Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2023

Hinn "sjarmerandi" harðstjóri, Jacinda Ardern

Ég gat ekki að því gert, en ég hló upphátt þegar ég las fyrirsögn á Visir.is þann 19. janúar, en hún hljóðaði svona:

Katrín segir sjónarsvipti að hinni sjarmerandi Arden

Þar átti forsætisráðherra okkar við einræðisherrann Jacindu Ardern sem búin er að stjórna þjóð sinni, Nýja Sjálandi af mikilli illsku og grimmd síðan "heimsfaraldurinn" byrjaði.

Umsögn Katrínar Jakobsdóttur um afsögn hennar

Forsætisráðherra segir að sjónarsviptir verði af Jacinda Ardern sem óvænt sagði af sér embætti forsætisráðherra Nýja-Sjálands og leiðtoga Verkamannaflokksins í gærkvöldi. Sex ára valdatími hennar hafi einkennst af hverju áfallinu á fætur öðru, allt frá náttúruhamförum, fjöldamorðum, covid faraldrinum og nú til efnahagsástandsins vegna stríðsins í Úkraínu.

Hin hliðin

Þetta er afskaplega falleg lýsing Katrínar á starfsferli hennar, en tökum aðeins stikkprufu af skoðunum annarra á frammistöðu hennar í "heimsfaraldrinum".

9. maí 2021

Hinn harðstjórnandi (tyrannical) forsætisráðherra Nýja Sjálands, Jacinda Ardern hefur loksins ákveðið að tortíma (destroy) eigin borgurum með því að þvinga ALLT framlínustarfsfólk í bólusetningar, að viðlagðri $4.000 sekt ef það hlýði ekki.

 

NZ Govt now Forces COVID Jabs Or Else Jail Time

 

29. júní 2021

 

Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja Sjálands er að íhuga að gera grímunotkun að skyldu, og skönnun QR kóða líka að skyldu á "hááhættusvæðum", eins og börum og veitingastöðum.

Þetta eru einmitt staðirnir sem fólk gjarnan hittist á til að eiga gæðastundir eða lyfta glasi með vinum og kunningjum, og bara vera eðlilegar manneskjur.

Forsætisráðherra Nýja Sjálands er endanlega genginn af göflunum

24. ágúst 2021

 

Þegar Nýja Sjáland tilkynnti skyndilokun í síðustu viku til að bregðast við einu Covid-19 tilfelli voru viðbrögðin fyrirsjáanleg. Gagnrýnendur Jacindu Ardern og hinnar ströngu "Núll Covid" stefnu ríkisstjórnar hennar fóru á hliðina og fullyrtu að hún hefði "tapað glórunni" og að tillaga hennar væri "ekkert minna en endalaus martröð".

 

Á hinn bóginn komu klappstýrur hennar með margnotaða frasa um hvernig þau hefðu gert þetta áður, og myndu gera þetta aftur.

 

New Zealand’s Zero Covid delusion

 

30. nóvember 2021

 

Í gær tilkynnti Jacinda Ardern leiðtogi Nýja Sjálands, að ríkisstjórnin ætli núna að veita fólki þann "lúxus" að geta notað salerni á heimilum annarra. (45. mínútna vídeó með Mike Adams, byrjar á mínútu 5)

 

Clown World on Paradise

 

Fleiri greinar um þennan grimma harðstjóra

Fljótleg yfirferð yfir íslenska fjölmiðla sýnir að mestu leyti aðeins jákvætt viðhorf til hennar og aðgerða hennar í "baráttunni gegn Covid". Hér er þó ein ársgömul frétt um að vinsældir hennar hafi aldrei verið minni.

Harmagrátur vegna afsagnar forsætisráðherra Nýja Sjálands

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður skrifaði fínan pistil um starfslok hennar:

Þó Ardern skilji eftir sig minningar um versnandi lífskjör, aukna fátækt og ógnarstjórn á tímum Kóvíd, þá harmar vinstri stjórnmálaelítan stjórnmálaleiðtoga, sem gat ekki horfst í augu við, að kjósendur mundu hafna henni í kosningum. 

Nú er hafinn harmagrátur vinstri stjórnmálamanna eins og Katrínar Jakobsdóttur, Keith Starmer og Justin Trudeau yfir þeirri illu meðferð sem þau segja að Ardern hafi þurft að undirgangast. 

Landsmenn Ardern hafa þó aðra sögu að segja og minnast hennar með allt öðrum hætti þegar þeir þurfa að glíma við versnandi lífskjör, aukna verðbólgu og fátækt. 

Hér má meðal annars sjá viðbrögð landa hennar við afsögninni.

Nýjustu fréttir herma að Chris Hipkins sem sestur er tímabundið í stól hennar, hefur tilkynnt að á þessu ári muni fólk sem ekki hefur "þegið" Covid sprauturnar verða elt uppi og sprautað.

Það er eins og viðvaranir þúsunda lækna og vísindamanna um skaðsemi Covid "bóluefnanna" hafi ekki "náð eyrum" stjórnenda Nýja Sjálands (frekar en Íslands).

Nýsjálendingar virðast því vera að fara úr öskunni í eldinn.

Vinkvenna fundur

Það sem líklega fáir vita hér á landi, er að þær eru báðar tengdar inn í glóbalistasamtökin The World Economic Forum (WEF), þar sem Jacinda er í hópi "Young Global Leaders" og Katrín Jakobsdóttir er "Agenda Contributor".

Á þessum fundi í september 2019 virðast þær hafa verið miðað við texta Katrínar, að ræða meðal annars um Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna (<- lesið um þau til að skilja þetta!), sem undir fögrum umbúðum ganga út á að móta heiminn að þeirra eigin hugmynd og svipta okkur hin öllu því sem okkur er kært, jafnvel lífinu líka.

Jacinda

Það er að verða gríðarleg vakning í heiminum núna um þá staðreynd að einhverjir ókjörnir viti firrtir aðilar (WEF og fleiri) eru búnir að vera að plana aðgerðir áratugum saman gegn okkur "óþörfu súrefnisþjófunum", og andspyrnan gegn þeim eykst dag frá degi.

Nú er þessi WEF harðstjóri fallinn af stalli, reyndar virðist tímabundinn arftaki hennar því miður ætla að fylgja í fótspor hennar, en hverjir munu falla næst og þá hverjir taka við, aðrir WEF harðstjórar? Er þetta það sem heimsbyggðin vill?

 

 


Það sem hún minnist ekki einu orði á í þessu viðtali

Berglind Aðalsteindóttir hjartalæknir var fengin til að halda erindi um orsök skyndidauða ungmenna á nýliðnum Læknadögum 2023 í Hörpu.

Sem hjartalæknir útskýrir hún ýmsar ástæður fyrir því að ungt fólk geti dottið dautt niður við íþróttaiðkun, eins og til dæmis af völdum arfgengra sjúkdóma, og/eða undirliggjandi hjartasjúkdóma.

Það er athyglisvert að akkúrat þetta umfjöllunarefni, skyndidauði ungs íþróttafólks hafi verið aðal áhersluefni málþingsins.

En það er eitt sem ég sakna úr þessari frétt, þar er ekki einu orði minnst á hvort samasemmerki geti verið á milli "bólusetninga" íþróttamanna með þessum genabreytandi tilraunalyfjum, og óhugnanlegrar fjölgunar andláta þeirra undanfarin tvö ár.

Og líklega voru túrbó krabbameinin í kjölfar "bólusetninganna" ekki til umræðu þarna, né skyndidauðar allra þeirra sem flokkuðust ekki til íþróttamanna.

Hvað með mRNA tilraunalyfin sem sannanlega valda veikindum og dauða?

Skyndi­dauði er að sögn Berg­lind­ar ekki alltaf tengd­ur hjart­anu held­ur get­ur líka or­sak­ast af sjúk­dóm­um í öðrum líf­færa­kerf­um.

Hve al­geng­ur skyldi skyndi­dauði þá vera á heimsvísu?

„Rann­sókn­ir hafa sýnt fram á að ný­gengi hjá yngra fólki sé á bil­inu einn til tveir á ári á hverja 100.000 ein­stak­linga.

Það væri fróðlegt að vita hverjir gerðu þessar rannsóknir sem hún vísar í, en það vekur óneitanlega upp þá spurningu hjá manni hvað valdi því að hvorki hámenntaður ungur hjartalæknir (né hinir læknarnir á málþinginu) virðist tengja skyndidauða íþróttamanna mögulega við "bóluefnin".

Eða velti hún þessari spurningu upp í erindinu en sleppti að minnast á það í þessu viðtali?

Þetta sem hún segir er í hróplegu ósamræmi við raunveruleikann, og útskýrir ekki nema örfáar hugsanlegar orsakir hjartaáfalla og skyndidauða ungs íþróttafólks.

En í fullu samræmi við þöggunina undanfarin þrjú ár, þar sem aðeins ein umræða hefur verið leyfileg, um "gæði og öryggi" þessara tilraunaefna.

Þar fór Þórólfur Guðnason fyrrum sóttvarnalæknir einna fremstur í flokki, að ógleymdri Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Arftaki hans hún Guðrún Aspelund er ekkert skárri.

1.696% Increase in Sudden Death Among Athletes

The number of athletes who ‘died suddenly’ between January 2021 and April 2022 was 1.696% above the historical monthly norm between 1966 and 2004 — 42 per month compared to just 2.35 per month.

0121

Heimild

Umfjallanir utan úr heimi

Rauði þráðurinn í gegnum fréttaflutning um "heimsfaraldurinn" og "bólusetningum" á stærstum hluta mannkynsins er sá að lítið sem ekkert er fjallað um að:

Covid "bóluefnin" geta - og hafa valdið alvarlegum veikindum og dauða

Andlát eftir Covid sprauturnar

Young hearts part 30 er þrítugasta vídeóið í samnefndri seríu vídeóa um skyndileg andlát ungs fólks, allt niður í lítil börn síðan byrjað var sprauta heimsbyggðina með þessum tilraunalyfjum.

"Cause Unknown"

 Cause unknown

Mjög áhugaverð og vönduð bók sem byggð er á rekjanlegum gögnum hefur nýlega verið gefin út, "Cause Unknown": The Epidemic of Sudden Deaths in 2021 & 2022.

Hún er skrifuð af Edward Dowd og hefur fengið gríðarlega góða dóma, eins og sjá má á sölusíðunni.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Enn er verið að hvetja fólk yfir sextugu í þessar eitursprautur hér á landi. Ég setti inn fyrirspurn á Facebook færslu Heilsugæslunnar fyrir nokkrum dögum síðan, en hún hefur ekki séð ástæðu til þess að svara þessari sjálfsögðu spurningu.

Það mætti velta fyrir sér hvers vegna ekki.

0121b

Getum við treyst ríkisstjórn Íslands og heilbrigðiskerfinu sem enn hvetur fólk í þessar tilraunasprautur fyrir lífi okkar og heilsu, eða hefur það brugðist okkur?

Svari hver fyrir sig.

Uppfærsla 22. janúar

Ég var að fá ábendingu um að hjartalæknarnir Berglind Aðalsteinsdóttir, Davíð O. Arnar og Gunnar Þór Gunnarsson hafi nýlega fengið styrk frá Rannís upp á allt að 55 milljónir til næstu þriggja ára til að rannsaka ofvaxtarhjartavöðvakvilla, og verður hún unnin í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu.

Við vitum að Kári Stefánsson hefur lofað bóluefna"nammið" í hástert og viljað senda þá sem ekki vildu þiggja sprauturnar út í Grímsey.

Er það þá tóm tilviljun að "bóluefnin" hafi ekki verið rædd sem hugsanleg orsök skyndidauða ungmenna?

Hvað haldið þið?

 

 

 


mbl.is Eft­ir því tekið þegar íþrótta­fólk hníg­ur niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað býr að baki Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna?

Mikið óskaplega líta heimsmarkmið glóbalistanna vel út. Þeir ætla að útrýma fátækt og hungri, auka jöfnuð og stuðla að friði í heiminum, tryggja okkur menntun, tryggja jafnrétti, passa að allir hafi aðgang að vatni og heilbrigðisþjónustu, og byggja sjálfbærar borgir og samfélög, svo eitthvað sé nefnt.

Heimsmarkmiðin 17

Heimsmarkmiðin

Þetta hljómar eiginlega of gott og fallegt til að vera satt, enda er það svo.

Hér má sjá frábæra yfirferð yfir markmið númer 13, aðgerðir í loftslagsmálum.
 
The Hard Truth About The United Nations Sustainable Development Goals
What Insane Sacrifices Are Required From You And Me And Every Person On The Planet To Meet Agenda 2030’s Goal 13?
 
Hér er önnur ekki síðri yfir markmið númer 2, ekkert hungur.
 
The Hard Truth About The United Nations Sustainable Development Goals: SDG 2 - Zero Hunger
 
Hér er yfirferð yfir hið göfuga markmið númer 1, að útrýma fátækt. Hlustið sérstaklega vel á lokaorðin.
 
The Hard Truth About The United Nations Sustainable Development Goals: SDG 1 - No Poverty
 
Fleiri umfjallanir um markmiðin þar sem þau eru skoðuð án alls fagurgalans um bjarta framtíð með blóm í haga má finna á netinu, en ég mæli sérstaklega með þessari grein sem skrifuð var af Mike Adams árið 2015 um þessi 17 markmið, þar sem hann útskýrir hvernig sérhverju þessara markmiða á að ná í gegnum miðstýrt stjórnvald, og í rauninni alræðisvaldi yfir heiminum.
 
Eins og sjá má hér á vefsíðu WEF.
 
Global Governance
 
The United Nations 2030 Agenda decoded: It’s a blueprint for the global enslavement of humanity under the boot of corporate masters
 
Mike segir: Þetta skjal lýsir hvorki meiru né minna en alþjóðlegri yfirtöku stjórnvalda á hverri einustu þjóð í heiminum. "Markmið" þessa skjals eru ekkert annað en dulmál fyrir fasistastefnu fyrirtækja og stjórnvalda sem mun fangelsa mannkynið í hrikalegri hringrás fátæktar á sama tíma og auðga öflugustu glóbalistafyrirtæki heims eins og Monsanto og DuPont.
 

Örstutt lýsing á áætlunum Sameinuðu þjóðanna, þýdd á íslensku af Björgu Sighvatsdóttur

Því miður lést Rosa árið 2021, en hér má lesa meira um þessa merku baráttukonu.

Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun

Ríkisstjórn Íslands hefur tengt heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna inn í stefnur sínar og áætlanir til ársins 2030, (ársins þegar við munum ekkert eiga, og vera hamingjusöm).

Markmiðin sem gilda á tímabilinu 2016-2030 eru 17 talsins, með 169 undirmarkmið. Ákaflega vel útfært plan í ótal liðum.

Kunnuglegir aðilar úr Davos klíkunni

Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni var stofnuð fyrir 11 árum. Í janúar árið 2021 héldu þau ráðstefnu.

Yf­ir­skrift hennar var The Great Re­set eða Nýtt upp­haf í anda áherslna hjá leið­andi stofn­un­um eins og Al­þjóða­efna­hags­ráðs­ins (e. World Economic For­um) og B Team sem eru leið­andi í þeim umbreyt­ing­um sem þurfa að verða á við­skipta- og stjórn­ar­hátt­um á heimsvísu.

Þar ein­blín­dum við á að sú upp­bygg­ing sem blas­ir við okk­ur í kjöl­far af­leið­inga Covid-19 verði byggð á sjálf­bærni, þar sem við byggj­um upp at­vinnu­líf sem hug­ar að hag allra hag­að­ila.

  • Halla Tómasdóttir - forstjóri B Team
  • Nicole Schwab fram­kvæmd­ar­stjóri Nature Based Soluti­ons @World Economic For­um (dóttir Klaus Schwab) (Áherslan er mín)
  • Michele Wucker met­sölu­höf­und­ur og for­stjóri Gray Rhino & Comp­any
  • John McArth­ur for­stjóri mið­stöðv­ar um sjálf­bæra þró­un hjá Brook­ings stofn­un­inni
  • Sa­sja Beslik for­stjóri sjálf­bærra fjár­fest­inga hjá J. Safra Saras­in Bank

Eins og sjá má hér að ofan, þá er Ísland fullgildur aðili að aðförinni gegn mannkyninu núna, (sjá 5 mínútna vídeó um "The Great Reset" hér plús hlekki á fleiri vídeó), þessari svokölluðu endurræsingu eða Nýja upphafi eins og það er kallað hér.

Lesist: Aðförinni að gagnslausu súrefnisþjófunum sem eru fyrir viti firrtri elítu sem er núna í óðaönn við að endurskapa heiminn að eigin hugmynd, vill stjórna hver fær að lifa og hver eigi að deyja og fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda".

Þetta fór í gang fyrir alvöru með þessum svokallaða "heimsfaraldri", og "bólusetningunum" í kjölfar hans.

Ein af aðgerðunum til að ná þessu fram er að WHO taki yfir stjórn á heilbrigðismálum heimsins.

Sjá einnig: The World Economic Forum’s Ten Creepy Goals

Heimsmarkmiðin líta afskaplega vel út á yfirborðinu, eiginlega allt of vel, en ef þið lesið og horfið á þetta efni sem ég hef sett hér inn, þá sjáið þið fljótt að þetta eru ekkert annað en fagrar umbúðir utanum illvirki gegn okkur "þessum óþörfu".

Ó borg mín borg....

Reykjavíkurborg, sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er búinn að keyra í þrot, vinnur að sjálfsögðu að þessum "háleitu markmiðum", enda má sjá það á þrengingu umferðargatna, þéttingu byggðar, borgarlínunni, grænum plönum og fleiru.

Á næstu sjö árum á að galdra fram úr tómum borgarsjóði einhverja tugi eða hundruði milljarða í þessi markmið, þannig að væntanlega verður seilst enn meira í okkar vasa.

Græna planið

Davos ráðstefnan byrjar 16. janúar 2023

Nú streyma glóbalistarnir ásamt ýmsum þjóðarleiðtogum til Davos á sína árlegu ráðstefnu um að halda áfram að ráðskast með örlög okkar hinna, og er nú haldin undir yfirskriftinni "Samstarf í sundruðum heimi".

3.000 útvöldum aðilum hefur verið boðið, og 5.000 hermenn munu gæta þeirra.

Eftir því sem ég best veit, þá verða engir á vegum Íslands núna, hins vegar verður Björgólfur Þór Björgólfsson þar sem fulltrúi UK.

Á síðasta ári flugu 1.040 einkaflugfélar með þetta fólk sem vill "bjarga loftslaginu" með því að við hin hættum að fljúga og keyra bíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Þar að auki eigum við að fara að leggja pöddur okkur til munns.

Ég held að við getum öll verið sammála um nauðsyn þess að draga úr sóun og fara betur með umhverfið og það sem við eigum. Ég minnist þess þó ekki að hafa lesið mikið um alla milljarðana af plastgrímunum sem enda í sjónum með skelfilegum afleiðingum fyrir lífríki sjávar. Hvar er allt "græna" fólkið núna?

En að treysta þessum sturluðu illmennum fyrir því að "bjarga heiminum" er jafn gáfulegt og að treysta minki fyrir því að gæta hænsnahúss.

 

 

 

 


Stéttin sem við áttum að geta treyst, en brást okkur

Undanfarin þrjú ár hef ég mikið hugsað um ábyrgð og siðferði læknanna hér á landi sem við leitum til þegar við verðum veik eða slösum okkur. Vissulega er mikið til af frábærum læknum sem hafa læknað sjúklinga sína farsællega með reyndum aðferðum, því miður eru líka til sögur um hið gagnstæða, en það er ekki til umfjöllunar hér.

Hippókratesareiðurinn

Hippókratesareiðurinn er eitt af elstu bindandi skjölum í sögunni, skrifaður af Hippókratesi, og enn haldinn heilagur af læknum: Að meðhöndla sjúka eftir bestu getu, að varðveita friðhelgi sjúklings, að kenna næstu kynslóð leyndarmál læknisfræðinnar og svo framvegis.

En er hann enn haldinn heilagur af öllum læknum - eða bara sumum?

Medical Definition of Hippocratic Oath

Hugtakið um að beita ekki illsku (non-maleficence) er útfært með orðasambandinu "fyrst, gerðu engan skaða", og margir telja að það ætti að vera aðalatriðið, að það sé mikilvægara að skaða ekki sjúklinginn en að gera þeim gott, en það er hluti af hippokratesareiðnum sem læknar sverja.

Medical ethics

0109Skoðum þessa setningu aðeins: Margir telja að það ætti að vera aðalatriðið, að það sé mikilvægara að skaða ekki sjúklinginn en að gera þeim gott.

Þetta hefur verið þverbrotið síðan farið var að kynna þessi "bóluefni" fyrir fólki árið 2020, sem átti að leiða okkur út úr "heimsfaraldri" sem reyndar voru 99,5% líkur á að lifa af, nema maður væri einstaklingur yfir sjötugu, og/eða með undirliggjandi sjúkdóma.

Svipað og hjá gömlu góðu flensunni sem "tók sér pásu" þegar "drápsveiran" kom.

Eitt skyldi yfir alla ganga, sprauta skyldi þá með efnum sem aldrei höfðu verið notuð á mannfólk áður, en fengu neyðarleyfi þrátt fyrir að vera enn á tilraunastigi undir því yfirskini að þau væru eina leiðin út úr "heimsfaraldrinum".

Til þess að geta það, voru margreynd lyf sem höfðu gagnast vel við samskonar veikindum bönnuð (líka hér á landi), og sögð ekki vera nægilega prófuð, eins og til dæmis áratuga gamla Nóbelsverðlaunalyfið Ivermectin. Hins vegar fékk lyfið Remdesivir markaðsleyfi hér á Íslandi gegn Covid, ég veit þó ekki hvort það sé enn notað hér.

Uppfærsla: Ég var að fá það staðfest eftir áreiðanlegum heimildum að Remdesivir er ennþá notað hér á Íslandi, og það er ennþá verið að panta það til landsins!

Og að það sé framleitt undir stjórn Íslendingsins Sigurðar Óla Ólafssonar, forstjóra Hikma.

Remdesivir has emerged as liver and kidney toxic and a failed EBOLA drug, failed! It was a drug in search of a disease and found one here due to Fauci and his ‘standard of care’!

Dr. Paul Elias Alexander

Trúgjörnu tilraunadýrin

Við vorum gerð að tilraunadýrum lyfjarisanna án þess að okkur væri sagt frá því, við treystum ríkisstjórninni, þríeykinu og Kára í blindni, og hlýddum SMS skipununum þegar þær komu í símana okkar, rétt eins og hann Sölvi sumarið 2021:

„Ég geri bara eins og mér er sagt og hef engar sérstakar skoðanir á þessu. Bara pínu töff að vera með bæði, Astra og Pfizer,“ sagði Sölvi Snær Magnússon sem beið eftir sínum skammti í heillangri röð fyrir utan Laugardalshöll í dag."

Brotin sem framin hafa verið gegn íslensku þjóðinni - og mannkyninu öllu:

Helsinkiyfirlýsingin sem samþykkt var á 18. heimsþingi lækna í Helsinki í júní 1964 var um siðfræðilegar meginreglur fyrir læknisfræðilegar rannsóknir á mönnum.

Alþjóðafélag lækna (WMA) hefur þróað Helsinkiyfirlýsinguna sem greinargerð um siðfræðilegar meginreglur fyrir læknisfræðilegar rannsóknir á mönnum, þar með taldar rannsóknir á persónugreinanlegum gögnum og efnum úr mönnum.

Ætlast er til að yfirlýsingin sé lesin í heild og að tillit sé tekið til allra annarra viðeigandi greina þegar einstökum greinum hennar er beitt.

Genfaryfirlýsingin var upphaflega samþykkt af 2. allsherjarþingi Alþjóðalæknafélagsins í Genf í Sviss í september 1948, endurskoðað af 22. allsherjarþinginu í Sydney í Ástralíu í ágúst 1968, og tók fleiri breytingum síðar.

SEM LÆKNIR
HEITI ÉG ÞVÍ að helga líf mitt þjónustu í þágu mannúðar
ÉG MUN HAFA HEILBRIGÐI og vellíðan sjúklinga minna í fyrirrúmi
ÉG MUN VIRÐA sjálfræði og mannlega reisn sjúklinga minna
ÉG MUN VIRÐA mannslíf staðfastlega til hins ítrasta
ÉG MUN EKKI LÁTA aldur, sjúkleika eða fötlun, trúarbrögð, uppruna, kyn, þjóðerni, stjórnmálatengsl, kynþátt, kynhneigð, þjóðfélagslega stöðu eða neitt annað hafa áhrif á skyldu mína gagnvart sjúklingum mínum

Reglugerð um klínískar lyfjarannsóknir á mönnum

Í þessari reglugerð eru sett sérákvæði varðandi framkvæmd klínískra lyfjarannsókna, þ.m.t. fjölsetrarannsóknir á mönnum með lyfjum einkum að því er varðar framkvæmd góðra klínískra starfshátta við lyfjarannsóknir (GCP).

Upplýst samþykki - Lög & reglugerðir um hvernig á að upplýsa þátttakendur í klínískri lyfjarannsókn.

Markmið þess að afla upplýsts samþykkis (informed consent) frá þátttakendum í vísindarannsókn á heilbrigðissviði er að tryggja og vernda réttindi og hagsmuni þeirra:

  • Virðingu fyrir mannhelgi – að fólk sé ekki  viðfangsefni vísindarannsókna á heilbrigðissviði að óþörfu og njóti tilhlýðilegrar virðingar;

  • Umhyggju fyrir heilsu – að óþægindi eða áhætta vegna þátttöku í rannsókn sé ávallt innan eðlilegra marka og að markmiðið sé að leita leiða til að greina eða lækna sjúkdóma, skilja eðli þeirra eða bæta líðan;  

  • Virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti einstaklings um þátttöku í rannsókn eða ekki.

  • Að virtur er óskoraður umráðaréttur viðkomandi einstaklings yfir heilsufarsupplýsingum og lífsýnum sem persónu hans varðar.

Þátttakandi skal fyrirfram og formlega samþykkja þátttöku í vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Áður en samþykki er veitt skal gefa ítarlegar upplýsingar um rannsóknina. Þátttakanda skal gerð grein fyrir því að hann geti hafnað þátttöku í rannsókn og hvenær sem er hætt þátttöku eftir að hún er hafin. 

Þá má líka benda á samning um vernd mannréttinda og mannlegrar reisnar með hliðsjón af starfsemi á sviði líffræði og læknisfræði.

Mér vitanlega hefur Vísindasiðanefnd ekki veitt samþykki fyrir þessum lyfjatilraunum á fólki, þótt sú heimild eigi að liggja fyrir áður, hún hefur samkvæmt þessari frétt ekki einu sinni fengið umsókn um hana!

Ekki er heimilt að hefja vísindarannsókn á heilbrigðissviði nema vísindasiðanefnd eða siðanefnd heilbrigðisrannsókna hafi veitt leyfi fyrir rannsókninni.

Framkvæmd þessara "bólusetninga" var eins kolólögleg og hugsast getur!

Fólki var smalað eins og rollum í réttirnar í Höllina með SMS boðunum, engum lögum, stöðlum, siðareglum eða reglugerðum um svona lyfjatilraunir fylgt, eða fólk beðið um að veita upplýst samþykki sitt fyrir þátttöku sinni.

Svona hljóðaði ein af ógeðfelldu skipununum sem ég fékk, 7 mínútum eftir að ég "átti" að vera mætt:

(Kristín) Sóttvarnalæknir: hér er strikamerki fyrir bólusetningu 26.05.2021 klukkan 14:50.

Staðsetning: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Laugardalshöll aðalinngangur.

Aukaskammtur Pfizer. Mætið sem allra fyrst en í síðasta lagi 15:30. Bólusett í almannarými með Pfizer. Getum ekki lofað skammti. Munið grímuskyldu í Höllinni.

Seinna fékk ég samskonar skipanir um að koma í sprautur með einhverjum allt öðrum "bóluefnum".

Læknastéttin

Það blasir við að læknastéttin sem okkur hefur verið kennt að treysta, hefur brugðist okkur. Það skal enginn segja mér að enginn læknir hafi tekið á móti sjúklingi með alvarlegar aukaverkanir eftir sprauturnar, og ekki séð tengingar á milli skyndilegra veikinda, hjartaáfalla, heilablóðfalla, andláta - og sprautanna.

Hvers vegna beittu þeir sér ekki fyrir því sem læknar sem sóru eiðinn "fyrst, gerðu engan skaða", að þessar "bólusetningar" yrðu stöðvaðar strax og fyrstu tilkynningarnar um aukaverkanirnar og andlátin voru tilkynnt?

Yfir sex þúsund tilkynntar aukaverkanir virðast víst ekki teljast til skaða.

0409b

Hvað skýrir þögn íslenskra lækna og vísindamanna?

Aðeins örfáir læknar hafa tjáð sig opinberlega, þá helst barnalæknar minnir mig sem lýstu yfir áhyggjum sínum vegna "bólusetninga" á börnum, annars er heimilislæknirinn Guðmundur Karl Snæbjörnsson (Kalli Snæ) sá eini sem hefur tjáð sig um "bóluefnin", og skaðsemi þeirra.

Uppfærsla: Atli Árnason læknir fékk birta grein í Morgunblaðinu í janúar 2022, þar sem hann varar við þeirri fífldirfsku og mögulega faglegum hroka að ætla sér að sprauta börn með efni sem er með neyðarleyfi.

Hvað íslenskir læknar og vísindamenn ræða sín á milli prívat veit enginn nema þeir, en engir aðrir hafa komið fram opinberlega mér vitanlega til að vara fólk við.

En þúsundir erlendra hafa gert það, sem betur fer. Þeir eru að sjálfsögðu ritskoðaðir og fá ekki áheyrn í spilltu meginstraumsfjölmiðlunum.

Hvað veldur þessari ærandi þögn þeirra? Þrýstingur "að ofan", ótti um stöðumissi, hugleysi, hætta á missi rannsóknarstyrkja eða mútugreiðslna? Spyr sá sem ekki veit.

En með þögn sinni eru þeir búnir að gjaldfella læknaeiðinn sinn "fyrst, gerðu engan skaða", sem þeir sóru við viðtöku læknisréttinda sinna.

Megi þeir hafa ævarandi skömm fyrir.

Nürnberg réttarhöldin 1947

Þessi réttarhöld voru haldin af gefnu tilefni til þess að koma í veg fyrir hræðilegir atburðir endurtækju sig aftur.

The voluntary consent of the human subject is absolutely essential. This means that the person involved should have legal capacity to give consent; should be so situated as to be able to exercise free power of choice, without the intervention of any element of force, fraud, deceit, duress, overreaching, or other ulterior form of constraint or coercion; and should have sufficient knowledge and comprehension of the elements of the subject matter involved as to enable him to make an understanding and enlightened decision.

Nuremberg Code

The Nuremberg Code: The Universal Right of Informed Consent to Medical Interventions has been Recognized in US Law Since at least 1914.

Glæpirnir sem búið er að fremja gegn mannkyninu með þessum tilraunabóluefnum eru ærin tilefni til réttarhalda um allan heim í anda Nürnberg réttarhaldanna.

En hvað er raunverulega á bak við þessa stærstu glæpi sem framdir hafa verið gegn mannkyninu? Það má sjá meira um það hér í síðasta blogginu mínu.

 

 


Vaknið - það er hætta í aðsigi!

Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér, en ég óttast að við séum á leið inn í nýtt tímabil skimana, hafta og grímna, enda eru ýmis teikn á lofti um það.

Einnig er mikil hætta á að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin muni ná völdum yfir stjórnun á heilbrigðismálum heimsins, en ég reikna ekki með að fólk átti sig á hættunni sem af því stafar.

Rétt fyrir áramót sagði Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir þetta meðal annars í viðtali:

"Kæmi fram nýtt afbrigði gæti það skapað mjög mikinn usla hér".

Ef einhver veit ekki um hvað hún er að tala þarna, þá eru það afbrigði af "drápsvírusnum" ógurlega sem heil 82% landsmanna 5 ára og eldri teljast fullbólusettir gegn, og miðast það við tvo skammta af bóluefni.

210.670 einstaklingar hafa fengið að minnsta kosti þrjá skammta, og 60.483 fengið fjóra.

Það væri fróðlegt að vita hvers vegna hið marglofaða samfélagslega ónæmi virðist ekki hafa náðst ennþá, kannski hefur það bara ákveðið að fara í frí rétt eins og gamla góða flensan sem tók sér kurteisispásu til að hleypa "drápsvírusnum" að borðinu.

Nú er nýjasta ógnin víst enn og aftur upprunnin í Kína, og var hún tilefni fundar heilbrigðisyfirvalda með full­trú­um Sótt­varna­stofn­un­ar Evr­ópu og full­trú­um Alþjóðaheil­brigðis­stofn­un­ar­inn­ar (WHO) – ásamt öðrum lönd­um í Evr­ópu um út­breiðslu "drápspestarinnar".

Hér er stórt hættumerki!

„Ítal­ía er eina Evr­ópu­ríkið sem hef­ur tekið ákvörðun um aðgerðir. Það er samt frek­ar verið að mæla með að Evr­ópa sé með sam­hæfðar aðgerðir. Það er ekki gagn­legt að lönd séu að gera mis­mun­andi hluti“, seg­ir Guðrún (Áherslan er mín)

Ég get ekki lesið annað út úr þessu en að við verðum að vera undir það búin að þegar það kemur einhver tilskipun um "sóttvarnaraðgerðir" utan úr heimi, þá verðum við að gangast undir hana, enda gerði Þórólfur það margoft, og að fyrst verði byrjað á bölvuðu grímunum.

Hver man ekki eftir því að Þórólfur mælti ekki með grímunotkun í júní 2020, og sagði meðal annars að:

... notkun á andlitsgrímum geti leitt til þess að fólk gæti sín ekki eins vel á öðru fólki og að það sjáist vel að fólk sé stöðugt að káfa á grímunum. Grímunotkun geti því hugsanlega stuðlað að aukningu smita.

0109cEn sagði stuttu seinna að skoðun hans á grímum hafði breyst, það komu víst einhverjar frekari upplýsingar fram að hans sögn, án þess reyndar að gefa upp hverjar þær upplýsingar væru og hvaðan þær kæmu.

Og hann skellti á okkur grímuskyldu aftur og aftur, og auðmjúk veiruhrædd þjóðin hlýddi.

Þetta er allt eitthvað sem við höfum upplifað aftur og aftur í hátt í þrjú ár núna, fyrst var einhver hætta út í heimi sem við þurftum líklegast ekki að hafa miklar áhyggjur af.

Svo fór hættan að nálgast okkur og sóttvarnalæknir byrjaði að lýsa yfir áhyggjum sínum á ástandinu, en við gætum samt alveg verið róleg, í bili að minnsta kosti.

Hinir íslensku "froskar"

Við vorum "froskarnir" sem voru settir í volgt vatn þar sem við undum okkur afskaplega vel í öruggum faðmi Þórólfs sem stuttu síðar fékk heiðursorðu (ásamt hinum úr þríeykinu), fyrir að hafa leitt okkur svo vel út úr "heimsfaraldrinum".

Hefðum við verið sett ofan í of heitt vatn, hefðum við stokkið strax uppúr. En þar sem vatnið var bara volgt og notalegt í byrjun, þá tókum við ekkert eftir því að það hitnaði smám saman og fór að sjóða.

Ég er hér að vitna í frábæra grein "Hvernig skal sjóða íslenskan frosk" eftir Viggó Örn Jónsson sem allir ættu að lesa, en hún var birt á Visir.is þann 6. apríl 2021, og lokaorð hennar voru: Vel soðnir froskar eru hlýðnir froskar.

Það er leiðinlegt að þurfa að segja það, en stærstur hluti íslensku þjóðarinnar eru vel soðnir og hlýðnir "froskar" sem trúa flestu gagnrýnislaust sem þeir sjá, heyra og lesa í fjölmiðlunum, og hvað þá ef það kom frá Þórólfi meðan hann var í embætti.

Fólk hefur flykkst í þessi gagnslausu PCR próf, jafnvel fullfrískt, til að athuga hvort það sé veikt. Man einhver eftir þessum fáránlegu og bara fyndnu tilefnum sem Víðir tiltók sem tilefni til sýnatöku?

Svo fór það í stuttermabol í sprauturnar þegar það fékk SMS skipun um það. Fyrst áttu ein eða tvær að duga, svo var víst "nauðsynlegt" að bæta einni við, og svo nú í haust þeirri fjórðu. Samkvæmt opinberum gögnum hafa hvorki meira né minna en 60.483 manns farið í hana.

Þúsundir íslenskra manna, kvenna og barna hafa orðið fyrir aukaverkunum, sumum óafturkræfum eða hafa jafnvel látist eftir þessar eitursprautur eins og ég kalla þær.

En það þykir ekki fréttaefni hér á landi.

Hvers vegna kalla ég þetta eitursprautur?

Vegna þess að þær eru búnar að valda ómældum skaða um allan heim, og þrátt fyrir það er ennþá verið að hvetja fólk í fleiri sprautur. Frásagnir sem ég er búin að lesa um fórnarlömb "bóluefnanna" skipta þúsundum núna, og ég sé tugi nýrra á hverjum einasta degi, ekki þó á RÚV eða öðrum miðlum hér á landi sem eru á styrkjum frá ríkinu.

Skrif um fórnarlömb "bólusetninganna" má finna í mörgum eldri bloggum mínum.

En hér eru örfá dæmi:

Þann 21. maí 2022 skrifaði ég blogg þar sem ég spurði hvort fólk ætlaði að falla fyrir þessu eina ferðina enn, en þá var búið að boða nýjan "heimsfaraldur", nú af apabólu.

Sem betur fer tóku netverjar hressilega við sér með gríni og háði, sem virðist hafa reynst hið besta bóluefni gegn henni, enda hefur lítið spurst til þessa "faraldurs" síðan.

WHO ætlar sér að taka yfir heilbrigðismál heimsins, vissuð þið það?

Það þýðir það einfaldlega að hvenær sem þeim dettur í hug, geti þau lýst yfir einhverju neyðarástandi, hvort það sé vegna einhverra veira, eða jafnvel "loftslagsvárinnar" og hneppt okkur í hlekki og skikkað okkur í einhverjar sprautur þegar það "á við". Og við munum ekkert geta gert, við verðum bara að hlýða!

Enda er þau búin að boða röð faraldra smitsjúkdóma (<- lesið þetta) næstu 10 árin.

James Roguski

James Roguski er rannsakandi, rithöfundur, talsmaður náttúrulegrar heilsu og aðgerðarsinni sem telur að gömlu kerfin séu réttilega að hrynja, svo við verðum að byggja fljótt upp ný í stað þeirra.

Hann hefur afhjúpað skjöl varðandi breytingar á alþjóðalögum og gerir allt sem hann getur núna til að afhjúpa hina leynilega áætlun WHO.

Hann hefur lagst í gríðarlega mikla og vandaða rannsóknarvinnu til að fletta ofan af þessum óhugnanlegu áætlunum WHO um yfirtöku stjórnunar á heilbrigðismálum heimsins, og þetta þurfið þið að kynna ykkur vel og vandlega.

RED ALERT! WHO Has Written a REMOVAL of Human Dignity, Rights & Freedom

Núna er viti firrt elíta að fækka mannkyninu niður í "ásættanlegan fjölda" að þeirra mati, meðal annars með þessum eitursprautum, og athugið að nánast allt sem okkur hefur verið sagt að séu "samsæriskenningar", er að rætast eitt af öðru núna.

0106

Í þessu viðtali við hann sjáið þið að þessi yfirtaka WHO á heilbrigðismálum heimsins hefur ekkert með heilsu að gera, heldur að ná völdum yfir lífum okkar, og að sjálfsögðu peninga líka.

Áætlað er að hin ofurleynilega endurskoðunarnefnd um heilbrigðisreglur (IHRRC) komi saman núna 9.-13. janúar 2023, og ætla þeir að leggja fram breytingarnar 15. janúar 2023.

Vissuð þið að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) var bókstaflega sett á laggirnar til að starfa sem eins heims ríkisstjórn?

Eða að hún er í nánu samstarfi við The World Economic Forum (WEF), Bill Gates og fleiri sem ætla að skikka okkur til að búa á "15 mínútna svæðum" eins og á að gera í Oxford í Bretlandi árið 2024, og það undir fullkomnu rafrænu eftirliti?

Under the guise of "controlling traffic," officials are attempting to control the lives of the people in Oxford, England. This is a "test case" that must NOT be allowed to set a precedent.

Þessi illu öfl - sem hafa hvergi verið kjörin til slíks, telja sig mega fækka mannkyninu, "the useless eaters" sem þau kalla okkur, og láta þá sem eftir lifa, lifa undir fullkominni stjórn þeirra, og í kringum árið 2030 munum við ekkert eiga, og vera hamingjusöm samkvæmt því sem WEF er búið að tilkynna okkur.

Þessir illvirkjar eru ekkert að leyna áformum sínum og birta þau reglulega opinberlega á vefsíðum sínum. Leitið ykkur sjálf upplýsinga en ekki nota hið ritstýrða Google, ég nota oft yandex.com sem sýnir mér upplýsingar sem Google felur. 

Það sorglega er að þeim er að takast að ná fram áætlunum sínum, sem eru búnar að vera í undirbúningi áratugum saman.

Nema við öll sem eitt segjum nei við samþykkjum þetta ekki. En munum við sem mannkyn gera það?

Því miður er líklegra að við munum halda áfram að vera "soðnir froskar" sem munum segja: Ha, hvernig gat þetta gerst?

Þegar það verður orðið of seint og búið er að svipta okkur öllu svo hægt og rólega að við tókum ekki eftir því gerast.

0106a

 

 

 

 

 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband