Hver á að ráða hver fær að lifa og hver á að deyja?

Hver hefur heimild til að ákveða hverjir eigi að fá að lifa líf sitt til enda, eða hvort þeir eigi að deyja - með lífslokameðferð?

Nú hefur Bill Gates sagt við heimsleiðtoga að það sé tími kominn til að byrja að tala um "dauðanefndir" sem dæmi venjulegt löghlýðið fólk til dauða fyrir það eitt að vera einskis nýtt elítunni.

Þessi maður hefur aldrei verið kjörinn til að leiða heilbrigðismál heimsins, hann hefur enga menntun í þeim málum, en hefur haft gríðarleg áhrif á því sviði í krafti auðs síns og samstarfs við aðra meðlimi viti firrtrar elítu (WEF o.fl.) sem er núna að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda".

Hann er orðinn svo hrokafullur að hann er óhræddur við að útlista glaðhlakkalega hugsanir sínar og áætlanir fyrir framan sjónvarpsmyndavélina eins og eins og þær séu fullkomlega eðlilegar.

Það er óhugnanlegt að horfa á þetta (sjá hlekk á vídeóið neðar), en þetta er bara í anda þessara afla sem líta á "okkur hin" sem sníkjudýr sem erum bara fyrir þeim í elítunni.

Hann réttlætir þessar hugmyndir sínar þannig að peningum sem færu í lækniskostnað til að halda lífi í "óþörfu (gömlu) fólki" væri betur varið til að borga kennurum laun, og að þetta sparaði líka lífeyrissjóðsgreiðslur til fólksins. Er kannski búið að stela lífeyrissjóðunum þeirra?

Enginn hefur áður borið saman laun kennara og rétt aldraðs fólks til að njóta reisnar og lífsgæða á sínum síðustu metrum lífsins. Hvert hafa skattpeningar þessa fólks farið, sérstaklega síðustu misserin? Til bóluefnakaupa, stríðsreksturs í Úkraínu eða "loftslagsvárinnar", rétt eins og hér á landi?

Þessar "dauðanefndir" hans eru ekkert annað þráhyggja glóbalista elítunnar fyrir fækkun mannkynsins, og er hluti af endurræsingunni miklu, sem byrjaði fyrir alvöru með "heimsfaraldrinum". ( <- lesið þetta!)

Endatakmarkið er að ná alræði yfir mannkyninu öllu.

Þessar áætlanir Bill Gates um "dauðanefndir" endurspegla talsmátann sem World Economic Forum notaði varðandi líknardráp og djöfullega nýja lausn kanadískra stjórnvalda til að leysa verðbólgu, heimilisleysi, aukningu glæpa og matarskort – með líknardrápum fyrir fátæka.

Ríkisstjórn Justin Trudeau, sem er útskrifaður úr The Young Global Leaders skóla Klaus Schwab, segir núna að þau séu núna að bjóðast til að aðstoða við "líknar"dráp fólks sem "er of fátækt til að halda áfram að lifa með reisn".

Þið sem lesið ykkur til gagns ættuð núna að vita hvernig Trudeau og hans ríkisstjórn hefur brotið gegn þjóð sinni undanfarin misseri.

1218a

 

Sjá vídeóið hér.

Bill Gates og félagar hans í WEF hafa ítök víða, eins og til dæmis hjá WHO, sem berst núna fyrir alræðisvaldi yfir stjórn heilbrigðismála heimsbyggðarinnar.

Lítum aðeins á nýlegt dæmi.

G20 ráðstefnan á Bali í Indónesíu

Hvaða þjóðir eru í G20?

The G20 is a forum comprising nineteen countries with some of the world’s largest economies, as well as the European Union (EU). The countries are Argentina, Australia, Brazil, Canada, China, France, Germany, India, Indonesia, Italy, Japan, Mexico, Russia, Saudi Arabia, South Africa, South Korea, Turkey, the United Kingdom (UK), and the United States. Spain is invited as a permanent guest.

Spurning sem á fullkomlega rétt á sér

1218

Sitthvað um G20 ráðstefnuna

“The World Will Look Differently After We Have Gone Through This Transition” – WEF’s Klaus Schwab on the Great Reset to World Leaders at G20 Summit (VIDEO)

Why are Bill Gates and Klaus Schwab at the G20?

RIGHT NOW would be a very good time to wake up!
The "G20 Bali Leaders’ Declaration" exposed the "secret" that I have been trying to warn the world about for months

G20 leaders agree to work toward mandatory digital health passports for all human beings: This will kickstart one-world beast system experimented with during Covid

Yuval Harari, helsti ráðgjafi Klaus Schwab hjá The World Economic Forum

Þessi maður er andlit illskunnar, sem þykir hið eðlilegasta mál að útskýra fyrir okkur hinum hvaða álit hann hefur á okkur, og hvað muni bíða okkar (ef við leyfum því að gerast!)

Og við munum að öllum líkindum gera það því það er búið að innprenta svo rækilega í okkur að allt það sem margir hafa verið að vara okkur við undanfarin tæp 3 ár séu bara samsæriskenningar, sem eru þó að rætast hver af annarri þessa dagana.

Transhumanism - Klaus Schwab and Dr. Yuval Noah Harari explain The Great Reset - Transhumanism agenda

Yuval Noah Harari | "People Are Afraid of Vaccines. They View Vaccines As Alien & Unnatural."

WEF’s Yuval Harari says Covid vaccines are turning humans into cyborgs

Total bio-metric surveillance

We are now hackable humans: Yuval Harari, advisor to Klaus Schwab

Useless, meaningless, and worthless people - by Yuval Noah Harari

... Jesus rising from the dead and the son of God, this is fake news

Yuval Harari - Evil people exposed

Hlustið á hvað þessi kona hefur að segja okkur

Látum frásögn hennar verða okkur víti til varnaðar.

"This time they are after the entire global population" - Holocaust Survivor and founder of the Alliance for Human Research Protection, Vera Sharav talks to Right Now

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka þér Kristín fyrir enn eina frábæru grein þína.

Ef fólk almennt sæi og hlustaði á þessa siðblindu þrjóta sem eru ekki lengur að fara leynt með fyrirætlanir sínar, þá myndu augu þeirra opnast fyrir því sem er að gerast og létu ekki teyma sig eins og lömb til slátrunar.

Guð blessi þig fyrir framlag þitt, það er ómetanlegt.

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.12.2022 kl. 23:50

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Þakka þér kærlega fyrir svona falleg orð í minn garð.

Ég hef mikið velt þessu fyrir mér líka, mér þykir ótrúlegt að fólk hafi ekki hugmynd um neitt af þessu, en ef það fær sínar "fréttir" bara úr þessum hefðbundnu fjölmiðlum, þá er það kannski ekki skrítið, enda hafa þeir sem fjórða valdið gríðarleg völd.

Og ekki bara fjölmiðlarnir, heldur líka samfélagsmiðlarnir og leitarvélarnar sem ritskoða allt og leyfa ekki aðrar skoðanir eða umræður en þessar einu "leyfilegu".

Það er þó þakkarvert að Mbl.is skuli leyfa tjáningarfrelsi á blogginu sínu.

Kristín Inga Þormar, 20.12.2022 kl. 08:25

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Hérna hugsa menn eins og að allur auður heimsins (nema sjóðir milljarðamæringanna) séu sameign "samfélagsins" sem þarf bara að "útdeila". 

Skiljanlega. Lífeyrissjóðirnir eru lokað land. Ríkið sogar til sín helming verðmætasköpunar samfélagsins í flestum vestrænum ríkjum. Ríkið sér um að reka skóla og sjúkrahús og þarf að velja hvort peningur fari í eitt eða hitt. 

Fyrir frjálshyggjumann eins og mig sé ég hérna augljósa samnefnara milli Sovétríkjanna, Þýskalands nasismans og hins nútímalega alltumlykjandi velferðarkerfis sem á að halda á okkur frá vöggu til grafar. Þar sem "verðmæti samfélagsins" eru á höndum örfárra aðila sem útdeila til þeirra verðugu. 

Geir Ágústsson, 20.12.2022 kl. 08:54

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Peningarnir eru hirtir af okkur í nafni alls konar skatta og gjalda og við fáum ekkert um það að segja í hvað þeir fara, hvort það sé til reksturs skóla, sjúkrahúsa, bóluefnakaupa, "loftslagsvárinnar", eða stríðsreksturs í öðrum löndum.

Þetta er algjörlega rétt hjá þér "verðmæti samfélagsins" eru á höndum örfárra aðila sem útdeila til þeirra verðugu.

Þetta er mannanna verk sem þarf að stöðva.

Kristín Inga Þormar, 20.12.2022 kl. 10:39

5 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðmundur,

Þakka þér kærlega fyrir allan þennan fróðleik, og ég er einmitt búin að sjá margar tilvitnanir í Heilaga ritningu undanfarin ár um þetta.

Mannslífið er lítils metið ef það tilheyrir ekki elítunni, sem lítur bara á okkur sem sníkjudýr, enda er verið markvisst að fækka mannkyninu núna niður í "ásættanlegan fjölda".

Arna Dögg Einarsdóttir eiginkona Dags B. Eggertssonar borgarstjóra var ráðin yfirlæknir líknarlækninga á Landspítala frá 1. maí 2022.

Árið 2018 sagði hún að áður hafi líknarmeðferð eingöngu verið hugsuð sem lífslokameðferð. &#132;En nú horfum við til þess að veita líknarmeðferð um leið og fólk greinist með alvarlega, lífsógnandi sjúkdóma og veitum þá meðferð samhliða öðrum, lífslengjandi meðferðum eins og til að mynda krabbameinslyfjameðferð.

https://www.laeknabladid.is/media/tolublod/1824/PDF/u05.pdf

Munum við sjá mörkin breytast með tíð og tíma, og t.d. fátækum og heimilislausum verði líka boðin svona "aðstoð" eins og í Kanada?

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur titilinn Agenda Contributor hjá The World Economic Forum sem Klaus Schwab stofnaði. Hvers vegna er hún tengd þessum samtökum og hefur haldið erindi fundum þeirra með öðrum þjóðarleiðtogum sem á bólakafi í endurræsingunni miklu?

Ég er ekki viss um að margir viti um þetta.

Kristín Inga Þormar, 20.12.2022 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband