Bloggfærslur mánaðarins, desember 2022

Hver á að ráða hver fær að lifa og hver á að deyja?

Hver hefur heimild til að ákveða hverjir eigi að fá að lifa líf sitt til enda, eða hvort þeir eigi að deyja - með lífslokameðferð?

Nú hefur Bill Gates sagt við heimsleiðtoga að það sé tími kominn til að byrja að tala um "dauðanefndir" sem dæmi venjulegt löghlýðið fólk til dauða fyrir það eitt að vera einskis nýtt elítunni.

Þessi maður hefur aldrei verið kjörinn til að leiða heilbrigðismál heimsins, hann hefur enga menntun í þeim málum, en hefur haft gríðarleg áhrif á því sviði í krafti auðs síns og samstarfs við aðra meðlimi viti firrtrar elítu (WEF o.fl.) sem er núna að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda".

Hann er orðinn svo hrokafullur að hann er óhræddur við að útlista glaðhlakkalega hugsanir sínar og áætlanir fyrir framan sjónvarpsmyndavélina eins og eins og þær séu fullkomlega eðlilegar.

Það er óhugnanlegt að horfa á þetta (sjá hlekk á vídeóið neðar), en þetta er bara í anda þessara afla sem líta á "okkur hin" sem sníkjudýr sem erum bara fyrir þeim í elítunni.

Hann réttlætir þessar hugmyndir sínar þannig að peningum sem færu í lækniskostnað til að halda lífi í "óþörfu (gömlu) fólki" væri betur varið til að borga kennurum laun, og að þetta sparaði líka lífeyrissjóðsgreiðslur til fólksins. Er kannski búið að stela lífeyrissjóðunum þeirra?

Enginn hefur áður borið saman laun kennara og rétt aldraðs fólks til að njóta reisnar og lífsgæða á sínum síðustu metrum lífsins. Hvert hafa skattpeningar þessa fólks farið, sérstaklega síðustu misserin? Til bóluefnakaupa, stríðsreksturs í Úkraínu eða "loftslagsvárinnar", rétt eins og hér á landi?

Þessar "dauðanefndir" hans eru ekkert annað þráhyggja glóbalista elítunnar fyrir fækkun mannkynsins, og er hluti af endurræsingunni miklu, sem byrjaði fyrir alvöru með "heimsfaraldrinum". ( <- lesið þetta!)

Endatakmarkið er að ná alræði yfir mannkyninu öllu.

Þessar áætlanir Bill Gates um "dauðanefndir" endurspegla talsmátann sem World Economic Forum notaði varðandi líknardráp og djöfullega nýja lausn kanadískra stjórnvalda til að leysa verðbólgu, heimilisleysi, aukningu glæpa og matarskort – með líknardrápum fyrir fátæka.

Ríkisstjórn Justin Trudeau, sem er útskrifaður úr The Young Global Leaders skóla Klaus Schwab, segir núna að þau séu núna að bjóðast til að aðstoða við "líknar"dráp fólks sem "er of fátækt til að halda áfram að lifa með reisn".

Þið sem lesið ykkur til gagns ættuð núna að vita hvernig Trudeau og hans ríkisstjórn hefur brotið gegn þjóð sinni undanfarin misseri.

1218a

 

Sjá vídeóið hér.

Bill Gates og félagar hans í WEF hafa ítök víða, eins og til dæmis hjá WHO, sem berst núna fyrir alræðisvaldi yfir stjórn heilbrigðismála heimsbyggðarinnar.

Lítum aðeins á nýlegt dæmi.

G20 ráðstefnan á Bali í Indónesíu

Hvaða þjóðir eru í G20?

The G20 is a forum comprising nineteen countries with some of the world’s largest economies, as well as the European Union (EU). The countries are Argentina, Australia, Brazil, Canada, China, France, Germany, India, Indonesia, Italy, Japan, Mexico, Russia, Saudi Arabia, South Africa, South Korea, Turkey, the United Kingdom (UK), and the United States. Spain is invited as a permanent guest.

Spurning sem á fullkomlega rétt á sér

1218

Sitthvað um G20 ráðstefnuna

“The World Will Look Differently After We Have Gone Through This Transition” – WEF’s Klaus Schwab on the Great Reset to World Leaders at G20 Summit (VIDEO)

Why are Bill Gates and Klaus Schwab at the G20?

RIGHT NOW would be a very good time to wake up!
The "G20 Bali Leaders’ Declaration" exposed the "secret" that I have been trying to warn the world about for months

G20 leaders agree to work toward mandatory digital health passports for all human beings: This will kickstart one-world beast system experimented with during Covid

Yuval Harari, helsti ráðgjafi Klaus Schwab hjá The World Economic Forum

Þessi maður er andlit illskunnar, sem þykir hið eðlilegasta mál að útskýra fyrir okkur hinum hvaða álit hann hefur á okkur, og hvað muni bíða okkar (ef við leyfum því að gerast!)

Og við munum að öllum líkindum gera það því það er búið að innprenta svo rækilega í okkur að allt það sem margir hafa verið að vara okkur við undanfarin tæp 3 ár séu bara samsæriskenningar, sem eru þó að rætast hver af annarri þessa dagana.

Transhumanism - Klaus Schwab and Dr. Yuval Noah Harari explain The Great Reset - Transhumanism agenda

Yuval Noah Harari | "People Are Afraid of Vaccines. They View Vaccines As Alien & Unnatural."

WEF’s Yuval Harari says Covid vaccines are turning humans into cyborgs

Total bio-metric surveillance

We are now hackable humans: Yuval Harari, advisor to Klaus Schwab

Useless, meaningless, and worthless people - by Yuval Noah Harari

... Jesus rising from the dead and the son of God, this is fake news

Yuval Harari - Evil people exposed

Hlustið á hvað þessi kona hefur að segja okkur

Látum frásögn hennar verða okkur víti til varnaðar.

"This time they are after the entire global population" - Holocaust Survivor and founder of the Alliance for Human Research Protection, Vera Sharav talks to Right Now

 

 

 

 

 


"Samsæriskenningarnar" sem eru að rætast hver af annarri.

Flestir, ef ekki allir sem hafa reynt að gera fólki grein fyrir því sem verið er að gera mannkyninu núna, hafa fengið á sig stimpil sem álhattaberandi samsæriskenningasmiðir, eða eitthvað þaðan af verra.

Bara fyrir að reyna að vekja fólk og fá það til að staldra við og íhuga hvort allt sem okkur er sagt í fjölmiðlunum alla daga sé satt og rétt, eða hvort önnur viðhorf og kannski sannleikann sjálfan megi finna annars staðar.

Búin var til andúð gegn þeim sem kusu að afneita genabreytandi læknismeðferð sem þeir þurftu ekki á að halda og kærðu sig ekki um. Að vilja ekki láta sprauta sig var kallað drullusokksháttur, og að þeir sem vildu það ekki væru best geymdir í Grímsey. 

Þeir voru óvelkomnir á jólatónleika, eða jafnvel líka í jólaboð með fjölskyldum sínum.

Munið þið ekki eftir þessu, það er ekki lengra en ár síðan þetta var!

"Samsæriskenningarnar"

Hér má sjá nokkur atriði sem voru samstundis stimpluð sem samsæriskenningar, en hafa reynst sönn eftir allt saman, og mætti tína fleiri til.

Þetta má allt finna ef fólk hefur fyrir því að leita sér upplýsinga, við getum þó þakkað fyrir að aðgerðirnar hér á landi voru ekki alveg jafn harkalegar og skelfilegar og í mörgum löndum.

Covid conspiracy theories

Fleiri "samsæriskenningar" sem hafa ræst

White House now pursuing same sun-blocking geoengineering scheme that was called a “conspiracy theory” just two years ago

Vísinda- og tæknimálaskrifstofa Hvíta hússins hefur sett af stað fimm ára rannsóknaráætlun sem miðar að því að þróa aðferðir til að endurkasta sólarljósi aftur út í geiminn til að „kæla“ plánetuna og bjarga henni frá „hnattrænni hlýnun“.

Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis þarna, dettur einhverjum eitthvað í hug?

I Do Not Spread Conspiracy Theories - I Report on Actual News

Gæti nokkuð verið að Bill Gates komi að fjármögnun blokkunar sólargeisla til jarðarinnar? Hann hefur nú fjármagnað - eða fjárfest í öðru eins, eins og til dæmis bóluefnum sem hann hefur opinberlega sagt sínar bestu fjárfestingar.

Bill Gates wants “conspiracy theories” about him to go away

Þarna barmar hann sér meðal annars yfir "falsfréttum" um sig sjálfan og Anthony Fauci.

Þú þarft að þekkja sögu hans og þeirra félaga til að skilja að þeir eru einir mestu glæpamenn sögunnar, sem í krafti valda sinna og auðmagns eru búnir að fjármagna Covid "bóluefnin", sem þegar hafa skaðað og/eða drepið tugmilljónir manns, allt niður í smábörn.

Hér er tveggja ára frétt á RÚV undir yfirskriftinni Bill Gates vúdúdúkka COVID samsæriskenninga, og það er áhugavert að lesa hana núna í ljósi þess að allt sem þar er talið upp eru hreint engar samsæriskenningar, eitthvað sem við öll ættum að sjá núna.

The credit card that tracks your CO2 emissions

Ímyndaðu þér að þú sért við búðarkassann eftir að hafa fundið þér fína steik í kvöldmatinn. Þú nærð í kreditkortið þitt til að greiða, en þér til undrunar er kaupunum hafnað.

Það kemur í ljós að þú hefur farið yfir mánaðarlega CO2 hámarkið þitt og þú mátt ekki kaupa þessa steik. Það eina sem þú getur gert er að skila steikinni og kaupa pöddumat eða eitthvað álíka geðslegt.

Svona kreditkort er verið að innleiða víða, og mun verða innleitt í fleiri löndum sem partur af baráttunni gegn "loftslagsvá" milljarðamæringanna sem eru að innleiða Endurræsinguna miklu á heiminum núna af fullum krafti.

Hér er einstakt viðtal við konu að nafni Melissa Cuimmei, sem enginn má láta fram hjá sér fara, þar sem hún útskýrir þetta hér að ofan.

Listen carefully from the beginning to the end. An investigate journalist predicted international developments two years ago and everything has come true. Among other things, she talks about electronic IDs being a trap to lock people into the CBDC system... listen!

Og hér má sjá að Ísland er enn á rannsóknarstigi með rafkrónu.

No longer a conspiracy theory: Dutch farmers must make way for asylum seekers

Þetta er að öllum líkindum eitthvað sem fæstir íslenskir fjölmiðlalesendur hafa hugmynd um, en verið er að neyða þúsundir hollenskra bænda að bregða búi núna, enda er forseti landsins ákafur fylgismaður Endurræsingarinnar miklu, og einn af The Young Global Leaders sem eru útskrifaðir frá The World Economic Forum, forsprökkum Endurræsingarinnar.

Property in German town to be confiscated for asylum seekers

Hingað til hefur því verið vísað á bug sem illgjarnri "samsæriskenningu" að búseturými handa hælisleitendum myndi á endanum verða gert upptækt í Þýskalandi. En þessi "kenning" er því miður að rætast. Í Fürstenfeldbruck, skammt frá München, er verið að innleiða það núna.

‘Elitists Want A One World Government; It’s Not A Conspiracy Theory

Í stuttu vídeói þarna um Endurræsinguna miklu má meðal annars sjá John Kerry nokkurn sem á tvær snekkjur, fullt af húsum og bílum og flýgur í einkaþotunni sinni milli loftslagsráðstefna, og nú á þeirri síðustu í nóvember til að krefjast milljarða dollara í baráttu við "loftslagsvána".

Það væri forvitnilegt að vita hvað stór hluti rynni í hans eigin vasa...

Confirming Conspiracy Theories when they prove True is Fun

Hér er farið yfir nokkur dæmi um "samsæriskenningar" sem hafa í raun reynst réttar.

"What’s The Difference Between A "Conspiracy Theory" And The Truth? About 6 Months."

Örstutt yfirferð yfir fullyrðingar og raunveruleika um Covid "bóluefnin" og "heimsfaraldurinn", og sýnishorn af heilbrigðisstarfsmönnum sem voru víst að sligast undan álagi vegna hans, en höfðu þó tíma til að æfa og taka upp flotta dansa.

Tilviljanir, eða hvað?

Hér má sjá nokkrar opinberar persónur segja frá því að þau hafi greinst með Covid, en hafi mild einkenni sem þau þakki því að vera bólusett, og auðvitað hvetja flest þeirra fólk til að fara í sprautur og búst.

Það mætti halda að þau hafi öll fengið sama handritið til að fara eftir, og þetta minnir ansi mikið á þennan "fréttaflutning" um meinta loftslagshlýnun af manna völdum.

1203c

 

Sé fólk ekki enn farið að gera sér grein fyrir því, þá eru eru það fjölmiðlarnir og samfélagsmiðlarnir sem eru notaðir til að beita okkur stanslausum hræðsluáróðri, svo hægt sé að beygja okkur til hlýðni.

Hér má sjá dæmi um það, þar sem Melissa Fleming aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir á fundi WEF, að þau eigi vísindin.

Nokkar af aðal klappstýrum Covid "bóluefnanna" í USA

Það er búið að margstanda flest ef ekki allt þetta fólk af tómum lygum í gegn um þennan "heimsfaraldur".

Líka hér á landi sem ég hef margoft bloggað um og rakið lygar þeirra ofan í þau. Þar má nefna Þórólf, Ragnheiði Ósk, Lyfjastofnun og fleiri.

 1127b

Er þetta ekki einmitt málið?

Að í stað þess að trúa öllu athugasemdalaust sem er matað ofan í okkur á flestum vígstöðvum alla daga, að leita okkur upplýsinga annars staðar, og vera opin fyrir því að það sé jafnvel verið að ljúga að okkur, af fólki sem við höldum að við getum treyst, eða höfum kosið til að fara með stjórn landsins og gæta hagsmuna okkar.

Þá fyrst getum við farið að greina á milli hvað er rétt og hvað er rangt.

Instead of "Conspiracy Theorist" I prefer the name "Connect The Dots Specialist"
Dr. Doug Corrigan

 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband