Bloggfærslur mánaðarins, júní 2022

Ungu hjörtun - nítjánda vídeóið er komið út.

Á undanförnum mánuðum hafa verið gerðar seríur af vídeóum um ungt fólk, allt niður í ung börn sem hafa dáið skyndilega úr hjartaáföllum og heilablóðföllum eftir að hafa verið sprautuð með þessum svokölluðu "bóluefnum", og eru þær nú orðnar nítján talsins.

Hér má finna þessi vídeó undir heitinu Young Hearts, sem birta myndir af og fréttir um ungt fólk sem hefur dáið skyndilega eða veikst alvarlega eftir þessi "góðu og öruggu efni".

Hefur einhver séð slíkar fréttir eða umfjallanir í meginstraumsfjölmiðlunum hér á landi?

0628c

Hér sjáið þið nýjasta vídeóið.

Efni um "Sudden Adult Death Syndrome" má sjá hér, hérhér og hér.

Hér á Íslandi

Hér á landi fer engin umræða fram um aukaverkanir eða andlát í kjölfar sprautanna, þrátt fyrir að búið sé að tilkynna um 6.176 aukaverkanir, þar af 300 alvarlegar og/eða lífsógnandi, og þar af 36 andlát.

Allt er þaggað niður, og engir spurðir krefjandi spurninga.

Ef þetta er borið saman við hliðstæðar tilkynningar erlendis frá, þá má gera ráð fyrir því að aðeins hluti aukaverkana sé tilkynntur.

Miðað við þennan skelfilega fjölda tilkynntra aukaverkana má teljast vægast sagt undarlegt að ekki sé búið að stöðva þessar "bólusetningar" fyrir lifandis löngu hér á landi, við hljótum öll að geta verið sammála um það.

Við getum ekki horft fram hjá því að það sem er að koma fyrir sprautað fólk í öðrum löndum kemur líka fyrir sprautað fólk hér á landi, enda sömu efnin að stórum hluta til notuð.

Mest þó Pfizer sem hefur valdið flestum aukaverkunum, 2.763, þar af 153 alvarlegum og 27 dauðsföllum.

Hér fyrir neðan má sjá töflur með sundurliðun helstu tilkynntra aukaverkana hér á Íslandi.

Smellið á myndina til að stækka hana.

0629c

 

Klappstýrur "bóluefnanna"

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Fréttablaðið 21. júní 2021

Þórólfur Guðnason

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við. (Áherslan er mín)

Fréttablaðið 21. júní 2021 

Þessi tvö hafa verið andlit bólusetningarherferðarinnar s.l. eitt ár eða svo, og voru bæði kosin fólk ársins um síðustu áramót.

Þar að auki fékk Ragnheiður riddarakross fyrir störf sín í þágu heilbrigðisþjónustu og baráttunni gegn Covid-19 þann 17. júní s.l.

Þau hafa bæði haft nægan tíma til að draga þessi orð sín tilbaka á þessu ári eftir að óhrekjandi sannanir um hið gagnstæða eru löngu komnar í ljós - en hafa ekki gert það, heldur þvert á móti.

Farið er að bjóða upp á fjórðu sprautuna, og vill Ragnheiður endilega fá fólk í þá fjórðu þótt það hafi nýlega fengið Covid.

Hafi fólk fengið Covid þrátt fyrir þrjár sprautur - jafnvel oftar en einu sinni, er það þá ekki falleinkunn fyrir þessi svokölluðu "bóluefni"? Hvað vörn veitir þá fjórða sprautan sem sú þriðja gerði greinilega ekki - frekar en fyrstu tvær?

Bláköld lygi Ragnheiðar um nauðsyn örvunarskammts til að ferðast

Tölu­vert er um að fólk í öðrum ald­urs­hóp­um komi í bólu­setn­ingu. „Það er kom­inn ferðahug­ur í fólk og þá átt­ar það sig á því að það vant­ar örvun­ar­skammt­inn til að kom­ast til annarra landa. (Áherslan er mín)

Allt til að lokka fólk í fleiri sprautur!

Stjórnvöld í Svíþjóð eru þegar farin að bjóða upp á þá fimmtu, eru einhverjir hér á landi tilbúnir í fleiri sprautur, svo þá sjöttu, sjöundu og koll af kolli?

Af því að Þórólfur og Ragnheiður muni segja það nauðsynlegt?

Það er óskiljanlegt að þjóðin sem stærir sig af því á hátíðarstundum að vera svo menntuð og vel lesin, trúi gagnrýnislaust flestu því sem henni er sagt og hlýði öllu sem henni er sagt að gera.

En verndið börnin áður en það verður of seint

Í guðanna bænum, kynnið ykkur þessi "bóluefni" áður en Þórólfur og Ragnheiður vilja fara að sprauta litlu börnin ykkar líka!

 

 

 

 


Er þetta ekki falleinkunn fyrir þessi svokölluðu "bóluefni"?

Nú birtast hver fréttin á fætur annarri um sjúklinga sem liggja inni á Landspítalanum með eða vegna veirunnar sem okkur hefur verið kennt að óttast meira en lífið sjálft, og að alvarleg veikindi séu að aukast.

Nei takk, engar sprautur í minn handlegg

Á vef landlæknis kemur fram að flestir þeirra sem hafa verið að greinast síðustu daga hafi ekki fengið Covid áður, en endursmit eru undir tíu prósent af daglegum smitum.

Flestir þeirra sem liggja inni eru eldri en sjötíu ára en alvarleg einkenni sjást aðallega hjá þeim sem hafa fengið þrjár eða færri bólusetningar.

Almenningur, sérstaklega þeir sem eru áttatíu ára eða eldri eða með undirliggjandi sjúkdóma, er hvattur til þess að gæta að sínum sóttvörnum. Þeir sem ekki eru bólusettir eru þá hvattir til þess að þiggja bólusetningu og þeir sem eru yfir áttatíu ára eða á hjúkrunarheimili til þess að þiggja fjórða skammt bólusetningarinnar. (Áherslan er mín)

Glórulaus hræðsluáróður Þórólfs

Sóttvarnalæknir segir að margir þeirra sem nú greinist með kórónuveiruna hafi ekki fengið fjórða skammt bóluefnis og það kunni að vera orsök fjölgunar sjúklinga með alvarleg veikindi. Hann sér ekki fyrir sér að koma aftur á takmörkunum vegna fjölgunar smitaðra. (Áherslan er mín)

Ef ein, tvær, eða þrjár sprautur dugðu ekki, hvers vegna er þá verið að hvetja fólk í þá fjórðu?

Sjáiði lygina hjá honum frá því fyrir ári síðan, dettur engum fréttamanni í hug að bera þetta upp á hann og spyrja hann hvernig á því standi að nú sé aukning á alvarlegum veikindum vegna Covid - þrátt fyrir allar sprauturnar?

Þórólfur Guðnason í viðtali við Fréttablaðið 21. júní

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við. (Áherslan er mín)

Ekki dugðu "bólusetningarnar" þessum tveim ungu konum

Bólusett Inga með Covid í þriðja skiptið

Inga finn­ur fyr­ir kve­f­ein­kenn­um og er henn­ar upp­lif­un svipuð því þegar hún veikt­ist af Covid-19 í annað skiptið. Í fyrsta skiptið var hún ekki bólu­sett og því voru þau veik­indi tals­vert meira íþyngj­andi. 

Mbl.is 16. júní 2022

Bólusett Ingibjörg Dögg með Covid í annað sinn: „Hélt í vonina um að þetta væri misskilningur“

„Ég get víst ekki afneitað þessu lengur, ég er komin með Covid í annað sinn,“ skrifar Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar, sem sýktist af kórónuveirunni í annað sinn. Ingibjörg skrifar langan pistil um málið og útskýrir það hvernig það gat gerst að hún hefði veikst í annað sinn og það meira að segja tvíbólusett.

Mannlif.is 18. desember 2021

Lygar á lygar ofan um gæði, virkni og öryggi "bóluefnanna" - örfá dæmi

Virkt og öruggt bóluefni - Björn Rúnar á Bylgjunni
Læknafélag Íslands 1. desember 2020

Ingileif: Bóluefni Astra Zeneka veitir mjög góða vernd
Rúv.is 25. febrúar 2021

Ingileif prófessor í ónæmisfræði: "Engar alvarlegar aukaverkanir komu fram í rannsóknum" (um bólusetningar á börnum)
Mannlif.is 5. janúar 2022

Bóluefni Janssen með 66% virkni
Fréttablaðið 29. janúar 2021

Þórólfur: Samfélagslegt ónæmi að nást með bólusetningum
Fréttablaðið 21. júní 2021

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.
Fréttablaðið 21. júní 2021

Það mikilvægasta sem við getum gert til að halda samfélaginu gangandi og lágmarka veikindi sé það sé góð þátttaka í þessum bólusetningum sem nú eru í fullum gangi, að mati Magnúsar Gottfreðssonar læknis.
Bloggfærsla mín 17. desember 2021

Never forget they are safe and effective.
Vídeó með rödd Anthony Fauci undir

Skoðum aukaverkanirnar eftir þessi "góðu og öruggu bóluefni"

Lyfjastofnun

Hvað er alvarleg aukaverkun?

Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum. Einnig eru þær tilkynningar sem taldar eru klínískt mikilvægar flokkaðar sem alvarlegar.

Eins og sjá má af myndunum hér að ofan er búið að tilkynna um 6.173 aukaverkanir sem er fjölgun um fjórar á þrettán daga tímabili, og þar af eru þrjár alvarlegar!

Hvar eru rannsóknarblaðamenn þessa lands? Eru þeir múlbundnir?

Ekki hafa birst mörg viðtöl við eða margar frásagnir um fólk sem hefur misst heilsuna eða látist eftir sprauturnar hér á landi, en hér eru nokkrar erlendar.

Við skulum alveg gera okkur grein fyrir því að það sem hefur komið fyrir "bólusett" fólk í öðrum löndum, hefur líka komið fyrir Íslendinga.

Hér má finna röð vídeóa undir heitinu Young Hearts, sem fjallar um ungt fólk sem hefur dáið skyndilega eða veikst alvarlega eftir sprauturnar. 

Engir íslenskir meginstraumsfjölmiðlar fjalla um þetta

En margir erlendir fjölmiðlar sem falla ekki undir þá skilgreiningu gera það af mikilli eljusemi og vandvirkni.

Staðreyndirnar um þessi svokölluðu bóluefni eru skelfilegar, þær valda ótímabærum andlátum, krabbameinum, fósturlátum, andvana fæðingum, og mörgum öðrum óvæntum sjúkdómum hjá áður heilbrigðu fólki.

Ég veit um fjórar konur sem glíma núna við illvíg krabbamein, tvær ungar manneskjur undir þrítugu sem eru allt í einu komnar með MS sjúkdóminn, og um nokkra á besta aldri, jafnvel ungt fólk, sem hefur dáið skyndidauða án nokkurs undanfara, og að minnsta kosti fjórar andvana fæðingar á örfáum mánuðum.

Það er ekkert normalt við þetta!

Það eru líka merki um að sprauturnar skaði ónæmiskerfi fólks (sjá neðsta vídeóið), því fleiri sem eru sprautaðir, því fleiri eru Covid tilfellin.

Gæti það verið skýringin á þessari "bylgju" sem hugsanlega er að koma núna, hjá þjóð sem hefur eitt hæsta bólusetningarhlutfall í heiminum?

Gefið ykkur endilega tíma til að lesa þessar greinar:

Nennið þið þessu eina ferðina enn?

Grímuskyldu, sóttkvíum, einangrunum, félagsforðunum, spritti, lokunum fyrirtækja, bönnum á ferðalögum, aflýsingu hátíða þar sem fólk kemur saman, og guð má vita hverju fleiru. Meira að segja hér er verið að segja okkur að ganga hægt um gleðinnar dyr í dag, 17. júní!

Og nú er búið að setja á grímuskyldu á Landspítalanum og takmarka heimsóknir.

Ætli næsta skrefið verði ekki að loka gamla þrí- eða fjórsprautaða fólkið inni í enn eitt skiptið?

... og svo koll af kolli, við þekkjum þetta öll.

Ballið er byrjað aftur gott fólk, spurningin er því hvort þið ætlið að falla fyrir þessu eina ferðina enn - og fara í fleiri sprautur?

Gerið samt eitt áður, kynnið ykkur hvað skaða og hörmungum þessi svokölluðu "bóluefni" hafa valdið um allan heim.

 

 

 

 

 

 

 


Faraldrar á færibandi.

Ekki er nóg með að nú er víst búið að greina fyrstu tilfellin af apabólu hér á landi, heldur er víst nýtt kórónuveiruafbrigði í vexti í Evrópu, sem er svo sniðugt að það kemst fram hjá bólusetningu og fyrra smiti.

Þetta kom fram í pistli hjá Kristjáni Kristjánssyni á DV í vikunni, en hann er manna duglegastur að segja okkur frá alls konar nýjum veirum og ógnum, eins og sjá má dæmi um hér, hér og hér.

Er þá ekki betra að vera óbólusettur í dag?

Sebastian Müller, þýskur vísindamaður, segir að afbrigðið geti orsakað sumarbylgju í Þýskalandi og nærliggjandi löndum.

Niðurstöður bandarískrar rannsóknar benda til að afbrigðið sé meira smitandi en önnur og betra í að smita þá sem hafa náð ónæmi með bólusetningu eða fyrra smiti.

Ekki vísar hann í neinar heimildir máli sínu til stuðnings frekar en fyrri daginn, ekki frekar en sóttvarnalæknir okkar þegar hann hefur í ljósi "nýrra rannsókna" ítrekað sett á okkur grímuskyldu og fleiri hömlur.

Hrollvekjandi ný mynd af apabólu - eða hvað?

0528b

Önnur mynd

0528c
Álíka blekkingar voru viðhafðar í síðasta "heimsfaraldri", þar sem gamlar myndir voru endurnýttar eins og núna, "fárveikar" dúkkur í sjúkrarúmum, leikarar sem léku ýmis hlutverk, og myndir frá "yfirfullum sjúkrahúsum" voru birtar í mörgum löndum, og áttu allar að vera frá viðkomandi landi.

Ég skrifaði tvö blogg um svona blekkingar fyrir rúmu ári síðar, sjá hér og hér.

Bill Gates

Hann hefur verið merkilega lunkinn við að spá fyrir um komandi faraldra.

“It’ll take probably about a billion a year for a pandemic Task Force at the WHO level, which is doing the surveillance and actually doing what I call ‘germ games’ where you practice… You say, OK, what if a bioterrorist brought smallpox to 10 airports? You know, how would the world respond to that?” Bill Gates Sky News, November 6, 2021.

Heimild.

Anthony Fauci

Ekki síðri spámaður er Anthony Fauci, sem svo heppilega vill til að lét fjármagna rannsóknir á meðhöndlun veikinda vegna apbólu á síðasta ári.

The National Institute of Allergy and Infectious Diseases (NIAID), directed by Dr. Anthony Fauci, last year paid $9.8 million to government researchers to test a monkeypox treatment, the National Pulse reported.

Heimild.

Eru það bara tilviljanir að það hafa verið haldnar æfingar í viðbrögðum vegna hugsanlegra faraldra kórónuveiru og apabólu?

Apabólan fylgir Covid handbókinni skref fyrir skref

Monkeypox is back in the headlines as of yesterday, back to work after a short break.

It burst onto the front pages, with concomitant BIG RED NUMBERS and daily case updates a couple of weeks ago, and then went quiet. The press pretty much stopped talking about it.

…until they started again.

Það má alveg taka undir þetta:

Anybody actually taking any of this seriously after the last two years of Covid hysteria needs a major reality check.

Heimild.

Nú mælir hið bandaríska CDC (The Center for Disease Control and Prevention) með því að starfsfólk rannsóknarstofa og heilbrigðisstarfsmenn sem gætu komist í snertingu við apabóluvírusinn verði bólusett gegn honum.

PCR prófin eru tilbúin

In response to the current monkeypox outbreaks, Roche, a Swiss pharmaceutical company and its subsidiary TIB Molbiol, have developed a series of three test kits that utilize a quantitative Polymerase Chain Reaction (qPCR) technology. The tests kits are known as the LightMix® Modular Virus kits.

Heimild.

Þeir sem hafa kynnt sér þessi PCR próf vita að þau voru aldrei hönnuð til að greina hvort maður væri veikur eða ekki.

Árið 2020 var keyrður upp "heimsfaraldur" með fölskum jákvæðum niðurstöðum sýna með þessum prófum. Því er ekki óraunhæft að geta sér til um að það sama muni eiga sér stað á næstunni, enda er WHO búið að spá fyrir um röð faraldra næstu 10 árin.

Við skulum því alveg búast við að á næstu mánuðum verði lýst yfir "neyðarástandi" vegna apabólunnar eða þessa nýja "afbrigðis" kórónuveirunnar, með tilheyrandi grímuskyldu og öllum þeim skerðingum sem við höfum þurft að þola undanfarin tvö ár.

Og eina lausnin verður sem fyrr, sprautur með einhverjum efnum sem við höfum ekki hugmynd um hvað innihalda, né hvaða skaða þau geta valdið.

Mun þessi hræðsluáróður nokkurn tímann hætta?

Ætlum við að sætta okkur við hugsanlega verði heiminum skellt í lás aftur og aftur í framtíðinni út af einhverjum "faröldrum"?

Ekki nema við viljum áfram vera hrædd við utanaðkomandi ógnir sem fjölmiðlarnir og Þórólfur eru duglegir að segja okkur að séu yfirvofandi.

Og ekki nema við rísum öll upp og segjum hingað og ekki lengra.

Það er löngu kominn tími til að fólk fari að kynna sér þau öfl sem eru núna á góðri leið með að svipta okkur frelsinu og öllu sem okkur er kært.

En þið munið ekki finna það á RÚV.

 

 

 

 

 


"Stóri bróðir" brýnir klærnar í Noregi og Bretlandi!

Nú vill Noregur fá að fylgjast með matarkaupum landa sinna, og hvað þýðir það? Það þýðir einfaldlega að "stóra bróður" samfélagið er sífellt að færast nær og nær.

1984

Þetta er raunverulega að gerast, Noregur stefnir núna í átt að algjöru stjórnunarsamfélagi þar sem ríkið vill vita allt sem þú gerir.

Noregur er leiðandi land þegar kemur að stafrænum skílríkjum, sem eru nánast nauðsynleg til þess að geta lifað og starfað, og til þess að geta skráð sig inn í netbanka og fleiri síður.

Nú er orðið ljóst að Noregur vill ennþá meiri stjórn yfir borgurum sínum. Hagstofan krefst þess núna að fá upplýsingar um matarinnkaup fólks og vill fá að fylgjast með öllum greiðslum með kortum.

Þeir komu á fót "þjóðskrá" í Noregi eftir seinni heimsstyrjöldina, þar sem fólk fékk einstaka kennitölu sem kallast "fæðingarnúmer".

Þessi skrifstofa veit nú þegar hvar fólk býr og hverjar tekjur þess eru, en núna vill hún fylgjast með hverju einasta matvæli sem það kaupir í matvöruversluninni.

Í raun vill norska ríkið núna vita hvað fólk fékk sér í hádegismat!

Þetta er of langt gengið!

Þessi nýjasta ráðstöfun gengur í raun ansi langt í að fara í áttina að stjórnunarsamfélagi. Þeir hafa krafist þess að nánast allar stóru matvöruverslanakeðjurnar í Noregi deili kvittunum viðskiptavina sinna með ríkinu.

Þá hafa þeir krafist þess að greiðslukortamiðlun sem heitir Nets deili ítarlegum upplýsingum til ríkisins um öll viðskipti. Um 80% kortagreiðslna í matvöruverslunum í Noregi fara í gegnum þetta fyrirtæki.

Þetta gerir Hagstofunni kleift að tengja saman greiðslur og kvittanir yfir 70% daglegra matarinnkaupa.

Gerið þið ykkur grein fyrir því að Noregur ætlar sér að tengja saman greiðslur með kortum og kvittunum úr matvöruverslunum til að finna nákvæmlega út úr því hvernig mat fólk kaupir, og hver kaupir hann?

Með öðrum orðum, Noregur ætlar að fylgjast nákvæmlega með hvers konar mat fólk kaupir, hér er um að ræða nýtt eftirlitsstig ríkisins á fólki!

Ríkið mun vita hvað Norðmenn fengu sér í morgunmat, hádegismat, kvöldmat, hvort þeir fengu sér gos með matnum, hvort þeir fengu sér svínakjöt, steik eða kjúkling - eða eitthvað annað, ríkið mun fylgjast með öllu sem þeir gera.

Ríkið ætlar sér að fylgjast með og rekja allar greiðslur í Noregi, og hér er um að ræða gríðarlegt magn af gögnum. Hagstofan ætlar að safna 2,4 milljónum kvittana á hverjum degi, og 1,6 milljörðum kortafærslna á hverju ári.

Hvers konar greiðslugögn er um að ræða hér?

Dagsetningu viðskipta
Stöðu tegundar færslu
Kortaþjónustu
Stofnunarnúmer fyrirtækisins þar sem kortið var notað
Nafn fyrirtækis þar sem kortið var notað
Nafn kortanotanda, og bankareikningsnúmer
Upphæð greidda fyrir hluti
Heildarupphæð greidda

Þessi gögn verða samkeyrð kvittunum frá versluninni og notuð til að finna nákvæmlega út hvað fólk keypti, sem er skelfileg tilhugsun!

Svo norska ríkið ætlar ekki bara að safna öllum upplýsingum um allar kortafærslur og para þær við kvittanir frá verslunum til að komast nákvæmlega að því hvað fólk kaupir, heldur mun það geyma þessi gögn um óákveðinn tíma.

Norska ríkið vill vita ALLT um þegna sína!

Heimild

Af sama meiði í Bretlandi

Verslunarkeðjan Tesco í Bretlandi hefur kynnt til leiks nýtt greiðslukerfi snemma á næsta ári, að hún muni ekki lengur taka á móti greiðslum með kortum eða peningum, heldur "Biometric payments", sem er skönnun lófa eða andlits, og sú skönnun er þá væntanlega tengd við bankareikninga fólks.

Gert er ráð fyrir að fleiri verslanakeðjur muni taka upp sams konar greiðslufyrirkomulag.

Þannig mun breska ríkið geta safnað persónugreinanlegum upplýsingum um þegna sína, rétt eins og það norska!

Við skulum ekki halda að atburðir síðustu rúmlega tveggja ára séu einhverjar tilviljanir.

Covid "heimsfaraldurinn" var bara byrjunin og eftirleikurinn ætlar að verða glóbalistunum auðveldur, nú þegar heimsbyggðin er búin að sýna þeim fram á að hversu auðvelt er að fá fólk til að trúa hverju sem er, og hlýða öllu því sem því er sagt að gera.

Það er búið að kenna okkur að vera sífellt hrædd við einhverjar utanaðkomandi ógnir, og nú er nýr sjúkdómur farinn að greinast í einhverjum löndum, líklega númer tvö af þeim faröldrum sem WHO er búið að boða næstu 10 ár.

Einu lausnirnar gegn nýjum "faröldrum" eru víst enn fleiri sprautur ....

Bókin 1984 eftir George Orwell

Hún gerist árið 1984 í Eyjaálfu, sem er eitt af þrem stöðugt stríðandi alræðisríkjum. Hin tvö eru Evrasía og Austur-Asía.

Eyjaálfu er stjórnað af allsráðandi flokki sem hefur heilaþvegið þjóð sína til algjörrar undirgefni og hlýðni gagnvart leiðtoga sínum, Stóra bróður.

Sífellt fleiri benda á að þessi bók sé i raun að lýsa því sem er að eiga sér stað í heiminum í dag, þar sem stefnt er að útrýmingu pappírspeninga og gera allt rafrænt, og að setja einhverja kubba í líkama okkar til að setja á alræðis eftirlit með okkur og í raun svipta okkur öllu, enda eigum við víst ekkert að eiga árið 2030, og vera hamingjusöm.

Þetta stutta vídeó er úrdráttur úr bókinni, sem mætti alveg endurskíra úr 1984, í 2020.

 

 

 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband