"Samsæriskenningarnar" sem eru að rætast hver af annarri.

Flestir, ef ekki allir sem hafa reynt að gera fólki grein fyrir því sem verið er að gera mannkyninu núna, hafa fengið á sig stimpil sem álhattaberandi samsæriskenningasmiðir, eða eitthvað þaðan af verra.

Bara fyrir að reyna að vekja fólk og fá það til að staldra við og íhuga hvort allt sem okkur er sagt í fjölmiðlunum alla daga sé satt og rétt, eða hvort önnur viðhorf og kannski sannleikann sjálfan megi finna annars staðar.

Búin var til andúð gegn þeim sem kusu að afneita genabreytandi læknismeðferð sem þeir þurftu ekki á að halda og kærðu sig ekki um. Að vilja ekki láta sprauta sig var kallað drullusokksháttur, og að þeir sem vildu það ekki væru best geymdir í Grímsey. 

Þeir voru óvelkomnir á jólatónleika, eða jafnvel líka í jólaboð með fjölskyldum sínum.

Munið þið ekki eftir þessu, það er ekki lengra en ár síðan þetta var!

"Samsæriskenningarnar"

Hér má sjá nokkur atriði sem voru samstundis stimpluð sem samsæriskenningar, en hafa reynst sönn eftir allt saman, og mætti tína fleiri til.

Þetta má allt finna ef fólk hefur fyrir því að leita sér upplýsinga, við getum þó þakkað fyrir að aðgerðirnar hér á landi voru ekki alveg jafn harkalegar og skelfilegar og í mörgum löndum.

Covid conspiracy theories

Fleiri "samsæriskenningar" sem hafa ræst

White House now pursuing same sun-blocking geoengineering scheme that was called a “conspiracy theory” just two years ago

Vísinda- og tæknimálaskrifstofa Hvíta hússins hefur sett af stað fimm ára rannsóknaráætlun sem miðar að því að þróa aðferðir til að endurkasta sólarljósi aftur út í geiminn til að „kæla“ plánetuna og bjarga henni frá „hnattrænni hlýnun“.

Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis þarna, dettur einhverjum eitthvað í hug?

I Do Not Spread Conspiracy Theories - I Report on Actual News

Gæti nokkuð verið að Bill Gates komi að fjármögnun blokkunar sólargeisla til jarðarinnar? Hann hefur nú fjármagnað - eða fjárfest í öðru eins, eins og til dæmis bóluefnum sem hann hefur opinberlega sagt sínar bestu fjárfestingar.

Bill Gates wants “conspiracy theories” about him to go away

Þarna barmar hann sér meðal annars yfir "falsfréttum" um sig sjálfan og Anthony Fauci.

Þú þarft að þekkja sögu hans og þeirra félaga til að skilja að þeir eru einir mestu glæpamenn sögunnar, sem í krafti valda sinna og auðmagns eru búnir að fjármagna Covid "bóluefnin", sem þegar hafa skaðað og/eða drepið tugmilljónir manns, allt niður í smábörn.

Hér er tveggja ára frétt á RÚV undir yfirskriftinni Bill Gates vúdúdúkka COVID samsæriskenninga, og það er áhugavert að lesa hana núna í ljósi þess að allt sem þar er talið upp eru hreint engar samsæriskenningar, eitthvað sem við öll ættum að sjá núna.

The credit card that tracks your CO2 emissions

Ímyndaðu þér að þú sért við búðarkassann eftir að hafa fundið þér fína steik í kvöldmatinn. Þú nærð í kreditkortið þitt til að greiða, en þér til undrunar er kaupunum hafnað.

Það kemur í ljós að þú hefur farið yfir mánaðarlega CO2 hámarkið þitt og þú mátt ekki kaupa þessa steik. Það eina sem þú getur gert er að skila steikinni og kaupa pöddumat eða eitthvað álíka geðslegt.

Svona kreditkort er verið að innleiða víða, og mun verða innleitt í fleiri löndum sem partur af baráttunni gegn "loftslagsvá" milljarðamæringanna sem eru að innleiða Endurræsinguna miklu á heiminum núna af fullum krafti.

Hér er einstakt viðtal við konu að nafni Melissa Cuimmei, sem enginn má láta fram hjá sér fara, þar sem hún útskýrir þetta hér að ofan.

Listen carefully from the beginning to the end. An investigate journalist predicted international developments two years ago and everything has come true. Among other things, she talks about electronic IDs being a trap to lock people into the CBDC system... listen!

Og hér má sjá að Ísland er enn á rannsóknarstigi með rafkrónu.

No longer a conspiracy theory: Dutch farmers must make way for asylum seekers

Þetta er að öllum líkindum eitthvað sem fæstir íslenskir fjölmiðlalesendur hafa hugmynd um, en verið er að neyða þúsundir hollenskra bænda að bregða búi núna, enda er forseti landsins ákafur fylgismaður Endurræsingarinnar miklu, og einn af The Young Global Leaders sem eru útskrifaðir frá The World Economic Forum, forsprökkum Endurræsingarinnar.

Property in German town to be confiscated for asylum seekers

Hingað til hefur því verið vísað á bug sem illgjarnri "samsæriskenningu" að búseturými handa hælisleitendum myndi á endanum verða gert upptækt í Þýskalandi. En þessi "kenning" er því miður að rætast. Í Fürstenfeldbruck, skammt frá München, er verið að innleiða það núna.

‘Elitists Want A One World Government; It’s Not A Conspiracy Theory

Í stuttu vídeói þarna um Endurræsinguna miklu má meðal annars sjá John Kerry nokkurn sem á tvær snekkjur, fullt af húsum og bílum og flýgur í einkaþotunni sinni milli loftslagsráðstefna, og nú á þeirri síðustu í nóvember til að krefjast milljarða dollara í baráttu við "loftslagsvána".

Það væri forvitnilegt að vita hvað stór hluti rynni í hans eigin vasa...

Confirming Conspiracy Theories when they prove True is Fun

Hér er farið yfir nokkur dæmi um "samsæriskenningar" sem hafa í raun reynst réttar.

"What’s The Difference Between A "Conspiracy Theory" And The Truth? About 6 Months."

Örstutt yfirferð yfir fullyrðingar og raunveruleika um Covid "bóluefnin" og "heimsfaraldurinn", og sýnishorn af heilbrigðisstarfsmönnum sem voru víst að sligast undan álagi vegna hans, en höfðu þó tíma til að æfa og taka upp flotta dansa.

Tilviljanir, eða hvað?

Hér má sjá nokkrar opinberar persónur segja frá því að þau hafi greinst með Covid, en hafi mild einkenni sem þau þakki því að vera bólusett, og auðvitað hvetja flest þeirra fólk til að fara í sprautur og búst.

Það mætti halda að þau hafi öll fengið sama handritið til að fara eftir, og þetta minnir ansi mikið á þennan "fréttaflutning" um meinta loftslagshlýnun af manna völdum.

1203c

 

Sé fólk ekki enn farið að gera sér grein fyrir því, þá eru eru það fjölmiðlarnir og samfélagsmiðlarnir sem eru notaðir til að beita okkur stanslausum hræðsluáróðri, svo hægt sé að beygja okkur til hlýðni.

Hér má sjá dæmi um það, þar sem Melissa Fleming aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir á fundi WEF, að þau eigi vísindin.

Nokkar af aðal klappstýrum Covid "bóluefnanna" í USA

Það er búið að margstanda flest ef ekki allt þetta fólk af tómum lygum í gegn um þennan "heimsfaraldur".

Líka hér á landi sem ég hef margoft bloggað um og rakið lygar þeirra ofan í þau. Þar má nefna Þórólf, Ragnheiði Ósk, Lyfjastofnun og fleiri.

 1127b

Er þetta ekki einmitt málið?

Að í stað þess að trúa öllu athugasemdalaust sem er matað ofan í okkur á flestum vígstöðvum alla daga, að leita okkur upplýsinga annars staðar, og vera opin fyrir því að það sé jafnvel verið að ljúga að okkur, af fólki sem við höldum að við getum treyst, eða höfum kosið til að fara með stjórn landsins og gæta hagsmuna okkar.

Þá fyrst getum við farið að greina á milli hvað er rétt og hvað er rangt.

Instead of "Conspiracy Theorist" I prefer the name "Connect The Dots Specialist"
Dr. Doug Corrigan

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Hörmulegir tímar framundan, og það sem verra er að stjórnmálamenn hér ætla sér ekki að forða okkur frá þeim.

Loncexter, 8.12.2022 kl. 17:37

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Loncexter,

Nei það held ég að sé nokkuð ljóst, þau ætla ekki að gera neitt þótt þau hljóti að vita meira en við, það gefur bara augaleið.

Þau eru öll búin að fá send ókjörin öll af upplýsingum og sönnunargögnum um "heimsfaraldurinn" og eitursprauturnar og fleira, en viðbrögðin hafa ekki verið nein.

Kristín Inga Þormar, 8.12.2022 kl. 19:45

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Bætum einu við sem var kenning en er nú staðreynd:

Faraldurinn verður notaður sem ástæða til að hefta ferðafrelsi.

Guðmundur Ásgeirsson, 8.12.2022 kl. 20:02

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðmundur,

Já akkúrat, þetta var hluti af því að prófa hversu auðvelt væri að stjórna okkur, og allt of margir kolféllu á því prófi.

Það var greinilega svo lítið mál að hræða fólk til hlýðni að það samþykkti möglunarlaust að einangra sig, nota grímur, fara í endalaus próf til að athuga hvort það væri veikt, og svo fara í allar þessar tilraunasprautur, og fólk almennt virtist ekki hafa neinar efasemdir um neitt af þessu!

Það treysti bara yfirvaldinu í blindni.

Nú á að halda áfram að hræða okkur með fleiri "faröldrum" sem búið er að boða næstu 10 árin eða svo, og nota loftslagsvána ógurlegu til að réttlæta enn meiri fjötra á okkur.

En ætli fólk nenni að kynna sér hvaða örlög búið er að ákveða fyrir okkur mannkynið án þess að spyrja okkur?

Því miður óttast ég að það séu allt of fáir.

Kristín Inga Þormar, 8.12.2022 kl. 22:56

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Frábær samantekt hjá þér. Ég man bara alla vini og fjölskyldu sem

sögðu að ég og kona værum ekki með réttu ráði að þiggja ekki þetta eitur.

Allt þetta fólk er búið að smitast tvisvar og jafnvel þrisvar og verið 

heiftarlega veikt þrátt fyrir að vera tví og þrí bólusett. En til að

afsaka sig frá því, þá er viðkvæðið "ef ég hefði ekki verið bólusett/ur 

hefði ég orðið miklu veikari". Einmitt. Fengum bæði kóvid og vorum bara

nokkra daga að jafna okkur og höfum ekki orðið veik aftur, en merkilegt er

að þeir sprautuðu eru að veikjast aftur og aftur. Að sjálfsögðu bara algjör

tilviljun og alls ekki kenna um þessu eiturglundri sem er búið að skaða til

framtíðar heilbrigði hjá þeim sem þáðu. Læknastéttin heima, svo gott sem öll,

ættu að hundskammast sín fyrir þeirra þátt í þessum tilraunum, sem þær voru

og ekkert annað. Reyndar bíð ég eftir afsökun frá forsetanum vegna orða

sem hann notaði gegn okkur sem þorðum að standa upp á móti fjöldanum, en

hann sagði í þingsetningarræðu á síðasta ári og sakaði þá sem ekki þáðu

"bólusetningu" við kóvit um að nýta sér "rangsnúinn" rétt til að smita aðra.

Er þetta forseti þjóðar..?? Er hann að verja rétt okkar til að mótmæla og

hafa aðrar skoðanir og krefjast meiri rannsókna heldur en var gert..?

Á hann ekki að standa með mannréttindum og lýðræði.?

Ef hann hefur ekki þann manndóm til að biðjast afsökunar á þessum ummælum

held ég að það ætti að leggja þetta embætti niður því greinilegt er að hann

veldur því egvan veginn.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 9.12.2022 kl. 02:14

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Sigurður og þakka þér kærlega fyrir.

Þetta með ættingja og vini er alveg ótrúlega algengt, og það sýnir bara hversu vel heilaþvotturinn og hræðsluáróðurinn tókst.

Margt sprautað fólk í kringum mig er líka oft að veikjast, og ég veit um allt of marga með krabbamein, eða hafa dáið skyndilega án nokkurs undanfara.

Ég hef aldrei farið í flensusprautur og hef aldrei fengið flensur, og drápsvírusinn ógurlegi virðist ekki hafa neinn áhuga á mér þótt ósprautuð sé, þótt ég hafi óhikað umgengist fólk sem var greint með hann og var í einangrun, og mér var skítsama þótt ég bryti þessar fáránlegu sóttvarnarreglur.

Ég er mjög þakklát fyrir að þurfa lítið sem ekkert að leita mér læknishjálpar því ég treysti því miður ekki heilbrigðisstéttinni lengur, þótt það sé vissulega og sem betur fer til heiðarlegt fólk þar líka.

Og þetta með forsetann er gjörsamlega óafsakanlegt, sérstaklega ef hann hefur ekki beðið afsökunar á þessum ummælum, og ekki myndi ég sakna þess þótt þetta embætti yrði lagt niður.

Kristín Inga Þormar, 9.12.2022 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband