Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur verið skipuð sendiherra "velsældar"hagkerfis verkefnis WHO!

Ég skrifaði nýlega um velsældarhagkerfið á Íslandi, og skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem var afhent Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra Íslands 14. júní 2023.

Þá vissi ég ekki að hún hefur verið skipuð sendiherra stofnunarinnar fyrir þetta verkefni til næstu tveggja ára.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur verið útnefnd sendiherra velsældarverkefnis Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (e. Champion for the WHO Well-being Economy Initiative) til næstu tveggja ára.

Markmið verkefnisins er að styðja við verkefni sem bæta velferð samfélaga og tryggja heilbrigðari, sanngjarnari og farsælli framtíð fyrir komandi kynslóðir. Hlutverk sendiherra verkefnisins er að verkja athygli á velsældaráherslum á alþjóðavísu og kynna fyrir ríkjum heims og alþjóðastofnunum þau tækifæri sem felast í velsældarhagkerfum.

Er þetta ekki bara heiður fyrir hana - og okkur þjóðina?

Nei alls ekki, heldur þvert á móti! Varla er annað hægt að lesa út úr þessu en að hún - og þar af leiðandi ríkisstjórnin öll séu hlynnt fullgildingu á heimsfaraldurssáttmála WHO sem íslensk stjórnvöld virðast ætla að samþykkja með þögn sinni, en hér má lesa umfjöllun mína um drögin að honum.

Það er ekki bara ríkisstjórn Íslands sem þegir um þennan illa gjörning, heldur líka allir helstu fjölmiðlarnir hér á landi! Því er ekkert skrítið að fólk hafi enga hugmynd um hvað í húfi er fyrir okkur öll.

Einu fjölmiðlarnir sem eru óhræddir við að gera það eru Frettin.is og Útvarp Saga, enda þeir einu sem eru ekki háðir ríkisstyrkjum. Þess má geta að ég var í viðtali um heimsfaraldurssáttmálann á þeim síðarnefnda í gær með Leifi Árnasyni félaga mínum, og má finna það hér.

Ætlum við bara að þegja og láta þetta yfir okkur ganga?

Þjóðin þarf virkilega að fara að spyrja sig hvaða herrum íslensk stjórnvöld þjóna, því ekki þjóna þau okkur sem kusum þau til að gæta hagsmuna okkar, við hljótum öll að vera farin að sjá það.

Nærtækt dæmi er gegndarlaus peningaaustur í stríðsrekstur í öðru landi á meðan okkar eigin innviðir svelta!

Þess vegna verðum við að sýna hug okkar til þeirra í verki, og segja öll NEI!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Sósíalista aðallinn er beinn afkomandi bláablóðs aðalsins

"Sömu­leiðis nefndi hann að tjörn­in við Bessastaði hafi í raun langt fram á síðustu öld verið ós, en land­fyll­ing gert ósinn að tjörn þar sem ekki gæti leng­ur sjáv­ar­falla.

Hann benti nær­stödd­um á gras­flöt sem heit­ir Prent­smiðju­flöt, þar sem Skúli Thorodd­sen, langa­langafi Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur, hafi rekið prent­smiðju. For­seti seg­ir svæðið nú allt friðlýst svo framtíðarkyn­slóðir geti notið úti­vist­ar og dýra­líf fái þrif­ist."

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/06/30/bessastadanes_fridlyst/

Guðjón E. Hreinberg, 26.7.2023 kl. 18:27

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Þakka þér fyrir þennan fróðleik!

Kristín Inga Þormar, 26.7.2023 kl. 19:11

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

 Takk Kristín, og ef ég má bæta við: Sjálfur er ég enn að jafna mig á því að Morðóðir ÍsQuislíngar séu svo stoltir af yfirstandandi Covid Helför að þeir vilji vera sérstakir sendiherrar Alþjóða Helfararstofnunar SÞ Báknsins.

... svo bregðast krosstré.

Skil vel ef þú hafnar þessari harðorðu athugasemd.

Guðjón E. Hreinberg, 26.7.2023 kl. 19:59

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll aftur Guðjón,

Já þessi athugasemd þín er vissulega harðorð - enda ertu vanur að vera kjarnyrtur, en ég skil alveg hvað þú ert að meina.

Kristín Inga Þormar, 26.7.2023 kl. 20:19

5 Smámynd: Guðrún Bergmann

Þú segir heldur betur fréttir Kristín! Eitthvað sem lítið hefur verið fjallað um í ríkisstyrktu fjölmiðlum landsins. NEI er öflugasta orðið okkar núna og við þurfum að beyta því.

Guðrún Bergmann, 27.7.2023 kl. 09:23

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Guðrún mín,

Það virðist alltaf vera að koma betur og betur í ljós að íslenskir ráðamenn - með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í fararbroddi séu að þjóna illu heimselítuklíkunni, en ekki okkur þjóð sinni!

Við þurfum ekki að leita lengra en aftur til síðustu þriggja ára til að sjá það, og ég er búin að skrifa ótal færslur um þetta undanfarin tvö ár.

En eins og þú réttilega segir, þá hefur lítið sem ekkert verið fjallað um þetta í ríkisstyrktu fjölmiðlunum, ekki frekar en annað sem ekki passar hinum eina "leyfilega málstað."

Ef fólk fer ekki að átta sig á þessu, þá er voðinn vís fyrir þjóðina, og reyndar heimsbyggðina alla.

Þetta er því miður ekkert flóknara en það, þess vegna verðum við öll að sameinast núna um að segja NEI, sýnum þeim að valdið liggur hjá OKKUR en ekki þeim!

Kristín Inga Þormar, 27.7.2023 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband