Bloggfærslur mánaðarins, október 2022

Eru 20 milljónir þegar látnar eftir sprauturnar og yfir 2 milljarðar skaðaðir?

Þetta er stór spurning sem mörgum bregður örugglega við að sjá, þó ekki þeim sem búnir eru að reyna að vara aðra í heil tvö ár núna við þessum genabreytandi tilraunaefnum sem óhrekjanlega eru búin að valda ómældum skaða og dauða um allan heim.

2202b

Fréttaflutningurinn hér á landi (og reyndar á heimsvísu líka) hefur verið með ólíkindum í "heimsfaraldrinum".

Varla var birt stakt orð um aukaverkanir og andlát eftir sprauturnar í innlendum miðlum, og fyrrverandi sóttvarnalæknir var aldrei spurður út í þessi mál þrátt fyrir að Lyfjastofnun birti daglegar uppfærslur um tilkynntar aukaverkanir.

Hræðsluáróðurinn var svo linnulaus að fólk flykktist í próf til að athuga hvort það væri veikt, og flykktist svo í sprauturnar þegar þær stóðu til boða, og svo aftur (og aftur) þegar það þurfti víst að skerpa á "verndinni".

Óvenju mörg dauðsföll hafa verið hér á landi á þessu ári hjá 70 ára og eldri, einmitt þeim hópi sem búinn er að fara í flestar sprauturnar og ætti samkvæmt öllum loforðunum um virkni og gæði þessara efna að vera vel varið.

Og óvenju margar dánartilkynningar hafa verið undanfarið um fólk sem hefur dáið skyndilega, jafnvel ungt að aldri.

Roger Hodkinson

Ég var að horfa á viðtal við merkan meinafræðing og lækni að nafni Roger Hodkinson, eitt af mörgum sem ég hef séð með honum, og skrifaði einmitt blogg um hann fyrir rúmu ári síðan: Þetta er bara pólitík í læknisleik, trúðu engu af því sem búið er að segja þér!

Ég mæli eindregið með því að þið hlustið á það sem hann hafði að segja þar.

Þetta er gegnheill vísindamaður sem hefur engra hagsmuna að gæta við að vara fólk við, heldur allt að tapa eins og svo margir kollegar hans hafa orðið fyrir, að vera reknir úr störfum sínum, hæddir og smánaðir opinberlega af þar til gerðum keyptum aðilum.

Hér má sjá hluta af ferilskrá hans:

Roger Hodkinson

Lausleg þýðing á því sem hann segir í viðtalinu:

Ein af stærstu fréttum síðustu daga er grein á Substack eftir mann að nafni Peter Halligan, en hann er mjög reyndur og hæfur greinandi úr fjármálageiranum og hefur mikla reynslu af því að greina tölur og gögn og draga af þeim niðurstöður.

Ég vona að áhorfendur þínir sitji núna í sætum sínum og undirbúi sig undir það sem ég ætla að segja ykkur núna, sem ykkur mun fyrst þykja fáránlegt. Þess vegna er það svo ákaflega mikilvægt að ég segi þetta.

Þessar tölur eru bestu áætlanir á þessum tímapunkti, þar sem opinber gögn eru notuð til að sýna alþjóðlegar afleiðingar blóðtappaskotanna (clot shots) hvað varðar dauða og sjúkdóma, líka þekkt sem alvarlegar aukaverkanir eins og hjartaáföll, heilablóðföll, lungnasegarek o.s.frv.

Við höfum af góðum ástæðum einbeitt okkur að tölfræði Norður-Ameríku síðastliðin tvö og hálft ár, en þessi maður hefur framreiknað það yfir í heildaráhrif, neikvæð áhrif blóðtappaskotanna, og þetta eru tölurnar.

Dauðsföll, dauðsföll á alþjóðavísu sem rekja má beint til bóluefnanna eru tuttugu milljónir, tvær núll milljónir dauðsfalla af völdum blóðtappaskotanna og tveir milljarðar, stórt M, alvarlegra aukaverkana af þeirri gerð sem ég lýsti. Þessar tölur eru yfirgengilega háar.

Til að bera þetta saman við söguna hingað til, þá hafa bóluefni verið tekin af markaði þegar örfá andlát hafa átt sér stað í kjölfar þeirra, það síðasta eftir 35 dauðsföll vegna fuglaflensubóluefnisins.

Ég vona að fólk átti sig á umfangi og skala þess sem er í gangi hérna, þetta ólýsanlega blóðbað er ekki yfirstaðið því þessar tölur eru bara núverandi áætlun og innihalda ekki andlát sem verða í framtíðinni af svipuðum orsökum, sem munu þar að auki bætast við þessar tölur.

Þær innihalda ekki andvana fæðingar, eða andlát sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir ef við hefðum ekki haft "eins sjúkdóms" heilbrigðiskerfi síðastliðin tvö og hálft ár þar sem fólk fékk ekki nauðsynlegar rannsóknir á eða meðferðir við krabbameinum svo eitthvað sé nefnt, þessar tölur eru ekki innifaldar.

Þessar tölur innihalda ekki heldur andlátin vegna innilokananna (lockdowns) eða sjálfsvíganna, né andlát á næstu árum sem munu verða vegna gríðarlegrar aukningar á krabbameinum og banvænum sýkingum vegna ónæmisbælingar sem orðið hefur hjá fólki vegna blóðtappaskotanna.

Þetta er til viðbótar við þessar skelfilegu tölur sem ég var að nefna.

1022

Viðtalið sjálft er hér og gögnin sem hann vísar í eru hér og hér.

Nennir fólk í alvöru ekki að leita sér upplýsinga?

Eða er það of erfitt að horfast í augu við að maður hafi verið stórkostlega blekktur og kjósi þess vegna að ríghalda í lygarnar?

Hvort þessi fjöldi látinna og skaðaðra sé réttur eða ekki skiptir kannski ekki öllu máli í stóra samhenginu, lygarnar hafa verið sagðar og skaðinn er skeður.

Við sem höfum fylgst með afleiðingum þessara "bólusetninga" á fólk höfum séð þúsundir frásagna sprautuskaðaðs fólks og frásagnir fólks sem hefur misst ættingja sína og vini í kjölfarið, jafnvel marga.

Hjá meginstraumsfjölmiðlunum ríkir grafarþögn um þennan hrylling sem er að eiga sér stað, en er auðvelt að finna annars staðar ef maður leitar.

Note that there have been 600 million recoveries from 620 million cases WITH NO HELP FROM “VACCINES” – “vaccines” that do no prevent infection, transmission, hospitalization or death and instead kill and maim at alarmingly high rates (one death for 635 injections and one “event” for every six injections – based on 20 million dead and 2.2 billion injuries from 12.7 billion doses administered).

Died Suddenly - Dóu skyndilega

Það er verið að gera heimildarmynd núna undir nafninu Died Suddenly, sem verður mjög áhugavert að horfa á og mun hún koma út í nóvember 2022.

Healthy adults are dropping dead all across the globe. In the last 18 months, the term “Died Suddenly” has risen to the very top of “most searched” Google terms. Now, the award-winning documentary team that brought you, “Watch The Water”, and “These Little Ones” travels around the world to find answers, and tell the stories, of those who Died Suddenly.

Áður birt efni:

Stóra spurningin

Þegar sannleikurinn kemur í ljós, ekki spyrja mig hvers vegna ég vissi hver hann var. Spurðu sjálfa/n þig hvers vegna þú gerðir það ekki.

0128e

 

 


Ný afbrigði veirunnar gætu valdið næstu bylgju - meðal hinna þegar "bólusettu"?

Í frétt sem birtist á RÚV.is 19. október segir að nýju afbrigðin gætu verið meira smitandi en hin fyrri, og að tíu manns hafi þegar greinst með þau hér á landi. Nýr sóttvarnalæknir segir líkur á nýrri bylgju, en að þó sé ekki ástæða til að óttast.

En þó! Gamalkunni hræðsluáróðurinn virðist vera að byrja aftur svona hægt og rólega, og alltaf er þetta hegðun okkar að kenna, við erum að njóta allt of mikilla samvista við annað fólk, ættingja og vini.
 
Ný bylgja virðist vera á leiðinni. „Það hafa verið að aukast tilfelli í Evrópu til dæmis, í þónokkuð mörgum löndum, og einnig spítalainnlagnir og dauðsföll í svona þriðjungi af löndum Evrópu sem tilkynna þetta,“ segir Guðrún. „Það er ákveðið áhyggjuefni, en það virðist vera vegna hegðunar en ekki vegna nýs afbrigðis. Það að fólk sé að koma meira saman, vera inni, samkomur og slíkt sem er að valda því.“ (Áherslan er mín)

Ég sakna þess að sjá ekki í þessari frétt hvort þeir sem hafi verið að greinast eða deyja séu þegar sprautaðir, en samkvæmt mörgum heimildum er það fólk akkúrat það sem er helst að veikjast og deyja þessa dagana, margir úr skyndilegum nýjum veikindum og/eða hraðvaxandi krabbameinum.
 
Úr mínu nærumhverfi þekki ég og veit um töluvert af sprautuðu fólki sem hefur fengið pestina, jafnvel oftar en einu sinni eftir að hafa fengið "varnirnar" gegn henni, og einhverjir eru jafnvel alltaf lasnir.
 
Ósprautaðir eru hins vegar ekkert að veikjast meira en venjulega.
 
Spilaborgin er að hrynja
 
Tilbúnar og falskar goðsagnir um "bóluefnin" eru að hrynja hratt þessa dagana, og sýnir rannsókn sem gerð var í Harvard að "bóluefnin" séu hættulegri en pestin sjálf.
 
Fleiri heimildir:
 
Germany: COVID cases up to today October 13th, something is up in Germany? As you see cases not getting back to baseline each wave and staying elevated, high infectious pressure, no herd immunity.
 
Germany is experiencing very elevated infection and cases; what do you think is happening? see vaccination rate and excess mortality, Germany is having a problem, in line with vaccine & boosting?
 
 
Sucharit Bhakdi, MD & Arne Burkhardt, MD: "On COVID vaccines: why they cannot work, & irrefutable evidence of their causative role in deaths after vaccination".

 
Government publishes horrifying figures on COVID Vaccine Deaths: 1 in every 73 Vaccinated people had died by June 2022 compared to just 1 in every 172 Not-Vaccinated People
 
 
Covid Vaccines Up to 100 Times More Likely to Cause Serious Injury to a Young Adult Than Prevent It, Say Top Scientists
 
 
Á Íslandi
 
Hér á Íslandi er allt við það sama, enn er verið að ljúga um virkni og öryggi þessara tilraunaefna, sem þegar eru búin að valda skaða hjá þúsundum Íslendinga, og jafnvel dauða, og enn er verið að hvetja fólk til að láta sprauta sig meira.
 
„Þetta er omíkron-afbrigði og bóluefnin virka vel gegn alvarlegum veikindum og dauðsföllum vegna omíkron,“ segir Guðrún. Aftur á móti sé ástæða til að fara að öllu með gát. 

Hún hvetur fólk til að fara í örvunarbólusetningu og huga að sóttvörnum. „Þessar persónulegu sóttvarnir skipta enn þá máli.“

Nýlegar færslur mínar:
 
Og það nýjasta nýtt frá Lyfjastofnun
 
Lyfjastofnun Evrópu heimilar notkun Comirnaty og Spikevax fyrir börn frá sex mánaða aldri!
 

Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu um lyf fyrir menn (CHMP) hefur ákveðið að mæla með notkun COVID-19 bóluefnisisns Comirnaty fyrir börn frá sex mánaða aldri til fjögurra ára, og COVID-19 bóluefnisins Spikevax fyrir börn frá sex mánaða aldri til fimm ára. Áður var notkun Comirnaty leyfð fyrir fullorðna og börn frá fimm ára aldri og Spikevax fyrir fullorðna og börn frá sex ára aldri.

Bæði Comirnaty og Spikevax hafa gefið góða raun við að draga úr alvarlegum veikindum, spítalainnlögnum og dauðsföllum vegna COVID-19 og verða áfram notuð í faraldrinum, sérstaklega sem grunnbólusetningar.

Ákall til foreldra!
 
Í guðanna bænum ekki leika rússneska rúllettu með líf og heilsu barnanna ykkar, þau eru ekki í áhættuhópi, og engin heilbrigð börn hafa dáið úr Covid, en mörg eftir sprauturnar, eða hafa orðið fyrir varanlegum skaða, til dæmis með því að fá hjartavöðvabólgu.
 
Hér eru örfá dæmi:
 
Children's Lives Destroyed by Covid Vaccines
 
 
Children 5 to 11 DEAD or Disabled after Covid Vaccine
Children 5 to 11 DEAD or Disabled after COVID Vaccines
 
Excess Deaths across Europe among Children
 
Engir foreldrar vilja skaða börnin sín svo leyfið þeim að njóta vafans, ekki láta sprauta þau með þessum efnum sem enn eru í tilraunafasa! Covid var aldrei sú skelfilega drápspest eins og reynt var að telja okkur trú um.
 
Óvenju mörg dauðsföll hafa verið hér á landi á þessu ári hjá 70 ára og eldri, akkúrat þeim hópi sem búinn er að fara í flestar sprauturnar og ætti samkvæmt öllum loforðunum um virkni og gæði þessara efna að vera vel varið.
 
Loforðum sem stóðust aldrei og eru í raun bara helber lygi, eins og öllum ætti að vera orðið ljóst í dag.
 
 
 
 
 

 
 
 

VIÐ eigum vísindin, og okkur finnst að heimurinn þurfi að vita það!

Á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í september 2022 var meðal annars fjallað um stjórnun á upplýsingaóreiðu, og þar tilkynnti Melissa Fleming sem er aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ) fyrir alþjóðleg samskipti, að þær (SÞ) "eigi vísindin".

Þarna var hún sérstaklega að vísa til nýrra áætlana þeirra um aðgerðir í loftslagsmálum. Hún minntist á samstarf SÞ við tæknirisana eins og TikTok og Google sem eiga sinn þátt í að stjórna bæði umræðunni og upplýsingum um loftslagsbreytingarnar.

Þessi fundur um stjórnun á "upplýsingaóreiðu" var haldinn vegna mats þeirra á að "falsfréttir" um alvarleg mál eins og loftslagsbreytingar og "heimsfaraldurinn" væru orðnar nánast stjórnlausar.

Hún sagði einnig að þau hafi hafið samstarf við Google eftir að hafa gúgglað loftslagsbreytingar (climate change), og orðið sjokkeruð á að sjá ótrúlega "brenglaðar niðurstöður" efst í leitinni.

Semsagt, SÞ gekk til samstarfs við Google um að auka ritskoðunina, sem ærin er þó fyrir!

Og þetta sagði hún rétt áður en hún sagði að SÞ ættu vísindin.

UN Owns the Science

Sjá hana segja það hér

En hver ákveður hvað eru falsfréttir og hvað ekki?

Svarið er: Þeir sem vilja halda einum ("leyfilegum") málstað að fólki og útiloka önnur sjónarmið, skoðanir, jafnvel aðrar rannsóknir, og í krafti fjármagns síns og valda geta keypt lækna og vísindamenn, háskóla, fjölmiðla, samfélagsmiðla og leitarvélar.

Má til dæmis nefna Bill Gates, lyfjarisana, og nú Sameinuðu þjóðirnar.

Hver kannast ekki til dæmis við þessa meldingu "staðreyndapostulanna" (Fact Checkers) á Facebook þegar "bóluefnin" eru til umfjöllunar?

1016a

Hvað eru vísindi?

Eru þau eitthvað sem einn einstaklingur eða hópur einstaklinga (sem mögulega eru hlutdrægir) ákveða að séu það eina rétta?

Svarið er nei, heldur eru vísindi:

Science is a systematic and logical approach to discovering how things in the universe work. It is also the body of knowledge accumulated through the discoveries about all the things in the universe. 

Sience and the scientific method

Science is ongoing. Science is continually refining and expanding our knowledge of the universe, and as it does, it leads to new questions for future investigation. Science will never be “finished.”

Understanding science 101

Vísindi er vitneskja og það að vita. Vísindalegrar þekkingar afla menn með rannsóknum, það er með kerfisbundinni leit að þekkingu.

Wikipedia

Science will never be “finished.”

Í ljósi þessara skilgreininga á vísindum, hvers vegna eru réttmætar athugasemdir um einhver "ný vísindi" hvergi leyfðar í dag, og þeim sem þær gera jafnvel reknir úr störfum sínu, hæddir og smánaðir og úthýst af öllum miðlum og leitarvélum?

Dæmin um það eru ótal mörg síðan "heimsfaraldurinn" skall á, enginn mátti koma með efasemdir um hann, og hvað þá um "bóluefnin", sem átti að sprauta allt mannkynið með.

Engar spurningar eða efasemdir voru leyfðar, og umfjöllun í nánast öllum (keyptum?) fjölmiðlum var algjörlega einhliða, líka hér á Íslandi.

Og ekkert hefur breyst, nú eigum við að trúa "loftslagsvísindum" með upplýsingum sem við fáum úr fyrirfram matreiddum leitarvélum og fleiri miðlum um að heimurinn sé nánast að farast, og það er gert með þrautreyndum aðferðum sem ég minntist á í þessu bloggi.

Það hefur alltaf verið einhver hræðsluáróður í gangi gagnvart mannkyninu, einungis til þess að hafa stjórn á því, og það má best sjá núna á því sem gengið hefur á undanfarin ár.

Við vorum hrædd upp úr skónum við einhverja utanaðkomandi "ógn", og gáfum fúslega frá okkur sjálfsögð mannréttindi okkar hvað eftir annað, vegna þess að verið var bara að "vernda okkur".

Viljið þið endurtaka leikinn eina ferðina enn eða segja stopp, hingað og ekki lengra?

Hvernig ætlið þið að bregðast við þegar næstu faraldrar sem WHO er búið að boða næstu 10 ár verða kynntir til sögunnar?

Leyfa enn og aftur að öllu sé skellt í lás og láta sprauta ykkur með einhverjum "bóluefnum"?

"Bóluefnum" sem framleiðendurnir vissu fyrirfram að myndu gera lítið annað en valda skelfilegum skaða og dauða - en færa þeim óheyrilegan auð?

Ykkar er valið! Haldið áfram að trúa og treysta RÚV og Google, eða farið að kynna ykkur annars staðar hvað raunverulega er að eiga sér stað í heiminum í dag.

Fearmongering

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband