Bloggfærslur mánaðarins, mars 2023

Stórfrétt! Einstaklingur höfðar einkamál gegn Pfizer vegna skaða sem hann hlaut af "bóluefninu" þeirra!

Sá stórkostlegi atburður hefur gerst að svissneskum fyrrverandi fjárfestingabankastjóra að nafni Pascal Najadi hefur tekist að höfða einkamál gegn svissneska forsetanum og Pfizer í Bandaríkjunum eftir að hafa orðið fyrir gríðarlegu heilsutjóni eftir "bólusetningarnar".

Hér má horfa á stutt viðtal sem hið sænska Swebbtv tók við hann á dögunum, eitthvað sem væri óhugsandi að myndi gerast í íslensku sjónvarpi.

Þar segir hann meðal annars að hann hefur látið færustu sérfræðinga gera blóðrannsóknir á sér sem ekki er enn lokið, en að fyrstu niðurstöður líti ekki vel út.

Þeir komust að þeirri niðurstöðu að frumurnar mínar séu skemmdar og í grundvallaratriðum sé frumuframleiðslan skemmd.

Með öðrum orðum, ég hef ekki næga framleiðslu á súrefni. Og súrefni er mikilvægt fyrir vélina til að ganga og hugsa. Og ég tapaði um 25 árum segja þeir af lífslíkum mínum.

Það er fyrsta staðfesta greiningin. Þetta er kallað sjálfsofnæmissjúkdómur vegna þess að hann ræðst stöðugt á ónæmiskerfið mitt allan sólarhringinn og ónæmiskerfið bregst við, en veit ekki af hverju það er að berjast. Svo það tekur orku allan daginn.

Þessi málsókn, sem væri óhugsandi og tilgangslaus í sumum löndum, gæti orðið tímamótamál til að afhjúpa blekkingarnar og svikin á bak við sprautuherferðina í heiminum og gæti valdið því að kóróna spilaborgin færi að hrynja, segir hér.

Með hugrekki sínu er hann að setja sjálfan sig og fjölskyldu í mikla hættu, því hann er ekki bara að fara gegn forseta Sviss, heldur líka bandaríska varnarmálaráðuneytinu og bandarískum stjórnvöldum.

Bandarískur dómari hefur því gefið út tímabundið nálgunarbann til að vernda fjölskyldu hans og lögfræðinga, og með því að gefa það út og afhenda sendiráðinu í Sviss, er bandaríska dómsmálaráðuneytið að gefa fyrirmæli um að svissnesk stjórnvöld verði að tryggja öryggi hans eða honum sé hótað á nokkurn hátt.

Breski forsætisráðherrann hefur fengið sömu leiðbeiningar, skyldi Najadi ferðast þangað, en hann hefur bæði svissneskan og breskan ríkisborgararétt.

Horfið á þetta!

Uppfært 28.03.23. Svona sjáið þið hvernig ritskoðunin er í heiminum í dag, YouTube er búið að taka vídeóið út, en hér er annað viðtal við hann á óritskoðaðri síðu.

Aðrar mikilvægar heimildir:

Á sama tíma á Íslandi

Hér á landi lýgur landlæknir því blákalt upp í opið geðið á þjóðinni að 400 manns hafi dáið úr Covid á síðasta ári, og arftaki Þórólfs bergmálar hana í drottningarviðtali á RÚV.

Og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins segir:

0314a

"Heilsugæslustöðvar bjóða nú upp á bólusetningu og örvunarskammta af bóluefni við Covid-19 án endurgjalds.

Fólk 60 ára og eldra og fólk með undirliggjandi sjúkdóma er hvatt til að þiggja örvunarskammt ef fjórir mánuðir eða meira eru liðnir frá síðustu bólusetningu. 

Aldur er einn stærsti áhættuþátturinn fyrir alvarlegum afleiðingum Covid-19 en örvunarbólusetning verndar fólk fyrir alvarlegum afleiðingum sjúkdómsins".

Hvar er gagnrýna hugsunin hjá Íslendingum?

Ég er ekkert viss um að þeir muni almennt gera sér grein fyrir mikilvægi þess að tekist hafi að höfða einkamál gegn svona bákni eins og Pfizer er, og hafa örugglega ekki heldur hugmynd um þá staðreynd að þetta er glæpafyrirtæki sem hefur þurft að greiða stærstu sekt sögunnar fyrir svik og ólöglega markaðssetningu ósamþykktra lyfja, eða 2.3 milljarða dollara.

Nei nei, allt of margir hlýða bara því sem þeim er sagt að gera, og yfir 16.500 Íslendingar eru búnir að fara í enn eitt bústið með Pfizer á þessu ári samkvæmt opinberum tölum.

Í boði íslenskra yfirvalda.

Hvers vegna voru þau - og eru enn svona viljug að sprauta okkur öll með genabreytandi mRNA líftæknilyfjum þrátt fyrir að þau séu þegar búin að stórskaða þúsundir Íslendinga, og örugglega drepa enn fleiri en við munum nokkurn tímann fá að vita?

Nennir enginn að pæla í því?

 

 

 

 

 

 

 

#kristínþormar #kthormar #kristinthormar #blog # mbl #covid #greinar #bóluefni #tilraunaefni #mannréttindi #glæpur_gegn_mannkyni #stöðvum_Sáttmála_WHO #aukaverkanir #verndum #börnin #stoptheshots #StöðvumWHO #stöðvumsprauturnar

 


Erum við óhult í háloftunum? Hversu heilbrigður er flugmaðurinn þinn, gæti hann fengið hjartastopp í miðju flugi?

Ég hef lengi velt því fyrir mér hvort ég ætti að skrifa um þetta viðfangsefni, því ég efa ekki að það muni vekja viðbrögð hjá fólki, og þá kannski sérstaklega þeim sem ferðast með flugvélum, og/eða eru flughræddir.

Flugáhafnir í Bandaríkjunum og fleiri löndum voru þvingaðar í þessar "bólusetningar" til að halda störfum sínum rétt eins og margar aðrar starfsstéttir.

Það eru því ekki bara "Jón og Gunna" sem hafa dáið skyndilega úr hjartaáföllum í heiminum undanfarin misseri, heldur líka flugmenn, og það jafnvel í miðju flugi eða rétt eftir lendingu.

Slíkar fréttir rata sjaldnast í meginstraumsfjölmiðlana, enda verulega óþægilegar hagsmunaaðilum, en hér má þó sjá nokkrar utan úr heimi um flugáhafnir sem fengu hjartaáföll, eða hreinlega dóu í fluginu.

Þarna segir kanadískur læknir sem skrifar þennan pistil líka að hann óttist að stórslys verði núna árið 2023 vegna skaða sem flugmenn hafi hlotið vegna "bóluefnanna".

Hann segist líka hafa verið í sambandi við flugmenn sem hafi gríðarlegar áhyggjur af öryggi flugferða í framtíðinni.

Sami læknir hefur fjallað um 132 kanadíska lækna sem eru látnir eftir að sprautuherferðin hófst, eins og lesa má hér.

Viðtal við flugstjóra sem fór í hjartastopp rétt eftir lendingu

Þarna er fyrrum flugstjórinn Bob Snow í viðtali hjá Tucker Carlson, en hann telur fullvíst að hjartastoppið sem hann fékk á síðasta ári örfáum mínútum eftir að hann hafði lent farþegaflugvél með 200 farþegum á Dallas-Forth Worth flugvellinum, hafi verið afleiðing "bólusetningarinnar".

Hefði hann enn verið á flugi er allsendis óvíst að hann hefði lifað þetta af.

Hann gagnrýnir Biden ríkisstjórnina og alríkisflugmálastjórnina (FAA) harðlega fyrir að hafa lögboðið þessi Covid "bóluefni" fyrir flugmenn á meðan þau voru enn á neyðarleyfi.

Þess má geta að enginn hefur haft samband við hann, hvorki vinnuveitandi hans né FAA virðast hafa nokkurn áhuga á því að rannsaka nákvæmlega hvað olli því að hann fór í hjartastopp inni í flugstjórnarklefanum.

Aðrir flugmenn sem hafa líka orðið fyrir bóluefnaskaða hafa haft samband við hann, og einn kollegi hans lést.

Heilsufar flugmanna

Dead PilotsEðli málsins samkvæmt þurfa flugmenn að vera við hestaheilsu, og gangast þeir undir ítarlegar læknisrannsóknir einu sinni til tvisvar (eftir aldri) á ári, þar með talið hjartalínurit.

Þau skrá rafvirkni hjartans til að gefa mælikvarða á heilbrigði þess, og ákveðnar breytur verða að vera uppfylltar til að flugmenn teljist hæfir til að fljúga.

En nú brá svo við að þann 22. október 2022 slakaði FAA hljóðlega á kröfunum um niðurstöður hjartalínurita sem eru nauðsynlegar til að flugmenn fá leyfi til að fljúga.

Nú þurfa niðurstöðurnar ekki að vera nákvæmari en svo að þær þurfa ekki lengur að gefa til kynna að flugmennirnir séu hugsanlega með hjartaskaða, sjúkdóma eða annað sem gæti stofnað farþegum í hættu ef þeir fá hjartaáföll eða veikist í miðju flugi.

Ætli EASA (Evrópureglugerðir) hafi gert sambærilegar breytingar á kröfum um hjartalínurit og FAA?

Lesa má meira um þessar breytingar FAA í Bandaríkjunum hér. Þær spurðust að sjálfsögðu út á endanum svo þeir urðu að viðurkenna að hjartalínurit (sumra) flugmanna væru ekki eðlileg.

Hér á Íslandi

Ég spurði fyrrverandi flugstjóra sem ég þekki út í stöðuna hér á Íslandi og þetta hafði hann að segja:

Þekki ekki tölur um “sprautaða” hjá ICE en veit að þó nokkrir eru ekki sprautaðir enda var ekki “bein” krafa - hins vegar var krafa bandarísku flugmálastjórnar bein eða óbein, ef menn ættu að fljúga til USA….
 
Ósprautaðir urðu að halda sig við Evrópuflug, skilst mér.

Sjáið hvað sprautuskaddaðir flugmenn, læknar og aðrir hafa að segja:

Uppfærsla 8. mars

Það er löngu kominn tími til að fólk fari að horfast í augu við staðreyndir og raunveruleikann. Þessi svokölluðu "bóluefni" hafa skaðað og/eða drepið milljónir, ef ekki tugmilljónir um allan heim, bæði flugmenn og aðra.

Það er líka kominn tími til að fólk beini reiði sinni að þeim sem að blekktu það í þessar eitursprautur - og eru meira að segja enn að því, sbr. nýi sóttvarnalæknirinn okkar, en ekki þeim sem eru búnir að reyna að segja því sannleikann í heil þrjú ár núna.

0131g

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Á að hætta að segja sannleikann til að hlífa viðkvæmum sálum sem vilja ekki sjá hann?

Þegar ég kveikti á tölvunni í morgun biðu mín áhugaverð skilaboð frá Facebook vini sem við skulum kalla Jón, sem urðu mér tilefni til þessara skrifa.

Hann er einn af "álhöttunum" eins og ég, flottur baráttumaður sem styður okkur hin 100% í okkar sameiginlegu baráttu, og er mjög duglegur sjálfur að setja inn fræðandi efni á Facebook síðu sína.

Hann sagðist hafa sent skeptískum (vel menntuðum) vini sínum bloggið mitt um drottningarviðtölin á RÚV, og sá hefði brugðist illa við og hreinlega fríkað út yfir þessari fullyrðingu minni:

Sannleikurinn um þessi "bóluefni" er að þau skaða og drepa, punktur. Enda var leikurinn til þess gerður. Verið er að fækka mannkyninu núna niður í "ásættanlegan fjölda", samkvæmt aðgerð viti firrtra auðkýfinga sem ætla sér að ná alræði yfir heimsbyggðinni.

Jón segist alveg geta skilið hans afstöðu, um að þessi fullyrðing fæli frá og dragi úr trúverðugleika okkar.

Ég skil vel að fyrir suma geti þetta verið sjokkerandi, en er ekki sammála því að þetta dragi úr trúverðugleika okkar.

Hvernig getur það að 0106esegja fólki sannleikann um eitursprauturnar og þessar aðgerðir gegn mannkyninu sem eru í gangi núna gert það?

Og ekki hvað síst um það að íslensk stjórnvöld, landlæknir, núverandi og fyrrverandi sóttvarnalæknar og fleiri séu séu fullir þátttakendur í þessum glæpum gegn okkur.

Fólki væri nær að gera sínar eigin rannsóknir ef það trúir ekki neinu af þessu, í stað þess að kalla okkur jafnvel vitleysinga og geðsjúklinga.

Og koma þá með sannanir fyrir því að þessar "samsæriskenningar" okkar séu bara samsæriskenningar.

Við Jón áttum fínar samræður í framhaldi af þessu, þar sem ég útskýrði afstöðu mína fyrir honum, og að þetta væri staðreynd en ekki fullyrðing, enda hef ég í ótal bloggum sett fram staðreyndir og sannanir máli mínu til stuðnings.

Svo spurði ég hann hvort vinurinn hefði lesið allt bloggið og smellt á hlekkina sem ég setti inn, en hann hélt að þarna hefði hann stoppað og ekki lesið lengra.

Einmitt, eins og mig grunaði svosem.

Ég sagði Jóni að ég væri fjúkandi reið yfir þessum "fréttaflutningi" og drottningarviðtölum á RÚV, sem eru einungis til þess að halda fólki áfram í þessum tilhæfulausa ótta, og að þess vegna hefði ég kannski verið aðeins beinskeyttari en venjulega.

Ég sagði líka við hann að þótt ég breytti þessari setningu þá myndi það ekki skipta neinu máli, því vinurinn vill ekki sjá sannleikann hvort eð er.

Nú hef ég ekki hugmynd um hvort þessi einstaklingur sé sprautaður eða ekki, en þykir það ekki ólíklegt miðað við viðbrögðin.

0107lEn ef svo er, er þá ekki tími kominn til þess að hann vakni upp við þá nöturlegu staðreynd að hann hafi verið stórkostlega blekktur eins og meiri hluti þjóðarinnar, og verði alveg brjálaður - og þá út í rétta aðila?

Jón sagði að fólk kaupi einfaldlega ekki rök okkar sem segi sannleikann, afgreiði okkur sem vitleysinga, og að við hefðum næg verkefni til að einbeita okkur að sem færu ekki svona þvert í mannskapinn og gæfi óþarfa höggstað á okkur.

Ég var ekki alveg sammála honum, mitt svar var að staðreyndir eyðileggi engan málstað, en lygar og falsfréttir geri það, og að meðvirkni með sofandi fólki hjálpi engum.

Og ég stend við það, það hjálpar engum að fara kringum hlutina, köllum skóflu bara skóflu.

Ég vil þó taka fram að þetta voru fínar samræður okkar á milli þar sem bara var skipst á skoðunum. Við vorum ekki endilega sammála um allt, en það er bara í góðu lagi.

RÚV í hnotskurn

0131f

 


Enn fær þetta lið óheftan aðgang í drottningarviðtöl á RÚV!

Í gær birtist frétt þar sem haft var eftir Ölmu Möller landlækni að 400 manneskjur hefðu látist úr veirunni ógurlegu árið 2022.

Ég skrifaði stuttan pistil þar sem ég sýndi fram á rakalausan lygavaðal hennar í þessu viðtali, þar sem hún fær algjörlega gagnrýnislaust að bera haugalygi á borð fyrir þjóðina.

Sannleikurinn um þessi "bóluefni" er að þau skaða og drepa, punktur. Enda var leikurinn til þess gerður. Verið er að fækka mannkyninu núna niður í "ásættanlegan fjölda", samkvæmt aðgerð viti firrtra auðkýfinga sem ætla sér að ná alræði yfir heimsbyggðinni.

Aðgerðin gengur alveg "ljómandi vel" núna með tilkomu eitursprautanna, og tugir, ef ekki hundruðir milljóna eru skaddaðir fyrir lífstíð eða hreinlega dauðir núna á heimsvísu, allt niður í kornabörn!

Í dag fær nýr sóttvarnalæknir, sem er nota bene greinilega vel skólaður af forvera sínum sitt drottningarviðtal á RÚV, sem segist vera "okkar allra", eins mikill brandari og það er nú.

Erfitt að segja hvort farið hafi verið of geyst í afléttingar, segir hún

Sóttvarnalæknir segir erfitt að segja til um hvort farið hafi verið of hratt í afléttingar á sóttvarnartakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra. Andlátum vegna covid fjölgaði mjög hratt eftir að sóttvarnarreglur voru afnumdar.

Allt afléttingunum að kenna!

Miklar tilslakanir voru gerðar á sóttvarnartakmörkunum í lok janúar í fyrra, og mánuði síðar, 25. febrúar, var öllum sóttvarnaraðgerðum aflétt. Um leið fjölgaði smitum gríðarlega, fór úr um það bil þúsund á dag í janúar yfir í allt að fimm þúsund á dag í febrúar. Samhliða því fjölgaði dauðsföllum vegna covid hratt.

Einmitt ...

Mikill meirihluti Íslendinga er bólusettur við covid. Guðrún segir ekkert benda til þess að bólusetningarnar hafi stuðlað að dauðsföllum. „Það eru engar vísbendingar um það,“ segir Guðrún. Þvert á móti veiti bólusetningar vörn gegn veirusýkingum. „Þessi andlát árið 2022 voru klárlega tengd þessum bylgjum covid-smita þannig að það eru engar vísbendingar um að bólusetningar hafi neitt með það að gera,“ segir Guðrún.

Lesa má restina af þessum glæpsamlegu lygum hér.

Aðspurð segir hún að ekki liggi enn fyrir hversu margir þeirra sem létust hafi verið "bólusettir".

Því spyr ég, hvernig er þá hægt að fullyrða að þessar 400 manneskjur hafi dáið úr Covid, án krufninga?

Líflegar umræður spunnust á Facebook veggnum mínum þegar ég póstaði þar bloggi gærdagsins, og ég tók mér það bessaleyfi að taka þessa skjámynd af nokkrum athugasemdum þar undir.

0303a

Við álhattaberandi samsæriskenningasmiðirnir sem létum ekki sprauta okkur höfum flest, ef ekki öll sömu sögu að segja um ættingja og vini sem létu blekkjast í eitursprauturnar.

Við vitum um og/eða þekkjum öll:

  • Fólk sem hefur skyndilega og án nokkurs fyrirvara orðið bráðkvatt, oft kornungt fólk.
  • Fólk í bata af krabbameini sem var allt í einu komið með bullandi krabbamein aftur, og núna ólæknandi.
  • Fólk sem fékk sjaldgæf krabbamein og dó.
  • Konur sem glíma núna við brjóstakrabbamein.
  • Konur sem hafa misst fóstur, fætt andvana börn, eða eru orðnar ófrjóar.
  • Fólk sem var áður hraust og heilbrigt en grípur núna allar pestir og er alltaf veikt.

Ég er búin að blogga um þessa glæpi í tæp tvö ár núna, hér eru örfá dæmi:

Afsakið, en það bara sýður á mér þessa dagana, það er óboðlegt að RÚV sem við erum öll neydd til að halda uppi með skattpeningunum okkar, birti endalaust bara eina hlið mála, og ekki bara það, heldur fordæmalausar lygar.

Og ég er líka alveg við það að missa trú á Íslendingum, sem virðast upp til hópa hafa lokað fyrir öll skilningarvit.

Það mun líklega fara ljómandi vel um þá í 15 mínútna borgunum.

 


Eru þetta góð meðmæli með "bóluefnunum"?

Alma Möller landlæknir, sem hefur ekki sést lengi er núna skriðin upp úr holunni sinni með nýjustu tölurnar um andlát sem hún segir vera vegna veirunnar ógurlegu.

Hvernig getur hún sannað þetta, voru þessir 400 einstaklingar krufnir?

Fyrst voru tölurnar c.a. 200, en nú allt í einu 400. Gleymum því ekki að hún sat lengi á 2.000 tilkynningum um aukaverkanir árið 2021!

Gleymum því ekki heldur að hún forðaði aldraðri tengdamóður sinni frá sprautunum í ársbyrjun 2021, og þegar það spurðist út voru starfsmenn hjúkrunarheimilisins teknir í þriðju gráðu yfirheyrslur og að lokum var saklausum hjúkrunarfræðingi sagt upp störfum þar.

Uppfærsla - ég var að fá ábendingu um frétt af þessu máli frá 2021: Alma sögð hafa bannað bólusetningu náins aðstandanda - Leki kærður til Persónuverndar og lögreglu. Einnig að eiginmaður Ölmu sé hjartalæknir, er það skýringin á því að hann forðaði henni frá sprautunni?

Hvað finnst ykkur, eru þessar niðurstöður hennar góð meðmæli með "bóluefnunum" sem stærstur hluti þjóðarinnar hefur verið sprautaður með - sumir nokkrum sinnum?
 
Áttu "bóluefnin" (sem eru ekki bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til) ekki að bjarga okkur út úr "heimsfaraldrinum"?
 
Vonandi fer fólk að sjá í gegnum þennan rakalausa lygaþvætting, eitursprauturnar skaða og drepa, en bjarga fáum eða engum lífum, eins og sjá má örfáar sannanir um hér:
Afsakið, en ég get bara ekki setið á mér þegar ég sé svona rakalausar lygar, og ég er búin að skrifa ótal blogg undanfarin tvö ár sem sanna mál mitt.
 
Farið að hugsa út í það hvers vegna nákvæmlega sama handriti og hræðsluáróðri var beitt í öllum löndunum sem gengu hvað harðast fram í að blekkja fólk í þessar sprautur.
 
Sömu löndum og ætla að samþykkja alræðisvald glæpastofnunarinnar WHO yfir heilbrigðismálum heimsins.
 
0302
 
 
 
 
0302a
 
Fíllinn í stofunni
 
0205d
 
Hvenær ætlar þjóðin að vakna - og segja nei við fleiri sprautum?
 
 

mbl.is Líklegt að 400 hafi látist vegna Covid-19 í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband