Tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.100, alvarlegum fjölgar, Stubbarnir "bólusettir", og hræðslan við reiði Víðis ef maður hlýðir ekki!

 0907a

Í dag, föstudaginn 9. júlí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 2.100, voru 2.090 í gær, svo þetta er fjölgun um 10.

Pfizer var með 845 tilkynningar, þar af 21 andlát og 38 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 852. Fjölgun um 7.

AstraZeneka var með 656, þar af 4 andlát og 50 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 657. Fjölgun um 1.

Janssen var með 232, þar af 1 andlát og 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 233. Fjölgun um 1.

Moderna var með 357, þar af 15 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 358. Fjölgun um 1.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 132, þar af 26 tilkynnt andlát.

Ég hvet ykkur til að smella á myndina hér fyrir neðan til að skoða þessar sundurliðuðu tilkynningar sem eru sendar í EudraVigilance, en þessar tölur eru uppfærðar á mánudögum.

0707c

Stubbarnir

Í morgun var birt verulega ógeðsleg frétt í Fréttablaðinu þar sem sagt er frá því að Stubbarnir fjórir séu núna bólusettir, og sýndu þeir stoltir bólusetningarvottorðin sín.

"Bólusetningarherferðin í Bretlandi hefur þótt með hinum skilvirkari á alþjóðavísu. Þetta sést ef til vill best á því að Stubbarnir, aðalpersónur barnaþáttanna sívinsælu frá BBC, létu nýverið bólusetja sig fyrir Covid-19.

Furðuverurnar með sjónvarpsbumburnar sem fangað hafa hjörtu ungra sem aldinna um heim allan, birtu nýlega færslu á opinberri Twitter­-síðu sinni þar sem þær sýndu bólusetningarvottorð sín.

Kom þar fram að allir fjórir Stubbarnir eru fullbólusettir, tveir þeirra með bóluefninu Astra­Tubbica (sem ef til mætti íslenska sem „AstraStubbica“) og hinir tveir með Noo-nson & Noo-nson (sem gæti útfærst sem „Núsen“).

Á vottorðunum sést að Stubbarnir eru allir fæddir árið 2003 og því er ekki um bólusetningu barna að ræða."

0907

Kostulegt að taka fram að þeir séu fæddir 2003 og þess vegna sé ekki um bólusetningu barna að ræða, vegna þess að auðvitað er verið að beina þessum bólusetningaráróðri að börnunum!

Framhald frá blogginu í gærkvöldi:

Ég var aftur í samskiptum við manninn sem sagði mér frá foreldrum sínum, og hann sendi mér þessa viðbót sem hann gaf mér fúslega leyfi til að birta.

"Þó svo ég hafi skrifað þetta þá er sláandi að lesa þessa frásögn...stutt í lokin varðandi systur mína, hún hefur aldrei orðið svona veik að eigin sögn (eftir 1. sprautuna) og kveið mjög fyrir seinni sprautunni.

Ég reyndi að ræða við hana um nauðsyn og tilgang sprautunnar en hún sagði bara: ég hlýði Víði og ég vil ekki fá covid19. Ég hlýði Víði þýðir auðvitað; ég þori/nenni ekki að stúdera aðstæður.

Ég vil ekki fá Covid19 þýðir þá í hennar tilfelli: ég er tilbúin að fá allar mögulegar aukaverkanir og verða MJÖG veik. Þetta er mjög öfugsnúinn heimur ekki hvað síst innan fjölskyldunnar þar sem svo ólík sjónarmið takast á... En takk fyrir þetta."

Það virðist vera búið að hræða nánast alveg heilbrigða skynsemi og rökhugsun úr fólki núna, eins og hann lýsir svo vel hérna um systur sína. Hún er samnefnari fyrir íslensku þjóðina!

Nú er búið að fullbólusetja stærstan hluta fullorðinna hér á landi, og næst á að sprauta börnin sem eru ekki í NEINNI ÁHÆTTU út af þessari veiru.

Það bara má ekki gerast, það verður að stoppa þetta með öllum tiltækum ráðum, látið börnin okkar í friði!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

vita stubbarnir ekki að nú fyrst geta þeir dreift drápsveirunni á milli sbr. ráðherra Breta?

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 9.7.2021 kl. 13:19

2 Smámynd: Þórdís Björk Sigurþórsdóttir

hlekkur gleymdis, allt um málið hér:
https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2266934/

Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, 9.7.2021 kl. 13:20

3 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Það hefur greinlega alveg gleymst að segja þeim það!

Kristín Inga Þormar, 9.7.2021 kl. 13:35

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Við þurfum að breyta orðalaginu "alvarlegar aukaverkanir" í "grunuð dauðsföll" og telja þau með.

Guðjón E. Hreinberg, 9.7.2021 kl. 13:48

5 Smámynd: Agný

Það var líka svona bólusetningar áróður í sambandi við HPV ( leghálskrabbameins) bóluefnin. Nema þar voru það litlar stelpur á video látnar vera í dúkkuleik og að bólusetja dúkkurnar sínar! Subliminal áróður er allstaðar..

Agný, 9.7.2021 kl. 13:49

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Guðjón og Agný, það er alltaf gert lítið úr þessum andlátum í kjölfar sprautanna það eru víst "sjaldnast" nokkur tengsl þar á milli. Þessi 26 opinberlega viðurkenndu andlát ættu frekar að vera staðfest en grunuð!

Ég hef ekki séð þessi vídeó um HPV efnin, þau eru örugglega álíka ógeðfelld og þessi Stubbavídeó, og einmitt gerð til að ná til undirmeðvitundar barnanna.

Kristín Inga Þormar, 9.7.2021 kl. 14:25

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Árið 2018 skrifaði maður að nafni Þórólfur Guðnason að áhættan af notkun bóluefna væri viðunandi og miklu minni en vegna ýmissa sjúkdóma sem er bólusett fyrir því eingöngu komi fram aukaverkun vegna þeirra á um 500.000-1.000.000 sprauta fresti. 

Núna virðist ásættanlegt að nota bóluefni þótt þau séu að drepa svipað marga og sjálf veiran. 

Til að setja í samhengi: Ef Pfizer væri nú búið að finna upp bóluefni gegn krabbameini og Þórólfur ýtir því á fólkið þá væri hann sáttur við 992 dauðsföll vegna bóluefna til að koma í veg fyrir 992 dauðsföll vegna krabbameins á um 18 mánaða tímabili (síðan 1. jan. 2020 skv. pandata.org).

Geir Ágústsson, 9.7.2021 kl. 16:46

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Þessi sami maður fullyrti (laug) líka í "svínaflensufaraldrinum" að bóluefnin væru góð og örugg og hvatti alla í sprautuna. Við vitum hvernig það fór, nokkur ungmenni hér á landi og einhver hundruð í löndunum í kring eru varanlegir öryrkjar eftir þau.

Það er ekki nóg með að þessi tilraunaefni séu að drepa fólk hérna, heldur eru margir stórskaðaðir eftir þau, og sumir fyrir lífstíð.

Ég legg til að þríeykið verði svipt orðunum sínum og sökuð um stórkostlega glæpi gegn sinni eigin þjóð.

Kristín Inga Þormar, 9.7.2021 kl. 17:33

9 Smámynd: Þröstur Jónsson

Varlega má áætla að aðeins 10% aukaverkana og andláta sé tilkynnt.
Þannig að þá eru semsagt amk. 260 manns látnir í kjölfar hinna svo nefndu bólustetninga!!?

Þröstur Jónsson, 13.7.2021 kl. 09:06

10 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Þröstur,

Það er alveg á hreinu að andlátin eru miklu fleiri en þessi 26 sem búið er að opinbera, og að sjálfsögðu með þeim fyrirvara um að ekkert bendi til tengsla á milli, og að viðkomandi hafi verið aldraðir og með alls konar undirliggjandi.

Við vitum hvað þöggunin er gríðarleg hjá þeim sem stjórna þessum "bólusetningum", og allt gert til að sprauta okkur öll.

Mig grunar að margir tengi ekki t.d. skyndileg andlát ástvina við að þau hafi verið nýlega "bólusett", en ég vona svo sannarlega að augu fólks fari að opnast!

Kristín Inga Þormar, 13.7.2021 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband