27.4.2023 | 11:04
Útþurrkun konunnar, kynlífsvæðing ungra barna, barnaníð - og opið bréf til ráðherra Íslands og annarra er málið varðar
Núna er skipulega verið að reyna að þurrka út úr hugum fólks hvað kona er, og núna geta karlar víst allt í einu líka gert flest sem aðeins konur sem fæddar eru sem konur geta gert.
Það er verið að reyna að telja fólki - og sérstaklega börnum trú um að kynin séu ótal mörg, en ekki bara tvö.
Það mætti spyrja hver tilgangurinn sé með því að núna sé allt í einu verið velta því upp hvað kona sé, eins og það sé eitthvað vafamál.
Í mínum huga er það gert til þess að rugla fólk í ríminu - þá sérstaklega börn núna, og fá það til að efast um eigin dómgreind og þá óhrekjanlegu staðreynd að það eru bara til tvö kyn, kona og karl.
Þarna er hreinlega verið að gaslýsa og heilaþvo fólk til fá það til að samþykkja orðskrípi eins og fæðandi fólk, fólk með börn á brjósti, og fólk með leggöng, eða leghafa, og nú er mælt með að fólk með leggöng fari í fyrstu krabbameinsskoðun 25 ára að aldri. Að það séu víst ekki lengur bara konur sem hafa blæðingar, og þar fram eftir götunum.
Þetta virðist hafa borið allnokkurn árangur, því sumir virðast núorðið meira að segja eiga erfitt með að svara þessari einföldu spurningu: "Hvað er kona?". Þessi kona hér á líka í erfiðleikum með það, enda sé hún ekki líffræðingur, bara dómari.
Meira að segja var talað um fæðandi fólk í staðinn fyrir mæður í fjárlagafrumvarpi Bidens Bandaríkjaforseta fyrir árið 2022, en það fylgir róttækri hugmyndafræði transfólks.
Það er sjálfsagt að fagna fjölbreytileika mannlífsins, svo hvernig væri líka að fagna fötluðum, ljóshærðum, sköllóttum eða kiðfættum?
Hver man ekki eftir því þegar íslenska þjóðkirkjan hoppaði á vagninn og auglýsti Jesú Krist sem skeggjaða transkonu með brjóst og varalit? Eðlilega voru skiptar skoðanir um hvort kirkjan hefði nokkuð með svona boðskap að gera.
Allt virðist vera gert til að koma í veg fyrir að frekir karlmenn sem skilgreini sig nú sem konur þótt þeir hafi fæðst - og séu kannski enn með kynfæri karlmanna, móðgist ...
Við skulum bara gera okkur grein fyrir að þetta gengur út á að smætta konur, þeirra líkama, móðurhlutverk og hreinlega líka tilvist þeirra!
Hér er fantagóð grein um þetta: We must resist the trend turning women into bodies with vaginas.
Íhugunar vert
Hvers vegna er aldrei talað um fólk með typpi eða pung, eða fólk sem rísi hold og hafi sáðlát?
Dylan Mulvaney transstelpa
Karlmaður sem skilgreinir sig sem stelpu er um þessar mundir að fagna fyrstu 365 dögunum sínum "sem stelpa" og var fenginn til að auglýsa bjórtegund nýlega.
Sú auglýsingaherferð fór ekki vel í neytendur sem margir vildu ekki sjá þetta og mótmæltu kröftuglega.
Auglýsingar "hennar" á vörum fyrir konur:
Hann, sem er flatbrjósta karlmaður í gervi konu var fenginn til að auglýsa íþróttabrjóstahaldara fyrir konur, og í vídeói sem ég sá um daginn mátti sjá hann dásama ákveðna tíðatappategund, spurningin er hvort hann sé þarna að lýsa eigin reynslu af notkun þeirra.
Það hefði þá alveg mátt fylgja sögunni í hvaða líkamsop hann træði þeim.
Hér má sjá nokkur vídeó á YouTube með þessari manneskju.
Í mínum huga er það ekkert annað en móðgun og vanvirðing gagnvart konum að setja karlmann í gervi konu í það hlutverk auglýsa varning sem augljóslega nýtist engum nema líffræðilega fæddum konum.
Góðar fyrirmyndir ungu kynslóðarinnar, hvað finnst foreldrum?
Ekki veit ég hvað sú (sá?) gulhærða heitir, en sú (eða sá?) til hægri heitir greinilega Cardi B. Ég er orðin svo gömul að ég þekki ekkert til þessa fólks.
Sú til vinstri skartar flottum brjóstum sem hljóta að vera úr silikoni, en pungur - sem var karlkyns líffæri síðast þegar ég vissi slapp þarna út úr brókinni, líka hjá þeirri til vinstri sem er þarna að glenna sig framan í áhorfendur.
Ætli Cardi B sé þarna að syngja um Girl Power út frá eigin kynvitund eða sinni reynslu af því að "vera kona"?
Vonandi hafa foreldrar eftirlit með hvað börnin þeirra eru að horfa á á TikTok og álíka miðlum.
Safn sem leggur núna áherslu á kyn og jafnræði, en var áður kvennasafn
Skjáskotið hér að ofan tók ég af fréttasíðu sem fjallaði um styttu af nöktum karlmanni í fullri stærð með brjóst, og barn nærandi sig úr þeim, og hefur hún vakið mikla athygli.
Hún stendur fyrir utan safn í Árósum í Danmörku sem áður kallaðist Womens Museum, en núna Gender Museum, og samkvæmt vefsíðu þess er það eitt af fáum söfnum í heiminum sem leggur áherslu á kyn og jafnræði.
Þar segir meðal annars:
Framtíðarsýn safnsins er að vekja forvitni, samræður, ígrundun og þekkingu um mikilvægi kynja; fortíð, nútíð og framtíð. Kynjasafn Danmerkur sýnir menningarsögu kynjanna í víðara sjónarhorni og tekur til allra lita regnbogans.
Og ...
Margt hefur breyst í heimi kynskynjunar síðan Kvennasafnfélagið leit dagsins ljós; einnig hefur hlutverk og virkni karla breyst verulega. Á sumum sviðum hvílir menningararfurinn enn á gamaldags skiptingu kyns og hlutverka, en nútíminn gerir ráð fyrir opnari birtingu allra kynja.
Kona sem tjáir sig á Twitter segir um þetta verk að það sé "The erasure of women", sem mætti þýða sem útþurrkun eða útrýmingu kvenna.
Önnur umfjöllun um styttuna, í lauslegri þýðingu:
Stytta af manni með barn á brjósti er draumur barnaníðinga.
Er Agape ekki draumur barnaníðinga? Fullorðinn nakinn maður sem nýtur þess að setja lítið barn upp að geirvörtunni svo það geti sogið er fyrir mig ímynd þess sem barnaníðinga dreymir um.
Hún benti á að á meðan geirvartan er kynferðislega næmt svæði fyrir bæði kynin, "uppfyllir móðirin þarfir barnsins", á meðan karl sem getur ekki brjóstfætt barn "fullnægi aðeins sínum eigin".
Ég sé ekki að verið sé að leika með kynhlutverkin eins og margir aðrir gera. Ég sé misnotkun á litlu barni og mann svala fýsnum sínum. Þess vegna finnst mér það truflandi að bæði kynin og áhorfendur í dag fagna boðskapnum: Fullorðni maðurinn getur gert hvað sem hann vill við lítið barn, svo framarlega sem við köllum það Agape.
Hér segir að safnið bjóði upp á kynfræðslu fyrir börn í grunnskóla - sem virðist vera á svipuðum nótum og Samtökin 78 hafa verið fengin til að kenna íslenskum börnum núna. Þeir sem hafa kynnt sér í hverju þeirra kynfræðsla felst segja að oftar sé talað um trans en stráka eða stelpur.
Hvers vegna er verið að koma þeim hugmyndum inn hjá litlum börnum allt niður í leikskólaaldur að kynin séu alls konar og að það sé hið eðlilegasta mál að vera fædd eða fæddur í "röngu kyni" og að hægt sé að "leiðrétta það"?
Á svona "fræðsla" eitthvað erindi til ungra barna, eða svona, eða svona?
Þessi hér veltir fyrir sér tilgangi þess að kynna dragdrottningar fyrir börnum.
Hvers vegna er ekki menntað fagfólk eins og kennarar lengur fengið til að sjá um kynfræðslu barna í grunn- og leikskólum?
Ein FB vinkona mín hafði þetta að segja í gær:
Ég á 3 barnabörn à aldrinum 2-4 og eitt þeirra sagði nýlega; "èg er ekki stelpa eða stràkur, èg er ekkert." Sama barn sagði einnig; "hann er stràkur þó hann sè með píku og sè líka stelpa". Þessi innræting er komin í einhverju formi inn à leikskólana. Svona lítil börn hafa ekki líffræðilega þroskaðan framheila til að skilja svona innrætingu eða nota rökhugsun nema mjög takmarkað.
Blautur draumur barnaníðinga rætist
Í nýlegu bloggi sem ég skrifaði um hvort kynfræðsla barna á Íslandi væri á réttri vegferð, kom ég inn á þann hrylling að nú vilja SÞ og WHO lögleiða afglæpavæðingu kynlífs með börnum, enda sé annað brot á mannréttindum (barnaníðinganna). Með þessu sé verið að lögleiða barnaníð og annan hrylling gagnvart börnum.
Tengið svo saman þessa "kynfræðslu" barna þar sem verið er að kenna þeim frá unga aldri að vera kynverur, við afglæpavæðingu "kynlífs" með börnum. Þetta kallast "grooming" á ensku, sem mætti þýða sem undirbúning og tælingu.
Ný frétt, lesið þetta!: Transgender State Representative Moves To Allow Sexual Attachment To Children To Be Classified As Protected Sexual Orientation
Einnig við karlmenn sem koma "pungsveittir" fram á sviðið og þykjast vera konur.
Tengið þetta líka við þessa aðför gegn öðru af þeim tveim kynjum sem til eru, konum.
Og ungu ráðvilltu fólki sem er sagt að lausnin á vandamálum þeirra sé að skipta um kyn. Þau eru blekkt í lyfjagjafir (sem vara til æviloka), afnám brjósta og kynfæra, og mörg hver verða ófær um að eignast börn. Enda er það tilgangurinn.
Tengið þetta svo líka saman við plön SÞ, WHO, WEF og annarra illvirkja um að ná alræðisvaldi yfir heimsbyggðina, sem ég hef skrifað ótal blogg um.
Rannsóknablaðamaðurinn Matt Walsh, sem leitar svara
Horfið á þetta vídeó með honum þar sem hann útskýrir allt það sem kona er, og hvað ekki. Lokaorðin hans eru mögnuð!
Og að lokum, hér er opið bréf frá mannréttindasamtökunum Mín leið - Mitt val til ríkisstjórnar Íslands, barnamálaráðherra Ásmundar Einars Daðasonar, Willum Þórs Þórssonar, starfsmanna Barnaheilla Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi, umboðsmanns barna og grunnskólakennara á Íslandi, um að stöðva þennan viðbjóð sem verið er að innleiða hér á Íslandi eins og í öðrum löndum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)