Flest sem okkur var sagt voru lygar sem margir féllu fyrir, og nú sitja mörg ykkar uppi með afleiðingarnar.

Við erum öll löngu orðin hundleið á öllu varðandi "heimsfaraldurinn" og viljum helst bara horfa framávið og halda áfram með líf okkar.

En hvað með langtímaafleiðingar á heilsu og líf fólks af "bólusetningunum" sem stærstur hluti þjóðarinnar fór í - sumir margoft, og enn er verið að hvetja fólk til að fara í?

Þetta er það sem mig langar að fjalla um, því það er eitthvað sem snertir okkur öll á einn eða annan máta. Meira um það hér neðar.

Nýjar "ógnir" teknar við

Aðrar og nýjar "ógnir" steðja víst að mannkyninu núna að loknum "heimsfaraldrinum". Sú nýjasta er "loftslagsváin", en verið er að koma á alheimsstjórn undir því fagra yfirskini að verið sé að gera heiminn að betri stað fyrir okkur öll.

Skýrt dæmi um það eru Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni, sem út af fyrir sig væru hið besta mál ef raunverulegu markmiðin bakvið fagurgalann væru ekki þessi nýja heimsskipan sem verið er að innleiða núna, þar sem okkur er ætlað að enda í 15 mínútna fangelsisborgum, fá úthlutaða rafræna "peninga" sem gefa stjórnvöldum fullkomna stjórn á neyslu okkar og eftirlit með okkur, og éta pöddur.

Líka hér á Íslandi, enda eru íslensk stjórnvöld að vinna að þessum vægast sagt óhugnanlegu markmiðum bak við tjöldin.

Hér er hrollvekjandi teiknimynd sem sýnir framtíðina sem mögulega bíður okkar.

En fyrst þarf að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda", sem hefur tekist alveg "ljómandi vel" með genabreytandi líftæknilyfjum sem voru hönnuð til þess að skaða og drepa, og hörmulegum afleiðingum vegna þess að heiminum var skellt í lás hvað eftir annað, sem var víst gert til að "vernda okkur".

Á neðri myndinni má sjá þessi illu plön sem eru þegar farin að taka á sig mynd og raungerast, en þið sjáið aldrei neinar umfjallanir um þetta í þessum íslensku meginstraums ruslmiðlum sem flytja bara "fréttir" sem fylgja einum leyfðum málstað. Leita þarf til óspilltra miðla til þess.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Langtímaafleiðingar vegna eitursprautanna

Öll dýrin sem voru notuð í tilraunaskyni til að prófa nýju líftæknitilraunalyfin drápust, meðal annars úr ónæmissjúkdómum, blóðsýkingu og/eða hjartabilun, ekki endilega strax, heldur mánuðum seinna.

En það vakti samt ekki upp neinar spurningar um öryggi þessara líftæknilyfja hjá eftirlitsaðilum, og var neyðarleyfi veitt á notkun þeirra þrátt fyrir að Pfizer hafi vitað strax í nóvember 2020 að þau veittu ekki þessa marglofuðu vörn.

Á sama tíma voru margreynd og örugg lyf eins og þetta hérna bönnuð, þannig voru þessi neyðarleyfi veitt á sviksamlegan hátt.

Allt sem okkur var sagt um virkni, gæði og öryggi þessara tilraunalyfja var haugalygi, það er ekki hægt að flýta hefðbundinni margra ára þróun nýrra lyfja niður í nokkra mánuði og segja að þau séu eina leiðin til að koma heimsbyggðinni út úr einhverjum faraldri.

"Faraldri" sem var lygi frá fyrsta degi.

Man einhver eftir Thalidomide lyfinu skelfilega sem barnshafandi konum var gefið fyrir rúmlega hálfri öld? Í ljósi þess hefði aldrei átt að blekkja verðandi mæður í þessar eitursprautur, frekar en aðra.

Varnaðarorð okkar voru flest, ef ekki öll rétt

Mörg okkar sem erum lengi búin að reyna að vara fólk við sprautunum höfum þurft að upplifa háðsglósur, dónaskap, reiði, vinamissi og jafnvel útskúfun úr fjölskyldum okkar.

Það hefði aldrei getað gerst nema vegna þess að skipulega var búið til andóf gegn okkur af þeim sem stýrðu sprautuherferðinni - með dyggum stuðningi fjölmiðlanna, "sællar minningar", og þar var Kári nokkur $tefánsson framarlega í flokki.

Nú erum við að horfa upp á afleiðingarnar af "bólusetningunum" á fólkinu í okkar nærumhverfi og ástvinum, því miður. Það er ekki gaman að þurfa að segja að við höfðum rétt fyrir okkur allan tímann.

"Samsæriskenningarnar" eru bara að rætast ein af annarri þessi misserin.

Margir sem fengu sér eina eða fleiri eitursprautur eru núna að upplifa alls konar nýtilkomin veikindi, heilsubresti, skert ónæmiskerfi og jafnvel ofurkrabbamein, og fólk verður bráðkvatt, oft á besta aldri.

Og athugið, þetta er að gerast jafnvel löngu eftir að fólk fékk sér eina eða fleiri sprautur - rétt eins og hjá tilraunadýrunum.

0415f

2605

0415g
Er ekki kominn tími til að tengja?

En þar sem jafnvel langur tími er liðinn eftir sprauturnar, er fólk ekki að tengja nýja sjúkdóma og veikindi við hugsanlegan sprautuskaða, sem sést vel á því að fáir virðast hafa séð í gegnum lygarnar í Ölmu nýlega þegar hún sagði að 400 manns hefðu dáið í fyrra úr Covid.

Það er með ólíkindum hvað fáir virðast hafa sett spurningamerki við þetta, bara trúað þessu því það kom frá yfirvaldi - því það lýgur aldrei, er það nokkuð?

En hvernig ætti það að geta staðist að svona margir hafi látist úr Covid þrátt fyrir að hafa jafnvel fengið margfaldar "varnir" gegn því?

Og nýr sóttvarnalæknir, arftaki Þórólfs heiðursorðuhafa studdi við þessar lygar í viðtali stuttu síðar.

Met sem ekki er hægt að hreykja sér af

Við "státum af" Evrópumetum nokkra mánuði 2022 og janúar 2023 í umfram dauðsföllum, eins og sjá má á þessari mynd.

0416

Aldrei hefur tekist að búa til árangursrík "bóluefni" sem prófuð hafa verið á tilraunadýrum gegn kórónavírusum, ekki frekar en þessi sem eru þau allra skaðlegustu sem nokkurn tímann hafa verið búin til. Þetta eru mRNA líftæknilyf en ekki hefðbundin bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.

Rangnefnið "bóluefni" var notað til að blekkja okkur, enda er þetta bara pólitík í læknisleik.

"Hvers vegna ég trúi ekki að það hafi nokkurn tíma verið Covid vírus"

Eins og ég segi alltaf, ég get ekki vitað mikið fyrir víst. Ég á ekki afrit af handritinu af þessu, mesta glæp sögunnar. En hvað sem Covid er í raun og veru þá trúi ég ekki að það sem kallað var inflúensa hafi horfið á þægilegan hátt snemma árs 2020. Það er önnur lygi. Það er það sem þeir gera. Það er allt sem þeir gera.

Dr. Michael Yeadon 22. mars 2023

Hugsanleg framtíð fyrir marga, sem verða núna að horfast í augu við það

Sumt fólk byrjaði að þjást af skelfilegum aukaverkunum og jafnvel lést strax eða fljótlega eftir sprauturnar, en allt var skipulega þaggað niður hér á landi, eins og ég hef margoft skrifað um áður.

Við munum því miður þurfa að horfa upp á áframhaldandi afleiðingarnar á heilsu og líf fólks næstu árin og áratugina, skyndileg og ótímabær dauðsföll, ófrjósemiandvana fæðingar og burðarmálsdauða, rétt eins og í hinum löndunum sem eru eins mikið sprautuð og íslenska þjóðin.

Krabbameinum mun fjölga um 52,1% hér á landi á næstu áratugum að sögn framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins. Aðaláhættuþátturinn á því að fá krabbamein er það að eldast segir hún, en við þetta má bæta að meinafræðingar eins og þessi hér er búinn að sjá skelfilega aukningu hraðvaxandi og oft ólæknanlegra krabbameina í kjölfar eitursprautanna.

Þetta er kannski enn ein yfirhylmingin á afleiðingum eitursprautanna, enda er ýmislegt gert að gera til að reyna að fela þær.

Að blekkja og/eða þvinga stóran hluta mannkynsins í þessar eitursprautur er stærsti glæpur sem framinn hefur verið gagnvart mannkyninu hingað til, enda var tilgangurinn með þeim að fækka okkur.

Að horfast í augu við staðreyndir, þótt erfiðar séu

Það er löngu kominn tími til þess að "bólusettir" Íslendingar fari að horfast í augu við þessar skelfilegu staðreyndir um eitursprauturnar, og að hugsanlega sé búið að skerða lífsgæði þeirra til frambúðar, hafi þeir ekki verið svo heppnir að lenda í saltvatns tilraunahópnum.

Þið voruð blekkt og heilaþvegin með stöðugum og vel skipulögðum óttaáróðri sem þið vonandi innst inni gerið ykkur grein fyrir í dag. Þið eruð saklaus fórnarlömb aðfarar viti firrtrar elítu gegn restinni af mannkyninu, sem hefur verið í undirbúningi áratugum saman.

Vonandi munu einhverjir finna sama hugrekki og Pascal Najadi sem hefur höfðað einkamál gegn Pfizer vegna óafturkræfs skaða sem hann hlaut af "bóluefninu" þeirra.

Allt sem ég hef sagt hér getið þið fundið sjálf á netinu, þó ekki á hinu ritskoðaða Google sem er þátttakandi í þessum hryllilegustu glæpum sem framdir hafa verið gegn mannkyninu.

Napur sannleikurinn er óðum að komast upp á yfirborðið, þökk sé heiðarlegu fólki um heim allan sem hefur jafnvel lagt líf sín og störf að veði til að færa okkur hann.

Tilgangur minn með þessum skrifum er alls ekki að reyna að hræða fólk, en það er löngu kominn tími til að Íslendingar fari að vakna eins og aðrar þjóðir, horfast í augu sannleikann og gera sér grein fyrir hvaða framtíð okkur er ætluð - án þess að við höfum nokkuð um það að segja.

Það er bara nú eða aldrei, svo einfalt er það.

Aldrei í fréttum í íslenskum ruslmiðlum:

 

 

 

 

 

 

#kristínþormar #kthormar #kristinthormar #blog # mbl #covid #greinar #bóluefni #tilraunaefni #mannréttindi #glæpur_gegn_mannkyni #stöðvum_Sáttmála_WHO #aukaverkanir #verndum #börnin #stoptheshots #StöðvumWHO #stöðvumsprauturnar

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég er að vinna með ungum manni sem er ítrekað búinn að veikjast í ár og hann skilur ekkert af hverju - er venjulega aldrei veikur. Þrísprautaður vel á minnst. Hann sagði svo frá því að vinur hans hefði fengið heilablóðfall og allir steinhissa. Þetta var ekki réttur staður né stund til að segja honum að sprauturnar séu líklega að verki en sýnir að meira að segja ungur maður sem fylgist vel með fjölmiðlum er algjörlega í myrkrinu. Það eru ekki allir svo heppnir að hafa aðgang að síðunni þinni!

Geir Ágústsson, 16.4.2023 kl. 15:19

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Þessi ungi maður er akkúrat samnefnari fyrir fólkið sem ég er að fjalla um, fólkið sem tengir ekki nýtilkomna heilsubresti við hugsanlegar afleiðingar af eitursprautugjöfunum.

Margir í mínu nærumhverfi hafa áþekkar sögur að segja af sínu fólki, hafa jafnvel misst ástvini skyndilega og ég þekki líka sprautaða einstaklinga sem grípa allar pestir, jafnvel Covidið ógurlega.

Þú þyrftir kannski að skella blogginu mínu í Google translate og senda honum!

Kristín Inga Þormar, 16.4.2023 kl. 16:03

3 Smámynd: Loncexter

Áður en ég stíg um borð í flugvél, vil ég að flugmaðurinn sýni mér vottorð sem staðfestir að hann sé ósprautaður.

Loncexter, 16.4.2023 kl. 18:33

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Loncexter,

Það skil ég mjög vel miðað við hvað margir flugmenn eru að hrynja niður núna, jafnvel í miðju flugi.

Kristín Inga Þormar, 16.4.2023 kl. 19:08

5 Smámynd: Loncexter

Mikið um tilkynningar þessi misserin um misskilning á milli flugumferðastjóra og flugmanna.

Sumir segja að óreynt fólk sé áberandi í geiranum. Hvað varð um allt reynda fólkið 

(sem var skyldað í sprautur) ??

Loncexter, 16.4.2023 kl. 20:28

6 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Heimsfaraldurinn er ekki kórónuveira heldur lygar, hræðsluáróður, ótti og stjórnun ofurríkra siðblindinga.

Þakka þér Kristín fyrir þrautseigju þína að halda okkur upplýstum með þínum góðu skrifum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 16.4.2023 kl. 21:17

7 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Loncexter,

Úfff þetta gæti haft alveg skelfilegar afleiðingar, já og hvað varð af öllu reynda fólkinu, er það orðið óvinnufært eða jafnvel ekki hérna megin lengur?

Kristín Inga Þormar, 16.4.2023 kl. 21:38

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas og þakka þér kærlega fyrir.

Nei það var sko aldrei neinn alvöru heimsfaraldur, heldur var þetta fyrsta skrefið í að fækka mannkyninu með þessum eitursprautum, svipta þá sem eftir lifa öllu og koma á alræðisheimsstjórn.

Það er ekkert mál að finna sannanir um þetta allt ef fólk nennir að hafa fyrir því, sem því miður fæstir gera.

Kristín Inga Þormar, 16.4.2023 kl. 21:45

9 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Algerlega sammála Kristín.

Tómas Ibsen Halldórsson, 16.4.2023 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband