Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2022

Hvað munu margir aðrir líka láta blekkja sig í fjórðu sprautuna?

Enn og aftur stendur til að fara að "bólusetja" fólk, og nú með fjórða skammtinum. Samkvæmt frétt á RÚV hafa 25 þúsund nú þegar fengið fjórðu sprautuna, sem mér þykir alveg ótrúlegur fjöldi!

Það væri fróðlegt ef sóttvarnayfirvöld könnuðu heilsufar þessa fólks núna, og hvort það hefði fengið pestina, jafnvel oftar en einu sinni, þrátt fyrir allar sprauturnar.

En við vitum að það mun aldrei gerast.

Arftaki fráfarandi sóttvarnalæknis sem heitir Guðrún Aspelund virðist hafa fengið góða þjálfun og undirbúning frá forvera sínum, og varar við nýrri bylgju á næstunni.

Hún hvetur ónæmisbælt fólk og aðra, meira að segja á öllum aldri eldri en fimm ára fái fjórða skammtinn, enda hafi það sýnt sig að þessi bóluefni sem eru til veiti góða vörn gegn alvarlegum veikindum og dauðsföllum!

Og já, þetta eru hennar eigin orð.

Raunveruleikinn

Ef maður hefur ekki lifað undir steini með bundið fyrir augu og eyru síðan "heimsfaraldurinn" skall á, þá ætti manni að vera löngu orðið ljóst hvaða skelfilegum skaða þessi sprautuefni geta valdið á heilsu fólks, og jafnvel drepið það.

Manni ætti líka að vera löngu orðið ljóst að það var aldrei neinn drápsfaraldur í gangi, og að það hefði aldrei átt að neyða okkur til að bera grímur, loka okkur inni, og skella heiminum í lás.

Ég hef lesið þúsundir frásagna fólks sem hefur orðið fyrir óafturkræfu heilsutjóni eftir sprauturnar, og frásagnir syrgjandi ættingja þeirra sem létust í kjölfarið. Margar tilvitnanir í það má finna í eldri bloggum mínum, eins og til dæmis þessu hér.

Ég fylgi í dag nokkrum Facebook hópum þar sem fólk tjáir sig um veikindi og dauða ættingja sinna og vina eftir sprauturnar.

Þeir heita Died Suddenly News, Died Suddenly and Unexpectedly in 2022, og Covid Vaccine Side Effects (Canada).

0301cÞað má spyrja sig hvers vegna svona grúppur séu stofnaðar. Væru þessi sprautuefni eins góð og örugg og okkur er talin trú um, þá væru þær ekki til, svo einfalt er það.

Þeim er lokað miskunnarlaust ef "bannorð" eins og Covid, vaccines, Pfizer o.s.frv. eru nefnd "of oft".

Vegna ritskoðunarinnar sem viðgengst í dag er oft reynt að fara framhjá því með því að nota önnur orð, eins og juice og quack(ed).

Dóu úr krabbameinum

Af handahófi valdi ég nokkra þræði sem fjalla um sprautað fólk sem lést úr krabbameinum í kjölfarið, úr grúppunni Died Suddenly News.

I just received bad news today. My brother in law got his test results and was diagnosed with stage 4 cancer. He pretty well has it all in his organs. The whole family followed the protocols set by the science experts. Since I didn't take the juice I cannot go visit him to say my final goodbye.

Þráðurinn

My husband had lung nodules since he was in the navy in 1969. Never a problem. He got quacked on August 21st 2021. He developed stage 4 lung cancer a few months after wards. He passed away May 3, 2022

Þráðurinn

Lost both my brothers just 8 weeks apart at beginning of this year. The eldest suddenly developed cancer and the youngest went to bed and did not wake up. That was in January and We are still waiting for his autopsy results.

Þráðurinn

My father in law got jacked 3 times. 9 months later cancer everywhere. Dead
6 months later.

Svör:

My dad too 😥 Suddenly diagnosed with Stage 4 lung cancer and died one month later. Was perfectly healthy 4mths prior to that because he had a routine chest xray. It hurts so much because I begged my parents not to get them

My aunt was diagnosed with cancer everywhere in her body and dies 9 DAYS later. Fully Quaked

My best friend died full of cancer in 4 organs, including stage FOUR lung Ca and diagnosis of early dementia in August 2021. She had never smoked and was about 68. I urged her NOT to get the juju but she would not listen. I saw her in May and June and she seemed OK then. To have such advanced Ca 2-3 months later is CRAY ZEE!!
Our rollout was around March - April 2021 IIRC. She and I were "eligible" in one of the early categories, due to age and other comorbidities. I held back, she rushed in....

Þráðurinn

Urðu bráðkvödd

Óhugnanlega margar fréttir hafa birst undanfarið í erlendum fjölmiðlum um fólk sem lést skyndilega. Stundum er sagt að viðkomandi hafi látist í svefni, hafi fengið hjartaáfall, heilablóðfall, eða að engar vísbendingar séu til um dánarorsökina.

Margt af þessu fólki var kornungt, allt niður í börn!

Nýlega skrifaði ég færslu um unga fólkið sem er að detta dautt niður, og aðra um kostulegar tilraunir til að fela hjartaáföllin eftir "bólusetningarnar".

Hér eru nokkrir þræðir úr grúppunni um sprautað fólk sem varð bráðkvatt:

My husband found his work colleague dead in the toilets at work age 37 massive heart attack! A lot of people I know are all starting to ask questions, but too late though as they’ve fell for it and have it in their bodies

Þráðurinn

Quacked 19 months ago. Ever since my health has been horrible. Too many issues to count. Sadly, my grandmother passed 2 days after her second quack from heart failure in early 2021. We need to get the word out. More quacks will be pushed this fall and winter.

Þráðurinn

leading mountain biker has died suddenly just two days after winning the Scottish championship. Rab Wardell, 37, died in his sleep of a suspected heart attack 48 hours after he won the elite men's title at the Scottish MTB XC Championships in Dumfries and Galloway at the weekend.

Þráðurinn

I have lost 2 family members to this venom. My 12 year old cousin, whom was a super athlete. Dropped dead while out running. Great aunt's heart quit 2 days after 2nd quack.

Þráðurinn

This group makes me see that I am not the crazy one. In the last few days, I have seen a previous co-worker’s 15 year old son pass of a “cardiac event” and a friend’s husband pass suddenly. Another friend has developed stage 4 colon cancer.

Þráðurinn

Týpískt dæmi um hversu búið er að heilaþvo fólk

A friend of mine recently had neurological problems after the third quack,just stated she was grateful for the fourth quack

Ég finn virkilega til með þeim sem létu blekkja sig í sprauturnar, en eru nú vaknaðir og búnir að sjá hvað búið er að gera þeim.

En hvers vegna rís þetta fólk ekki upp og heimtar svör, og kallar þá til ábyrgðar sem jafnvel urðu þess valdandi að þeir eru búnir að missa heilsuna fyrir lífstíð? Er skömmin of mikil?

Eða fólkið sem hefur skyndilega misst ástvini sína, jafnvel ungt fólk? Var það "bólusett"?

Ég finn líka til með fólkinu sem búið er að heilaþvo svo kyrfilega með linnulausum hræðsluáróðri, að það neitar að horfast í augu við staðreyndir, eins og þessi hér að ofan. Og fer svo í fjórðu sprautuna um leið og það fær sér hina árlegu flensusprautu.

En staðreyndirnar tala sínu máli, aukaverkanir eru hreint ekki sjaldgæfar eins og okkur hefur verið talin trú um, tilkynningar um þær eru komnar í hvorki meira né minna en tæplega 6.200 hér á landi.

Gleymum aldrei orðum Þórólfs og Ragnheiðar Óskar

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

„Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

Þessi tvö eru ekki þau einu sem eru búin að ljúga að þjóðinni um þessi "bóluefni", líka öll þau sem eru búin að halda þjóðinni í greipum óttans allan þennan tíma, og hræða stærstan hluta hennar í sprauturnar.

Það er búið að senda öllu þessu fólki, og öllum þingheimi ógrynni upplýsinga og sannana um skaðsemi þessara eiturefna, en viðbrögðin hafa ekki verið nein.

Þögnin og þöggunin er algjör.

Og þjóðin þegir líka.

0806

 

 

 

 

 


Skelfileg aukning krabbameina í heiminum eftir "bólusetningarnar" - hvernig er staðan á Íslandi?

Ég horfði nýlega á viðtal við lækni sem starfar í Svíþjóð. Hún er yfirlæknir meinafræðideildar í háskólanum í Lundi, og hefur starfað í því fagi síðastliðin 25 ár, þar af 18 ár með sérstaka áherslu á brjóstakrabbamein.

Hún hefur rannsakað þúsundir krufninga og sýna af brjóstakrabbameinum, og er þar af leiðandi komin með gríðarlega þekkingu á þróun og ferlum þessara meina.

En allt breyttist eftir að farið var að "bólusetja" fólk árið 2021.

Hún sagði meðal annars þetta:

  • Aldur - Meðalaldur sýnanna sem hún fékk lækkaði, með aukningu á fjölda sýna frá fólki á aldrinum 30-50.
  • Stærð – Það var áður óvenjulegt fyrir Dr. Kruger að finna æxli sem var 3 cm að stærð. Í þessu nýja umhverfi sér hún reglulega æxli sem eru 4 cm, 8 cm, 10 cm og einstaka sinnum 12 cm. 2 vikum áður fann hún 16 cm æxli sem fyllti heilt brjóst.
  • Mörg æxli – Dr. Kruger er farin að sjá fleiri tilfelli þar sem mörg æxli vaxa hjá sama sjúklingi, stundum jafnvel í báðum brjóstum. Hún fjallaði um 3 tilfelli á þriggja vikna tímabili þar sem sjúklingar voru með vaxandi æxli í mörgum líffærum. Einn var með æxli í brjósti, brisi og lungum innan nokkurra mánaða frá því að hann var bólusettur.
  • Endurupptaka - Það hefur verið fjölgun á sjúklingum sem hafa verið í bata vegna krabbameins í mörg ár, en fá skyndilega illvíga endurkomu þess stuttu eftir bólusetningu.

Turbo-Cancer - We Have a Problem

Viðtalið má finna hér, þar sem hún segir líka meðal annars frá áhugaleysi yfirvalda og kollega hennar á rannsóknum hennar á aukningu krabbameina eftir sprauturnar.

Hún endaði viðtalið á því að segja að hún hafi farið í læknisfræði til að hjálpa fólki, en nú líði henni eins og verið sé að drepa fólk fyrir augunum á henni og það sé ekkert sem hún geti gert.

Frekari heimildir um krabbamein eftir sprauturnar:

Stop the Shots!

Hér er ákall yfir 40 lækna um að stöðva þessar "bólusetningar".

Hvar eru íslensku læknarnir, er enginn nema Guðmundur Karl Snæbjörnsson (Kalli Snæ) sem þorir að tjá sig opinberlega um þessi svokölluðu "bóluefni" og allar aukaverkanirnar eftir þær sem eru núna orðnar um 6.200?

Eru íslenskir læknar blindir og heyrnarlausir - eða bara gungur?

Staðan hér á Íslandi?

Það hlýtur að blasa við að þar sem fólk var sprautað með sömu genabreytandi líftæknilyfjunum (sem eru ranglega kölluð bóluefni) hér á landi og annars staðar, að það hafi sömu afleiðingar fyrir marga hér á landi.

Ég veit um að minnsta kosti fjórar íslenskar konur sem eru að glíma við (brjósta)krabbamein núna, sumar við mjög illvíg. Eru þetta bara tómar tilviljanir, eins og hjá öllum sem létust hér á landi eftir sprauturnar?

Eru þær allar sprautaðar? Ég veit það ekki, en þykir það ekkert ólíklegt miðað við að stærstur hluti þjóðarinnar er tví- eða jafnvel þrísprautaður.

Ég hef að minnsta kosti aldrei áður vitað um svona margar manneskjur með krabbamein á sama tíma, allar vel undir sextugu.

Mun einhver íslenskur meinafræðingur eða læknir eins og Dr. Kruger stíga fram á næstunni og segja frá aukningu í krabbameinum, óútskýrðum skyndiandlátum, hjartaáföllum, heilablóðföllum, hjartavöðvabólgu, eða öðrum þekktum aukaverkunum eftir sprauturnar?

Því miður eru hverfandi líkur á því, hér á landi er allt þaggað niður, eða nánast afneitað.

Íslendingar sofa margir hverjir ennþá vært í faðmi fráfarandi sóttvarnalæknis sem ásamt fleirum dásömuðu "bóluefnin" og nörruðu stærsta hluta þjóðarinnar í sprauturnar, og það sem verra er, líka börn og unglinga.

Mér er fyrirmunað að skilja hvernig þetta fólk geti sofið á nóttunni.

 

 

 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband