Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021

Handtekinn og sektaður um 5.050 dollara fyrir að drekka kaffi grímulaus í Ástralíu.

Á hvaða vegferð er mannkynið núna? Það er smám saman verið að svipta okkur meiri og meiri mannréttindum og frelsi, og við bara leyfum því að gerast því við erum svo svakalega hrædd við einhverja veiru sem búið er að innprenta í okkur (dáleiða okkur) að við eigum að hræðast.

"Covid policing" í Ástralíu

Í þessu vídeói sjáum við ástralskan listamann sem var sviptur tekjum sínum og lífsviðurværi í fyrra vegna þess að það var víst kominn upp einhver svakalegur drápsfaraldur í heiminum.

Á dögunum keypti sér kaffi til að drekka á leiðinni í bílinn sinn, og það er erfitt að neyta matar og drykkjar með einhverja grímu fyrir vitunum, eins og gefur augaleið.

Þrír lögreglumenn komu til hans þar sem hann rölti með kaffibollann sinn og bentu honum á að hann væri að brjóta einhver sóttvarnarlög með því að vera grímulaus. Upp hófust samræður þeirra á milli sem endaði með því að hann var handtekinn og færður með lögregluvaldi í steininn.

Var hann stuttu síðar leystur úr fangelsinu með 5.050 dollara sekt fyrir að brjóta víst einhver lög.

 

 

Þetta finnst fólki um þetta ofbeldi:

"I love it when the female police officer says there is a pandemic going on.. Yeah right.. Bring out your dead.. not one person has died from covid in Alice Springs.. What PANDEMIC.. !!!"

"The officers should be sacked and imprisoned for abuse of power and assault"

"I just looked at NT's government policy and it says a mask is not required when consuming food or beverage."

"When everything re-opens up (if it does), bars, restaurants and local businesses should have a wall of shame with the photos of these officers who cross the line in their communities, and refuse them service."

"He wasn't in close proximity to anyone, then these cops invaded his space, destroyed his property and assaulted him. Disgusting, they need to be reprimanded and have their pay docked to the value of the fine. The police are not above the law."

Ekki bara í Ástralíu

Ástandið er orðið skelfilegt í Ástralíu eftir margra mánaða útgöngubönn og ofbeldi gegn fólkinu sem þar býr, og nú er farið að hóta þeim sem neita að láta sprauta sig því að þeir verði sviptir launum sínum!

Og ekki er ástandið skárra í Nýja Sjálandi, eða Írlandi, Bretlandi og Kanada, og miklu fleiri löndum.

Gamli læknirinn í stólnum segir:

"Those who accept the lies and the nonsenses are, like good Germans in World War II, accepting the lies and deceits because it’s easier, far more profitable, and far more comfortable than confronting the fraudsters with the simple truths I have just outlined.

Meanwhile, those of us who question this fraud and who question the complete lack of science behind what is happening are demonised and attacked.

The savage, cruel silencing and demonization of the medical truth-tellers is all the evidence we need that the alleged covid-19 pandemic is the greatest fraud in history. It has been inspired, maintained and promoted, without mercy, by the most evil people the world has ever seen. And the medical establishment must now include itself as part of the conspiracy of evil threatening our present and our future."

Sjá vídeóið hans hér.

 


Ó, ég hélt að þeir ætluðu að fara yfir stöðuna hjá þeim sem þjást eftir þessar tilraunabólusetningar!

Eins og til dæmis hjá þessu fólki:

2107c

Þetta er greinilega einhver stór misskilningur hjá mér.

"Al­manna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og embætti land­lækn­is munu halda upp­lýs­inga­fund klukk­an 11 á morg­un.

Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir og Víðir Reyn­is­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá al­manna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, munu fara yfir stöðu far­ald­urs­ins og þróun hans síðustu daga."

2107Halló, það er einn á spítala núna, og hvernig getur "faraldurinn" blossað svona upp núna kortér í verslunarmannahelgi þegar búið er að sprauta þessum efnum í stærsta hluta þjóðarinnar?

Eru þessi bóluefni svona herfilega gölluð og léleg þegar upp er staðið þrátt fyrir endlaus fyrirfram loforð um virkni þeirra og öryggi?

Þetta er löngu orðið gott, Alma, Þórólfur, Víðir, Kári og öll þið hin sem eruð búin að halda þjóðinni nánast trylltri af hræðslu í á annað ár núna.

Sé einhver raunveruleg veira þarna úti (hvenær höfum við lifað í veirulausu samfélagi svosem?), þá verðum við bara að lifa með henni!

Við þurfum öll að fá að snúa tilbaka til eðlilegs lífs og fara að byggja atvinnulífið upp aftur.

Þið skuluð ekki voga ykkur að skella öllu enn eina ferðina í lás þegar hátíðir eru framundan!

Þessar aðgerðir ykkar og aðferðir eru nánast þær sömu og Göring sagði í Nürnberg réttarhöldunum 1945, og svona aðferðum hafið þið og fleiri þjóðir beitt á þegna sína til að fá þá til að gera nákvæmlega það sem þær vilja.

Það er löngu kominn tími til að Íslendingar vakni og sjái hvað verið er að gera í heiminum núna. Aðrar þjóðir eru ljósárum á undan okkur og er löngu byrjaðir að flykkjast út á göturnar í milljónavís til að mótmæla eins og til dæmis í London 19. júlí síðastliðinn.

Hlustið vel á ræðuna sem var flutt þar, hún er flutt fyrir hönd milljóna manna og kvenna um heim allan!

 

 

 

 

 


mbl.is Víðir og Þórólfur fara yfir stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilkynningar um aukaverkanir streyma inn þrátt fyrir "vertíðarlok", og sjáið hvað gert er við víetnömsk börn!

2107a

Í dag, miðvikudaginn 21. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.350, voru 2.330 í gær, svo þetta er fjölgun um 20, þrátt fyrir að bólusetningarvertíðinni svokölluðu sé lokið.

Pfizer var með 983 tilkynningar, þar af 21 andlát og 45 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 994. Fjölgun um 11.

AstraZeneka var með 679, þar af 4 andlát og 54 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 682. Fjölgun um 3.

Janssen var með 280, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 286. Fjölgun um 6.

Moderna var með 388, þar af 16 alvarlegar.
Óbreytt staða.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 147, þar af 26 tilkynnt andlát.

Haldið börnunum ykkar nálægt ykkur!

Ung víetnömsk börn voru nýlega tekin frá foreldrum sínum og sett í sóttkvíargúlag til að "vernda þau" gegn veirunni.

Börn milli 5 og 15 ára urðu að vera í sóttkví í viku, og ef niðurstöður þriggja prófa væru neikvæðar, þá mættu þau fara heim og halda sóttkvínni áfram þar þangað til fjölskyldan uppfyllti kröfur um varnir gegn faraldrinum.

Í Víetnam búa tæplega 100 milljón manns, og "faraldurinn" var ekki meiri þar en að búið er að tilkynna um 334 andlát "úr" þessari blessuðu veiru.

Horfið á þennan hrylling!

Hvað segja "Jón og Gunna" um þetta?

"Absolutely heartbreaking to see those wee kids dressed like that. What hell are we allowing for the kids? There are going to be millions of kids with severe mental health issues, paranoia, anxiety, and OCD going forward…"

"They are following Bill Gates Eugenisist wants Depopulation. He didnt make any secret if it. The Rockerfellas did the same with the Spanish Flu and Dr Frederick Gates. William Gates Snr was friends of the Rockerfella”s. Bill Gates is just following on. Obviously with with Boris and his Father Stanley all Eugenics Belief people."

"In the school where I live there are 24 kids out of the whole year left in school as all the other kids dipped their tests in orange juice so the tests said they had cvid go figure.
Just like the Tanzanian President did a Goat and Papaya fruit."

"This is so sad to watch these poor little children what is going threw there little minds people who allow this to happen to children are sick sick people we all have to do more to stop this fight back with all you have got we have to people power"

"Vietnam has had 334 deaths since the beginning of the pandemic. Almost 100 million population. Overreaction much?"

"This gets worse by the day, those pictures where like something from a bad sci-fi movie! I think protests and other civil disobedience needs to be ramped up, as you suggested in an earlier video things such as a national strike, people obviously must refuse vaccine passports and most importantly I think the court cases being prepared for presentation to the courts need to be fast tracked and brought before the relevant courts asap as I think at this point it’s clear that we are running out of time and need to stop this now."

"We’re doomed. There are too many idiots who swallow the goverment lies and believe them. The end. See you in the next life."

"They just want kids away from their parents , you can guess why ."

"People were warned that their kids would be next in this convid tyranny, now look where we are..."

"Parents please protect your children and don’t trust the system with children With testing, the jab and reset Who knows what they are up to"

"People who are dismissed as "conspiracy theorists" are often well researched and simply ahead of the mainstream narrative."

"What would they do to them if survival rate for children was less then 99.999%"

Og hér á landi

Kári nokkur Stefánsson hefur "gríðarlegar áhyggjur" af uppgangi einhvers afbrigðis af afbrigði veirunnar núna og vill grípa til aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu hennar.

Hefur einhver heyrt þetta áður, frá honum og hinum sem stjórna aðgerðum hér á landi? Slaka á aðgerðum, herða aftur, slaka, herða.....

Þessi svokölluðu bóluefni virðast vita gagnslaus gegn veikindum af völdum þessarar veiru, en samt vill Kári sprauta restina af þjóðinni með þeim, líka börnin.

Þessi tilraunalyf sem eru ekki einu sinni bóluefni virðast ekki bara vera gagnslaus, heldur er búið að sýna fram á að þau geta verið stórhættuleg heilsu fólks og jafnvel banvæn.

Mikið væri gott núna að kunna að vekja fólk úr dáleiðsluástandinu sem búið er að halda því í, í á annað ár núna.

 

 


Já er það Kári, til hvers var þá bólusetningin, og viltu setja á grímuskyldu innanhúss núna?

"Bólusettir muni líklega veikjast alvarlega hér eins og annars staðar"

Þetta er fyrirsögn á frétt sem var að birtast á visir.is.

"Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að grípa eigi strax til aðgerða innanlands svo stemma megi stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Reikna megi með að bólusettir veikist alvarlega hér á landi eins og í öðrum Evrópulöndum.

96 hafa greinst með kórónuveiruna innanlands frá mánudeginum í síðustu viku. Stærsta stökkið var milli daganna 18. og 19. júlí en í gær greindust 38. Um 80 prósent þeirra sem greinst hafa þessa síðustu átta daga eru að minnsta kosti hálfbólusett, langflestir fullbólusettir. Þá hafa einnig langflestir sem greinst hafa undanfarið verið utan sóttkvíar; af 38 smituðum í gær voru níu í sóttkví."

Voðalegar áhyggjur af börnunum sem enn er ekki búið að sprauta

"Hann bendir á að börn, sem flest eru óbólusett, mæti aftur í skólann eftir mánuð. Það stefni í óefni verði ekki gripið í taumana nú.

„Þá sitjum við uppi með mjög, mjög flókið vandamál. Hvernig ætlarðu að koma í veg fyrir hópsmit meðal barnanna? Hvernig ætlarðu að koma í veg fyrir að þau hópsmit breiðist út í samfélagið?“

Nú sé tími til kominn að stíga til baka.

„Ég held við verðum að byrja núna að grípa til ýmissa aðgerða, kannski fjöldatakmarkanir, kannski grímuskylda innanhúss og svo framvegis,“ segir Kári.

„Nú er þetta bara spurning um að hafa kjark til að grípa inn í núna og segja jú, það er búið að vera gott að eiga þetta frelsi undanfarnar vikur en við verðum að stíga skref aftur á bak.“

Fjölmiðlastjarnan Kári

Þessi maður fer nú með himinskautum í fjölmiðlum, í hverju drottningarviðtalinu á fætur öðru, þar sem hann lýsir "áhyggjum sínum" af ástandinu.

Ætlar bólusett fólk hér á landi virkilega að sætta sig við að bóluefnin sem búið er að ljúga inn í mestalla þjóðina séu kannski gagnslaus eftir allt saman? Og að það þurfi að fara aftur í þessar sprautur eins og verið er að tala um?

Og nú hefur hann voðalegar áhyggjur af óþekka fólkinu sem hefur engan áhuga á þessu tilraunaglundri og vill helst leita það uppi og setja á afvikinn stað ef það þiggur ekki "boðið". Þetta sagði hann í viðtali á RÚV í fyrradag.

Og hvað með þessa 2.330 sem eru þegar búnir að tilkynna um afleiðingar vegna þeirra?

2007

Þjóðir undir dáleiðsluvaldi

Í bloggi í gær birti ég vídeó sem gamalreyndur dávaldur gerði og sýndi hversu auðvelt er að dáleiða fólk með ákveðnum aðferðum og fá það til að gera það nánast hvað sem er, og hann fékk áfall þegar hann sá að nákvæmlega sömu aðferðum er búið að beita heimsbyggðina í þessum "heimsfaraldri".

Kári hefur aldrei verið kjörinn til embættisverka fyrir þjóðina, en samt hefur hann óhugnanleg völd núna. Gleymum því aldrei að Íslensk erfðagreining fór á hausinn undir hans stjórn og margir misstu aleiguna sína.

Nú rekur hann fyrirtæki sem er í eigu Amgen, sem svo "skemmtilega" vill til að er í samstarfi við AstraZeneka um framleiðslu bóluefna!

Hann hefur gríðarlegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta núna, svo við verðum að skoða allt sem hann lætur út úr sér í því ljósi, þessi maður er hreint ekki allur þar sem hann er séður. Og margir vita það.

Follow the money segir einhvers staðar.....

 

 

 


Létust 45.000 manneskjur í Bandaríkjunum innan þriggja daga frá "bólusetningu"? Og um drottningarviðtal við Kára.

2007

Í dag, þriðjudaginn 20. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.330, voru 2.318 í gær, svo þetta er fjölgun um 12, þrátt fyrir að bólusetningarvertíðinni svokölluðu sé lokið.

Pfizer var með 977 tilkynningar, þar af 21 andlát og 45 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 983. Fjölgun um 6.

AstraZeneka var með 675, þar af 4 andlát og 54 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 679. Fjölgun um 4.

Janssen var með 279, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 280. Fjölgun um 1.

Moderna var með 387, þar af 16 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 388. Fjölgun um 1.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 147, þar af 26 tilkynnt andlát.

Eru allir að ljúga nema þríeykið, Kári og nokkrir aðrir?

Bandarískur lögmaður að nafni Tomas Renz hefur sett af stað lögsókn gegn alríkisstjórninni vegna þess að hún feli raunverulega tölu látinna eftir tilraunasprauturnar.

Hann hefur verið í samskiptum við uppljóstrara sem enn getur ekki gefið upp raunverulegt nafn sitt eðli málsins samkvæmt, en hefur séð allt aðrar tölur en VAERS gefur upp um dauðsföll í kjölfar þessara svokölluðu "bólusetninga gegn Covid" í Bandaríkjunum.

"According to Renz, a whistle-blower – referred to as Jane Doe – who is an insider and has seen information on the Vaccine Adverse Events Reporting System (VAERS) allegedly passed on the numbers and relevant information to him.

At an event hosted by Awaken America, Renz said: “We have someone that has sworn under penalty of purgery that there have been at least 45,000 deaths.”

Renz stated that whilst he cannot currently prove the information, he said that with America’s Frontline Doctors – a team of medical professionals fighting for medical freedom for Americans – he has been “empowered” to file the lawsuit in Alabama.

Allegedly, the whistleblower stated that there are around 11 VAERS systems reporting adverse reactions and deaths across the US, and one system alone has allegedly has reported the shocking 45,000 deaths from the Covid jabs.

However, Renz believes that this number is “immensely higher” and is calling for immediate investigations into the VAERS system.

“How many have really died and why are they covering it up?”, Renz told the Awaken America crowd.

The attorney said that this information and lawsuit will not be reported by the mainstream media and will likely be censored by big tech corporations like YouTube, Facebook, and Google.

Renz said that these big tech giants are “complicit in causing death”, and that he cannot wait to sue them “over and over again.”

Through his Ohio-based law firm, Renz Law, Thomas is suing the US Department of Health and Human Services (DHHS) to halt the Covid-19 vaccine rollout to children 15-years-old and younger.

The lawsuit was filed by Renz and his legal team alongside America’s Frontline Doctors against the Emergency Use Authorisation (EUA) of the Covid-19 vaccines, which they state have had “no long-term studies on the impact on adults, much less children.”

Furthermore, the lawsuit challenges the legality of EUA as the law states that children must be at risk, which Renz argues that the “CDC state that children are statistically at ZERO percent mortality rate by Covid-19.”

Recent data from VAERS up to the week of July 2nd showed that 29.5% of all reported deaths in the US following the administration of the Covid-19 over the last six months and two weeks occurred in the last week.

The data showed that between December 14th, 2020, and July 2nd, 2021, a total of 438,441 adverse events were reported to VAERS, including 9,048 deaths. Compared to the previous week, this was an increase of 2,063 deaths.

However, it is known that only 1% of adverse reactions are reported, as a report commissioned by the US Department of Health stated that: “Adverse events from drugs and vaccines are common, but under-reported.

“Although 25% of ambulatory patients experience an adverse drug event, less than 0.3% of all adverse drug events and 1-13% of serious events are reported to the Food and Drug Administration (FDA). Likewise, fewer than 1% of vaccine adverse events are reported.”

Therefore, it is worth noting that the adverse reaction statistics are already inaccurate as not every person who has an adverse event reports it to the relevant system. However, the question still remains as to the number of reactions and deaths which may not be released to the public by the likes of VAERS and the UK’s Yellow Card reporting system."

Drottningarviðtal við Kára í gær

Kári mætti í viðtal á síðdegisútvarpi Rásar 2 í gær þar sem hann sagði meðal annars föðurlega að elta yrði uppi þessi 10-20% landsmanna sem enn væru ekki sprautaðir og sannfæra þá um "nauðsyn þess" að láta bólusetja sig, annars yrði að koma þeim fyrir einhvers staðar annars staðar.

Hann fékk hins vegar ekki eina einustu spurningu um hvers vegna svona margir yrðu veikir eftir þær, eða hvað þessi efni innihéldu. Þetta var á RÚV "allra landsmanna" sem fær algjöra falleinkunn fyrir fréttaflutning og umfjallanir um þennan faraldur.

Það er ekki lengur hægt að neita því að okkur hefur langt í frá verið sagður sannleikurinn um þessu svokölluðu bóluefni, og sannleikurinn um þau er að koma betur og betur í ljós með degi hverjum.

Ég hef engan áhuga á því að spila rússneska rúllettu með líf mitt og líkama í þágu einhverra lyfjarisa sem hafa verið svo snjallir að semja sig frá hugsanlegum skaðabótum vegna framleiðslu þeirra.

Þeir Íslendingar sem eru sannanlega þegar búnir að stíga fram og tjá sig um veikindi sín eftir sprauturnar, munu örugglega eiga erfiða baráttu fyrir höndum við að krefjast skaðabóta vegna heilsubrests.

 

 


Hverju hefur þessi "bólusetning" skilað? 2.318 tilkynningum um aukaverkanir. Telst það góður árangur?

1907Einmitt, "Svandís seg­ist telja að ekki sé um að ræða stefnu­breyt­ingu hjá stjórn­völd­um, þrátt fyr­ir að mark­miðið und­an­far­in miss­eri hafi snúið að bólu­setn­ingu lands­manna og í kjöl­farið að aflétt­ingu tak­mark­ana."

Tókuð þið eftir þessu, markmiðið undanfarin misseri hafa snúið að bólusetningu landsmanna.

Og já já, og í kjölfarið að aflétta takmörkununum. Sem á samt núna að herða aðeins aftur!

Já en þið lofuðuð virkni og öryggi þessara tilraunalyfja fyrirfram!

„Við sjá­um til dæm­is núna að bólu­setn­ing­arn­ar eru ekki að virka eins vel og við vonuðum vegna Delta-af­brigðis­ins og við verðum því að hafa var­ann á. Við reyn­um að tryggja fyr­ir­sjá­an­leika eins og hægt er.“

Ég veit að margir kusu Janssen lyfið því það þurfti bara eina sprautu af því, nú er sagt að líklega þurfi fólk að fá aðra.

Og nú er verið hægt og rólega að undirbúa fólk undir að það muni "þurfa" að fá þriðju sprautuna til að verjast gegn nýjum afbrigðum af einhverjum afbrigðum veirunnar.

Við skulum aldrei gleyma fyrirfram loforðum núverandi sóttvarnarlæknis árið 2009 um virkni og öryggi svínaflensubóluefnanna sem gerðu að minnsta kosti hundruðir unglinga að öryrkjum fyrir lífstíð bæði hér á landi og annars staðar.

"Spurð hvort að kom­andi kosn­ing­ar og kosn­inga­bar­átta setji strik í reikn­ing­inn er varðar sótt­varn­araðgerðir stjórn­valda seg­ir Svandís:"

„Ég vona ekki. Það hef­ur verið okk­ar gæfa að glím­an við veiruna hef­ur ekki verið póli­tískt bit­bein. Stak­ir þing­menn hafa lýst efa­semd­um á ein­hverj­um tíma­punkt­um en í meg­in­at­riðum höf­um við verið sam­mála. Ég vona að svo verði áfram.“

Hún, allir þingmenn og allir þeir sem stjórna aðgerðum hér á landi eru búin að fá ótal fyrirspurnir og upplýsingar um þessi líftæknilyf sem ranglega eru kölluð bóluefni, með tölvupóstum og jafnvel ábyrgðarbréfum.

Viðbrögðin hafa verið lítil sem engin, og fáir svarað nokkru. Við skulum hafa í huga að þetta fólk er í vinnu hjá okkur og á fyrst og fremst að bera velferð okkar sér fyrir brjósti.

Og við skulum líka hafa í huga að það er alveg að koma að kosningum....

Tilraunalyfin

Svo að þessum tilraunalyfjum sem nú er búið að sprauta í stærstan hluta fullorðinna hér á landi, og einhvern fjölda ungmenna með undirliggjandi sjúkdóma.

Hvernig sem á því stendur, þá þykja 2.318 tilkynntar afleiðingar vegna þeirra eitthvað svo lítið fréttaefni að það er nánast aldrei minnst á þær í fréttum, það er greinilega meira fréttaefni að svo og svo margir hafi "greinst" deginum áður.

Smellið á myndina til að sjá helstu veikindin og afleiðingarnar sem fólk hefur tilkynnt til Lyfjastofnunar.

1907a

Er þetta tákn um virkni og öryggi þessara lyfja? Eru 2.318 tilkynningar, þar af um 146 alvarlegar og lífsógnandi og (að minnsta kosti) 26 andlát ekki nógu merkilegar til þess að fjallað sé um þær í fjölmiðlum?

Hugsið ykkur, árið 1976 var bólusetningum hætt í USA eftir að 3 eldri borgarar létust. Hér á landi eru að minnsta kosti 26 látnir á þessu ári í kjölfar sprautanna, hvers vegna er ekki löngu búið að stöðva þetta?

Ef t.d. ný bílategund væri búin að valda svona skelfilegum skaða, væri löngu búið að taka hana úr umferð, því allir væru eðlilega brjálaðir yfir því að svona stórhættulegur og vanprófaður bíll væri á götunum!

Mikið getur mannskepnan verið skrítin!

 

 

 


mbl.is Svandís segir aðgerðirnar „mjög mildar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn streyma inn tilkynntar aukaverkanir þótt bólusetningarvertíðinni svokölluðu sé lokið, og faraldurinn frá sjónarhóli gamalreynds dávalds.

1907

Í dag, mánudaginn 19. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.318, voru 2.234 á föstudaginn, svo þetta er fjölgun um 84!

Pfizer var með 928 tilkynningar, þar af 21 andlát og 45 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 977. Fjölgun um 49.

AstraZeneka var með 670, þar af 4 andlát og 53 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 675. Fjölgun um 5.

Janssen var með 262, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 279. Fjölgun um 17.

Moderna var með 374, þar af 16 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 387. Fjölgun um 13.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 146, þar af 26 tilkynnt andlát.

Ég bloggaði nýlega um hinn skelfilega mátt hræðslustjórnunar þar sem farið var yfir hvernig hægt er að fá fólk til að hlýða með stöðugum hræðsluáróðri.

"Hypnotist REVEALS Government BRAINWASHING Tactics"

Gamalreyndur breskur dávaldur segir frá því að þegar "heimsfaraldurinn" hófst í fyrra, þá trúði hann ekki því sem var að gerast fyrir framan augun á honum, um leið og Covid fjölmiðlaherferðin hófst.

Hann sá það greinilega að stjórnvöld væru að nota nákvæmlega sömu aðferðir og tækni og hann notaði þegar hann starfaði sem dávaldur snemma á tíunda áratugnum.

Hann vill sýna okkur hvað þessi hræðsluáróður sem staðið hefur yfir í á annað ár hefur valdið miklum ótta, þjáningum og angist hjá fólki.

1807o

Hann segir að mestallan starfsaldur sinn hafi hann unnið að því að fá fólk til að gera alls konar hluti, fyrst í auglýsingabransanum, og síðar sem dávaldur.

Það er alveg magnað að horfa á þetta vídeó, þar sem hann fer í gegnum sálfræðihernaðinn, og til dæmis hvernig á að nota "réttu litina" til að ná fram ákveðnum viðbrögðum.

Nokkrar athugasemdir undir vídeóinu

Okkur er öllum hollt að skoða öll mál frá öllum hliðum, sérstaklega þegar eitthvað er í gangi sem varðar okkur öll.

Hér fyrir neðan sjáið þið ummæli "Jóns og Gunnu" sem að öllu jöfnu fá aldrei að heyrast á þessum helstu samfélagsmiðlum, enda hefur ritskoðunin aldrei verið meiri en akkúrat núna í þessum meinta "heimsfaraldri."

"Everything this man is saying is true.
I have studied psychological manipulation. It is around us every day. For many years.
I have met and talked to one of the best in the business. His work is out there and shows exactly how it is done.
My meeting with him opened my eyes and subsequently my observations of how it is done showed me that my work as a successful salesperson, I was already using these techniques.
I have known from the start these age old techniques have been at play and my mind and knowledge have protected me from the influence.
The trick to stay above it and not to be influenced is to stay calm. Take a beat and realise what is being used against you.
Watch this all the way through and try and remember when it has worked and when you thought “hang on, this isn’t right”.
Trust your judgment.
Sage are physiologists. They know these tricks and are using them.
The question is, who do they work for and what is their agenda?"

"Interestingly, Delta is the symbol given to gene-deletion, women who pass deleted/defective genes to the fetus will cause it to abort, look it up on wiki."

"Hugo this man is explaining is telling us how easy it is to control people."

"Are they behavioural psychologists at sage or psychological warfare specialists?"

"Agenda 2030. Driven by UN, WEF, CFR, G20 and IMF."

"Interestingly, greek letter of new varient is the symbol given to gene-deletion, women who pass deleted/defective jenes to the fetus will cause it to die, look it up on wiki."

"Exactly ,I noticed that in all the shops I’ve been to throughout this scam ive not seen one staff member sick coz if they had of been surely the whole shift would have to isolate and a new team brought in or closure.
Also back in December I worked in massive parcel Depo ,when the Drivers arrived for loading at 6am it was total chaos I mean a couple
of hundred or more people literally stepping over each other and not a mask in sight on anybody.
Whilst waiting for the next trailer the 20 strong sorting team would be shoved in the tiny canteen again shoulder to shoulder to sleep or eat so no social distancing or masks by any of us .
Remember this was just before Xmas so middle of winter.
Again nobody got ill no staffing crisis also these multi drop drivers were going out into the wider community ffs.
This was a multi national company so you can imagine no checks carried out by the covid police. Although all the token BS covid posters where around the workplace .
All this whilst smaller businesses where and still are being left to rot.
I remember telling some of my sheeple mates about this at the time and then as now it just falls on deaf ears."

"It’s NLP – Neuro Linguistic Programming (hypnosis) together with Subliminal Messaging- when someone needs to sell you shit but it actually smells of roses"

"Really interesting video and chimes with the irritation all of us with a brain have felt from the very beginning. Follow it up by watching this https://www.facebook.com/randy.hillier/videos/530142078244383/ – the background to this whole scam and well worth taking the time to listen to."

Hvert er framhaldið?

Nú birtast fréttir um að fullbólusett fólk sé smitað af veirunni og þurfi spítalainnlögn. Er þá ekki forsenda þessara fjöldabólusetninga farin á veg allrar veraldar?

Manni skildist að fullbólusett fólk ætti að vera búið að fá vörn gegn slæmum veikindum vegna veirunnar, þannig að svona fréttir koma verulega á óvart.

En nýjustu fréttir herma að fólk muni kannski þurfa "booster" sprautur til að verjast einhverjum nýjum afbrigðum veirunnar. Er þetta það sem koma skal?

Hvað með okkur sem hafa engan áhuga á að vera tilraunadýr fyrir lyfjarisana?

Merkilegt nokk, stór hópur fólks hefur hist um margra mánaða skeið á hverjum laugardegi kl. 12 á Austurvelli til að mæla með mannréttindum fyrir alla, og mæla gegn aðgerðum stjórnvalda, alls óhrædd við einhverja veiru.

EKKERT OKKAR hefur veikst af þessari "bráðsmitandi veiru" og engir í kringum okkur.

Það er bara staðreynd að mun fleiri eru að þjást eftir þessar sprautur á þessu ári en af veikindum vegna veirunnar, og enn eru tilkynningar að streyma inn til Lyfjastofnunar þótt "vertíðinni" sé formlega lokið í bili.

Hvers vegna það liggur svona lífið á að sprauta okkur öll með einhverjum tilraunaefnum vegna veiru sem líkurnar á að lifa veikindi af eru ca 99,7%, er gjörsamlega óskiljanlegt.

Fólk verður að fara að átta sig á því að ekki er allt sem sýnist í þessum svokallaða heimsfaraldri.

 

 

 

 

 

 


Meirihluti greindra bólusettir, eru þessar tilraunabólusetningar þá gagnslausar?

"Níu greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær. Eng­inn þeirra var í sótt­kví. Þá greind­ust sjö smit á landa­mær­un­um. 

Ekki er enn vitað hvert hlut­fall bólu­settra er í þess­um töl­um en meiri­hlut­inn var bólu­sett­ur, að því er seg­ir í til­kynn­ingu al­manna­varna. 

Eins og síðustu daga stend­ur nú smitrakn­ing yfir, eft­ir dag­inn í gær eru 379 manns í sótt­kví og 111 í ein­angr­un, fleiri fara í sótt­kví eft­ir dag­inn í dag þar sem rakn­ing er haf­in á þeim smit­um sem inn komu seint í gær­kvöldi. Um er að ræða bráðabirgðatöl­ur."

Þær virðast ekki bara vera gagnslausar, heldur líka stórhættulegar!

Það vantar ekkert upp á fréttaflutninginn af smittölum gærdagsins, en hvar eru fréttirnar um þá sem kljást við afleiðingar inngjafanna, eins og til dæmis þessi kona, eða þetta fólk?

Ég er búin að sjá þúsundir frásagna eins og hér fyrir neðan um fólk úti í heimi sem hefur stórskaðast eða jafnvel látist í kjölfarið, svo hvers vegna ætti staðan að vera eitthvað öðruvísi hér á landi?

Fáir virðast kippa sér upp við að þegar sé búið að tilkynna um 2.234 afleiðingar sprautanna hér á landi, sem má teljast undarlegt, en þó kannski ekki því þær eru aldrei birtar í fjölmiðlunum, bara smittölur gærdagsins.

Fólk virðist þó sem betur fer aðeins vera að vakna, og nokkrir hafa leyft sögum sínum að birtast opinberlega sem er gríðarlega mikilvægt.

Það er nauðsynlegt að fá að sjá allar hliðar þessara massa tilraunabólusetninga sem nánast allir fullorðnir Íslendingar tóku þátt í, og spurning hvort fólk hafi yfir höfuð vitað að það væri að taka þátt í lyfjatilraun sem lýkur ekki fyrr en árið 2023, svo það er í rauninni tilraunadýrin.

Vilja einhverjir segja sína sögu nafnlaust eða undir nafni? Þá er þeim velkomið að hafa samband við mig á Facebook síðu minni og ég mun gera mitt besta að gera henni góð skil.

Örfá dæmi utan úr heimi

1807b

1807c

1807i

1807í

1807l

1807j

1807n

Ég veit ekki hvort blessuð konan á myndinni hér fyrir ofan dó eða féll "bara" í yfirlið eftir sprautuna, en ég er búin að sjá nóg undanfarna mánuði til að verða sannfærðari og sannfærðari með hverjum deginum um að það var rétt ákvörðun að hunsa skipanirnar um að mæta í Höllina í stuttermabolnum til að láta sprauta einhverju þessara tilraunaefna í mig.

 

 


mbl.is Níu innanlandssmit og öll utan sóttkvíar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað liggja margir þeirra veikir á sjúkrahúsi?

"Alls greind­ust tólf kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær og voru fimm í sótt­kví. Eins greind­ust 12 með veiruna á landa­mær­un­um. 

Fram kem­ur í til­kynn­ingu frá al­manna­vörn­um að ekki sé enn vitað hvert hlut­fall bólu­settra sé á meðal þeirra sem smituðust. 

Smitrakn­ing stend­ur nú yfir, en eft­ir smit gær­dags­ins eru alls 340 í sótt­kví og 97 í ein­angr­un."

Það kemur ekkert fram í þessari frétt hvort eitthvað af þessu fólki sé veikt, þótt það hafi víst "greinst" með þessa blessuðu veiru, eða af hvaða afbrigði.

Var það breska, brasilíska, nepalska, suðurafríska, H&M afbrigðið, Akranes afbrigðið, indverska afbrigðið sem heitir núna Delta, eða afbrigðið af því afbrigði sem er kallað Delta plús?

Uppáhalds afbrigðið mitt er hið breska tvíklofna Yorkshire Pudding afbrigði sem ég veit ekki til að hafi greinst hér á landi ennþá að minnsta kosti.

Fölsku PCR prófin

Veit einhver hvers vegna það þarf að reka pinna nánast upp í heilann á manni til að ná í sýni til greiningar?

Ég hef fengið það staðfest frá Landlæknisembættinu að við notum 40 snúninga á þessum PCR prófum, en hversu mikið er að marka niðurstöðurnar úr þeim?

40 snúningar

Sjálf Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) viðurkenndi mistök í janúar á þessu ári, einu ári eftir að ákveðið var að þessi próf skyldu notuð til greininga á smitum.

Nú sögðu þau að nota skyldi færri en 35 snúninga og helst ekki fleiri en 25-30 og að allt yfir 35 snúningum gæfi falskar jákvæðar niðurstöður!

Meira að segja sjálfur Anthony Fauci hefur viðurkennt það:

"… if you get a cycle threshold of 35 or more, that the chances of it being replication competent are minuscule.

… you almost never can culture virus of a 37 threshold cycle … even 36 you gotta say, you know, it’s dead nucleotides, period."

Sjá vídeóið þar sem hann viðurkennir þetta hér.

Þetta vekur þá vissulega upp spurningar um hversu mörg raunveruleg "jákvæð smit" hafi í raun greinst hér á landi frá upphafi faraldursins?

Erlendir dómstólar dæma PCR prófin óhæf til greininga

Austurrískur dómstóll hefur nú í kjölfar portúgalskra, þýskra og hollenskra úrskurða dæmt þau óhæf til greininga á COVID-19 smitum og að útgöngubönn séu hvorki byggð á lagalegum né vísindalegum forsendum. Sjá má ítarlegri umfjöllun um PCR prófin hér.

Það má því velta fyrir sér hvers vegna enn séu notaðir 40 snúningar hér á landi þegar það liggur fyrir að ekki sé hægt að treysta niðurstöðum þessara prófa.

Þessar endalausu "smitfréttir" eru bara hræðsluáróður

Nú eru 437, líklega fullfrískir einstaklingar í sóttkví eða einangrun, og frá 28. febrúar 2020 hafa 6.628 lokið einangrun og 49.151 lokið sóttkví, samtals um 55.000 manns. Svo er fullbólusett fólk líka að "greinast" með veiruna!

Það á sko aldeilis ekki að láta okkur gleyma því eitt augnablik að það sé einhver heimsfaraldur í gangi, við eigum alltaf að vera hrædd við þennan ósýnilega óvin.

Endalaus þöggun um afleiðingar tilraunabólusetninganna

Hvers vegna fáum við ekki daglegar fréttir um hvað margir hafi greinst með aðra sjúkdóma, eða alla þá sem sannanlega þjást af afleiðingum þessara tilraunabólusetninga? Ég dáist að ungu konunni sem birt var viðtal við í gær, hún er enn með blæðingar 45 dögum eftir Pfizer!

Eftir að hún tjáði sig í Facebook grúppu stigu margar fram sem sem hafa glímt við alls konar veikindi og blæðingarugl eftir sprauturnar.

Hvers vegna fáum við ekki heldur að heyra um þá sem voru neyddir í sprauturnar? Og er það ekkert fréttnæmt að tilkynntar afleiðingar séu orðnar 2.234 frá áramótum?

Utan úr heimi

1707

1707a

1707b

1707c

Fyrirgefiði, en á meðan ég er endalaust að sjá svona frásagnir í erlendum miðlum, þá er mér bara slétt sama hvað margir eru að "greinast" hér á landi með fölsku 40 snúninga prófunum!


mbl.is Tólf greindust með veiruna innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta skýringin á mikilli fjölgun tilkynntra afleiðinga af tilraunabólusetningunum í dag?

Ég neita því ekki að ég hrökk í kút í morgun þegar ég sá að tilkynningum hefði fjölgað um 57 frá í gær, þrátt fyrir að bólusetningarvertíðinni eins og þetta hefur verið kallað, sé lokið.

Enn á blæðingum eftir 44 daga!

1607bRebekka Ósk Fáfnisdóttir segir frá því á Visir.is í dag að eftir seinni Pfizer sprautuna 2. júní síðastliðinn hafi hún byrjað á blæðingum sem standi enn yfir 44 dögum seinna.

"Hún leitaði sér hjálpar hjá heilsugæslunni en þar hafi verið fátt um svör. Henni hafi verið bent á að panta sér tíma hjá kvensjúkdómalækni, lítið annað væri hægt að gera til að hjálpa henni.

„Það er tveggja mánaða bið í það. Og svo þegar ég var búin að vera í þrjátíu daga þá var ég farin að hugsa að þetta gæti ekki verið. Þetta hefur aldrei komið fyrir mig. Þá fór ég að spyrjast fyrir og það eru svo margar konur í kring um mig sem segja sömu söguna,“ segir Rebekka.

Hún segist orðin þreytt á ástandinu og kallar eftir því að yfirvöld rannsaki þessa aukaverkun bóluefnanna."

Mikið er ég sammála henni, en hef samt ekki mikla trú á að því verði gert af heilindum, enda örugglega erfitt að finna "óháða" sérfræðinga hér á þessu litla landi.

Jón Magnús Jóhannes læknir, sem er ein öflugasta klappstýra þessara tilraunaefna virðist nánast alltaf koma af fjöllunum þá sjaldan að fréttir birtast um aukaverkanir, og kemur oftast nær með einhverja útúrsnúninga.

1007a

Ætli nokkur hafi bent honum á síðu Lyfjastofnunar sem fór seint og um síðir að birta sundurliðanir á tilkynntum afleiðingum?

Þarna kemur skýringin

"Það virðist bara vera töluvert mikið um þetta. Þetta er allt frá því að konur séu ekki búnar að fara á blæðingar í fjóra mánuði í það að konur sem eru komnar á breytingaskeiðið séu komnar aftur á blæðingar. Það er mikið um svona sögur að blæðingarnar stoppi eða hætti ekki,“ segir Rebekka.

Hún, og flestar þær konur sem hafi greint henni frá tíðarhringsbreytingum, hafi aldrei lent í slíku áður. Blæðingar hafi lang oftast verið eins og klukka. Hún segir að fjöldi kvenna hafi spurt hana í kjölfar færslunnar hvar þær geti tilkynnt um aukaverkanir. Hún telur að fjöldi tilkynninga til Lyfjastofnunar hafi margfaldast frá því í gær."

Eru Íslendingar loksins að vakna upp við vondan draum?

Það er mjög jákvætt að fólk sé farið að koma opinberlega fram og lýsa reynslu sinni hér á landi, alltaf er að koma betur og betur í ljós að við sem höfum mánuðum saman verið kölluð samsæriskenningasmiðir höfðum allan tímann rétt fyrir okkur.

Þessi svokölluðu bóluefni skaða og drepa, þetta er ekkert flóknara en það! Það er löngu kominn tími til að fólk geri sér grein fyrir því að þessar svokölluðu bólusetningar hafa aldrei snúist um baráttu gegn einhverri veiru til að bjarga lífum.

Það eru til ótal erlendar síður sem halda utanum tilkynntar afleiðingar eftir þessi tilraunaefni, eins og þessi hér til dæmis.

Skoðið hana endilega og spyrjið ykkur sjálf svo hvort okkur hafi verið sagður sannleikurinn um þessi efni sem nú er búið að fullsprauta stærstan hluta fullorðinna með og einhvern fjölda ungmenna með líka, eftir gegndarlausan áróður hagsmunaaðila.

Spyrjið ykkur svo líka hvort þið viljið enn láta sprauta börn ykkar og barnabörn með einhverjum tilraunaefnum sem þið hafið ekki hugmynd um hvað innihalda eða hvaða skaða þau geta valdið.

Skaðinn er þegar orðinn allt of mikill og jafnvel óafturkræfur hjá fjölda manna og kvenna, andlátin allt of mörg, og þau eru miklu fleiri en gefið er upp opinberlega!

Nú legg ég til að við rísum upp öll sem eitt og komum í veg fyrir að það gerist!

Ef þið viljið tjá ykkur um ykkar reynslu af tilraunaefnunum, eða fræðast um baráttu sem hópur fólks gegn þessum hryllingi stendur í núna, þá er ykkur meira en velkomið að hafa samband við mig á Facebook síðu minni.

Þetta stoppar ekkert fyrr en við öll segjum NEI!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband