Bloggfærslur mánaðarins, júní 2021

Tilkynningum fjölgaði um 98 frá í gær, og þar af 2 alvarlegum, og eru komnar upp í 1.870!!!!

Lyfjastofnun var sein að senda út nýjustu tölur um aukaverkanir, en sjáiði fjölgunina, hvað er eiginlega í gangi?!! 

Í dag, föstudaginn 25. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.870, voru 1.772 í gær, svo þetta er fjölgun um 98 frá í gær!!!

Pfizer var með 667 tilkynningar, þar af 21 andlát og 36 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 725. Fjölgun um 48.

Moderna var með 314, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 332. Fjölgun um 18.

AstraZeneka var með 625, þar af 4 andlát og 46 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 633. Fjölgun um 8.

Janssen var með 156, þar af 4 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 180. Fjölgun um 24.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 124, þar af 25 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 83 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 934 síðan þá.

Pressa á unga fólkið

Það er mikil pressa í gangi í heiminum í dag að fá unga fólkið sem er ekki í neinni hættu vegna Covid í sprauturnar.

Til dæmis kom tilkynning frá Bandaríkjaforseta lesin upp af Dr. Fauci sem búið er að standa að ótal lygum varðandi faraldurinn, um að "Delta afbrigðið" væri meira smitandi, banvænna og sé að breiðast hratt um heiminn, svo að unga fólkið sé í enn meiri hættu en fyrr.

Svo kemur ákall til unga fólksins að bólusetja sig ef það sé ekki þegar búið að gera það. Verum á undan afbrigðinu áður en það verður of seint segir "meistarinn".

"Deadly Variants or Political Scariants"

Ivor Cummins er írskur efnaverkfræðingur sem hefur mikið fjallað um þennan faraldur, og allt sem hann hefur sagt hingað til er byggt á raunverulegum opinberum gögnum og staðreyndum, en ekki lygum úr meginstraumsfjölmiðlunum.

Hér hrekur hann fullkomlega þessar lygar um þetta Delta afbrigði sem fjölmiðlar blása upp sem eitthvað svakalega hættulegt!

Íslensku lygarnar

Á visir.is birtist innlend frétt í gær um breyttan tíðahring kvenna eftir bólusetningar, og að 78 tilkynningar um það hafi borist til Lyfjastofnunar. Að sjálfsögðu er eins og alltaf tekið fram að ekki sé vitað um orsakasamhengi milli bólusetningar og tilkynntra aukaverkana.

Sérlegur útvörður bólusetninganna, læknirinn Jón Magnús Jóhannesson segir í fréttinni: "Ó­reglu­legar blæðingar eftir bólu­setningu or­sakast lík­lega af hita". Svo fór hann nú sem oftar á kostum í athugasemdakerfinu, og ver þessi tilraunaefni af mikilli ástríðu, og segir meðal annars:

"Enginn langtímafylgikvilli bólusetninga hefur komið fyrst fram 3 mánuðum eða síðar frá gjöf bóluefnis. Allir helstu sérfræðingar í þessum efnum telja ekki þörf á lengri eftirfylgdartíma en 3 mánuði vegna þessa."

Eru þá til dæmis 25 andlát ekki óafturkræfur langtimafylgikvilli bólusetninga? 

Þetta svar við þvaðrinu í honum er snilld:

"Þeir geta ekki gert rannsókn á langtíma áhrifum nema þeir eigi tímavél."

Kona ein segir í athugasemd:

"Ég fékk Moderna og á rúmum mánuði fór ég 4 sinnum á blæðingar, hófst 2 dögum eftir fyrri sprautu og mér var ráðlagt að tilkynna þetta til Lyfjastofnunar enda engin önnur breyting í mínu lífi nema ég fór í bólusetningu. Þetta er mjög svo óvenjulegt fyrir mig og ég hef aldrei nokkurn tímann fyrr lent í einhverju álíka áður í tengslum við minn tíðahring".

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir gerði þessu frábær skil í nýlegu bloggi sínu þar sem hún birtir skjáskot úr innlendum Facebook grúppum þar sem tugir kvenna tjá sig um aukaverkanir eftir sprauturnar.

Þessi síða heldur utanum tilkynntar aukaverkanir í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þar getið þið séð umfjallanir um skelfilegar aukaverkanir og andlát, eitthvað sem er skipulega þrætt fyrir og þaggað niður hér á landi.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir segir að öll bóluefni séu góð og að það sé hættulegra að fara út í búð en láta sprauta sig, og Þórólfur segir að aukaverkanir séu mjög sjaldgæfar, og miklu sjaldgæfari en af Covid sýkingu.

Hverjir eru eiginlega að ljúga, og hvers vegna?


Nú er búið að tilkynna um 15.472 andlát og 1.509.266 aukaverkanir í Evrópu!

EuroVigilance safnar saman tilkynningum í Evrópu fyrir þau 27 lönd sem eru í Evrópusambandinu, þannig að tölur fyrir álfuna eru að öllum líkindum miklu hærri.

Síðasta uppfærsla frá 19 júní er alveg skelfileg!

"Total reactions for the experimental mRNA vaccine Tozinameran (code BNT162b2,Comirnaty) from BioNTechPfizer: 7,420 deaths and 560,256 injuries to 19/06/2021

  • 16,133   Blood and lymphatic system disorders incl. 81 deaths
  • 12,637   Cardiac disorders incl. 964 deaths
  • 101      Congenital, familial and genetic disorders incl. 6 deaths
  • 7000     Ear and labyrinth disorders incl. 4 deaths
  • 265      Endocrine disorders incl. 1 death
  • 8,122    Eye disorders incl. 17 deaths
  • 51,030   Gastrointestinal disorders incl. 348 deaths
  • 155,486  General disorders and administration site conditions incl.             2,290 deaths
  • 468      Hepatobiliary disorders incl. 31 deaths
  • 6,110    Immune system disorders incl. 32 deaths
  • 17,549   Infections and infestations incl. 762 deaths
  • 6,275    Injury, poisoning and procedural complications incl. 104               deaths
  • 13,249   Investigations incl. 285 deaths
  • 4,162    Metabolism and nutrition disorders incl. 139 deaths
  • 79,125   Musculoskeletal and connective tissue disorders incl. 88               deaths
  • 325        Neoplasms benign, malignant and unspecified (incl. cysts and polyps) incl. 23 deaths
  • 100,895 Nervous system disorders incl. 780 deaths
  • 384        Pregnancy, puerperium and perinatal conditions incl. 10 deaths
  • 107        Product issues
  • 9,928     Psychiatric disorders incl. 105 deaths
  • 1,765     Renal and urinary disorders incl. 115 deaths
  • 2,696     Reproductive system and breast disorders incl. 3 deaths
  • 23,689   Respiratory, thoracic and mediastinal disorders incl. 848 deaths
  • 26,641   Skin and subcutaneous tissue disorders incl. 66 deaths
  • 846        Social circumstances incl. 10 deaths
  • 281        Surgical and medical procedures incl. 19 deaths
  • 14,987   Vascular disorders incl. 289 deaths

Total reactions for the experimental mRNA vaccine mRNA-1273 (CX-024414) from Moderna: 4,147 deathand 122,643 injuries to 19/06/2021

 
  • 2,239     Blood and lymphatic system disorders incl. 29 deaths
  • 3,315     Cardiac disorders incl. 446 deaths
  • 39        Congenital, familial and genetic disorders incl. 3 deaths
  • 1,454     Ear and labyrinth disorders
  • 82        Endocrine disorders incl. 1 death
  • 1,883     Eye disorders incl. 7 deaths
  • 10,655   Gastrointestinal disorders incl. 142 deaths
  • 33,936   General disorders and administration site conditions incl. 1,759 deaths
  • 209       Hepatobiliary disorders incl. 11 deaths
  • 1,117     Immune system disorders incl. 5 deaths
  • 3,835     Infections and infestations incl. 234 deaths
  • 2,480     Injury, poisoning and procedural complications incl. 77 deaths
  • 2,670     Investigations incl. 89 deaths
  • 1,297     Metabolism and nutrition disorders incl. 85 deaths
  • 15,131   Musculoskeletal and connective tissue disorders incl. 77 deaths
  • 128        Neoplasms benign, malignant and unspecified (incl. cysts and polyps) incl. 15 deaths
  • 21,684   Nervous system disorders incl. 424 deaths
  • 255        Pregnancy, puerperium and perinatal conditions incl. 2 death
  • 20           Product issues
  • 2,437     Psychiatric disorders incl. 69 deaths
  • 807        Renal and urinary disorders incl. 52 deaths
  • 459        Reproductive system and breast disorders incl. 1 death
  • 5,640     Respiratory, thoracic and mediastinal disorders incl. 399 deaths
  • 6,538     Skin and subcutaneous tissue disorders incl. 28 deaths
  • 504        Social circumstances incl. 13 deaths
  • 397        Surgical and medical procedures incl. 38 deaths
  • 3,432     Vascular disorders incl. 141 deaths

Total reactions for the experimental vaccine AZD1222/VAXZEVRIA (CHADOX1 NCOV-19) from Oxford/ AstraZeneca3,364 deathand 793,036 injuries to 19/06/2021

  • 9,136     Blood and lymphatic system disorders incl. 132 deaths
  • 12,135   Cardiac disorders incl. 396 deaths
  • 95           Congenital, familial and genetic disorders incl. 2 deaths
  • 8,797     Ear and labyrinth disorders
  • 309        Endocrine disorders incl. 2 deaths
  • 13,459   Eye disorders incl. 12 deaths
  • 81,806   Gastrointestinal disorders incl. 161 deaths
  • 212,663 General disorders and administration site conditions incl. 891 deaths
  • 525        Hepatobiliary disorders incl. 25 deaths
  • 3,085     Immune system disorders incl. 11 deaths
  • 17,791   Infections and infestations incl. 217 deaths
  • 7,854     Injury, poisoning and procedural complications incl. 77 deaths
  • 16,731   Investigations incl. 79 deaths
  • 9,765     Metabolism and nutrition disorders incl. 50 deaths
  • 123,637 Musculoskeletal and connective tissue disorders incl. 45 deaths
  • 332        Neoplasms benign, malignant and unspecified (incl. cysts and polyps) incl. 8 deaths
  • 169,286 Nervous system disorders incl. 532 deaths
  • 223        Pregnancy, puerperium and perinatal conditions incl. 4 deaths
  • 103        Product issues
  • 14,931   Psychiatric disorders incl. 27 deaths
  • 2,809     Renal and urinary disorders incl. 29 deaths
  • 5,967     Reproductive system and breast disorders
  • 26,631   Respiratory, thoracic and mediastinal disorders incl. 387 deaths
  • 36,457   Skin and subcutaneous tissue disorders incl. 22 deaths
  • 772        Social circumstances incl. 4 deaths
  • 671        Surgical and medical procedures incl. 16 deaths
  • 17,066   Vascular disorders incl. 235 deaths

Total reactions for the experimental COVID-19 vaccine JANSSEN (AD26.COV2.S) from Johnson & Johnson541 deaths and 33, 331 injuries to 19/06/2021

  • 306        Blood and lymphatic system disorders incl. 16 deaths
  • 496        Cardiac disorders incl. 56 deaths
  • 14         Congenital, familial and genetic disorders
  • 177        Ear and labyrinth disorders
  • 8          Endocrine disorders incl. 1 death
  • 383        Eye disorders incl. 3 deaths
  • 3,086     Gastrointestinal disorders incl. 23 deaths
  • 8,761     General disorders and administration site conditions incl. 137 deaths
  • 52           Hepatobiliary disorders incl. 4 deaths
  • 85           Immune system disorders
  • 392        Infections and infestations incl. 13 deaths
  • 320        Injury, poisoning and procedural complications incl. 8 deaths
  • 2,003     Investigations incl. 37 deaths
  • 184        Metabolism and nutrition disorders incl. 10 deaths
  • 5,718     Musculoskeletal and connective tissue disorders incl. 17 deaths
  • 16           Neoplasms benign, malignant and unspecified (incl. cysts and polyps)
  • 7,093     Nervous system disorders incl. 68 deaths
  • 9             Pregnancy, puerperium and perinatal conditions incl. 1 death
  • 9             Product issues
  • 355        Psychiatric disorders incl. 5 deaths
  • 119        Renal and urinary disorders incl. 8 deaths
  • 114        Reproductive system and breast disorders
  • 1,130     Respiratory, thoracic and mediastinal disorders incl. 43 deaths
  • 804        Skin and subcutaneous tissue disorders incl. 2 deaths
  • 72           Social circumstances incl. 3 deaths
  • 336        Surgical and medical procedures incl. 26 deaths
  • 1,289     Vascular disorders incl. 60 deaths"

Íslenskar lygar!

Ég er ekki enn búin að ná utanum lygarnar í Þórólfi og Ragnheiði í viðtali um daginn, þar sem þau lugu blákalt upp í opið geðið á þjóðinni um þessi svokölluðu bóluefni. 

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Þannig að ungar konur ættu ekki að hræðast bólusetningu með Janssen?

„Nei, nei,“ segir Þórólfur.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tekur í sama streng og Þórólfur. „Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (áherslubreyting mín).

Hvað segiði, hvort trúið þið frekar Þórólfi og Ragnheiði, eða gögnunum úr EudraVigilance?

 

 


Áfram fjölgar tilkynntum aukaverkunum, 18 nýjar og þar af 2 alvarlegar, og er flugið í hættu?

Í dag, fimmtudaginn 24. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.772, voru 1.754 í gær, svo þetta er fjölgun um 18.

Pfizer var með 668 tilkynningar, þar af 21 andlát og 34 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 677. Fjölgun um 9.

Moderna var með 312, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 314. Fjölgun um 2.

AstraZeneka var með 621, þar af 4 andlát og 46 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 625. Fjölgun um 4.

Janssen var með 153, þar af 4 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 156. Fjölgun um 3.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 122, þar af 25 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 81 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 934 síðan þá.

Hvers vegna liggur núna svona gríðarlega á því að bólusetja alla heimsbyggðina gegn veikindum sem langflestir lifa af, og hvað liggur svona á að sprauta ungt og heilbrigt fólk sem er varla í nokkurri einustu hættu?

Ef allt væri "eðlilegt" þá væri löngu búið að stöðva þessar svokölluðu bólusetningar, sem þegar eru búnar að stórskaða og drepa fólk um allan heim.

Svínaflensubólusetningum var hætt í Bandaríkjunum árið 1976 eftir að 40 milljónir höfðu verið bólusettar og 25 andlát og yfir 500 tilfelli af "Guillain-Barre" sem voru mögulega tengd þeim.

Núna skipta andlátin þúsundum, en áfram skal haldið eins og ekkert hafi í skorist.

Hvað með flugið?

Spænsk og rússnesk flugfélög hafa varað bólusett fólk við að fljúga vegna hættu á blóðtöppum, og að sjálfsögðu fá þær fréttir ekki mikið pláss í meginstraumsfjölmiðlunum.

33 ára bandarískur flugmaður er orðinn óvinnufær, og 4 breskir flugmenn á besta aldri urðu bráðkvaddir með nokkurra daga millibili, sjá hér.

Dr. Jane Ruby er heilsuhagfræðingur sem þekkir vel bandaríska lyfjaiðnaðinn og í þessu vídeói fjallar hún um innherjaupplýsingar sem hún hefur komist yfir varðandi flugmenn og bólusetningar.

Lokaorðin hennar eru, ég keyri bara bílinn minn héðan í frá.

 

 

 


Bresk móðir furðar sig á því hversu auðtrúa og hlýðið fólk hafi verið í þessum faraldri!

Í hreinskilni sagt á ég erfitt með að trúa hversu auðtrúa og hlýðið fólk um allan heim er, segir bresk kona að nafni Christina England.

Ég sver, að ef ríkisstjórnin tilkynnti á morgun að þú gætir smitast af veirunni ef þú hoppaðir ekki hundrað sinnum á dag, myndu framleiðendur ekki bara hanna "app" til að kenna fólki bestu aðferðirnar til að hoppa, heldur líka annað til að fylgjast með hvort fólk væri ekki örugglega að hlýða.

Kæra fólk, farið nú að vakna, hvað ætlið eiginlega að umbera það lengi að vera sagt hvað þið eigið að gera, og hvernig þið eigið að gera það?

Henni þykir það líka óbærilega sorglegt að meirihluti Englendinga sé ennþá að hlýða hverri einustu reglugerð sem Mr. Johnson og hans kónar setji á. Þeir virðist núorðið ekki sjá neitt óeðlilegt við það að þurfa að bera grímur alls staðar, og forðist ennþá nálægð við annað fólk, sama hversu óþægilegt það geti verið.

Í rauninni séu margir orðnir svo hræddir við veiruna að þeir hafi gripið til örþrifaráða sér til varnar. (Sjá myndir hér).

Svo eru það foringjarnir og fyrirmennin!

Á nýlega yfirstöðnum leiðtogafundi G7 ríkjanna mátti sjá viðstadda í hnapp í innilegum samræðum, enda alltaf gaman að hitta gamla og góða vini.

Svo var komið að myndatökum, þá mátti sjá viðstadda stilla sér upp fyrir  með lögboðnu bili á milli sín og grímur.

Þvílíkt leikrit!

Og hugsið ykkur, þetta er SAMA fólkið og er búið að setja lönd sín á hliðina með öllum sínum skelfilegu aðgerðum undanfarið tæpt eitt og hálft ár.

Hún segir líka að það sé ófyrirgefanlegt hvað verið sé að gera börnunum. Nú hafi áhyggjulaus barnæskan vikið fyrir reglum og reglugerðum, þau megi ekki lengur sitja hjá vinum í skólastofunni, og mörg finni fyrir einangrun og vanlíðan.

Þeim sé kennt að það sé gott að bera grímur, að nauðsynlegt sé að spritta hendur og það þurfi stanslaust að þvo hendurnar.

Er það svona sem við viljum að börnin okkar alist upp spyr hún? Viljum við foreldrarnir að þetta verið "normið" fyrir þau, og geti foreldrar ekki séð hvaða skelfilegu áhrif þetta hafi á sálarlíf þeirra, þannig að börn allt niður í fimm ára gömul séu orðin veik á geði?

Þetta er mjög góð grein, og þessi kona talar fyrir munn margra. Lesið hana endilega alla til enda.

Þessir þjóðarleiðtogar eru búnir að sýna í þessum "faraldri" að þeir sjálfir margbrjóta allar reglur sem þeir ætlast til að aðrir fari eftir. "One rule for thee and one for me".

Og hér á Íslandi

Við erum líka búin að sjá að þau sem ætla sér að láta sprauta alla íslensku þjóðina með þessum tilraunaefnum, hverju sem tautar og raular, bera svo sannarlega ekki hag þjóðar sinnar sér fyrir brjósti.

Í þessu bloggi vísa ég beint í orð Þórólfs og Ragnheiðar:

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Þannig að ungar konur ættu ekki að hræðast bólusetningu með Janssen?

„Nei, nei,“ segir Þórólfur.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tekur í sama streng og Þórólfur. „Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (áherslubreyting mín).

Nú eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.754, þar af 25 andlát og 95 aðrar lífsógnandi. Kallast það örlitlar aukaverkanir?

Og þessi kona lýgur því blákalt að það sé örugglega meiri hætta af því að fara út í búð heldur en að láta sprauta sig!

Er fólk virkilega enn að trúa því að það þurfi að sprauta okkur öll gegn veiru sem fáa leggur aðra að velli en háaldrað fólk?

Og nú er sóttvarnarlæknir að ráðleggja óbólusettum frá "ónauðsynlegum" ferðalögum. Er það til að fá þessa "þrjósku" í sprauturnar?

Hvenær ætlar fólk að fara að sjá í gegnum þennan blekkingarleik sem er í gangi í heiminum í dag?

 


Tilkynningum um aukaverkanir fjölgaði um 14 frá í gær, og andlátin eftir sprauturnar eru 25 en ekki 23!

Í dag, miðvikudaginn 23. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.754, voru 1.740 í gær, svo þetta er fjölgun um 14.

Pfizer var með 662 tilkynningar, þar af 21 andlát og 34 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 668. Fjölgun um 6.

Moderna var með 311, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 312. Fjölgun um 1.

AstraZeneka var með 619, þar af 4 andlát og 45 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 621. Fjölgun um 2.

Janssen var með 148, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 153. Fjölgun um 5.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 120, þar af 25 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 79 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 934 síðan þá.

Samkvæmt nýrri frétt á mbl.is um fjölda alvarlegra aukaverkana á hvert bóluefni eru andlátin tveimur fleiri en áður hefur verið gefið upp! Eitt vegna Pfizer og annað vegna AstraZeneka.

"Þess ber að geta að flest­ar til­kynn­ing­arn­ar um and­lát bár­ust í janú­ar 2021, þegar elsti og hrumasti hóp­ur­inn var bólu­sett­ur hér­lend­is. Land­lækn­ir hef­ur birt niður­stöður úr sér­stakri rann­sókn sem var gerð í kjöl­far þess­ara til­kynn­inga. Sam­kvæmt henni er ekk­ert sem bend­ir til or­saka­sam­heng­is milli and­láta og bólu­setn­inga."

Nei nei, að sjálfsögðu eru aldrei nein tengsl þarna á milli, þetta er greinilega ár hinna mörgu tilviljana!

Búið er að standa Þórólf og Ragnheiði að segja ósatt um þessi efni, hann sagði að aukaverkanir væru mjög sjaldgæfar, og hún sagði að öll bóluefni væru góð.

Hópur Bandaríkjamanna sem hefur orðið fyrir skaða vegna þessara tilraunaefna hefur sett upp vefsíðu þar sem þau fjalla um sína reynslu eftir sprauturnar. 

"WHO WE ARE: 

  • We are a large and ever growing group of Americans who were previously healthy and have been seriously injured by the COVID vaccines (Pfizer, Moderna, J&J as well as Astra Zeneca in the clinical trial stage in the United States).
  • We are pro-vaccine, pro-science and were excited for the opportunity to be vaccinated and to do our part in helping to end the pandemic.
  • We are completely independent of any other organization."

Og hér getið þið séð nokkur þeirra gefa vitnisburð í mynd, athugið að vinstra megin eru stuttir úrdrættir, og lengri viðtöl til hægri.

Hvað ætli margir hafi svipaðar sögur að segja hér á landi?


Hvers vegna "þarf" núna að bólusetja börn sem eru ekki í neinni hættu af veirunni? 86% bandarískra barna í tilraunaverkefni fengu alvarlegar aukaverkanir af sprautunum!

Nú eru bresk yfirvöld að íhuga hvort bólusetja eigi 12-15 ára börn eða ekki.

Hið breska Medicines and Healthcare products Regulatory Agency (MHRA) er þegar búið að úrskurða þau örugg fyrir börn, svo nú er það í höndunum á Joint Committee on Vaccination and Immunisation (JCVI) að mæla með því við bresku ríkisstjórnina, sem virðist æst í að bólusetja alla, menn, konur og börn.

Það má telja það sérkennilegt að MHRA dæmi Pfizer efnið öruggt fyrir börn, í ljósi þess að 86% bandarískra barna sem foreldrar greinilega létu taka þátt í stuttri tveggja mánaða tilraun, fengu aukaverkanir sem voru allt frá því að vera vægar, upp í það að vera lífshættulegar!

En það vill svo til að MHRA fékk 980.000 punda styrk frá Bill nokkrum Gates árið 2017! Sá maður hefur lýst því yfir að það þurfi að fækka mannkyninu og að bóluefni séu fín leið til þess, þetta er til á netinu fyrir þá sem vilja sannreyna þetta.

Þessi svokölluðu bóluefni eru að drepa börn!

"A 16 year-old female received the Pfizer vaccine on the 19th March 2021. Nine days later the same female went into cardiac arrest at home. By the 30th March 2021 she had sadly died."

"A 17 year-old female started to suffer difficulty breathing and chest pain eight days after having the Pfizer vaccine. She then suffered cardiac arrest and sadly died."

"A 15 year-old female suffered cardiac arrest and ended up in intensive care four days after having the Moderna mRNA jab. She also sadly died."

"A 16 year-old male received the Pfizer vaccine and developed a headache and an upset stomach two days after having the second dose. Sadly the following day the boy was found dead in bed."

"A fifteen year-old female received her second dose of the Pfizer jab on the 6th June 2021. Sadly one day later she died suddenly without reason."

"A 15 year-old male die due to an unexplained reason twenty-three days after having the Pfizer jab."

"A 15 year-old female received her 2nd dose of the Moderna vaccine, then suffered a cardiac arrest and tragically died."

"A one-year-old baby received the Moderna jab. The jab caused his body temperature to increase forcing him into a seizure. The result? The one year-old passed away."

"Another 15 year-old male had the Pfizer mRNA jab. One day later he suffered heart failure and sadly died."

Þetta getið þið séð á þessari síðu, ásamt skjámyndum af tilkynningum um andlát þessara barna til VAERS gagnagrunnsins bandaríska,

Nú ætlar sóttvarnarlæknir að byrja að bólusetja 12-16 ára unglinga með undirliggjandi sjúkdóma!

Hann og Ragnheiður Ósk Erlingsdóttir hreinlega lugu í blaðaviðtali í gær og sögðu að þessi svokölluðu bóluefni væru alveg örugg, hún sagði meira að segja: "Öll bóluefni eru góð"! Sjá meira hér.

Hvað segið þið íslenskir foreldrar, afar og ömmur, eruð þið til í að taka þessa áhættu með börnin ykkar og barnabörn?

Ég veit að enginn vill það, en málflutningurinn hér á landi hefur bara verið í eina átt, að hræða fólk stanslaust með yfirvofandi hættu, og láta fólk finna til ábyrgðar, að það verði að "bólusetja" nánast alla þjóðina til að ná einhverju hjarðónæmi, sem WHO breytir reglulega bóluefnunum í hag.

Svo í guðanna bænum kynnið ykkur hvaða afleiðingar þessi svokölluðu bóluefni geta haft á börnin ykkar!

 

 


Nýjustu tölur um aukaverkanir, og staðfesting á að verið er að ljúga að okkur um þessi "bóluefni"!

Í dag, þriðjudaginn 22. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.740, voru 1.733 í gær, svo þetta er fjölgun um 7.

Pfizer var með 661 tilkynningar, þar af 20 andlát og 35 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 662. Fjölgun um 1.

Moderna var með 309, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 311. Fjölgun um 2.

AstraZeneka var með 616, þar af 3 andlát og 46 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 619. Fjölgun um 3.

Janssen var með 147, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 148. Fjölgun um 1.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 120, þar af 23 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 79 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 920 síðan þá.

Það vekur athygli að fjöldi tilkynninga frá í gær er "aðeins" 7, en þar af eru 2 alvarlegar.

Breskir læknar skrifa bréf

Sífellt fleiri sannanir eru að koma fram um skaðsemi þessara tilraunaefna. Þar sem nú er búið að hálfbólusetja 39 milljón manns í Bretlandi og fullbólusetja 24 milljónir, er til nægilega mikið af gögnum til að fá yfirsýn yfir aukaverkanir.

Þetta kemur fram í bréfi var sent af The Evidence-Based Medicine Consultancy Group til breska lyfjaeftirlitsins, þar sem farið er fram á að þessum "bólusetningum" sé samstundis hætt, því til rökstuðnings er vitnað í opinber gögn um tilkynntar aukaverkanir og andlát.

Það er löngu orðið ljóst að aukaverkanirnar eru orðnar margfalt meiri af þessum tilraunalyfjum en öllum bóluefnum samanlagt í sögunni hingað til!

Hér má sjá:

  • Bleeding, Clotting and Ischaemic ADRs
  • Immune System ADRs
  • "Pain" ADRs
  • Neurological ADRs
  • ADRs involving loss of Sight, Hearing, Speech or Smell
  • Pregnancy ADRs
  • Pathogenic priming, multisystem inflammatory disease and autoimmunity
  • Allergic reactions and anaphylaxis
  • Antibody dependent enhancement
  • Activation of latent viral infections
  • Neurodegeneration and prion diseases
  • Emergence of novel variants of SARSCoV2
  • Integration of the spike protein gene into the human DNA

"It is now apparent that these products in the blood stream are toxic to humans. An immediate halt to the vaccination programme is required whilst a full and independent safety analysis is undertaken to investigate the full extent of the harms, which the UK Yellow Card data suggest include thromboembolism, multisystem inflammatory disease, immune suppression, autoimmunity and anaphylaxis, as well as Antibody Dependent Enhancement (ADE)."

The report concludes: "The MHRA now has more than enough evidence on the Yellow Card system to declare the COVID-19 vaccines unsafe for use in humans. Preparation should be made to scale up humanitarian efforts to assist those harmed by the COVID-19 vaccines and to anticipate and ameliorate medium to longer term effects. As the mechanism for harms from the vaccines appears to be similar to COVID-19 itself, this includes engaging with numerous international doctors and scientists with expertise in successfully treating COVID-19.

"There are at least 3 urgent questions that need to be answered by the MHRA:

  1. How many people have died within 28 days of vaccination?
  2. How many people have been hospitalised within 28 days of vaccination?
  3. How many people have been disabled by the vaccination?"

Hér er stutt vídeó þar sem meðal annars er spurt hvort það sé nauðsynlegt að sprauta allt mannkynið núna með einhverju tilraunaefni, þegar lífslíkur af veikindum vegna veirunnar eru eins miklar og þær eru.

Þórólfur og Ragnheiður ljúga blákalt!

Í dag stendur til að bólusetja 10.000 manns með Janssen. Í þessari frétt segir meðal annars:

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Þannig að ungar konur ættu ekki að hræðast bólusetningu með Janssen?

„Nei, nei,“ segir Þórólfur.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tekur í sama streng og Þórólfur. „Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (áherslubreyting mín).

Sjáiði hvað Þórólfur og Ragnheiður eru að segja þarna? Getið þið treyst og trúað orði af því sem þetta fólk segir lengur?

Klárlega ekki! Verst bara að stærstur hluti þjóðarinnar treystir ennþá þríeykinu og íslenskum stjórnvöldum, og lofar þetta fólk fyrir hversu "vel því hafi tekist að leiða okkur út úr þessum faraldri"!

 

 


Breskur útfararstjóri leysir frá skjóðunni, 2020 var venjulegt ár hvað varðar dauðsföll, og fleiri útfararstjórar taka undir. "Faraldurinn" byrjaði ekki fyrr en farið var að bólusetja fólk!

Breskur útfararstjóri sem hefur 15 ára starfsreynslu í faginu ákvað að gerast uppljóstrari, því honum ofbýður blekkingarnar varðandi meint dauðsföll vegna vírussins.

Árið 2020 voru dauðsföll í Bretlandi ekkert fleiri en í meðalári segir hann, en tölurnar ruku upp fyrstu 3 mánuði þessa árs eftir að þessar "bólusetningar" byrjuðu. Hann vill meina að hinn raunverulegi "faraldur" hafi byrjað þá.

Ég get vissulega ekki sannað að þetta viðtal við hann hafi ekki verið sviðsett, en miðað við blekkingarnar sem hafa verið í gangi í eitt og hálft ár núna, þá hef ég enga ástæðu til að halda að hann sé ekki að segja satt.

Það má finna úrdrátt úr viðtali við hann hér, en í þessu vídeói eru hljóðgæði viðtalsins miklu betri.

Þessir svokölluðu meginstraumsfjölmiðlar segja margir nákvæmlega sömu "fréttirnar" af atburðum sem eiga sér stað í heiminum, svo hvers vegna ættum við að trúa þeim núna?

Og einhverra hluta vegna eru Bretar og Skotar að að biðja um tilboð til fjögurra ára í líkgeymslur vegna "hugsanlega" aukinna fjölda látinna. Hvers vegna skyldi það vera?

Holskefla andláta eftir sprauturnar hefur átt sér stað í Bandaríkjunum og Evrópu, en árið í ár virðist vera ár hinna mörgu tilviljana, þar sem "óháðir sérfræðingar", bæði hér á landi og annars staðar finna sjaldnast neinar tengingar milli "bólusetninga" og andláta fólks, jafnvel þótt fólk hafi á andlátsdag verið ungt og heilbrigt.

Svo er það þessi könnun sem allir verða að horfa á, þar sem ung kanadísk kona hringir í nokkrar útfararstofnanir og spyr hvort dauðsföll árið 2020 hafi verið eitthvað fleiri en í venjulegu ári.

Nánast allar segja að síðasta ár hafi hreint ekkert verið verra eða betra en árin á undan.

Svo hverjir er að ljúga? Sannleiksleitandi borgarar eða aðilar sem hagnast gríðarlega á pinnunum sem eiga að greina "smit" af veirunni, á "nauðsynlegum" sóttvarnarbúnaði, eða bóluefnunum sjálfum?

Síðasti viðmælandi hennar hvetur hana til að halda áfram að spyrja spurninga, og niðurstaða hennar er, þarna hafið þið það, allir eru að ljúga að ykkur, ríkisstjórnin ykkar, pólitíkusarnir og læknarnir ykkar, það var aldrei neinn raunverulegur faraldur í gangi!

Þessi unga kona endar á þessum skilaboðum: Slökkvið á sjónvarpinu og farið bara að lifa lífinu.

Halló allir, 99,7% manns lifir af veikindi vegna þessarar veiru, svo hvers vegna í ósköpunum liggur svona á að sprauta allt mannkyn, allt niður í börn sem eru ekki í nokkurri einustu hættu, með einhverju tilraunaglundri sem enginn veit hvað inniheldur?

Hvað eru margir dánir "úr" veirunni hér á landi á þessu ári? Ein manneskja! Og hvað eru margir látnir í kjölfar inngjafa á þessum tilraunabóluefnum á þessu ári? Opinbera talan er 23, og tilkynntar aukaverkanir eru 1.733 miðað við gærdaginn, og þar af hátt í 100 lífsógnandi.

Gott fólk, ég skil vel að flestir eigi erfitt með að trúa því að búið sé að ljúga að okkur í meira en ár, enda höfum við verið stanslaust minnt á í fréttum og reglulegum Almannavarnarfundum á þessa ósýnilegu ógn sem á víst að geta drepið okkur eða valdið skelfilegum veikindum.

Ég var sjálf í byrjun síðasta árs alveg skíthrædd við þessa "drápsveiru", forðaðist fólk og þreif vel hverja einustu vöru sem ég keypti í búðinni, ég ætlaði sko ekki að smitast af þessu. Ég bara hlæ að þessu í dag.

En ég er svo heppin að eiga yndislega heilbrigðismenntaða vinkonu sem sagði við mig þegar ég spurði hana í fyrravor hvort hún væri ekki líka hrædd: "Ég er ekki hrædd við einhverja veiru, heldur hvað það er auðvelt að hræða fólk og í skjóli þess að fá það að trúa hverju sem er".

Einhverra hluta vegna erum við báðar, og fullt af fólki sem er löngu búið að sjá í blekkingarnar sem eru í gangi enn fullfrísk og við fulla heilsu þrátt fyrir að hafa skipulega hunsað þessar fáránlegu sóttvarnarreglur og hamlanir sem hafa verið settar á okkur núna í rúmt ár.

Og við erum ÖLL óbólusett og munum ALDREI láta sprauta okkur með þessum svokölluðu "bóluefnum"!

 

 

 

 

 

 

 

 


Tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.733, og hvað í ósköpunum er "Human Augmentation"?

Í dag, mánudaginn 21. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.733, voru 1.707 á föstudaginn, svo þetta er fjölgun um 26.

Pfizer var með 650 tilkynningar, þar af 20 andlát og 34 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 661. Fjölgun um 11.

Moderna var með 305, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 309. Fjölgun um 4.

AstraZeneka var með 613, þar af 3 andlát og 45 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 616. Fjölgun um 3.

Janssen var með 139, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 147. Fjölgun um 8.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 118, þar af 23 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 77 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 913 síðan þá.

Lyfjastofnun er farin að birta á mánudögum aukaverkanir sem eru sendar inn í Eurovigilance gagnagrunninn, og þær má sjá undir þessum súluritum sem segja okkur ekki mikið. Þessar aukaverkanir eru óhugnanlegar, og óskiljanlegt er hvers vegna þessum "bólusetningum" er ekki tafarlaust hætt. Nei nei, það á víst að sprauta 20.000 manns í vikunni!

Hvað er verið að gera mannkyninu núna?

Sjáið hvað er á vef bresku ríkisstjórnarinnar segir hinn breski Hugo.

Breska varnarmálaráðuneytið birti nýlega grein með yfirskriftinni "Human Augmentation - The Dawn of a New Paradigm".

Þar segir meðal annars um "Human Augmentation (HA)":

"HA will become increasingly relevant in the future because it is the binding agent between the unique skills of humans and machines. The winners of future wars will not be those with the most advanced technology, but those who can most effectively integrate the unique skills of both human and machine.

The growing significance of human-machine teaming is already widely acknowledged but this has so far been discussed from a technology-centric perspective. This HA project represents the missing part of the puzzle."

Til útskýringar á máli sínu birti það þetta 110 blaðsíðna skjal:

Human Augmentation – The Dawn of a New Paradigm Strategic Implications Project

Efst í skjalinu er mynd af mannshönd sem snertir hönd vélmennis, og mynd af DNA þar á milli.

Þar á eftir kemur Þessi fyrirvari (disclaimer): "The content of this publication does not represent the official policy or strategy of the UK government or that of the UK's Ministry of Defence (MOD)".

Nú jæja, ráðuneytið hefur kannski ekkert betra við tímann að gera en semja 110 blaðsíðna "skáldsögu", samt er skjalið undirritað af einhverjum (væntanlega) háttsettum mönnum.

Mannkynið virðist ekki vera nógu fullkomið eins og það er, það hefur verið að þróast síðastliðin 6 milljón ár og nú er svo komið að það sé í "okkar höndum" að ákveða hvernig móta eigi frekari þróun þess.

Þarna segir meðal annars á bls. 20: "Human augmentation includes chemical, physical and biological augmentation and the modification of the human but, it is not exclusively about adding "things" to the human, it also includes applying scientific insight to areas such as sleep management and personalised nutrition to improve performance".

Þetta hljómar spennandi, er það ekki?

En svona grínlaust, þá er þetta skelfileg lesning! Þetta er látið líta út sem byltingarkenndar framfarir fyrir mannkynið, en hvern langar að enda sem mennskt vélmenni?

Vaknið, elsku fólk!

Það er bara sorgleg staðreynd að fólk þarf að fara að átta sig á að það skall ekki á neinn náttúrulegur heimsfaraldur sem nauðsynlegt væri að bólusetja allt mannkyn gegn með genabreytandi tilraunalyfjum, sem virðast partur af þessari áætlun um "að bæta" mannkynið.

Fólk sem búið er að reyna í langan tíma að vara aðra við því sem er raunverulega í gangi í heiminum í dag hefur þurft að sitja undir háðsglósum, dónaskap og alls konar óþverra frá samborgurum sínum, sem trúa fjölmiðlunum í blindni.

Ég mæli með að þið horfið á þennan hugrakka breska fyrrum lögreglumann sem gekk inn á lögreglustöð til að tilkynna glæpina sem verið er að fremja gagnvart mannkyninu núna!

 

 

 

 


Hvers vegna við eigum ekki að trúa öllu sem við lesum og sjáum í meginstraumsfjölmiðlunum!

Annað hvort er fréttamennskan útdauð starfsgrein, eða henni er stýrt af utanaðkomandi hagsmunaöflum.

Það má greinilega sjá í þessu stutta vídeói frá 2018 hér fyrir neðan, þar sem sjá má fjölda fréttalesara frá mismunandi sjónvarpsstöðvum (Fox, ABC, CBS og NBC) lesa upp nákvæmlega sömu fréttina af lesvélunum sínum!

Það fyndna er að handritið þeirra segir að samfélagsmiðlarnir stofni lýðræðinu í hættu með falsfréttum, sem þeir eru svo greinilega sjálfir að flytja.

Og hér má sjá valdamikið fólk segja nánast í einum rómi að nú sé tíminn til að "Build Back Better", og meira að segja hin unga Greta Thunberg líka!

 

Þessi vídeó, og tvö önnur eru bara fáein dæmi um hvernig fréttirnar eru matreiddar ofan í okkur, í nafni "lýðræðisins".

Síðan þessi "heimsfaraldur" skaut upp kollinum, þá hafa nánast allar fréttir þessara miðla verið á sama veg, að hræða nánast líftóruna úr fólki með stöðugum, og oft (yfirleitt?) fölskum æsifréttum.

Ritskoðunin í dag er alveg skelfileg, raddir óháðra vísindamanna fá ekki að heyrast, og er miskunnarlaust eytt úr af samfélagsmiðlum, leitarvélum og YouTube. Og þeir sem tjá sig um þessi mál t.d. á Facebook eru líka miskunnarlaust ritskoðaðir.

Ef maður vill fá öðruvísi fréttir um þessi svokölluðu bóluefni, og hinar "hliðarnar" á þessum faraldri þá verður maður að leita annað.

Nú ætla ég að pósta þessu bloggi inn á Facebook vegg minn, og kannski tekst það núna án athugasemda frá þeim. En þegar ég nefni eitthvað bóluefni á nafn hér í blogginu, fæ ég oftar en ekki viðvörun frá þeim um að þessi efni hafi undirgengist gríðarmiklar rannsóknir og séu örugg.

Og svo er vísað á heimasíðu WHO því til "sönnunar". Allir sem hafa kynnt sér málin vita að þetta er glæpastofnun sem er stjórnað af manni sem hefur ekki læknisfræðimenntun, og situr undir ákærum um þjóðarmorð í eigin landi.

Þessi stofnun er að stóru leyti fjármögnuð af einum ríkasta manni heims sem elskar bóluefni, og er heldur ekki læknir.

Sóttvarnarlæknir okkar hefur sagt oftar en einu sinni að hann fylgi tilmælum þessarar stofnunar!

Og þrátt fyrir að fjöldi andláta og aukaverkana sé orðinn alveg skelfilegur, bæði úti í heimi og hér á landi líka, þá stendur til að bólusetja að minnsta kosti 20.000 manns hér á landi núna í vikunni.

Það er bara staðreynd að fjölmiðlar ljúga, eða segja ekki frá öllum hliðum mála, líka þeir íslensku.

“All the world’s a stage.”—William Shakespeare

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband