Bloggfærslur mánaðarins, maí 2024

Nú er komið að "hættulegu kolefnisloppuspori" katta og annarra gæludýra!

Kettlingur PixabayUndanfarin ár erum við búin að sitja undir endalausum hræðsluáróðri um einhverja "hættulega vírusa" að heimurinn sé að sjóða til helvítis af okkar völdum, jöklar séu að hverfa, að heimurinn sé að verða snjólaus, borgir muni sökkva og þar fram eftir götunum.

Eftir allan þennan tíma ættum við öll löngu að vera orðin ónæm fyrir þessum endalausu hamfarafréttum sem langflestar eru algjörlega innistæðulausar, en margsannað er að stanslaus óttaáróður er besta leiðin til að stjórna okkur og fá okkur til að hlýða.

Munum við ekki öll eftir Víði sem við áttum að hlýða?

Eina "lausnin" alltaf er að fela einhverjum öðrum, helst ókjörnum alþjóðastofnunum og milljarðamæringum að bjarga okkur - með ríflegum fjárframlögum úr vösum okkar skattgreiðendanna.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) reyndi að hræða okkur með einhverjum "hættulegum" apabólufaraldri árið 2022, sem hægt væri að bjarga okkur frá með með "bóluefnum", nema hvað, og auðvitað voru pantaðir 1.400 skammtar hingað til Íslands!

Það fer hins vegar fáum sögum af því hve margir létu sprauta sig með þeim.

Netverjum um allan heim tókst sem betur fer stórkostlega að útrýma þessari pest með gríni og háði, og ég skrifaði tvö blogg um þessar blekkingar sem sjá má hér og hér.

Grín og háð hefur oft reynst öruggt og áhrifaríkt (safe and effective) ....

En nú er komið að gæludýrunum!

William MakisWilliam Makis er kanadískur læknir sem að sjálfsögðu er búið að svipta læknaleyfi sínu því vegna "óhlýðni" hans við valdstjórnina.

Hann hefur verið gríðarlega öflugur undanfarin ár við að fjalla um Covid blekkingarnar, aukaverkanirnar og andlátin eftir sprauturnar, "túrbó" krabbameinin, burðarmálsdauða o.fl.

Hann er byrjaður að halda úti mjög fróðlegum 15 mínútna vídeóum um þessi mál, og það nýjasta vakti sérstaka athygli mína.

Byrjað er að hræða okkur með H5N1 fuglaflensu í köttum, og þarna fer hann yfir fréttir sem hafa verið að birtast í erlendum fjölmiðlum um ketti sem hafi drepist úr fuglaflensu eftir að hafa drukkið ógerilsneydda mjólk úr veikum kúm.

Gæludýraeigendur eru beðnir um að sýna ítrustu aðgát varðandi þessa fuglaflensu, jafnvel hundaeigendur líka þótt ekki séu til neinar upplýsingar um að hundar hafi drepist úr þessari flensu.

Hann fer líka yfir skjal sem gefur til kynna að ekki bara kettir og hundar gætu verið í hættu, heldur líka "companion animals", eða allt sem getur talist gæludýr.

Og hann heldur áfram, eldri grein frá 2019 fjallar um "kolefnisloppuspor" hunda vegna alls kjötsins sem þeir éta, og lagt er til að í staðinn verði þeim gefinn pöddumatur, (sem okkur er líka ætlað að borða til að "bjarga loftslaginu").

Núll kolefnisfótspor þýðir nefnilega ekki bara ekkert jarðefnaeldsneyti, heldur líka engin gæludýr.

Gæludýrin séu líka hluti af loftslagsvandamálunum, enda gefi framleiðsla gæludýrafóðurs frá sér gríðarlegt magn af lofttegundum sem valdi hlýnun jarðar.

Svo sýnir hann okkur frétt sem á að hræða okkur mannfólkið á því að við séum séum ekki óhult heldur.

Lokaorðin hans eru mjög áhugaverð og alveg í takt við það sem við mörg erum búin að fjalla um undanfarin ár, um það þegar mögnuð var upp sturluð hræðsla við einhverja veiru sem átti að geta drepið stóran hluta mannkynsins, og þannig voru allar fasísku aðgerðirnar í Covid réttlættar.

Nú eru það "loftslagshamfarirnar" sem munu réttlæta útrýmingu gæludýra, eins og húsdýranna sem verið er að fækka um heim allan í nafni loftslagsmála.

Hér er skondin frétt frá 2016, Global warming might be causing dogs to become depressed, say pet behaviourists, svo við sjáum að þessi loftslagsáróður er hreint ekkert nýr af nálinni.

Bændur um allan heim - hvar eru þeir íslensku?

No farmers No foodMarkmiðið er ekki bara að útrýma gæludýrum, heldur er núna verið að neyða bændur til að bregða búi. Við eigum að gera okkur að góðu að borða pöddur, gervikjöt, gervifisk og alls kyns erfðabreyttan "mat", eins og sjá má í þessum skelfilegu heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) - allt í nafni "loftslagshamfaranna", en þær eru Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda afskaplega hugleiknar.

Aldrei er fjallað um neitt af þessu í þessum hefðbundnu meginstraumsruslmiðlum eins og ég kalla þá.

Fólk ætti að velta fyrir sér hvers vegna svo sé, því þetta eru grafalvarleg mál sem koma okkur öllum við!

Hinsvegar er af nógu er að taka í erlendum og óháðum miðlum:

Hvað mun gerast þegar búið verður að uppræta landbúnað um allan heim, mun loftslagið þá verða komið "í gott lag"?

Að sjálfsögðu ekki, enda eru loftslagsmálin eitt stærsta peningaþvottasvindl sögunnar, eins og kom fram í umfjöllun minni um heimsmarkmið SÞ, sjá heimsmarkmið 13.

Samviskuspurning til gæludýraeigenda

Sért þú gæludýraeigandi, yrðirðu þá sátt/ur við að dýrið þitt væri tekið af þér með valdi og aflífað, undir því yfirskini að það væri nauðsynlegt til þess að "bjarga loftslaginu"?

Það þykir mér ólíklegt.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Þarna fara ekki alveg saman hljóð og mynd.

Ég var að hlusta á viðtal við Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda þar sem hún sagði aðspurð að hún sé ekki tengd World Economic Forum (WEF) nema á þann hátt að hún hafi tekið þátt í hliðarfundum þeirra fyrir hönd B Team til þess að kalla eftir meiri ábyrgð WEF í viðskiptum, enda sitji þar ákveðin elíta sem eigi að geta tekið á sig ábyrgð í þeim efnum.

En hver hefur gefið einhverri sjálfskipaðri elítu völd til að ráðskast með hvernig viðskiptum í heiminum er háttað?

B Team séu góðgerðarsamtök í sjálfu sér sem voru stofnuð fyrir 10 árum síðan af fólki sem vill reyna að auka heiðarleika og siðferði í viðskiptum og í rauninni bæta efnahagslífið þannig að það endurspegli betur þarfir alls fólks.

En hvers vegna er milljarðamæringi eins og Sir Richard Branson stofnanda B Team, sem er "Agenda Contributor" hjá WEF, svona umhugað um þarfir okkar allra, og er B Team ekki útibú frá WEF?

Halla á hliðarfundi í Davos 2020

Þarna var hún meðal annars að ræða um sjálfbærni, mikilvægi kynjajafnréttis, að efla þyrfti konur og fleira í þeim dúr.

Ég hefði viljað sjá í viðtalinu spurningar til hennar um Festu, sem eru miðstöð um sjálfbærni, sem gengur út á innleiðingu þessara 17 heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (SÞ), og hvers vegna hún sé að vinna eftir þeim í störfum sínum fyrir B Team.

Halla var þátttakandi í janúarráðstefnu Festu árið 2021, þar sem gestir eins og t.d. Nicolo Schwab (dóttir Klaus Schwab stofnanda WEF) framkvæmdastjóri Nature Based Solutions hjá WEF, og John McArthur forstjóri miðstöðvar um sjálfbæra þróun hjá Brookings stofnuninni mættu.

Yf­ir­skrift hennar var The Great Re­set eða Nýtt upp­haf í anda áherslna hjá leið­andi stofn­un­um eins og Al­þjóða­efna­hags­ráðs­ins (e. World Economic For­um) og B Team sem eru leið­andi í þeim umbreyt­ing­um sem þurfa að verða á við­skipta- og stjórn­ar­hátt­um á heimsvísu.

Ég skrifaði blogg í ársbyrjun 2023 um þessi heimsmarkmið, þar sem ég fjallaði líka um þessa ráðstefnu. Síðar skoðaði ég hvað býr að baki fjórða heimsmarkmiðinu.

Viðtöl við og greinar um Höllu

Mér datt í hug að forvitnast meira um Höllu á netinu, ekki á hinu ritskoðaða Google, heldur leitarvél sem ég fann um daginn, Freespoke.com.

Ég setti inn nokkrar athugasemdir fyrir neðan hverja niðurstöðu.

1. I’ve just returned from Dubai, where the UN Climate Change Conference, COP28, is entering its final, tense moments. At present, the COP28 draft text remains insufficient. Those who are blocking a phase-out of fossil fuels are failing people and the planet.

2. These days, Iceland enjoys economic and social progress like few others. The World Economic Forum has ranked Iceland atop its Global Gender Gap Index for 14 years running. We’ve earned our reputation as the best place in the world to be a woman. And yet.

Heimsmarkmið 5. Jafnrétti kynjanna – Að ná kynjajafnrétti og styrkja allar stúlkur og konur. Pólitískt, efnahagslegt og félagslegt jafnrétti kvenna muna koma öllum jarðarbúum til góða.

Hið rétta er: Útrýma á kristni, jaðarsetja gagnkynhneigð, hampa feminisma, og innleiða LGBTQ stefnuna allsstaðar, og það erum við heldur betur að sjá núna, bæði hér á landi og annars staðar.

3. Leaders are awake to the interconnected crises of climate breakdown, nature loss and inequality. Backlash and intransigence abound, driven primarily by moneyed interests and those who cling to the old power playbook, but the reality of the challenges we face has fully sunk in. Responsible business leaders recognize the need to act boldly and collectively on behalf of the well-being of people and the planet. We must solve these crises together, or we will fail to solve each and every one of them.

Heimsmarkmið 13. Grípa þarf til brýnna aðgerða til að berjast gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. Loftslagsbreytingar eru raunveruleg og óneitanlega ógn við alla siðmenningu okkar.

Hið rétta er: Þetta er eintómur og glórulaus hræðsluáróður alveg á pari við það sem við upplifðum í Covid, þegar mannkynið var gert sturlað af hræðslu við einhverja ósýnilega veiru.

Og ríkisstjórnin er búin að taka lán upp á 111 milljarða á 3.5% vöxtum til að “forða hamfarahlýnun”! Hvert fara allir þessir peningar í raun?

4. So to be honest, I think business leaders, as well as global government leaders, and citizens alike, are all sort of overwhelmed by this moment on the back of COVID. We’re now at war. We’re facing the sustainability, climate and nature crises. And we’re also facing unsustainable levels of inequality and division and polarizations in our societies. So none of us are doing enough is the short answer.

Stórfrétt! Þýska ríkisstjórnin viðurkennir núna að það var aldrei neinn raunverulegur heimsfaraldur í gangi!

Þarna eru gamalkunnir frasar úr heimsmarkmiðunum, eins og sustainability, unsustainable, crises, climate, inequality og division.

Thunderbird Presents: A Fireside Chat with Halla Tomasdottir on Business Leadership for the SDGs (heimsmarkmiðin). Vægast sagt fróðlegt vídeó!

Viljum við fulltrúa WEF og Davos klíkunnar á Bessastaði?

Innleiðingu heimsmarkmiða SÞ má sjá út um allt hér á landi, í fyrirtækjum, stofnunum, kirkjum, skólum, og jafnvel á Krakka-RÚV, og annar forsetaframbjóðandi, Katrín Jakobsdóttir sagði í forsætisráðherratíð sinni í fyrra að hraða þyrfti þessari innleiðingu.

Ég efa það ekki að Halla brenni fyrir hagsmunum íslensku þjóðarinnar, en þykir henni innleiðing heimsmarkmiðanna þjóna best hagsmunum okkar?

Tengingar hennar við SÞ, WEF (sem voru frekar óljósar í svörum hennar) og jafnvel aðrar ókjörnar erlendar alþjóðastofnanir og milljarðamæringa sem eru að vinna að "nýju upphafi" (The Great Reset) og koma á einni alheimsstjórn, eru stórt hættumerki í mínum huga.

Ég hef það á tilfinningunni að hún sé ekki alveg heiðarleg við þjóðina í baráttunni um forsetaembættið.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Stórfrétt! Þýska ríkisstjórnin viðurkennir núna að það var aldrei neinn raunverulegur heimsfaraldur í gangi!

The NazisÞýsk heilbrigðisyfirvöld hafa orðið samkvæmt lögum um upplýsingafrelsi að láta af hendi opinber gögn sem sýna skelfilegt eðli og áhrif aðgerðanna sem 190 þjóðir voru beittar frá og með 11. mars 2020.

Flestar óháðar rannsóknir sem gerðar hafa verið um þessi mál hafa orðið fyrir ritskoðunum og hvergi fengist birtar í meginstraumsfjölmiðlum.

Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að skýrsla þýska heilbrigðisráðuneytisins er í samræmi við, og staðfestir niðurstöður óháðra og sjálfstæðra rannsókna um innilokanirnar, grímuskylduna, og þessi mRNA tilraunabóluefni.

Stóra fréttin er að nú hafa þýsk stjórnvöld neyðst til að viðurkenna að þessir svokölluðu "samsæriskenningasmiðir" höfðu rétt fyrir sér allan tímann um þennan svokallaða "heimsfaraldur"!

Hvenær ætla íslenskir meginstraumsfjölmiðlar að fjalla um þetta? Svarið er, aldrei.

Ég reikna ekki heldur með að þýskir fjölmiðlar munu tjá sig um þetta, enda eru allir þessir fjölmiðlar gjörspilltir og birta bara "leyfilegar fréttir".

Flensan hvarf á einhvern dularfullan hátt árið 2020

0719cÁ sama tíma var heimsbyggðin gerð tryllt úr hræðslu við ósýnilega veiru, en samkvæmt þessum þýsku gögnum var í raun aldrei neinn heimsfaraldur, heldur vel skipulögð hernaðaraðgerð til að heilaþvo fólk nógu mikið til að þiggja tilraunabóluefni sem hafa haft hörmulegar afleiðingar fyrir marga, milljónir hafa látist, og enn fleiri orðið fyrir óbætanlegum skaða vegna þeirra.

Aðgerðir stjórnvalda um allan heim voru samræmdar, allt frá jóla- og páskakúlunum hans Víðis, til grímuskyldunnar og sprautanna, en við hér á Íslandi vorum þó sem betur fer aldrei neydd til að loka okkur inni.

Þótt allt of seint sé, þá er fólk um allan heim sem betur fer farið að sjá í gegnum allar blekkingarnar sem við vorum beitt, og færri og færri þiggja örvunarsprauturnar.

Samt eru íslenskir læknar og heilbrigðisyfirvöld enn að hvetja fólk í þessar sprautur, og eru að hræða fólk með fréttum um einhverja sjúkdóma eins og kíghósta og hettusótt, og hvetja fólk í enn einar sprauturnar.

Verst er að verið er að höfða til barnshafandi kvenna og foreldra ungra barna.

Ég held að Kári Stefánsson hafi aldrei komist neðar í lágkúrunni sinni en þarna:

Ég held það væri afskaplega skynsamlegt af foreldrum, af öllum foreldrum, að láta bólusetja börnin sín. Ef þeim þykir vænt um þau, ef þau vilja verja þau af miklum áföllum út af sjúkdómum, þá held ég að það væri afskaplega skynsamlegt að fara með barnið sitt og láta bólusetja það.

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir bloggari svaraði þessu hressilega hér.

En aftur að Þýskalandi

BlekkinginÞjóðverjar voru beittir hvað hrottalegustu aðgerðunum í Evrópu í þessum svokallaða "heimsfaraldri", en eru sem betur fer farnir að rísa upp og krefjast ábyrgðar þeirra sem að þessu stóðu.

(Hvenær ætlum við Íslendingar líka að gera það?)

Paul Schreyer og tímaritið Multipolar settu af stað beiðni um upplýsingar samkvæmt ofangreindum lögum, og hófu svo lögsókn gegn þýsku ríkisstjórninni þegar hún reyndi að beita öllum brögðum í bókinni til þess að geta geymt leyniskjölin áfram á bak við lás og slá.

Steven Homburg segir að niðurstöðurnar séu sláandi, og tákni algjöra réttlætingu fyrir alla þá sem þorðu að efast um innilokanirnar, grímurnar, og bólusetningarskylduna.

Allar 2.000 blaðsíður leyniskjala ríkisstjórnarinnar sýna að "samsæriskenningasmiðirnir" höfðu rétt fyrir sér í nánast öllu, og að þessi svokallaði "faraldur" var ekkert nema djöfullegur glæpur.

Japanskir vísindamenn segja að tengja megi aukaverkanir vegna Covid bóluefnanna við 201 tegund sjúkdóma, og einhvern veginn kemur það manni ekkert á óvart.

Það var aldrei neinn alvöru faraldur í gangi!

No pandemic

Þetta er lauslega byggt á grein sem má finna hér, þar er líka fróðlegt vídeó með upplýsingum úr þessum leyniskjölum, og sorglegar stiklur af ungum fótboltamönnum sem hrynja niður eins og flugur í miðjum leik.

Hversu lengi ætla Íslendingar að vera í afneitun?

Við erum mörg hér á landi höfum bæði bloggað og/eða skrifað greinar sem hafa verið birtar í fjölmiðlum, síðan "heimsfaraldrinum" var skellt á heimsbyggðina, fyrir utan allar Facebook færslurnar sem miðillinn ritskoðar, stundum bannar, og sendir jafnvel fólk í "fangelsi" ef það kemst óþægilega nærri sannleikanum.

0107bVið vorum úthrópuð sem snargeðveik, álhattar, bólusetningarandstæðingar, ömmumorðingjar og þar fram eftir götunum. Fólki var stillt upp hverju á móti öðru svo því miður sundruðust fjölskyldur og vinslit urðu víða.

Þetta nákvæmlega sama átti sér stað um allan heim, lúmskur og lævís hræðsluáróður og heilaþvottur dundi yfir okkur nánast allan sólarhringinn sem tókst nánast fullkomlega, með þeim afleiðingum að stærstur hluti mannkynsins tók "lausninni" fagnandi þegar sprauturnar komu - fyrir utan þá sem voru neyddir í þær.

Það er sorglegt að sjá hversu margir kjósa að þegja ennþá þótt þeir séu búnir að sjá sannleikann um þennan "heimsfaraldur", kannski af ótta við nærumhverfið sitt.

Eldri skrif mín frá árinu 2021-2023

Ég hef margoft skrifað áður um þetta allt, og allt sem ég hef sagt hefur staðist.

Allar "samsæriskenningarnar" eru löngu orðnar að samsærisstaðreyndum.

En hvernig gat þetta gerst?

Því er fljótsvarað, "heimsfaraldurinn" var bara forsmekkurinn að því sem koma skal, þetta er allt falið í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Pössum okkur að velja ekki forseta sem vinnur fyrir þessi illu öfl!

 0220d0126g

 

 


15 mínútna borgir í Kanada - tilraun hafin á eyjaklasa og QR kóða og skílríkja krafist ef yfirgefa þarf eyjarnar!

Hvað eru 15 mínútna borgir? Eru þær ekki bara borgarskipulag sem hannað er til að gera líf okkar allra auðveldara?

Svo er okkur talin trú um, en sannleikurinn er sá að þær eiga að hneppa okkur í fjötra undir því yfirskini að verið sé að bjarga loftslaginu.

Sjá ítarlega umfjöllun mína um þessar 15 mínútna fangelsisborgir hér.

Í Kanada ræður ríkjum Justin Trudeau, sem hefur beitt þjóð sína ólýsanlegri grimmd og harðstjórn undanfarin ár, enda er hann "Young Global Leader" hjá WEF. Hann er í miklu vinfengi við Katrínu Jakobsdóttur núverandi forsetaframbjóðanda, sem bauð honum á samfund forsætisráðherra Norðurlandanna síðastliðið sumar.

Îles-de-la-Madeleine

Eyjaklasinn Îles-de-la-Madeleine í St. Lawrence flóa samanstendur af 12 eyjum með u.þ.b. 12.000 íbúum, einmitt mjög þægileg stærðareining til að setja upp 15 mínútna borgir.

15 mínútna borgirÞar vill bæjarstjórnin samþykkja nýja ráðstöfun fyrir borgara sína, nefnilega lögboðna auðkenningu fólks til að fá að yfirgefa sveitarfélag sitt.

Að auki leggur hún til að allir sem fari frá eyjunum verði rukkaðir um $30 plús skatt.

Íbúar eru eðlilega brjálaðir yfir þessu, og segja það fáránlegt að þurfa að sanna deili á sér hvenær sem þeir vilji fara að heiman og ferðast til annarra staða innan síns eigin lands.

Antonin Valiquette borgarstjóri blæs á þetta og segir að krafa um QR kóða og ökuskírteini sé lögleg, og að hans mesta áhyggjuefni nú sé upplýsingaóreiða (disinformation).

Að berjast gegn upplýsingaóreiðu meðal borgaranna sem ég og meðlimir bæjarstjórnar starfa fyrir er það sem skiptir máli, segir hann.

Sjá ítarlegri umfjöllun hér, og hér.

Hinir heilögu handhafar "sannleikans"

Ekki veit ég hvort "Fact Checkers" (staðreyndaskoðendur) voru til fyrir árið 2020, en allavegana hafa þeir lifað góðu lífi síðan þá, sem sjá má á hversu mikið mörg okkar hafa orðið fyrir barðinu á þeim á Facebook síðan þá.

Ég sjálf er t.d. í eilífu "skuggabanni" þar þegar ég pósta bloggunum mínum þarna, þau fá nánast enga dreifingu, enda "óþægilegt og óæskilegt efni".

Þegar ég var að leita mér upplýsinga um þetta mál, þá kom auðvitað upp "Fact Check" síða sem sagði að þetta væri bara bull og vitleysa, og að þetta 15 mínútna plan sé aðeins til að skapa betri tengingu við restina af borginni, og annað í þeim dúr.

Smá leit á vefnum sýndi að viðmælandinn sem sagði þetta, Sandeep Agrawal er á bólakafi í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (SÞ), svo nú hefur þessi "staðreynd" verið staðreyndaskoðuð, og staðfest sem haugalygi.

Það að "skapa betri tengingu við restina af borginni" er dæmigert fyrir heimsmarkmiðin, þau segja eitt, en meina akkúrat hið gagnstæða.

Ítarefni og skylt efni:

Eruð þið búin að lesa bloggið mitt þar sem ég kafa ofan í heimsmarkmiðin? Ef ekki, lesið það endilega, því þetta er allt falið í þeim!

 

 

 

 


Kafað ofan í 17 heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

GrimmdÉg hef fengið fyrirspurnir um efni sem ég fjallaði um í þættinum Menntaspjallið þann 24. apríl s.l., en þar fór ég yfir heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Þar kom margt fram sem fólk hefur almennt enga hugmynd um, enda er aldrei fjallað um þetta í þessum meginstraumsfjölmiðlum.

Mér datt því í hug að birta hér handritið sem ég skrifaði fyrir þáttinn.

Þetta er langur lestur, en hann veitir innsýn inn í skelfilega framtíð sem okkur bíður ef við spornum ekki gegn því sem verið er að gera mannkyninu núna.

Þetta er svo hægt og rólega að gerast bak við tjöldin, að við tökum varla eftir því, hvað þá að við mótmælum.

Sameinuðu þjóðirnar

Sameinuðu þjóðirnar settu það markmið árið 2015 að "umbreyta heiminum okkar" og "endurmynda" hann að eigin hugmyndafræði, undir yfirskini sjálfbærrar þróunar.

Öll 193 aðildarríkin tóku þátt í þessu verkefni sem í raun er gegn mannkyninu, á meðan upphafsmennirnir voru að skipuleggja og undirbúa eina alheimsstjórn á bak við tjöldin.

Það eru ekki bara Sameinuðu þjóðirnar sem standa að baki þessu, heldur eru það líka t.d. The World Economic Forum (WEF), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), og ýmsir milljarðamæringar sem telja sig yfir okkur hin hafna.

Þetta kom í kjölfarið á því sem kallað var Agenda 21, sem hófst árið 1992, en þessi vel skipulagða yfirtaka hófst löngu áður. Í gegnum tíðina hafa flestir verið í þeirri tálsýn að þessi svokölluðu "sjálfbæru markmið" væru til að bæta hag mannkynsins en nú eru augu fólks sem betur fer farin að opnast, og sjá hvað þau raunverulega eru.

Og ég er alveg klár á því að flestir sem eru að vinna við að innleiða þau geri það í bestu trú.

Þessi 17 heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna líta afskaplega vel út á yfirborðinu, það á að útrýma fátækt og hungri, tryggja menntun fyrir alla, stuðla að jafnrétti kynjanna, koma á jöfnuði, friði og réttlæti í heiminum, að það eigi nánast að skapa himnaríki á jörð fyrir alla.

Svo það er ekkert skrítið að fólk skuli hrífast af þessu.

En sannleikurinn er samt sem áður sá að hvert einasta markmið þeirra þýðir akkúrat hið gagnstæða, og endatakmarkið er að hneppa mannkynið í þrælahald í gegnum miðstýrt stjórnvald, og ná alræðisvaldi yfir heiminum, eins og ég sagði hér að ofan.

Ég skrifaði blogg um heimsmarkmiðin fyrir rúmu ári síðan sem finna má á Moggablogginu undir heitinu Hvað býr að baki Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og ég hvet fólk eindregið til að lesa það og skoða allar heimildirnar sem þar eru.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að fyrir sumum hljómar þetta eins og einhver brjálæðisleg samsæriskenning, en fólk þarf bara að leggjast í rannsóknarvinnu sjálft ef það á erfitt með að trúa þessu.

Bara ekki á hinu ritskoðaða Google, heldur öðrum óháðum leitarvélum.

Svona hljóma heimsmarkmiðin 17:

1. Engin fátækt
2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir alla
5. Jafnrétti kynjanna
6. Hreint vatn og hreinlætisaðstaða
7. Sjálfbær orka
8. Góð atvinna og hagvöxtur
9. Nýsköpun og uppbygging
10. Aukinn jöfnuður
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
12. Ábyrg neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
14. Líf í vatni
15. Líf á landi
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

En hvað þýða þessi heimsmarkmið í raun? Ég ætla að lesa þau upp aftur, og útskýra hvað raunverulega býr að baki hverju og einu þeirra, og síðan ætlum við að spjalla um þau hér.

Þessi yfirferð er þó langt því frá að vera tæmandi, heldur bara toppurinn á ísjakanum, enda undirmarkmiðin ótalmörg. Ég fjalla mismunandi mikið um þau, mest um þau sem ég hef kynnt mér sérstaklega vel, og sum hreinlega skarast, eins og orku- og loftslagsmálin.

1. Engin fátækt – Saman getum við fætt hungraða, útrýmt sjúkdómum, og gefið öllum í heiminum tækifæri til að dafna og lifa góðu og ríkulegu lífi.

Setja á alla á bætur og matarmiða frá ríkinu, og húsnæðisstyrki og bitlinga sem gera þá að hlýðnum þrælum þessara alheimsstjórnvalda. Aldrei á leyfa fólki þann sveigjanleika að bjarga sér sjálft.

Í staðinn á að kenna fólkinu að verða hlýðnir þrælar sem fá í hverjum mánuði "peninga" fyrir grunnþörfum eins og mat og lyfjum. Þessir peningar munu allir vera rafrænir, enda verður búið að útrýma peningaseðlum. Það á að innleiða CBDC – Central Bank Digital Currency, eina alheims rafræna mynt, og þannig verður hægt að stýra neyslu okkar með ströngu eftirliti.

Sjúkdómum mun væntanlega vera "útrýmt" með bólusetningum.

2. Ekkert hungur – Endum hungur, tryggjum fæðuöryggi og betri næringu og byggjum upp sjálfbæran landbúnað.

Núna er verið að reyna að gera bændum um allan heim það nánast ókleift að reka búskap sinn, eins og sjá má í bændauppreisnum víða í heiminum.

Í staðinn eiga að taka við erfðabreyttur matur, nota á einkaleyfisskyld og erfðabreytt fræ frá fyrirtækinu Monsanto og auka á notkun hættulegra illgresiseyða undir falskri fullyrðingu um "aukna framleiðsla" og betri mataruppskeru.

Nota á erfðabreyttar plöntur sem fólk hefur ekki hugmynd um hvaða langtíma afleiðingar geta haft á það vegna erfðamengunar eða erfðatilrauna milli tegunda sem framkvæmdar eru í viðkvæmu vistkerfinu.

Þar að auki er verið að þróa gervikjöt og gervifisk, og verið er að venja okkur við að borða pöddur.

Nýjustu fréttir frá Skotlandi eru þær að bændur sem reka hænsnabú, og ekki bara þeir, heldur fólk sem á jafnvel bara eina hænu muni þurfa að greiða 5.000 punda sekt ef það skrái ekki fjölda og tegundir fugla sinna fyrir einhverja ákveðna dagsetningu í haust.

Þetta er gert undir því yfirskyni að þetta sé gert til að berjast gegn fuglaflensu.

Svona segjast þeir ætla að enda hungur!

3. Heilsa og vellíðan – Tryggjum heilbrigt líf og stuðlum að vellíðan fyrir alla á öllum aldri.

Það á að gera með erfðabreyttu og næringarsnauðu ruslfæði sem fyllir allar hillur verslana núna og þvinguðum bólusetningum.

Og það er verið að reyna að keyra endalausar þvingaðar bólusetningar í gegn í yfirstandandi valdaráni WHO á heilbrigðis- og farsóttarmálum heimsins.

Bólusetningar koma við sögu í einhverjum undirmarkmiðum 14 af þessum 17 heimsmarkmiðum, og við skulum ekki gleyma grænu pössunum eða bóluefnapössunum sem munu halda utanum allt sem búið er sprauta í okkur, sem og allar heilsufarsupplýsingar um okkur.

Banna á náttúrulyf og allt sem kemur úr náttúrunni og hefur verið notað í aldanna rás til að græða og lækna. Allt á að koma frá lyfjarisunum.

4. Menntun fyrir alla – Tryggja sanngjarna gæðamenntun án aðgreiningar og stuðla að símenntunartækifærum fyrir alla.

En hvað sjáum við í dag? Sífelldan heilaþvott, menntun hefur stórhrakað, verið er að framleiða hlýðna starfsmenn frekar en sjálfstæða hugsuði, og skelfileg innræting á sér stað hjá börnum undir formerkjum kynfræðslu.

Ég tók LGBTQ innrætinguna sérstaklega fyrir í bloggi undir heitinu Út á hvað gengur fjórða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Þetta námsefni er viðbjóðslegra en orð fá lýst, og eru margir íslenskir foreldrar mjög reiðir yfir þessari innrætingu í skólunum, og ég veit um foreldra sem mega ekki fá að vita hvað verið er að kenna börnunum þeirra.

Það er meðal annars verið að rugla börnin í ríminu með því að að kynin séu mörg og allskonar, að þau séu ekkert endilega það kyn sem þau fæddust í, og geti alveg ákveðið hvaða kyn þau vilji vera.

En hvernig getur barn sem getur ekki ákveðið hvort það vilji fara í bláu eða grænu peysunni í leikskólann í dag, og trúir enn á jólasveininn ákveðið eitthvað slíkt, og hvers vegna er verið að koma þessum hugmyndum inn í kollinn á þeim?

Hvers vegna mega saklaus börn ekki vera áfram börn?

Sannleikurinn er sá að þetta er allt með ráðum gert, og falið vel inni í þessum heimsmarkmiðum.

Smá dæmi um kynfræðsluna:

  • Börn á aldrinum 0-4 ára skulu læra um sjálfsfróun og þróa með sér áhuga á eigin líkama og annarra.
  • Börn á aldrinum 4 til 6 ára skulu læra um sjálfsfróun og þurfa hvatningu til að tjá kynferðislegar þarfir sínar og langanir.
  • Börn á aldrinum 6 til 9 ára skulu fá fræðslu um kynlíf, klám á netinu, leynilega ást og sjálfsörvun.
  • Börn á aldrinum 9 til 12 ára ættu að upplifa sína fyrstu kynlífsreynslu og læra að nota klám á netinu.

Langar mig sérstaklega til að nefna bókina Kyn, kynlíf og allt hitt sem er samin af kanadísku háni að nafni Cory Silverberg, og bók eftir Sólborgu Guðbrandsdóttur sem mig minnir að heiti Fávitar, hvort tveggja vægast sagt ógeðfellt kynfræðsluefni, með mjög grafísku myndefni.

Svo má líka nefna allt kynfræðsluefnið sem kemur frá Reykjavíkurborg.

Ef við skoðum almennu hegningarlögin, þá segir 209. greinin að bannað sé með lostugu athæfi að særa blygðunarkennd annarra, og það getur varðað allt að 4 ára fangelsi.

Þetta kennsluefni hefur svo sannarlega sært blygðunarkennd margra foreldra og barna.

210. greinin um klám á prenti varðar fangelsi allt að 6 mánuðum, og ef um börn er að ræða, allt að 2 árum.

Ég þori varla að segja þetta hérna, en WHO og SÞ eru að kyn- og kynlífsvæða lítil börn um allan heim til normalísera barnagirnd og barnaníð, og ég vil benda fólki sérstaklega á þátt sem sjónvarpsstöðin Kla.tv gerði undir heitinu WHO og SÞ – Burt með perraputtana frá börnum.

Slóðin þangað er https://www.kla.tv/26686

(Innskot mitt, þann 30. apríl s.l. komu tvær mæður í Menntaspjallið og ræddu um baráttu sína við skólakerfið gegn þessari "kynfræðslu", sjá umfjöllun um það hér.)

5. Jafnrétti kynjanna – Að ná kynjajafnrétti og styrkja allar stúlkur og konur. Pólitískt, efnahagslegt og félagslegt jafnrétti kvenna muna koma öllum jarðarbúum til góða.

Útrýma á kristni, jaðarsetja gagnkynhneigð, eyðileggja fjölskylduna, hampa feminisma, og innleiða LGBTQ stefnuna allsstaðar, og það erum við heldur betur að sjá núna, bæði hér á landi og annars staðar.

Stúlkum er kennt að missa alla tilfinningu fyrir sjálfsmynd og kyni, og í raun drengjum líka, og eins og fram kom hér að ofan, þá er verið að telja þeim trú að þau hafi kannski ekki fæðst í "réttum líkama" eða kyni.

Þetta snýst ekkert um jafnrétti, heldur er hér verið er verið að grafa undan fjölskyldunni, að stjórna fólki með því að að egna því upp hverju á móti öðru.

Fólk er meira að segja farið að rífast um hvað kona er, eins og það sé eitthvað vafamál, og meira að segja hefur Willum heilbrigðisráðherra kallað okkur konurnar orðskrípinu leghafi!

Fólk er sakað um að vera með hatursorðræðu ef það dirfist að hafa aðrar skoðanir en þær "einu leyfilegu" um alls konar málefni sem eru í umræðunni hverju sinni, og sagt vera öfga eitthvað, rasisti, fasisti, nasisti, á móti samkynheigðu og/eða transfólki, svo eitthvað sé nefnt.

Og gleymum ekki hatrinu gegn fólkinu sem reyndi að vara við þessum "bóluefnum" á sínum tíma. Svona löguðu er öllu stjórnað með vísindalegum og margreyndum heilaþvotti og áróðri.

6. Hreint vatn og hreinlætisaðstaða – Tryggja aðgengi og sjálfbæra stjórnun á vatni og hreinlætisaðstöðu fyrir alla.

Þetta markmið snertir okkur hér á landi ekki mikið enn sem komið er, en markmiðið er að leyfa öflugum fyrirtækjum að ná yfirráðum yfir vatnsbirgðum heimsins og rukka einokunarverð til að tryggja skömmtun á vatni þ.a. þú getur til dæmis ekki farið í sturtu nema á ákveðnum tímum.

Og við erum þegar farin að selja vatnsauðlindir okkar úr landi, t.d. hafa feðgarnir Jón Ólafsson og Kristján sonur hans selt stóran hlut í vatnsfyrirtækinu Icelandic Water Holdings til hóps erlendra fjárfesta, Anheuser – Busch áttu þegar 20% í fyrirtækinu, og mér sýnast þessir erlendu fjárfestar vera Blackrock.

Sjáiði hvað þetta er hættuleg þróun?

7. Sjálfbær orka – Tryggja á aðgengi að hagkvæmri, áreiðanlegri, sjálfbærri og nútímalegri orku fyrir alla. Það er nauðsynlegt að innleiða þessar nýju orkulausnir eins hratt og mögulegt er til að vinna gegn loftslagsbreytingum, sem er ein stærsta ógnunin við okkar eigin afkomu.

Loftslagsmálin og orkuskiptin eru ein stærsta svikamyllan og peningaþvottavélin í þessu. Til að "bjarga lofslaginu" á að banna allt jarðefnaeldsneyti og innleiða "græna orku".

Gleymum því ekki að hér á landi hefur VG staðið gegn nýtingu vatnsafls okkar til framleiðslu á grænni orku.

Sveittir og peningagráðugir aðilar bíða þess að geta reist hér vindmyllugarða, sem eru allt annað en grænir og umhverfisvænir. Mörg vindmyllufyrirtæki eru hvert af öðru að fara á hausinn þessa dagana.

Svo þegar allir verða komnir á rafmagnsbíla, og nota tæki knúin af rafmagni því búið verður að banna allt sem knúið er með jarðefnaeldsneyti, þá er lítið mál að slökkva á öllu rafmagni.

Þetta var ég að lesa áðan eftir bandarískan flugvélaverkfræðing: THERE IS NOTHING GREEN ABOUT GREEN ENERGY except the DIRTY MONEY flowing into corrupt pockets.

8. Góð atvinna og hagvöxtur – Stuðla að viðvarandi og sjálfbærum hagvexti, og tryggja öllum mannsæmandi störf. Ef við stuðlum að atvinnusköpun með auknu aðgengi að banka- og fjármálaþjónustu getum við tryggt að allir fái ávinning af frumkvöðlastarfi og nýsköpun.

Ef við horfum á ástandið í heiminum í dag, þá er alls staðar verið að þrengja að okkur, bændur þvingaðir til að bregða búi, sett eru af stað staðgengilsstríð eins og í Úkraníu, milljarðar dollara streyma til þeirra í vonlausan stríðsrekstur, og vextir hækka og verðbólga eykst.

Og hvert fara allir þessir peningar í raun? Mikið til hergagnaframleiðenda og annarra að sjálfsögðu, og svo vænar summur í spillta vasa.

Keyra á smáfyrirtæki í þrot (eins og við sáum í Covid), eyðileggja á frjálsa markaðshagkerfið og neita þeim fyrirtækjum um starfsleyfi sem hlýða ekki fyrirmælum stjórnvalda.

Og þetta "aukna aðgengi" að banka- og fjármálaþjónustu sjáum við bersýnilega í útrýmingu peningaseðla og njósnastarfsemi um hvað við ætlum að fara að gera við peningana okkar, eins og við komum einmitt inná í síðasta þætti.

Mesta tilfærsla auðs í sögunni á sér stað núna og efnahagur heimsins er að hrynja.

Hér á landi erum við núna að súpa seyðið af peningaprentuninni á Covid tímabilinu, vextir eru í hæstu hæðum hér á landi, lánin hafa hækkað gríðarlega, og ungu fólki er gert nánast ókleift að eignast eigið húsnæði.

Endatakmarkið er að afnema eignarrétt okkar á öllum eigum okkar.

9. Nýsköpun, uppbygging og innviðir – Byggja á upp sveigjanlega innviði, efla sjálfbæra iðnvæðingu án aðgreiningar, og efla nýsköpun. Við þurfum að stuðla að nýstárlegri sjálfbærri tækni og tryggja jafnan og almennan aðgang að upplýsinga- og fjármálamörkuðum.

Í bókinni Fjórða iðnbyltingin (The Fourth Industrial Revolution) eftir Klaus Schwab hjá WEF kemur meðal annars fram áætlun um samruna tækni sem þurrkar út mörkin milli líkamlegra, stafrænna og líffræðilegra sviða, eða að bræða saman menn og vélar. Og þarna sjáum við gervigreindina sem verið er að innleiða á fullu allsstaðar.

Það á semsagt að gera okkur “transhuman”.

Möguleikar milljarða manna tengdum með farsímum með áður óþekktu vinnsluafli, geymslurými og aðgangi að þekkingu eru ótakmarkaðir segir hann.

SMARTEftirlit, mælingar og stjórnun starfsmanna, lesist - þrælanna með SMART eða “snjall” kerfum.

T.d. samþykktu Bandaríkjamenn 1,2 trilljóna dollara innviðareikning til að byggja upp SMART kerfi, og sama er að eiga sér stað um allan heim.

Þetta er pakkað sem "þægindi, öryggi og sjálfbærni" er það eina sem er "sjálfbært", eru milljarðamæringarnir á bak við þessi kerfi þar sem hver og einn tekur sinn skerf af kökunni.

Hafa Íslendingar einhverja hugmynd um fyrir hvað SMART – eða íslenska forskeytið SNJALL stendur?

Sjáum sem dæmi þessa snjallmæla sem búið er að setja upp víða hér á landi, þetta hefur neytt fólk erlendis til að t.d. þvo þvottinn sinn, elda, eða fara í sturtu að nóttu til þegar rafmagnið er ódýrast.

Til hvers er verið að skipta út orkumælunum hér sem eru jafnvel í fullkomnu lagi? Ef mér yrði boðið að setja upp snjallmæli fyrir mitt heimili, þá myndi ég segja nei takk.

Allt sem er eitthvað SNJALL, eru njósnatæki sem senda gögn um okkur í einhverja gagnabanka, meira að segja gemsarnir sem við öll erum með, sjónvörpin og fleira. Ég sjálf reyni að forðast þessa tækni eins og ég mögulega get, og myndi t.d. aldrei fá mér snjallúr.

Þetta þýðir einfaldlega meira eftirlit, njósnir og stjórn á okkur, sem verðum orðin "transhuman", eins og Klaus Schwab ætlar að gera okkur.

10. Aukinn jöfnuður – Draga úr ójöfnuði innan og á milli landa. Of mikið af auðæfum heimsins eru í eigu mjög fámenns hóps. Til að þjóðir geti blómstrað þarf jafnrétti og velmegun að standa öllum til boða – óháð kyni, kynþætti, trúarskoðunum eða efnahag.

1212aÞetta er einn stærsti brandarinn, auðvitað stendur ekkert til að draga úr ójöfnuði, þeir sem eiga auðæfin ætla að sjálfsögðu ekkert að gefa þau frá sér eða deila með okkur, heldur auka þau. Ef þeim væri einhver alvara með þessu, þá væru þeir löngu byrjaðir á því.

Á meðan litlum og meðalstórum fyrirtækjum var lokað eða gert erfitt fyrir í Covid, soguðu stórfyrirtæki eins og Amazon til sín óhemju auðæfum, og á þeim tíma urðu til margir milljarðamæringar.

Og þetta var bara forsmekkurinn að því sem koma skal.

11. Sjálfbærar borgir og samfélög – Að gera borgir og bæjarfélög örugg, sveigjanleg og sjálfbær.

Það ætla þeir sér með þessum 15 mínútna fangelsisborgum sem byrjað er að skipuleggja víða, meira að segja hér á landi. Verið er að skipta borgum niður í lítil svæði þar sem fólk á að geta sinnt sínu daglegu lífi innan svæðisins gangandi eða hjólandi á innan við 15 mínútum.

Strangar reglur munu verða settar um bílferðir og allar bílferðir út úr svæðinu eru vaktaðar með eftirlitsmyndavélum, og fari íbúi oftar á ári en “leyfilegt er” á bíl sínum út úr hverfinu, þá mun hann sæta sektum.

Dæmi um slíka borg er Oxford í Bretlandi, þar sem íbúar eru að berjast hart gegn þessu. Ég mæli eindregið með því að fólk lesi bloggið mitt sem nefnist Hvað eru 15 mínútna borgir? Lausn á “loftslagsvánni” eða meiri fjötrar?

Þetta er í raun bara leið til að loka okkur inni undir gríðarlegu rafrænu eftirliti, undir því yfirskyni að verið sé að bjarga loftslaginu.

12. Ábyrg neysla og framleiðsla - Tryggja á sjálfbært neyslu- og framleiðslumynstur. Plánetan okkar hefur séð okkur fyrir gnægð af náttúruauðlindum en við höfum ekki nýtt þær á ábyrgan hátt og neytum nú langt umfram það sem plánetan okkar getur veitt.

Við getum öll verið sammála um að framleitt er allt of mikið af alls konar óþarfa varningi og sóun er allt of mikil, og þar getum við öll tekið okkur á en ég hef ekki séð marga vöruframleiðendur og seljendur sýna ábyrgð í verki.

Ég sjálf er á póstlistum frá nokkrum innlendum aðilum og fæ endalaus gylliboð um nýjar vörur sem ég "má ekki missa af". Það kemur alveg fyrir að ég nýti mér einhver tilboð, en aðeins ef það er eitthvað sem mig vantar.

Við sjáum í hvaða farveg sorpmálin eru komin hér á landi. Þetta er enn ein leiðin til að fá okkur til að hlýða -  og borga meira, og rotturnar lifa núna kóngalífi á lífræna úrganginum.

Byrjað er á, og/eða fyrirhugað er að leggja á refsiskatta á neyslu jarðefnaeldsneytis og rafmagns, fyrir utan kolefnisskattinn.

Og við hér á Íslandi, sem erum með hreinustu orku í heimi greiðum stjarnfræðilegar upphæðir til þessara svokölluðu loftslagsmála, sem eru bara ein stór peningaþvottavél!

Þetta mun að sjálfsögðu leiða til versnandi lífskjara okkar, en ekki "engrar fátæktar" sem þeir boða í fyrsta heimsmarkmiðinu, enda er það tilgangurinn.

13. Aðgerðir í loftslagsmálum - Grípa þarf til brýnna aðgerða til að berjast gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. Loftslagsbreytingar eru raunveruleg og óneitanlega ógn við alla siðmenningu okkar.

Áhrifin eru sýnileg og verða skelfileg nema við bregðumst við núna. Með menntun, nýsköpun og "fylgni" við loftslagsskuldbindingar okkar getum við gert nauðsynlegar breytingar til að vernda jörðina. Þessar breytingar munu veita gríðarleg tækifæri til að nútímavæða innviði okkar.

Þá erum við komin að loftslagsmálunum, og þetta tengist markmiði 7 um sjálfbæra orku.

Þetta er eintómur og glórulaus hræðsluáróður alveg á pari við það sem við upplifðum í Covid, þegar mannkynið var gert sturlað af hræðslu við einhverja ósýnilega veiru.

Og ríkisstjórnin er búin að gefa út grænt skuldabréf á 111 milljarða á 3.5% vöxtum til að mæta kostnaði ríkissjóðs vegna umhverfismála á næstu árum! Hvert fara allir þessir peningar í raun?

Nú ætla ég að lesa upp stórkostleg upphafsorð António Guterres, framkvæmdastjóra SÞ á blaðamannafundi um loftslagsmál.

Það eru loftslagsbreytingar í gangi núna. Þetta er skelfilegt, og þetta er bara byrjunin!
Tímabili hlýnunar er lokið; tímabil heimssuðunnar (global boiling) er runnið upp.
Það er ekki hægt að anda að sér loftinu.

Gjörsamlega galið!

Yfirlýsingar þessa fólks í gegnum árin eru hver annarri bjánalegri, enda hafa fæstar þessara eilífu hamfarafrétta, ef nokkrar ræst.

Staðreyndin er sú að það á að banna okkur að ferðast, keyra bíla, borða kjöt, neyta mjólkurvara, kaupa "of mikið" af fötum o.s.frv. í nafni þess að verið sé að bjarga loftslaginu.

Og þetta er þegar byrjað, ég sá frétt í gær um að á gamlárskvöld 2024 verður Stokkhólmur fyrsta borg í heiminum til að banna bensín- og dísilbíla í hluta borgarinnar.

Finnið bara viðtal við Patrick Moore meðstofnanda Greenpeace samtakanna, en hann er vistfræðingur að mennt með doktorsgráðu í faginu. Hann segir að þetta sé allt bara haugalygi, og margir aðrir virtir og óháðir sérfræðingar taka í sama streng.

Það fólk er öllu trúanlegra en t.d. Al Gore og Greta Thunberg sem hafa ekki einu sinni neina menntun í þessum málum, en eru bæði búin að auðgast gífurlega á loftslagsáróðri sínum.

14. Líf í vatni - Varðveita og nýta á höf og auðlindir sjávar á sjálfbæran hátt.og til sjálfbærrar þróunar. Höfin þekja 70 prósent af plánetunni okkar og við treystum á þau fyrir mat, orku og vatn. Við verðum að vernda þau, og byrja strax að stjórna og vernda allt sjávarlíf um allan heim á ábyrgan hátt.

Banna á fiskveiðar, þetta sjáum við bersýnilega hér á landi, búið er að þrengja að strandveiðisjómönnum, skerða fiskveiðar um 30% og banna hvalveiðar, og öll þessi bönn munu að sjálfsögðu valda hröðum verðhækkunum á matvælum og matarskorti, eins og raunverulega stefnan er.

Okkur mun í staðin verða boðið upp á erfðabreyttan lax og gervifisk fyrir utan gervikjötið, pöddumatinn og allann óþverrann sem ég nefndi hér ofar.

15. Líf á landi – Vernda á, endurheimta og stuðla að sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, stjórna skógum á sjálfbæran hátt, berjast gegn eyðimerkurmyndun og stöðva og snúa við hnignun lands og stöðva tap á líffræðilegum fjölbreytileika. Það er lykillinn að því að við getum lifað af.

Milljarðamæringurinn Bill Gates er búinn að kaupa upp gríðarleg landsvæði í Bandaríkjunum, og án þess að vita það fyrir víst, þá þykir mér ekkert ólíklegt að svona landauppkaup eigi sér stað í öðrum löndum. Og annar milljarðamæringur, sá breski James Ratcliffe er búinn að kaupa upp að því er ég held ca 1,6% af Íslandi, segir hann það ekki vera til að vernda laxastofninn, eða eitthvað álíka?

Stjórna á öllum landbúnaði í gegnum spillt skrifræðiskerfi, og byrjað er að reyna að þvinga bændur til að hætta búskap sínum eins og ég nefndi hér að ofan.

Raunverulega stefnan er að leggja niður landbúnað og þvinga alla úr dreifbýlinu inn í þessi 15 mínútna fangelsissamfélög í borgum.

16. Friður og réttlæti - Stuðla að friðsamlegum og samfélögum án aðgreiningar fyrir sjálfbæra þróun, veita öllum aðgang að réttlæti og byggja upp árangursríkar og ábyrgar og stofnanir án aðgreiningar á öllum stigum.

Samúð og sterkur "siðferðilegur áttaviti" er nauðsynlegt fyrir hvert lýðræðissamfélag. Við verðum að tryggja að við höfum sterkar stofnanir, "alþjóðlega" réttlætisstaðla og skuldbindingu um frið alls staðar.

En hvað er að gerast, bæði hér á landi og annars staðar? Nánast stjórnlaust flæði fólks, jafnvel frá allt öðrum menningarheimum inn í vestræn lönd, og er það því miður partur af prógramminu. Þetta er gert til að sprengja upp og sundra vestrænni menningu.

Herða á lögregluríkið allsstaðar og það á að setja einhverja íhluti í okkur, og þá detta mér sóttvarnalögin í hug sem við töluðum um síðast, svo hægt verði að hafa algjört eftirlit með okkur.

Ég get alveg lofað ykkur að skuldbinding um frið og réttlæti alls staðar eru bara orðin tóm. Ef einhver vilji væri fyrir hendi, þá væri löngu byrjað á að koma á friði í heiminum, við hljótum öll að sjá það.

17. Samvinna um markmiðin - Það þarf að styrkja leiðir til innleiðingar og endurvakningar alþjóðlegs samstarfs um sjálfbæra þróun. Alþjóðlegar fjárfestingar og stuðningur eru nauðsynleg til að tryggja nýstárlega tækniþróun, sanngjörn viðskipti og markaðsaðgang. Til að byggja upp betri heim þurfum við að vera styðjandi, samúðarfull, frumleg, ástríðufull og umfram allt samvinnuþýð.

Rétta þýðingin á orðinu samúðarfull, er hlýðinn. Orðin samstarf, sjálfbærni, sanngirni og betri heimur er bara blekking og tálsýn.

Þeir munu endalaust framleiða einhverjar "kreppur", þykjast síðan koma til bjargar með lausnir sem muni skapa nýjar atvinnugreinar til að bjarga málunum. Þessar atvinnugreinar eiga þeir sjálfir og græða milljarða á þeim.

Þessi "samvinna" felst í því að afnema fullveldi þjóða, setja hverja þjóð undir kommúníska stjórn undir stjórn einnar allsráðandi heimsstjórnar.

Svo svona eru heimsmarkmið SÞ raunverulega gott fólk, en eins og ég sagði hér í byrjun, þetta er ekki nema toppurinn á ísjakanum.

Ég rakst á texta daginn eftir að við spjölluðum saman síðast, sem rímar akkúrat við það sem við erum að ræða hér.

Sagan er um hund, en hlekkjunum í ólinni hans var fækkað smátt og smátt með nokkurra daga millibili, þangað til hún var orðin svo stutt að hann gat varla hreyft sig.

Hann veitti aldrei mótspyrnu því það var búið að venja hann smátt og smátt við það að missa frelsið sitt.

Þetta er að gerast hjá okkur öllum núna, og það má líka líkja þessu við söguna um froskinn sem var settur í kalt vatn í potti, og vatnið var hitað svo hægt og rólega að hann gerði sér ekki grein fyrir því fyrr en of seint að verið var að sjóða hann til dauða.

Hin raunverulega merking heimsmarkmiða SÞ

 

Heimsmarkmiðin 2

 

Klaus Schwab með áramótalukkuhjólið sitt

Hvaða "krísur" ætli þeir komi með næst til að hræða okkur ferðina enn? Ný stríð, netárásir, nýja "heimsfaraldra", og við bíðum jú eftir "Disease X" sem er víst væntanlegur? ...

Verið er að innleiða heimsmarkmiðin út um allt hér á landi, og í fyrra sagði þáverandi forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir að þau væru hálfnuð með "Agenda 2030" (áður Agenda 21), og það þurfi að sýna fordæmalausa einbeitingu í að hraða aðgerðunum í sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Við getum látið okkur "hlakka til" ársins 2030 þegar við munum ekkert eiga, og vera hamingjusöm eins og Klaus Schwab er búinn að lofa okkur.

0112

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband