Bloggfærslur mánaðarins, maí 2022

Jájá, fimmti skammturinn gerir örugglega gæfumuninn ...

... þangað til mælt verður með þeim sjötta, svo sjöunda, og svo koll af kolli.

Svo verður ekki úr vegi að nýta einhverja sprautuferðina í að fá sér apabólusprautu í leiðinni þegar það glundur verður komið í hús, það er jú nýr heimsfaraldur í uppsiglingu!

Stjórn­völd í Svíþjóð hafa mælt með að fólk í áhættu­hóp­um og eldri­borg­ar­ar hljóti fimmta bólu­efna­skammt­inn gegn Covid-19.

Þetta seg­ir á vef norsku sjón­varps­stöðvar­inn­ar tv2. Á þetta við um alla yfir 18 ára að aldri sem hafa aukna hættu á að veikj­ast al­var­lega af sjúk­dómn­um, þar á meðal ófrísk­ar kon­ur, og alla yfir 65 ára.

Þá mæla sænsk heil­brigðis­yf­ir­völd með því að börn á aldr­in­um 12 til 17 ára séu bólu­sett með tveim­ur skömmt­um og börn með skert ónæmis­kerfi séu bólu­sett frá 5 ára aldri.

Það setur að manni hroll við að lesa þetta, vitandi um allan skaðann og andlátin sem hafa orðið af völdum þessara svokölluðu "bóluefna".

Úr nýlegu bloggi mínu:

Upptaka með forstjóra AstraZeneca frá desember 2020 sem lak út

Hér má meðal annars heyra hann segja að ekki megi bólusetja milljónir manns sem hafa ónæmissjúkdóma eins og rauða úlfa, MS eða aðra ónæmissjúkdóma, fólk verði að fá vernd annars staðar frá, eins og með "monoclonal antibody treatment", sem ég kann ekki að útskýra nánar.

Þetta vita allir "Þórólfar" þeirra landa sem hafa blekkt þjóðir sínar í þessar sprautur - og ríkisstjórnir þeirra líka.

Hverjum þjóna stjórnvöld í heiminum?

Ekki þjóðum sínum, svo mikið er víst.

Nú stendur yfir þing WHO, sem hefur áform um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma næstu 10 ár, og stefnir að afnámi þjóðlegs fullveldis í heilbrigðismálum á yfirstandandi þingi þeirra dagana 22. - 28. maí.

Þórólfur hefur margoft vísað í þessa stofnun þegar hann hefur tilkynnt breytingar á sóttvarnaaðgerðum, og segist þá gjarnan vera að fylgja tilmælum WHO, sem nota bene er sjálfseignastofnun sem hefur enga lögsögu yfir okkur - að minnsta kosti ennþá!

Neil Oliver um Bill Gates, bóluefni og heimsfaraldurssáttmála WHO:

Hann varar almenning við áframhaldandi hnattrænum svikum "The Pandemic Industrial Complex", vel fjármagnaðrar tæknikratískrar stjórnar sem rekin er af hópi hættulegra einstaklinga, þar á meðal hinum spillta forstjóra WHO, Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus (sem var rétt í þessu endurkjörinn í embættið til næstu 5 ára).

Hann er raunverulegur hryðjuverkamaður, forríkur svikahrappur (charlatan), (og fyrsti forstjóri WHO sem ekki er læknismenntaður).

Svo má nefna bóluefnaofstækismanninn Bill Gates ásamt ýmsum stjórnmálamönnum sem eru meira en tilbúnir til að selja siðferði sitt (að því gefnu að þeir hafi einhvern tímann haft það til að byrja með), í skiptum fyrir valdaferil og hluta af botnlausum fjársjóðum lyfjarisanna.

Svo spyr hann: Ætlar þú að lúta heimsyfirráði hins nýja heimsfaraldurssáttmála WHO, sem hnekkir fullveldi þjóða og tekur yfir stjórn þeirra þegar þeim dettur í hug að segja að einhverjir faraldrar séu yfirvofandi?

Ég segi nei, og sérstaklega þá fyrir hönd barnanna okkar og barnabarna, en þú?

 


mbl.is Mæla með fimmta skammtinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar fólk að falla fyrir þessu eina ferðina enn?

Nú virðist sjaldgæfur sjúkdómur sem kallast apabóla hafa skotið upp kollinum í Bandaríkjunum og einhverjum Evrópulöndum.

Skyldi þetta vera "heimsfaraldur" númer tvö af tíu, er þetta næsti faraldur sem Bill Gates er búinn að boða? Næst verður það öðruvísi sýkill (pathogen) segir hann.

Spádómsgáfa og undirbúningur er fyrir öllu!

Sem stendur virðist mönnum engin hætta búin af þessum sjúkdómi segir Þórólfur, en "til allrar guðslukku" var haldin æfing í viðbrögðum apabólufaraldri í mars 2021, sem myndi brjótast út í maí 2022.

Rétt eins og Event 201 æfingin í heimsfaraldri kórónuveiru sem var haldin í október 2019, þrem mánuðum fyrir (nýafstaðinn?) "heimsfaraldur".

Þátttakendur í þessum æfingum eru meira og minna þeir sömu, Bill & Melinda Gates Foundation, WHO, kínverska CDC og fleiri.

Þessir sem vilja núna ná algjörum yfirráðum yfir viðbrögðum við "komandi heimsfaröldrum" í framtíðinni, og hafa áform um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma næstu 10 ár!

Ballið virðist vera að byrja aftur....

Hægt verður að beita PCR-skimun­um til þess að greina apa­bólu hér á landi eft­ir tvær til þrjár vik­ur, að sögn Guðrún­ar Svan­borg­ar Hauks­dótt­ur, yf­ir­lækn­is á sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­ala.

Land­spít­al­inn býr yfir próf­um sem geta greint veir­ur skyld­ar apa­bólu­veirunni og veitt þar með sterk­an grun um til­vist sjúk­dóms­ins, aft­ur á móti þyrfti að senda slík sýni til Svíþjóðar til staðfest­ing­ar, eins og staðan er núna. 

Og hvað ef einhverjir "greinist" með apabólu með PCR prófi, verða viðkomandi sendir í einangrun, og verður grímuskyldu skellt á okkur eina ferðina enn?

Hvað höfum við gert hingað til áður en þessi fölsku PCR próf voru kynnt til sögunnar?

Væri maður lasinn, þá hélt maður sig bara heima þangað til manni var batnað, punktur.

Undanfarin tvö ár hefur hluti þjóðarinnar, og sumir oftar en einu sinni farið í PCR próf án þess að finna til nokkurra einustu einkenna - svona til að athuga hvort þeir séu veikir.

Og sætt sig möglunarlaust við einangranir, sóttkvíar, spritt og grímur, og hlaupið í allar sprauturnar. Samt hafa þeir sprautuðu margir hverjir orðið hundveikir af pestinni sem sprauturnar áttu að verja þá gegn.

Og þeir sem hafa skaðast eða látist vegna þeirra, en það er önnur saga.

Ætlar fólk að falla fyrir þessum skipulagða hræðsluáróðri eina ferðina enn?

Misvísandi frétt

Í þessari frétt er sagt að fjölgun tilfella af apabólu valdi áhyggjum, og í sömu frétt segir:

Almenningi ekki talin stafa ógn af sjúkdómnum

Fyrstu ein­kenni apa­bólu líkj­ast venju­leg­um flensu­ein­kenn­um. Smitaðir fá hita, bein- og vöðva­verki og eitl­ar bólgna. Í fram­hald­inu mynd­ast svo út­brot sem svip­ar til hlaupa­bólu­ein­kenna á and­liti og lík­ama.

Ekki er talið að al­menn­ingi stafi mik­il ógn af apa­bólu en flest­ir jafna sig á nokkr­um vik­um. Aðeins er vitað um eitt til­felli þar sem apa­bóla hef­ur dregið sjúk­ling til dauða. Apa­bóla er þekkt í Mið- og Vest­ur-Afr­íku og á síðustu árum hafa þúsund­ir til­fella komið þar upp.

Svo hvað er málið eiginlega, til hvers þarf að finna "smit" með PCR prófum?

Smá húmor í restina

Sem betur fer er til fólk með húmor eins og höfundur þessarar myndar, sem er fyrir löngu búið að sjá í gegn um blekkingarnar í kringum (nýafstaðinn?) "heimsfaraldur".

Ætli Landspítalinn sé búinn að tryggja sér nægar birgðir af banönum?

0522a


mbl.is Undirbúa PCR-skimanir fyrir apabólu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindasamtökin Mín Leið - Mitt Val berjast gegn valdatöku einkahlutafélagsins WHO á fullveldi Íslands í heilbrigðismálum

Mannréttindasamtökin MÍN LEIÐ - MITT VAL berjast af fullum krafti gegn valdatöku einkahlutafélagsins WHO á fullveldi Íslands í heilbrigðismálum, og krefjast svara.

Forseti Íslands og ráðamenn fá 7 daga til að svara neðangreindu bréfi sem sent var í morgun mánudaginn 16.05.22 með stefnuvottum frá Héraðsdómi, og samhljóða fréttatilkynning verður send öllum helstu fjölmiðlum landsins.

Mannréttindasamtökin MÍN LEIÐ – MITT VAL hafa í dag 16.O5.22, sent eftirfarandi aðilum það bréf sem hér fylgir með.

Bréfið er sent á heimilisfang þeirra með stefnuvottum, en umræddir aðilar eru:

  1. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands
  2. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands
  3. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
  4. Sigurður Ingi Jóhannsson innanríkisráðherra 
  5. Þórdís Kolbrún Reykdal Gylfadóttur utanríkisráðherra

Bréfið

Ágæti viðtakandi

Þér er hér með bent á að allar aðgerðir til að stuðla að stofnun, breytingum, framlagningu og/eða samþykktum samninga eða sáttmála, sem reyna að sniðganga, grafa undan og/eða skaða fullveldi Íslenska lýðveldisins, eins og sett er fram í stjórnarskránni, og/eða framselja þessa heimild, að öllu leyti eða að hluta, til erlendra ríkja eða annarra aðila, eru brot á stjórnarskrá Íslands.

Þátttaka í slíkum aðgerðum er talin landráð og einstaklingar sem fundnir eru sekir um brot geta átt yfir höfði sér sektir eða fangelsi í samræmi við íslensk lög. Þú ert eindregið hvött/hvattur til að stöðva allar frekari tilraunir sem passa við þessa lýsingu með tilliti til breytinga á Alþjóða heilbrigðissáttmálanum skv. í 12. kafla, liðum 2., 3. og 5. sem lagðar eru til og/eða til skoðunar á 75. Alþjóðaþingi WHO í Genf dagana 22.-29. maí 2022.

Ennfremur er óskað eftir nákvæmum upplýsingum um hverjir þeir aðilar eru, sem hafa umboð frá forseta Íslands, samkvæmt 21.gr. 1.mgr. Stjórnarskrár lýðveldisins til að fara fyrir hönd Íslenska lýðveldisins á fund Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar dagana 22.-29. maí í Genf í Sviss, þar sem fulltrúar frá 192 þjóðum munu mæta.

Svar óskast innan 7 daga frá dagsetningu þessa bréfs.

Með kveðju

f.h. félaga í Mannréttindasamtökunum
MÍN LEIÐ — MITT VAL

Sigurlaug Þ. Ragnarsdóttir, formaður

VIÐAUKI I:

Bendum jafnframt á eftirfarandi greinar í almennum hegningarlögum:

X. kafli. Landráð.
86. gr.

Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ofbeldi, hótun um ofbeldi, annarri nauðung eða svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.

XI. kafli. Brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess.
98. gr.

Veki maður eða stýri uppreisn í þeim tilgangi að breyta stjórnskipun ríkisins, þá varðar það fangelsi, ekki skemur en 3 ár eða ævilangt.

Hver, sem tekur þátt í þess konar uppreisn, svo og hver sá, sem sekur gerist um verknað, er miðar að því að breyta stjórnskipuninni á ólögmætan hátt, skal sæta fangelsi allt að 8 árum.

 

rsz_img_20220516_211514_edit_138725155011123

 

 rsz_img_20220516_211949

 

rsz_img_20220516_212508

 

Frekari heimildir - sem fjölmiðlar fjalla lítið sem ekkert um!:

Ritari þessarar bloggfærslu er gjaldkeri í mannréttindasamtökunum Mín Leið - Mitt Val.


WHO hefur áform um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma næstu 10 ár!

Stærsta lygi heimssögunnar er þessi svokallaði Covid "heimsfaraldur", það var í raun aldrei neinn alvöru heimsfaraldur í gangi.

Gögn hafa verið fölsuð í stórum stíl og hömlurnar sem voru settar á mannkynið áttu aldrei neinn rétt á sér, voru í raun gjörsamlega tilhæfulausar, rétt eins og þessi svokölluðu "bóluefni" sem búið er að sprauta í stóran hluta mannkyns.

Að rústa 190 fullvalda ríkjum félagslega, pólitískt og efnahagslega getur ekki verið "lausn" á baráttu gegn vírusnum. En það var hin þvingaða "lausn" sem var innleidd í nokkrum áföngum alveg frá upphafi "heimsfaraldursins" í janúar 2020. Þetta var eyðilegging á lífum fólks og borgaralegum samfélögum.

Fölsuð vísindi voru notuð til að styðja við þessa skelfilegu áætlun, og lygunum var haldið uppi með gríðarlegum einhliða áróðursherferðum í fjölmiðlum um heim allan.

Hræðsluáróðurinn var linnulaus nánast allan sólarhringinn og fólk stöðugt minnt á "ógnina" í fjölmiðlunum.

Söguleg lokun (lockdown) þann 11. mars 2020 olli skelfilegum efnahagslegum og félagslegum glundroða um heim allan. Þetta var í raun efnahagslegt stríð, stríð gegn mannkyninu.

Þessi djöfullega áætlun hefur grafið undan fullveldi þjóðríkja, stuðlað að öldu gjaldþrota og gert fólk fátækt um heim allan og leitt til vaxandi skuldasöfnunar.

Sterkir innviðir alþjóðlegs kapítalisma, auðmagn, ásamt njósna- og herbúnaði eru drifkrafturinn.

Með því að nota háþróaða stafræna tækni og fjarskiptatækni, eru lokanirnar og skemmdarverkin á heimshagkerfinu fordæmalaus í heimssögunni.

Ítarleg heimild og meira efni

Blekkingarnar

Fólk hefur verið sent í þessi PCR próf í milljarðavís, þrátt fyrir að vitað sé að þau voru aldrei hönnuð til að greina hvort einhver sé veikur eða ekki.

"Vísindin" hafa breyst nánast dag frá degi, og undir því yfirskyni hafa verið réttlættar meiri hömlur á okkur.

Nærtækt dæmi er þegar sóttvarnalæknir okkar vísar í einhver "ný vísindi" eða "nýjar rannsóknir" án þess að sýna fram á nokkur gögn, og segist gjarnan vera að fylgja tilmælum WHO, sem vill svo til að er að sækjast eftir því að ná fullkomnum yfirráðum yfir heilbrigðismálum heimsins núna síðar í maí!

Sjá umfjöllun mína um það hér í færslunni Fljótum við sofandi að feigðarósi?

Heiðarlegir vísindamenn og læknar hafa verið smánaðir, bannaðir og útskúfaðir fyrir að "dirfast" að tala á móti þessari einu leyfðu umræðu um "bóluefnin" og "faraldurinn", á meðan menn eins og Dr. Fauci fá að eiga senuna alveg skuldlaust, rétt eins og Bill Gates sem er ekki læknir né hvað þá sérfræðingur í heimsfaröldrum.

Hér er eitt dæmi um Dr. Fauci og hér er annað.

Faraldurinn er notaður til að koma á alræði í heiminum!

0507

Í þessu einstaka 30 mínútna vídeói er dreginn fram hluti af atburðarrásinni mánuðina og árin fyrir "heimsfaraldurinn", þar á meðal klippur með sláandi ummælum ýmissa aðila. Horfið á það allt til enda.

Nokkrir punktar úr vídeóinu:

  • Árið 2017 fullyrti Fauci að upp kæmi óvæntur faraldur á næstu árum, og ekki bara hann, heldur líka hjónin Bill og Melinda Gates, forstjóri WHO, og fleiri.
  • Karl Bretaprins sem er virkur þátttakandi í áætlunum The World Economic Forum hótar fleiri faröldrum og hörmungum nema heimsbyggðin gangist undir endurræsinguna miklu, eða The Great Reset.
  • Hollenskur veirufræðingur hjá WHO segir þar vera 10 ára áætlun um áframhaldandi faraldra smitsjúkdóma.
  • Árið 2010 gaf Rockefeller stofnunin út "Scenarios for the future", eða einhvers konar atburðarás fyrir framtíðina, þar sem fjallað var um faraldur kórónuveiru, sem endaði með alheimseinræði, Operation Lock Step, "A world of tighter top-down government control and more authoritarian leadership, with limited innovation and growing citizen pushback".
  • Á árunum 2017 - 2018 var hundruðum milljóna Covid prófa dreift um allan heim - löngu fyrir "heimsfaraldurinn".
  • Mánuðum áður en "heimsfaraldurinn" skall á, var Fauci þegar tilbúinn með "bóluefni".
  • Mánuðum fyrir Covid ræddi pallborð nauðsyn alþjóðlegs truflandi atburðar til að gera heiminn reiðubúinn að samþykkja tilraunabóluefni.
  • Árið 2017 gaf John Hopkins háskólinn út framúrstefnulega framtíðarsýn um faraldur kórónuveiru.
  • Fjórum mánuðum fyrir Covid stóð Bill Gates fyrir Event 201, sem var æfing í viðbrögðum við kórónuveirufaraldri.
  • Fjórum mánuðum fyrir Covid ræddu Fauci og starfsmenn HHS um nauðsyn alheimsatburðar til að sprengja "kerfið" upp til þess að gera almenning viljugan til að þiggja mRNA tilraunabóluefni.
  • Fimm mánuðum fyrir Covid var gefin út handbók í Ástralíu um kórónuveirufaraldur.
  • Fimm mánuðum fyrir Covid fyrirskipaði WHO öllum ríkisstjórnum að undirbúa yfirvofandi heimsfaraldur kórónuveiru.
  • Sex mánuðum fyrir Covid kallaði The Global Vaccination Summit eftir öflugum eftirlitskerfum til að tryggja áframhaldandi bólusetningar á öllu mannkyninu.
  • Einu ári fyrir Covid þjálfaði evrópskur veirusérfræðingur alþjóðlega leiðtoga í því hvernig ætti að undirbúa almenning fyrir heimsfaraldur, þar sem hann kenndi þeim m.a. hvernig ætti að skapa ótta með fölsuðum dánartölum til að fá fólk til að bólusetja sig.
  • Hvernig fólk er búið undir framtíðar atburði í gegnum afþreyingarefni til að fá það til að meðtaka það sem sé um það bil að gerast. Má þar nefna sjónvarpsþætti og bíómyndir sem lýsa nákvæmlega því sem er að gerast í dag.
  • Þúsundir lækna og vísindamanna um allan heim segja að þessi faraldur hafi verið planaður í þeim tilgangi að ná valdi yfir heiminum og fækka mannkyninu.

Það er ekki lengur hægt að kalla allt þetta samsæriskenningar, sannanirnar blasa við þeim sem nenna að leita sér upplýsinga og staðreynda - hjá öllum öðrum en þeim sem hafa viðhaft og stutt þennan skelfilega hræðslu- og bólusetningaráróður í rúm tvö ár núna.

Hér á landi mætti nefna þríeykið með Þórólf fremstan í fararbroddi, Kára Stefánsson, Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, og fleiri, með dyggum stuðningi flestra fjölmiðla. Þetta fólk eru beinir þátttakendur í þessari samræmdu alþjóðlegu aðför gegn þjóð sinni, og í raun heimsbyggðinni allri.

 

 

 

 

 

 


Fljótum við sofandi að feigðarósi?

Á meðan þjóðin rífst um Íslandsbankasöluna og önnur mál, eru aðrir og miklu skelfilegri atburðir í vændum, sem flestir fjölmiðlar steinþegja yfir.

Bill Gates hefur tilkynnt um stofnun heimsfaraldursteymis sem mun fylgjast með fullvalda ríkjum og ákveða hvenær þau þurfa að stöðva borgaraleg réttindi fólks, komi upp nýr heimsfaraldur.

Hann segir meðal annars:

Við þurfum samtök sérfræðinga sem eru að fullu fjármögnuð og reiðubúin að koma á samræmdum viðbrögðum við hættulegum faraldri hvenær sem er.

Í bók minni legg ég til að við köllum þennan hóp GERM - Global Epidemic Response and Mobilization - teymið.

Sjúkdómseftirlitssérfræðingar samtakanna myndu leita að hugsanlega hættulegum faröldrum.

Þegar þeir hafa fundið einn slíkan, ætti GERM að hafa getu til að lýsa yfir faraldri og vinna með innlendum stjórnvöldum og Alþjóðabankanum að því að safna fjármagni til að bregðast við honum mjög fljótt.

Sérfræðingar í vöruþróun myndu ráðleggja stjórnvöldum og fyrirtækjum um forgangslyf og bóluefni.

Ennfremur segir hann að teymið myndi með ýmsum löndum samræma ákvarðanatöku um hvernig og hvenær eigi að innleiða lokun landamæra og mæla með grímunotkun.

Samkvæmt honum mun alþjóðlegt teymið samanstanda af 3.000 sjúkdómssérfræðingum sem heyra undir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) og mun fá um 1 milljarð dollara á ári í fjárframlög.

Sjá meira hér.

Við munum fá annan faraldur segir hann

We’ll have another pandemic. It will be a different pathogen next time, Gates said.

Sjá hér og hér.

Saga "mannvinarins" Bill Gates er kolsvört, eins og ég fór aðeins yfir hér í fyrrahaust.

Hans fjárhagslegu tengingar eru víða, hann veitir gríðarlegum fjármunum til fjölmiðla, háskóla, lyfjafyrirtækja, sjúkrahúsa, vísindamanna, og WHO, svo fátt eitt sé nefnt, og hver og einn getur getið sér til um ástæðurnar að baki þessarar "gjafmildi" hans.

Á sama tíma - er tímasetningin tilviljun?

Það fer ekki mikið fyrir því í fréttunum að stefnt er að afnámi þjóðlegs fullveldis í heilbrigðismálum á komandi þingi WHO 22. - 28. maí næstkomandi!

Þó hefur Gústaf Skúlason gert þessu frábær skil á Útvarpi Sögu, og þetta er skyldulesning!

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mun á komandi Alþjóðaheilbrigðisþingi í lok maí gera tilraun til valdatöku yfir þjóðum heims með tilllögu um ein miðstýrð alþjóðaviðbrögð við komandi heimsfaröldrum í framtíðinni. Verði tillagan samþykkt og henni framfylgt, þá munu þjóðir heims ekki lengur hafa sjálfsforræði yfir eigin viðbrögðum við sjúkdómum sem skilgreinast sem heimsfaraldur.

Hvað mun þetta þýða?

Þetta mun meðal annars þýða að þessir vitfirrtu glæpamenn muni hafa fullt leyfi til að svipta okkur frelsinu aftur, loka okkur inni, skella öllu í lás, neyða okkur til að láta sprauta í okkur einhverjum "bóluefnum", og neyða okkur til að nota grímur, nánast þegar þeim dettur í hug.

Þetta mun líka þýða að þeim leyfist að setja hömlur á okkur undir hvaða yfirskini sem þeim dettur í hug, í nafni "alþjóðaheilbrigðis", til dæmis setja á okkur "loftslags" lokanir!

Ætla íslensk stjórnvöld að skrifa undir þennan sáttmála "fyrir hönd" þjóðar sinnar?

Ef þau gera það, í hverra þágu eru þau að starfa? Ekki þjóðarinnar sem kaus þau til starfa fyrir okkar hönd, svo mikið er víst!

Já, við fljótum svo sannarlega að feigðarósi núna

Þegar mannleg samfélög tapa frelsi sínu, þá er það venjulega ekki vegna þess að harðstjórar hafi tekið það af þeim, heldur vegna þess að fólk lætur það af hendi af fúsum og frjálsum vilja til að fá vernd gegn einhverri utanaðkomandi ógn sem því er sagt að steðji að.

Covid "heimsfaraldurinn" var bara byrjunin og eftirleikurinn ætlar að verða glóbalistunum auðveldur, nú þegar heimsbyggðin er búin að sýna þeim fram á að hversu auðvelt er að fá fólk til að trúa hverju sem er, og hlýða öllu því sem því er sagt að gera.

Kannski verður okkur bara slétt sama ef framtíðaráætlanir þessa "herramanns" fá að rætast.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband