Út á hvað gengur fjórða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna?

Það er meiri illska í gangi í heiminum í dag en flesta getur órað fyrir, enda er henni yfirleitt pakkað inn í afskaplega fallegar umbúðir.

Og þá aðallega þær að verið sé að bjarga heiminum, loftslaginu og mannkyninu.

Þannig er fjallað um "þessar umbúðir" í meginstraums ruslmiðlunum sem eru margir hverjir í eigu og/eða fjármagnaðir af sömu öflum og vilja restina af mannkyninu illt og eru að fækka því niður í "ásættanlegan fjölda".

Íslenskir fjölmiðlar eru þar ekki undanskildir, með örfáum undantekningum fjárhagslega óháðra fjölmiðla.

Það er spilað á okkur eins og fiðlur í gegnum tónlist, kvikmyndir, frægt fólk, stórstjörnur, samfélagsmiðla, leitarvélar, "fréttir" og annað slíkt, og það sem verra er, einnig í gegnum barnaefni.

"Réttu" hughrifin eru sköpuð með vísindalegri innrætingu og heilaþvotti, og okkur er sagt frá því sem koma skal í því sem við höldum vera afþreyingarefni, og við þannig smám saman vanin við það.

Og okkur er kennt að vera með opinn hug og vera umburðarlynd gagnvart ýmsum minnihlutahópum eins og samkynhneigðum og transfólki, annars erum við úthrópuð og kölluð öllum illum nöfnum.

Þessi illska á sér einnig stað hér á Íslandi, enda virðast ráðamenn hafa selt sjálfstæði og sjálfræði okkar úr landi.

Fyrir peninga, frama, aukin völd? Ég veit það ekki - og vil ekki vita, enda "skortir mig" siðferði landráðafólks.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ)

UN-stonewall-LGBTHér á Íslandi er verið að innleiða þessi heimsmarkmið, sem ég hef fjallað um eða minnst á í nokkrum bloggum. Allt sem þar er lofað, þýðir akkúrat hið gagnstæða, sem sjá má ef kafað er ofan í þau.

Skjalið sem þessi skjámynd er af má hala niður hér, og meiri upplýsingar um þessi "LGBT Inclusion and the Sustainable Development Goals" má lesa á þessari síðu Stonewall.co.uk, sem rekin er af breskum hagsmunasamtökum, og hvernig þau skilgreina þessi markmið.

Stjórnarformaður þeirra er Iain Anderson, og hann er "Agenda contributor" hjá WEF, rétt eins og forsætisráðherra okkar, Katrín Jakobsdóttir.

Það skýrir að öllum líkindum hvers vegna þeir hafa meiri upplýsingar um heimsmarkmiðin en við hin, enda tengjast þessi illu öfl öll hvert öðru.

Eins og sjá má á myndinni, þá fjallar það um heimsmarkmið fjögur.

Það vekur óneitanlega athygli mína í hversu mörgum heimsmarkmiðum SÞ réttindi LGBT fólks eru nefnd í þessu skjali, eða í sjö af sautján.

Í heimsmarkmiði fjögur er meðal annars lögð rík áhersla á þjálfun kennara og ráðgjafa um hvernig bregðast eigi af næmni gagnvart LGBT nemendum og nemendum sem séu að efast um kynhneigð sína og/eða kynvitund.

Svipað og verið er að gera hér á landi með því að fela Samtökunum 78 að sjá um hinseginfræðslu skólabarna!

Það hlýtur - og ætti að vekja furðu og reiði fólks að SÞ leggi svona mikla áherslu á réttindi eins hóps fólks umfram aðra - svona bak við tjöldin, eins og mætti kannski ætla.

En þetta er allt með ráðum gert, ef fólk er ekki enn farið að átta sig á því, í samvinnu við WHO og ýmsa milljarðamæringa sem eru á bak við þetta LGBTQ og Transgender agenda og hafa gefið hundruðir milljóna US dollara til málefnisins.

Það er áhugavert að bera saman opinbera lýsingu SÞ á fjórða heimsmarkmiðinu og þessu hér fyrir ofan, þar sem LGBT sést ekki nefnt á nafn í fljótu bragði, heldur aðeins hin afskaplega fallegu og göfugu markmið um menntun fyrir alla.

Undarlegt, er það ekki? Nei í rauninni ekki, þetta er bara smá sýnidæmi af því hvað felst raunverulega í sérhverju þessara sautján heimsmarkmiða.

Þarna kemur Ísland við sögu!

Í Frakklandi

0513aÍ þessu vídeói sem er frá árinu 2021 segir meðal annars að orðin "móðir" og "faðir" verði bönnuð á eyðublöðum í skólum, því þeir eigi að vera kyn"hlutlausir" til að koma í veg fyrir mismunun gegn samkynhneigðum foreldrum.

Á eyðublöðum sem varði börn eigi þaðan í frá að vera talað um "foreldri 1" og "foreldri 2".

Athugið, og látið ykkur ekki bregða en þarna er líka fjallað um konur sem við höldum að séu konur en séu raunverulega karlmenn. Ég hef séð og lesið heilmikið efni um þetta en tek ekki afstöðu til þess hérna hvort þetta sé rétt eða ekki.

Vil þó benda á að transkonur séu miklu fjölmennari og hafa lengur verið til en okkur órar fyrir.

Sameinuðu þjóðirnar í verki

Hér má sjá mynd af japanskri dragdrottningu, og SÞ í verki eins og stendur á myndinni. Þykir ykkur hún aðlaðandi? Reyndar er búið að fjarlægja hana af vefsíðu þeirra, rétt eins og "leiðbeiningar" WHO um hvernig standa eigi að kynfræðslu ungra barna. Sjá meira um það hér.

Dragdrottningar hafa víða um heim verið notaðar til að lesa hinsegin sögur fyrir börn allt niður í þriggja ára, líka að minnsta kosti á einum stað á Íslandi, eða bókasafni Kópavogs.

Foreldrar í Kópavogi (og víðar?) mættu spyrja sig um tilganginn með því.

UN-tokyo-drag-queen

Hvers vegna er þessi ríka áhersla lögð á hinsegin málefni?

Þessi LGBTIQ innræting er partur af því sem kallað er Agenda 2030, hin nýja heimsskipan (New World Order), dulbúin sem göfug sjálfbærnimarkmið heiminum til bjargar.

Og hún er látin byrja strax á ungum börnum í gegnum skólana, samkvæmt skelfilegu plani.

Kynruglingur og kynjasnúningur er notaður til að splundra ímyndinni um karla og konur, þau einu tvö líffræðilegu kyn sem til eru og geta eignast börn saman. Dæmi um það er tilraun til "útþurrkunar konunnar".

Annað dæmi um það eru orð Willums heilbrigðisráðherra Íslands á dögunum þegar hann talaði um leghafa, ekki konur. Það er sorglegt að það hafi ekki vakið meiri viðbrögð og reiði á Alþingi en raun ber vitni, að minnsta kosti opinberlega. Eða þá í samfélaginu!

Sorgleg þróun á Íslandi

0513b

Erum við ekkert að hugsa?

Þess spyr Guðrún Bergmann í frábæru útvarpsviðtali sem tekið var við hana á dögunum, þar sem hún talar meðal annars um að lýðræðið á Íslandi sé að hverfa, þessi heimsmarkmið SÞ, og ýmis mál sem ég hef einmitt fjallað um í síðustu bloggunum mínum og reyndar undanfarin tvö ár líka.

Hún er einstaklega vel lesin og fróð um heimsmálin, og ég hvet alla að hlusta á þetta viðtal.

En hvert er endatakmarkið?

Það er "transhumanism", sú trú eða kenning að mannkynið geti þróast út fyrir núverandi líkamlegar og andlegar takmarkanir, sérstaklega með vísindum og tækni eins og erfðatækni, nanótækni og gervigreind.

Sem þýðir á einföldu máli að við munum ekki lengur verða til sem mennskar manneskjur, heldur sambland af manneskjum og tölvum.

Vantrúaðir geta fundið allt um þetta á vefsíðum The World Economic Forum (WEF), og á netinu, enda fara svona viti firrtir illvirkjar ekkert dult með fyrirætlanir sínar.

Ítarefni:

Nýtt - Sannleikurinn um Sameinuðu þjóðirnar:

Myrkraverk Sameinuðu þjóðanna – Heimildarmynd um spillingu og glæpi í nafni mannúðar

Sameinuðu þjóðirnar útfæra Dagskrá 2030 með meintum „sjálfbærnimarkmiðum“ sem fávísir stjórnmálamenn hafa kokgleypt víða um heim. Þetta alheimsverkefni miðar að því að gjörbreyta öllum þáttum mannlegs lífs: mataræði, kynhegðun, fjölskyldumálum, atvinnuháttum, efnahagsmálum, heilbrigðismálun, menntun…allt sem varðar líf venjulegs fólks!

Að eigin sögn mun þessi endurræsing lífsins binda endi á fátækt, hungur, ójöfnuð, veikindi og annað slæmt. Fyrrverandi framkvæmdastjóri sem starfaði hjá SÞ í tvo áratugi segir aðra sögu. Hann útskýrir, að Sameinuðu þjóðunum er í dag stjórnað af glæpamönnum sem nota stofnunina og völd hennar til að auðga sjálfa sig og hneppa mannkynið í þrældóm. 

Sjá heimildarmyndina hér.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Það var einhver kona um daginn að hvetja til barneigna á íslandi, og taldi hærri barnabætur og lengri fæðingarorlof lausnina.

Ef samkynhneigð væri bönnuð og fóstureyðingar mundi íslendingum fjölga, rétt eins og þessi kona óskar eftir.

En ,,bakviðtjöldinfólkið" hefur engann áhuga á svoleiðis.

Loncexter, 14.5.2023 kl. 08:43

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Loncexter,

Það er mjög sorglegt að barnsfæðingum hefur fækkað hér á landi, en þetta er sama þróunin og alls staðar þar sem eitursprautuhernaðurinn var hvað harðastur.

Þetta trans agenda mun líka leiða til fækkunar fæðinga þegar búið verður að gelda fólk í stórum stíl og eyðileggja æxlunarfæri þess, og líkur á barneignum samkynhneigðra er eðli málsins samkvæmt töluvert flóknara.

En þurfum við nokkuð að óttast, hingað streyma flóttamenn í þúsundavís, og aðallega ungir karlmenn virðist vera, hver sem skýringin er á því.

Munu þeir hjálpa til við að fjölga Íslendingum?

Fólk verður að fara að vakna og fræða sig um þessi skelfilegu plön sem eru í gangi um örlög okkar - í boði íslensku ríkisstjórnarinnar!

Kristín Inga Þormar, 14.5.2023 kl. 10:39

3 Smámynd: Loncexter

Sumir segja að það sé samsæriskenning mikil, að eitthvað fólk vilji sérstaklega þurrka út hvíta kynstofnin.

Með öllum tiltækum ráðum.

Því það er svo erfitt að fá hvítt fólk til að láta að stjórn.

Gæti alveg verið að gerast sýnist mér. Þú sérð t.d varla hvítt fólk í auglýsingum lengur.

Loncexter, 14.5.2023 kl. 11:16

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Loncexter,

Jú jú, þetta á víst að vera ein af "samsæriskenningunum" - sem margar hafa þegar upp er staðið sannast vera allt annað en það, ég skrifaði einmitt blogg um það í vetur.

Ég hef líka tekið eftir þessum auglýsingum, sem eru jafnvel búnar til á íslenskum auglýsingastofum, og þótt þetta frekar undarlegt.

Við eigum víst að vera svo umburðarlynd og fagna öllu sem heitir fjölbreytileiki, en ég tek undir orð Stephen Hilton sem ég vísaði í í síðasta blogginu mínu um að umbera allt sé uppskrift að hörmungum.

Kristín Inga Þormar, 14.5.2023 kl. 11:48

5 Smámynd: Loncexter

Já, þetta er mjög einkennilegt hvernig bjútífúl brussel lið, hefur heillað íslenska pólitíkusa upp úr skónum, og fengið það til að taka þátt í því að þurrka út íslenska menningu og gildi.

Það þorir svo varla neinn, að segja eða gera neitt af ótta við einhvern rasista stimpil.

Loncexter, 14.5.2023 kl. 11:58

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Loncexter,

Vill WEF Kata ekki geta komið lögum yfir þá sem eru með "hatursorðræðu" á netinu, og hvaðan ætli það komi?

Frá Sameinuðu þjóðunum, sem núna eru að innleiða þessi "dásamlegu" heimsmarkmið sín!

Sér fólk virkilega ekki hvernig þetta hangir allt saman?

Kristín Inga Þormar, 14.5.2023 kl. 12:57

7 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Klaus Schwab var ekki fyrr búinn að ropa því út úr sér í Davos á WEF ráðstefnu þeirra s.l. janúar að stjórnvöld (um heim allan) ættu að setja lög um hatursorðræðu að Kata Jakobs brást við hið snarasta, var ekki lengi að birta áætlun um slíkt frumvarp.

Á áttunda áratug síðustu aldar voru fóstureyðingar leiddar í lög og nú hafa um það bil 50 þúsund einstaklingum verið fórnað á altari hins illa hér á landi. En þrátt fyrir það hefur fjölgun mannfólks átt sér stað.

Nú aftur á móti er ráðist á lítil leikskólabörn, grunnskóla krakka og unglinga sem eru að komast á kynþroskaaldur og þeim innrætt að þau séu í vitlausum líkama. Unglingar á kynþroskaaldri hafa alltaf í gegnum tíðina tekist á við það hver þau eru, hvað bíði þeirra, hvaða stefnu það á að taka í lífinu og þetta með kynhvötina, en allt þetta hafa langsamlega flestir komist yfir og vaxið upp í að verða heilbrigðir fullorðnir einstaklingar sem yfirleitt hefur leitt til þess að þau hafa eignast maka og börn og komist í gegnum lífið þrátt fyrir ýmsar mótbárur, en þannig er lífið bara.

Nú er verið að innræta í þessa einstaklinga að þau eigi ekki að vera þau sjálf heldur eitthvað allt annað. Þessar aðgerðir eru djöfullegar.

En ástæðan fyrir þessu eru verk hins illa með alla sína postula og lærisveina að koma í veg fyrir heilbrigð sambönd, eyðileggja möguleika þessara ungu einstaklinga til að eignast heilbrigt samband við hið gagnstæða kyn og koma í veg fyrir að þau geti af sér afkvæmi. Það á sem sagt að stöðva framgang mankyns til þess að hinir útvöldu geti haft jörðina og allt hið góða sem hún hefur uppá að bjóða útaf fyrir sig.

Þetta er glæpur gegn mannkyninu á sama hátt og Kóvid 19 var glæpur gegn mannkyninu ásamt ýmsum öðrum aðförum eins og stríðsrekstri o.fl., o.fl.

Ég bið að Guð gefi að augu enn fleiri opnist fyrir því sem raunverulega er að gerast, en blindan og afstöðuleysi leiðir í glötun.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.5.2023 kl. 23:01

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Fólk verður að fara að átta sig að hér á landi "stjórnar" landráðafólk sem tekur við tilskipunum utan frá, það er ekki endalaust hægt að afneita því.

Skýrustu dæmin um það eru viðbrögðin við "heimsfaraldrinum" sem voru furðulega lík og hjá öðrum þjóðum, sami hræðsluáróðurinn, sama mantran um grímurnar, um "bóluefnin" - þið munið hvað Þórólfur sagði: Það er bara tvennt í stöðunni, annað hvort að fá Covid eða fara í sprauturnar.

Svo leyfði Alma sér að segja núna í ársbyrjun að 200 dauðsföll í fyrra hefðu verið vegna Covid, hjá þessari þrælsprautuðu þjóð! Var hún beðin um gögn sem sönnuðu það hjá RÚV sem tók viðtalið við hana? Ónei, þetta lið hefur haft óheftan aðgang að RÚV "okkar allra" með lygarnar sínar.

Þessi viðbjóður að koma svona andstyggilegum hugsunum inn hjá börnum, allt niður í leikskólabörn er líka kominn beint að utan, þurfum við frekari sannanir fyrir því - þegar það blasir við okkur?

Já þetta eru svo sannarlega allt verk hins illa, sem hafa verið í undirbúningi í áratugi.

Ég tek hjartanlega undir þá bæn þína að Guð opni enn fleiri augu fyrir því sem er að gerast núna beint fyrir framan nefið á okkur.

Kristín Inga Þormar, 15.5.2023 kl. 08:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband