Bloggfærslur mánaðarins, september 2021

Lygin um "bóluefnin", elítan, og skyggnst á bakvið tjöldin.

Ég hnaut um spurningu og svar við henni á netinu í gær, og gat ekki stillt mig um að taka skjámynd af þessu.

Fyrir það fyrsta, þá eru þetta ekki bóluefni, og í öðru lagi er svarið argasta blekking og lygi.

Svo er vísað á heimasíðu WHO sem er sjálfseignarstofnun að stórum hluta til fjármögnuð af Bill nokkrum Gates, sem vill fækka mannkyninu og segir  bólusetningar vera ljómandi leið til þess. Þið getið lesið meira um hann hér.

Sóttvarnarlæknir okkar vísar gjarnan í það að hann sé að fylgja tilmælum þessarar (glæpa)stofnunar, eins og þegar hann sagði fyrst í fyrra að grímur gerðu lítið gagn, en svo bárust honum einhver ný "vísindi" þaðan sem "sannaði" að þær gerðu mikið gagn, og hann skellti á okkur grímuskyldu, og svo aftur.

Spurningin og svarið við henni:

2909k

 

Valda COVID-19 bóluefnin einhverjum aukaverkunum?

Eins og öll önnur bóluefni, geta COVID-19 bóluefnin valdið mildum aukaverkunum sem standa stutt yfir, eins og hitavellu eða verk eða roða á stungustað. Flest viðbrögð við bóluefnum eru mild og hverfa að sjálfu sér innan fárra daga. Alvarlegri eða langvarandi aukaverkanir eru mögulegar, en eru ákaflega sjaldgæfar.

Ef maður hefur ekki búið undir þúfu í vel á annað ár núna, þá veit maður að þetta er glæpsamleg haugalygi!

Biden Bandaríkjaforseti

Hér sjáum við furðufyrirbærið Biden sem á víst að vera forseti Bandaríkjanna, sem ætlar núna að neyða fyrirtæki sem hafa fleiri en 100 starfsmenn til að láta bólusetja þá.

Hér gengur hann fram með góðu fordæmi í örvunarsprautuna sína úr Hvíta húsinu eins og sjá má.

En bíddu, er þetta tekið í stúdíói og hann sprautaður með gervisprautu, getur það verið?

3009h

Ójá, og það er hægt að finna ótal myndir á netinu af fína fólkinu og elítunni að "þiggja bólusetninguna sína." Ég sá til dæmis fyrir nokkru síðan einhvern erlendan stjórnmálamann þykjast fá sér sprautu, gleiðbrosandi framan í myndavélarnar en hjúkrunarfræðingurinn lét innihaldið gusast út í loftið fyrir aftan hann.

Þau feiluðu á því, að einhver stóð á hæðinni fyrir ofan og tók vídeó af þessum gjörningi.

Elítan og fína fólkið

Hér sjáið þið sama fólkið og fór í gervisprauturnar skella á sig grímunni fyrir myndatökurnar, en semur svo við veiruna að gefa sér pásu svo það geti kjaftað saman á eftir.

3009i

Þarna má sjá fólk sem segir okkur að það sé hræðilegur heimsfaraldur í gangi sem við verðum öll að láta sprauta okkur gegn, og nota grímur.

Og já, það er líka hægt að finna ótal myndir af fyrirfólki sem "gleymir" sjálft að nota grímur, bæði hér á landi og úti í heimi. Við munum nú öll eftir forsætisráðherranum okkar sem fór grímulaus á fótboltaleik, og dómsmálaráðherranum grímulausum á hárgreiðslustofunni!

Ekki trúa öllu sem þú sérð í meginstraumsfjölmiðlunum eða á Google

Eitt af fyrstu bloggunum sem ég skrifaði bar fyrirsögnina Áróður, falsfréttir og krísuleikarar.

3009j

Þar sagði ég meðal annars:

Var þetta sviðsettur atburður?

Vinsæll bloggari sem heldur úti síðunni hugotalks.com gerir þetta að umtalsefni sínu í gær og velti upp spurningunni hvort þetta hafi verið sviðsettur atburður.

Hann bendir á að til séu fyrirtæki sem bjóða upp á úrval leikara (crisis actors/krísuleikara) til leigu ef það það þarf að sviðsetja atburði í fjölmiðlum, eins og t.d. fyrirtækið crisiscast.com sem vinnur m.a. með bresku ríkisstjórninni og lögreglunni!

Það er hreint sláandi að sjá hvers konar þjónustu þetta fyrirtæki býður upp á, og með tæknibrellum sínum getur það sviðsett nánast hvað sem er!

Án þess að Hugo sé að fullyrða nokkuð um að þetta hafi verið sviðsettur atburður, þá biður hann fólk að vera sérstaklega vel á varðbergi þessa dagana og skoða allar fréttir með mjög krítískum augum, því blekkingarnar séu alls staðar.

Þessi bloggfærsla sem ég skrifaði 17. maí síðastliðinn er enn í fullu gildi, því falsfréttunum um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" fer svo sannarlega ekki fækkandi!

Umræðan sem aldrei er tekin á Íslandi

Við fáum aldrei að heyra af öllu fólkinu sem er skaddað eftir þessar sprautur, nánast bara lofgjörð um þessi genabreytandi líftæknilyf, og hversu mörg "smit" (með fölsku PCR prófunum) greindust deginum áður.

Ef ykkur langar að skyggnast bak við tjöldin og fræðast um bóluefnasamningana leynilegu, aukaverkanir og feril faraldursins frá upphafi, þá mæli ég með að þið hlustið á frábært viðtal á Útvarpi Sögu við Sigurlaugu Ragnarsdóttur og Guðrúnu Bergmann. Þær eru í stjórn mannréttindasamtaka sem heitir Mín leið - Mitt val, þar sem ég er gjaldkeri, svo því sé haldið til haga.

Þær tvær eru hvað fróðastar hér á landi um ofantalin málefni og báðar hafsjór af fróðleik um allt sem við eigum ekkert að fá að vita. Viðtalið má finna hér, og skylduhlustun fyrir þá sem enn trúa að það sé einhver heimsfaraldur í gangi sem ekkert virki gegn nema einhverjar sprautur!

 


Upp komast svik um síðir, og nú eru til beinharðar sannanir um þau!

Fyrir tilstilli hugrakks uppljóstrara í Bandaríkjunum, er búið að opinbera í fyrsta skipti frumgögn um raunverulegan fjölda andláta í kjölfar sprautanna, og sannanir fyrir því að Remdesivir er stórhættulegt lyf sem veldur nýrnabilun og oft dauða í kjölfarið.

"Attorney Thomas Renz Releases Stunning Data from Never Before Seen Vaccine Injury/Death Tracking System"

Lögmaðurinn Thomas Renz hefur verið ötull í baráttunni fyrir því að fletta ofan af svikunum í kringum þennan "heimsfaraldur".

Hann kom fram á ReAwaken America Tour í Michigan á dögunum og fór meðal annars yfir hvernig tölur um aukaverkanir og andlát eftir sprauturnar eru vandlega faldar og skipulega logið um þær. Hér má sjá línurit frá VAERS sem sýnir fjölda andláta þar í landi eftir sprauturnar.

2909i

 

Ekki nóg með það, hann hann sýnir okkur líka gögn um að 25,9% sjúklinga sem fengu Remdesivir létust, og athugið, þetta lyf fékk á sínum tíma skilyrt leyfi frá Lyfjastofnun Íslands!

Hvort það er enn notað hér á landi veit ég ekki, hins vegar vill stofnunin ekki leyfa Ivermectin sem löngu er búið að sanna gildi sitt.

Látnir innan 14 daga frá "bólusetningunum"

"That data from the Medicare Tracking System reveals that 19,400 people less than 80 years old have died within 14 days of receiving the COVID-19 Vaccine.

In addition, 28,065 people have died that are over the age of 80 within 14 days of receiving the Covid-19 vaccine.

The Total number of American Citizens that died within 14 days of receiving the COVID-19 vaccine is 48,465 according to hard data revealed in the Medicare Tracking System."

Hann biðlar til samlanda sinna að dreifa þessum upplýsingum út um allt. Við erum búin að ná þeim segir hann, allt sem við höfum í höndunum er hægt að sannreyna.

Hér á Íslandi

2909jVið skulum gera okkur grein fyrir því að það sem hann fjallar um hér má heimfæra upp á Ísland, sömu lygarnar, sama þöggunin, sömu spilltu stjórnvöldin.

Ég var að renna í gegnum vefsíðu Lyfjastofnunar áðan og þegar neðst á síðuna var komið, blasti þetta við mér, Gæði - Traust - Þjónusta.

Þvílík öfugmæli hef ég aldrei séð áður held ég! Þessi stofnun neitar læknum um að ávísa lyfi sem ótal rannsóknir sýna að hafa gefið mjög góða raun í veikindum fólks, og ber við litlum rannsóknum á því.

Þessi stofnun hefur líka ítrekað logið til um fjölda aukaverkana og hvers eðlis þær eru, og segir nánast alltaf að ekkert bendi til tenginga milli sprautanna og aukaverkananna.

Hvað ætli margir Covid sjúklingar hér á landi hafi verið settir í öndunarvélar og fengið Remdesivir, og hvað ætli margir hafi ekki lifað það af?

Þetta er ein af ótal mörgum spurningum sem er ósvarað hér á landi. Það er tími til kominn að fara stoppa þetta heimsfaraldurs blæti hans Þórólfs, það er enginn heimsfaraldur í gangi, og var aldrei, en var réttlættur með fölsku jákvæðu PCR prófunum.

Dánartölur hafa verið stórkostlega falsaðar (líka hér á landi?) um heim allan, enda fá læknar og sjúkrahús ríkulega greitt fyrir það, allt til að hræða mannkynið til að láta sprauta sig með genabreytandi líftæknilyfjum.

Þetta er heimsfaraldur óttaáróðurs og lygafrétta í öllum meginstraumsfjölmiðlunum, líka þeim íslensku sem hafa aldrei fært okkur sannar fréttir um hvað raunverulega er í gangi í heiminum í dag.

Það er bara staðreynd, og því miður hafa Íslendingar upp til hópa ekki hugmynd um hvað er gerast, því það birtist aldrei á RÚV. Enda fjölmenntu þeir í Laugarvaxhöllina þegar boðunin kom, og sumir eru þegar orðnir þrísprautaðir.

Ætli þeir hafi hugmynd um að þeir séu að taka þátt í stærstu lyfjatilraun sem gerð hefur verið í heiminum? Ég stórefa það.

 

 


Bíddu nú, er flensan ekki hætt að herja á okkur?

rsz_1904Gamla góða flensan ákvað kurteislega að draga sig í hlé í mars í fyrra og leyfa nýju drápsveirunni að njóta sín, og hefur held ég ekki eitt tilfelli greinst af henni síðan þá hér á landi.

Því þarf þá að bólusetja núna gegn henni?

"Bólu­setn­ing vegna ár­legr­ar in­flú­ensu hefst nú eft­ir miðjan októ­ber. Bólu­setn­ing­in mun  fara fram á öll­um heilsu­gæslu­stöðvum höfuðborg­ar­svæðis­ins. Þetta kem­ur fram á heimasíðu Heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins.

Fyrstu tvær vik­urn­ar verður bólu­sett for­gangs­hópa og í nóv­em­ber verður svo opnað fyr­ir al­menn­ar bólu­setn­ing­ar."

Hvernig getur hún verið árleg þegar hún greindist bara alls ekkert eftir mars í fyrra? Engin flensa, bara COOOOOVID, sem kyrfilega er búið að kenna okkur að vera dauðhrædd við!

Og ósköp er ég orðin þreytt á þessu tali um forgangshópa, er þetta fólk ekki orðið nógu mikið sprautað, jafnvel þrisvar með einhverjum efnum sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda?

2809c

Ég fæ mér aldrei flensusprautur, og vitiði, ég fæ aldrei flensur! Ég hef eitthvað sem heitir meðfætt ónæmiskerfi, sem hefur varið mig afskaplega vel hingað til gegn öllum pestum.

Enda hef ég haldið því vel við og látið það hafa nóg að gera til að efla sig í gegnum tíðina, og það hefur bara svínvirkað! Og grímulaus og ósprittuð í þessum "heimsfaraldri"!

Til ykkar sem létuð sprauta ykkur gegn drápsveirunni miklu:

Augljóslega get ég ekki talað til allra þeirra sem þegar eru látnir eftir þær, en nokkur þúsund ykkar hafa orðið fyrir aukaverkunum vegna þeirra, jafnvel lífsógnandi.

Eins og til dæmis þessum:

2709a

Eða þessum:

2709b

Ætlið þið virkilega að halda áfram að vera nálapúðar fyrir lyfjarisana, haldið þið virkilega þeir beri einhverja umhyggju fyrir ykkur?

Sektir sem þeir hafa þurft að greiða fyrir markaðssvik og lyfjasvik

2005a

Hvað ætli þessi glæpafyrirtæki græði núna á lyfjum sem fólk þarf að taka núna vegna aukaverkana af akkúrat þessum svokölluðu "bóluefnum" þeirra sem þegar eru búin að skaða og/eða drepa milljónir manns á heimsvísu?

Íslendingar eru upp til hópa óttalegar hópsálir, og kunna ekki við að vera "öðruvísi" en aðrir, og margir hafa látið "bólusetja" sig svo þeir falli í hópinn, og því miður eru líka mörg dæmi um það að fólk hefur verið þvingað í sprauturnar á vinnustað sínum til að halda vinnu.

Á mannamótum talar fólk um hvaða "bóluefni" það fékk og segir bara Gvuuuuð með hneykslunartóni þegar maður segist enn vera ósprautaður og ætli bara að vera þannig áfram.

Íslendingar hafa upp til hópa heldur ekki hugmynd um hvað er að gerast í t.d. Ástralíu og Nýja Sjálandi núna, sem eru að verða að fullbornum lögreglu- og fasistaríkjum, þar sem búið er að svipta fólkið nánast öllum mannréttindum og frelsi.

Ég ætla ekkert að finna sannanir fyrir því fyrir ykkur, þið getið bara sjálf leitað að þeim.

En þið kusuð líklega yfir okkur sömu ríkisstjórnina og samþykkti bóluefnasamningana sem okkur kemur víst ekkert við, og megum ekki sjá vegna einhverra "viðskiptahagsmuna", sem er ekkert annað en glæpsamlegt í ljósi þess hversu skaðleg þessi svokölluðu "bóluefni" sannanlega eru.

Eru Íslendingar bara að verða heimskari og heimskari eins og Kári segir, sem er búinn að tífalda hagnað fyrirtækis síns í "heimsfaraldrinum"?

 

 

 

 


mbl.is Bólusetning vegna inflúensu hefst í október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svört saga "mannvinarins mikla" sem ætlar að fækka mannkyninu með bóluefnum.

Þegar mannleg samfélög tapa frelsi sínu, þá er það venjulega ekki vegna þess að harðstjórar hafi tekið það af þeim, heldur vegna þess að fólk lætur það af hendi af fúsum og frjálsum vilja til að fá vernd gegn utanaðkomandi ógn.

Þetta eru sagt í þessu vídeói sem hefur verið bannað alls staðar á ritskoðuðu miðlunum, en er frábær yfirferð yfir feril "mannvinarins mikla".

Og því miður er mikil sannleikur fólginn í þessum orðum.

2709k

"Einn virtasti veirufræðingur heimsins"

Enn er til fólk sem dáist að honum fyrir gjafmildi sína til alls konar góðgerðarmála, og þótt hann hafi enga menntun í læknis- eða veirufræðum er hann álitinn sérfræðingur af mörgum.

En ferill hans er viðbjóðslegur eins og kemur fram þarna. Hann gaf þúsundum indverskra stúlkna (af gæsku sinni!) bóluefni sem ollu alvarlegum veikindum og örkumlum hjá mörgum, og einhverjar létust.

Þetta var að sjálfsögðu ekkert annað en tilraun, á lítt menntuðu og fátæku fólki sem trúði því að þessi lyf kæmi í veg fyrir, og/eða læknaði krabbamein. Þessar stúlkur fengu engar skaðabætur á eftir, og hann harðneitaði að um tilraunir hefði verið að ræða.

Skýrsla sem birt var 2018 leiddi í ljós að yfir 490.000 börn lömuðust á Indlandi eftir að hafa fengið bóluefni gegn lömunarveiki frá honum.

Svipaðar sögur má segja frá Afríku, þar sem hann notaði fátæk börn í tilraunaskyni.

Fyrirætlanir þessa manns eru sturlaðar, og eru partur af því sem er að gerast í heiminum í dag, þótt fæstir Íslendingar myndu trúa því, enda er aldrei fjallað um þetta í innlendum fjölmiðlum.

Við þurfum bara að fara að horfast í augu við það að þessu svokölluðu "bóluefni" eru hreint engin bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.

Þarna segir læknir að aldrei hafi tekist að búa til bóluefni gegn kóróna veirum, og venjulegur þróunartími bóluefna sé 7-20 ár.

Hin skaðlega galdralausn

Hann og Fauci vinur hans lofuðu heiminum galdralausn gegn "faraldrinum" á einu og hálfu ári, og skipulagður og linnulaus óttaáróður mánuðum saman fékk fólk til að þiggja sprauturnar, því þá myndi lífið komast aftur í samt lag.

En staðreyndin er allt önnur, hér á landi eru þessi efni búin að valda aukaverkunum hjá þúsundum manns, þar af 207 alvarlegum og/eða dauða.

Og nákvæmlega sömu sögu má segja um löndin í kringum okkur.

2709

 

Margir halda því fram að "heimsfaraldurinn" hafi verið uppkokkaður til þess að taka frelsi og mannréttindi smátt og smátt af fólki, og til réttlæta bólusetningu með þessum efnum á (helst) öllu mannkyninu.

Það er verið að reyna að fækka mannkyninu með þessum efnum gott fólk, bæði með því að gelda það og/eða drepa, og það er bara skelfilegur sannleikur.

Horfið á hverja einustu mínútu af þessu rúmlega 20 mínútna vídeói!

 


Skammist ykkar, stöðvið þetta bólusetningarbrjálæði!

Hér er frábær ádrepa á forsætisráðherra Bretlands sem nýlega þvaðraði í ræðustól um hversu vel þessi "bóluefni" hafi reynst.

Við höfum orðið vitni af stórkostlegri fækkun veikinda og andláta segir hann, og nú ætlum við að byggja upp enn meira ónæmi með þriðja skammtinum.

Svo að sjálfsögðu leggur hann áherslu á að það þurfi að ná til þeirra sem er eru ósprautaðir, og hvetja þá til að koma því það verði svo gott fyrir þá!

Og að með haustinu eigi að byrja að sprauta 12-15 ára líka.

Dr. Sucharit Bhakdi

Þessi maður er örverufræðingur til áratuga sem hættur er störfum, svo hann þarf ekki að óttast atvinnumissi þótt hann segi sannleikann, og hefur hann birst í mörgum viðtölum um "heimsfaraldurinn" og þessi stórhættulegu "bóluefni".

"Dr. Bhakdi has published over three hundred articles in the fields of immunology, bacteriology, virology, and parasitology, for which he has received numerous awards and the Order of Merit of Rhineland-Palatinate."

2609j

Hér tætir hann þennan lygavaðal forsætisráðherrans niður í öreindir og endar á því að segja:

Þú veist að þetta er glæpsamlegt, og við Breta segir hann, þið eruð núna að upplifa stærstu glæpi sem framdir hafa verið gagnvart bresku þjóðinni.

Hér má finna meira efni um þennan frábæra, heiðarlega og óspillta vísindamann.

Bráðum 7 barna faðirinn sem vill fækka mannkyninu

Að sjálfsögu veit forsætisráðherra að hann er að ljúga að þjóð sinni, enda er hann fullur þátttakandi í "The New World Order" og "Build Back Better" áformunum um framtíð mannkynsins, meðal annars um að fækka því hressilega.

Ég fann í fyrra stuttan bút sem tekinn var af honum í ræðustóli á þingi Sameinuðu þjóðanna minnir mig, þar sem hann lýsir af ástríðu hvernig mannkynið muni verða þegar búið verið að setja nýstárlegar öreindir í það, sem muni synda um eins og Star Wars karlar um líkamann og hlýða utanaðkomandi skipunum.

Að sjálfsögðu er búið að fjarlægja þetta af vefnum.

Þessi fínu og öruggu bóluefni

Það er búið að tilkynna um tæplega 1.2 milljónir aukaverkana um þau í Bretlandi, en eins og víðar, þá er líklega ekki nema örlítill hluti þeirra tilkynntur.

2609k

Það er bara eitt stórt leikrit í gangi í heiminum í dag

Þetta er bara eitt örlítið dæmi þess, á opinberum myndum er elítan með grímur og með fjarlægð á milli sín, þar fyrir utan hegðar hún sér eins og enginn drápsfaraldur sé í gangi.

Og þetta er bara eitt dæmi af ótalmörgum. "One rule for thee and one for me".

2209k

Eða hvaða dagur vikunnar sem er.....

Hættum bara að horfa og hlusta á þennan hroðalega einhliða og falska fréttaflutning.

Ef það væri raunverulegur heimsfaraldur í gangi, þá þyrftum við ekki fá stöðugar staðfestingar um það, því það færi bara hreint ekkert fram hjá okkur!

1209g

 


Smá upprifjun um Víði sem við áttum öll að hlýða: "Ef þú ert með niðurgang farðu í sýnatöku, ef þú ert með óvenjulega þreytu farðu í sýnatöku", og sitthvað fleira.

Einhverra hluta vegna rifjaðist upp fyrir mér frétt á RÚV frá 19. apríl sem bar yfirskriftina "Það er mikil hræðsla og fólk er bara í áfalli".

Efni fréttarinnar var um hópsýkingar sem tengdust sóttkvíarbrotum. Ungur drengur á leikskólanum Jörfa greindist "smitaður", væntanlega með 40 snúninga PCR prófinu (sem löngu er búið að dæma ómarktækt í siðuðum löndum).

29. apríl aÁ þessum tíma var hann sem betur fer einkennalítill, en fjölskyldan ákvað að skipta sér upp þarna, drengurinn og móðir hans dvöldu í sóttkvíargúlaginu við Þórunnartún, en faðirinn og lítil systir heima.

Aðspurður sagði litli drengurinn að það væri vegna þess að hann gæti smitað foreldra sína og systur.

Blessað barnið, hugsið ykkur ábyrgðina sem lögð er á hann þarna, eins og tugmilljónir annarra barna um heim allan.

Hvernig ætli honum hefði liðið ef fjölskyldan hefði líka "greinst"?

Ætli fólk geri sér einhverja grein fyrir því hversu skaðlegar allar þessar fáránlegu og tilefnislausu sóttvarnaraðgerðir eru börnunum? Og hvað þá þessar viðurstyggilegu "bólusetningar" sem þegar eru búnar að valda alvarlegum skaða hjá að minnsta kosti 6 börnum hér á landi?

Og sjáið skilaboðin frá Víði þennan dag á hræðslufundinum:

"Skilaboð dagsins til almennings voru skýr: „Farið í sýnatöku ef minnstu einkenna verður vart.“ 

„Ef þú ert með beinverki farðu í sýnatöku, ef lyktar og bragðskyn breytist farðu í sýnatöku, ef þú ert með niðurgang farðu í sýnatöku ef þú ert með óvenjulega þreytu farðu í sýnatöku,“ sagði Víðir Reynisson á upplýsingafundinum og hélt áfram upptalningunni, nefndi hósta, hálssærindi, hálsþurrk, hita og höfuðverk. 

Svo virðist sem fólk hafi tekið Víði á orðinu því langar raðir mynduðust í skimun við Suðurlandsbraut í Reykjavík. 2800 létu reka pinna upp í nefið á sér - Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að sjaldan hafi fleiri mætt í skimun."

Hvað varð um heilbrigða skynsemi fólks og rökhugsun?

0709eEinhverra hluta vegna hef ég aldrei gleymt þessari gölnu upptalningu hans, og hvað þá viðbrögðunum við henni!

Hvað ætli margir þessara 2.800 hafi "greinst með smit" og þurft að fara í einangrun?

Ég sá skjáskot um daginn af Facebook þræði þar sem íslensk móðir var að spyrja ráða.

Ungt barn hennar var með smá hor, og hún vissi ekki hvort hún ætti að þora að fara með það í leikskólann!

Æ æ hugsaði ég með mér, svona hefur hræðsluáróðurinn svínvirkað! Það hefur aldrei þótt neitt sérstakt hingað til að leikskólabörn fái hor og smá kvef, þau eru jú ennþá að byggja upp ónæmiskerfin sín.

Að halda þeim heima við, leyfa þeim ekki að hitta aðra krakka eða afa og ömmu, og spritta allt í drasl gerir ekkert nema gera þau viðkvæmari gagnvart öllum veirum og bakteríum sem eru allt í kringum okkur!

Þetta getið þið þakkað þríeykinu, Svandísi og co fyrir:

1908g

 

Hvar er þríeykið sem "er búið að leiða okkur svo farsællega í gegnum þennan hræðilega drápsfaraldur"?

Landlæknir okkar og Víðir virðast horfin af yfirborði jarðar, það er helst að sóttvarnarlæknir okkar tjái sig í fjölmiðlum, og nú um daginn að maður geti hafa smitast af veirunni án þess að veikjast og jafnvel ekki vita af því!

Glæpirnir í boði íslenskra stjórnvalda

Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að aðgerðirnar í heiminum síðastliðna 19 mánuði eru furðulega mikið samræmdar, allt niður í frasana hans Víðis um að við séum öll í þessu saman og við berum öll ábyrgð.

Eða þá jóla- og páskakúlurnar sem við áttum öll skríða inn í, nákvæmlega þessir frasar voru notaðir í löndunum í kringum okkur. Er það bara tilviljun?

Svarið er eitt stórt NEI, og því fyrr sem þjóðin gerir sér grein fyrir því að verið sé að fremja stærstu glæpi sem framdir hafa verið gagnvart mannkyninu núna, því fyrr fer fólk að rísa upp og mótmæla.

Þjóðirnar í kringum okkur eru löngu risnar upp og flykkjast hundruðum þúsundum saman í mótmælagöngur gegn alræðinu og fasismanum sem verið er að innleiða í heiminum í dag.

En að sjálfsögðu þykir það ekki fréttaefni í innlendum fjölmiðlum! Ef þið eruð ekki enn búin að því, horfið þá núna á vídeóið sem sannar hvað raunverulega er í gangi í dag.

Kusuð þið í dag flokkana sem leyfðu þessu að gerast, og hafa að ég held lítið sem ekkert talað um þetta stærsta mál samtímans í kosningabaráttu sinni?

Það kemur í ljós á morgun þegar endanlegar niðurstöður liggja fyrir.

 


Sannleikurinn um þennan meinta "heimsfaraldur" á 40 mínútum!

Þetta vídeó vekur mér svo sannarlega von í brjósti um að loksins verði hægt að stöðva þessa hroðalegu glæpi sem verið er að fremja gagnvart mannkyninu núna, einhverju sem flestir hafa enga hugmynd um að séu að eiga sér stað.

Að minnsta kosti ekki hér á landi, þótt þjóðirnar í kringum okkur séu löngu vaknaðar og farnar að berjast gegn þessum glæpum.

Dr. Reiner Fuellmich hefur ásamt fjölda óháðra og heiðarlegra lögfræðinga, vísindamanna, blaðamanna og fleiri aðilum um allan heim, flett ofan af þeim sem eru ábyrgir, með óhrekjanlegum sönnunargögnum.

Þessi svokallaði "heimsfaraldur" var lengi í undirbúningi, og lokamarkmiðið er að fækka mannkyninu, og svipta þá sem eftir lifa öllu.

Þetta hljómar alveg galið, ég veit það, en þetta er samt því miður nöpur staðreynd.

Horfið á þetta vídeó til enda, og svo aftur!

Hvert einasta orð sem hann segir í þessu vídeó er því miður heilagur sannleikur!

 

Covid-19 scandal never been a health issue

"The hearings of, among others, hundreds of scientists, doctors, economists and lawyers of international repute conducted since October 7, 2020 by the Berlin Commission of Inquiry into the Covid-19 affair have now demonstrated with a probability approaching 100% certainty that the Covid-19 scandal was never a health issue – Dr. Fuëlmich on February 15, 2020"

“Rather, it was a matter of strengthening power, illegally obtained by criminal methods of the corrupt ‘Davos clique’, by transferring the wealth of the people to the members of Davos on the backs of small, and especially medium-sized businesses, among others.”

The committee’s conclusion is that Covid-19 is being used as a diversionary tactic by business and political “elites” with the goal of shifting market shares and wealth from small and medium-sized businesses to global platforms such as Amazon, Google, Uber, and other big tech and multinational corporations.

Sjá meira hér.

Glæpirnir hér á landi

Hann kemur meðal annars inn á PCR prófin (sem hann Kári okkar er búinn að moka inn peningum á!) sem að minnsta kosti voru lengi notuð á 40 snúningum hér á landi, það fékk ég staðfest frá Lyfjastofnun fyrr á árinu.

Eins og þau eru notuð hér á landi, þá er vísvitandi verið að viðhalda fölskum faraldri, munum hvað Þórólfur hefur sagt, að maður geti verið veikur án þess að vita það!

Á grunni þeirra er búið að loka þúsundir fullfrísks fólk inni í sóttkvíum og einangrunum, loka fyrirtækjum til lengri eða skemmri tíma, og fresta lífsnauðsynlegum læknisaðgerðum hjá fjölda fólks.

Og hérna er bara fátt eitt upptalið, skaðinn verður aldrei bættur hjá mörgum.

Og það er vísvitandi búið að þvinga okkur til að nota súrefnisheftandi tuskur fyrir vitunum, þótt allir ættu að sjá núna að eru einungis tákn um hlýðni, og halda okkur í ótta við einhvern ósýnilegan óvin.

Örsmáir möskvar þeirra halda fáum ef nokkrum veirum frá því að komast ofan í öndunarfærin.

Og það er vísvitandi og með gríðarlegum áróðri búið að telja þjóðinni trú um að ekkert geti komið henni út úr "heimsfaraldrinum" nema einhverjar "bólusetningar".

Þeim hefur verið haldið áfram þrátt fyrir þann skelfilega skaða sem þær hafa valdið á þúsundum manna hér hér á landi, allt niður í börnin sem byrjað er að sprauta!

Það er af einbeittum brotavilja búið að banna notkun áratuga gamals lyfs sem hefur sannanlega virkað ákaflega vel gegn þessum veikindum, en þess í stað notað lyf sem sannanlega hefur flýtt fyrir dauða sjúklinga!

Það er kjördagur á morgun, ætlið þið að kjósa einhvern þessara sitjandi flokka sem hafa hunsað ótal bréf, símhringingar, tölvupósta og jafnvel ábyrgðarbréf með sönnunum sem hefðu átt að stöðva þessa aðför að okkur strax?

Haldið þið að þetta fólk sé að hugsa um eitthvað annað en eigin rass? Með þessari hunsun sinni frá okkur, þjóðinni sem þau eiga að vera að vinna fyrir, hlýtur svarið bara að vera stórt NEI!

 

 


Þórólfur og "vísindin", þið getið hafa fengið pestina án þess að veikjast, og jafnvel vitið ekki af því!

Þórólfur er endalaust að toppa sjálfan sig í "vísindunum" sínum. Hann sagði okkur í fyrra að grímur gerðu ekkert gagn, en svo stuttu síðar vísaði hann í einhverjar "nýjar rannsóknir" sem áttu að sýna fram á hið gagnstæða.

Svo hefur hann farið frá því að mæla ekki með bólusetningum á börnum yfir í að mæla heilshugar með þeim.

Svo sagði hann í viðtali í fyrra að tryggja þyrfti að bóluefni gegn Covid væru góð og örugg áður en farið væri að sprauta fólk með þeim.

Ragnar Reykás á sterum bara!

Þetta virðist hans túlkun á góðum og öruggum bóluefnum

2309a

Hér brillerar hann alveg!

"Við vitum hins­vegar að það eru fleiri sem hafa fengið CO­VID án þess að veikjast og jafn­vel vita ekki af því. Við vitum hins­vegar ekki hvað sá hópur er stór. Auð­vitað getur það komið flatt uppp á fólk en ég vil hvetja fólk til þess að vera ekkert endi­lega að fara í mót­efna­mælingu,“ segir hann." (Áherslubreytingin er mín.)

Fréttin er hér.

Það er eitthvað þarna sem ég skil ekki alveg frekar en félagarnir á myndinni hér fyrir neðan, er eitt af einkennum veikindanna að hafa engin einkenni?

2209g

Stökkbreyttu afbrigðin

Svo eru það öll blessuðu stökkbreyttu afbrigðin sem eru víst ennþá meira smitandi en forverar þeirrar.

Með massa bólusetningum erum við alltaf alveg að ná hjarðónæminu langþráða, en svo kemur skellurinn, æ æ, þau eru ekki að virka alveg eins vel og lofað var, svo upp með grímurnar einu sinni enn, og fáum okkur "örvunar"búst.

Og bönnum Ragga rakara að vinna grímulaus í pestarbælinu á stofunni hans, en veiran veit að hún má ekki smita þegar hann fer grímulaus á pöbbinn eftir vinnu og fer í sleik við sæta dömu þar.

1109d

Áminning frá sóttvarnarlækni

Í sömu frétt segir hann að smitþreytan sé skiljanleg en vírusinn sé enn vandamál.

„Ég held að það sé nokkuð ljóst að það eru allir orðnir nokkuð leiðir á þessum tölum,“ segir sótt­varna­læknir.

„En það þýðir lík­lega ekki að ræða það,“ segir Þór­ólfur og minnir á að veiran fer ekki neitt þó hún sé rædd minna.„ (Áherslubreytingin er mín)

Búúúú, haldið áfram að vera hrædd krakkar mínir, þótt þið hafið verið einkennalaus og ekkert veik, þá eru miklar líkur á að þið hafið verið veik! Þvílíkur brandari!

En svona just in case, passið ykkur rosalega vel, og kaupið birgðir af skyndiprófum í Bónus, drápsveiran eða stökkbreyttir afkomendur hennar eru úti um allt!

Áminning TIL sóttvarnarlæknis

Veistu Þórólfur, ég er orðin miklu leiðari á þér sem ert með minnisblöðum þínum búinn að halda þjóðinni í fjötrum í á annað ár núna út af pest sem drepur álíka marga og flensan á hverju ári.

Og ég er búin að fá nóg af bóluefnaáróðrinum sem búinn er að skaða þúsundir manna og drepa að allra minnsta kosti 31.

Og hvert fór flensan eiginlega, hvers vegna hefur hún ekki greinst síðan í mars í fyrra, akkúrat þegar drápsveiran mikla "greindist" hér fyrst?

Þetta "leikrit" fer að verða búið, tjöldin eru að falla - með brauki og bramli!


Hvort er þetta ormalyf fyrir hesta, eða lyf sem hefur fengið Nóbelsverðlaun? Svarið er, hvort tveggja!

Ég var að horfa á eitt besta vídeó sem ég hef séð hingað til um lyfið sem má ekki nefna á nafn á Facebook án þess að síðan smelli einhverri aðvörun undir.

"There’s a huge and largely manufactured campaign of disinformation about Ivermectin in the news. This video asks and answers the question; "Is ivermectin a horse-dewormer or a Nobel prize winning medicine?""

Rúna Hauksdóttir forstjóri Lyfjastofnunar leggur áherslu á að þetta sé sníkjudýralyf, sem stofnunin geti ekki mælt með gegn pestinni ógurlegu, og orðið sníkjudýralyf vekur vissulega upp hroll hjá manni, og kallar fram "rétt" hughrif hjá fólki.

Þessi sama manneskja er margbúin að segja ósatt um aukaverkanir eftir "bóluefnin", og stofnunin sem hún stjórnar er æði spör á upplýsingar sem við eigum svo sannarlega rétt á að fá.

Það eru víst engar sannanir fyrir því að áratuga gamalt lyf sem milljarðar manna hafa fengið án mikilla aukaverkana, og hefur fengið Nóbelsverðlaun einhverra hluta vegna, gagnist gegn pestinni segir hún.

2209dVið eigum bara að láta sprauta okkur með lyfjaglundri sem er enn á tilraunastigi þar til árið 2023.

Einhverjum eiturefnum sem þegar eru búin að valda dauða hjá að allra minnsta kosti 31 manns, valdið lífsógnandi aukaverkunum hjá 175, og öðrum aukaverkunum hjá öðrum 3.010.

Og nota bene, þetta eru einungis þær aukaverkanir sem búið er að tilkynna um!

Sjaldnast bendi nokkuð til tenginga milli sprautanna og aukaverkana og/eða dauða, vill hún meina.

Einmitt! Er fólk virkilega enn að trúa þessu þótt sannleikurinn bókstaflega öskri á mann?

Lyfið Remdesivir sem fjallað er um í vídeóinu

Þetta er eina lyfið sem hefur fengið markaðsleyfi á Íslandi gegn COVID-19, eftir því sem ég best veit, en ég veit þó ekki hvort það sé enn notað í þessum tilgangi hér.

Í rúmlega ársgamalli frétt er sagt að Lyfjastofnun Evrópu mæli með þessu lyfi gegn veikindum.

"Í yfirlýsingu sem stofnunin sendi frá sér í dag segir að Remdesivir sé fyrsta lyfið gegn COVID-19 sem hægt sé að mæla með í ríkjum Evrópusambandsins. Að minnsta kosti tvær bandarískar rannsóknir hafi leitt í ljós að lyfið flýti fyrir bata og stytti þar með dvöl sjúklinga á sjúkrahúsi úr fimmtán dögum í ellefu."

Svo er önnur nýrri frétt, þar sem segir: "Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­in hef­ur mælt gegn notk­un lyfs­ins remdesi­v­ir í meðferð Covid-19-sjúk­linga. Lyfið hef­ur tölu­vert verið notað hér á landi." (Áherslubreytingin er mín.)

Sérhagsmunir lyfjaframleiðenda

Anna Tara Andrésdóttir skrifaði frábæra grein sem birtist á Vísi þann 22. febrúar síðastliðinn, þar sem hún veltir upp þeirri spurningu hvort sérhagsmunir lyfjaframleiðenda standi í vegi fyrir lýðheilsu landsmanna.

Lesið hana endilega, og ekki síður athugasemdina frá Guðmundi Karli Snæbjörnssyni (Kalla Snæ) undir fréttinni. Eins og margir vita, þá hefur hann verið ötull í baráttunni fyrir því að fá þetta lyf leyft hér á landi.

Hvers vegna má að minnsta kosti ekki bjóða fólki upp á að fá þetta lyf ef það vill? Er svarið kannski það að engan gróða sé upp úr því að hafa?

 

 

 


Frú Ingileif ætlar að fræða okkur um "þýðingu bólusetninga á tímum heimsfaraldurs", og uppljóstrari sem varpar sprengju um "bóluefnin"!

Það verður fróðlegt að vita hvað Ingileif Jónsdóttir ætlar að segja í kvöld, á viðburðinum Vísindavaka Rannís - Bólusetningar, hvaða máli skipta þær?

Hún starfar hjá Íslenskri erfðagreiningu, og hefur verið mjög dugleg að lofa þessi svokölluðu "bóluefni", eins og til dæmis í þessu viðtali, þar sem hún segir að við þurfum fleiri sprautur til að verjast nýjum afbrigðum.

Viðburðurinn

"Sjaldan eða aldrei hefur verið rætt jafnmikið um bólusetningar og nú. Ingileif fjallar um þýðingu bólusetninga á tímum heimsfaraldurs, þróun bóluefna og vernd gegn COVID-19 sjúkdómi og smiti, hjarðónæmi, bólusetningu viðkvæmra hópa og bóluefni gegn nýjum afbrigðum veirunnar.

Ingileif Jónsdóttir, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu.
 
Kaffistjóri er Sævar Helgi Bragason
 
 
Hinn napri raunveruleiki
 
Í dag, þriðjudaginn 21. september er búið að tilkynna um 3.210 aukaverkanir, þar af 205 alvarlegar. Í gær voru þær 3.195 og 201 alvarleg, svo tilkynningum hefur fjölgað um 15 frá í gær, og þar af 4 alvarlegum!
 
 
2109
 
 
Hér má sjá viku gamla sundurliðun á tilkynntum alvarlegum aukaverkunum, ég mun uppfæra þetta þegar nýjustu tölur koma.
 
Edit: Hér eru nýjustu tölurnar. Og eins og venjulega: "Að svo komnu er ekkert bendir til orsakasamhengis milli tilkynntra andláta og bólusetninga gegn COVID-19."
 
Mér krossbrá þegar ég sá þessa sundurliðun, því þar var búið að bæta við nýjum lið, fóstursköðum. Fyrir viku síðan var búið að tilkynna um 8 fósturskaða! Hvað segja starfandi ljósmæður um þetta?
 
Þetta er manneskjan sem ætlar líklega að fræða hlustendur sína um "gæði og virkni" bóluefna, en hún hlýtur að tala gegn betri vitund, það getur bara ekki annað verið. Þarna liggja einhverjar aðrar hvatir að baki.
 
 
2109a
 
Hún starfar m.a. hjá Kára í Íslenskri erfðagreiningu, sem er ekki beint hlutlaus í þessum "heimsfaraldri", enda jókst hagnaður fyrirtækisins tífalt í fyrra miðað við 2019.
 
Áhugasamir ættu að geta dundað sér við að finna hverjir hagsmunir hans eru, og á hverju hann er að græða þessa dagana!
 
Eitthvað segir mér þessi "fræðsla" hennar í kvöld sé einungis til að peppa upp umræðuna um þessi svokölluðu "bóluefni", þetta er ekki manneskja sem ber líf og heilsu þjóðarinnar sér fyrir brjósti, það ætti öllu þenkjandi fólki að vera ljóst!
 
Uppljóstrari varpar sprengju, "Vaccine is Full of Shit" segir læknir

 

Hugrakkur bandarískur hjúkrunarfræðingur er búinn að fá nóg, og tók leynilega upp samtöl við lækna og kollega.

Það er (að sjálfsögðu) búið að eyða þessu vídeói út af Instagram og Facebook, svo það hverfur örugglega fljótlega líka út af YouTube, en þetta er skylduáhorf!

Skaðsemi þessara efna er óðum að koma betur og betur í ljós, og vonandi fer fólk sem orðið hefur fyrir skaða, og/eða misst ástvin eftir sprauturnar að stíga fram og krefjast svara, og skaðabóta.
 
Hvers vegna er þessi gríðarlega pressa á fólk hér á landi að fara í sprauturnar?
 
0603Fólk hlýtur að fara að fatta að Ragnheiður yfirhjúkka sem segir að öll bóluefni séu góð, og það sé hættulegra að fara út í búð en að láta sprauta sig, og Þórólfur sem mælir heilshugar með því að fólk láti sprauta börn sín eru hreinlega að ljúga, og búin að gera það lengi.
 
Og ekki bara þau, heldur Ingileif, Rúna, Kári, Svandís og margir fleiri. Allt þetta fólk er búið að fá sent ótal tölvupósta og bréf um skaðsemi þessara efna, en viðbrögðin eru nánast engin.
 
Sama á við um alla fjölmiðlana sem eru á ríkisspenanum, þeir hafa engu sinnt af því sem þeir hafa fengið sent.
 
Að minnsta kosti er löngu orðið ljóst að vísindi eru oft föl fyrir peninga. Svo hvað liggur að baki því að búið er að blekkja stærstan hluta þjóðarinnar og stóran hluta barna á aldrinum 12-15 ára í sprauturnar, þrátt fyrir að skaðsemi þessara efna er búin að vera augljós mánuðum saman?
 
Eru það peningar, eða eitthvað allt annað og stærra? Fólk ætti kannski að fara að skoða hvað er að gerast í heiminum í dag í öðrum miðlum en þessum meginstraumsfjölmiðlum, þar sem allt er ritskoðað í drasl.
 
Enda eru þeir margir fjármagnaðir af Bill Gates og öðrum auðmönnum sem stjórna áróðursfréttaflutningnum að miklu leyti.
 
Þeir sem vilja, ættu endilega að skella sér í Perluna í kvöld og spyrja Ingileifu "óþægilegra" spurninga og heimta svör við þeim!
 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband