Höfnum fullgildingu á heimsfaraldurssáttmála WHO!

Undirskriftasöfnunin ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI VIÐ EINRÆÐI Í HEILBRIGÐISMÁLUM hófst sunnudaginn 16. júlí 2023, og höfum við sem stöndum að henni fundið fyrir miklum stuðningi þeirra sem vilja koma í veg fyrir að þessi ókjörna stofnun nái fram þessum áætlunum sínum - með samþykki íslenskra stjórnvalda.

Iceland ExitTheWHO

Alþingi hefur enga heimild til að framselja vald til erlendra stofnana

Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari segir forgangsreglu ESB og bókun 35 ganga í berhögg við stjórnarskrá Íslands og vera fullveldisafsal!

"það er verið að setja þetta til þess að geta tekið evrópskar reglur fram yfir íslenskar lagareglur. Ef það er bara verið að segja, að það felist í þessu yngri lög gagnvart eldri lögum þá þarf ekkert þetta ákvæði vegna þess að ef Alþingi setur ný lög með öðru efni, heldur en eldri lagareglur þá gilda alltaf þær nýju.

Það er því augljóst að það er verið að gera þetta til þess að koma til móts við ESB og samhæfa íslenskar reglur við evrópskar reglur án þess að það sé heimilt"

Við skulum gera okkur grein fyrir því að það er engin tilviljun að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra Íslands lagði bókun 35 fyrir Alþingi nú í vor. Allar líkur eru á því að reynt verði áfram að koma henni í gegn á haustþinginu.

Við hljótum að þurfa að velta fyrir okkur hvers vegna sumum alþingismönnum og ráðherrum sé svona mikið í mun að ná þessu í gegn, akkúrat á þeim tímapunkti sem WHO er að reyna að ná fram fullgildingu á heimsfaraldurssáttmála stofnunarinnar.

Verði bókun 35 samþykkt af Alþingi, þá mun það vera nóg, að geri íslensk stjórnvöld ekki athugasemdir við eða hafni þessari tilraun þeirra til að ná einræði yfir heilbrigðismálum aðildaþjóðanna sinna 194 fyrir 23 nóvember 2023, þá munu ný einræðislög WHO taka gildi.

Samþykki þeirra mun felast í að hafna ekki fyrirhuguðu breytingunum.

Þetta fólk skilur mikilvægi þess að þjóðin segi nei!

Þegar fólk skrifar nafn sitt á undirskriftalistann (getur gert það án þess að nöfn þess séu birt), þá getur það skrifað athugasemd með sinni ástæðu fyrir því að hafna þessari tilraun til landráðs algjörlega.

Hér eru fáeinar athugasemdir af nokkuð hundruðum valdar af handahófi, og það er samhljómur í þeim öllum, fólk hafnar því alfarið að láta þessi völd í hendur hinnar ókjörnu stofnunar, WHO.

Það gladdi mig mikið að sjá hversu margir gera sér grein fyrir afleiðingum þess fyrir okkur ef af þessu verður.

Smellið á myndirnar til að stækka þær.

Iceland ExitWHO

Ísland segir sig úr WHO

Iceland ExitWHO 3

Starfshættir RÚV

Þjóðin verður að gera sér grein fyrir því að RÚV hefur stórkostlega brugðist lögbundnum skyldum sínum varðandi fréttaumfjallanir, eins og berlega hefur komið í ljós undanfarin þrjú ár.

Á vef RÚV er hlekkur á lög um Ríkisútvarpið, sá hlekkur leiðir mann inn á vef Alþingis með lögunum. Það er athyglisvert að sjá þar athugasemd um að þetta sé ekki nýjasta útgáfa lagasafnsins, en hana má finna hér.

Nokkur atriði úr lögunum um RÚV:

  • Hafa í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur, þ.m.t. um mannréttindi og frelsi til orðs og skoðana.
  • Veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga frétta- og fréttaskýringarþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar.
  • Vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni og almenning varða.
  • Miðla upplýsingum og veita landsmönnum innsýn í alþjóðamál, mismunandi menningarheima og ólík sjónarmið.

Þar segir einnig um starfshætti Ríkisútvarpsins að það skuli vera til fyrirmyndar um gæði og fagleg vinnubrögð, ábyrgjast skuli að sanngirni og hlutlægni sé gætt í frásögn, túlkun og dagskrárgerð, og leitað sé upplýsinga frá báðum eða öllum aðilum og sjónarmið þeirra kynnt sem jafnast.

Og sannreyna skuli að heimildir séu réttar og að sanngirni sé gætt í framsetningu og efnistökum. 

Maður þarf að vera blindur til að sjá ekki að allt þetta hefur verið þverbrotið!

Nærtækast er að nefna fréttaflutning af "heimsfaraldrinum" og "bóluefnunum", þar sem nánast aðeins var fjallað um eina hlið málsins, og raddir þeirra sem leyfðu sér að gagnrýna sóttvarnaaðgerðir yfirvalda eða virkni og gæði "bóluefnanna" fengu lítinn eða engan hljómgrunn þar.

Það sama má segja um þessa tilraun WHO til yfirtöku á heilbrigðismálum heimsins, RÚV skautar gjörsamlega framhjá henni, og það er grafalvarlegt mál!

Pistill minn um Fjórða valdið frá 2021.

Þar birti ég meðal annars þessa skilgreiningu á hvað það er.

Fjórða valdið er hugtak sem vísar til fjölmiðla (á eftir löggjafarvaldi, dómsvaldi og framkvæmdavaldi). Hugtakið vísar til þess að fjölmiðlar geta oft, beint eða óbeint, stýrt atburðarás ákveðinna mála, með umfjöllun sinni. (Áherslan er mín)

Þarna mætti kannski bæta við aftast: Eða með því að sleppa eða smætta umfjöllun um atburðarásina, eins og langflestir fjölmiðlar gera.

En er þetta raunverulega að gerast?

Svarið er því miður já, - þótt þið finnið það hvorki á RÚV né flestum hinna fjölmiðlanna, en það er á okkar eigin ábyrgð sem fullorðið fólk að fræða okkur um það sem er að gerast heima fyrir og í heiminum, og við ættum aldrei taka því sem gefnu að fréttirnar sem okkur eru færðar séu endilega sannar, ekki einu sinni á RÚV!

Eins og heimurinn er í dag, þá fæst sannleikurinn í ákveðnum málefnum ekki í þessum hefðbundnu fjölmiðlum, þar er bara hálf sagan sögð, eða bara alls ekki.

Dr. Elizabeth Evans

Hér er skjáskot af umfjöllun breska læknisins Dr. Elizabeth Evans sem fer ítarlega yfir þessa tilraun WHO til yfirtöku á heilbrigðismálum heimsins, algjört skylduáhorf!

Exit the WHO

Lausleg þýðing:

Fyrirhugaðar breytingar á IHR (International Health Regulations - Alþjóðlegum heilbrigðisreglum)

  • Grein 59 (samþykkt maí 2022) - helmingar tímann frá atkvæðagreiðslu WHO til gildistöku (24 mánuðir í 12 mánuði). Frestur til að hafna nóvember 2023
  • Neyðarleiðbeiningar WHO uppfærðar úr ráðgefandi í bindandi
  • Afnám ákvæðis sem krefst þess að WHO haldi uppi "fullri virðingu fyrir reisn, mannréttindum og grundvallarfrelsi einstaklinga"
  • *** Að veita framkvæmdastjóra WHO heimild til að lýsa yfir PHEIC "mögulegri" (Public Health Emergency of International Concern - Alþjóðlegu neyðarástandi vegna lýðheilsu) - frekar en "raunverulegri" hættu
  • Alþjóðlegt heilbrigðisvottunarkerfi
  • Ritskoðun andófsmanna

*** Framkvæmdastjóri WHO er búinn að gera nokkrar tilraunir síðan 2022 til að lýsa yfir "mögulegu hættuástandi", fyrst vegna apabólu, og svo "skemmtilega vill til" að æfing í viðbrögðum við "apabólufaraldri" var haldin akkúrat einu ári fyrr, rétt eins og Event 201 æfingin í heimsfaraldri kórónuveiru var haldin í október 2019.

Svo hefur hann lýst yfir hugsanlegum faraldri fuglaflensu, og svo nú síðast fuglaflensu í köttum, eða einhverju álíka trúverðugu. Ætlum við endalaust að falla fyrir svona tilhæfulausum hræðsluáróðri og lygum?

Door to Freedom samtökin

Hér getið þið frætt ykkur enn betur um skaðræðið sem verið er að leiða yfir okkur, og hreinlega eigið að gera það!

Door to Freedom

 

Lausleg þýðing:

Við erum Door to Freedom, ný samtök stofnuð til að hjálpa fólki að átta sig á ört breytilegum og oft ruglingslegum heimi.

Við viljum einnig upplýsa ykkur um viðleitni W.H.O. að taka yfir stjórnun neyðarástands í lýðheilsumálum. W.H.O. leggur til að stofnunin stjórni hvernig farið er með heimsfaraldra og önnur neyðarástand í lýðheilsu í framtíðinni. Það myndi mæla fyrir um samræmda læknismeðferð og takmarkanir fyrir alla - um allan heim.

Leiðin til að ná þessu fram væri með 2 nýjum lagaskjölum sem nú er verið að semja um: Heimsfaraldurssáttmála og breytingum á gildandi alþjóðlegum heilbrigðisreglum hans.

Hvað kýs þjóðin?

Okkar er valið kæra þjóð, viljum við samþykkja að ókjörin erlend stofnun fái einræði yfir heilsufarsmálum okkar?

Við hljótum öll að segja NEI, við ætlum halda sjálfstæði okkar í okkar eigin heilbrigðismálum og höfnum þar af leiðandi alfarið þessum fyrirhuguðu breytingum á alþjóðlegri heilbrigðisreglugerð WHO og alþjóðlegum heimsfaraldurssamningi!

Takið ábyrgð og takið þátt, ekki ætlast til að einhverjir aðrir geri það fyrir ykkur, hver einasta undirskrift skiptir máli!

Iceland Exit The WHO

Smellið hér: -> ÍSLENSKT ÁKALL GEGN WHO: NEI við einræði í heilbrigðismálum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þegar ég skrifaði undir (nokkuð langt síðan), voru komnar rúmlega 400 undirskriftir nú vona ég að þær skipti þúsundum ef ekki tugum þúsunda.  Ég vona að sem festir geri sér grein fyrir hversu alvarlegar árásirnar gegn fullveldi okkar eru og sérstaklega er alvarlegt að Ráðherra landsins og Alþingismenn skuli vinna gegn fullveldi landsins og þannig rjúfa þann eið að stjórnarskránni, sem þeir sóru þegar þeir tóku sæti á þingi.  ERU ÞETTA EKKI KÖLLUÐ LANDRÁÐ OG ER EKKI SÉRSTAKUR KAFLI UM LANDRÁÐ Í HEGNINGARLÖGUNUM OG ER EINHVERJUM VANDKVÆÐUM BUNDIÐ AÐ BEITA ÞESSUM ÁKVÆÐUM?????????

Jóhann Elíasson, 21.7.2023 kl. 17:22

2 Smámynd: Guðrún Bergmann

Algerlega frábær samantekt hjá þér Kristín Þormar! Takk fyrir að vera svona ötull bloggari og benda á þau má sem við ættum öll að vera meðvituð um!

Guðrún Bergmann, 21.7.2023 kl. 17:32

3 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jóhann,

Við eigum langt í land með að ná þeim tölum, það virðist erfitt að fá Íslendinga til að horfast í augu við að svona nokkuð geti gerst á okkar litla landi, að íslensk stjórnvöld séu hreinlega að fremja landráð beint fyrir framan nefið á okkur núna með þessari viðurstyggð!

Ætlar þjóðin fyrst að vakna þegar forstjóri WHO hefur lýst yfir einhverju "neyðarástandi vegna smitfaraldurs" og hefur þá fullt leyfi til að neyða okkur t.d. að nota grímur, og láta taka okkur með lögregluvaldi til að "bólusetja" okkur með einhverjum efnum sem okkur kemur víst ekkert við hvað innihalda?

Hann er nokkrum sinnum búinn að lýsa yfir "hugsanlega hættulegum smitfaröldrum", sem hafa sem betur fer verið kveðnir í kútinn, oft af netverjum sem hafa hreinlega skotið þá í kaf með háðsglósum og gríni, og sem betur fer eru margir farnir að sjá í gegnum þetta.

En þegar hann verður kominn með einræðið, þá fáum við engu ráðið lengur og hann getur gert nánast það sem honum sýnist við okkur undir því yfirskini að verið sé að bjarga lífum okkar!

Þetta munum við kjósa yfir okkur ef við gerum ekki neitt, ef við mótmælum ekki með undirskriftum okkar NÚNA STRAX!

Kristín Inga Þormar, 21.7.2023 kl. 18:08

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Guðrún mín,

Kærar þakkir fyrir það, einhver verður að fjalla um það sem fjölmiðlarnir gera alls ekki!

Kristín Inga Þormar, 21.7.2023 kl. 18:13

5 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Jóhann, ég var að finna aftur kaflann um landráð, ég birti hann einmitt í blogginu mínu um Velsældarhagkerfið á Íslandi um miðjan júní s.l.

Þetta er akkúrat það sem íslensk stjórnvöld eru að gera núna!

86. kafli í almennum hegningarlögum um landráð

Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ofbeldi, hótun um ofbeldi, annarri nauðung eða svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.

Kristín Inga Þormar, 21.7.2023 kl. 19:12

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sæl Kristín og enn og aftur, frábær samantekt hjá þér.

Já, það er svo satt sem Jóhann bendir á og 86.kafli hegningarlaga,

við erum með landráðamenn á alþingi okkar og enginn getur neitað því.

Af hverju er ekki fjallað um þetta æi fjölmiðlum...??

Jú, það er vegna þess að þeir eru allir á ríkisstyrkjum og einhver

umfjöllun um eitthvað sem hentar ekki stjórnarliðinu þýðir missir af styrk.

Þetta er semsagt orðið einn ríkisfjölmiðill og frjáls blaðamennska

ekki lengur til. Það er alveg ótrúlegt til þess að vita, að á hátíðis og

tyllidögum, skuli því vera flaggað hversu þjóðin er vel lesin og upplýst.

Þetta er einfaldlega bara mont sem á sér engvan veruleika því í raun 

eru þetta bara öfugmæli. Þjóðin er eins og aparnir þrír,

hlustar ekki,sér ekki og talar ekki. Sorglegt en satt.

Sigurður Kristján Hjaltested, 22.7.2023 kl. 10:28

7 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Gleymdi að sjálfsögðu að segja þér að ég er löngu búin að skrifa mig á listann.

Sigurður Kristján Hjaltested, 22.7.2023 kl. 10:29

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Sigurður og þakka þér kærlega fyrir.

Við þörfum ekki að leita lengra en til WEF Kötu og Þórdísar til að sjá hvaða landráð verið er að fremja gegn okkur, og Svandís skrifaði undir heilbrigðissáttmála milli WHO og Íslands til ársins 2030 í sinni tíð sem heilbrigðisráðherra!

Alþingismenn sverja eið þegar þeir fara á þing um að þeir skuli starfa fyrir þjóð sína, en allir, hver einn og einasti þeirra hefur brugðist henni, og skyldum sínum.

Fólk hefur ekki hugmynd um að búið er að senda öllu þessu fólki, jafnvel líka forseta Íslands ógrynni upplýsinga og sannana um skaðsemi þessara "bóluefna", um blekkingarnar varðandi "heimsfaraldurinn", um WHO, og margt fleira, en engu er svarað.

Ef fólk neitar að horfast í augu við hvaða landráð ríkisstjórn Íslands er um það bil að fremja núna, þá getur það ekki vælt næst þegar Tedros forstjóri WHO lýsir yfir "neyðarástandi vegna smitfaraldurs", því þá mun hann hafa fullt og óskorað vald til að láta taka fólk með lögregluvaldi og sprauta það með einhverjum nýjum "bóluefnum".

Þess vegna verðum við að koma í veg fyrir þennan landráðagjörning!

Og þetta með fjölmiðlana, úff, ekkert útskýrir þögn og þöggun þeirra nema ríkisstyrkirnir, það er deginum ljósara.

Og blessuð þjóðin okkar, hún er því miður "ljósárum" á eftir öðrum þjóðum sem eru löngu "vaknaðar", hún virðist upp til hópa kjósa að sjá ekkert og heyra ekkert.

Ég er ekki í þessari baráttu fyrir sjálfa mig, enda komin á þann aldur að ég er búin að koma mér fyrir í lífinu og gera flest það sem mig langaði, ég er að þessu fyrir börnin mín og barnabörn, og börn og barnabörn ykkar hinna líka, því það eru þau sem munu taka við að okkur gengnum.

Hvers konar framtíð viljum við fyrir þau? Svari hver fyrir sig!

Kristín Inga Þormar, 22.7.2023 kl. 12:04

9 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Sigurður,

Frábært, takk innilega fyrir það!

Kristín Inga Þormar, 22.7.2023 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband