Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2021

Þið sem eruð að íhuga að fara í bólusetningu eða "örvunarbólusetningu" núna, vinsamlega skoðið þetta!

Það sem ég skrifa um hér um fjölda aukaverkana er byggt á opinberum tölum, svo það sé á hreinu, hér eru engar samsæriskenningar í gangi.

Mig langar til að biðja ykkur sem eruð að spá í að skella ykkur í sprautu á Suðurlandsbrautina í vikunni að skoða þessar upplýsingar og meta svo hvort það sé þess virði heilsu ykkar vegna eða ekki.

Tilkynntar aukaverkanir 31. ágúst

3108c

Tilkynntar aukaverkanir 24. ágúst

2408a

Fjölgun tilkynninga aukaverkana 24. ágúst - 31. ágúst

Í dag, miðvikudaginn 31. ágúst eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 3.064, voru 2.982 þann 24. ágúst, svo þetta er fjölgun um 82, þrátt fyrir að bólusetningarvertíðinni svokölluðu sé lokið.

Pfizer var með 1.308 tilkynningar, þar af 22 andlát og 63 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 1.342. Fjölgun um 34.

AstraZeneka var með 733, þar af 6 andlát og 62 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 744. Fjölgun um 11.

Janssen var með 429, þar af 1 andlát og 12 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 445. Fjölgun um 16.

Moderna var með 512, þar af 1 andlát og 28 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 533. Fjölgun um 21.

Tilkynningum um alvarlegar aukaverkanir fjölgaði um 8 á einni viku!

Hvað er alvarleg aukaverkun?

"Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum."

Staðfest andlát

Nú er Lyfjastofnun búin að staðfesta 30 andlát eftir sprauturnar, að sjálfsögðu með hefðbundnu fyrirvörunum:

"Að svo komnu er ekkert sem bendir til orsakasamhengis milli tilkynntra andláta og bólusetninga gegn COVID-19."

  • Átta tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í janúar 2021.
  • Tvær tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í febrúar 2021.
  • Fimm tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í mars 2021.
  • Ein tilkynning um andlát í kjölfar bólusetningar barst í apríl 2021.
  • Fjórar tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í maí 2021.
  • Sex tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar hafa borist í júní 2021.
  • Ein tilkynning um andlát í kjölfar bólusetningar barst í júlí 2021.
  • Þrjár tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar hafa borist í ágúst 2021.

Meðal tilkynntra aukaverkana eru hjartavöðvabólga og gollurhúsbólga, ég er ekki alveg með fjöldann á hreinu, en hún er algengust hjá ungum karlmönnum.

3 konur eru nú lamaðar eftir "Mix & Match" örvunarbólusetningar tveggja bóluefna.

8 manneskjur eru búnar að sækja um skaðabætur vegna aukaverkana, og allar líkur eru á að sú tala hækki á næstu vikum og mánuðum.

Gríðarlegur fjöldi kvenna hefur orðið fyrir röskun á tíðahring sínum eftir bólusetningarnar og Rebekka Ósk Sváfnisdóttir sem fyrst vakti athygli á þessu í fjölmiðlum hefur stofnað FB hóp kvenna sem hafa orðið fyrir röskun.

Nú er þessi hópur orðinn tæplega 2.100, og allt niður í 12-15 ára stúlkur komnar í hópinn líka!

3108d

En þetta eru ekki einu aukaverkanirnar. Hér má sjá súlulrit sem Lyfjastofnun sendir vikulega í EudraVigilance.

Sundurliðun aukaverkana eftir líffærakerfum

3008e

Sundurliðun aukaverkana eftir MedDRA kjörheitum

3008f

Ég skrifaði blogg með ítarlegri upplýsingum í gær sem ég kafa ennþá dýpra í þessar bólusetningar og hvet ég ykkur til að lesa það líka.

Þar eru líka hlekkir á erlendar síður um fólk sem hefði alls ekki farið í þessar bólusetningar ef það hefði vitað betur, og fólk sem lifði þær ekki af.

Athugið, að þessum upplýsingum er ekkert flaggað í fjölmiðlunum, heldur hefur þessum efnum verið hampað sem einu leiðinni út úr fárinu.

En er það rétt? Og eruð þið tilbúin að leika rússneska rúllettu með líf ykkar og/eða barnanna ykkar með því að láta sprauta þessum tilraunaefnum í líkama ykkar?

 


mbl.is Óbólusett fólk velkomið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þjóðin ekkert að vakna, ætlið þið að verða áskrifendur að "örvunar"sprautum það sem eftir er?

Mér finnst ég lifa í einhverri hliðarveröld þessa dagana, þar sem ég horfi upp á skelfilega hluti gerast bæði hér á landi og annars staðar í heiminum.

1807Og það sorglega er, sérstaklega hér á landi að fólk virðist upp til hópa lifa í einhverju rænuleysi í boði fjölmiðla, stjórnvalda, Kára og sóttvarnaryfirvalda.

"Sölvar" landsins eru því miður allt allt of margir.

Nú er búið að fullbólusetja 84% landsmanna 12 ára og eldri, samtals 263.531 einstaklinga. Búið er að gefa alls 526.545 skammta, og þar af 130.014 af þeim  1.400.000 skömmtum af Pfizer sem búið er að tryggja okkur næstu 2 ár.

Hverjir eiga að fá þessa 1.269.986 skammta sem eftir eru af efninu? Á fólk að fara í áskrift og fara reglulega til að fá "örvun" því efnin virkuðu ekki nógu vel þegar upp var staðið?

Forseti Bandaríkjanna sést hér í vídeói segja að hann hafi talað við Dr. Fauci um að fólk þurfi að fara á 5 mánaða fresti og fá örvunarskammta.

Það er búið að hamra á því við þjóðina að þessi efni séu góð, örugg og veiti vernd gegn veikindum vegna veirunnar, en samt "þarf" að gefa fólki örvunarskammta núna, og eru 37.779 einstaklingar búnir að þiggja þær.

3 konur eru nú lamaðar eftir "Mix & Match" örvunarbólusetningar tveggja 3008cbóluefna. Eins og venjulega er logið að okkur:

"Læknar hafa sagt að enn sem komið er hafi ekki fundist óyggjandi merki um tengsl milli bólusetningar og lömunareinkenna."

Það er ótrúlegt ef nokkur maður trúir þessu, fólk með heilbrigða mænu tekur bara ekkert upp á því að lamast einn góðan veðurdag! Halló, vaknið elsku fólk!

Svínaflensubólusetning var stöðvuð í 9 ríkjum Bandaríkjunum árið 1976 eftir að 3 létust eftir bólusetningu.

minnsta kosti 30 manneskjur eru látnar hér á landi eftir þessar sprautur, og að minnsta kosti 163 aðrar manneskjur hafa fengið:

"Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum."

Og að minnsta kosti hafa 2.854 manneskjur fengið aukaverkanir sem eru meðal annars þær sem þið sjáið á myndunum hér fyrir neðan!

8 manneskjur eru búnar að sækja um skaðabætur vegna aukaverkana, og allar líkur eru á að sú tala hækki á næstu vikum og mánuðum.

Þrátt fyrir það á að halda áfram með þessar sprautur, sem er ekkert annað en glæpsamlegt. Ég ætla að minna fólk reglulega á það sem Þórólfur og Ragnheiður hafa látið út úr sér, þangað til fólk fer að skilja að þjóðin hefur verið stórkostlega blekkt í þessar tilraunabólusetningar!

Þórólfur og Ragnheiður

Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Ha, hvers vegna er þá fullbólusett fólk að greinast núna, veikjast og jafnvel deyja?

Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Já er það Ragnheiður, trúirðu eigin lygum eða liggur eitthvað annað að baki þeim? Hvað varð um eiðinn "Fyrst, ekki skaða"?

Ætli þessar 3.047 manneskjur séu sammála þér?

Og athugið, það geta liðið vikur, mánuðir eða ár áður en aukaverkanirnar fara að láta á sér kræla!

3008d

Sundurliðun aukaverkana eftir líffærakerfum

3008e

Sundurliðun aukaverkana eftir MedDRA kjörheitum

3008f

Farið að vakna elsku Íslendingar!

Það er búið að láta megnið af þjóðinni taka þátt í lyfjatilraun sem stendur til ársins 2023, án þess að leita upplýsts samþykkis fólks fyrir því að það sé að taka þátt í tilraun.

Það er búið að fremja gróft brot á Alþingislögum um Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði sbr. 44/2004, einnig gróft brot á alþjóðlega Helsinki læknasáttmálanum og á Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem og Nuremberg kóðanum!

Ég get sagt ykkur það að búið er að senda hverjum einasta alþingismanni, Lyfjastofnun, Landlæknisembættinu, Ölmu, Þórólfi, öllum fjölmiðlum og fleirum ótal tölvupósta og jafnvel ábyrgðarbréf þar sem þau eru krafin svara og/eða beðin um að skoða aðrar hliðar faraldursins, en með litlum árangri.

Þöggunin er algjör hér á landi, og upplýsingum haldið frá fólki í stórum stíl um þessi svokölluðu "bóluefni"!

Við erum að leyfa það að vera svipt mannréttindum

Við erum búin að leyfa þessu fólki að svipta okkur réttinum á því að anda að okkur súrefni, með grímuskyldu sem löngu er búið að sanna að skaði heilsu okkar og veiti enga vernd gegn örsmáum veirum.

Við erum búin að leyfa þeim að setja hömlur á starfsemi heilu atvinnugreinanna, jafnvel svo mánuðum skiptir, eins og til dæmis fyrirtækja í ferðaþjónustunni.

Við erum búin að leyfa þeim að reka pinna nánast upp í heilann á okkur til að taka "sýni" sem eru mögnuð það mikið að þau geta fundið nánast hvað sem er í hverjum sem er. Og á grunni "niðurstaðnanna" er búið að kokka upp einhvern heimsfaraldur og halda fólki í viðstöðulausum ótta.

Við erum búin að leyfa þeim að setja okkur, jafnvel fullkomlega heilbrigðum í sóttkvíar og einangranir.

Við erum búin að leyfa þeim að ljúga að okkur að við mættum ekki heimsækja gamla fólkið fyrr en það væri búið að fá "vernd" með sprautunum. Nú er flest þeirra líklega búið að fá þriðju sprautuna!

Við höfum leyft þeim að ljúga að okkur að flensan hafi ekki greinst frá því nánast sama dag og fyrsta C tilfellið kom upp hér, vegna sprittsins (sem vinnur ekki á veirum), grímanna (sem gera heldur ekkert gagn), og með því að halda fjarlægð hvert frá öðru.

Bólusetningar eiga að vera valkvæðar hér á landi en eru það ekki, og margir hafa verið þvingaðir í þær til að halda vinnu, sem er ólöglegt, það má ekki skikka fólk til að taka þátt í lyfjatilraun! Og fólk hefur verið neytt í þær hér á landi gegn eigin vilja, eins og ég bloggaði um fyrr í sumar.

Þetta nákvæmlega sama er að eiga sér stað um hinn vestræna heim, nema lönd eins og t.d. Nýja Sjáland og Ástralía sem eru komin enn lengra og eru orðin að algjörum fasistaríkjum og búið að taka nánast allt frelsi og mannréttindi af fólki.

Þetta er eitthvað sem þið sjáið ekki á RÚV eða hinum handónýtu fjölmiðlunum hérna, nánast það eina sem þeir birta eru tölur um "ný smit", allt til að minna okkur á að það sé "enn" einhver "heimsfaraldur" í gangi og halda okkur í ótta.

Hættið að ganga með þessar grímur, neitið að taka þessi marklausu skyndipróf sem verið er að setja á núna, neitið að skilja eftir nöfnin ykkar á blöðum, og það sem meira er:

FARIÐ AÐ SPYRJA SPURNINGA OG HEIMTA SVÖR, SÉRSTAKLEGA ÞIÐ SEM HAFIÐ ORÐIÐ FYRIR SKAÐA VEGNA ÞESSARA SVOKÖLLUÐU BÓLUEFNA, OG AÐSTANDANDENDUR ÞEIRRA SEM HAFA LÁTIST STRAX EÐA FLJÓTLEGA EFTIR SPRAUTURNAR.

EKKI SÆTTA YKKUR VIÐ SVÖRIN AÐ ÞAÐ SÉ EKKERT SEM BENDI TIL SAMASEMMERKIS ÞARNA Á MILLI, ÞVÍ ÞAÐ ER ÞAÐ SVO SANNARLEGA.

Og spyrjið líka hvers vegna ekki má nota lyf sem hefur hlotið Nóbelsverðlaun, og hefur verið notað með gríðarlega góðum árangri í sambærilegum pestum í öðrum löndum þar sem það er leyft.

Og ef þið eruð ekki búin að því, hlustið á þennan strangheiðarlega lækni sem hefur enga fjárhagslega hagsmuni af bóluefnasölu, og vill að þessar svokölluðu "bólusetningar" séu stöðvaðar strax!

Hann segir meðal annars:

"Þetta sé heimsfaraldur hræðslu sem var af ásettu ráði settur í gang og viðhaldið með þessum fölsku PCR prófum, og því að öll önnur umræða en "sú leyfilega" sé miskunnarlaust þögguð niður og bönnuð.

Hann segir líka að læknavísindin séu algjörlega ófær um að ná stjórn á öndunarfærasjúkdómum og að við verðum bara að lifa við þá eins og hverja aðra flensu."

Hingað og ekki lengra!

Þetta mun ekki hætta fyrr en við sem þjóð segjum hingað og ekki lengra, tökum okkur til fyrirmyndar allar þjóðirnar sem eru búnar að halda mörg gríðarlega fjölmenn mótmæli gegn fasískum aðgerðum ríkisstjórna sinna.

Eitthvað sem að sjálfsögðu lítið sem ekkert er fjallað um í innlendum fjölmiðlum.

Hér getið þið séð nokkrar erlendar síður með upplýsingum um raunverulegt fólk sem hefur skaðast eða látist eftir sprauturnar:

Tilkynntar aukaverkanir í USA og UK

Fórnarlömb sem vilja láta í sér heyra

Myndir héðan og þaðan úr heiminum

Hér eru nokkur vídeó með þýsk-bandarískum lögfræðingi sem er ásamt þúsund öðrum lögmönnum búinn að finna sannanir fyrir því að þessi heimsfaraldur séu glæpir gegn mannkyninu og er að undirbúa málssóknir vegna þeirra.

Hættið að trúa því að allt sé betra en að fá veiruna, því það er algjör blekking. Öndunarfærapestir koma á hverju ári, því miður deyja einhverjir, og aðrir eiga í langvinnum eftirköstum eftir þær.

Hlutfall látinna úr sjúkdómum í öndunarfærum eru á hverju einasta ári milli 7 og 8%, og eru þeir fjórða algengasta dánarorsökin!

Það er búið að beita þjóðina stórkostlegum blekkingum í á annað ár núna, með sömu aðferðum og eru notaðar í löndunum í kringum okkar.

Munurinn á okkur og þeim er sá að fólk þar er vaknað í tugmilljónavís og farið að berjast gegn öllum þessum aðgerðum meðan við sofum enn vært og trúum og treystum öllu sem okkur er sagt. Því miður.

rsz_1706b


Er veiran meira smitandi á Íslandi en Danmörku og Svíþjóð? Og sitthvað um grímur!

Það var einhver "misskilningur" í gangi hjá heilbrigðisráðherra sem sagði á dögunum í viðtali að Íslendingar gætu vel við unað, enda væru takmarkanir hér mun minni en í nágrannalöndunum.

Það kom því skemmtilega á óvart að DV skyldi birta grein þar sem sóttvarnaraðgerðir voru bornar saman við Norðurlöndin. Eru fjölmiðlarnir eitthvað farnir að vakna?

Ég hef megnasta ógeð á þessum súrefnisheftandi tuskum sem við vorum neydd til að setja fyrir vit okkar - aftur.

Er veiran meira smitandi á Íslandi en Danmörku og Svíþjóð?

Mér þætti fróðlegt að fá svarið við því!

Ísland

Grímuskylda er þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra nálægðarmörk og á ákveðnum viðburðum þar sem gestir sitja í bókuðum sætum, svo sem á íþróttaviðburðum, innan- sem utandyra.

Danmörk

Grímuskylda er aðeins á Covid-19 prófunarstöðvum og á flugvöllum. Ekki þarf grímu í almenningssamgöngum.

Svíþjóð

Mjög fáar takmarkanir eru á daglegu lífi í Svíþjóð. Grímur sjást sjaldan, en þeirra er nánast hvergi krafist.

Grímuvitleysan, svona eftirá að hyggja

Hvað segja þeir sem hæst gala um umhverfismál og mengun núna, hvað verður um allar þessar grímur eftir notkun? Maður sér þær út um allt í umhverfinu, og hafa þær bæst við hinn landlæga sóðaskap fólks hér á landi.

Er ekki líka stórhættulegt að svona veirulöðrað drasl geti bara fokið beint í andlitið á manni? Því eru ekki sérstakar tunnur fyrir sóttmengaðar grímur fyrir utan hverja verslun?

Og hvað með allar plastagnirnar úr þeim sem enda í lífríki hafsins?

2808

Smellið á myndina hér fyrir ofan til að stækka hana og sjá betur textann á henni.

"Many ‘health authorities’ have relied on the obsolete ‘droplet model’ of virus transmission. If this model were correct, face masks would indeed work. But in reality, respiratory droplets – which by definition cannot be inhaled – play almost no role in virus transmission. Instead, respiratory viruses are transmitted via much smaller aerosols, as well as, possibly, some object surfaces. Face masks don’t work against either of these transmission routes."

0803cÞað hefur verið vitað áratugum saman að grímur gera ekkert gagn gegn veirusýkingu í öndunarfærum, en vísindin eru búin að taka einkennilega mörg heljarstökk undanfarið eitt og hálft ár.

Það er ekki lengra síðan en í fyrravor eða sumar að Þórólfur sprautukóngur sagði að þær gerðu ekkert gagn gegn veirum, en svo galdraði glæpastofnunin WHO ný "vísindi" allt í einu fram úr erminni, og þær gerðu allt í einu mikið gegn í baráttunni gegn "heimsfaraldrinum".

Maðurinn sem hafði þegar fengið heiðursorðu fyrir að hafa kveðið pestina svo vel í kútinn setti á okkur grímuskyldu.

1708a

When you are breathing out in a mask, the bacteria from your mouth gets trapped,” Miranda Mellos, a registered nurse in a level 2 trauma center emergency department in Montgomery, said.

Mellos also warned that this bacteria irritates the skin and that “the only way to combat this is to make sure you change your masks out frequently and wash your masks frequently as well.”

 

rsz_2804áÞessi ágæta kona þurfti að nota grímu í vinnunni til að "verja sig og aðra" gegn drápsveirunni miklu.

Miðað við hvernig andlitið á henni lítur úr, þá er augljóst að hún hefur neyðst til að nota hana löngum stundum.

Sá sem gerir þessa frétt spyr þeirrar réttmætu spurningar hvort C-fárið sé ýkt.

Hefur einhver velt fyrir sér úr hverju þessar grímur eru gerðar?

.... “many of them (face masks) are made of polyester, so you have a microplastic problem…many of the face masks would contain polyester with chlorine compounds…if I have the mask in front of my face, then of course I inhale the microplastic directly and these substances are much more toxic than if you swallow them, as they get directly into the nervous system.” 

rsz_2102cThere are also reports of toxic mould, fungi, and bacteria that can pose a significant threat to the immune system by potentially weakening it. Of particular concern to us is the recent report of breathing in synthetic fibers in the face masks."

Meira um eitraðar grímur

These blue surgical masks pervade our lives. “Health Canada has issued a warning about blue and gray disposable face masks, which contain an asbestos-like substance associated with “early pulmonary toxicity.” The warning is specific to potentially toxic masks distributed within schools and daycares across Quebec. Health Canada (and full praise to them)….“discovered during a preliminary risk assessment that the masks contain microscopic graphene particles that, when inhaled, could cause severe lung damage.” 

Greinin öll er hér.

Hættum þessari endalausu hlýðni og blindu tiltrú á þau sem ráða hér!

Það er margbúið að standa þetta fólk sem vill sprauta okkur öll með stórhættulegum efnum sem sannanlega standa ekki undir fyrirfram gefnum loforðum um virkni og öryggi, að hreinum lygum. Því skyldu þau segja satt um gagnsemi gríma?

rsz_1702s

 

 


Afleiðingar bólusetninganna sem fræga fólkið er fengið til að auglýsa og dásama. Varúð, sláandi vídeó!

Hér er spurt hvort fræga fólkið sé með blóð á höndunum, og verður hver að svara fyrir sig hvað honum eða henni finnst um það.

2608a

 

Hins vegar fer ekkert á milli mála að þetta fólk ber mikla ábyrgð sem manneskjur sem fólk um allan heim elskar og dáir, því ef einhverjir standa undir orðinu áhrifavaldar, þá eru það þau.

Leikarinn Morgan Freeman segir hér að hann sé ekki læknir, en hann treysti vísindunum. Honum hafi verið sagt að einhverra hluta vegna treysti fólk sér, svo hann sé hérna til að að segja að hann treysti vísindunum, og hafi verið bólusettur. Og ef við treystum honum, þá eigum við líka að láta sprauta okkur.

Þessi maður hefur enga læknisfræðilega menntun svo ég viti, hann er leikari sem starfar við að leika alls konar karaktera.

Hann er í rauninni að segja hérna að fyrst að hann sem ekki sé læknir treysti vísindunum, þá eigum við að gera það líka. Alveg magnaður heilaþvottur!

Önnur stórstjarna, leikarinn Michael Caine sést í mynd rúlla niður erminni eftir "bólusetningu" og segir að þetta hafi bara ekkert verið vont.

Hver stjarnan af annarri sjást dásama þessi efni, við séum öll í þessu saman (alveg eins og stjarnan okkar hann Víðir segir alltaf!) og einn leikarinn segir að lífið muni þá loksins verða eðlilegt aftur, eða frekar "The new normal", sem margir vita hvað táknar í rauninni.

Þetta vídeó er samsett af klippum með þessum "stjörnum" og svo frásögnum fólks sem er fárveikt eftir sprauturnar, og myndir af fólki á öllum aldri sem dó í kjölfar þeirra.

Hér á landi fjölgar óðum tilkynntum aukaverkunum vegna þessara "góðu og öruggu" efna sem liggur víst á að koma í hvern handlegg á landinu, jafnvel þrisvar (og oftar?).

Tilkynningum fjölgaði um hvorki meira eða minna en 46 frá í gær, þar af 7 alvarlegum, sem er met!

Hvort þessi fjölgun sé tilviljun eða að tengja megi hana við "örvunar"sprauturnar, og/eða bólusetningarnar á börnunum fáum við líklega ekki að heyra um, en þetta er virkilega sláandi.

2608

 

Þórólfur og Ragnheiður

Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

 

Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Þetta áhrifaríka en jafnframt sorglega vídeó má sjá hér.

Veltið því svo fyrir ykkur hvort Þórólfur og Ragnheiður (ásamt fleirum) hafi okkar bestu hagsmuni í huga og sé annt um heilsu okkar og líf!

 

 


Þrjú andlát tilkynnt í ágúst eftir tilraunabóluefnin, andlát Íslendinga eru orðin fleiri en úr pestinni sjálfri, eða þrjátíu talsins!

Nú er Lyfjastofnun búin að staðfesta 30 andlát eftir sprauturnar, að sjálfsögðu með hefðbundnu fyrirvörunum:

"Að svo komnu er ekkert sem bendir til orsakasamhengis milli tilkynntra andláta og bólusetninga gegn COVID-19."

  • Átta tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í janúar 2021.
  • Tvær tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í febrúar 2021.
  • Fimm tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í mars 2021.
  • Ein tilkynning um andlát í kjölfar bólusetningar barst í apríl 2021.
  • Fjórar tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í maí 2021.
  • Sex tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar hafa borist í júní 2021.
  • Ein tilkynning um andlát í kjölfar bólusetningar barst í júlí 2021.
  • Þrjár tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar hafa borist í ágúst 2021.

Hefðu þrjár manneskjur látist "úr Covid" í ágúst væri að sjálfsögðu búið að birta þrjár kertum skreyttar tilkynningar.

Mikilvægt að Janssen fólk fari í örvun...

... sagði Þórólfur í Fréttablaðinu þann 18. ágúst.

"Að­spurður um hvort það sé á­hyggju­efni að færri séu að koma en voru boðaðir segir Þór­ólfur svo vera þar sem gögnin sýna greini­lega að bólu­setning komi í veg fyrir smit og sér­stak­lega al­var­leg veikindi. Þá séu al­var­legar auka­verkanir fá­tíðar eftir bólu­setningu, mikið fá­tíðari en af Co­vid-sýkingu."

Ertu að grínast Þórólfur, eða ljúga eins og venjulega? Hvar eru þessi gögn sem þú vitnar í? Eru 30 dauðsföll á 8 mánuðum, 160 lífsógnandi aukaverkanir og 1.900 hundruð konur með aukaverkanir í móðurlífinu svo fátt eitt sé nefnt eitthvað sem tekur ekki að nefna?

Tilkynntum afleiðingum þessara "góðu og öruggu" tilraunaefna fjölgaði úr 2.982 í gær í 2.998 í dag, eða um 16, og alvarlegum fjölgaði um 3, úr 187 í 190!

2508„Við erum að sjá að flestir bólu­settir sem eru að greinast með smit voru bólu­settir með Jans­sen bólu­efninu þannig það er mjög mikil­vægt að efla þeirra varnir enn frekar með því að gefa þeim örvunar­skammt,“ segir Þór­ólfur í sam­tali við Frétta­blaðið.

Já einmitt Þórólfur, þrjár konur lömuðust eftir þessar "örvunar"sprautur ykkar og ein fékk andlitslömun og þekkti hvorki mann sitt né barn í kjölfarið.

Nuremberg lögin

Það er verið að brjóta mannréttindi og lög á okkur á fleiri vegu en við getum ímyndað okkur núna, og flestir hafa ekki hugmynd um að þeir séu þátttakendur í lyfjatilraun sem stendur til 2023!

Þessi lög voru samin af gefnu tilefni árið 1948 til að koma í veg fyrir að sagan endurtæki sig.

Liður 10: During the course of the experiment the scientist in charge must be prepared to terminate the experiment at any stage, if he has probable cause to believe that a continuation of the experiment is likely to result in injury, disability, or death the the experimental subject.

0504j

Þórólfur, Alma, Kári og þið læknarnir og hjúkrunarfólk sem eruð búin að blekkja nánast alla þjóðina með lygum um eðli þessara efna sem eru ekki einu sinni bóluefni eins og við þekkjum þau, hvað varð um eiðinn sem þið sóruð?

FYRST, EKKI SKAÐA!

 


17 sjúk­ling­ar liggja á bráðal­egu­deild­um spít­al­ans og eru 6 þeirra óbólu­sett­ir. Eru þetta góð meðmæli með tilraunabóluefnunum?

Á gjör­gæslu eru nú fimm sjúk­ling­ar og eru þeir all­ir í önd­un­ar­vél, tveir eru óbólu­sett­ir. Fækk­ar um einn á gjör­gæslu á milli daga. Sjúk­ling­um á legu­deild­um Land­spít­ala með Covid-19 fjölg­ar um einn á milli daga og eru þeir 22, segir í þessari frétt.

Hvert fór flensan okkar?

Eins og fyrir einhverja töfra, þá hvarf flensan sem við höfum getað "treyst magic-33848_640á" að heimsæki okkur á hverju ári, rétt um það leyti sem sem fyrsta Covid tilfellið greindist hér á landi.

Hefur hún ekki greinst síðan í viku 9 í fyrra, enginn fékk flensu, en 29 lekanda árið 2020 segir í þessari frétt.

Drápsveiran ógurlega virðist hafa útrýmt öllum tegundum og stofnum flensunnar alveg á núll einni, kannski með frekju og yfirgangi ekki leyft henni að komast að.

Við vitum jú að hún er alveg bráðsnjöll, eða kannski sveigjanleg í samningagerð? Hún veit t.d. að hún má ráðast á fólk meðan það gengur inná veitingastað og pantar sér mat, en má ekki smita meðan það nýtur veitinganna.

Hugsið ykkur, í viku 9 árið 2020 greindust 43 einstaklingar með flensu, hvað ætli þeir hefðu orðið margir eiginlega ef blessuð drápsveiran hefði ekki hrakið hana á brott? Meira að segja greindust þessa vikuna næstum helmingi fleiri en vikuna áður? Var flensan í veldisvexti áður en Covid kom okkur til bjargar?

Hjúkk, takk kæra Covid!

"Flensur og aðrar pestir – 9. vika 2020

Staðfest inflúensa á veirufræðideild Landspítala og fjöldi sýna
Í síðustu viku var inflúensan staðfest hjá 43 einstaklingum, sem er næstum helmingi fleiri tilfelli en í síðustu viku. Þar af voru 18 með inflúensu A(H1) pdm09, 7 með inflúensu A(H3), 17 með inflúensu B og 1 með inflúensu B sem ekki var búið að tegundargreina.

Frá því um mánaðarmótin september – október hafa samtals 301 einstaklingur verið greindir með staðfesta inflúensu. Flestir hafa greinst á höfuðborgarsvæðinu en inflúensan hefur líka verið staðfest víða annars staðar.

Inflúensan í heilsugæslu og á bráðamóttökum
Fjöldi þeirra sem leituðu til læknis með einkenni inflúensu í 9. viku jókst miðað við vikuna á undan skv. upplýsingum frá heilsugæslunni og bráðamóttökum, sjá mynd 1."

2408c

Hérna sjáið þið bara púff, flensan hvarf eins og töfrasprota væri veifað!

0803cEn svona grínlaust, sér enginn neitt athugavert við þetta? Það var ekki einu sinni farið að skikka okkur að bera grímur á þessum tíma, enda sagði Þórólfur gera takmarkað gagn (gegn örsmárri veiru sem smýgur auðveldlega í gegn um möskva kínagrímanna).

En svo sagði hann okkur í fyrrasumar frá nýjum "vísindum" sem sönnuðu hið gagnstæða. Síðan þá höfum við verið meira og minna múlbundin og súrefnisheft.

En að þessari grein sem ég er að skrifa við

Mér dettur ekki í hug að gera lítið úr veikindum fólks og vona innilega að það nái allt bata aftur, alveg eins og þeir átta sem hafa tilkynnt um lömun eða skerta hreyfigetu eftir sprauturnar, og allir þeir 2.982 sem eru búnir að tilkynna um aukaverkanir síðan um áramót, þar af 160 lífsógnandi (og 27 látnir).

1007g

Við skulum aldrei gleyma því að þessi maður ber stóra ábyrgð á því að nokkrir íslenskir unglingar urðu öryrkjar fyrir lífstíð eftir svínaflensusprauturnar.

Þessi sami maður er (ásamt öðrum) búinn að lokka stærsta hluta þjóðarinnar í lyfjatilraun sem stendur til ársins 2023.

Eins og fyrir 12 árum síðan, þá er hann búinn að lofa fyrirfram virkni og öryggi tilraunaefna sem þegar eru búin að skaða tæplega 3.000 manns hér á landi.

Þessi loforð hans eru ekki merkilegri en það að nú eru sprautaðir hvattir í "örvunarbólusetningar" vegna "vonbrigða" hans með virkni þeirra.

Þrjár konur eru nú með óskilgreinda lömun eftir þær, og kona þekkti hvorki mann sitt né barn eftir "örvunina".

2308k

Nú er farið að sprauta börnin börnin af miklu kappi þótt ekkert barn hafi látist hér á landi úr Covid.

Í gær þurfti faðir að fara með unga dóttur sína á spítala með lömun í andliti og fæti.

Þetta verður að sjálfsögðu "rannsakað af óháðum aðilum" og niðurstaðan mun verða að ekkert bendi til samasemmerkis þarna á milli, frekar en venjulega.

Fyrst átti að vernda gamla fólkið og viðkvæmustu hópana, svo var farið að læða því inn hjá fólki að það yrði að sprauta sig svo það gæti farið að ferðast aftur, og að hjarðónæmið væri alveg að nást.

En hver er staðan núna?

17 sjúk­ling­ar liggja á bráðal­egu­deild­um spít­al­ans og eru 6 þeirra óbólu­sett­ir. Meðal­ald­ur inn­lagðra er 62 ár. 5 í öndunarvél, 3 bólusettir og 2 ekki.

11 bólusettir versus 6 óbólusettir, hvað segir þetta okkuð um gæði og öryggi þessara líftæknilyfja?

Eftir þessa herfilegu vangetu sóttvarnarlæknis að ná hjarðónæmi hjá þjóð sem er búið að sprauta nánast alla með þessum "góðu og öruggu" efnum, hvert verður næsta skref?

Á að setja skyldubólusetningu á óþekka (eða skynsama?) fólkið sem hefur ekki minnsta áhuga á að vera tilraunarottur fyrir lyfjarisana, eða senda það út í Grímsey eins og Kári vill?

Í bloggi í júlí fjallaði ég um "Hypnotist REVEALS Government BRAINWASHING Tactics"

Þar segi ég meðal annars:

"Gamalreyndur breskur dávaldur segir frá því að þegar "heimsfaraldurinn" hófst í fyrra, þá trúði hann ekki því sem var að gerast fyrir framan augun á honum, um leið og Covid fjölmiðlaherferðin hófst.

Hann sá það greinilega að stjórnvöld væru að nota nákvæmlega sömu aðferðir og tækni og hann notaði þegar hann starfaði sem dávaldur snemma á tíunda áratugnum.

Hann vill sýna okkur hvað þessi hræðsluáróður sem staðið hefur yfir í á annað ár hefur valdið miklum ótta, þjáningum og angist hjá fólki."

Sjón er sögu ríkari, horfið endilega á þetta vídeó með honum!

Lokaorð

Það er erfitt að viðurkenna að maður hefur verið blekktur, en sá dagur mun renna upp að þeir sem enn þjást enn af aukaverkunum löngu eftir sprauturnar, og að ættingjar fólks sem hefur látist skyndilega og öllum að óvörum stuttu eftir þær, fari að tengja sprauturnar við andlátin.

Þjóðirnar í kringum okkur eru löngu vaknaðar og löngu farnar að mótmæla "bólusetningunum" og hömlunum sem búið er að setja á mannréttindi og frelsi þeirra.

Fólk verður bara að fara að vakna og sjá að búið er að beita það stórkostlegum blekkingum í á annað ár núna. Þetta hefur aldrei snúist um einhvern "heimsfaraldur", heldur eitthvað miklu stærra og skelfilegra, eins og auðvelt er að sannreyna ef maður nennir að leita sér upplýsinga.

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Allir á gjörgæslu í öndunarvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað alvöru læknir er búinn að sjá í störfum sínum, bóluefnasamningarnir, og sitthvað um lygarnar hér á landi!

2308dNorður írskur læknir segir hér frá skelfilegri aukningu blóðtappa hjá bólusettu fólki sem hún er búin að hitta í starfi sínu, og hún segist ekki lengur geta sofið á næturnar eftir að hafa séð afleiðingar sprautanna á fólk sem hafi fengið þær.

Þau sem skoði raunverulegar tölur og gögn, en ekki tölvumódelin sem eru gerð og kostuð af milljónerum og hagsmunaaðilum sjái, að þetta snúist alls ekki um heilsu heldur eitthvað allt annað.

Sprauturnar eru að valda sannanlegum skaða á lífum og heilsu fólks og séu ekki veita fólki sagða vörn, séu í tilraunafasa til ársins 2023 og hafi neyðarleyfi byggð á þeim lygum að engar aðrar meðferðir séu til.

Allt sem hún sé búin að vara við í meira en heilt ár núna hafi því miður ræst, og hún grátbiður fólk að hleypa þessum illu öflum EKKI í unga fólkið.

Þetta bloggaði ég um þann 22. júní s.l.:

"Þórólfur og Ragnheiður ljúga blákalt!

Í dag stendur til að bólusetja 10.000 manns með Janssen. Í þessari frétt segir meðal annars:

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Þannig að ungar konur ættu ekki að hræðast bólusetningu með Janssen?

„Nei, nei,“ segir Þórólfur.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tekur í sama streng og Þórólfur. „Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (áherslubreyting mín).

Sjáiði hvað Þórólfur og Ragnheiður eru að segja þarna? Getið þið treyst og trúað orði af því sem þetta fólk segir lengur?"

Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Einmitt, hvernig myndi þessi maður sem búinn er að ljúga þessum efnum inn í líkama stærsta hluta fullorðinna útskýra það í dag að bólusettir séu nú að smitast og veikjast? Gæti verið að ónæmiskerfi þeirra séu löskuð eftir þessi efni?

Þetta segir líka í fréttinni: "Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir samfélagslegt ónæmi vera að myndast hér á landi í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19."

Enn ein lygin sem hann er staðinn að um fyrirfram virkni og öryggi!

Gríðarleg fjölgun aukaverkana vegna þessara "góðu og öruggu" efna

22. júní voru tilkynntar aukaverkanir 1.740, en eru núna tveim mánuðum seinna komnar upp í 2.965, sem er fjölgun upp á 1.225!

2308

 

2308fÖll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Já er það Ragnheiður yfirhjúkka sem nú ert byrjuð að sprauta börnin okkar?

Hverjar af þessum aukaverkunum sem við sjáum á myndinni hér fyrir neðan eru svo ómerkilegar að búðarferð sé hættulegri en að fá einhverja af þeim?

Og hvernig myndirðu útskýra það að þrjár konur með enga mænuáverka urðu lamaðar í kjölfar "örvunarsprautanna" og að kona er komin með andlitslömun og þekkir hvorki mann sinn né barn í kjölfarið?

Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Tilkynningar sendar í EudraVigilance alla mánudaga

2308e

Hvað er í þessum bóluefnasamningum sem við megum ekki sjá?

Þarna staðfesta höfundar samningsins að þróun öruggs og virks bóluefnis sé mjög flókin og hætta á mistökum sé mjög mikil. Allar þær þjóðir sem skrifuðu undir þessa samninga samþykktu það með undirritun sinni.

Áhugasamir geta halað niður leynilega EU bóluefnasamningnum frá 4. júní 2020 hér, og Comirnaty Epar Risk Management Plan hér, og ég skora á alla að kynna sér þessi gögn rækilega!

2308g

2308h

Sóttvarnarlæknirinn Þórólfur Guðnason

Hann mælir heilshugar með bólusetningum barna í mbl í dag.

„Já, já við ger­um það,“ seg­ir Þórólf­ur spurður að því hvort hann mæli heils­hug­ar með bólu­setn­ingu barna. 

„Fólk auðvitað ákveður sjálft hvort það mæti en við mæl­um með bólu­setn­ing­unni á þess­um aldri.“

"Hætta á auka­verk­un­um hjá börn­um ekki tal­in meiri eða öðru­vísi

2308iSpurður að því hvort auka­verk­an­ir af völd­um bólu­setn­inga hjá börn­um á aldr­in­um 12-15 ára sé meiri eða á ein­hvern hátt öðru­vísi en hjá full­orðnum seg­ir Þórólf­ur að svo sé ekki. Hann bend­ir á að eng­ar al­var­leg­ar auka­verk­an­ir hafi komið fram í rann­sókn­um sem lágu til grund­vall­ar markaðsleyf­is fyr­ir bólu­efni Pfizer í þess­um ald­urs­hópi."

Hér lýgur maðurinn blygðunarlaust, eina ferðina enn!

"Of the 1,127 children who received a first dose of the jab a shocking 86% experienced an adverse reaction. Of the 1,097 children who received a second dose of the jab a shocking 78.9% experienced an adverse reaction."

"Therefore due to the fact the Covid-19 vaccines do not prevent infection or transmission, 1 in every 9 children suffered a serious adverse reaction leaving them unable to perform daily activities during the clinical trial, and just 1 in every 1.7 million children having allegedly died with Covid-19 in 18 months, how on earth can the MHRA and JCVI justify giving the Covid-19 vaccine to children and claim that their decision is based on the potential benefits outweighing any risks?"

Sjá færsluna með tilvísun í opinber gögn hér.

Ég kallaði allt þetta fólk glæpahyski í nýlegu bloggi, en það er búið að ljúga að þjóðinni í meira en heilt ár núna og tæla stærstan hluta hennar í þessar sprautur og er nú byrjað að sprauta börnin, og ég stend við það.

Skyldu þau hafa fjárhagslegan ávinning af því að sprauta alla íslensku þjóðina, allt niður í börn, skítt með hvað margir látist eða skaðist, jafnvel fyrir lífstíð eins og dæmin sanna?

 


Þetta er bara pólitík í læknisleik, trúðu engu af því sem búið er að segja þér!

2108Þetta segir virtur kanadískur læknir sem talar hér tæpitungulaust um þennan meinta heimsfaraldur.

Þetta sé heimsfaraldur hræðslu sem var af ásettu ráði settur í gang og viðhaldið með þessum fölsku PCR prófum, og því að öll önnur umræða en "sú leyfilega" sé miskunnarlaust þögguð niður og bönnuð.

Hann segir líka að læknavísindin séu algjörlega ófær um að ná stjórn á öndunarfærasjúkdómum og að við verðum bara að lifa við þá eins og hverja aðra flensu.

Miðað við hvað illa hefur tekist að ná stjórn á "faraldrinum" hérna, þá má svo sannarlega taka undir það!

Og hvað þá þessi svokölluðu "bóluefni" sem eru sannanlega búin að valda gríðarlegum skaða og tugþúsundum dauðsfalla um allan heim. Að minnsta kosti eru 27 manneskjur látnar hér á landi eftir sprauturnar, 157 fengu lífsógnandi aukaverkanir, og 2.747 aðrir hafa líka fundið fyrir einhverjum afleiðingum vegna þeirra.

2008bÞrátt fyrir fyrirfram og marg ítrekuð loforð um öryggi og virkni þeirra, þá er hún ekki meiri en svo að nú á fólk að láta sprauta sig með einhverjum örvunarskömmtum, jafnvel af annarri tegund!

Þjár konur eru núna lamaðar eftir þessar "örvanir á ónæmiskerfum þeirra", og svo þessi móðir sem er komin með Bells Palsy sem er þekkt aukaverkun, og þekkir ekki lengur eiginmann sinn og unga dóttur.

Vonandi ná allar þessar blessuðu konur heilsu aftur.

Svei öllu þessu glæpahyski sem er búið ljúga að þjóðinni í meira en heilt ár núna og tæla stærstan hluta hennar í þessar sprautur og er nú byrjað að ráðast á börnin!

2108c

2108a

2108b

Nokkrar athugasemdir undir vídeóinu

"Politics playing medicine is a good way to put it.  People who are controlled by the feelings of their constituents ought not to be in charge of anything, especially medicine.  That the medical world went along with this fraud is also quite shocking."

"It is easier to fool someone than to convince one they have been fooled."

"Amazing. Thank you Dr. for your succinctly exposing these deadly lies."

"If ‘forced or threatened’ to get the ‘kill-Shot’, demand they prove the ‘alleged’ virus has even been scientifically ‘isolated’ ... it has NOT ! Question: How can you create a ‘vaccine’ for a virus if, you can not even prove it exists ..? The answer is obvious. The psychopaths are basing everything on a computer model and nothing more. This is all about population reduction under the Satanic United Nations ‘Agenda 21/2030’ and Bill Gates EVENT 201."

Vídeó frá 2013 um Agenda 21

Það er ekkert nýtt í sögunni að veruleikafirrtir og valdasjúkir aðilar taki sér það vald að skapa ótta meðal fólks um einhverjar yfirvofandi eða yfirstandandi "hættur".

"Create the problem. Create the solution to the problem. Sell the solution."

Það er löngu búið að ákveða að koma á nýrri heimsskipan (New World Order), og það fer ekkert á milli mála að aðgerðinni hefur verið hrint af stað núna af fullum krafti með þessum svokallaða heimsfaraldri.

Það þýðir ekki lengur að berja hausnum í steininn, afneita sannleikanum og treysta stjórnvöldum, þríeykinu og Kára áfram fyrir lífum okkar og heilsu.

Það sem Ann Bressington fjallar um í vídeóinu er hægt að finna á netinu ef fólk nennir að leita, og áhugasamir ættu líka að skoða Event 201 sem var æfing í heimsfaraldri sem var haldin kortér í heimsfaraldur.

Svo er The World Economic Forum með áætlanir sínar fyrir hönd okkar allra sýnilegar á heimasíðu sinni, og þær eru vægast sagt skelfilegar!

Að lokum legg ég til að orðuhafarnir verði allir sviptir orðum sínum.


Drápsfaraldurinn mikli - sagan endalausa!

Ég tók mér nokkurra vikna bloggfrí, svo það er fróðlegt að skoða hvað gerst hefur í þessum ægilega "drápsfaraldri" síðan ég bloggaði síðast.

"Faraldurinn" hefur víst verið í svakalegri uppsveiflu í allt sumar, þrátt fyrir að búið sé að sprauta stærsta hluta fullorðinna hér á landi með einhverjum tilraunaefnum sem áttu að sögn að veita vernd gegn alvarlegum veikindum.

Að vera bólusettur eða ekki óbólusettur virðist vera orðið teygjanlegt hugtak í dag, eins og Anna Tara Andrésdóttir fjallaði um í innsendri grein á Vísi fyrr í mánuðinum.

Fjölmiðlar birta daglega nýjustu "smittölurnar", svona til að passa að við hættum ekki að vera hrædd við drápsveiruna ógurlegu, og forsætisráðherra vor "ruglaðist á" reglu um grímuskyldu á fótboltaleik í gær, rétt eins og Kári sjálfur sem náðist á mynd grímulaus á bensínstöð nýlega.

Eins og mig grunaði sterklega, þá var aflétting grímuskyldunnar bara tímabundin, og nú þurfa allir enn á ný að bera þennan súrefnisheftandi óþverra fyrir vitunum og spritta sig í drasl.

Þórólfur sóttvarnarlæknir segir ekki útilokað að takmarkanir geti varað að einhverju leyti næstu árin, og að faraldrinum ljúki ekki hér á landi fyrr en honum ljúki um allan heim.

Og hvenær skyldi það nú verða, kannski þegar búið verður að koma sprautu(m) í hvern einasta handlegg á jarðríkinu?

Góðu fréttirnar eru þó þær að óþolið gagnvart öllum þessum fáránlegu sóttvarnarreglum er ört vaxandi þessa dagana, eins og sjá má í pistlum sem hafa fengist birtir í fjölmiðlum undanfarið.

En kíkjum nú aðeins á hvað gerst hefur varðandi tilkynntar aukaverkanir/afleiðingar á einum mánuði:

Tilkynntar aukaverkanir 21.7.2021

2107a

 

Svona voru tölurnar 21. júlí s.l.:

Pfizer var með 983 tilkynningar, þar af 21 andlát og 45 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 994. Fjölgun um 11.

AstraZeneka var með 679, þar af 4 andlát og 54 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 682. Fjölgun um 3.

Janssen var með 280, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 286. Fjölgun um 6.

Moderna var með 388, þar af 16 alvarlegar.
Óbreytt staða.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 147, þar af 26 tilkynnt andlát.

Tilkynntar aukaverkanir 19. ágúst

1908

Tilkynntar aukaverkanir voru 2.350, en eru nú komnar upp í 2.908, sem er aukning upp á 558 á þessum fjórum vikum vegna þessara tilraunalyfja sem eru víst svo "góð og örugg", og veita svo mikla "vernd", að stór hluti þeirra sem eru að veikjast núna "úr covid" eru þegar fullbólusettir!

Eins og þessir fjórir af fimm sem eru/voru í öndunarvél.

Skoðum núna breytingarnar á þessum fjórum vikum: Ég sé að það hefur orðið mikið framfaraskref hjá Lyfjastofnun, hún birtir núna sérstaklega fjölda alvarlegra tilkynninga! Hún mætti líka gjarnan bæta einum lit í súlurnar sem sýnir andlát eftir hvert efni.

Pfizer var með 983 tilkynningar, þar af 22 andlát og 55 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 1.281. Fjölgun um 298.

AstraZeneka var með 679, þar af 4 andlát og 61 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 730. Fjölgun um 51.

Janssen var með 280, þar af 1 andlát og 12 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 416. Fjölgun um 136.

Moderna var með 388, þar af 26 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 481. Fjölgun um 93.

Uppfærsla 20. ágúst

2008a

 

Tilkynningum fjölgaði um 23 síðan í gær, og þar af þrem alvarlegum!

Og nú er byrjað að sprauta börnin sem eru ekki neinni einustu hættu vegna veirunnar með þessum efnum!

Grein í Kjarnanum 14. júlí s.l.:

"Hjartavöðvabólga tengd mRNA bóluefnum – Ekki mælt með bólusetningu hraustra barna

Lyfjastofnun Evrópu hefur staðfest aukna tíðni gollurshússbólgu og hjartavöðvabólgu eftir bólusetningar með efnum Moderna og Pfizer. Fáein slík tilfelli hafa komið upp hér á landi.

Sóttvarnalæknir mælir ekki með bólusetningum hraustra barna í bili." (Áherslubreytingin er mín)

Hvað breyttist Þórólfur, hvers vegna viltu láta sprauta hraust börn núna?

"Örvunar"sprauturnar

1908iÞeir sem hafa rækilega kynnt sér allt í kringum þennan meinta drápsfaraldur, vissu upp á hár að "bólusetningunum" yrði hvergi nærri lokið þótt fólki væri talin trú um að það væri komið með góða vernd.

Svo nú er farið að nota svokallaða Mix & Match aðferð, sem felst í að fólk "þarf núna" að fá örvunarsprautu með öðru tilraunalyfi en það var fyrst sprautað með.

"Örvunin" fór greinilega ekki vel í konuna hér á myndinni!

Þrjár konur hafa lamast í kjölfarið, og að sjálfsögðu eru það tómar tilviljanir eins og alltaf.

Hver getur ekki lent í því einhvern daginn að lamast upp úr þurru þótt mænan sé heil!?

"Tvær konur hérlendis til viðbótar stúlku sem lamaðist eftir bólusetningu gegn Covid-19 finna fyrir lömunareinkennum sem þær telja að tengja megi við örvunarskammt bóluefnis. Þetta staðfesta áreiðanlegar heimildir Fréttablaðsins.

Nítján ára stúlka, sem hafði fengið Janssen-bóluefni og fékk örvunarskammt af Moderna fyrir fimm dögum, lamaðist fyrir neðan mitti. Hún greinir frá því á samfélagsmiðlum að segulómun sýni ekkert athugavert við mænu hennar og að læknar telji lömunina eiga eftir að ganga til baka.

Læknar hafa sagt að enn sem komið er hafi ekki fundist óyggjandi merki um tengsl milli bólusetningar og lömunareinkenna."

Endalausar lygar og blekkingar!

Það er alveg með ólíkindum hvað læknar, Þórólfur, Kári, Lyfjastofnun, og fleiri aðilar komist endalaust og gagnrýnislaust upp með þetta afneitunarþvaður og lygar í fjölmiðlunum, bæði hér á landi og annars staðar!

Og við höfum nú öll heyrt um allar konurnar sem þjást af aukaverkunum í móðurlífinu eftir sprauturnar, sumar verið á blæðingum í margar vikur, aðrar hafa ekkert farið á blæðingar, og einhverjar hafa meira að segja byrjað aftur á blæðingum eftir tíðahvörf! Það eru núna held ég hátt í tvö þúsund konur í lokaðri FB grúppu sem hafa fengið slíkar aukaverkanir.

Að lokum....

Hvernig getur nokkur manneskja með vott af heilbrigðri skynsemi og rökhugsun ennþá trúað því að þessi tilraunaefni (sem okkur kemur víst ekkert við hvað innihalda), geti ekki verið skaðleg, nú þegar búið er að tilkynna um hátt í 3.000 aukaverkanir, þar af 27 andlát og 157 lífsógnandi?

Við getum ekki endalaust blekkt okkur með því að þau sem létust eftir sprauturnar hafi verið gömul og með undirliggjandi sjúkdóma, þegar aldrei var á það minnst þegar gamla fólkið dó víst "úr covid" í fyrra!

Ætlar fólk virkilega að trúa að það þurfi að láta sprauta sig með reglulegu millibili með einhverjum "örvunarefnum" þegar einhver ný "afbrigði" skjóta upp kollinum?

Og ætlar fólk virkilega að gera börnin sín að tilraunadýrum fyrir lyfjarisana sem eru búnir að gulltryggja sig gegn skaðabótakröfum vegna hugsanlegra afleiðinga á heilsu þeirra (og allra hinna líka!) um ókomna framtíð?

Ég var að enda við að lesa þessa fínu grein eftir Þórarin Hjartarson sem ber yfirskriftina Meðvirkni og ófyrirsjáanleiki, og mæli eindregið með henni!

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband