Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021

Enn fjölgar afleiðingum vegna "bólusetninganna", 57 bættust núna við, þar af 4 alvarlegar og þetta hefur aldrei snúist um baráttu gegn einhverri veiru!

1607a

Í dag, föstudaginn 16. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.234, voru 2.177 í gær, svo þetta er fjölgun um 57!

Pfizer var með 895 tilkynningar, þar af 21 andlát og 43 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 928. Fjölgun um 33.

AstraZeneka var með 666, þar af 4 andlát og 53 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 670. Fjölgun um 4.

Janssen var með 253, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 262. Fjölgun um 9.

Moderna var með 363, þar af 16 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 374. Fjölgun um 11.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 144, þar af 26 tilkynnt andlát.

Er þetta bara eðlilegt og í lagi, hvað finnst ykkur?

Alla ætti að minnsta kosti að vera farið að renna í grun að þessar skelfilegu aðgerðir í heiminum í á annað ár núna hafa aldrei snúist um baráttu gegn einhverri veiru.

Þessi svokölluðu "bóluefni" eru þegar búin að valda margfalt meiri skaða en veiran nokkurn tímann, og nú segir sóttvarnarlæknir, sem mánuðum saman er búinn að dásama öryggi og virkni þeirra, að virkni þeirra sé ekki eins góð og vonast hafi verið til.

Nú virðist verið að undirbúa þæga Íslendinga undir það að þriðja sprautan sé nauðsynleg, eins og talað var um í einhverri frétt um daginn.

Hugo Talks

Hugo heldur úti vefsíðu þar sem hann birtir daglega vídeó um það sem raunverulega er í gangi í heiminum í dag, og hér er enn eitt flott frá honum.

1607

 

Nokkrar athugasemdir undir vídeóinu

"I have been thinking that for a long time now..people think I am a conspiracy theorist, but now all of the conspiracies are coming true . If the government don’t stop with the bs then there will be a war and I will be part of it."

"CAN YOU DO SOME RESEARCH REGARDING THIS

https://thecovidblog.com/2021/04/27/supreme-court-pfizer-moderna-et-al-may-own-your-genes-once-youre-injected-with-their-lab-created-mrna-dna/"

"Yes please, Hugo. I’ve been telling people that Billy Goats will own them if they have the jib-jab because he has a patent on it since this scamdemic kicked off. Not that folk are capable of hearing the message, sadly."

"My son believes all this mask, vaccine bullshit. He berates me as a tin foil hat idiot! I have to let him go! I can’t help him anymore!"

"Same as my daughter just disowned me today!

It’s a shame but this what they have wanted so I taking on the chin
What else can I do"

"So many close families now divided. War is coming. I know which side I’m on. I’m wondering what the laws are on keeping chickens. I know pigs have to stay out of sight for the front of a property…"

"Yep my eldest has had it and my youngest told me tonight that it’s her 21st sept and she will have to have the vax so she can go clubbing and stay in the hotel she has booked, she also wants to travel, she said vax passports are coming no matter what so she will take the jab and doesn’t care about the outcome"

"Exactly…it was the same with the lockdowns and pcr cycles and their (very quiet) declarations that lockdowns were potentially more harmful than the virus and that the pcr cycles were too high. So transparent."

"And the Dr Maria Van Kerkhove, WHO’s COVID-19 lead (epidemiologist), told everyone early on that “it’s rare that an asymptomatic person actually transmits onward to a secondary individual,” yet here we are – still guilt-tripping healthy people into masking up and removing many of their freedoms for 16 months. They’re all corrupt!"

"Hi Hugo, please have a look at the interview of Dr Martin with Reiner Fuellmich. He has more than enough proof this scamdamic has been planned for years…."

"You’re right Hugo! Time and time again Willy Wonka and the Chocolate Factory has played across my mind with its similarities to what’s going on now, with the kids grabbing the sweeties…and then there’s the bit at the end where Wonka says to Charlie “You passed the test. You won! I often think this is what this is. A test. A massive test. On humanity."

Hafið þið sögu að segja?

Ef þið viljið segja frá eigin reynslu eða ættingja eða vina af þessum "bólusetningum", þá er ykkur hjartanlega velkomið að hafa samband við mig á Facebook síðu minni, og ég skal segja sögur ykkar, því blaðamenn hafa engan áhuga á þeim eða mega ekki fjalla um þær.

En þessar sögur verða líka að fá að heyrast!

 

 


Hvers vegna þarf alltaf að kalla sérstaklega eftir upplýsingum um afleiðingar tilraunabólusetninganna? Skipta "smittölur" gærdagsins meira máli?

Fréttaflutningur af þessum svokallaða heimsfaraldri hefur verið ákaflega einhliða, villandi, og gerður til að halda fólki í stöðugum ótta við einhverja ósýnilega ógn.

Tuttugu og átta Íslendingar, margir komnir á endastöð lífins sökum aldurs og undirliggjandi veikinda dóu víst "úr" veirunni í fyrra, og fjölmiðlar pössuðu upp á að það væri nánast þjóðarsorg í hvert skipti, og gott ef forsetinn sendi ekki líka frá sér samúðarkveðju einhvern tímann.

Á þessu ári hefur ein manneskja víst látist með veiruna í sér, og fékk andlátið eins og venjulega viðeigandi pláss í fjölmiðlunum.

Að allra minnsta kosti 26 manneskjur eru látnar eftir þessar sprautur en hvernig sem á því stendur, virðist það ekki snerta við fólki, og ekki var tilkynnt þar um hvert andlát.

Á þessu ári hófst "bólusetningarvertíð" eins og þetta var kallað í fjölmiðlum í vikunni. Einhvern veginn tengir maður alltaf orðið vertíð við mikla vinnu á stuttum tíma sem gefur mikið í aðra hönd, svo í mínum huga er þessi orðanotkun æði ósmekkleg.

Það er búið að smala fólki nánast með skipunum um að mæta á tilteknum tíma í Höllina í stuttermabol, og oft búin til spenna um að maður sé að missa af einhverju ef maður svíkist um að mæta.

Nú er stærstur hluti fullorðinna búinn að láta sprauta einhverjum efnum í líkama sína sem það hefur ekki hugmynd um hvað innihalda, það treysti bara Ölmu og Þórólfi, og hlýddi Víði.

Enda er það víst á ábyrgð okkar allra að hægt sé að ná niðurlögum faraldursins sem samt hefur engan "drepið" nema eina manneskju á árinu, með því að rétta fram handlegginn og þiggja sprautuna.

Þöggunin

Það er staðreynd að það hefur verið nánast algjör þöggun um aukaverkanir, sem ættu frekar að teljast afleiðingar inngjafa á þessum tilraunaefnum.

Það er jafnvel búið að standa sóttvarnarlækni, Ragnheiði yfirhjúkku í Höllinni og fleiri að hreinum lygum um ágæti og öryggi þessara efna, eins og ég hef sýnt framá í eldri bloggfærslum.

Ragnheiður lét meira að segja hafa eftir sér í viðtali nýlega að það væri hættulegra að fara út í búð en láta sprauta sig!

1007a

Ég bara get ekki verið sammála því, og mikið er ég fegin að hafa ekki tekið áhættuna á að fá einhverjar þessara afleiðinga, sem margar eru óafturkræfar.

Þegar er búið að tilkynna um 2.177 aukaverkanir á þessum sjö og hálfa mánuði síðan "bólusetningarnar" hófust. Hvers vegna voru þær ekki stöðvaðar strax og fólk fór að deyja?

Þið sjáið hluta þeirra á myndinni hér fyrir ofan, og að sjálfsögðu er alltaf sagt þegar Lyfjastofnun þarf að svara fyrirspurnum, að....

"Taka ber þó fram að þó að til­kynn­ing­ar ber­ist Lyfja­stofn­un er ekki þar með sagt að um or­saka­sam­hengi milli bólu­setn­ing­ar og til­kynntra at­vika sé að ræða."

Eins og í þessari frétt þar sem sagt er að 250 konur hafi tilkynnt um breytingar á tíðahring sínum.

Þarna er ansi vel skautað í kringum sannleikann, konur hafa lent á spítala, lent í bráðaaðgerð(um), upplifað sára tíðaverki og miklar blæðingar, og jafnvel konum sem löngu eru búnar með breytingarskeiðið fer að fossblæða aftur.

Ef ekki eru orsakasamhengi þarna á milli, hvernig er þá hægt að útskýra þessar skyndilegu breytingar á æxlunarkfærum kvenna í kjölfar sprautanna?

Í hvert einasta skipti sem Lyfjastofnun hefur þurft að gefa upp upplýsingar um aukaverkanir og andlát í kjölfar sprautanna, er viðkvæðið alltaf að ekkert bendi til tengsla á milli.

Þegar hún þarf að segja frá andlátum, þá er alltaf gefið í skyn að viðkomandi hafi verið aldraður og með alls konar undirliggjandi sjúkdóma, sem var aldrei tekið fram í fyrra þegar allt gamla fólkið, sumt á níræðisaldri dó.

Það eru meira að segja til dæmi um að fólk hafi verið þvingað í sprauturnar eins og ég fjallaði nýlega um hér og hér, og fleira fólk, ungt að aldri er búið að stíga fram annars staðar með sínar sögur af miklum veikindum í kjölfarið. Enginn getur sagt til um það í dag hvort þau nái nokkurn tímann bata aftur.

Ég skrifaði fyrr í dag um níu ára gamla grein sem gæti alveg eins hafa verið skrifuð í dag. Bóluefnasvínaríið hefur alltaf verið slæmt, en nú er það komið upp á eitthvað enn skelfilegra og hættulegra stig.

Ég hvet ykkur til að lesa þessa bloggfærslu sem var birt í gær sem útskýrir mjög vel hvers eðlis þessi "bóluefni" eru, sem stefnt er á að sprauta í hverja einustu manneskju á jarðríki.

Sannleikurinn um þessi tilraunaefni og afleiðingar vegna þeirra eru ört að koma upp á yfirborðið núna, fólk virðist loksins vera farið að vakna.

Fólk sem búið er að missa heilsuna núna er eðlilega reitt, og það fær jafnvel litla sem enga hjálp í heilbrigðiskerfinu.

Ef þið viljið segja frá eigin reynslu eða ættingja eða vina, þá er ykkur hjartanlega velkomið að hafa samband við mig á Facebook síðu minni, og ég skal segja sögur ykkar, því blaðamenn hafa engan áhuga á þeim eða mega ekki fjalla um þær.

 

 

 

 

 


mbl.is Yfir 250 tilkynnt um breytingar á tíðahring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukaverkunum vegna þessara "öruggu og góðu bóluefna" fjölgaði um 24 í gær, og íslensk grein frá 2012 sem gæti hafa verið skrifuð í dag um eitruð bóluefni.

 1507

Í dag, fimmtudaginn 15. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.177, voru 2.153 í gær, svo þetta er fjölgun um 24.

Pfizer var með 881 tilkynningar, þar af 21 andlát og 41 aðra alvarlega.
Nú eru þær orðnar 895. Fjölgun um 14.

AstraZeneka var með 666, þar af 4 andlát og 52 aðrar alvarlegar.
Óbreytt staða.

Janssen var með 245, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 253. Fjölgun um 8.

Moderna var með 361, þar af 15 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 363. Fjölgun um 2.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 140, þar af 26 tilkynnt andlát.

Í heimildaöflun rakst ég á grein sem greinarhöfundurinn gæti hafa skrifað í dag um tilraunaefnin sem búið er að sprauta í stærstan hluta þjóðarinnar núna.

Hér er hún í heilu lagi:

Þorsteinn Sch. Thorsteinsson á visir.is 4. febrúar 2012

"Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlæknisembættinu til að koma inn þessum HPV–bólusetningaráróðri hér.

Grein Kristjáns Sigurðssonar er birtist í Fréttablaðinu þann 31. janúar sl. á það reyndar margt sameiginlegt með greinum embættismanna Landlæknisembættisins, eða þar sem Kristján passar sig sérstaklega á því að minnast ekkert á áhættur er fylgja þessum HPV-bóluefnum, og eins og áður þá passar hann eins og þeir upp á að minnast lítið sem ekkert á reynslusögu þessara HPV-bóluefna með þessum þekktu taugaeiturefnum (e. neutoxin).

Megináherslan hjá Kristjáni virtist hafa verið til þess fallin að fá fólk í HPV-bólusetningu án þess að minnast á áhættu, en hver ber ábyrgð ef upp koma alvarlegar aukaverkanir, lamanir, dauðsföll og fleira?

Hvernig er það er hægt að fá þessa embættismenn hér til að taka á sig persónulega fjárhagslega ábyrgð á því að bæði HPV-bóluefnin séu örugg og að það fylgi þeim ekki nein áhætta, eins og þessir menn eru og hafa verið að gefa til kynna?

Hóplögsóknir hafnar eftir Cervarix-bólusetningar

Í Bretlandi er vitað til þess að hóplögsóknir séu í gangi gegn bóluefnafyrirtækinu GlaxoSmithKline eða til að fá skaðabætur eftir Cervarix-bólusetningu.

Ashleigh Cave er meðal þeirra sem er að lögsækja, en hún lamaðist reyndar í fótum og hefur verið á spítala í Liverpool þar sem ástandi hennar hefur hrakað, en skv. blaðakonunni Christinu England sem er í sambandi við Cave-fjölskylduna, þá hefur öll frekari umfjöllun um Ashleigh verið bönnuð út af hagsmunaárekstrum vegna Cervarix-bóluefnisins.

Nú, Hattie Vickery er einnig að lögsækja en hún er lömuð og með öndunarvandamál, þá eru fleiri stelpur að lögsækja er þjást af öndunarvandamálum og sjóntruflunum, og svo fleiri sjúkdómum (vaccineriskawareness.com).

Hóplögsóknir hafnar eftir Gardasil-bólusetningar

Hin 28 ára Naomi Snell frá Melbourne í Ástralíu stendur ásamt öðrum fyrir hóplögsókn gegn bóluefnafyrirtækinu Merck, en hún fékk reyndar tauga- og sjálfsónæmissjúkdóm eftir Gardasil, þá er vitað um önnur dæmi eins og hennar Gabi Swank en hún er með svæðisbundna lömun og takmarkaða sjón (articles.mercola.com/sites/articles/archive/2012/01/24/hpv-vaccine-victim-sues-merck.aspx?e_cid=20120124_DNL_art_1).

Í Bandaríkjunum þá sá umhverfissinninn hún Erin Brockovich sig knúna til að fara í hóplögsókn fyrir fórnarlömb Gardasil-bóluefnisins gegn bóluefnafyrirtækinu Merck (blog.brockovich.com).

En hér á landi eru menn enn þá að mæla með Gardasil-bóluefninu, þrátt fyrir að vitað sé til þess að Judical Watch hafi frá maí 2009 og til september 2010 skráð 16 dauðsföll, 798 alvarlegar aukaverkanir, 213 örorkutilfelli og allt frá MS, lömunum, minnisleysi, blindu, talmeinavandamálum og svo 25 tilfellum með Guillain Barre-sjúkdómnum (judicialwatch.org).

Skjöl sem hægt var að nálgast með hinni frjálsu upplýsingalöggjöf (FOIA) í Bandaríkjunum segja að frá 1. september 2010 til 15 september 2011 hafi 26 dauðsföll verið skráð eftir Gardasil-bólusetningu.

Hvernig stendur á því að menn mæla með HPV-bólusetningu með taugaeiturefnum?

Það hlýtur að þurfa eitthvað til þess að fá menn til þess að flytja jafn einhliða áróður og það án þess að koma með einhver svör við öllum þessum alvarlegu aukaverkunum og dauðsföllum eftir HPV-bólusetningar er bæði læknar og fórnarlömb hafa skráð, og auk þess þar sem allar þessar frásagnir liggja út um allt internetið.

Sérstaklega þar sem vitað er til þess að 108 hafa verið skráðar látnar, 9.439 skráðar á neyðar- og bráðamóttöku, 5.010 er ekki náðu bata, 2.418 sjúkrahúslegur, 212 langtíma sjúkrahúslegur, 468 lífshættuleg tilfelli, 805 er hlutu varanlega örorku eftir HPV-bólusetningu (gagnagrunninum VAERS og sanevax.org frá 14. des sl.).

Það er ekki það að við höfum ekki vitnisburði einstaklinga og lækna. Hin þekkta Christina Richelle Tarsell lést einum degi eftir þriðju sprautuna í júní 2008. Brooke Petkevicius 19 ára lést tveimur vikum eftir bólusetningu. Megan Hild 20 ára lést fljótlega án nokkurra skýringa einum mánuði eftir þriðju sprautuna.

Ashley 16 ára fékk krónískan sjúkdóm eftir Gardasil-bólusetningu og þjáist núna af lífshættulegum sjúkdómum (vaccineriskawareness.com) og svona mætti lengi telja, en þetta allt saman segir okkur að HPV–bóluefnin séu alls ekki örugg, og það er einfaldlega rangt að láta sem alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll geti ekki komið upp."

Greinin sjálf er hér.

Ég varð eiginlega kjaftstopp þegar ég las þessa grein, og sá líkindin á milli þess sem hann skrifaði fyrir rúmlega níu árum síðan, og þess sem er að gerast núna. Sömu blekkingarnar, sama þöggunin, sömu lygarnar!

Er ekki enn verið að sprauta einhverjum HPV "bóluefnum" í ungar stúlkur hér á landi? Til hvers eiginlega?

Og muniði eftir lygunum í Þórólfi um svínaflensubóluefnin 2009, sem ollu nokkrum ungmennum varanlegri orörku?

Hafiði heyrt um Thalidomide sem var gefið ófrískum konum upp úr 1960 gegn morgunógleði, sem olli því að því a.m.k. tugir þúsunda barna fæddust án útlima eða með þá afskræmda?

Sömu lygarnar, sama þöggunin, sama peningagræðgin. Horfið á þessa sláandi heimildarmynd um fórnarlömbin sem eru mörg enn á lífi.

Haldiði að eitthvað hafi breyst til hins betra núna?

Nú er talað um að það þurfi jafnvel að gefa fólki þriðju sprautuna "gegn nýjum afbrigðum af veirunni" svo hvað verður það næst? Mun fólk verða sett í mánaðarlega áskrift í framtíðinni?

Eldri tengd blogg:

Hvernig bóluefnin voru samþykkt með sviksamlegum hætti

Árið 1976 var bólusetningum hætt í USA eftir að 3 eldri borgarar létust, eitthvað allt annað en núna!

Engar áhyggjur, þið eruð í öruggum höndum lyfjarisanna! Eða hvað?

Bóluefnin versus gölluð ný bílategund sem ylli gríðarlegum skaða!

Lyfjarisarnir hlæja dátt þessa dagana!

 

 

 

 

 


26 andlát og 114 lífsógnandi aukaverkanir eftir tilraunaefnin, og 30% tilkynntra andláta í USA eftir sprauturnar urðu á einni viku, eða 2.000 andlát í viðbót!

1407a 

Í dag, miðvikudaginn 14. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.153, voru 2.147 í gær, svo þetta er fjölgun um 6.

Pfizer var með 879 tilkynningar, þar af 21 andlát og 41 aðra alvarlega.
Nú eru þær orðnar 881. Fjölgun um 2.

AstraZeneka var með 666, þar af 4 andlát og 52 aðra alvarlega.
Óbreytt staða.

Janssen var með 243, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 245. Fjölgun um 2.

Moderna var með 359, þar af 15 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 361. Fjölgun um 2.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 140, þar af 26 tilkynnt andlát.

Andlátum snarfjölgar í Bandaríkjunum eftir tilraunabólusetningarnar

"The latest data from the Vaccine Adverse Event Reporting System (VAERS) shows that 29.5% of all reported deaths in the US following administering Covid-19 vaccines over the last six months and 2 weeks have occurred in the last week.

Data released by the Centers for Disease Control (CDC) from their VAERS database that tracks injuries and deaths caused by vaccines, shows that between December 14th, 2020, and July 2nd, 2021, a total of 438,441 adverse events were reported to VAERS, including 9,048 deaths. This shows an increase of 2,063 compared to the previous week.

During the same time period, there were also 41,015 serious injuries as a result of the vaccines, and this figure was up 6,950 compared with the last week.

Every Friday, VAERS releases all vaccine injury reports received as of a specified date, usually around a week prior to the release date.

As of July 2nd, 328.9 million Covid-19 vaccines were administered in the US. This figure includes 182 million doses of Pfizer, 134 million Moderna doses, and 13 million doses of the Johnson & Johnson (J&J) Covid-19 vaccine.

The VAERS data shows that of the 9,048 deaths, 22% occurred within 48 hours of vaccination, 15% occurred within 24 hours, and 37% occurred in people who became unwell within 48 hours of being vaccinated."

 

1407

Lesið restina hér.

Hvað með börnin og ungmennin?

"This week’s data for 12- to 17-year-olds show:

Lesið restina hér.

Nú á að líka að fara að sprauta íslensk börn sem eru í meiri hættu að látast úr slysum eða öðrum veikindum en úr þessari veiru. Eruð þið mæður, feður, ömmur og afar til í leyfa gjörspilltum lyfjarisum að gera tilraunir á börnunum ykkar?

Við megum aldrei leyfa því að gerast!

 


Þúsundir Íslendinga eru sárþjáðir og veikir eftir tilraunabólusetningarnar, og frásögn úr íslenskum raunveruleika!

Hvað er eðlilegt við það að á þriðja þúsund Íslendinga hefur tilkynnt um aukaverkanir eftir þessar tilraunabólusetningar? Getur einhver útskýrt það?

Það er eins og það snerti ekki við fólki, það er sko allt betra en að veikjast af Covid segir fólk, enda er búið að þjálfa það til að vera dauðhrætt við einhvern ósýnilegan óvin sem í formi veiru bíður víst eftir hverju tækifæri að blossa upp með nýjum og svakalega hættulegum afbrigðum.

Heilaþvotturinn og hræðsluáróðurinn er búinn að vera skelfilegur síðan í ársbyrjun í fyrra.

Hamfarafréttaritarinn Kristján Kristjánsson á DV.is er t.d. aldeilis búinn að vera duglegur að "skrifa fréttir" um þennan meinta faraldur, eins og til dæmis þessar hér:

WHO varaði við þessu fyrir mörgum mánuðum – Verður verra en nokkru sinni áður

Varar við afbrigðum kórónuveirunnar sem verða ónæm fyrir bóluefnum

100 vísindamenn vara við afléttingu sóttvarnaaðgerða

Gengur hægt að bólusetja í Austur-Evrópu – Vekur áhyggjur

Ný veira hefur fundist í evrópskum svínum – Getur hugsanlega valdið heimsfaraldri

Verið hrædd, hræddari, hræddust, fólk lifir orðið í svo miklum ótta við eitthvað sem búið er að segja því að hræðast, að það gleymir að bara vera til og lifa sem eðlilegar manneskjur.

Vitið þið lækninguna við Covid? Að hætta að horfa, hlusta á og lesa þessar einhliða og oft fölsku fréttir sem birtast í fjölmiðlunum.

Púff, og Covid mun hverfa á núll einni!

Frásögn úr íslenskum raunveruleika

Einu fréttirnar sem við fáum í íslenskum fjölmiðlum eru álíka og þær þem þessi Kristján "skrifar", um nýjustu "smitin", covid sjúkraflutninga, og hversu margir séu (alheilbrigðir) í sóttkví eða einangrun þann daginn, og svo að sjálsögðu hversu frábær og góð þessi tilraunaefni eru.

Meira að segja var birt "frétt" um daginn um einhvern sem lá á almennri legudeild með einhvern flensuskít.

Við sem trúum þessu ekki, söknum þess að heyra ekki líka fréttir af hinni hliðinni, um þá sem eiga um sárt að binda eftir sprauturnar.

Ég hef boðið fólki að hafa samband við mig í gegnum Facebook síðuna mína ef það hefur frá einhverju að segja, og um daginn hafði maður samband við mig sem hafði átakanlega sögu að segja frá því hvernig aldraðir foreldrar hans sem eru með Alzheimers voru neyddir í sprauturnar!

Ég fékk svo skilaboð í gær frá konu sem ég lofaði nafnleynd, og hún hafði þetta að segja:

"Hæ hæ. Ætla að telja hér upp það sem ég hef séð og heyrt í kringum mig. Kannski að þú getir nýtt eitthvað af því.  

Eg vinn á vinnustað sem bæði aldraðir og ungir koma. Mágkona mín 55 ára varð veik i 3 daga eftir sprautu og hefur aldrei á ævinna verið svona veik, maðurinn hennar var líka illa veikur i 2-3 daga.  

Fullorðin kona um 78 ára, fékk ristil daginn eftir sprautu (tilkynnti það ekki, spurning hvort læknirinn gerði það ?) Var ofboðslega lasin.

Önnur fullorðin kona upplifði óhugnalegan lit á líkamamum eftir að hafa verið í sól, eldrauð en ekki sólbrunarauð.

Vinur sonar míns 24 ára fékk blóðtappa eftir sprautuna (veit ekki hvort var daginn eftir) vinkona dóttur kunningjakonu minnar fékk snertingu af blóðtappa, kunningjakona mín (um 60 ára) er búin að vera með stanslausan hausverk frá þvi hún fékk sprautuna og losnar ekki við hann, komnar 3 vikur.

Kúnni hjá mér sagði að henni fyndist svo skrítið, hún þekkir þrjá sem hafa dáið í rúminu sínu án skýringa, fólk á miðjum aldri og þessi kona er búin að fá sprautu og er meðmælt þeim en sagði mér þetta, mikið hugsi.

Kunningi minn um fimmtugt er búin að vera veikur í meira en viku, finnst hann sjálfur skrítinn, allt í þoku og ofboðslega þreyttur og ólíkur sjálfum sér, eins og hann ætli ekki að ná sér.

Vinur föður míns fór á bráðamóttökuna vegna óútskýrðra verkja og vanlíðan í marga daga eftir sprautuna, fannst ekkert að honum, gátu ekki einu sinni sagt að hann væri með flensu.

Ég er búin að heyra svo margt, sendi þér meira þegar kemur meira upp í hugann minn.  Ég tek eftir því að fólk innan við 60 ára verður meira veikt en eldri. (Getur verið að sprauturnar séu sorteraðar eftir aldri? Önnur framleiðsla, önnur efni?"

Þórólfur vill sprauta okkur ennþá meira!

Aukaskammtur til skoðunar segir Þórólfur.

"Við erum ekki kom­in á þann stað ennþá hér en auðvitað er þetta alltaf til skoðunar,“ seg­ir Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir í sam­tali við mbl.is, spurður hvort að þriðji skammt­ur­inn á Pfizer-bólu­efn­inu verði í boði fyr­ir lands­menn."

Kæru Íslendingar, þið verðið að fara að horfast í augu við það að þessi "bóluefni" sem verða í tilraunafasa til 2023 eru skelfileg eiturefni!

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir birti í kvöld blogg um unga konu í Sandgerði sem er enn fárveik 5 mánuðum eftir að hún fékk fyrstu sprautuna af AstraZeneka.

Hvers vegna það "verður" að sprauta alla, allt niður í börnin okkar gegn veiru sem löngu er komið hjarðónæmi gegn, er spurning sem við eigum heimtingu á að fá svar við!

Það er enginn að deyja "úr Covid" núna, en þúsundir að skaðast hér á landi, margir eru orðnir öryrkjar fyrir lífstíð og miklu fleiri en 26 látnir, það er eitt sem víst er!


Tilkynntum alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 6 frá í gær, og blekkingarnar um öryggi og ágæti þessara tilraunaefna!

1307

Í dag, þriðjudaginn 13. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.147, voru 2.123 í gær, svo þetta er fjölgun um 24.

Pfizer var með 865 tilkynningar, þar af 21 andlát og 40 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 879. Fjölgun um 14.

AstraZeneka var með 661, þar af 4 andlát og 52 aðra alvarlega.
Nú eru þær orðnar 666. Fjölgun um 5.

Janssen var með 238, þar af 1 andlát og 6 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 243. Fjölgun um 5.

Moderna var með 359, þar af 15 alvarlegar.
Óbreytt staða.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 139, þar af 26 tilkynnt andlát.

Ég hvet ykkur til að smella á myndina hér fyrir neðan til að skoða  sundurliðaðar tilkynningar aukaverkana sem eru uppfærðar á hverjum mánudegi.

Eru þetta merki um að þessi tilraunaefni séu bara svona svakalega góð og örugg?

1107a

 

Smá upprifjun

Sjáið forleikinn að bólusetningarhátíðinni sem staðið hefur yfir í meira en hálft ár núna!

1207b

"Prófessor í ónæmisfræði segir að geymsluþol nýs bóluefnis lyfjafyrirtækisins Moderna muni koma sér vel fyrir fátækari ríki, sem ekki eigi jafnauðvelt með að geyma bóluefni í miklu frosti.

Þá virðist Moderna-efnið vernda sérstaklega gegn alvarlegum veikindum af völdum kórónuveirunnar en litið var sérstaklega til þess við rannsóknina.

Moderna tilkynnti í dag að bóluefni sem það hefur verið með í þróun veiti 94,5 prósent vörn gegn kórónuveirunni. Áður hafði lyfjafyrirtækið Pfizer tilkynnt sambærilegar niðurstöður, 90 prósent vörn."

Sjá framhaldið hér.

1207c

"Bóluefni bandaríska lyfjafyrirtækisins Pfizer og þýska lyfjaþróunarfyrirtækisins BioNTech gegn COVID-19 hefur fulla virkni í 95% tilfella og engar alvarlegar aukaverkanir. Þetta er niðurstaða þriðja stigs prófana með efnið.

Þetta kom fram í tilkynningu frá Pfizer. Þar segir að niðurstöður þriðja stigs prófana sýni að efnið komi í veg fyrir mild og alvarleg einkenni COVID-19 í 95% tilfella og í 94% tilfella hjá eldri einstaklingum, sem eru í meiri hættu á að þróa með sér alvarleg einkenni og önnur bóluefni sem eru í þróun hafa ekki reynst þeim hópi jafn vel."

Sjá framhaldið hér.

1207d

"Lyfjaframleiðandinn Pfizer hefur gefið út frekari niðurstöður úr tilraunum sínum á COVID-19 bóluefninu sem þróað var í samstarfi við þýska fyrirtækið BioNTech og mun sækja um leyfi til þess að hefja dreifingu á því á allra næstu dögum. 

Bóluefnið er nú sagt hafa 95 prósent virkni og engar alvarlegar aukaverkanir, en 2 prósent þátttakenda kvörtuðu undan smávægilegum hausverk og 3,7 prósent þeirra sögðust hafa fundið fyrir þreytu eftir að hafa fengið skammtinn. Alls tóku nærri 44 þúsund manns þátt í tilraun Pfizer og BioNTech."

Sjá framhaldið hér.

1207e

"Nú er það staðreynd að á Íslandi get­um við hafið bólu­setn­ingu hér á landi um ára­mót. Við þurf­um þó að vera viðbúin því að bólu­efnið ber­ist til lands­ins í ein­hverj­um skömmt­um og að bólu­setn­ing­in eigi sér stað í skref­um á næsta ári,“ sagði Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigðisráðherra í ræðu sinn­i á þing­fundi í dag. Þar flutti hún munn­lega skýrslu um horf­ur um af­hend­ingu bólu­efn­is vegna Covid-19. 

„Evr­ópu­sam­bandið hef­ur gert samn­ing við sex lyfja­fyr­ir­tæki sem hafa unnið að þróun bólu­efn­is. Af þess­um sex eru tvö fyr­ir­tæki kom­in lengst sem eru þau AstraZeneca og Pfizer. Það þýðir að þau hafa lokið þriðja fasa rann­sókna og samn­ing­ur er und­ir­ritaður við Ísland um af­hend­ingu ból­efn­is og um­fang samn­ingsins,“ sagði Svandís. Bú­ist er síðan við að samn­ing­ur við Moderna verði und­ir­ritaður fyr­ir ára­mót."

Sjá framhaldið hér.

1207h

"Al­var­leg­ar auka­verk­an­ir af völd­um bólu­efna við kór­ónu­veirunni sem Íslend­ing­ar hafa samið um skammta af eða eru að semja um skammta af eru sjald­gæf­ar. Þó er ekki hægt að fyr­ir­byggja al­var­leg­ar auka­verk­an­ir al­gjör­lega, hvorki í til­fell­um bólu­efna né lyfja.

Þetta kom fram í máli Ingi­leif­ar Jóns­dótt­ur, pró­fess­ors við lækna­deild Há­skóla Íslands og deild­ar­stjóra hjá Íslenskri erfðagrein­ingu, á upp­lýs­inga­fundi al­manna­varna í dag. 

Ingi­leif fór yfir það hvað ger­ist þegar fólk er bólu­sett.

„Þá er venju­lega sprautað í það dauðum eða veikluðum sýkl­um, sem sagt skaðlaus­um bakt­erí­um eða veir­um, eða ein­stök­um sam­eind­um frá sýkl­un­um, svo sem prótein­um, rna eða dna,“ sagði Ingi­leif."

Sjá framhaldið hér.

1307

"Það er stórkostlegur árangur að tvö bóluefni hafi þegar fengið leyfi til notkunar í mönnum í Bandaríkjunum og eitt í Evrópu, innan við ári frá því að SARS-CoV-2-veiran fannst. Áhættan af því að fá COVID-19 er mikil, alvarleg veikindi og há dánartíðni, einkum hjá öldruðum og fólki með undirliggjandi sjúkdóma, og einnig langvinn veikindi sem gera marga jafnvel óvinnufæra vikum og mánuðum saman, þar á meðal ungt fólk sem áður var hraust. 

Verndarmáttur þeirra bóluefna sem lengst eru komin í þróun og prófunum er mjög mikill. Öryggi þeirra og hverfandi áhætta, sem rannsóknir sýna að er sambærileg við bóluefni sem þegar eru notuð, ættu að auðvelda öllum að vega og meta ávinning og áhættu af bólusetningu miðað við áhættuna sem fylgir því að fá COVID-19. Það er líka gríðarlegur árangur að innviðir til framleiðslu á nýjum gerðum bóluefna (mRNA- og veiruferjubóluefni) hafi verið byggðir upp til að framleiða 5,8-6,3 milljarða skammta af þeim 4 bóluefnum sem eru komin lengst í þróun auk mikillar framleiðslugetu annara bóluefna sem munu fylgja í kjölfarið.

Vonandi gengur það eftir að aðgangur að bóluefnum gegn COVID-19 á heimsvísu verði sanngjarn og öll lönd fái sem fyrst bóluefni fyrir þá sem eru í mestri áhættu á að fara illa út úr sjúkdómnum. Baráttunni við COVID lýkur hvergi fyrr en henni lýkur alls staðar.

Sjá Spurt & Svarað á Vísindavefnum hér.

Lygar, lygar, og ennþá meiri lygar!

Takið þið eftir því að undantekningarlaust er verið að lofa fyrirfram og hreinlega að ljúga um ágæti, öryggi og virkni þessara tilraunaefna?

Þessi áróður um að allir verði að láta sprauta sig svo þeir veikist ekki eða deyi úr einhverri pest (sem fáa drepur) hefur gengið svo vel, að nú eru 228.843 einstaklingar fullsprautaðir hér á landi.

En napur sannleikurinn er sá að þúsundir Íslendinga sem létu blekkjast, þjást núna af afleiðingum þeirra, og enginn veit hvort eða hvaða aukaverkanir muni koma fram mánuðum eða árum eftir tilraunasprauturnar.

Í síðustu viku bauð ég fólki að hafa samband við mig í einkaskilaboðum á Facebook ef það vildi tjá sig, og hafði maður samband við mig og sagði mér sögu aldraðra foreldra sinna með Alzheimers sem voru sprautaðir gegn upplýstu samþykki þeirra.

Ég fjallaði meira um þvingaðar bólusetningar sem því miður viðgangast hér á landi.

Í gær hafði kona samband við mig, og sagði mér frá hvað hún hefur heyrt og séð í kringum sig um eftirköst bólusetninganna hjá mörgum, og mun ég blogga um það seinna í dag.

Hinar hliðarnar á þessum bólusetningum verða að fá að sjást og heyrast líka, sérstaklega núna þegar það á að fara að sprauta börnin okkar með þessum tilraunaefnum!

 

 

 

 


Opinberar tölur í USA sýna skelfilega aukningu andláta eftir tilraunabólusetningarnar.

Á sama tíma og bólusetningaráróðurinn verður sífellt harðari í heiminum, þá fjölgar sönnunum um skaðsemi þessara tilraunaefna.

Ef horft er á þessar myndir hér fyrir neðan, þá ekki hægt að afneita því að þessi efni eru að valda ómældum skaða og andlátum um allan heim, líka hér á landi þar sem þegar er búið að tilkynna um 2.123 aukaverkanir, þar af 26 andlát og 107 aðrar lífsógnandi.

 

1207a

 

"The latest weekly US VAERS update added a shocking 2,083 post-vaccination deaths.

The latest weekly US VAERS update added a shocking 2,083 post-vaccination deaths – by far the largest weekly increase to date – raising the total of reported post-vaccination deaths to 9,048. Not all of these 2,083 deaths occurred within a week, as there is a very significant reporting backlog.

In total, close to 1,000 post-vaccination miscarriages, more than 3,000 heart attacks, about 7,500 disabilities, close to 20,000 severe allergic reactions, and close to 1,000 cases of heart muscle inflammation in people under 25 have already been reported to VAERS.

A recent analysis by researchers at Queen Mary University in London found that even in senior citizens, about 85% of deaths reported to VAERS were definitively, likely or possibly caused by the vaccine. Moreover, due to significant under-reporting, the true number of vaccine-related deaths may already be significantly higher, possibly in the range of 10,000 to 50,000 deaths in the US alone.

Indeed, despite very few covid deaths, there continues to be unexplained excess all-cause mortality in all US age groups below the age of 75, with all-cause mortality having reached record levels in age groups below 45 since the beginning of the vaccination campaign. In people over 75, potential vaccine-related mortality may be masked by post-winter wave negative excess mortality."

Lesið restina af þessari grein hér, og horfið þar á stutt vídeó þar með manni sem er smátt og smátt að missa máttinn eftir AstraZeneka sprautuna, hristist allur og skelfur og upplifir mikla heilaþoku og eyrnasuð núna. Hann fær litla sem enga læknishjálp, bara einhverjar pillur.

Á fimmta hundrað þúsund tilkynninga um afleiðingar þessara tilraunaefna

Á þessari síðu sjáið þið tölur til og með 7. júlí s.l.

1107b

 

Örfá sýnishorn úr þessum gagnagrunni

17 ára stúlka, VAERS ID: 1231560:

"On 4/17/21 (ie within 48 hours of receiving COVID 19 Pfizer Shot #2 (4/15/21), my daughter began experiencing chest pain in the PM (PM of 4/17). It was initially mild so we did a watch and wait overnight but when it did not go away by morning of 4/18/21 we went to Urgent Care . Upon presentation at urgent care, she had an irregular EKG, we were advised to immediately do to a Hospital ER , upon arrival she presented with same EKG findings from urgent care, BW was run and her troponin level was a 7, this hospital recommended (after consultation with their cardiologist) that based on her age and urgency of the heart condition, we should be transported to a pediatric hospital with cardiology expertise. She was transported by ambulance to another Hospital, Cardiology Unit. . After a scary 24 hour overnight stay at the hospital she was released on 4/19/21."

16 ára piltur, VAERS ID: 1310120

"The patient developed severe chest pain on the 4th day after the vaccine, he presented to the local emergency room and had the abnormal tests as described below. His symptoms improved rapidly but due to active myocarditis was given recommendations for limited activity to reduce risk of fatal arrhythmia"

19 ára piltur, VAERS ID: 1172292

"Received Jansen COVID injection at approximately 11am 4/3/2021. Developed sore left arm, shoulder, and neck approximately 10 pm evening of 4/3/2021. Woke up 3:30am 4/4/2021 and informed parents he did not feel well-awake most of that night. Felt slightly better morning of 4/4/2021, but continued feeling feverish, pain in arms, shoulders, neck. Approximately 8pm Sunday night 4/4/21 he stated he felt it was hard to breath, chest pain, and his arms felt like they were on fire. Was taken to ER at Clinic. Blood pressure 149/98, temp 100.6 complain of feeling feverish and short of breath. EKG was taken which was abnormal and enzymes noted to be elevated. Transferred to main branch of Clinic approximately 4:30am 4/5/2021. Father states patient has inflammation around the heart. Had a cardiac catheterization today 4/6/2021-father states that was normal and patient was started on medication to reduce inflammation around his heart. Patients father states that patient was very drowsy from his catheterization and was fine with his father telling me the events as they occured. As I was speaking with patient father, patient was going down for a MRI of the heart. This information was conveyed to me by father and mother. Patient is a college student and was home for Easter break. Patient currently remains hospitalized in Clinic and father thought he would remain hospitalized until Thursday 4/8/2021 depending on test results and his response to treatment. Both parents state they are willing to be contacted for further information."

18 ára piltur, VAERS ID: 1081208:

"This is a 18 y.o. male who is generally healthy. He received a second dose of the SARS2-COV vaccine on 3/4. The following morning he felt feverish and achy with malaise. He stayed home, drank fluids and rested and felt well enough to come up to ski this weekend. During skiing he had some anterior chest pain, it resolved and he went about his day. Tonight at 2245 the pain became sharp and awakened him from sleep. He felt nauseated and clammy as well. Father brought him to the ER for evaluation. His emergency department evaluation showed ST elevations most notably in the inferior and lateral leads as well as in the lateral precordium."

Börnin okkar eru næst!

Og nú stendur til að fara að "bólusetja" 12-15 ára íslensk börn með þessum eiturefnum, hvers vegna í ósköpunum? Ekkert barn eða ungmenni hefur veikst alvarlega eða dáið úr þessari veiru.

Núverandi sóttvarnarlæknir laug að okkur varðandi bóluefnin við svínaflensunni um árið, svo hvers vegna ættum við að trúa honum og treysta núna?


Enn fjölgar aukaverkunum, og breskur útfararstjóri sem segir sannleikann, það var enginn fjölgun útfara í Bretlandi fyrr en þessar tilraunabólusetningar hófust á þessu ári!

 1207

Í dag, mánudaginn 12. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.123, voru 2.100 á föstudaginn, svo þetta er fjölgun um 23.

Pfizer var með 852 tilkynningar, þar af 21 andlát og 37 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 865. Fjölgun um 13.

AstraZeneka var með 657, þar af 4 andlát og 51 aðra alvarlega.
Nú eru þær orðnar 661. Fjölgun um 4.

Janssen var með 233, þar af 1 andlát og 5 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 238. Fjölgun um 5.

Moderna var með 358, þar af 15 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 359. Fjölgun um 1.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 133, þar af 26 tilkynnt andlát.

Ég hvet ykkur til að smella á myndina hér fyrir neðan til að skoða  sundurliðaðar tilkynningar aukaverkana sem eru uppfærðar á hverjum mánudegi.

Eru þetta merki um að þessi tilraunaefni séu bara svona svakalega góð og örugg?

1107a

 

Hugrakkur breskur útfararstjóri

Útfararstjóri sem stýrir fjölskyldurekinni útfararþjónustu uppljóstrar í viðtali hvað hann hefur upplifað í sínu starfi allt frá síðasta ári til dagsins í dag.

Ef einhverjir ættu að vita hvort fjölgun hafi orðið á útförum á einhverju tímabili, þá ættu það svo sannarlega að vera útfararstjórarnir.

Hann segist sjálfur hafa verið blekktur í upphafi "heimsfaraldursins", en svo hafi sannleikurinn runnið upp fyrir honum, að ekki væri allt sem sýndist, og að andlátstölur vegna veirunnar væru stórlega ýktar, ef ekki hreinlega falsaðar.

Og merkilegt nokk, í meira en ár hefur hann ekki fengið eina einustu manneskju til sín sem lést úr þessari hefðbundnu árlegu flensu!

Hann skrifaði færslu á Facebook sem fór í mikla dreifingu, en var svo (auðvitað) hent út.

Það var engin aukning milli áranna 2019 og 2020, en um leið og þessar tilraunabólusetningar hófust í janúar, þá varð hrina andláta, og þeim fjölgaði um töluvert meira en tvöfalt miðað við það sem eðlilegt er í venjulegu árferði.

1107

Viðtalið við hann er ákaflega áhrifaríkt, hann leggur öll spilin á borðið og kemur þar fram undir nafni. Það er ca. 50 mínútna langt og fyrir þá sem ennþá trúa öllu því sem þeim hefur verið sagt um þennan "heimsfaraldur" í meira en ár, og svo þessi svokölluðu bóluefni, er mínútunum í að horfa á það mjög vel varið.

Þann 21. júní s.l. birti ég færslu um breskan útfararstjóra sem ákvað að gerast nafnlaus uppljóstrari, og mér heyrist þetta vera sami maðurinn sem hefur nú ákveðið að stíga fram undir fullu nafni.

Og það er kannski ágætt að rifja upp álit virts sérfræðings í hjartalækningum sem segir að "heimsfaraldurinn" hafi aldrei snúist um neina veiru, heldur um þessi svokölluðu bóluefni, og að stinga nál í hvern einasta handlegg, sjá hér.

Og nú á að fara að "bólusetja" börnin okkar! Þið sem eigið börn og barnabörn, eruð þið tilbúin að leika rússneska rúllettu með líf þeirra og heilsu með því að láta sprauta einhverjum þessara efna í þau?

Þið sjáið það svart á hvítu á myndinni hér fyrir ofan hvað aukaverkanirnar geta verið hroðalegar!

Ekki leyfa þessu fólki sem margbúið er að standa að lygum um öryggi og virkni þessara efna að koma nálægt þeim!

Viðbót: Skv. frétt sem var að birtast á mbl.is rétt í þessu....

"„Það verður nátt­úr­lega farið í bólu­setn­ingu 12 til 15 ára barna í haust þannig að þetta bólu­efni verður lík­lega notað í það. Svo eru ein­hver 10% þjóðar­inn­ar sem eiga eft­ir að fá bólu­setn­ingu þannig að kannski kem­ur eitt­hvað af þeim í bólu­setn­ingu.“"

 


Þvingaðar bólusetningar viðgangast hér á landi, það er því miður bláköld staðreynd!

Í byrjun maí fékk ég senda hljóðupptöku sem ég fjallaði um á Facebook veggnum mínum, og þessi færsla fékk gríðarleg viðbrögð, enda efnið skelfilegt.

Hún kom upp í hugann eftir að ég fjallaði í vikunni um átakanlega sögu aldraðra íslenskra hjóna sem bæði þjást af Alzheimers.

Undir eðlilegum kringumstæðum hefðu þau aldrei leyft því að sprautað væri einhverjum tilraunaefnum í þau, en vegna veikinda sinna höfðu þau ekkert val, og voru bara sprautuð.

Andlega veik kona þvinguð til að láta sprauta sig á geðdeildinni

Facebook færslan mín:

"Ég var beðin um að hlusta á stutta hljóðupptöku í dag, en þar var 44 ára íslensk kona að segja frá hræðilegri reynslu sinni.

Hún þurfti að leggjast inn á geðdeild þar sem hún var andlega gjaldþrota, og á þriðja degi er henni boðin bólusetning. Hún segist aldrei hafa hugsað sér að láta sprauta sig, svo hún afþakkaði boðið.

Við skulum hafa það í huga að þetta var veik manneskja sem var gjörsamlega niðurbrotin andlega, og var þarna til að fá hjálp.

Það var svo komið fimm sinnum inn til hennar og hún spurð hvort hún vildi ekki sprautuna, en hún neitaði alltaf. Eftir hópþrýsting frá læknum og hjúkrunarfræðingum þá lét hún undan, og var sprautuð með J&J, og varð mjög lasin í kjölfarið.

Daginn eftir féll hún fimm sinnum í yfirlið, alvarlega í eitt skiptið, og er búið að líða illa síðan. Fyrst núna eftir fimm daga er hún aðeins að hressast.

Ég var alveg miður mín að heyra þetta, og finnst við vera komin á skelfilegan stað ef veikt fólk er beitt svona þvingun og hreinlega ofbeldi á stað þar sem það á að njóta verndar og fá hjálp við veikindum sínum!

Hvað finnst ykkur, eruð þið ekki sammála mér?"

Hvað ætli margir hafi verið (hálf?) þvingaðir í sprauturnar hér á landi?

Ég veit um marga sem hafa látið sprauta sig eftir hótun um brottrekstur úr vinnu ef þeir gerðu það ekki, og annað eins af fólki sem hefur látið undan hópþrýstingi frá nærumhverfi sínu.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir fjallaði nýlega í bloggi sínu um reynslu tveggja kvenna eftir sprauturnar: "Ef ég sé eftir einhverju í þessu lífi er það að hafa látið sprauta í mig þessum viðbjóði!"

"Hún sagðist hafa upplifað mikla pressu í þjóðfélaginu, hlustað á umfjöllun lækna og sóttvarnarlæknis, og hafi trúað því að hún myndi ekki fá neinar aukaverkanir."

Rónarnir sprautaðir

Vinkona mín átti spjall við nokkra róna á Austurvellinum í gær og spurði þá hvort þeir væru búnir að fá sprautuna.

1107

Finnst einhverjum þetta eðlilegt og í lagi?

Sögurnar sem aldrei er fjallað um í fjölmiðlum

Ég veit ekki hvað við sáum margar fréttir í fyrra um fólk sem hafði veikst af veirunni og átt í eftirköstum um skeið eftir veikindin.

En hvar eru viðtölin við eitthvað af því fólki sem þegar er búið að tilkynna um 2.100 aukaverkanir?  Þetta er fólkið sem sannanlega glímir núna við aukaverkanir eftir sprauturnar eins og t.d. einhverjar af þessum hér á myndinni.

1104

Ef fólk er ekki enn búið að átta sig á því, þá er skelfileg þöggun hér á landi varðandi hugsanlegar, og jafnvel óafturkræfar aukaverkanir vegna þessa tilraunalyfjagjafa.

Ég er mjög þakklát manninum sem leyfði mér að birta frásögnina af öldruðum foreldrum sínum sem voru þvinguð í sprautur, því við verðum að fá að heyra hinar hliðarnar á þessum "bólusetningum" líka.

Ef þið þekkið þið einhverja bólusetta sem hafa látist skyndidauða öllum að óvörum, eða þjáist sjálf af aukaverkunum eftir sprauturnar, þá megið þið gjarnan senda mér einkaskilaboð á Facebook síðunni minni ef þið viljið tjá ykkur um það og leyfa mér að birta hér.

Að sjálfsögðu heiti ég fullum trúnaði og myndi ekki birta neinar persónugreinanlegar upplýsingar ef fólk vill það ekki.

 

 


Bretar munu ekki komast á pöbbinn frá og með haustinu nema sýna "heilsupassa" sem sanni að þeir hafi verið sprautaðir!

Hvað hef ég sagt ykkur áður, þeir segja alltaf eitthvað þveröfugt við það sem þeir ætla í rauninni að gera segir hinn breski Hugo.

Fyrir aðeins nokkrum vikum síðan sagði ríkisstjórnin að hún hefði engar áætlanir þá um að setja á Covid passaskyldu fyrir pöbba.

Þetta er bara kjaftæði, þeir ætla að setja passaskyldu fyrir pöbba, klúbba, verslanamiðstöðvar, og alla þá staði sem fólk þarf eða vill sækja.

Öll sjálfsögð mannréttindi og frelsi verða smátt og smátt tekin af okkur svo lengi sem við leyfum því að gerast.

Sjáið hvað er að gerast til dæmis í Nýja Sjálandi og Írlandi. Planið er að gera okkur að "stafrænum" manneskjum, eða vöru, og þeir munu gera það með öppum sem verða að einhverjum vegabréfum.

Núna er yfirskinið að þetta séu einhverjir "heilsupassar", en á endanum munu þetta verða "tracking and tracing" tæki sem munu fylgjast með öllum okkar gerðum 24/7, alveg eins og í Kína.

 

Sem betur fer eru margir löngu búnir að sjá í gegnum framtíðarplönin fyrir mannkynið, og við eigum líka að hlusta á hvað þeir hafa að segja, eins og hér fyrir neðan.

Nokkrar athugasemdir undir vídeóinu

"This government should be charged with crimes against humanity"

"We did not consent for this nwo tyranny, it's time to fight back more than ever"

"Most of my so called "friends" who have had the jabs are happy to go along with all this, go on holiday, go in pubs, go to clubs etc etc. No hope left"

"No all hope is gone, I went out for a meal last night, everybody who came in whilst I was in there willingly & gladly put their face nappy on before stepping through the door & they all scanned themselves in, all ages, especially the younger folks, complete compliance in action, was so disheartening to see"

"They can think again if they think I'm installing the lunacy passport"

It’s pure coercion. It’s trying to force people to get the jab . These are dark times . Resist , please.

"This is the lull before the storm .We lose everything to do with freedom in the autumn for good.They will never give up the tyranny unless we stop them now."

"The bulk of the population will comply, whatever happens. It's a game of proportions, not of numbers. Also, a great deal of people seem to actually enjoy all the restrictions of the pretend emergency. WW1 and WW2 are much more easily understood in light of the current confidence trick."

Smá ljós í myrkrinu

"I went to a local pub this evening. There were signs insisting on face masks and using the track and trace app. Nobody wore a mask. Nobody used the track and trace app. Basically, nobody gave a toss. Everybody was just having a relaxing evening with friends. Just carry on as normal."

Ætli þetta fólk sé fullbólusett vegna hræðsluáróðursins sem hefur staðið yfir nú vel á annað ár? Ég held við getum verið viss um að svo sé ekki, þau eru örugglega löngu búin að sjá í gegnum þetta og gefa skít í þessi fasistalög.

Gott hjá þeim!

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband