Bloggfærslur mánaðarins, september 2021

Já er það, er glundrið jafn "öruggt" og fyrir fullorðna? Er einhver virkilega að trúa þessu?

Álíka "fréttir" og þessi eru búnar að dynja á okkur síðan þessi svokallaði "heimsfaraldur" byrjaði.

"Pfizer og Bi­oNTech gáfu í dag út að niður­stöður rann­sókna þeirra sýna að bólu­efni gegn Covid-19 sé ör­uggt og fram­kalli öfl­uga ónæm­is­vörn hjá börn­um á aldr­in­um fimm til ell­efu ára. Þá gáfu þau einnig út að þau munu leita samþykk­is eft­ir­litsaðila fljót­lega og sögðu að bólu­efnið yrði gefið í væg­ari skammti fyr­ir börn yngri en 12 ára."

„Hjá þátt­tak­end­um á aldr­in­um fimm til ell­efu ára var bólu­efnið ör­uggt, þold­ist vel og sýndi öfl­uga mót­efna­svör­un,“ sagði banda­ríski lyfjaris­inn Pfizer og Bi­oNTech í sam­eig­in­legri yf­ir­lýs­ingu.“

Ég bíð bara spennt eftir því að Þórólfur & co verði tekin í viðtöl svo þau geti tekið undir þetta!

Vekur þetta ekki alveg gríðarlega von í brjósti ykkar? Nú fer loksins að verða hægt að sprauta börn yngri en 12 ára!

Rannsóknir ÞEIRRA sýna frábærar niðurstöður, og auðvitað trúum við framleiðendunum sjálfum þegar þeir mæra ágæti eigin framleiðslu, nema hvað!

Þessi bóluefni þeirra hafa virkað svo ljómandi vel að búið er að tilkynna um 1.416 aukaverkanir vegna þeirra hér á landi, þar af 56 alvarlegar og 23 andlát.

Tölur dagsins, heildarfjöldi kominn upp í 3.195!

2009a

 

Comirnaty (BioNTech/Pfizer):

 

88 alvarlegar tilkynningar hafa borist.

  • 23 þeirra varða andlát. 18 andlát vörðuðu aldraða** einstaklinga, 15 þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Fjögur andlát vörðuðu eldri*** einstaklinga, þrír þeirra með staðfesta undirliggjandi sjúkdóma. Eitt andlátið varðaði einstakling á aldursbilinu 60-64 ára með staðfestan undirliggjandi sjúkdóm.
  • 45 tilkynningar varða sjúkrahúsvist (þar af níu lífshættulegt ástand).
  • 15 tilkynningar teljast klínískt mikilvægar og þar með flokkaðar sem alvarlegar****.
  • Tvær tilkynningar teljast alvarlegar, þar sem beðið er eftir viðbótarupplýsingum.
  • Þrjár tilkynningar varða fósturmiska.

Þetta er tekið af vef Lyfjastofnunar, var uppfært síðast 14. september, og síðan þá hefur ein ný bæst við.

Sjáið þið þetta með fósturmiskana, þetta er nýtt, og það er samtals búið að tilkynna um 8 fósturmiska vegna þessara efna!

Fréttirnar

"Frétta"flutningurinn hér á landi er með ólíkindum slakur, bara óboðlegur eins og ég minntist á í bloggi mínu í gær, og það á við alla miðlana sem eru á ríkisspenanum.

Eins og þessi frétt, hér virðist fréttatilkynning frá framleiðandanum vera þýdd yfir á íslensku og skellt á netið í formi "fréttar".

Athugasemdalaust, gagnrýnislaust og án nokkurra tilvitnana í heimildir eða sannanir fyrir þessum fullyrðingum.

Sérstaklega í ljósi þess að það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum (alvöru) blaðamanni að þessi svokölluðu "bóluefni" eru þegar búin að valda hræðilegum skaða og andlátum út um allan heim!

Börnin

Þann 8. september var búið að tilkynna um alvarlegar aukaverkanir hjá 6 börnum hér á landi, og 14 ára drengur fékk blóðtappa í lungun eftir fyrri bólusetningu, sem er vel þekkt aukaverkun.

Hvað ætla íslenskir foreldrar að gera þegar þessi "öruggu og öflugu bóluefni" koma til landsins? Æða í Laugarvaxhöllina með þau þegar kallið kemur?

Það kæmi mér hreint ekkert á óvart, því miður.


mbl.is Pfizer segir bóluefnið öruggt fyrir ung börn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar "fréttir" eru bara copy-paste úr erlendum miðlum!

Mikið er gott að geta alltaf treyst á að hamfara"fréttamaðurinn" góði, Kristján Kristjánsson, færi manni nýjustu "fréttirnar" af yfirstandandi og "væntanlegum" afbrigðum og faröldrum og hvað er í vændum í pestamálum.

Hann klikkar aldrei!

 1909e

"Bresk stjórnvöld hafa sett á laggirnar nýja stofnun, The Pandemic Institute, sem á að aðstoða heimsbyggðina við að koma í veg fyrir heimsfaraldra, undirbúa viðbrögð við þeim og bregðast við þeim. Stofnunin á einnig að vinna að því að hraða þróun bóluefna við faröldrum framtíðarinnar og stytta þróunartíma þeirra um þrjá til sex mánuði."

The Pandemic Institute

Mér datt í hug að skoða þessa stofnun, og eftir stutta rannsókn sá ég að hún er upphaflega fjármögnuð með rausnarlegu framlagi af Innova Medical Group, sem var stofnað í upphafi "heimsfaraldursins".

Það vill svo skemmtilega til að það er búið að moka inn peningum á mótefnavakaprófum, mótefnaprófum, og ekki síst "NHS Test and Trace" búnaði, sem breska ríkisstjórnin hefur fjárfest 3.2 milljarða punda í!

En ekki virðast allir hafa jafn mikla "trú" á þessu fyrirtæki og breska ríkisstjórnin.

Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna segir:

Stop Using Innova Medical Group SARS-CoV-2 Antigen Rapid Qualitative Test:FDA Safety Communication

"The U.S. Food and Drug Administration (FDA) is warning the public to stop using the Innova Medical Group SARS-CoV-2 Antigen Rapid Qualitative Test for diagnostic use. The FDA has significant concerns that the performance of the test has not been adequately established, presenting a risk to health.

In addition, labeling distributed with certain configurations of the test includes performance claims that did not accurately reflect the performance estimates observed during the clinical studies of the tests. Finally, the test has not been authorized, cleared, or approved by the FDA for commercial distribution or use in the United States, as required by law."

Sjá fréttina hér.

The Innova Scandal - Questions the government has ignored

"THE owner of Innova Medical Group, suppliers of the flawed lateral flow test (LFT) on which the British taxpayer has spent billions of pounds but which has been declared unsafe and only fit for the bin in America, is Chinese-born American businessman Dr Charles Huang (PhD in marketing from Strathclyde University).

He has been associated with scandal in the past. As the financial director of a Chinese automotive manufacturer, Brilliance Group, he ‘played a key role in the strategic alliance between China’s Brilliance Group and MG Rover Group in the UK in 2002’. This is what his biography page on Pasaca Capital, the company that wholly owns Innova Medical Group (IMG), at the heart of my investigation, proudly tells us.

In fact it is nothing to boast about. It was an ill-fated joint venture which was embroiled in scandal."

Og meira:

"How did Innova Medical Group come to get these lucrative UK government contracts in the first place? Who made the introduction? How was this one company chosen? Why was Innova given such preferential treatment by the joint PHE and Oxford University evaluation programme run by the DHSC, chaired by Matt Hancock and overseen by Sir John Bell of Oxford University?"

Sjá gríðarlega yfirgripsmikla umfjöllun um þetta mál hér.

A Pasadena startup got billions selling COVID tests. Then came questions

"In the last year, executives at a Pasadena startup began flying from Burbank to destinations around the world on a pair of newly registered Gulfstream jets, one a G650 decked out in white plush seats, burnished interiors and other luxury finishes."

Öll greinin er hér.

Skítalykt og spilling!

Ok, þessi stofnun er sett á laggirnar með 10 milljóna punda "gjöf" sem er tæplega 1.8 milljarðar íslenskra króna, frá Innova Medical Group sem var stofnað af Kínverja með vafasaman bakgrunn í upphafi "heimsfaraldursins".

Finna fleiri skítalykt af þessu en ég?

Kristján Kristjánsson "fréttamaður"

Gat maðurinn ekki aulast til þess að kanna aðeins bakgrunn The Pandemic Institute og hverjir fjármagna þessa stofnun, áður en hann birti þessa "frétt"?


Er algengt eða eðlilegt að 14 ára börn fái blóðtappa í lungun?

Geta sprauturnar valdið blóðtöppum í börnum? Svarið er því miður já.

Frétt á RÚV 16. september síðastliðinn:

"Unglingsdrengurinn sem liggur á Barnaspítalanum var að ljúka einangrun þegar hann var lagður inn í gær. Líðan hans er stöðug og ekki er búist við að hann þurfi að liggja inni í marga daga. Hann veiktist nokkrum dögum eftir fyrsta skammt af bóluefni." (Áherslubreytingin er mín.)

Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við foreldra drengsins:

"Daníel Indriðason, 14 ára, var greindur með kvíðakast á heilsugæslunni á mánudag og var honum sagt að fara heim að hvíla sig. Foreldrar hans, Indriði Björnsson og Rikke Pedersen, fóru með hann á Barnaspítalann á þriðjudagsmorgni þar sem blóðtappar í báðum lungum drengsins komu í ljós." (Áherslubreytingin er mín.)

Er þetta tóm tilviljun eins og allt annað í þessum "heimsfaraldri", aldrei neitt sem bendir til tenginga milli sprautanna og aukaverkana?

2508a

Ragnar Reykás

Trúverðugleiki sóttvarnarlæknis okkar er löngu fokinn út í buskann. Í viðtali 14. apríl 2020 sagði hann:

"Það þarf að tryggja að nýtt bóluefni valdi ekki skaða".

Og hver er staðan núna? 3.188 tilkynningar um aukaverkanir hafa borist, þar af 170 lífshættulegar, og 31 andlát. Hvað ætli falli undir skaða í hans orðabók?

Viðtal við hann 14. júlí síðastliðinn:

"Sóttvarnalæknir ætlar ekki að mæla með almennum bólusetningum hraustra barna að svo stöddu. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur skorið úr um að aukin tíðni gollurshússbólgu (e. pericardititis) og hjartavöðvabólgu (e. myocarditis) sé eftir bólusetningu með mRNA bóluefnunum Comirnaty (Pfizer/BioNTech) og Spikevax (Moderna). Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni sem birt er á vef Landlæknis."

Viðtal við hann 23. ágúst síðastliðinn:

"Sótt­varna­yf­ir­völd hér á landi mæla heils­hug­ar með því að for­eldr­ar þiggi boð um að bólu­setja börn sín. Skipu­lögð bólu­setn­ing barna á aldr­in­um 12-15 ára hófst í Laug­ar­dals­höll í dag. 

Þórólf­ur seg­ir mark­mið sótt­varna­yf­ir­valda með bólu­setn­ingu barna vera að verja þau gegn al­var­leg­um áhrif­um veirunn­ar, sem nú séu enn skæðari með til­komu Delta-af­brigðis­ins. 

Hann seg­ir að mark­mið með bólu­setn­ingu barna sé líka að reyna að minnka út­breiðslu smita í sam­fé­lag­inu, þótt það sé ekki síður mik­il­vægt mark­mið nú þegar ljóst er að virkni bólu­efna til þess sé minni en von­ast var til."

Hvers vegna urðu þessi sinnaskipti hjá honum?

Komu einhver ný "VÍSINDI" fram á þessum rúma mánuði? Hann er búinn að vera margsaga í þessum "heimsfaraldri" eins og hinn bandaríski kollegi hans.

Það er löngu búið að sýna fram á að börn eru í nánast engri hættu á að deyja vegna veikinda vegna þessarar veiru, og nú eru þau að vekjast EFTIR þessar sprautur, og jafnvel lífshættulega!

0709c

Bóluefnin eru að drepa og örkumla metfjölda ungmenna - ung börn eru næst!

Þetta segir í nýlega birtri grein. Verða þetta líka örlög einhverra þeirra barna sem þegar er búið að sprauta með þessum tilraunaefnum hér á landi?

1809d

Þórólfur og öll þau sem nörruðu fyrst meiri hluta fullorðins fólks í þessar sprautur, og núna líka börnin, eru sek um að brjóta öll lög og allar siðareglur sem hægt er að brjóta gagnvart þjóð sinni.

Búið er að safna saman mörgum sönnunargögnum um það sem verða birt áður en langt um líður.


Fauskurinn, grímurnar og vísindin.

Það er með ólíkindum hvað "vísindin" hafa tekið mörg flikk flakk heljarstökk síðastliðna eina og hálfa árið eða svo.

Mér er svo meinilla við þennan glæpamann að ég kalla hann Fausk, finnst það enda hæfa honum betur.

Það er hin besta skemmtun að horfa á þetta stutta vídeó sem er klippur úr mörgum viðtölum við hann, og það væri fróðlegt að sjá samskonar samantekt um allar hinar lygarnar hjá honum.

Grímur gera ekkert gagn, grímur gera rosa mikið gagn, þú þarft ekki að nota grímu ef þú ert bólusett/ur, vertu með tvær grímur inni hjá þér þótt þú sért bólusett/ur.....

Það mætti halda að sóttvarnarlæknir okkar hafi farið á námskeið hjá honum í bull- og lygatækni, sá er heldur betur líka búinn að fara í mörg heljarstökk með sín "vísindi" í þessum "heimsfaraldri"!

Svona eru "vísindin" þessa dagana

Heiðarlegir vísindamenn eru hæddir, rægðir, ritskoðaðir og útskúfaðir, en þeir sem hægt er að kaupa, galdra fram fyrirfram ákveðnar niðurstöður, fyrir réttar upphæðir.

 

rsz_2104b

Dr. Fauskur og ferill hans í 40 ár

Það er búið að standa hann að þvílíkum lygum og þvættingi í gegnum þennan "heimsfaraldur" að það hálfa væri miklu meira en nóg. En ferill hans er miklu lengri en það.

Það er ekkert mál fyrir áhugasama að finna allt um það á netinu.

0409a

Og loksins fann ég grímu sem ég fíla í botn! laughing

rsz_1904c

 


Sögurnar sem EKKI má segja um aukaverkanirnar og andlátin eftir bólusetningarnar!

Fréttastöð í Detroit í Bandaríkjunum bað hlustendur á Facebook síðu sinni nýlega að deila með sér sögum af ástvinum sem hefðu neitað að láta bólusetja sig, og látist (þess vegna) úr Covid-19.

En það snérist heldur betur í höndunum á þeim, og í stað þess að fá slíkar sögur hefur hún þegar þetta er ritað, fengið 205.000 athugasemdir og 186.000 deilingar.

Og þessar athugasemdir eru svo sannarlega ekki um það sem beðið var um, heldur hryllingssögur um afdrif fólks eftir þessar svokölluðu "bólusetningar".

En það dásamlega er, að margar fréttaveitur líklega flestar "under the radar" hafa fjallað um þennan þráð.

Hér er þessi Facebook þráður, og þar má sjá margar hræðilegar frásagnir.

Þetta eru EKKI sögur sem maður sér í meginstraumsfjölmiðlunum, við fáum bara að heyra hversu þessi efni séu góð og örugg og séu eina leiðin út úr þessum svakalega "heimsfaraldri". Og að aldrei sé neitt sem bendi til tenginga á milli aukaverkana og sprautanna.

Er fólk virkilega ennþá að TRÚA þessu???

Ég er bara gapandi hissa yfir því hvað margir eru enn að verja þessi tilraunaefni í athugasemdum, og enn að verja allt þetta afnám á persónufrelsi okkar vegna pestar sem löngu er búið að koma í ljós að hún er hreint enginn drápsfaraldur!

Staðreyndin er að milli 7 og 8% andláta á Íslandi á hverju ári eru vegna sjúkdóma í öndunarfærum (sem Covid-19 er víst), sem er u.þ.b. 165 andlát á ársgrundvelli.

Voru þau sem létust víst vegna veirunnar í fyrra, flest fólk á áttræðis- og níræðis aldri krufin til að sannreyna dánarorsök?

Vitiði, ég ætla mér að leyfa mér að efast um það, ég er löngu hætt að trúa öllu þessu fólki sem hefur narrað stærstan hluta þjóðarinnar, og 12-15 ára börn núna í sprautur með þessum tilraunaefnum.

Því það er búið að standa það að stórkostlegum lygum undanfarið eitt og hálft ár, sem bæði ég og aðrir erum margoft búin að sýna fram á.

Ritskoðunin í heiminum er skelfileg í dag, eins og ég fjallaði um í nýlegri færslu. Hefur þú, lesandi góður einhvern tímann séð svona myndir og frásagnir eins og ég birti hér fyrir neðan?

Ég sjálf er búin að sjá þúsundir frásagna fórnarlamba og/eða aðstandenda þeirra, og hver sem nennir að hafa fyrir því, getur fundið þær líka.

ÖRFÁ skjáskot sem ég hef tekið hér og þar á óritskoðuðum miðlum

4. maí c

0309d

0809b

0809c

0809d

1609c

1609d

1609e

1609f

1609h1609i

1609g

Nokkrar síður sem fjalla um afleiðingar þessara svokölluðu "bólusetninga":

https:/1000covidstories.com

vaxpain.us

https://www.c19vaxreactions.com/real-video-stories.html

https://www.vaxlonghaulers.com/

https://mypatriotsnetwork.com/patriot/wtf-over-1000-pages-of-horrifying-pictures-stories-facts-about-covid-vaccines/

Ég gæti sýnt ykkur margar fleiri vefsíður um fórnarlömb tilraunabóluefnanna, en þetta er ágætt í bili.

Hafið bara í huga að lyfjafyrirtækin sem eru búin að framleiða þessi tilraunaefni treysta eigin afurð ekki betur en svo að þau eru búin að baktryggja sig gegn skaðabótakröfum vegna þeirra!

Myndu t.d. bíla- og flugvélaframleiðendur komast upp með það líka?

 

2408

 

 


Svona er ritskoðunin á Facebook í dag!

Ég ákvað að taka smá rúnt um fréttaveituna mína á Facebook áðan, og sá færslu sem FB vinur póstaði, og mikil ósköp "sjálfstæðu staðreyndafasistarnir" voru ekki lengi að smella inn viðvörun sem meðal annars sagði að Covid-19 bóluefnin væru ekki tilraunalyf!

1409d

Maður verður að hafa verið grafinn undir þúfu í eitt og hálft ár, eða vera enn fastur í hræðsluheilaþvottinum til að vita ekki að þetta eru tilraunabóluefni í tilraunafasa til 2023!

Svo er hér annað dæmi um ritskoðunina

1409f

Siðprúðu og keyptu staðreyndafasistarnir á Facebook vara fólk við ef það vill fá inngöngu í þessa grúppu sem samanstendur af fólki sem er að berjast gegn því sem raunverulega er í gangi í heiminum í dag.

Núna eru 7.100 manns í þessari grúppu, og henni verður pottþétt eytt út allra næstu daga, eins og þeim hundruðum öðrum sem hafa fjallað um fólk sem hefur skaðast af þessum "góðu" bóluefnum.

Ég sjálf bjó til 2 albúm á Facebook þar sem ég safnaði saman sönnunum um skaðræði þessara efna, og mörgum hroðalegum myndum af sköðuðu fólki.

En viti menn, einn daginn voru þau bæði horfin, alveg þegjandi og hljóðalaust og án nokkurra viðvarana um að ég hefði brotið einhverjar "siðferðisreglur" síðunnar.

Hver einasta færsla sem minnist á (hugsanlega) skaðsemi þessara tilraunaefna, eða fjallar um lyf sem hefur fengið Nóbelsverðlaun, og hefur sýnt sig í ótal rannsóknum að hafa virkað mjög vel í snemmeðferðum, fær á sig athugasemd um að öll tilraunalyfin séu mjög vel prófuð og örugg.

Og alveg grínlaust, fólk hefur verið sett í bönn alveg vinstri hægri á Facebook fyrir jafnvel saklausar myndir af sólarlagi sem það birti ári fyrr!

Þetta er ekki bara á Facebook!

YouTube, Twitter, Google og fleiri samfélagsmiðlar og leitarvélar eru þessi misserin að ritskoða og henda út allri umræðu sem samræmist ekki einu leyfðu umræðunni um "gagnsemi" þessara genabreytandi tilraunalyfja sem eru sannanlega búin að valda dauða þúsunda og skaða enn fleiri fyrir lífstíð.

Ritskoðunin grasserar líka hér á landi, og allir miðlar nema Útvarp Saga birta endalausar hræðslufréttir um "nýjustu smitin", hversu margir hafi látist úr pestinni, og hversu "nýjasta afbrigðið" sé hættulegt.

OG FÓLK TRÚIR ENN ÖLLU ÞVÍ SEM ÞAÐ SÉR, HLUSTAR Á OG LES Í ÞESSUM RÍKISSTYRKTU MIÐLUM!

Er búið að heilaþvo heilbrigða skynsemi og rökhugsun úr meginþorra Íslendinga?

Stutta svarið er því miður já.

Og ef eitthvað toppar þetta rugl, þá er það þetta:

1409g

 


Úff, nú eru flest börn á aldrinum 12-15 ára að verða orðin fullbólusett!

"Mæt­ing í seinni bólu­setn­ingu barna á aldr­in­um 12 til 15 ára í dag var fín og gekk bólu­setn­ing­in vel að sögn Dag­nýj­ar Hængs­dótt­ur, verk­efna­stjóra bólu­setn­inga hjá heilsu­gæsl­unni. Þessi hóp­ur fær bólu­setn­ingu með bólu­efni Pfizer."

Blessaðir foreldrarnir hafa ekki hugmynd um hvað þeir eru hugsanlega búnir að gera börnunum sínum!

"Hafið þið fundið fyr­ir því að færri börn mæti í bólu­setn­ingu eft­ir að borið hef­ur á gagn­rýn­is­rödd­um gegn bólu­setn­ing­um þeirra?"

„Nei, við átt­um von á að þau myndu öll aft­ur mæta og það gerðu þau.

Ef fólk hefur hingað til ekki nennt að kynna sér hvað efnin sem það er búið að láta sprauta í sig innihalda, og hvað þá börnin sín núna, þá sýnir það sig hversu vel óttaáróðurinn og heilaþvotturinn hefur gengið upp!

Það eru því miður líkur á því að einhver börn muni finna fyrir aukaverkunum fljótlega eftir seinni sprautuna, og enginn veit ennþá hverjar langtímaafleiðingarnar kunna að verða.

Ég fór inn á OpenVaers gagnagrunninn sem heldur utanum tilkynntar aukaverkanir eftir bólusetningar, afmarkaði mig niður á börn og tók nokkur skjáskot af aukaverkunum eftir seinni sprautuna.

Það sem gerist í útlöndum, gerist á nákvæmlega sama hátt hér á landi!

Af nógu var að taka þarna, en hér eru örfá dæmi. Smellið á myndirnar til að stækka þær.

 

 

1309g

1309h

1309i

 

Ætlar fólk ekkert að fara að vakna?

Þrátt fyrir að þegar sé búið að tilkynna um hjartatengd vandamál hjá nokkrum börnum eftir fyrri sprautuna, þá er þessum "bólusetningum" haldið áfram eins og ekkert hafi í skorist, og svo er ríkur vilji fyrir því að sprauta allt niður í 6 mánaða börn!

Andlát í Bandaríkjunum eftir bólusetningar

Á þessari mynd má sjá tilkynnt andlát eftir bólusetningar í Bandaríkjunum frá 1990, til júlí 2021, hversu margar og miklar sannanir þarf fólk að fá um það hversu hættuleg þessi hraðsoðnu genabreytandi tilraunaefni eru?

1207a

Og er það ekkert áhyggjuefni að búið sé að tilkynna um 3.154 aukaverkanir hér á landi, þar af 169 alvarlega og 31 andlát?

1309a

Viljið þið frekar trúa áfram lygunum í Ragnheiði yfir$prautu, og öllum hinum sem eru búin að narra nánast alla þjóðina í þessar sprautur?

Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við.

 


mbl.is Mörg börn létu sjá sig í bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða skyldubólusetningar settar á EFTIR kosningar?

Ég er farin að hallast að því að það sé aðeins einn heiðarlegur og ALVÖRU  LÆKNIR starfandi hér á þessu landi, en það er hann Guðmundur Karl Snæbjörnsson, oftast kallaður Kalli Snæ.

Hann hefur vakið aðdáun og virðingu margra með málflutningi sínum og baráttu fyrir að leyfa lyf við snemmmeðferðir sjúkdómsins, meðal annars með áratuga gömlu lyfi sem hefur hlotið Nóbelsverðlaun, væntanlega vegna þess að það virkar vel og hefur litlar aukaverkanir.

Eitthvað allt annað en þessi svokölluðu bóluefni.

Þetta lyf hefur verið gefið milljörðum manns með góðum árangri í gegnum árin, en telst víst ekki nógu vel rannsakað, það má bara gefa fólki bóluefni sem eru í tilraunafasa til ársins 2023!

Ég hef heyrt um íslenska lækna sem eru mótfallnir þessum massa bólusetningum, en þora ekki að rísa upp gegn yfirboðurum sínum! Þið læknar, hvað varð um læknaeiðinn ykkar: Fyrst, ekki skaða!?

1109

Ég ætla ekkert að fara að rekja baráttu hans við Lyfjastofnun, þessar upplýsingar ættu allir að geta fundið á netinu. Hann var í frábæru viðtali í gær á Útvarpi Sögu, einu stöðinni sem hefur gagnrýnt bólusetningarnar, enda er hún óháð með öllu og án ríkisstyrkja.

Biden Bandaríkjaforseti

"Það kemur ekki á óvart að Biden forseti Bandaríkjanna hafi í ræðu í gær kynnt til sögunnar skyldubólusetningar gegn Covid. Þessi sama tilhneiging sé einnig víða í Evrópu og hér á landi er ákveðnum þvingunum beitt í þeim tilgangi að fólk láti bólusetja sig, jafnvel þó það sé þvert á vilja þess.

Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Karls Snæbjörnssonar sérfræðings í heimilislækningum í þættinum Fréttir vikunnar í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar."

Hér á landi

rsz_2208bEf fólk er ekki enn búið að átta sig á því, þá hefur nánast sömu aðgerðum og aðferðum verið beitt gegn okkur og öðrum þjóðum í þessum "heimsfaraldri", sem sumir kalla "scamdemic" eða "plandemic".

Faraldurinn hefur verið keyrður áfram á linnulausum hræðsluáróðri, lokunum, grímuskyldu, fölskum PCR prófum, ritskoðun, og glæpsamlegum lygum um að einhver hraðsoðin genabreytandi tilraunalyf séu eina lausnin út úr honum.

Ef einhver heldur að íslensk stjórnvöld, sem hafa meðal annarra narrað fólk í sprauturnar beri hag þjóðarinnar sér fyrir brjósti, þá er það mikill misskilningur.

Allt þetta fólk, hver einasti þingmaður er búið að fá ótal tölvupósta, Facebook skilaboð, bréf, og jafnvel ábyrgðarbréf þar sem þau eru krafin svara um þessar sóttvarnaraðgerðir, en engu er svarað!

Þvinganir í bólusetningar hér á landi er staðreynd

Hann segir meðal annars þetta í viðtalinu:

"Guðmundur segir að þetta sé til dæmis gert í opinbera geiranum, þar sé starfsmönnum hreinlega stillt upp við vegg af yfirmönnum og sagt hreinlega berum orðum við þá sem ekki vilja bólusetningu hvort þeir vilji vera ábyrgir fyrir því að bera inn smit inn í viðkomandi stofnun og valda jafnvel dauða einstaklinga.

Hann segir að þetta geti vart talist annað en þvingun þó hún sé ekki lögboðin, það sé þó ákvæði í sóttvarnalögum sem heimili yfirvöldum að þvinga fólk með því að taka það með valdi og bólusetja það.

Guðmundur bendir á að þróunin sé í þá átt að smám saman sé aukið við þvinganir sem þessar og hún eigi sér ekki stað aðeins innan opinbera geirans

ég hef séð bréf frá Félagi atvinnurekenda þar sem ýjað er að því að atvinnurekendur eigi að beita þessari sömu aðferð” segir Guðmundur Karl."

1109

Börnin okkar

"Hann segist hafa ákveðnar áhyggjur af því að sóttvarnalæknir hafi kastað ábyrgðinni varðandi bólusetningar yfir á skólana

með innköllun fyrir börnin og kannski hægt að segja að þar gæti orðið innræting gagnvart því að komast að foreldrunum í gegnum börnin” segir Guðmundur."

Sóttvarnarlögin

Hvernig skiljið þið þessar greinar í núverandi sóttvarnarlögum? Hvað þýðir "Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi"?

Fáið þið ekki líka hroll við að lesa þetta?

"Sóttvarnarlög: orðskýringar

6. Inngrip: Götun eða skurður í húð eða ísetning áhalds eða framandi efnis í líkamann eða rannsókn á líkamsholi. Með inngripi er ekki átt við læknisrannsókn á eyra, nefi og munni, hitamælingu með eyrna-, munn- eða hörundshitamæli, eða hitamyndatöku, heilbrigðisskoðun, hlustun, ytri þreifingu, sjónuspeglun, töku þvag-, saur- eða munnvatnssýnis utan frá, mælingu blóðþrýstings utan frá eða hjartalínurit.

7. Ónæmisaðgerð: Skipulögð aðgerð sem örvar ónæmiskerfið til að halda smitsjúkdómi í skefjum í samfélaginu, svo sem með bólusetningu eða gjöf mótefna.

Úr 14 gr.

Sóttvarnalæknir getur leitað aðstoðar lögreglu við að framfylgja ákvörðunum sem teknar eru samkvæmt þessari lagagrein, eftir atvikum með líkamlegri valdbeitingu beri nauðsyn til."

Geðslegt, ekki satt?

1109a

Nú eru að koma kosningar

.... með hefðbundna kosningavaðlinum um bjarta framtíð með blóm í haga ef þú kýst þennan eða hinn flokkinn.

Hvernig væri að spyrja frambjóðendur um þeirra viðhorf gagnvart skyldubólusetningum, og ef þeir stefni á að keyra þær í gegn, nái þeir kjöri?

Spyrjið þá líka, sérstaklega Svandísi heilbrigðisráðherra hvers vegna ekki er löngu búið að stöðva þessar sprautur sem að minnsta kosti 31 manneskja hefur látist í kjölfarið af, og 199 manneskjur, þar af 6 börn hafa hlotið skaða af, jafnvel fyrir lífstíð, fyrir utan alla hina sem líka hafa tilkynnt um aukaverkanir.

Spyrjið þá líka hvers vegna þeir séu að brjóta alþjóðalög um lyfjatilraunir á fólki, sem voru samin af gefnu tilefni!

rsz_1009

Heimtið svör áður en þið farið í kjörklefann, ef þið kjósið sama fólkið yfir okkur aftur, þá mun fólkið sem samþykkti bóluefnasamningana setja skyldubólusetningu á okkur.


"Heimsfaraldurinn" skoðaður frá oggulítið kaldhæðnum sjónarhóli.

Ég er búin að hafa gríðarlega miklar áhyggjur í meira en ár út af endalausu áhyggjunum sem hann Þórólfur okkar, og hann Víðir sem við hlýðum öll, hafa af þróun þessa hræðilega heimsfaraldurs.

0609c

Hvaða máli skiptir þótt sprautur númer eitt og tvö hafi ekki virkað nógu vel, auðvitað förum í "örvunar"sprautur þrjú, fjögur, fimm etc., til að berjast gegn þessum Delta, Lambda og Mu afbrigðum, og öllum þessum hræðilegu afbrigðum sem eru að eiga eftir að spretta upp á næstunni.

Svo segir að minnsta kosti Kristján Kristjánsson á DV sem er alveg með eindæmum duglegur að segja okkur af öllum þessum skelfilegu afbrigðum og pestum sem við eigum í vændum.

Svo munu þeir sem þáðu Pfizer guðsgjöfina auðvitað taka því til viðbótar 2 pillur á dag þegar þær koma á markaðinn, vonandi ekki seinna en um áramótin.

Hin lyfjafyrirtækin hljóta líka að leggja dag við nótt núna á rannsóknarstofunum sínum!

rsz_0709h

Og hvaða máli skiptir að landlæknir okkar hún Alma hafi forðað tengdamömmu sinni frá sprautunni meðan allir hinir á hjúkrunarheimilinu fengu sinn skammt?

Aðalmálið var að lekinn um það var að sjálfsögðu glæpsamlegur og krafðist þriðju gráðu yfirheyrslu yfir starfsmönnunum til að finna uppljóstrarann. Vonandi fannst þessi hræðilega manneskja sem lak þessu, og vonandi var hún rekin með skömm.

Og auðvitað látum við sprauta börnin okkar gegn þessari skelfilegu drápsveiru!

En voðalega heyrist eitthvað lítið í heiðursorðuhöfunum okkar þessa dagana, og hvar eru hræðslufundirnir góðu sem sögðu okkur réttilega að við yrðum að vera endalaust hrædd við Grýlu gömlu sem nú heitir Covid.

Ég virkilega sakna þess að þau skuli ekki lengur minna mig daglega eða vikulega á að það sé HEIMSFARALDUR í gangi sem fáum eiri!

40 snúningarEn sem betur fer höfum við RÚV og alla hina góðu fjölmiðlana okkar sem passa upp á að segja okkur á hverjum einasta degi hversu mörg SMIT greindust í gær.

Einhverjir spilltir dómstólar úti í heimi hafa úrskurðað að PCR prófin séu óhæf til að greina hvort maður sé veikur eða ekki, sérstaklega ef þau eru keyrð á 40 snúningum eins og hér á landi.

En auðvitað treystum við öllum sérfræðingunum okkar sem hafa leitt okkur svo vel í gegn um þennan hræðilega drápsfaraldur!

rsz_2904b

Thalidomide

rsz_0505aAuðvitað eru öll lyf og bóluefni góð, við vitum að Thalidomide lyfið sem þúsundir kvenna fengu fyrir rúmlega hálfri öld síðan gegn ógleði á meðgöngu virkuðu svakalega vel, skítt með þótt verulegur slatti barna hafi fæðst með afskræmda útlimi.

Ef fullt af konum hættu að gubba á meðgöngunni, eins leiðigjarnt og ógeðslegt það er að æla út í eitt, þá sannar það að þessi fínu lyf hjálpuðu þessum konum að losna við gubberíið.

Útvarp Saga

Ég botna ekkert í þessum miðli, Útvarpi Sögu sem er endalaust að birta fréttir um að ekki sé allt sem sýnist í þessum hræðilega drápsfaraldri. Lesa þau aldrei faraldursfréttirnar á RÚV, hvurslags fréttaveita er þetta eiginlega?

Þau eru endalaust að taka viðtöl við einhverja samsæringakenningasmiði sem halda því fram að ekki sé allt sem sýnist í þessum skelfilega drápsfaraldri!

Jesús minn, svakalega er allt þetta fólk illa að sér, veit það ekki að við erum að glíma við heimsfaraldur heimsku og ótta núna?

Veit þetta fólk ekki að það er lífsnauðsynlegt að nota grímur og einangra okkur vinstri hægri í sóttkvíum þegar einhver hefur "greinst smitaður" af þessari skelfilegu drápsveiru?

Ég er alveg á innsoginu af hneykslun núna, mikið er ég fegin að útvarpsgjaldið mitt rennur til RÚV, en ekki þeirra!

Ónæmiskerfið okkar

Og svo er sumt fólk eitthvað að þvaðra um meðfætt ónæmiskerfi fólks sem á víst, ef vel er viðhaldið með heilbrigðum lífstíl, réttum vítamínum og bætiefnum að verja það gegn öllum umgangspestum.

Veit það ekki að einhverjar SPRAUTUR og PILLUR sem okkur er sagt að fá okkur séu svarið við öllu? Voðalega er fólk eitthvað fávíst og illa lesið. Veit það ekki að lyfjarisarnir framleiða þetta af tómri umhyggju fyrir okkur?

Fear of Germs

Ég ætla enda þetta með teiknimyndaútfærslu af gömlu vídeói með George Carlin:

"George Carlin (May 12, 1937 – June 22, 2008) was an American stand-up comedian, actor, philosopher, author, and social critic. He was known for his black comedy and reflections on politics, the English language, psychology, religion, and various taboo subjects. Widely regarded as one of the most important and influential American stand-up comics of all time. This audio clip comes from his George Carlin's audiobook, "Napalm & Sillyputty", which was published in 2002. "

Ég er kannski ekki alveg sammála honum með persónuleg þrif, en allt annað sem hann segir er bara heilbrigð skynsemi, með slatta af húmor.

Það er búið að innprenta í okkur að veirur og bakteríur séu stórhættulegar, og hvað þá mannleg nánd, eða að anda að sér fersku súrefni.

Við eigum bara að vera áfram hrædd við Grýlu gömlu og gerast áskrifendur að "örvunar"sprautum lyfjarisanna sem tryggðu sig kyrfilega gegn skaðabótakröfum vegna þessara tilraunalyfja þeirra, sem þegar eru búin að drepa að minnsta kosti tugþúsundir og skaða enn fleiri fyrir lífstíð.

Fannst ykkur ekki hressandi að horfa á þetta?

 

 


Nei nei, auðvitað benda 3.120 tilkynningar um aukaverkanir eftir sprauturnar ekkert til þess að tengingar séu þarna á milli!

Það er svolítið merkilegt, að það virðast sjaldnast vera tengingar á milli bólusetninganna og aukaverkana að mati Lyfjastofnunar.

Allt tómar tilviljanir bara!

0709d

 

Spurt og svarað á vefsíðu Lyfjastofnunar:

Hvað er aukaverkun?
 
Aukaverkun er skaðleg og ótilætluð/óæskileg verkun lyfs.
 

Hvað er alvarleg aukaverkun? (199 tilkynningar, þar af 31 andlát!)

Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum.

Eru þessar þegar tilkynntu 3.120 aukaverkanir sem innihalda andlát, lamanir, andlitslamanir, blindu, hjartavöðvabólgur, gollurhússbólgur, heilaþoku, blöðrur á eggjastokka, blóðtappa eða raskanir á tíðahring svo eitthvað sé nefnt, bara tilviljanir ótengdar sprautunum?

Trúir Lyfjastofnun þessu sjálf?:

"Eins og sakir standa bendir ekkert til þess að beint orsakasamhengi sé á milli bólusetningar og þessara tilkynntu atvika."

600 konur hafa núna tilkynnt um aukaverkanir, og Lyfjastofnun veit um stóru Facebook grúppuna sem yfir 2.100 konur eru í, allt niður í 12-15 ára stúlkur!

Halló Lyfjastofnun, ætlar þú að segja öllum þessum konum þegar kvensjúkdómalæknar í samráði við þig og landlækni (örugglega svakalega óháðir!), að þetta sé einhver ímyndun í þeim?

Ég veit um marga sem sjá ekki eftir neinu í lífinu eins mikið og að hafa látið blekkjast í þessar sprautur, og hafa engan áhuga á því að þiggja "örvunar"sprauturnar eða næstu sprautur þar á eftir gegn "nýjum" afbrigðum.

Eru þessar aukaverkanir líka tómar ímyndanir í fólki eða bara tilviljanir?

rsz_0609a

rsz_0609b

 

Endalausar lygar!

0709eLátum hvorki forstjóra Lyfjastofnunar né nokkurn annan telja okkur trú um að þessi tilraunaefni séu örugg og veiti vernd gegn einhverri veiru, þegar staðreyndir um allt annað blasa við.

Hættum að trúa þessum endalausu fréttum um einhver ný og "hættulegri" afbrigði.

Trúum ekki Ragnheiði yfirsprautu þegar hún lýgur því að það sé hættulegra að fara í búðina en Vaxhöllina.

Það mætti halda að hún fái eitthvað greitt fyrir að segja þetta, alveg eins og Bretarnir!

Eru virkilega ekki enn farnar að renna tvær ef ekki fleiri grímur á fólk núna út af þessu leikriti?

Sem betur fer eru fleiri farnir að koma til, en það er sorglegt að sjá 95-98% fólks ennþá með bundið fyrir öndunarfærin í búðunum sem eru búnar afnema grímuskyldu. Og í labbitúrum, og þeysandi á rafskútunum í rigningunni með blautar tuskur á andlitinu.

Þetta er mjög hugsanlega fullbólusett fólk sem er ennþá skíthrætt, vegna þess að óttanum er haldið stanslaust að því í fjölmiðlunum með fréttum af nýjum "smitum".

Þú átt bara að vera hrædd/ur þangað til búið verður að "bólusetja" nánast hvert mannsbarn hérna.

Hvað stendur eiginlega í þessum leynilegu bóluefnasamningum sem við megum ekki sjá?

 


mbl.is Hefur móttekið 600 tilkynningar um grun um aukaverkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband