Bloggfærslur mánaðarins, október 2021

Hvað ætlar fólk að láta blekkja sig lengi, eru Íslendingar bara sofandi sauðir?

Nú er víst enn ein bylgjan á hraðri uppleið hjá einni mest sprautuðu þjóð í heimi. Fáir virðast setja spurningamerki við hvernig á því geti staðið, og flykkjast í sýnatökur í þúsundavís eins og enginn sé morgundagurinn, þar með talið fólk, hvers aðgöngumiði í afmæli er neikvætt próf.

"Á heilsugæsluna við Suðurlandsbraut hefur verið stríður straumur fólks á leið í hraðpróf alla helgina. Í kringum þrjú þúsund manns hafa fengið svona pinna upp í nefið og það venst seint. „Ég er að fara í fimmtugsafmæli í kvöld. Það var ætlast til þess að allir færu í próf,“ segir Auður Gunnarsdóttir."

Verkefnastjóri farsóttarnefndar Landspítala segir til skoðunar að færa spítalann aftur á hættustig og kallar eftir hertum sóttvarnaaðgerðum, að minnsta kosti grímuskyldu.

Hún ætti kannski að spyrja Macron og Merkel hvort grímur geri eitthvað gagn? Þau myndu skella uppúr og segja nei auðvitað ekki, þær eru bara tákn um undirgefni og hlýðni við yfirvaldið.

Við setjum þær bara á okkur fyrir myndavélarnar.

3110e

 

Allar smittölur á uppleið - 96 greindust í gær

Víðir er mættur aftur til leiks:

„Við erum búin að gera þetta svo oft. Slaka á og þurfa að herða. Ég veit ekki hvað við ætlum að gera þetta oft áður en við finnum einhverja leið sem verður þess valdandi að við getum haldið fjölda smita þannig við ráðum við það. Þegar við vorum með 40-50 smit þá gekk þetta ágætlega ég held að það sé lína sem við þurfum að horfa til.“

Það er eftirtektarvert (en kemur samt ekki á óvart) að fréttakonan Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir spyr hann ekki einnar einustu krefjandi spurningar, eins og til dæmis hvernig staðið geti á þessu þrátt fyrir að stærsti hluti þjóðarinnar er þegar tví- eða þrísprautaður og ætti því að vera búinn að fá vernd eins og lofað var.

Hann ætti að geta svarað þessu þótt hann sé ekki læknismenntaður, enda er hann innanbúðarmaður sem hefur hingað til haft nægilega mikla "þekkingu" til að geta skammað okkur og hrætt okkur upp úr skónum "þegar þörf hefur verið á".

Treystið vísindunum, er okkur sagt

1410g

"Vísindin" eru búin að taka ansi mörg heljarstökk síðan "heimsfaraldurinn" byrjaði, og þá alltaf í þá átt að réttlæta þessar svokölluðu "bólusetningar", skella öllu í lás og setja á grímuskyldu.

2110b

Mér datt í hug að renna í gegn um færslulistann minn og finna nokkrar færslur um tengd efni, svona ef einhver hefur áhuga á að lesa.

Við lifum nú á tímum stórkostlegra blekkinga og hræsni. Okkur almúganum eru settar reglur og skorður sem elítan og glóbalistarnir eru undanþegin.

Loftslagsráðstefnugestir í Glasgow eru undanþegnir reglum um bólusetningarvottorð, og við Íslendingar erum að sjálfsögðu "stórasta land í heimi" og þurfum að senda 50 manns á þessa ráðstefnu.

Boris og frú setja upp smá leikrit og skella grímunni á sig á leið upp í einkaþotu á ráðstefnu í Róm um loftslagsmálin, og Kalli prins fer á sinni einkaþotu til Rómar, og þaðan til Glasgow í sömu þotu.

Hann hefur víst mjög miklar áhyggjur af seinaganginum í loftslagsmálunum.....

3010i

3010j

Svo trúa Íslendingar enn að við séum í miðjum heimsfaraldri, finnst ekkert óeðlilegt að þurfa að fara í sýnatökur til að mega fara í afmæli, og eru farnir að nota þessar súrefnisheftandi munnbleyjur aftur.

Þetta eru að öllum líkindum þeir sem eru þegar búnir að láta tví- eða þrísprauta sig en eru enn skíthræddir við einhverja veiru, því þeim er sagt að vera það.

Við hreykjum okkur af því að vera vel menntuð og vel lesin þjóð, en erum þvert á móti sofandi sauðir upp til hópa, og það er því miður bara sorgleg staðreynd.

 

 


Enn meiri sönnun um að þessi svokallaði "heimsfaraldur" sé byggður á lygum

Það eru margir fílar í herberginu með tilliti til opinberrar umræðu um þennan meinta heimsfaraldur. Kannski er óvissan í kringum hvort þessi "drápsveira" sé yfirhöfuð til, stærsti fíllinn.

Margir vísindamenn vita um þetta, en þora ekki að minnast á það af ótta við rógsherferðir gegn sér, eins og allir þeir sem hafa dirfst það hingað til hafa orðið fyrir.

Hér er frábært viðtal við Dr. Kevin P. Corbett sem er sérhæfður hjúkrunarfræðingur, heilbrigðissérfræðingur, og kennari fólks í heilbrigðisstéttum.

Hann hefur rannsakað reynslu fólks af læknisfræðilegri greiningu og meðferð við langvinnum heilsufarssjúkdómum, þar á meðal HIV og alnæmi. Hann hefur starfað við sjúkrahús, samfélags- og réttarlæknisþjónustu síðan 1983, og við rannsóknir í heilbrigðisvísindum síðan 1987.

Í þessu einstaka viðtali hans við Dr. Kevin Corbett ræðir hann um meinta einangrun og hreinsun "drápsveirunnar", virkni PCR prófanna, sögulegar hliðstæður Covid-19 við HIV/Alnæmi, aðrar farsóttir og svo margt fleira.

Þegar maður horfir og hlustar á Kevin, þá veit maður að hann er að segja sannleikann, og honum er slétt sama hvort hann verði opinberlega rægður fyrir það sem hann segir, það þarf bara að segja sannleikann segir hann.

Þú veist að eitthvað mikið er að þegar vísindin eru ritskoðuð.

2910o

Vírusinn hefur aldrei verið einangraður, vísindamenn höfðu einhverja búta úr erfðafræðilegum kóða veiru sem þeir notuðu til að gera tölvulíkan af því sem okkur er sagt að sé þessi drápsveira.

Á grunni þessa tölvulíkans er PCR prófið notað eins og það er gert í dag.

2910f

Og hér er það viðurkennt af Maria Zambon hjá The Imperial College of London.

2910g

Einhver tiltekinn vírus er sagður valda tilteknum veikindum, niðurstaða úr jákvæðu PCR prófi plús mínus nokkur einkenni sem eiga við alls konar aðrar veirusýkingar er úrskurðað sem smit af völdum "drápsvírussins".

3010h

Jafnvel án nokkurra einkenna er niðurstaða úr jákvæðu prófi skilgreint sem "smit". Semsagt, þótt maður sé einkennalaus og fullfrískur, þá telst maður samt "með smit".

Það er fáránlegt að þetta sé látið viðgangast segir hann, en læknum hefur verið sagt að fara eftir þessum skilgreiningum.

Þessi kafli viðtalsins er mjög áhugaverður, og þar kemur meðal annars fram að heilbrigðismálum í Bretlandi sé í raun stjórnað af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).

Það má líka velta fyrir sér hvort það sama eigi sér stað hér á landi, Þórólfur hefur oftar en einu sinni sagt að hann fylgi tilmælum þessarar stofnunar, samanber þegar hann sagði í fyrra að grímur gerðu ekkert gagn, en svo komu víst einhver ný "vísindi" fram þar sem sögðu að þær gerðu mikið gagn.

2910h

Greining á "smiti" skuli ekki byggjast á einangrun veirunnar. Tilmæli til ríkisstjórna heimsins, ekki hafa fyrir því að einangra hann, treystið okkur bara.

2910i

22 virtir vísindamenn birtu vandaða grein sem fjallar um galla þessara PCR prófa, sem geta framkallað falskar jákvæðar niðurstöður.

Þessari grein var hafnað af Eurosurveillance (auðvitað!), því stofnanir gera allt sem þær geta til að varðveita orðstír sinn.

Hann segir líka að hefðu niðurstöður þessarar rannsóknar verið samþykktar, þá hefði það þýtt mikið tekjutap fyrir þá sem eru þegar búnir að græða milljarða á þessum prófum.

Þetta snýst ekki um vísindi, heldur peninga og völd.

2910j

Svona er farið að þessu

Þú byggir upp hræðslu í samfélaginu við einhvern vírus, sjúkdóm og hræðslu við dauða, og þú viðheldur honum með áróðri sem er búinn til af atferlisfræðingum sem búa til allar myndrænu auglýsingarnar sem kynda undir óttann (hér talar hann um Bretland).

Allt er tengt dauðanum, um að þú getir náð þér í eitthvað sem getur drepið þig, allt gert að skapa og viðhalda hræðslu, við verðum að vernda ömmu gömlu og svo framvegis, þetta þekkjum við líka hér á landi.

Þetta hefur verið gert áður segir hann, og nefnir SMON faraldurinn sem gekk yfir Japan á áttunda áratugnum, þar sem hundruðir manns létust.

En það sem raunverulega gerðist var, að fólk lést af afleiðingum niðurgangslyfs, ekki neinnar veiru.

Svo þetta er ekki í fyrsta tilfelli misráðinna vísinda segir hann.

Í dag sé heilsufarssaga fólks ekki könnuð, hvort það hafi alvarlega undirliggjandi sjúkdóma, heldur sé nóg að fólk hafi almenn einkenni eins og kvef, hita og hósta, til að það sé úrskurðað með veiruna í sér.

Hann fjallar líka um HIV/Alnæmis faraldurinn á sínum tíma, sem skapaði mörgum mikil auðævi, og ber hann saman við núverandi "heimsfaraldur", mjög merkileg frásögn!

Hann fer líka í gegnum ferlið sem leiddi til þess að þessi próf fóru á hraðferð í gegnum kerfið, í stað margra ára prófana (eins og við þekkjum með þessi svokölluðu "bóluefni"), og var veitt neyðarleyfi.

Og, eins og ég hef oft bloggað um, þá hefur einhverjum faraldri verið viðhaldið með fölskum jákvæðum niðurstöðum sem hefur sent börn og fullorðna í lengri eða skemmri einangranir og/eða sóttkvíar.

Þetta er falskur faraldur, vírusinn hefur aldrei verið einangraður, og búinn var til sjúkdómur sem er skilgreindur út frá svo almennum einkennum að hann geti í raun verið hvað sem er, segir hann.

Þetta frábæra viðtal við hann er gott framhald af blogginu mínu í gær, þar sem ég fjalla um að þessi svokallaði heimsfaraldur sé byggður á lygum.

 


Svínaflensan 2009, og "heimsfaraldurinn" sem er byggður á tómum lygum!

Það mætti halda að aldrei hafi gengið yfir pestarfaraldrar fyrr en undanfarin tæp tvö ár, en við erum svo fljót að gleyma. Sannleikurinn er samt sá að við fáum pestir yfir okkur á hverju einasta ári, og stundum mjög skæðar þar sem fólk getur átt í langvinnum veikindum og eftirköstum eftir þær, og jafnvel látist.

En reyndar ákvað gamla góða flensan af stakri kurteisi að taka sér frí í fyrra og hætti að greinast eftir að "drápsveiran mikla" kom upp.

Ég rakst á frábæra grein í gær, þar sem meðal annars er farið yfir þennan "yfirstandandi heimsfaraldur", fölsku PCR prófin, og að svínaflensufaraldurinn 2009 hefði bara verið flensa (kannski þó í skæðari kantinum).

"One thing we now know for certain, there never was a pandemic. There was the illusion of a pandemic created by the PCR testing fraud. The mass testing of millions of healthy people which produced millions of false positives. In unison with a campaign of fear promoted by governments through the media."

2610bÉg sendi fyrirspurn til Landlæknisembættisins fyrr á þessu ári og spurði meðal annars um hversu margir snúningar væru notaðir á PCR prófum hér á landi, og svarið var 40 snúningar.

Þetta þýðir bara að Þórólfur hefur, eins og margir kollegar hans í öðrum löndum viðhaldið fölskum faraldri hér á landi á grunni þessara prófa.

Og látið það síast inn í kollinn á ykkur! Það er búið að halda fólki bæði hér á landi og annars staðar í skefjalausum ótta við einhverja veiru, með prófum sem gefa allt að 97% falskar jákvæðar niðurstöður eins og þau eru notuð!

PCR prófin

 

Samtíminn

Berið gömlu fréttirnar hér fyrir neðan saman við fréttaflutninginn í dag, og þessar endalausu fréttir um "ný smit" og annan hræðsluáróður.

Og nú er verið að hræða foreldra ungra barna, enda stendur til að byrja að sprauta börn á aldrinum 5-11 ára á næstunni.

En eins og sjá má af þessum gömlu fréttum, þá voru börn niður í 0 ára líka að veikjast þá.

Þórólfur er farinn að blogga, og segir í dag meðal annars: "Ákvörðun um bólusetningu barna yngri en 12 ára hefur ekki verið tekin enda hafa engin bóluefni verið samþykkt hér á landi fyrir börn á þeim aldri. Bóluefni frá Pfizer er nú umsóknarferli hjá Lyfjastofnun Evrópu og er von á niðurstöðu í desember 2021."

Hann vill semsagt sprauta 5-11 ára börn með eiturglundrinu sem hefur valdið samtals 2.234 aukaverkunum hér á landi, sem skiptast svona:

Comirnaty (BioNTech/Pfizer):

105 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • 24 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Fimm andlát vörðuðu eldri*** einstaklinga, fjórir þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
  • 56 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af níu lífshættulegt ástand).
  • 16 tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar****.
  • Fjórar tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótar upplýsingum.
  • Fimm tilkynningar varða fósturmiska.

Þetta vill hann gera þrátt fyrir að búið sé að tilkynna um 68 aukaverkanir hjá 12-17 ára börnum hér á landi, þar af 8 alvarlegar!

Alvarlegar aukaverkanir á sænskum börnum og ungmennum eru farnar að koma fram, eitt barn er látið og 101 með lífshættulegan skaða.

Uppfærsla: Ný frétt á Fréttin.is sem ber yfirskriftina "Leiðrétting eða lygaáróður fyrir frekari bólusetningum barna?".

Er þessi maður bara samviskulaus þrjótur?

Fréttir í fjölmiðlum dagana 31. október - 2. nóvember 2009

Fjörutíu á Landspítalanum vegna svínaflensu

"Fjörutíu manns liggja á Landspítalanum vegna svínaflensunnar þar af tíu á gjörgæslu. Flestir sem eru á gjörgæslu eru um fimmtugt, yngsti sjúklingurinn er tveggja ára og sá elsti um áttrætt.

Sex nýir voru lagðir inn á spítalann í gær. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segist ekki sjá að flensan sé í rénun"

Aldrei fleiri flensusjúklingar á spítala

"Aldrei hafa fleiri legið inni á Landspítala af völdum svínaflensu en í gær. Þá höfðu átta nýir lagst inn en enginn verið útskrifaður. Samtals voru 43 inniliggjandi, þar af ellefu á gjörgæslu. Yngsti gjörgæslusjúklingurinn var tveggja ára en sá elsti rúmlega áttræður."

"Á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru þrír inflúensusjúklingar í gær, enginn þeirra á gjörgæsludeild. Langflest inflúensutilfelli hérlendis, undanfarna daga og vikur, greinast hjá börnum á aldrinum 0 til 9 ára, að því er fram kemur í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Þetta er marktæk breyting frá því í júlí og ágúst þegar flestir sem veiktust voru á aldrinum 15 til 30 ára."

Aldrei fleiri á spítala með svínaflensu

"Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu en 45 sjúklingar liggja þar nú, þar af ellefu á gjörgæslu. Undanfarna daga hafa borist fréttir af því að flensan sé í rénun en í dag var tekin ákvörðun um að hafa spítalann áfram á svokölluðu virkjunarstigi."

Flensan gæti enn átt eftir að versna

"Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu. Þar liggja nú 45 sjúklingar með flesuna, þar af ellefu á gjörgæsludeild. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að hann eigi von á því að í vikunni komi í ljós hvort flensan eigi enn eftir að versna eða hvort nú muni loks fara draga úr henni.

Svo gæti farið að um 100 manns til viðbótar þyrftu að leggjast inn. Þar með gætu sjúklingar á gjörgæsludeild orðið allt að þrjátíu talsins en að jafnaði hefur fólk, þungt haldið af svínaflensu, þurft að dvelja þar í þrjá til fjórar vikur. Spítalann segir hann þó geta annað slíku álagi."

Tíu á gjörgæslu vegna svínaflensu

"Tíu sjúklingar liggja á gjörgæsludeild Landspítalans vegna svínaflensu eða H1N1 inflúensunnar. 39 eru inniliggjandi á spítalanum vegna flensunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá farsóttarnefnd spítalans.

Þar kemur jafnframt fram að frá því í gær hafi einn sjúklingur verið útskrifaður af gjörgæslu en einn nýr lagst þar inn. Á hádegi í gær voru 45 sjúklingar inniliggjandi á spítalanum og þar af 11 á gjörgæslu."

Þessi heiðursorðuhafi er lengi búinn að ljúga að þjóðinni

Engu var á þessum tíma skellt í lás, engir settir í einangranir og sóttkvíar eða skipað að nota grímur, en allir hvattir til að láta sprauta sig gegn pestinni, og það gerði meðal annars núverandi sóttvarnalæknir.

0810m

Þarna árið 2009 sagði hann: Aukaverkanir af bólusetningu gegn svínaflensu eru mjög litlar miðað við hættuna af veirunni sjálfri. Ansi kunnugleg mantra!

Samt sem áður urðu að minnsta kosti þrjár ungar stúlkur öryrkjar fyrir lífstíð hér á landi, og hundruðir annarra ungmenna í öðrum löndum.

Svo sagði hann í viðtali í upphafi núverandi "heimsfaraldurs" að tryggja þurfi að nýtt bóluefni valdi ekki skaða.

2910e

Honum hefur tekist það svona líka ljómandi vel, finnst ykkur það ekki?

Inga Halldórsdóttir birti mjög góða bloggfærslu í dag um hvað liggur að baki þessum blekkingum, og ég er búin að horfa á mörg vídeó með þessum sérfræðingum sem hún vísar í.

Og hún hefur skrifað mörg góð blogg þar sem hún kafar djúpt ofan í það sem verið er að gera heimsbyggðinni núna, kíkið endilega á þau!

 


Á að fara að skella öllu í lás eina ferðina enn?

Sóttvarnalæknir er farinn að skrifa reglulega hræðslupistla á covid.is

"Þróun faraldursins hér er því enn versnandi og faraldurinn í veldisvexti. Líklegt er að þessi þróun  hvað varðar heildarfjölda smita haldi áfram sem mun leiða til versnandi ástands á Landsspítalanum."

"Hollt er hins vegar að hafa í huga þá reynslu okkar að samfélagslegum smitum fækkar ekki fyrr en gripið er til takmarkandi aðgerða í samfélaginu."

Hvers vegna endurtaka það sem ekki virkar?

Grímur virka ekki gegn örsmáum veirum, samt hefur grímuskyldu verið skellt á okkur í tvígang.

Það sem áður var sagt vera full bólusetning virkaði ekki heldur þegar upp var staðið, og fólk hvatt til að fá sér fleiri sprautur, og að sjálfsögðu flensusprautu líka. Og samt er sprautaða fólkið líka að greinast "með smit" og veikjast!

Svo hver er staðan núna?

11 af 13 Covid sjúklingum á Landspítalanum 27. október voru bólusettir, segir hér.

7 fullbólusettir starfsmenn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru komnir í einangrun og 10 til viðbótar í sóttkví eftir að smit greindist hjá embættinu, segir hér.

Þessu fólki hefur líklegast verið boðin "örvunar"sprautan, eins og öllu framlínustarfsfólki. Semsagt, tvær eða jafnvel þrjár sprautur virkuðu ekki betur en þetta.

Hvað ætli sé langt í fjórðu sprautuna og svo þá fimmtu og .....

Hversu lengi ætlar fólk að láta blekkja sig?

Verið áfram hrædd!

"Við getum forðast hópamyndanir með ókunnugum, viðhaft eins metra nándarreglu, notað andlitsgrímur í aðstæðum þar sem nánd við ókunnuga er undir einum metra og gætt að góðri sótthreinsun handa.

Ef við finnum fyrir einkennum sem bent geta til COVID-19 þá ættum við að halda okkur til hlés, forðast margmenni og umgengni við viðkvæma einstaklinga og fara í sýnatöku."

Merkilegt, þetta var líka sagt í fyrra áður en stærsti hluti þjóðarinnar var orðinn fullsprautaður!

Ætli þetta fólk á myndinni hér fyrir neðan sé í þeim hópi?

2810c

Það sem aldrei er sagt

Hvernig við getum eflt okkar dásamlega meðfædda ónæmiskerfi með réttum vítamínum og steinefnum, og ekki má gleyma lýsinu góða. Þetta svínvirkar!

Ótti og streita hefur slæm áhrif á ónæmiskerfið, það eiga allir að vita, líka læknar. Þessi endalausi hræðsluáróður Þórólfs, Kára og fleiri aðila gerir ekkert annað en að hafa lamandi áhrif á andlega og líkamlega heilsu fólks.

Tveir ósprautaðir og ellefu sprautaðir á bráðadeildum núna!

Þetta ætti að koma manni á óvart en gerir alls ekki. Dökkbláa súlan er yfir þá sprautuðu og sú gráa þá sem hafa afþakkað glundrið, og eins og sjá má er sú bláa í langflestum tilfellum hærri. Sjá meira hér.

2810d

 

Öllum ætti að vera löngu orðið ljóst að það er enginn drápsfaraldur vegna einhverrar veiru í gangi.

Þetta er eini faraldurinn sem er í gangi!

Í gær var fjöldi tilkynninga um aukaverkanir kominn upp í hvorki fleiri né færri en 5.486, þar af eru 193 alvarlegar plús 32 andlát, en síðan hefur ekki verið uppfærð í dag.

Fréttin.is birtir þetta á síðunni sinni í morgun:

"Til viðbótar þessum upplýsingum og frekari sundurliðun á grunuðum alvarlegum aukaverkunum hefur stofnunin svarað nokkrum frekari fyrirspurnum um aukaverkanir: 57 tilkynningar hafa borist vegna blóðtappa, 18 vegna hjartavöðvabólgu og/eða gollurshússbólgu. 

Eins hafa 68 aukaverkanir verið tilkynntar í hópnum 12-17 ára barna, þar af átta alvarlegar og 65 tilkynningar hafa borist vegna örvunarskammta."

Hér má bæta við 10 tilkynningum um fósturskaða!

Ef engin af þessum 5.486 manneskjum hefðu verið sprautaðar með þessum skelfilegu líftæknilyfjum sem eru ekki einu sinni bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til, þá hefði aldrei þurft að tilkynna um þessar 5.486 aukaverkanir.

Og stóra spurningin er, hvers vegna er Þórólfur aldrei tekinn á teppið í fjölmiðlunum og spurður út í þetta?

Og hvers vegna er enn verið að þrýsta á fólk að láta sprauta sig, þegar augljóst er að þetta glundur virkar ekki, og veldur jafnvel óafturkræfum skaða og/eða andlátum hjá fólki?

Næsta mál á dagskrá hjá þessu liði er að fara að sprauta 5-11 ára börn, ætla íslenskir foreldrar að leyfa því að gerast?

Og nú virðist vera byrjað að kynda undir hömlur og lokanir eina ferðina enn, þetta er orðið sagan endalausa.

 


Er samanburður við Ísrael besta leiðin til að sannfæra okkur um ágæti og árangur "bólusetninganna"?

Sóttvarnarlæknir okkar heldur áfram að reyna að hræða okkur með þessum áhyggjum sínum af "faraldrinum", og hvetur þá enn ósprautuðu að drífa sig í þær, og hina sprautuðu að fá sér "örvun".

Örvunarbólusetning dregur verulega úr líkum á alvarlegum veikindum að mati sóttvarnarlæknis

"Sóttvarnalæknir mælir með örvunarbólusetningu fyrir alla 60 ára og eldri, heilbrigðisstarfsfólk, íbúa á hjúkrunarheimilum og tiltekna viðkvæma hópa, sbr. nánari skilgreining á vef embættis landlæknis.

Rannsókn sem gerð var í Ísrael og birt í The New England Journal of Medicine, sýnir umtalsverðan árangur af örvunarbólusetningu einstaklinga 60 ára og eldri sem voru fullbólusettir með tveimur skömmtum af bóluefni Pfizer og fengu örvunarskammt þegar a.m.k. 5 mánuðir voru liðnir frá seinni sprautunni.

Að liðnum 12 dögum frá örvunarbólusetningu voru líkur á smiti rúmlega 11 sinnum minni en hjá sambærilegum hópi sem ekki hafði fengið örvunarskammt og líkur á því að þeir veiktust alvarlega af Covid-19 voru nærri 20 sinnum minni."

Heimild.

Þarna vísar hann í rannsókn frá Ísrael, sem er eitt bólusettasta land í heimi, og "umtalsverðan árangur" af "örvunar"skotunum þar í landi.

Á vefsíðunni Ourworldindata.com er meðal annars hægt að kalla fram tölulegar upplýsingar um gengi "heimsfaraldursins", og á þessu línuriti má sjá allt aðrar upplýsingar en sóttvarnarlæknir setur fram.

2710b

 

Þetta skjáskot tók ég áðan, og þar má sjá samanburð milli nokkurra landa. Fjöldi smita og dauðsfalla hefur sem betur farið hríðlækkandi síðan "örvunin" hófst hjá Ísraelum, en það breytir ekki því að þessar tölur eru skelfilega háar.

Í ljósi þessa má velta fyrir sér hvað sóttvarnarlæknir hefur fyrir sér, þegar hann bendir á þennan "umtalsverða árangur", annað en þessa rannsókn - sem að sjálfsögðu er birt á síðu breska heilbrigðismálaráðuneytisins, sem er jafn "óspillt" og það íslenska!

2710a

Ísraelsk fórnarlömb

Hér má sjá rúmlega klukkustundar langa mynd með Ísraelum sem glíma enn við alvarlegar aukaverkanir eftir sprauturnar, og aðstandendur þeirra sem létust eftir þær.

Það var ísraelsk kona sem kallar sig Avital sem lagði gríðarlega vinnu í gerð þessarar myndar, og hérna má lesa meira um viðtöl hennar við fórnarlömbin.

Og hér er umfjöllun um ísraelskan stærðfræðing sem segir sprauturnar hafa valdið flóðbylgju í dauða ísraelskra ungmenna. Meira hér.

Svo ég svari fyrirsögninni sjálf, þá er svarið nei, heldur þveröfugt.


Faraldur meintra óútskýrðra andláta unglinga heldur áfram að sjokkera okkur, segir breskur læknir

Þau vissu að börn myndu látast eftir "bólusetningarnar", og á þar við um bresk yfirvöld.

Nemandi í Solihull var sprautaður, fékk blóðtappa, svo hjartaáfall og lést. 17 ára stúlka lést innan 24 stunda frá sprautu. Barn lést í Essex, annað í Leicester og svo framvegis segir hann.

2510f

Í grein sem hann vísar í kemur fram að barnadauði sé núna 52% meiri en meðaltal síðastliðinna 5 ára eftir að börnum var boðin "bólusetning", eftir 14% fækkun andláta meðal þeirra, samkvæmt opinberum gögnum.

2510h

Dr. Vernon Coleman

2510eHann er læknir sem kallar sig gamla manninn í stólnum, og hann hefur verið óþreytandi við að fjalla um "heimsfaraldurinn" frá byrjun, og (nánast?) allt sem hann hefur spáð fyrir um hefur komið fram.

Ég er búin að horfa á flest, ef ekki öll vídeóin hans sem spanna allt frá því hversu spillt og rotið heilbrigðiskerfið er orðið, upp í blekkingarnar og lygarnar sem við erum búin að búa við í vel á annað ár núna varðandi "heimsfaraldur" sem aldrei var raunverulega til.

Hann er engum háður, og þiggur engar greiðslur fyrir vinnu sína, og er að sjálfsögðu eins og allir heiðarlegir læknar og vísindamenn, opinberlega rægður, smánaður og útskúfaður af öllum þessum spilltu miðlum í dag.

Hann hefur meira að segja boðist til að taka þátt í umræðum um "faraldurinn" á BBC, en fékk að sjálfsögðu engin viðbrögð við því.

Þetta er faraldur tilviljanakenndra dauðsfalla, segir hann. Fullkomlega heilbrigð börn eru að detta niður dauð núna, eitthvað sem áður var mjög sjaldgæft, en farið að verða algengt núna.

Ísland í dag

Hvergi er minnst á 33 tilkynningar um aukaverkanir hjá 12-17 ára börnum, þar af fjórum alvarlegum, né lömun sem átti sér stað hjá hinni 19 ára Tinnu Katrínu Owen, sem þrátt fyrir sína lömun eftir "örvunar"sprautuna mælir ekki gegn þessum sprautum.

Í dag birtist frétt á Fréttin.is þar sem rangfærsla Stjórnarráðsins um að bólusetning barna veiti 100% vörn er leiðrétt.

Glæpir gegn börnunum

Að ætla að fara að sprauta þessum genabreytandi líftæknilyfjum í börn er ekkert annað en glæpur.

Yfirvöld hér á landi vita það alveg jafn vel og þau bresku að þessi efni skaða og drepa fólk. Fjöldi tilkynntra aukaverkana er kominn upp í 5.065 í dag úr 4.467 í gær, sem gerir fjölgun upp á 598, og aftur er Janssen hástökkvari dagsins.

Fullorðnir mega láta sprauta sig eins og þeir vilja, en börnin eru heilög og þau ber að vernda.

 


Vekur það enga athygli að landlæknir hafi haldið eftir tilkynningum um aukaverkanir ríflega 2.000 "bólusettra" einstaklinga sem síðar greindust með "smit"?

Það er óskiljanlegt að þessi frétt skyldi ekki vekja meiri viðbrögð í samfélaginu en raunin er.

Hvers vegna er ekki allt orðið brjálað, og landlæknir og Lyfjastofnun krafin svara um þetta? Hvar eru blaðamenn þessa lands?

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (Yfirhjúkkan í Vaxhöllinni)

Vísir birti frétt þann 23. október, þrem dögum eftir að Lyfjastofnun byrjaði að bæta þeim við gagnagrunn sinn, eftir að ég og fleiri skrifuðum um þær.

"Embætti landlæknis hefur sent Lyfjastofnun fjölmargar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefna. Tilkynningarnar varða allar einstaklinga sem hafa verið bólusettir, en síðar greinst með Covid-19 smit. Skráning tilkynninganna stendur nú yfir.

Í heildina hafa borist 4.144 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar og þar af 224 alvarlegar. Flestar tilkynningarnar varða bóluefni Pfizer en það er mest notaða bóluefnið hér á landi. Fæstar varða bóluefni Janssen eins og sjá má í töflunni hér að neðan."

Það vekur sérstaka athygli mína, að þegar ég skrifa þetta hefur enginn smellt á Like hnappinn á Visir.is, og enginn sett inn athugasemd undir fréttina.

„Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við." (Þórólfur)

Mbl birti svipaða eða sömu frétt sama dag, einum líkaði þessi frétt, en enginn bloggaði beint við hana.

Ég var reyndar áður búin að blogga um þetta áður en ég sá skýringuna á þessari skelfilegu fjölgun tilkynninga:

En ég get ekki séð að RÚV (okkar allra!) hafi enn birt þessa frétt á vef sínum, þetta þykir kannski ekki fréttnæmt þar á bæ.

Búið að bæta við 323 tilkynningum frá því á föstudag

2510

Í þetta sinn á Janssen "vinninginn"

Eins og sjá má, þá er 312 aukaverkunum vegna þess bætt við núna, svo það verður fróðlegt að fylgjast með tölunum á morgun og sjá hvert þeirra verður hástökkvari dagsins.

2210

Einmitt!

"Varðandi niðurstöður sem eru komnar bendir allt til þess að bóluefni við Covid-19 séu örugg og mjög virk,“ sagði Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítala og prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, í Bítið á Bylgjunni.

Hann benti á að mun alvarlegra væri að fá COVID með aukaverkunum þess en að láta bólusetja sig. Það hvíli samfélagsleg ábyrgð á fólki að láta bólusetja sig til að verja viðkvæmustu hópa samfélagsins."

Mikið er gott að eiga alla þessa góðu sérfræðinga úr heilbrigðisstéttinni sem er svona "annt" um okkur!

 


Ung móðir sem er sködduð eftir "bólusetninguna" lýsir martröðinni í kjölfarið, og biður um hjálp í baráttunni gegn spillingunni varðandi "faraldurinn"

Eftir því sem verið er að setja bólusetningarskyldu á fleiri samfélög, eru fleiri hópar þeirra sem hafa orðið verst úti vegna þessara svokölluðu "bólusetninga" nú tilbúnir að fletta ofan af alvarlegum, og stundum banvænum afleiðingum sprautanna.

Hér er einlægt viðtal við unga bandaríska móður að nafni Brianne Dressen, sem fúslega tók þátt í því sem hún taldi samfélagslega skyldu sína í nóvember í fyrra í baráttu gegn "heimsfaraldrinum".

2310i

Hún lét sprauta sig með AstraZeneka, og uppskar að launum alvarlega taugasjúkdóma sem leiddu meðal annars til þess að hún missti kraft í fótunum og þurfti að læra að ganga aftur.

Líkami minn fór frá því að vera fullkomlega heilbrigður, og ég var fullkomlega fær um að sinna starfi mínum og börnum, niður í að stærsta afrek dagsins er að veita þér þetta viðtal, og að ég útbjó sjálfri mér morgunmat, segir hún í þessu viðtali.

Almenningi er ekki sagt frá þessum aukaverkunum, segir hún, né sé læknasamfélagið upplýst um að svona viðbrögð og aukaverkanir vegna þessara tilraunaefna geti gerst.

Þess vegna hefur hún núna safnað saman sögum annarra fórnarlamba þessara svokölluðu "bólusetninga", bæði þeirra sem hafa skaðast alvarlega, og þeirra sem hafa misst ástvini eftir þær.

Hún vill að öll þjóðin geri sér grein fyrir því að afleiðingarnar séu raunverulegar, en ekki sjaldgæfar eins og fólki sé talin trú um.

Þessar frásagnir má finna hér á þessari síðu.

Að hennar frumkvæði ætla fórnarlömb "bóluefnanna" að efna til mótmæla í Washington DC 2. nóvember næstkomandi, sem verður stýrt af einu fyrsta fórnarlambi Covid "bóluefnanna".

Þar munu þau sýna fram á óhrekjanleg sönnunargögn frá læknisfræðimenntuðum vísindamönnum um að aukaverkanir þeirra hafi sannanlega verið vegna sprautanna.

Ernest Ramires verður eitt fórnarlambanna sem mun koma fram þarna, en hann missti einkason sinn, hinn 16 ára gamla Ernesto sem lést 5 dögum eftir að hafa fengið Pfizer sprautu í apríl.

Örfá fórnarlömb (af milljónum!) í viðbót, smellið á myndirnar til að stækka þær.

2410

 

2410a

 

2410b

 


Fullbólusettir Ástralir munu héðan í frá teljast óbólusettir nema þeir þiggi allar framtíðar "örvunar"sprautur

Daniel Andrews, sem er forsætisráðherra Viktoríu fylkis í Ástralíu setti fram þessa sturluðu yfirlýsingu á dögunum.

Hann sagði líka að ósprautaðir munu verða heftir frelsi á næsta ári, og það muni líka eiga við þá sem hafi "aðeins" fengið eina eða tvær sprautur.

Hann lýsti því yfir að óbólusettir Viktoríubúar yrðu áfram útilokaðir frá efnahagslegri og félagslegri þátttöku langt fram á 2022. Forsætisráðherrann varaði einnig tvísprautaða Viktoríubúa við að þeir gætu verið lokaðir inni ef þeir fái sér ekki "örvunar"skot ef þess verður krafist.

2310f

Ástralir reisa einangrunarbúðir vegna "áframhaldandi aðgerða"

Sagt er að verið sé að reisa þessar búðir fyrir þá sem hafi ekki haft aðgengi að "bólusetningunum".

Samkvæmt frétt í ABC Australia, þá er gert ráð fyrir að einar slíkar með 1.000 rúmum verði tilbúnar í lok mars 2022.

Á þessu stigi verði húsakynnin notuð fyrir innfædda sem séu að ferðast af Covid "áhættusvæðum".

Þeim verður skipt niður á mismunandi svæði, og munu geta hýst einstaklinga, pör og fjölskyldur, og muni verða undir eftirliti lögreglu og öryggisvarða 24 tíma á sólarhring.

Svo er talað um að áætlað sé að það verði áframhaldandi þörf fyrir einangrunarbúðir vegna nýrra "afbrigða" og fólks sem hafi ekki haft aðgengi að "bólusetningum". (Lesist: Fólki sem hefur engan áhuga á fá þessum genabreytandi líftæknilyfjum sprautað í sig).

Greinin fjallar líka um að sömu aðgerðir séu í gangi í Bandaríkjunum, Kanada, Nýja Sjálandi og Þýskalandi.

Ástralir vilja ekki láta bjóða sér þetta lengur!

2310gHugrakkur ástralskur lögreglumaður hefur tekið afstöðu gegn harðstjórn og lygum stjórnvalda og fjölmiðla um Covid-19 sem hefur leitt landið niður í einræðisbrjálæði, álíka og myndi gera leiðtoga kínverska kommúnistaflokksins, Xi Jinping, stoltan - og allt í nafni "heilsu".

Í færslu sem hann birti á Facebook vegg sínum segir hann meðal annars:

Þessari spurningu sé enn ósvarað, - Hvers vegna eru leiðtogar Ástralíu og stjórnvalda annarra þjóða að ljúga að borgurum sínum um Covid-19 og nota það til að reyna að beita forræðishyggju?

2310hÞessir Ástralir flykktust út á göturnar fyrr í mánuðinum þegar stjórnvöld í Viktoríu boðuðu skyldubólusetningu fyrir alla "authorised workers".

Fólkið sem telst til þessa hóps yrði að fá fyrstu sprautuna fyrir 15. október og þá síðari fyrir 26. nóvember, annars ættu þeir á hættu að vera reknir.

Krafan spannaði margar starfsgreinar, sem 1 - 1,25 milljónir manna í starfa í. Lokafrestur þessi væri aðskilinn frá öðrum fresti sem var settur á þá sem starfa við öldrunarþjónustu, heilsugæslu, byggingarstarfsemi, menntun og vöruflutninga.

Ég hef áður fjallað um það sem er að gerast í heiminum í dag, svona til upprifjunar:

Sannleikurinn er, hvort sem fólki líkar betur eða verr, það var aldrei neinn alvöru "heimsfaraldur" í gangi.

Nánast allt sem okkur hefur verið sagt í fjölmiðlunum og af völdum sérfræðingum eru hræðsluáróður, og lygar.

Fréttirnar sem okkur eru ekki sagðar í meginstraumsfjölmiðlunum eru skrifaðar af þúsundum manns um heim allan sem vilja koma sannleikanum um það sem raunverulega er í gangi, upp á yfirborðið.

Þar á meðal eru heimsfrægir, óháðir og virtir vísindamenn, læknar og lögfræðingar sem eru útskúfaðir frá miðlum eins og YouTube, Facebook og Google.

Þessu fólki eigum við að treysta, ekki glæpamönnum eins og Dr. Fauci, eða Bill Gates sem er búinn að fremja hroðalega glæpi í nafni "mannúðar", en hefur margoft sagt að það þurfi að fækka mannkyninu, og að bóluefni séu frábær leið til þess.

Við erum hreint ekkert undanskilin hvítþvotti og "hálfsögðum" fréttum hér á landi, nýjasta dæmið um það eru þessar ríflega 2.000 aukaverkanir bólusettra einstaklinga sem hafa greinst með smit sem verið er bæta inn í grunn Lyfjastofnunar þessa dagana.

2310 

 

 


Skýringin á hvers vegna tilkynntum aukaverkunum fjölgaði um 721 í gær!

Landlæknisembættið hefur einhverra hluta vegna setið á ríflega 2.000 tilkynningum, sem nú er búið að senda til Lyfjastofnunar.

Það gefur augaleið, að þetta hefur hingað til skekkt stórkostlega daglegar tilkynningar stofnunarinnar, sem voru þó nógu margar fyrir.

22. apríl aÞað er svolítið merkilegt að upplýsingar um aukaverkanir og andlát eftir sprauturnar virðast ákaflega lítið hreyfa við fólki almennt!

Enda er búið að sannfæra það að allt sé betra en að fá Covid, og kerfisbundið búið að viðhalda hræðsluáróðrinum með daglegum "smittölum", sem allir ættu núna að vita að eru byggðar á prófum sem gefa allt að 97% falskar jákvæðar niðurstöður.

Óskiljanleg fjölgun tilkynninga

Í fyrradag, 20. október skrifaði ég um fjölgun um 88 á einum degi, og þótti líklegast að það tengdist "örvunar"sprautunum, enda voru þær allar vegna skaðlegasta efnisins sem notað er til þess.

Í gær, 21. október skrifaði ég um sprengingu í tilkynningum, þær voru allt í einu komnar upp í 495 á einum degi, og breytti síðan færslunni þegar Lyfjastofnun fjölgaði þeim upp í 721.

Síðan kom í ljós að Lyfjastofnun birti færslu dagsetta 21. október:

"Tilkynningum vegna gruns um aukaverkun fjölgar til muna

Embætti landlæknis hefur sent Lyfjastofnun ríflega 2.000 tilkynningar um aukaverkun. Þær varða allar bóluefni gegn COVID-19.

Lyfjastofnun hafa borist ríflega 2.000 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun frá embætti landlæknis. Embættið hefur safnað gögnunum saman frá því hafist var handa við bólusetningar gegn COVID-19 í lok síðasta árs. Þessar upplýsingar hafa nú verið sendar Lyfjastofnun og nú stendur yfir skráning þeirra í aukaverkanagrunn Lyfjastofnunar samkvæmt leiðbeiningum um lyfjagát.

Allar tilkynningarnar varða einstaklinga sem hafa verið bólusettir en hafa greinst með COVID-19 smit. Þessar upplýsingar hafa áður birst í daglegum smittölum frá sóttvarnalækni en hafa ekki verið færðar inn í aukaverkanagrunn Lyfjastofnunar fyrr en nú.

Tölur á upplýsingasíðu með fjölda tilkynntra aukaverkana í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19 munu smám saman endurspegla þessa aukningu."

Var þessi tilkynning send til fjölmiðlanna?

Hvort hún hafi verið send eða ekki, þá hefur hún að minnsta kosti ekki birst í neinum af þessum stærstu fjölmiðlum hérna, ekki einu sinni RÚV, sem segist vera okkar allra!

En það er að sjálfsögðu rækilega passað upp á að segja okkur daglega frá "smittölum" gærdagsins.

Bólusettir en hafa greinst með smit

Hvað þýðir þetta í rauninni? Hefur þetta blessaða fólk bæði fengið aukaverkanir og greinst með "smit"? Það hlýtur að vera fyrst það er verið að bæta þeim við fjölda aukaverkana.

En hvers vegna þurfti að taka þessar tölur til hliðar þangað til þær voru komnar yfir 2.000 og fyrst þá bæta þeim í gagnagrunninn?

Og miðað við að þann 20.10. voru birtar tölur um 3.420 aukaverkanir, og verið sé að bæta ríflega 2.000 við, þá hljóta "réttar" tölur að vera milli 5 og 6.000!

Lyfjastofnun hefur verið staðin margoft að því að segja bara hálfa söguna um þessar aukaverkanir, fyrir utan þessa nánast hlægilegu fyrirvara um að ekkert bendi til samasemmerkis á milli sprautanna og aukaverkananna!

Nýjustu tölur kl. 11:00 þann 22.10.

2210a

Það hafa "aðeins" 2 tilkynningar um aukaverkanir bæst við síðan í gær, en ég mun fylgjast með því hvort Lyfjastofnun uppfæri tölurnar eins og hún gerði í gær.

Við þurfum að fara að átta okkur á svolitlu!

Það er búið að halda þjóðinni í hlekkjum ótta við einhverja veiru, taka af henni mannréttindi með lokun fyrirtækja, einangrun aldraðra, rústun efnahagslífsins og að neita fólki um lífsbjargandi læknisaðgerðir svo fátt eitt sé nefnt.

Ég las minningargrein í morgun um íslenska konu sem féll í hyldýpi þunglyndis eftir að allar þessar aðgerðir hófust hér á landi. Hún sá enga leið út, og tók sitt eigið líf.

Og haldið þið að hún sé eina dæmið? Ónei! Það hefur orðið aukning í áfengis- og vímuefnanotkun, heimilisofbeldi og ýmsum samfélagslegum vandamálum, en það er lítið sem ekkert fjallað um það.

Allar þessar aðgerðir hafa aldrei snúist um að vernda líf, ömmu gömlu og heilbrigðiskerfið!

Ég ráðlegg öllum að kynna sér hvað er að gerast í Ísrael, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Kanada, Frakklandi, Ítalíu og fleiri löndum, þar sem verið er að innleiða harðstjórnir, og neyða fólk í þessar svokölluðu "bólusetningar".

Og spyrjið ykkur svo, var raunverulegur heimsfaraldur í gangi, eða býr eitthvað miklu stærra og hræðilegra þarna að baki?

 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband