Bloggfærslur mánaðarins, september 2022

Mun pödduát bjarga okkur út úr loftslagsvánni?

Nú virðist "heimsfaraldurinn" vera að renna skeið sitt á enda, en þá beinist áherslan meira að loftslagsvánni ógurlegu - sem ekki allir eru þó endilega sammála um að sé yfir höfuð til staðar.

Okkur er sagt að heimurinn sé nánast að renna út á tíma við að snúa þróuninni við.

Reyndar er það búið að vera reglulega í fréttunum í einhverja áratugi að við höfum bara einhvern X tíma til að bjarga jörðinni - en áfram skröltir hún þó enn blessunin.

Alls konar forríkir "sérfræðingar" fljúga á milli loftslagsráðstefna í einkaþotunum sínum, og undanfarin ár hefur sænsk unglingsstelpa slegist í hópinn til að mótmæla þessari skelfingu, og sannfæra okkur að við öll berum ábyrgð á því að heimurinn sé nánast að farast núna.

Nú eigum við að hætta að borða kjöt til að "bjarga heiminum"

borða pöddurVið étum víst allt of mikið af kjöti, og þessar síprumpandi beljur eru að gera út af við loftslagið að sögn.

Enda er verið að þvinga bændur í þúsundavís til að leggja niður búin sín og fella dýrin, í þágu loftslagsmálanna, eins og í Hollandi og víðar, og hollensk stjórnvöld vinna náið með The World Economic Forum (WEF) að "endurræsingu heimsins" alls.

Svo nú eru þeir komnir með skothelt ráð gegn loftslagsvandanum, við eigum að fara að éta pöddur í staðinn fyrir kjöt.

Hér fjalla þeir um 5 "rök" fyrir því að það að borða skordýr geti dregið úr loftslagsbreytingum.

Klaus Schwab stofnandi WEF og félagar hans í Davos klíkunni eru búnir að ákveða þetta fyrir okkar hönd (reyndar að okkur forspurðum), fyrir utan allt hitt sem þeir hafa planað fyrir okkur mannkynið - einnig að okkur forspurðum.

Og eru því miður á nokkuð góðri leið með að ná að framkvæma áætlanir sínar, enda hafa þær verið lengi í undirbúningi.

"Umhverfisvænir" ástralskir grunnskólar

Yfir 1.000 skólar í Ástralíu eru farnir að gefa börnunum "umhverfisvænar" flögur sem eru framleiddar úr "ætum pöddum", sjá hér, hér og hér.

Force-feed the population with insects and bugs930c

A teacher from one of the 1,000 Australian schools feeding kids chips made out of powdered crickets asks, ‘Do crickets taste good?’ The student nods and the teacher adds, ‘Yeah. Let’s eat some more crickets…!’

Innræting eða heilaþvottur - nema hvort tveggja sé?

Breskur grunnskóli býður upp á pöddupizzu

insect pizza ingredientsForeldrar nemendanna fengu nýlega sent bréf þar sem þeir voru beðnir um að samþykkja að börnunum yrði gefnar pöddupizzur að borða, en í einhverjum hönnunaráfanga eiga börnin að stúdera próteinrík matvæli.

Þar á að hanna næringarríkan og próteinríkan pizzu-líkan mat sem gæti hjálpað einhverjum að halda lífi ef þau byggju í frumskóginum.

Enda flytjast mjög mörg þeirra í frumskóginn....


Girnileg pizza, ekki satt?

Insect pizza

Breska vefsíðan HugoTalks.com er yfirleitt vel með puttann á púlsinum og birtir reglulega vídeó um það sem er að gerast í heiminum í dag, og er sjaldan eða aldrei fjallað um í meginstraumsfjölmiðlunum.

Þar fjallaði Hugo nýlega um þessar pöddupizzur fyrir börnin, og birti líka vídeó 31. maí - Scientists plan to feed insects to primary schools um þetta pödduát sem á að innræta börnunum þessa hugmynd, svo þau geti haldið innrætingunni áfram til foreldra sinna.

Úrvalið af pöddumat eykst

0927h

Markaðir í Evrópu bjóða núna upp á pödduborgara, en ætli þeir séu líklegir til að rjúka út úr hillunum?

Einnig er svo lítið ber á farið að lauma "skordýrahveiti" og öðru innihaldi sem búið er til úr skordýrum í vörur sem eru merktar sem "sjálfbærar" og "næringarríkar".

Ekki eru allir sammála Klaus Schwab og félögum í WEF um að pödduát sé hollt fyrir fólk, og einhverjir vilja meina að það sé stórhættulegt vegna efnis í pöddunum sem aðeins fuglar geta melt.

Það væri kannski ekki vitlaust að fara að lesa betur innihaldslýsingarnar á þeim matvælum sem maður ætlar að kaupa.

Djúpsteiktar tarantúlur með mjölormastöppu í matinn?

Angelina Jolie eating a tarantulaStórstjörnur hafa erlendis verið fengnar til að kynna hugmyndina um pödduát fyrir fólki, og gera það að aðlaðandi tilhugsun.

Á myndinni hérna til vinstri má sjá Angelinu Jolie gæða sér á tarantúlu, og hér má sjá leikkonuna heimsfrægu Nicole Kidman kjamsa á gómsætum pöddum.

Fleiri vídeó má finna á netinu ef fólk hefur áhuga.

En hvernig er best að sannfæra fólk um að láta ótrúlegustu hluti yfir sig ganga?

Problem - reaction - solution taktíkin

Kynnt er til sögunnar einhver yfirvofandi ógn og svo dynja fréttirnar á okkur nánast allan sólarhringinn um hættuna af henni. Við verðum alveg skelfingu lostin og þessar sífelldu fréttir gera ekkert annað en að næra óttann okkar.

En svo er lausn í sjónmáli og allir bíða spenntir eftir henni, enda fáum við endalaust að heyra að hún lofi mjög góðu og með henni verði loksins hægt að binda endi á þessa skelfilegu vá.

Og ca 90% þjóðarinnar hoppaði á vagninn þegar lausnin kom (sprauturnar), og margir þessa dagana eru að fá sér þá fjórðu.

Þetta er þrautreynd taktík sem reynst hefur vel á mannskepnuna í gegn um tíðina, að ná stjórn á henni með stöðugum hræðsluáróðri.

“I believe the human population has always been vulnerable to people who predict doom with false stories
*Patrick Moore 

En vonandi er fólk loksins farið að sjá í gegnum allan hræðsluáróðurinn, lygarnar og ritskoðunina sem er búið er að beita gegn okkur til að fá okkur til að hlýða, og staldri aðeins við og kynni sér hin djöfullegu plön sem búið er að gera um framtíð mannkynsins.

Látum ekki blekkja okkur eina ferðina enn.

Og samþykkjum aldrei að borða skordýr í stað alvöru matar. Tilhugsunin um það veldur manni viðbjóði.

 

 

 

 


Sannleikurinn um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" er sífellt að koma betur og betur upp á yfirborðið.

Nú er stórskotaliðið búið að heiðra Þórólf Guðnason fyrrverandi sóttvarnalækni, sem lítur sáttur og stoltur yfir farinn veg í "heimsfaraldrinum". 

Kári Stefánsson fór fögrum orðum um hann og sagði:

„Í fyrsta skipti áttum við leiðtoga sem við treystum – og það skiptir máli, Þórólfur,“ sagði hann og kallaði að lokum Þórólf vin sinn, félaga og fóstbróður.

Ég sé alveg fyrir mér að væmnir hörputónar hafi verið spilaðir undir lofrullunni.

Hvað vita þessir menn sem þjóðinni hefur aldrei verið sagt, og hvers vegna þrýstu þeir á alla að fara í þessar "bólusetningar", þrátt fyrir að þeir vissu fullvel að þessi sprautuefni hefðu verið búin til á mettíma án fullnægjandi prófana á fólki? Eru þetta ekki læknar og vísindamenn? 

Það má alveg velta upp þeirri spurningu hvort einhverjir fái greitt fyrir hverja sprautu hér á landi eins og í USA, sjá hér og hér.

0925

Sem betur fer eru fleiri að vakna

Þökk sé internetinu, þá er núna auðvelt að afla sér upplýsinga sem eru ekki birtar á meginstraumsfjölmiðlunum, hvorki hér á landi né annars staðar.

Doctors-Warn-COVID-VaccineÓlýðræðisleg ritskoðun hefur fætt af sér nýja miðla, sem jú vissulega birta líka vafasamt efni eftir vafasamt fólk, en þar fá þeir vettvang sem hafa verið úthýst af meginstraumsfjölmiðlunum og samfélagsmiðlunum.

Læknar og vísindamenn eins og þessir sem sjá má á myndinni sem hafa verið útskúfaðir, smánaðir og reknir úr störfum sínum fyrir skoðanir sínar á "heimsfaraldrinum" og þessum efnum sem búið er að sprauta í milljarða manna, kvenna og barna hafa fengið vettvang þar.

Ég rakst á vídeó með þeim: Doctors Around the World Issue Dire WARNING: DO NOT GET THE EXPERIMENTAL COVID VACCINE!!

Þar vara þeir við hugsanlegum afleiðingum þess að láta sprauta þessum efnum í sig, og þetta eru afleiðingar sem því miður hafa raungerst að miklu leyti eða öllu.

Og athugið, þetta var tekið var upp í desember 2020 - áður en sprautuherferðirnar byrjuðu!

Formáli Steve Cook að viðtali Maajid Nawaz við Dr. Mike Yeadon (Lausleg þýðing)

Ég get ekki lagt nógu ríka áherslu á hversu mikilvægt það er að þið horfið á þetta vídeó.

Þið munið örugglega fá sjokk við að horfa á það, því upplýsingarnar sem þar koma fram eru svo sláandi.

Þar kemur mjög skýrt fram hvernig hundruð þúsunda manna og kvenna hafa verið myrt af tómri illsku af ríkjum sínum. Og morðin eru enn að að eiga sér stað, dauðsföllum fjölgar enn og gerendurnir hafa hingað til komist framhjá dómskerfinu.

En þeir dagar verða bráðum liðnir, þar sem, þökk sé viðleitni hetjanna sem koma fram í þessu vídeói, sem draga fram sannleikann um ólýsanlega glæpi sem haldið hefur verið frá okkur með glæpsamlegri ritskoðun.

Þetta vídeó mun hjálpa gríðarlega mikið til við að dreifa sannleikanum og flýta fyrir veldishraðavexti andófshreyfingarinnar, þar sem sífellt fleiri eru að rísa upp gegn framgangi þessarar glæpsamlegu og siðlausu harðstjórnar.

Sjá hér.

Viðtalið sjálft

Ég sat sem límd fyrir framan skjáinn í þennan tæpa eina og hálfa tíma sem viðtalið tók, allt sem hann segir þarna er hárrétt og auðvelt að sannreyna með leit á öðrum leitarvélum en Google.

Maajid byrjaði á að lesa upp bréf sem Mike skrifaði nýlega og má finna á netinu:

The most important single message I’ve ever written.

It was prompted by this superb expose of malfeasance in UK government.

Dear everyone who is nervously looking around and is asking “What the hell is going on?”,

I hope this isn’t too controversial. It’s certainly frightening, but I believe we are still the right side of disaster and if enough of us become aware of what is happening here and everywhere in the democratic world, we can recover the situation.

We really don’t have long. I believe it’s likely things will change irretrievably over this coming winter. Hence this urgent and unusual request.

Everything that’s happened and is happening becomes much simpler and it all makes sense, only when you force yourself to think the impossible.

If you experimentally adopt the position that OUR GOVERNMENT IS ACTIVELY WORKING TO HARM US, TO DISMANTLE MODERN SOCIETY AND ENSLAVE ALL PEOPLE IN A DIGITALLY-CONTROLED TOTALITARIAN WORLD, it all fits. Nothing is surplus.

Restin af bréfinu er hér, og viðtalið sjálft hér.

0924a

Þarna töluðu þeir meðal annars um það sem hann skrifaði í bréfinu hér að ofan, "bóluefnin", um notkun sjúkrahúsa á morfíni og lyfi sem heitir midazolam (sem meðal annars er notað við aftökur fanga í USA), og lyfið remdesivir, sem vitað er að getur valdið nýrnabilun og dauða sjúklinga.

Ég ætla ekki segja meira um viðtalið, þið verðið bara að horfa á það sjálf. Ef þið viljið ekki trúa því sem þar er sagt, spyrjið ykkur þá sjálf hvort þið trúið því að allt sem okkur hefur verið sagt undanfarin tvö og hálft ár um "heimsfaraldurinn" og "bóluefnin" sé örugglega allt satt og rétt.

Hefur fólk (jafnvel ungt að aldri) orðið bráðkvatt nýlega í kringum ykkur, fengið hjartaáföll, blóðtappa, heilablóðföll, greinst með illviðráðanleg krabbamein eða einhverja nýja sjúkdóma, lamast, misst heyrn eða sjón, misst fóstur eða fætt andvana börn, eða fengið illviðráðanleg útbrot á líkamann - svo fátt eitt sé nefnt?

Fólk sem hugsanlega hefur fengið tvær eða fleiri sprautur?

Ég tek heils hugar undir það sem einn sagði undir vídeóinu:

Brilliant interview. Frightening but one that needs to be seen and heard.

Hvernig Kári, Þórólfur, Ragnheiður Ósk og allir þeir sem hafa blekkt nánast alla þjóðina í þessar sprautur geti sofið á nóttunni, er ofar mínum skilningi.


Hundruðir lækna lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna "bóluefnanna".

Sífellt fleiri læknar og vísindamenn eru farnir að stíga fram og vara við þessum svokölluðu "bóluefnum", enda hafa þau skilið eftir sig slóð veikinda og dauða á stærri skala en nokkur bóluefni hafa áður gert.

Samt er haldið áfram að dæla þessum efnum í fólk, líka hér á landi, og nú með einhverju "uppfærðu bóluefni" sem var ekki prófað á mönnum, heldur 8 músum!

Yfir 400 læknar frá 34 löndum hafa lýst yfir alþjóðlegu neyðarástandi (medical crisis) vegna sjúkdóma og andláta sem tengjast Covid-19 bóluefnunum.

Hér er lausleg þýðing á síðunni Hundreds of doctors declare medical crisis from vaccine:

FcT_DysaQAE1rNA

Yfirlýsing þeirra hefst með þessum orðum: „Við, læknar og vísindamenn alls staðar að úr heiminum, lýsum því yfir að það sé alþjóðleg læknisfræðileg kreppa vegna sjúkdóma og dauðsfalla sem tengjast inngjöf á vöru sem kallast „COVID-19 bóluefni“.

„Við erum núna að verða vitni að aukinni dánartíðni í þeim löndum þar sem meirihluti íbúanna hefur fengið svokölluð „COVID-19 bóluefni“. Hingað til hefur þessi umframdánartíðni hvorki verið nægjanlega rannsökuð né skoðuð af innlendum og alþjóðlegum heilbrigðisstofnunum.“

Læknar halda því fram að nauðsynlegt sé að rannsaka það sem þeir fullyrða að sé óeðlilega mikill fjöldi fósturláta og burðarmálsdauða.

Fæðingartíðni í mörgum löndum virðist lægri en í meðaltali síðustu ára, og í júlí vakti ungverskur embættismaður athygli á sláandi lækkun á fæðingartíðni.

„Fæðingartíðni lækkaði um 20% miðað við sama tímabil í fyrra. Og það sem er enn meira áhyggjuefni er að frjósemi hefur líka minnkað - eitthvað sem hefur ekki sést síðan 2011.

„Rannsóknarmaður við KRTK hagfræðistofnun bendir á að þessi gríðarlega lækkun hafi komið í ljós aðeins níu mánuðum eftir að fjöldabólusetningar gegn COVID hófust í Ungverjalandi.

Yfirlýsingin telur upp tíu ráðstafanir sem ætti að grípa til strax, þar á meðal „Stöðvun um allan heim“ á bólusetningum með vörum sem kallast „COVID-19 bóluefni,“ auk rannsóknar á skyndilegum dauðsföllum.

„Skoðun á skýrslum úr VAERS CDC, gula kortakerfinu í Bretlandi, ástralska aukaverkanaeftirlitskerfinu, EudraVigilance kerfi Evrópu og VigiAccess gagnagrunni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, leiddi í ljós að til þessa hafa verið meira en 11 milljónir tilkynninga um aukaverkanir og meira en 70.000 dauðsföll sem hafa orðið í kjölfar inngjafa á þessum „covid bóluefnum“.“

„Við vitum að þessar tölur eru um það bil 1% til 10% af öllum raunverulegum atburðum.

Í júlí greindi CTV fréttastöðin frá „fordæmalausri aukningu á illa skilgreindum og óþekktum dánarorsökum“ í Alberta frá 2021. Í héraðinu höfðu orðið 3.362 dauðsföll af óþekktum orsökum árið 2021, samanborið við 1.464 árið 2020 og 522 árið 2019.

Þessi tala árið 2021 var hærri en heildarfjöldi heilabilunar og COVID-dauðsfalla í héraðinu, í sömu röð.

Á sama tíma á Íslandi

Þurfum að búa okkur undir aðra Covid bylgju, segir í Mogganum í vikunni.

Lyfja­stofn­un Evr­ópu seg­ir Covid-far­ald­ur­inn enn standa yfir þrátt fyr­ir að nýj­um til­fell­um og dauðsföll­um af völd­um veirunn­ar hafi fækkað mikið. Ríki Evr­ópu eru því hvött til að bjóða fólki upp á örvun­ar­skammt fyr­ir vet­ur­inn, að fram kem­ur í frétt AFP.

Íslendingar eru hvattir í fjórðu sprautuna.

Reglulegir örvunarskammtar nauðsyn.

Á sama tíma í Danmörku

Danir undir fimmtugu fá ekki fleiri Covid sprautur - verður mögulega endurskoðað

Fréttir sem ekki er fjallað um á Íslandi

New UK Government Data Shows The COVID Vaccines Kill More People Than They Save

Harvard-Johns Hopkins Study Shows Vaccine Up To 98 Times More Dangerous Than COVID

1 In Every 482 Vaccinated People Died Within 1 Month Of Covid-19 Vaccination in England According to UK Govt

... UK Gov. quietly published reports confirming the Triple Vaccinated account for 91% COVID Deaths throughout 2022 & there have been over 24k "unexplained" Excess Deaths since April

Dr. Sucharit Bhakdi: Criminal mRNA injections and how they kill

Raunveruleikinn

Leyfum þessu fólki úr Facebook grúppunni Died Suddenly News sem ég held að fólk geti ekki lengur gengið í nema með boði í hana, að eiga síðustu orðin.

Athugið, að fólk verður að nota dulmál yfir bóluefnin, covid og aukaverkanir til að geta tjáð sig vegna glæpsamlegrar ritskoðunar þessi misserin.

* A friend of ours was successfully treated for bowel cancer and in March was declared cancer free. By July, his liver was full of cancer and it had spread to several other organs. He has been given 6-9 months. He had two you- know-whats.😡

* A good friend of my wife and I got 2, then died suddenly 3 days later. He was complaining that he couldnt breath. Had numerous clots in his lungs and the coroner even admitted it was probably due to having the 2.

* ~My sister is an RN. They mandated she *wear a blue shirt*
She wore it and immediately had a seizure. She wore the second shirt and has had seizures so bad she’s now permanently disabled. Never had health problems before
~Know a perfectly healthy normal BMI 35 yo who had a brain bleed and stroke after the *second shirt. Never had health problems before
~My mom has worn *two shirts and is having fainting spells. Never had health problems before
~My friend had a kidney transplant. She was doing wonderfully. Never had a problem. Her Dr told not to *wear a blue shirt. She wore two shirts anyway. And rejected her kidney. Now has cancer.
~3 friends from HS have died within the last 2 months. All shirt wearers, all strokes
 
* I’m in the ER for my granddaughter.. nothing major…. Screams for help coming from down the hall … a child has been having seizures since last week when they got the🎂… it started out immediately as facial twitching, neurology is on the way down… seizures x 4 In one hour…. Dear Jesus pray for us🙏🙏🙏🙏
 
* My uncle had the all clear for prostate C, took 4🥢 then got diagnosed stage 4 pancreatic C shortly after and sadly died
 
* My heart is screaming for all of you today. And for myself? Well, the sister in law is having her bone scan today to see how far the stage 4 kidney cancer that wasn’t there six months ago has spread. Half the world still in denial. I already know the answer to the question that keeps repeating in my head: "why wouldn’t they listen?"
 
But I can’t stop hearing it. Peace be with you, everyone.

Allra síðustu orðin - nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir eru að stórskotaliðið í Covid kemur saman á ný í vikunni til að heiðra Þórólf, sem lítur sáttur og stoltur yfir farinn veg í "heimsfaraldrinum". 

Gleymum aldrei þessum orðum hans:

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

 

 

 


Ömurlegt að sjá að enn sé verið að hvetja börn og barnshafandi konur í "bólusetningarnar"

Að lesa þessa frétt er eins og að lesa lélega hrollvekju, það er ekki nóg með að gefa eigi fólki fjórða skammtinn af þessu eiturbrasi, heldur á að bjóða áhættuhópum að fá sér flensusprautu samhliða, ef liðnir eru a.m.k. fjórir mánuðir frá síðustu "bólusetningu".

Það er sorglegt að sjá að fólk skuli ennþá trúa því að það þurfi fleiri sprautur, sérstaklega núna þegar það er sífellt að koma betur og betur í ljós hversu skaðleg þessi efni geta verið - fyrir utan það að marglofuð virkni þeirra og öryggi stóðst aldrei.

En meginstraumsfjölmiðlarnir fjalla aldrei um það.

Það er ekki hægt að hraða vísindunum!

Sagan hefur sýnt það og sannað oftar en einu sinni að lyf sem hafa ekki verið nægilega prófuð áður en þau eru markaðssett, hafa oft valdið miklum skaða og dauða.

Enda hafa lyfjarisarnir (Pfizer o.fl.) þurft að punga út stjarnfræðilegum fjárhæðum í sektir og skaðabætur undanfarna áratugi.

Í siðmenntuðum heimi getur það tekið allt að 10 til 15 ár að þróa og prófa bóluefni.

Bólusetningum gegn svínaflensu var hætt í USA árið 1976 eftir að 3 aldraðir einstaklingar létust í kjölfar þeirra.

Eitthvað allt annað en núna í þessum meinta "heimsfaraldri", þar sem milljónir hafa skaðast eða látist um heim allan í þessu bólusetningabrjálæði.

Reynt er að þagga allt niður, en sem betur fer er fólk farið að vakna núna, sérstaklega annars staðar en á Íslandi, þótt það sé því miður orðið allt of seint fyrir marga.

Thalidome lyfið

Fórnarlömb ThalidomideÞað tók 5 ÁR að tengja saman Thalidomide lyfið sem mörgum ófrískum konum var gefið, og fæðingargalla og fósturlát. Á þessum tíma er áætlað að það hafi skaðað og drepið þúsundir barna.

"As harmless as a sugar cookie" is how thalidomide was advertised at the time. Recommended for infants and small children and for treating nausea during pregnancy, it was a big seller both in Germany and abroad.

Heimild

Hinar verðandi mæður treystu læknum sínum og ljósmæðrum sem mæltu með þessu nýja lyfi við morgunógleði.

Við getum gengið út frá því sem vísu að engin þeirra ætlaði vísvitandi að skaða barnið sitt.

Eðli málsins samkvæmt voru þær konur sem eru á barnseignaraldri núna ekki fæddar á árunum 1957 - 1962, og hafa kannski aldrei heyrt um hörmulegar afleiðingar af töku nýs og lítt prófaðs lyfs á þúsundir ófæddra barna.

Núna 60 árum síðar er þrýst á barnshafandi konur að láta sprauta í sig lyfi sem hefur ekki farið í gegn um hefðbundið margra ára þróunarferli.

Á sama tíma er þeim ráðlagt að forðast ákveðnar fæðutegundir og hvorki reykja né drekka á meðgöngu því það gæti orsakað veikindi hjá þeim eða skaðað barnið sem þær bera undir belti.

Gott og vel, allt góðar og gildar leiðbeiningar, enda væntanlega byggðar á langri reynslu. 

Í ljósi alls þessa er óskiljanlegt að barnshafandi konur hafi verið beittar slíkum hræðsluáróðri um hættuna af Covid, að allt of margar þeirra létu sprauta sig.

Á hvaða vegferð eru læknavísindin eiginlega, hvað varð um læknaeiðinn, Fyrst, ekki skaða?

Í ljós hefur komið að Pfizer leyndi gögnum um niðurstöður tilrauna á barnshafandi konum, fyrir utan niðurstöður um hjartavöðvabólgur og ótal margt fleira.

Sjá nokkrar umfjallanir hér:

Massive Miscarriage Rates Among Vaccinated Pregnant Women Found Buried In The Pfizer Documents

"Stillbirths, Miscarriages and Abortions in Vaccinated vs. Unvaccinated Women Evidence from an Israeli hospital"

Confidential Pfizer Docs. reveal 90% of Covid Vaccinated Pregnant Women lost their Baby; but Pfizer claimed: “No safety signals emerged”

Study finds Covid-19 Vaccination increases risk of suffering Miscarriage by 1517%

Dr. Naomi Wolf shares a photo of a mother’s placenta 8 weeks post Pfizer jab

Og enn er haldið áfram að blekkja fólk í þessar sprautur, þrátt fyrir skelfilega aukningu krabbameina, og ungt fólk sem dettur skyndilega dautt niður, svo fátt eitt sé nefnt.

Frásagnir fólks

Fact checkersHér eru örfáir þræðir um fósturlát og barnsmissi úr Facebook hópnum Died Suddenly News sem er núna kominn með tæplega 247.000 meðlimi á örskömmum tíma, og þúsundir meðlima bætast í þennan hóp á hverjum degi.

Þetta er lokaður hópur sem maður verður að sækja um aðgang að ef maður vill lesa frásagnirnar. 

Vegna ritskoðunar miðilsins eru þessa dagana notuð tákn fyrir gulrætur í stað bannorðanna vaccine, Pfizer, Moderna o.þ.h.

* A close friend of mine just had a still born at 37 weeks. She had 2 🥕🥕 prior to pregnancy

At 37 weeks her 🩸 some how entered placenta and attacked baby.

* I know someone who lost twin girls 1 week before a scheduled C section. Southern Ontario Canada

* Yes, it’s happening all over the place. Clots in the placenta and cord kill the babies.

Þráðurinn er hér
 
* Had a friend who recieved the 🥕 while 8 months pregnant. I did everything I could to try to convince her not to or at least wait till the baby was born. She ended up having a still birth 2 weeks later. She is also having heart issues that she never had before.
 
* This is horrific! I’m so sorry. What State is she in ? A friend of mine 37 weeks just delivered a still last week here in Georgia. There needs to be a Class action lawsuit against our Government for pushing this crap on us
 
* No pregnant woman should ever take anything while pregnant. I didn’t even take vitamins and had healthy babies. So very sad for your friend.
 
* I have a friend who also had a stillbirth a few weeks ago. And here in Northern Ontario Canada we have had two infant deaths this week, and another in June.
 

* This happened to my friend last fall. She was 6 months along, had one dose and lost her baby two weeks later.

Þráðurinn er hér

* Most of my family members had the 🥕. One who was a nurse and pregnant. She lost her baby about 5 months into pregnancy. The baby/fetus was diagnosed with serious heart problems a month before she lost it. Another relative now has very serious skin condition that suddenly showed up after the 🥕. I refused the carrot for my son and I. I am glad I refused even though many treated us differently.
 

 Þráðurinn er hér

* A good friend of mine from work, pregnant with twins, she and the father felt forced into the 🥕 🥕. Developed issues with the twins, both stillborn early this year. Heartbreaking 😢
 
Elderly friends at my church experiencing breathlessness, pressure on the head, other friends getting clots, weird and sudden aggressive cancers. Another woman had her sister and husband die suddenly a month back. It’s so chaotic.
 
The people who did this will be held responsible.
 
Þráðurinn er hér
 
* My workplace mandated the 🥕 I was so against it but with kids to feed and bills to pay, I felt like I had no choice. I was 34 weeks and 37 weeks pregnant when I got 🥕 and 🥕🥕. My baby stopped moving and my blood pressure rose. So I was induced the week after 🥕🥕. He required CPAP for 10 minutes after birth, he stopped breathing a few hours after birth and has had multiple hospitalisations since birth. He has a collapsed airway and has just recently started having blue spells where he holds his breath and his airways seem to collapse temporarily.
Has anyone else experienced this? I have other kids and have not quite experienced something so bad.
Please do not bash me, if I could turn back time I would.
 
Þráðurinn er hér
 
* Our secretary’s daughter has a close friend who is nurse on an obstetrics ward at a local hospital. Apparently there is at least one stillborn birth per day, something unheard of in the past. It is so distressing to read the stories in this group. I pray for members of my family and all those who submitted to the propaganda.
 
* I heard there is an increasing number of babies born with liver problems recently. Apparently their mothers have been jabbed 😥

* this would fit the sudden unexplained rise in hepatitis in infants.
 
Tugir eða hundruðir frásagna bætast við í þessum hópi á hverjum degi, og flestar þeirra eru mjög átakanlegar.
 
Það sem gerist í öðrum löndum gerist líka hér á Íslandi
 
Konur eru líka að missa fóstur og fæða andvana börn hér á landi eftir sprauturnar, og veit ég um þó nokkur tilfelli, en engar skýringar koma frá heilbrigðisyfirvöldum á stóraukinni tíðni andvana fæðinga.
 
Allt er þaggað niður eins og venjulega.
 
En vissuð þið að nýju örvunarbóluefnin sem á að fara að sprauta í fólk núna voru samþykkt eftir prófanir á 8 músum?
 
Svo á að fara að prófa þessi efni á mannfólkinu. Viljið þið halda áfram að vera tilraunadýr fyrir lyfjarisana - með fullu samþykki yfirvalda sem hafa hvatt alla í sprauturnar þrátt fyrir að vita nákvæmlega hvílík eiturefni þetta eru?
 
Já þau vita það svo sannarlega, það er búið að senda öllu þessu fólki og öllum helstu fjölmiðlum ótal sannanir fyrir því, en viðbrögðin eru engin.
 
Kann einhver skýringuna á því?

 
0910a
 
 
 
 

 


mbl.is Nýjar útgáfur bóluefna væntanlegar til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband