Kafað ofan í 17 heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

GrimmdÉg hef fengið fyrirspurnir um efni sem ég fjallaði um í þættinum Menntaspjallið þann 24. apríl s.l., en þar fór ég yfir heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Þar kom margt fram sem fólk hefur almennt enga hugmynd um, enda er aldrei fjallað um þetta í þessum meginstraumsfjölmiðlum.

Mér datt því í hug að birta hér handritið sem ég skrifaði fyrir þáttinn.

Þetta er langur lestur, en hann veitir innsýn inn í skelfilega framtíð sem okkur bíður ef við spornum ekki gegn því sem verið er að gera mannkyninu núna.

Þetta er svo hægt og rólega að gerast bak við tjöldin, að við tökum varla eftir því, hvað þá að við mótmælum.

Sameinuðu þjóðirnar

Sameinuðu þjóðirnar settu það markmið árið 2015 að "umbreyta heiminum okkar" og "endurmynda" hann að eigin hugmyndafræði, undir yfirskini sjálfbærrar þróunar.

Öll 193 aðildarríkin tóku þátt í þessu verkefni sem í raun er gegn mannkyninu, á meðan upphafsmennirnir voru að skipuleggja og undirbúa eina alheimsstjórn á bak við tjöldin.

Það eru ekki bara Sameinuðu þjóðirnar sem standa að baki þessu, heldur eru það líka t.d. The World Economic Forum (WEF), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), og ýmsir milljarðamæringar sem telja sig yfir okkur hin hafna.

Þetta kom í kjölfarið á því sem kallað var Agenda 21, sem hófst árið 1992, en þessi vel skipulagða yfirtaka hófst löngu áður. Í gegnum tíðina hafa flestir verið í þeirri tálsýn að þessi svokölluðu "sjálfbæru markmið" væru til að bæta hag mannkynsins en nú eru augu fólks sem betur fer farin að opnast, og sjá hvað þau raunverulega eru.

Og ég er alveg klár á því að flestir sem eru að vinna við að innleiða þau geri það í bestu trú.

Þessi 17 heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna líta afskaplega vel út á yfirborðinu, það á að útrýma fátækt og hungri, tryggja menntun fyrir alla, stuðla að jafnrétti kynjanna, koma á jöfnuði, friði og réttlæti í heiminum, að það eigi nánast að skapa himnaríki á jörð fyrir alla.

Svo það er ekkert skrítið að fólk skuli hrífast af þessu.

En sannleikurinn er samt sem áður sá að hvert einasta markmið þeirra þýðir akkúrat hið gagnstæða, og endatakmarkið er að hneppa mannkynið í þrælahald í gegnum miðstýrt stjórnvald, og ná alræðisvaldi yfir heiminum, eins og ég sagði hér að ofan.

Ég skrifaði blogg um heimsmarkmiðin fyrir rúmu ári síðan sem finna má á Moggablogginu undir heitinu Hvað býr að baki Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og ég hvet fólk eindregið til að lesa það og skoða allar heimildirnar sem þar eru.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að fyrir sumum hljómar þetta eins og einhver brjálæðisleg samsæriskenning, en fólk þarf bara að leggjast í rannsóknarvinnu sjálft ef það á erfitt með að trúa þessu.

Bara ekki á hinu ritskoðaða Google, heldur öðrum óháðum leitarvélum.

Svona hljóma heimsmarkmiðin 17:

1. Engin fátækt
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir alla
5. Jafnrétti kynjanna
6. Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
7. Sjálfbær orka
8. Góð atvinna og hagvöxtur
9. Nýsköpun og uppbygging
10. Aukinn jöfnuður
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
12. Ábyrg neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
14. Líf í vatni
15. Líf á landi
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

En hvað þýða þessi heimsmarkmið í raun? Ég ætla að lesa þau upp aftur, og útskýra hvað raunverulega býr að baki hverju og einu þeirra, og síðan ætlum við að spjalla um þau hér.

Þessi yfirferð er þó langt því frá að vera tæmandi, heldur bara toppurinn á ísjakanum, enda undirmarkmiðin ótalmörg. Ég fjalla mismunandi mikið um þau, mest um þau sem ég hef kynnt mér sérstaklega vel, og sum hreinlega skarast, eins og orku- og loftslagsmálin.

1. Engin fátækt – Saman getum við fætt hungraða, útrýmt sjúkdómum, og gefið öllum í heiminum tækifæri til að dafna og lifa góðu og ríkulegu lífi.

Setja á alla á bætur og matarmiða frá ríkinu, og húsnæðisstyrki og bitlinga sem gera þá að hlýðnum þrælum þessara alheimsstjórnvalda. Aldrei á leyfa fólki þann sveigjanleika að bjarga sér sjálft.

Í staðinn á að kenna fólkinu að verða hlýðnir þrælar sem fá í hverjum mánuði "peninga" fyrir grunnþörfum eins og mat og lyfjum. Þessir peningar munu allir vera rafrænir, enda verður búið að útrýma peningaseðlum. Það á að innleiða CBDC – Central Bank Digital Currency, eina alheims rafræna mynt, og þannig verður hægt að stýra neyslu okkar með ströngu eftirliti.

Sjúkdómum mun væntanlega vera "útrýmt" með bólusetningum.

2. Ekkert hungur – Endum hungur, tryggjum fæðuöryggi og betri næringu og byggjum upp sjálfbæran landbúnað.

Núna er verið að reyna að gera bændum um allan heim það nánast ókleift að reka búskap sinn, eins og sjá má í bændauppreisnum víða í heiminum.

Í staðinn eiga að taka við erfðabreyttur matur, nota á einkaleyfisskyld og erfðabreytt fræ frá fyrirtækinu Monsanto og auka á notkun hættulegra illgresiseyða undir falskri fullyrðingu um "aukna framleiðsla" og betri mataruppskeru.

Nota á erfðabreyttar plöntur sem fólk hefur ekki hugmynd um hvaða langtíma afleiðingar geta haft á það vegna erfðamengunar eða erfðatilrauna milli tegunda sem framkvæmdar eru í viðkvæmu vistkerfinu.

Þar að auki er verið að þróa gervikjöt og gervifisk, og verið er að venja okkur við að borða pöddur.

Nýjustu fréttir frá Skotlandi eru þær að bændur sem reka hænsnabú, og ekki bara þeir, heldur fólk sem á jafnvel bara eina hænu muni þurfa að greiða 5.000 punda sekt ef það skrái ekki fjölda og tegundir fugla sinna fyrir einhverja ákveðna dagsetningu í haust.

Þetta er gert undir því yfirskyni að þetta sé gert til að berjast gegn fuglaflensu.

Svona segjast þeir ætla að enda hungur!

3. Heilsa og vellíðan – Tryggjum heilbrigt líf og stuðlum að vellíðan fyrir alla á öllum aldri.

Það á að gera með erfðabreyttu og næringarsnauðu ruslfæði sem fyllir allar hillur verslana núna og þvinguðum bólusetningum.

Og það er verið að reyna að keyra endalausar þvingaðar bólusetningar í gegn í yfirstandandi valdaráni WHO á heilbrigðis- og farsóttarmálum heimsins.

Bólusetningar koma við sögu í einhverjum undirmarkmiðum 14 af þessum 17 heimsmarkmiðum, og við skulum ekki gleyma grænu pössunum eða bóluefnapössunum sem munu halda utanum allt sem búið er sprauta í okkur, sem og allar heilsufarsupplýsingar um okkur.

Banna á náttúrulyf og allt sem kemur úr náttúrunni og hefur verið notað í aldanna rás til að græða og lækna. Allt á að koma frá lyfjarisunum.

4. Menntun fyrir alla – Tryggja sanngjarna gæðamenntun án aðgreiningar og stuðla að símenntunartækifærum fyrir alla.

En hvað sjáum við í dag? Sífelldan heilaþvott, menntun hefur stórhrakað, verið er að framleiða hlýðna starfsmenn frekar en sjálfstæða hugsuði, og skelfileg innræting á sér stað hjá börnum undir formerkjum kynfræðslu.

Ég tók LGBTQ innrætinguna sérstaklega fyrir í bloggi undir heitinu Út á hvað gengur fjórða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Þetta námsefni er viðbjóðslegra en orð fá lýst, og eru margir íslenskir foreldrar mjög reiðir yfir þessari innrætingu í skólunum, og ég veit um foreldra sem mega ekki fá að vita hvað verið er að kenna börnunum þeirra.

Það er meðal annars verið að rugla börnin í ríminu með því að að kynin séu mörg og allskonar, að þau séu ekkert endilega það kyn sem þau fæddust í, og geti alveg ákveðið hvaða kyn þau vilji vera.

En hvernig getur barn sem getur ekki ákveðið hvort það vilji fara í bláu eða grænu peysunni í leikskólann í dag, og trúir enn á jólasveininn ákveðið eitthvað slíkt, og hvers vegna er verið að koma þessum hugmyndum inn í kollinn á þeim?

Hvers vegna mega saklaus börn ekki vera áfram börn?

Sannleikurinn er sá að þetta er allt með ráðum gert, og falið vel inni í þessum heimsmarkmiðum.

Smá dæmi um kynfræðsluna:

  • Börn á aldrinum 0-4 ára skulu læra um sjálfsfróun og þróa með sér áhuga á eigin líkama og annarra.
  • Börn á aldrinum 4 til 6 ára skulu læra um sjálfsfróun og þurfa hvatningu til að tjá kynferðislegar þarfir sínar og langanir.
  • Börn á aldrinum 6 til 9 ára skulu fá fræðslu um kynlíf, klám á netinu, leynilega ást og sjálfsörvun.
  • Börn á aldrinum 9 til 12 ára ættu að upplifa sína fyrstu kynlífsreynslu og læra að nota klám á netinu.

Langar mig sérstaklega til að nefna bókina Kyn, kynlíf og allt hitt sem er samin af kanadísku háni að nafni Cory Silverberg, og bók eftir Sólborgu Guðbrandsdóttur sem mig minnir að heiti Fávitar, hvort tveggja vægast sagt ógeðfellt kynfræðsluefni, með mjög grafísku myndefni.

Svo má líka nefna allt kynfræðsluefnið sem kemur frá Reykjavíkurborg.

Ef við skoðum almennu hegningarlögin, þá segir 209. greinin að bannað sé með lostugu athæfi að særa blygðunarkennd annarra, og það getur varðað allt að 4 ára fangelsi.

Þetta kennsluefni hefur svo sannarlega sært blygðunarkennd margra foreldra og barna.

210. greinin um klám á prenti varðar fangelsi allt að 6 mánuðum, og ef um börn er að ræða, allt að 2 árum.

Ég þori varla að segja þetta hérna, en WHO og SÞ eru að kyn- og kynlífsvæða lítil börn um allan heim til normalísera barnagirnd og barnaníð, og ég vil benda fólki sérstaklega á þátt sem sjónvarpsstöðin Kla.tv gerði undir heitinu WHO og SÞ – Burt með perraputtana frá börnum.

Slóðin þangað er https://www.kla.tv/26686

(Innskot mitt, þann 30. apríl s.l. komu tvær mæður í Menntaspjallið og ræddu um baráttu sína við skólakerfið gegn þessari "kynfræðslu", sjá umfjöllun um það hér.)

5. Jafnrétti kynjanna – Að ná kynjajafnrétti og styrkja allar stúlkur og konur. Pólitískt, efnahagslegt og félagslegt jafnrétti kvenna muna koma öllum jarðarbúum til góða.

Útrýma á kristni, jaðarsetja gagnkynhneigð, eyðileggja fjölskylduna, hampa feminisma, og innleiða LGBTQ stefnuna allsstaðar, og það erum við heldur betur að sjá núna, bæði hér á landi og annars staðar.

Stúlkum er kennt að missa alla tilfinningu fyrir sjálfsmynd og kyni, og í raun drengjum líka, og eins og fram kom hér að ofan, þá er verið að telja þeim trú að þau hafi kannski ekki fæðst í "réttum líkama" eða kyni.

Þetta snýst ekkert um jafnrétti, heldur er hér verið er verið að grafa undan fjölskyldunni, að stjórna fólki með því að að egna því upp hverju á móti öðru.

Fólk er meira að segja farið að rífast um hvað kona er, eins og það sé eitthvað vafamál, og meira að segja hefur Willum heilbrigðisráðherra kallað okkur konurnar orðskrípinu leghafi!

Fólk er sakað um að vera með hatursorðræðu ef það dirfist að hafa aðrar skoðanir en þær "einu leyfilegu" um alls konar málefni sem eru í umræðunni hverju sinni, og sagt vera öfga eitthvað, rasisti, fasisti, nasisti, á móti samkynheigðu og/eða transfólki, svo eitthvað sé nefnt.

Og gleymum ekki hatrinu gegn fólkinu sem reyndi að vara við þessum "bóluefnum" á sínum tíma. Svona löguðu er öllu stjórnað með vísindalegum og margreyndum heilaþvotti og áróðri.

6. Hreint vatn og hreinlætisaðstaða – Tryggja aðgengi og sjálfbæra stjórnun á vatni og hreinlætisaðstöðu fyrir alla.

Þetta markmið snertir okkur hér á landi ekki mikið enn sem komið er, en markmiðið er að leyfa öflugum fyrirtækjum að ná yfirráðum yfir vatnsbirgðum heimsins og rukka einokunarverð til að tryggja skömmtun á vatni þ.a. þú getur til dæmis ekki farið í sturtu nema á ákveðnum tímum.

Og við erum þegar farin að selja vatnsauðlindir okkar úr landi, t.d. hafa feðgarnir Jón Ólafsson og Kristján sonur hans selt stóran hlut í vatnsfyrirtækinu Icelandic Water Holdings til hóps erlendra fjárfesta, Anheuser – Busch áttu þegar 20% í fyrirtækinu, og mér sýnast þessir erlendu fjárfestar vera Blackrock.

Sjáiði hvað þetta er hættuleg þróun?

7. Sjálfbær orka – Tryggja á aðgengi að hagkvæmri, áreiðanlegri, sjálfbærri og nútímalegri orku fyrir alla. Það er nauðsynlegt að innleiða þessar nýju orkulausnir eins hratt og mögulegt er til að vinna gegn loftslagsbreytingum, sem er ein stærsta ógnunin við okkar eigin afkomu.

Loftslagsmálin og orkuskiptin eru ein stærsta svikamyllan og peningaþvottavélin í þessu. Til að "bjarga lofslaginu" á að banna allt jarðefnaeldsneyti og innleiða "græna orku".

Gleymum því ekki að hér á landi hefur VG staðið gegn nýtingu vatnsafls okkar til framleiðslu á grænni orku.

Sveittir og peningagráðugir aðilar bíða þess að geta reist hér vindmyllugarða, sem eru allt annað en grænir og umhverfisvænir. Mörg vindmyllufyrirtæki eru hvert af öðru að fara á hausinn þessa dagana.

Svo þegar allir verða komnir á rafmagnsbíla, og nota tæki knúin af rafmagni því búið verður að banna allt sem knúið er með jarðefnaeldsneyti, þá er lítið mál að slökkva á öllu rafmagni.

Þetta var ég að lesa áðan eftir bandarískan flugvélaverkfræðing: THERE IS NOTHING GREEN ABOUT GREEN ENERGY except the DIRTY MONEY flowing into corrupt pockets.

8. Góð atvinna og hagvöxtur – Stuðla að viðvarandi og sjálfbærum hagvexti, og tryggja öllum mannsæmandi störf. Ef við stuðlum að atvinnusköpun með auknu aðgengi að banka- og fjármálaþjónustu getum við tryggt að allir fái ávinning af frumkvöðlastarfi og nýsköpun.

Ef við horfum á ástandið í heiminum í dag, þá er alls staðar verið að þrengja að okkur, bændur þvingaðir til að bregða búi, sett eru af stað staðgengilsstríð eins og í Úkraníu, milljarðar dollara streyma til þeirra í vonlausan stríðsrekstur, og vextir hækka og verðbólga eykst.

Og hvert fara allir þessir peningar í raun? Mikið til hergagnaframleiðenda og annarra að sjálfsögðu, og svo vænar summur í spillta vasa.

Keyra á smáfyrirtæki í þrot (eins og við sáum í Covid), eyðileggja á frjálsa markaðshagkerfið og neita þeim fyrirtækjum um starfsleyfi sem hlýða ekki fyrirmælum stjórnvalda.

Og þetta "aukna aðgengi" að banka- og fjármálaþjónustu sjáum við bersýnilega í útrýmingu peningaseðla og njósnastarfsemi um hvað við ætlum að fara að gera við peningana okkar, eins og við komum einmitt inná í síðasta þætti.

Mesta tilfærsla auðs í sögunni á sér stað núna og efnahagur heimsins er að hrynja.

Hér á landi erum við núna að súpa seyðið af peningaprentuninni á Covid tímabilinu, vextir eru í hæstu hæðum hér á landi, lánin hafa hækkað gríðarlega, og ungu fólki er gert nánast ókleift að eignast eigið húsnæði.

Endatakmarkið er að afnema eignarrétt okkar á öllum eigum okkar.

9. Nýsköpun, uppbygging og innviðir – Byggja á upp sveigjanlega innviði, efla sjálfbæra iðnvæðingu án aðgreiningar, og efla nýsköpun. Við þurfum að stuðla að nýstárlegri sjálfbærri tækni og tryggja jafnan og almennan aðgang að upplýsinga- og fjármálamörkuðum.

Í bókinni Fjórða iðnbyltingin (The Fourth Industrial Revolution) eftir Klaus Schwab hjá WEF kemur meðal annars fram áætlun um samruna tækni sem þurrkar út mörkin milli líkamlegra, stafrænna og líffræðilegra sviða, eða að bræða saman menn og vélar. Og þarna sjáum við gervigreindina sem verið er að innleiða á fullu allsstaðar.

Það á semsagt að gera okkur “transhuman”.

Möguleikar milljarða manna tengdum með farsímum með áður óþekktu vinnsluafli, geymslurými og aðgangi að þekkingu eru ótakmarkaðir segir hann.

SMARTEftirlit, mælingar og stjórnun starfsmanna, lesist - þrælanna með SMART eða “snjall” kerfum.

T.d. samþykktu Bandaríkjamenn 1,2 trilljóna dollara innviðareikning til að byggja upp SMART kerfi, og sama er að eiga sér stað um allan heim.

Þetta er pakkað sem "þægindi, öryggi og sjálfbærni" er það eina sem er "sjálfbært", eru milljarðamæringarnir á bak við þessi kerfi þar sem hver og einn tekur sinn skerf af kökunni.

Hafa Íslendingar einhverja hugmynd um fyrir hvað SMART – eða íslenska forskeytið SNJALL stendur?

Sjáum sem dæmi þessa snjallmæla sem búið er að setja upp víða hér á landi, þetta hefur neytt fólk erlendis til að t.d. þvo þvottinn sinn, elda, eða fara í sturtu að nóttu til þegar rafmagnið er ódýrast.

Til hvers er verið að skipta út orkumælunum hér sem eru jafnvel í fullkomnu lagi? Ef mér yrði boðið að setja upp snjallmæli fyrir mitt heimili, þá myndi ég segja nei takk.

Allt sem er eitthvað SNJALL, eru njósnatæki sem senda gögn um okkur í einhverja gagnabanka, meira að segja gemsarnir sem við öll erum með, sjónvörpin og fleira. Ég sjálf reyni að forðast þessa tækni eins og ég mögulega get, og myndi t.d. aldrei fá mér snjallúr.

Þetta þýðir einfaldlega meira eftirlit, njósnir og stjórn á okkur, sem verðum orðin "transhuman", eins og Klaus Schwab ætlar að gera okkur.

10. Aukinn jöfnuður – Draga úr ójöfnuði innan og á milli landa. Of mikið af auðæfum heimsins eru í eigu mjög fámenns hóps. Til að þjóðir geti blómstrað þarf jafnrétti og velmegun að standa öllum til boða – óháð kyni, kynþætti, trúarskoðunum eða efnahag.

1212aÞetta er einn stærsti brandarinn, auðvitað stendur ekkert til að draga úr ójöfnuði, þeir sem eiga auðæfin ætla að sjálfsögðu ekkert að gefa þau frá sér eða deila með okkur, heldur auka þau. Ef þeim væri einhver alvara með þessu, þá væru þeir löngu byrjaðir á því.

Á meðan litlum og meðalstórum fyrirtækjum var lokað eða gert erfitt fyrir í Covid, soguðu stórfyrirtæki eins og Amazon til sín óhemju auðæfum, og á þeim tíma urðu til margir milljarðamæringar.

Og þetta var bara forsmekkurinn að því sem koma skal.

11. Sjálfbærar borgir og samfélög – Að gera borgir og bæjarfélög örugg, sveigjanleg og sjálfbær.

Það ætla þeir sér með þessum 15 mínútna fangelsisborgum sem byrjað er að skipuleggja víða, meira að segja hér á landi. Verið er að skipta borgum niður í lítil svæði þar sem fólk á að geta sinnt sínu daglegu lífi innan svæðisins gangandi eða hjólandi á innan við 15 mínútum.

Strangar reglur munu verða settar um bílferðir og allar bílferðir út úr svæðinu eru vaktaðar með eftirlitsmyndavélum, og fari íbúi oftar á ári en “leyfilegt er” á bíl sínum út úr hverfinu, þá mun hann sæta sektum.

Dæmi um slíka borg er Oxford í Bretlandi, þar sem íbúar eru að berjast hart gegn þessu. Ég mæli eindregið með því að fólk lesi bloggið mitt sem nefnist Hvað eru 15 mínútna borgir? Lausn á “loftslagsvánni” eða meiri fjötrar?

Þetta er í raun bara leið til að loka okkur inni undir gríðarlegu rafrænu eftirliti, undir því yfirskyni að verið sé að bjarga loftslaginu.

12. Ábyrg neysla og framleiðsla - Tryggja á sjálfbært neyslu- og framleiðslumynstur. Plánetan okkar hefur séð okkur fyrir gnægð af náttúruauðlindum en við höfum ekki nýtt þær á ábyrgan hátt og neytum nú langt umfram það sem plánetan okkar getur veitt.

Við getum öll verið sammála um að framleitt er allt of mikið af alls konar óþarfa varningi og sóun er allt of mikil, og þar getum við öll tekið okkur á en ég hef ekki séð marga vöruframleiðendur og seljendur sýna ábyrgð í verki.

Ég sjálf er á póstlistum frá nokkrum innlendum aðilum og fæ endalaus gylliboð um nýjar vörur sem ég "má ekki missa af". Það kemur alveg fyrir að ég nýti mér einhver tilboð, en aðeins ef það er eitthvað sem mig vantar.

Við sjáum í hvaða farveg sorpmálin eru komin hér á landi. Þetta er enn ein leiðin til að fá okkur til að hlýða -  og borga meira, og rotturnar lifa núna kóngalífi á lífræna úrganginum.

Byrjað er á, og/eða fyrirhugað er að leggja á refsiskatta á neyslu jarðefnaeldsneytis og rafmagns, fyrir utan kolefnisskattinn.

Og við hér á Íslandi, sem erum með hreinustu orku í heimi greiðum stjarnfræðilegar upphæðir til þessara svokölluðu loftslagsmála, sem eru bara ein stór peningaþvottavél!

Þetta mun að sjálfsögðu leiða til versnandi lífskjara okkar, en ekki "engrar fátæktar" sem þeir boða í fyrsta heimsmarkmiðinu, enda er það tilgangurinn.

13. Aðgerðir í loftslagsmálum - Grípa þarf til brýnna aðgerða til að berjast gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. Loftslagsbreytingar eru raunveruleg og óneitanlega ógn við alla siðmenningu okkar.

Áhrifin eru sýnileg og verða skelfileg nema við bregðumst við núna. Með menntun, nýsköpun og "fylgni" við loftslagsskuldbindingar okkar getum við gert nauðsynlegar breytingar til að vernda jörðina. Þessar breytingar munu veita gríðarleg tækifæri til að nútímavæða innviði okkar.

Þá erum við komin að loftslagsmálunum, og þetta tengist markmiði 7 um sjálfbæra orku.

Þetta er eintómur og glórulaus hræðsluáróður alveg á pari við það sem við upplifðum í Covid, þegar mannkynið var gert sturlað af hræðslu við einhverja ósýnilega veiru.

Og ríkisstjórnin er búin að gefa út grænt skuldabréf á 111 milljarða á 3.5% vöxtum til að mæta kostnaði ríkissjóðs vegna umhverfismála á næstu árum! Hvert fara allir þessir peningar í raun?

Nú ætla ég að lesa upp stórkostleg upphafsorð António Guterres, framkvæmdastjóra SÞ á blaðamannafundi um loftslagsmál.

Það eru loftslagsbreytingar í gangi núna. Þetta er skelfilegt, og þetta er bara byrjunin!
Tímabili hlýnunar er lokið; tímabil heimssuðunnar (global boiling) er runnið upp.
Það er ekki hægt að anda að sér loftinu.

Gjörsamlega galið!

Yfirlýsingar þessa fólks í gegnum árin eru hver annarri bjánalegri, enda hafa fæstar þessara eilífu hamfarafrétta, ef nokkrar ræst.

Staðreyndin er sú að það á að banna okkur að ferðast, keyra bíla, borða kjöt, neyta mjólkurvara, kaupa "of mikið" af fötum o.s.frv. í nafni þess að verið sé að bjarga loftslaginu.

Og þetta er þegar byrjað, ég sá frétt í gær um að á gamlárskvöld 2024 verður Stokkhólmur fyrsta borg í heiminum til að banna bensín- og dísilbíla í hluta borgarinnar.

Finnið bara viðtal við Patrick Moore meðstofnanda Greenpeace samtakanna, en hann er vistfræðingur að mennt með doktorsgráðu í faginu. Hann segir að þetta sé allt bara haugalygi, og margir aðrir virtir og óháðir sérfræðingar taka í sama streng.

Það fólk er öllu trúanlegra en t.d. Al Gore og Greta Thunberg sem hafa ekki einu sinni neina menntun í þessum málum, en eru bæði búin að auðgast gífurlega á loftslagsáróðri sínum.

14. Líf í vatni - Varðveita og nýta á höf og auðlindir sjávar á sjálfbæran hátt.og til sjálfbærrar þróunar. Höfin þekja 70 prósent af plánetunni okkar og við treystum á þau fyrir mat, orku og vatn. Við verðum að vernda þau, og byrja strax að stjórna og vernda allt sjávarlíf um allan heim á ábyrgan hátt.

Banna á fiskveiðar, þetta sjáum við bersýnilega hér á landi, búið er að þrengja að strandveiðisjómönnum, skerða fiskveiðar um 30% og banna hvalveiðar, og öll þessi bönn munu að sjálfsögðu valda hröðum verðhækkunum á matvælum og matarskorti, eins og raunverulega stefnan er.

Okkur mun í staðin verða boðið upp á erfðabreyttan lax og gervifisk fyrir utan gervikjötið, pöddumatinn og allann óþverrann sem ég nefndi hér ofar.

15. Líf á landi – Vernda á, endurheimta og stuðla að sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, stjórna skógum á sjálfbæran hátt, berjast gegn eyðimerkurmyndun og stöðva og snúa við hnignun lands og stöðva tap á líffræðilegum fjölbreytileika. Það er lykillinn að því að við getum lifað af.

Milljarðamæringurinn Bill Gates er búinn að kaupa upp gríðarleg landsvæði í Bandaríkjunum, og án þess að vita það fyrir víst, þá þykir mér ekkert ólíklegt að svona landauppkaup eigi sér stað í öðrum löndum. Og annar milljarðamæringur, sá breski James Ratcliffe er búinn að kaupa upp að því er ég held ca 1,6% af Íslandi, segir hann það ekki vera til að vernda laxastofninn, eða eitthvað álíka?

Stjórna á öllum landbúnaði í gegnum spillt skrifræðiskerfi, og byrjað er að reyna að þvinga bændur til að hætta búskap sínum eins og ég nefndi hér að ofan.

Raunverulega stefnan er að leggja niður landbúnað og þvinga alla úr dreifbýlinu inn í þessi 15 mínútna fangelsissamfélög í borgum.

16. Friður og réttlæti - Stuðla að friðsamlegum og samfélögum án aðgreiningar fyrir sjálfbæra þróun, veita öllum aðgang að réttlæti og byggja upp árangursríkar og ábyrgar og stofnanir án aðgreiningar á öllum stigum.

Samúð og sterkur "siðferðilegur áttaviti" er nauðsynlegt fyrir hvert lýðræðissamfélag. Við verðum að tryggja að við höfum sterkar stofnanir, "alþjóðlega" réttlætisstaðla og skuldbindingu um frið alls staðar.

En hvað er að gerast, bæði hér á landi og annars staðar? Nánast stjórnlaust flæði fólks, jafnvel frá allt öðrum menningarheimum inn í vestræn lönd, og er það því miður partur af prógramminu. Þetta er gert til að sprengja upp og sundra vestrænni menningu.

Herða á lögregluríkið allsstaðar og það á að setja einhverja íhluti í okkur, og þá detta mér sóttvarnalögin í hug sem við töluðum um síðast, svo hægt verði að hafa algjört eftirlit með okkur.

Ég get alveg lofað ykkur að skuldbinding um frið og réttlæti alls staðar eru bara orðin tóm. Ef einhver vilji væri fyrir hendi, þá væri löngu byrjað á að koma á friði í heiminum, við hljótum öll að sjá það.

17. Samvinna um markmiðin - Það þarf að styrkja leiðir til innleiðingar og endurvakningar alþjóðlegs samstarfs um sjálfbæra þróun. Alþjóðlegar fjárfestingar og stuðningur eru nauðsynleg til að tryggja nýstárlega tækniþróun, sanngjörn viðskipti og markaðsaðgang. Til að byggja upp betri heim þurfum við að vera styðjandi, samúðarfull, frumleg, ástríðufull og umfram allt samvinnuþýð.

Rétta þýðingin á orðinu samúðarfull, er hlýðinn. Orðin samstarf, sjálfbærni, sanngirni og betri heimur er bara blekking og tálsýn.

Þeir munu endalaust framleiða einhverjar "kreppur", þykjast síðan koma til bjargar með lausnir sem muni skapa nýjar atvinnugreinar til að bjarga málunum. Þessar atvinnugreinar eiga þeir sjálfir og græða milljarða á þeim.

Þessi "samvinna" felst í því að afnema fullveldi þjóða, setja hverja þjóð undir kommúníska stjórn undir stjórn einnar allsráðandi heimsstjórnar.

Svo svona eru heimsmarkmið SÞ raunverulega gott fólk, en eins og ég sagði hér í byrjun, þetta er ekki nema toppurinn á ísjakanum.

Ég rakst á texta daginn eftir að við spjölluðum saman síðast, sem rímar akkúrat við það sem við erum að ræða hér.

Sagan er um hund, en hlekkjunum í ólinni hans var fækkað smátt og smátt með nokkurra daga millibili, þangað til hún var orðin svo stutt að hann gat varla hreyft sig.

Hann veitti aldrei mótspyrnu því það var búið að venja hann smátt og smátt við það að missa frelsið sitt.

Þetta er að gerast hjá okkur öllum núna, og það má líka líkja þessu við söguna um froskinn sem var settur í kalt vatn í potti, og vatnið var hitað svo hægt og rólega að hann gerði sér ekki grein fyrir því fyrr en of seint að verið var að sjóða hann til dauða.

Hin raunverulega merking heimsmarkmiða SÞ

 

Heimsmarkmiðin 2

 

Klaus Schwab með áramótalukkuhjólið sitt

Hvaða "krísur" ætli þeir komi með næst til að hræða okkur ferðina enn? Ný stríð, netárásir, nýja "heimsfaraldra", og við bíðum jú eftir "Disease X" sem er víst væntanlegur? ...

Verið er að innleiða heimsmarkmiðin út um allt hér á landi, og í fyrra sagði þáverandi forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir að þau væru hálfnuð með "Agenda 2030" (áður Agenda 21), og það þurfi að sýna fordæmalausa einbeitingu í að hraða aðgerðunum í sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Við getum látið okkur "hlakka til" ársins 2030 þegar við munum ekkert eiga, og vera hamingjusöm eins og Klaus Schwab er búinn að lofa okkur.

0112

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Meiri upplýsingar um Sameinuðu þjóðirnar:

Sameinuðu þjóðirnar hafa þegjandi og hljóðalaust í áratugi byggt upp völd í kyrrþey, og hafa með samningum eins og Agenda 2030 í raun orðið sjálfstætt fullveldi.

Þessi skuggaheimsstjórn leitast við að stjórna öllum hliðum lífs okkar.

Organisations that meke up the UN World Government System

Kristín Inga Þormar, 3.5.2024 kl. 12:35

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Meiri upplýsingar um The World Economic Forum:

Alþjóðaefnahagsráðið heldur því fram í nýrri skýrslu, að 98 prósent seðlabanka heimsins hafi samþykkt að hrinda í framkvæmd langþráðum draumi alþjóðasinna um peningalaust samfélag.

Ekki fæst annað séð en að okkar eigin seðlabanki hafi líka samþykkt þetta!

NEW REPORT: ‘Over 98 percent’ of world’s central banks gearing up for new system of programmable, trackable ‘digital cash’ and 24 nations will have ‘live CBDCs’ by 2030

Kristín Inga Þormar, 3.5.2024 kl. 12:44

3 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Árásirnar á matvæli og landbúnað:

Ímyndaðu þér, vatn fær bara sá sem hegðar sér pólitískt rétt á samfélagsmiðlinum sínum sem er tengdur við Seðlabankann. Náttúrulegri fæðu er skipt út fyrir gervifæðu og nytjadýrin okkar eru bólusett með erfðabreyttum mRNA bóluefnum. Hefðbundinn landbúnaður er ekki lengur til… Hljómar eins og vísindaskáldsaga? Nei, þetta er á dagskrá - Agenda 2030, þar sem næringu er beitt gegn okkur sem vopni!

Næring sem vopn“ Sem tengir saman bændamótmæli, ‚Agenda‘ 2030 og árásina á matvælin

Kristín Inga Þormar, 3.5.2024 kl. 12:49

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Stafrænu auðkennin:

Bill og Melinda Gates stofnunin tilkynnti um 1,27 milljarða dala skuldbindingu til að efla "alheimsmarkmið" sem eru 17 markmiðin sem lýst er í dagskrá Sameinuðu þjóðanna 2030.

Sem hluti af þessu mun svona óhemju mikil fjármagnun ýta undir alþjóðlegt stafræn auðkenni. Já, þú lest þetta rétt. Alþjóðlegt stafrænt auðkenni.

Bill Gates push for DIGITAL ID with $1.27 billion donation to Agenda 2030 ”Global Goals”

Kristín Inga Þormar, 3.5.2024 kl. 12:56

5 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Er gervikjöt öruggt fyrir neytendur?

Dæmi um kjöt framleitt á rannsóknarstofu er ræktað [manngert] kjöt. Talsmenn þessa kjötlíkis halda því fram að þessi vara sé ekki „gervi kjöt“ heldur „alvöru kjöt“, eini munurinn sé sá að ekki þurfi að slátra dýrum til framleiðslu þess.

„Hlaðborð Frankensteins à la Agenda 2030“ – Það sem er áríðandi að þú vitir um kjötuppbótarefni!

Kristín Inga Þormar, 3.5.2024 kl. 13:11

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Magnað viðtal við fyrrum framkvæmdastjóra hjá Sameinuðu þjóðunum!

Sameinuðu þjóðirnar eru nú að útfæra Dagskrá 2030, með hinum alræmdu „sjálfbærnimarkmiðum“. Þetta alheimsverkefni miðar að því að gjörbreyta öllum þáttum mannlegrar tilveru: Mat, kynhneigð, fjölskyldu, vinnu, fjármál, heilsu, menntun, öllu!

Þetta mun að sögn binda enda á fátækt, hungur, ójöfnuð, veikindi og annað slæmt. Fyrrverandi framkvæmdastjóri sem starfaði hjá SÞ í tvo áratugi segir aðra sögu. Hann útskýrir að SÞ sé stjórnað af glæpamönnum sem nota þau til að auðga sig og hneppa mannkynið í þrældóm.

Dark Secrets of the United Nations Revealed By Top Official

Kristín Inga Þormar, 3.5.2024 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband