Mun pödduát bjarga okkur út úr loftslagsvánni?

Nú virðist "heimsfaraldurinn" vera að renna skeið sitt á enda, en þá beinist áherslan meira að loftslagsvánni ógurlegu - sem ekki allir eru þó endilega sammála um að sé yfir höfuð til staðar.

Okkur er sagt að heimurinn sé nánast að renna út á tíma við að snúa þróuninni við.

Reyndar er það búið að vera reglulega í fréttunum í einhverja áratugi að við höfum bara einhvern X tíma til að bjarga jörðinni - en áfram skröltir hún þó enn blessunin.

Alls konar forríkir "sérfræðingar" fljúga á milli loftslagsráðstefna í einkaþotunum sínum, og undanfarin ár hefur sænsk unglingsstelpa slegist í hópinn til að mótmæla þessari skelfingu, og sannfæra okkur að við öll berum ábyrgð á því að heimurinn sé nánast að farast núna.

Nú eigum við að hætta að borða kjöt til að "bjarga heiminum"

borða pöddurVið étum víst allt of mikið af kjöti, og þessar síprumpandi beljur eru að gera út af við loftslagið að sögn.

Enda er verið að þvinga bændur í þúsundavís til að leggja niður búin sín og fella dýrin, í þágu loftslagsmálanna, eins og í Hollandi og víðar, og hollensk stjórnvöld vinna náið með The World Economic Forum (WEF) að "endurræsingu heimsins" alls.

Svo nú eru þeir komnir með skothelt ráð gegn loftslagsvandanum, við eigum að fara að éta pöddur í staðinn fyrir kjöt.

Hér fjalla þeir um 5 "rök" fyrir því að það að borða skordýr geti dregið úr loftslagsbreytingum.

Klaus Schwab stofnandi WEF og félagar hans í Davos klíkunni eru búnir að ákveða þetta fyrir okkar hönd (reyndar að okkur forspurðum), fyrir utan allt hitt sem þeir hafa planað fyrir okkur mannkynið - einnig að okkur forspurðum.

Og eru því miður á nokkuð góðri leið með að ná að framkvæma áætlanir sínar, enda hafa þær verið lengi í undirbúningi.

"Umhverfisvænir" ástralskir grunnskólar

Yfir 1.000 skólar í Ástralíu eru farnir að gefa börnunum "umhverfisvænar" flögur sem eru framleiddar úr "ætum pöddum", sjá hér, hér og hér.

Force-feed the population with insects and bugs930c

A teacher from one of the 1,000 Australian schools feeding kids chips made out of powdered crickets asks, ‘Do crickets taste good?’ The student nods and the teacher adds, ‘Yeah. Let’s eat some more crickets…!’

Innræting eða heilaþvottur - nema hvort tveggja sé?

Breskur grunnskóli býður upp á pöddupizzu

insect pizza ingredientsForeldrar nemendanna fengu nýlega sent bréf þar sem þeir voru beðnir um að samþykkja að börnunum yrði gefnar pöddupizzur að borða, en í einhverjum hönnunaráfanga eiga börnin að stúdera próteinrík matvæli.

Þar á að hanna næringarríkan og próteinríkan pizzu-líkan mat sem gæti hjálpað einhverjum að halda lífi ef þau byggju í frumskóginum.

Enda flytjast mjög mörg þeirra í frumskóginn....


Girnileg pizza, ekki satt?

Insect pizza

Breska vefsíðan HugoTalks.com er yfirleitt vel með puttann á púlsinum og birtir reglulega vídeó um það sem er að gerast í heiminum í dag, og er sjaldan eða aldrei fjallað um í meginstraumsfjölmiðlunum.

Þar fjallaði Hugo nýlega um þessar pöddupizzur fyrir börnin, og birti líka vídeó 31. maí - Scientists plan to feed insects to primary schools um þetta pödduát sem á að innræta börnunum þessa hugmynd, svo þau geti haldið innrætingunni áfram til foreldra sinna.

Úrvalið af pöddumat eykst

0927h

Markaðir í Evrópu bjóða núna upp á pödduborgara, en ætli þeir séu líklegir til að rjúka út úr hillunum?

Einnig er svo lítið ber á farið að lauma "skordýrahveiti" og öðru innihaldi sem búið er til úr skordýrum í vörur sem eru merktar sem "sjálfbærar" og "næringarríkar".

Ekki eru allir sammála Klaus Schwab og félögum í WEF um að pödduát sé hollt fyrir fólk, og einhverjir vilja meina að það sé stórhættulegt vegna efnis í pöddunum sem aðeins fuglar geta melt.

Það væri kannski ekki vitlaust að fara að lesa betur innihaldslýsingarnar á þeim matvælum sem maður ætlar að kaupa.

Djúpsteiktar tarantúlur með mjölormastöppu í matinn?

Angelina Jolie eating a tarantulaStórstjörnur hafa erlendis verið fengnar til að kynna hugmyndina um pödduát fyrir fólki, og gera það að aðlaðandi tilhugsun.

Á myndinni hérna til vinstri má sjá Angelinu Jolie gæða sér á tarantúlu, og hér má sjá leikkonuna heimsfrægu Nicole Kidman kjamsa á gómsætum pöddum.

Fleiri vídeó má finna á netinu ef fólk hefur áhuga.

En hvernig er best að sannfæra fólk um að láta ótrúlegustu hluti yfir sig ganga?

Problem - reaction - solution taktíkin

Kynnt er til sögunnar einhver yfirvofandi ógn og svo dynja fréttirnar á okkur nánast allan sólarhringinn um hættuna af henni. Við verðum alveg skelfingu lostin og þessar sífelldu fréttir gera ekkert annað en að næra óttann okkar.

En svo er lausn í sjónmáli og allir bíða spenntir eftir henni, enda fáum við endalaust að heyra að hún lofi mjög góðu og með henni verði loksins hægt að binda endi á þessa skelfilegu vá.

Og ca 90% þjóðarinnar hoppaði á vagninn þegar lausnin kom (sprauturnar), og margir þessa dagana eru að fá sér þá fjórðu.

Þetta er þrautreynd taktík sem reynst hefur vel á mannskepnuna í gegn um tíðina, að ná stjórn á henni með stöðugum hræðsluáróðri.

“I believe the human population has always been vulnerable to people who predict doom with false stories
*Patrick Moore 

En vonandi er fólk loksins farið að sjá í gegnum allan hræðsluáróðurinn, lygarnar og ritskoðunina sem er búið er að beita gegn okkur til að fá okkur til að hlýða, og staldri aðeins við og kynni sér hin djöfullegu plön sem búið er að gera um framtíð mannkynsins.

Látum ekki blekkja okkur eina ferðina enn.

Og samþykkjum aldrei að borða skordýr í stað alvöru matar. Tilhugsunin um það veldur manni viðbjóði.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Milljónir ára af þróun valda því að við hendum mat ef það eru pöddur á honum.

Eitthvað veldur.

Hlustum á milljón ára þróun, en ekki ruglaða teknókrata.  Darwin segir: engar pöddur, það er nóg fyrir mig. 

Ásgrímur Hartmannsson, 30.9.2022 kl. 21:27

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Ásgrímur,

Nákvæmlega, einhver hlýtur orsökin að vera fyrir því.

Því miður hafa sturlaðir teknókratar náð allt of miklum völdum í heiminum vegna auðæva sinna og fjárfestinga á öllum sviðum mannlífsins.

Og flest er falt fyrir peninga, líka vísindin, eins og allir ættu að vera löngu búnir að sjá núna.

Kristín Inga Þormar, 30.9.2022 kl. 22:00

3 Smámynd: Emil Þór Emilsson

það er einmitt verið að eyðileggja landbúnaðinn til að valda hungursneið, meiri vitleysan.

Emil Þór Emilsson, 1.10.2022 kl. 10:56

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Emil,

Já það er akkúrat málið, og svo með þessari manngerðu orkukreppu, þá mun fólk líka deyja úr kulda í vetur.

Enda er verið að fækka mannkyninu núna niður í "ásættanlegan fjölda", fyrst með eitursprautunum og svo þessu núna.

Kristín Inga Þormar, 1.10.2022 kl. 12:16

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Þetta er allt hinn hreinasti viðbjóður og niðurlægjandi fyrir fólk og jafnvel dýr. 

Geir Ágústsson, 1.10.2022 kl. 16:10

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Já ég get svo sannarlega tekið undir það með þér. Ég var áðan að rekast á nýja grein sem gerir mann bara fjúkandi reiðan við að sjá hvernig reynt er að heilaþvo skólabörn í Bandaríkjunum til að borða pöddur.

The Elite is Desperately Trying to Convince You to Eat Bugs. Here’s Why.

Kristín Inga Þormar, 1.10.2022 kl. 17:21

7 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Pláhnetan (eða flatkakan) var sköpuð þannig að hún styður ótakmarkaðan fjölda af fólki og hreinsar alla mengun (þú finnur ekki neina mengun eða náttúruvá eldri en fertuga). Nema e.t.v. eitraðan áróður ...

Guðjón E. Hreinberg, 1.10.2022 kl. 18:03

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Nánast allt sem okkur er sagt er haugalygi, einhliða hamfarafréttir eru matreiddar ofan í okkur, og við erum heilaþvegin með sjónvarpsefni, tónlist og rituðu máli.

Og hverjir stjórna þessu? Sturlað lið sem vill ná til sín öllu fjármagni og öllum auðlindum heimsins, og fækka okkur niður í "ásættanlegan fjölda".

Þetta er einn þeirra:

Yuval Noah Harari spills the beans: ‘We just don’t need the vast majority of the population’

Technology will ‘make it possible to replace the people’

Top World Economic Forum adviser Yuval Noah Harari has declared in a recent interview that the “vast majority” of the world’s 7.5 billion people are simply no longer needed due to technological advances in artificial intelligence, machine learning and bioengineering.

Kristín Inga Þormar, 1.10.2022 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband