Umsögn mín um frumvarp heilbrigðisráðherra til sóttvarnalaga - mál nr. 26/2022.

Nú eru síðustu forvöð að skila inn umsögnum um þetta frumvarp, og það er ánægjulegt að sjá hvað margir eru þegar búnir að skila góðum umsögnum inn.

Mér datt í hug að taka annan vinkil á þetta, en það varðar fréttaflutninginn í þessum "heimsfaraldri" öllum, því ég tel nauðsynlegt að vekja athygli á þeirri hlið mála líka.

HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Skógarhlíð 6
105 Reykjavík

Reykjavík 15. febrúar 2022

Efni: Umsögn um frumvarp heilbrigðisráðherra til sóttvarnalaga - mál nr. 26/2022.

Fréttaflutningur í heimsfaraldri

Þótt það komi ekki beint þessari umsögn um sóttvarnalög við,  þá tel ég nauðsynlegt að vekja athygli á fréttaflutningnum í þessum Covid-19 faraldri, og hvernig upplýsingagjöf til þjóðarinnar hefur verið háttað.

Það er mat mitt að hann hafi verið ámælisverður, ákaflega einhliða, og einkennst af hræðsluáróðri með aðaláherslu á að fá fólk til að bólusetja sig með tilraunalyfjum sem lítil reynsla var komin af.

Daglega eru birtar nýjustu smittölurnar, og birtar sérstakar fréttatilkynningar um að einhver hafi látist úr veirunni, og nú síðast ef einhver hefur látist með hana í sér.

Aldrei eru birtar sérstakar fréttatilkynningar um þá sem létust í kjölfar bólusetninganna, sem eru 36 til og með janúar 2022.

Sjaldan eða aldrei hefur verið fjallað í fréttum um þá sem hafa fengið aukaverkanir eftir bóluefnin, sem samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Lyfjastofnun eru 6.110, þar af 246 alvarlegar og lífsógnandi, og 36 andlát.

Þarna virðist upplýsingum sem sannanlega varða almannaheill hafa verið kerfisbundið haldið frá almenningi.

Mega völd á fárra höndum stjórna því hvað telst fréttnæmt og hvað ekki þegar þjóðin glímir við heimsfaraldur?

Þessi gríðarlegi fjöldi aukaverkana og andláta í kjölfar bólusetninganna vekur líka upp þær áleitnu spurningar hvers vegna þær voru ekki stöðvaðar strax og tilkynningar fóru að berast í janúar 2021 þegar 6 aldraðir einstaklingar höfðu látist í kjölfarið.

Hvar liggur sú ábyrgð?

Kristín Þormar
Gjaldkeri í stjórn Mannréttindasamtakanna MÍN LEIÐ MITT VAL

Jafnframt vísa ég í umsögn Guðrúnar Bergmann sem færð var inn í þessa samráðsgátt fyrr í dag.

 

Sjáið allar umsagnirnar hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég vissi að Íslendingar ættu góðar klárar og tryggar landi sínu,sendi baráttukveðju. skrifa undir hvað

 sem þið eruð með á prjónunum til hagsældar.

Helga Kristjánsdóttir, 16.2.2022 kl. 12:58

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Helga,

Kærar þakkir fyrir stuðninginn, ekki veitir af í baráttunni fyrir mannréttindum fyrir okkur öll! smile

Kristín Inga Þormar, 16.2.2022 kl. 19:22

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Við skyndirýni virðist þetta snúast meira um ábyrgðarfirringu og valddreifingu en vísindi og heilindi, eins konar yfirklór yfir fyrri [þjóðar]glæp þegar breytingar á lögunum voru samþykktar í feb 21.

Ef maður gæti nú fengið myrkar miðaldir aftur. Þá voru lygarnar heiðarlegar.

Guðjón E. Hreinberg, 19.2.2022 kl. 19:47

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Eins og við vitum vel, þá hefur þetta aldrei snúist um að vernda heilbrigðiskerfið eða líf okkar og heilsu, og það er hreint með ólíkindum að fólk skuli almennt ekki vera farið að sjá í gegnum þetta eftir heil tvö ár.

Það kom heilmikið inn af góðum athugasemdum þarna svo það verður fróðlegt að sjá hvernig lögin verða endanlega.

Staðan er nú orðin þannig að maður er hættur að treysta neinu sem kallast "vísindi" þessa dagana, og það er með ólíkindum hvað mikið er búið að ljúga að fólki og fela gögn sem hæfa ekki þessum eina "rétta" málstað.

Kristín Inga Þormar, 20.2.2022 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband