Sannleikurinn um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" er sífellt að koma betur og betur upp á yfirborðið.

Nú er stórskotaliðið búið að heiðra Þórólf Guðnason fyrrverandi sóttvarnalækni, sem lítur sáttur og stoltur yfir farinn veg í "heimsfaraldrinum". 

Kári Stefánsson fór fögrum orðum um hann og sagði:

„Í fyrsta skipti áttum við leiðtoga sem við treystum – og það skiptir máli, Þórólfur,“ sagði hann og kallaði að lokum Þórólf vin sinn, félaga og fóstbróður.

Ég sé alveg fyrir mér að væmnir hörputónar hafi verið spilaðir undir lofrullunni.

Hvað vita þessir menn sem þjóðinni hefur aldrei verið sagt, og hvers vegna þrýstu þeir á alla að fara í þessar "bólusetningar", þrátt fyrir að þeir vissu fullvel að þessi sprautuefni hefðu verið búin til á mettíma án fullnægjandi prófana á fólki? Eru þetta ekki læknar og vísindamenn? 

Það má alveg velta upp þeirri spurningu hvort einhverjir fái greitt fyrir hverja sprautu hér á landi eins og í USA, sjá hér og hér.

0925

Sem betur fer eru fleiri að vakna

Þökk sé internetinu, þá er núna auðvelt að afla sér upplýsinga sem eru ekki birtar á meginstraumsfjölmiðlunum, hvorki hér á landi né annars staðar.

Doctors-Warn-COVID-VaccineÓlýðræðisleg ritskoðun hefur fætt af sér nýja miðla, sem jú vissulega birta líka vafasamt efni eftir vafasamt fólk, en þar fá þeir vettvang sem hafa verið úthýst af meginstraumsfjölmiðlunum og samfélagsmiðlunum.

Læknar og vísindamenn eins og þessir sem sjá má á myndinni sem hafa verið útskúfaðir, smánaðir og reknir úr störfum sínum fyrir skoðanir sínar á "heimsfaraldrinum" og þessum efnum sem búið er að sprauta í milljarða manna, kvenna og barna hafa fengið vettvang þar.

Ég rakst á vídeó með þeim: Doctors Around the World Issue Dire WARNING: DO NOT GET THE EXPERIMENTAL COVID VACCINE!!

Þar vara þeir við hugsanlegum afleiðingum þess að láta sprauta þessum efnum í sig, og þetta eru afleiðingar sem því miður hafa raungerst að miklu leyti eða öllu.

Og athugið, þetta var tekið var upp í desember 2020 - áður en sprautuherferðirnar byrjuðu!

Formáli Steve Cook að viðtali Maajid Nawaz við Dr. Mike Yeadon (Lausleg þýðing)

Ég get ekki lagt nógu ríka áherslu á hversu mikilvægt það er að þið horfið á þetta vídeó.

Þið munið örugglega fá sjokk við að horfa á það, því upplýsingarnar sem þar koma fram eru svo sláandi.

Þar kemur mjög skýrt fram hvernig hundruð þúsunda manna og kvenna hafa verið myrt af tómri illsku af ríkjum sínum. Og morðin eru enn að að eiga sér stað, dauðsföllum fjölgar enn og gerendurnir hafa hingað til komist framhjá dómskerfinu.

En þeir dagar verða bráðum liðnir, þar sem, þökk sé viðleitni hetjanna sem koma fram í þessu vídeói, sem draga fram sannleikann um ólýsanlega glæpi sem haldið hefur verið frá okkur með glæpsamlegri ritskoðun.

Þetta vídeó mun hjálpa gríðarlega mikið til við að dreifa sannleikanum og flýta fyrir veldishraðavexti andófshreyfingarinnar, þar sem sífellt fleiri eru að rísa upp gegn framgangi þessarar glæpsamlegu og siðlausu harðstjórnar.

Sjá hér.

Viðtalið sjálft

Ég sat sem límd fyrir framan skjáinn í þennan tæpa eina og hálfa tíma sem viðtalið tók, allt sem hann segir þarna er hárrétt og auðvelt að sannreyna með leit á öðrum leitarvélum en Google.

Maajid byrjaði á að lesa upp bréf sem Mike skrifaði nýlega og má finna á netinu:

The most important single message I’ve ever written.

It was prompted by this superb expose of malfeasance in UK government.

Dear everyone who is nervously looking around and is asking “What the hell is going on?”,

I hope this isn’t too controversial. It’s certainly frightening, but I believe we are still the right side of disaster and if enough of us become aware of what is happening here and everywhere in the democratic world, we can recover the situation.

We really don’t have long. I believe it’s likely things will change irretrievably over this coming winter. Hence this urgent and unusual request.

Everything that’s happened and is happening becomes much simpler and it all makes sense, only when you force yourself to think the impossible.

If you experimentally adopt the position that OUR GOVERNMENT IS ACTIVELY WORKING TO HARM US, TO DISMANTLE MODERN SOCIETY AND ENSLAVE ALL PEOPLE IN A DIGITALLY-CONTROLED TOTALITARIAN WORLD, it all fits. Nothing is surplus.

Restin af bréfinu er hér, og viðtalið sjálft hér.

0924a

Þarna töluðu þeir meðal annars um það sem hann skrifaði í bréfinu hér að ofan, "bóluefnin", um notkun sjúkrahúsa á morfíni og lyfi sem heitir midazolam (sem meðal annars er notað við aftökur fanga í USA), og lyfið remdesivir, sem vitað er að getur valdið nýrnabilun og dauða sjúklinga.

Ég ætla ekki segja meira um viðtalið, þið verðið bara að horfa á það sjálf. Ef þið viljið ekki trúa því sem þar er sagt, spyrjið ykkur þá sjálf hvort þið trúið því að allt sem okkur hefur verið sagt undanfarin tvö og hálft ár um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" sé örugglega allt satt og rétt.

Hefur fólk (jafnvel ungt að aldri) orðið bráðkvatt nýlega í kringum ykkur, fengið hjartaáföll, blóðtappa, heilablóðföll, greinst með illviðráðanleg krabbamein eða einhverja nýja sjúkdóma, lamast, misst heyrn eða sjón, misst fóstur eða fætt andvana börn, eða fengið illviðráðanleg útbrot á líkamann - svo fátt eitt sé nefnt?

Fólk sem hugsanlega hefur fengið tvær eða fleiri sprautur?

Ég tek heils hugar undir það sem einn sagði undir vídeóinu:

Brilliant interview. Frightening but one that needs to be seen and heard.

Hvernig Kári, Þórólfur, Ragnheiður Ósk og allir þeir sem hafa blekkt nánast alla þjóðina í þessar sprautur geti sofið á nóttunni, er ofar mínum skilningi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það sem vekur mesta furðu, er hvenig vel menntaður almenningur er upp til hópa enn að kalla það samsæris kenningu að um sé að ræða Lygafarsótt og Eitursprautur, og notar engan tíma - að því er virðist - til að rannsaka nánar; heldur treður í sig daginn út og daginn inn nýjum lygum m.a. um hernaðar átökin í Evrópu og efnahagsmál um allan heim bæði þær efnahagshörmungar sem Davos mafían og tengdir aðilar demba heilu þjóðríkjunum útí og svo hvernig þjóðríkin eru að hópast í bæði nýja efnahagssamvinnu og alþjóðalagasamvinnu með Kína, Rússum og Indverjum, eða taka eftir hvernig gulapressan sem enn nefnist fjölmiðlar láta eins og ekkert af því sé að gerast.

Guðjón E. Hreinberg, 25.9.2022 kl. 16:39

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Ég hef nú stundum nefnt það í bloggum að á hátíðarstundum erum við stundum sögð vera svo vel lesin og menntuð þjóð.

En það erum við einmitt ekki, og flestir virðast sækja sinn "sannleika" á RÚV og þess konar miðlum.

Og hafa ekki hugmynd um hvað er að eiga sér stað í heiminum núna.

Kristín Inga Þormar, 25.9.2022 kl. 16:51

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég hef það á tilfinninguna að ef þú fyllir kodda- og sængurverið af ferskum peningaseðlum sem þú fékkst fyrir greiðasemi þína að þá sofir þú af þér alla slæma samvisku. Brakið í seðlunum róar og ruggar manni í svefn.

Geir Ágústsson, 25.9.2022 kl. 18:00

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Ja, það skyldi þó ekki vera? Miðað við hvað aðgerðirnar í "heimsfaraldrinum" voru furðulega samræmdar milli landa, og sami hræðsluáróðurinn alls staðar nánast upp á orð.

Eins og t.d. við erum öll í þessu saman, við berum öll ábyrgð, og skríðum öll inn í jóla- og páskakúlur.

Er þá nokkuð óhugsandi að ímynda sé að einhverjir hafi líka grætt feitt á sprautunum hér á landi?

Kristín Inga Þormar, 25.9.2022 kl. 18:52

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Á sama tíma, í höfuðstöðvum Pfizer: https://www.zerohedge.com/covid-19/pfizer-ceo-has-covid-second-time-two-months

Ásgrímur Hartmannsson, 25.9.2022 kl. 21:44

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Ásgrímur,

Ég hló nú þegar ég sá þessa "frétt" fyrst. Trúir einhver því virkilega að hann hafi látið sprauta sig fjórum sinnum með þessu eiturglundri sínu?

Og á það að hann sé núna tvisvar á stuttum tíma búinn að pestina þrátt fyrir allar sprauturnar að æsa fólk í fleiri skammta? Eða er þetta til þess að reyna að selja nýja glundrið Paxlovid?

Og hvers vegna fór hann í sýnatöku ef hann hefur engin einkenni?

Þetta er eiginlega næstum því fyndið.

Kristín Inga Þormar, 25.9.2022 kl. 23:06

7 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það er magnað að hlusta á Dr.Mike Yeadon, hann er ekkert að fara í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan graut heldur kemur beint að efninu, beint að kjarna málsins.

Dr.Mike er sérfræðingur og hefur innsæi í lyfjaheiminn sem fáir hafa, hann sér hlutina í ljósi raunveruleikans, varar við hættunni jafnvel þó svo hann missi alla vini og kunningja og jafnvel ættingja. Hann kýs fremur einsemdina sem er kostnaður þess að fylgja sannfæringu sinni en að fylgja straumnum sem að lokur leiðir til glötunar.

Gott hjá Dr.Mike Yeadon, Guð blessi hann.

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.9.2022 kl. 21:02

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Ég tek undir hvert orð sem þú segir, það var alveg magnað að hlusta á hann, og ef maður hefur fylgst með öðrum upplýsingaveitum en Google og þessum helstu samfélagsmiðlum og fjölmiðlum, þá veit maður að hvert orð sem hann segir er satt og rétt.

Svona tala sannir vísindamenn, þeir tala út frá vísindunum og sannleikanum en ekki fjárhagslegum ávinningi, og hafa því miður margir misst jafn mikið og hann.

Verið smánaðir, útskúfaðir, reknir og guð má vita hvað fyrir að þora að rengja þessi "vísindi" sem okkur er sagt að trúa og treysta.

Í dag eru vísindi föl fyrir peninga.

Kristín Inga Þormar, 26.9.2022 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband