir áttrætt
  • 6 af 29 voru yfir nírætt
  • Samtals 21 einstaklingar sem voru 80+ í aldri
  • Lífslíkur karlmanna á Íslandi er 81 ár
  • Fyrir konur eru það 83 ár
  • 32 Íslendingar dáið útaf bólusetningu
  • Lyfjastofnun hefur borist 5.508 tilkynningar um meintar aukaverkanir í kjölfar COVID-19 bólusetningar. Þar af 226 alvarleg.
  • Um 1900 Íslendingar deyja árlega
  • Það er talað um fjórðu sprautuna í Ísrael
  • Það er talað um þriðju sprautuna á Íslandi
  • Bóluefnið er ekki að virka!
  • Það hefur aldrei áður þurft að sprauta fólk aftur og aftur með bóluefni...
  • Er almenningur í svona mikilli afneitun!?
  • Landlæknir hélt aftur upplýsingum um 2000 aukaverkanir!"

Já, almenningur er í gríðarlegri afneitun, eða hreinlega heilaþveginn af þessum linnulausa hræðsluáróðri.

Ég kæri mig ekki lengur um að vera svipt sjálfsögðu persónufrelsi og vera skikkuð til að anda aftur að mér úrganginum sem lungun mín eru að losa sig við með þessum bölvuðu grímum.

Þetta mun aldrei enda nema fólk fari að rakna úr doðanum og segja NEI, HINGAÐ OG EKKI LENGRA!

Annars munum við fá yfir okkur "nýjar bylgjur", og þá helst fyrir jól, páska og verslunarmannahelgarnar, þegar fólk kemur saman og nýtur samvista hvert við annað. Haldiði að þetta séu einhverjar tilviljanir?

 

0611e

Í boði íslenskra stjórnvalda eruð þið þátttakendur í lyfjatilraun lyfjafyrirtækja sem hafa þurft að greiða milljarða dala í sektir fyrir mútur, vörusvik og annan óþverra!

0611g

Enginn myndi láta sprauta sig ef Þórólfur téði sig jafn mikið um skaðræði þessara genabreytandi tilraunaefna, og þessar endalausu "áhyggjur" sínar af "faraldrinum"!

Það eru hlýðnu, sofandi sauðirnir sem viðhalda þessu ástandi og aftra því að ég og allir þeir sem eru búnir að sjá í gegnum leikritið fyrir lifandis löngu, fáum óhrædd að lifa okkar eðlilegu lífum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ítalía, sem nú er að þvinga alla borgara sína í eiturefnavopnið hefur nýlega viðurkennt að 97% covid dauðsfalla voru af öðrum sjúkdómum.

Siðmenning hrunin um allan heim. Enginn vill spyrja sig hvernig átta milljarðar manna sturluðust á einu bretti.

Guðjón E. Hreinberg, 6.11.2021 kl. 17:43

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Já ég á einhvers staðar til þessi gögn um Ítalíu, kannski efni í blogg á næstunni ef þau eru sýna fram á góðar heimildir.

Þessi spurning verður væntanlega spurð síðar þegar allar blekkingarnar og glæpirnir gegn mannkyninu verða loksins komnir upp á yfirborðið, en ekki fyrr, ekki á meðan þessi massa hystería stendur yfir.

Og þar held ég að Íslendingar slái öll met sem hægt er að slá!

Kristín Inga Þormar, 6.11.2021 kl. 18:13

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Við þurfum að samræma varnir gegn áróðrinum og nýmælginni.

Baráttulínan í flestum Evrópulöndum er nú um aðskilnaðarstefnu.

Sem betur fer hefur baráttan hér á landi ekki verið færð á þá línu, ennþá. Þess vegna er nú tækifæri fyrir okkur sem viljum verjast slíku að flykkjast öll á þá línu og helga okkur hana sem helstu varnarlínuna. Nýtum okkur rýmið sem er á þeim stað umræðunnar og yfirtökum það.

Enga aðskilnaðarstefnu á Íslandi, aldrei!

Guðmundur Ásgeirsson, 7.11.2021 kl. 16:31

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðmundur,

Aðskilnaðarstefnan er nú samt að byrja hér á landi, ég er búin að sjá skjáskot úr lokuðum FB hóp þar sem farþegi í leigubíl varð brjálaður yfir því að bílstjórinn væri ósprautaður og þar með að setja viðkomandi "í hættu".

Ég hef líka séð að hárgreiðslukona ætlaði að hætta að taka við ósprautuðum kúnnum, og einhver óskaði eftir handlangara tímabundið og viðkomandi yrði að geta sannað að hann væri sprautaður.

Svo ég óttast því miður að hún sé ekki langt undan hér á landi.

Kristín Inga Þormar, 7.11.2021 kl. 20:57

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Og Friðik Ómar vill aðskilnaðarstefnu í aðgengi að listviðburðum og afþreyingu. Það frá sem manni sem tilheyrir minnihlutahópi sem mátti lengi búa við útskúfun og ígildi aðskilnaðarstefnu.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.11.2021 kl. 21:26

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Guðmundur,

Já! Ég sá þetta einmitt áðan, og missti eiginlega andlitið. Gerir maðurinn sér ekki grein fyrir hvað hann er að gera með þessu?

Kristín Inga Þormar, 7.11.2021 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband