Hvar eru fréttirnar um þá sem sem liggja inni vegna aukaverkana?

Eða þá sem hafa þurft að sækja sér læknisþjónustu eftir að hafa látið sprauta þessum tilraunaefnum í sig?

Miðað við að búið sé að tilkynna um 2.051 aukaverkun, hljóta þeir að vera ansi margir, er það ekki?

Það er alveg ótrúlegt að fylgjast með fréttaflutningi þessa dagana og mánuðina, og þöggunin um andlátin og aukaverkanirnar er hreinlega æpandi!

Er það virkilega "frétt" að einhver liggi á almennri legudeild, ekki einu sinni gjörgæslu út af einhverjum veikindum? Halló!

Hvað liggja margir inni núna vegna aukaverkana, veit það einhver, eða hversu margir hafa orðið fyrir varanlegu heilsutjóni eftir tilraunabólusetningarnar? Fyrir utan þá sem þegar eru látnir auðvitað.

Það telst greinilega ekki fréttnæmt, en um leið og einhver "smit" greinast, þá er það strax birt í öllum fréttamiðlum, og hversu margir (fullkomlega heilbrigðir) einstaklingar þurfi að fara í sóttkví vegna þeirra.

Okkur langar "öll" að vera bólusett, einmitt.

Það er víst alltaf ákveðið hlutfall bólusettra sem "smitast" segir í þessari frétt.

„Þótt okk­ur langi öll að vera 100% bólu­sett þá er alltaf ákveðinn hluti af bólu­sett­um sem mun grein­ast með Covid,“ segir Hjör­dís Guðmunds­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi al­manna­varna­deild­ar rík­is­lög­reglu­stjóra, um smitið sem greind­ist hjá bólu­sett­um ein­stak­lingi.

Er það Hjördís Guðmundsdóttir, langar okkur öll að vera 100% "bólusett?

Nú eiga óbólusettir víst að geta orðið "verksmiðjur" fyrir ný afbrigði, 5 milljónir bólusettra Breta mega kannski ekki ferðast til Evrópu, vegna þess að þeir eru bólusettir.

Ástralir hóta því jafnvel að þeir sem vilja ekki sprauturnar verði sviptir launum sínum. Írland er orðið að algjöru lögregluríki og svona mætti lengi telja.

Ég mæli með því að allir horfi á þetta viðtal við Dolores Cahill prófessor um þessi svokölluðu bóluefni, og hvað er að eiga sér stað í heiminum í dag.

"Citizens subjected to punitive restrictions on their liberties and movement for more than 12 months, are now being forced into mass, and what will soon be, mandatory vaccination programs to gain back their freedoms. Political leaders continue use the vacuous and dishonest slogan of “following the science” that many still believe, but are they leading us into another form of hell?"

 

 


mbl.is Á spítala með virkt smit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Maður getur ekki annað en vorkennt læknastéttinni. Fyrst fær hún nýja veiru í hendurnar og þarf að læra að meðhöndla hana. Vinna þeirra er stanslaust töluð niður í fullyrðingum um að engin meðferð finnist þótt fáir hafi látist. Engar fálkaorður til þeirra.

Og nú er byrjað aftur með nýjum faraldri aukaverkana sem læknar þurfa að meðhöndla án þess að fá fálkaorður og talað um að aukaverkanir séu fáar og gangi yfir án þessara lækna sem hefur ekki tekist að þróa neinar meðferðar sem gagn er að.

Geir Ágústsson, 6.7.2021 kl. 10:31

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Geir,

Hvernig ætli þeim læknum líði sem vita nákvæmlega hvað er í gangi en þora kannski ekki að rísa upp af ótta við að vera útskúfaðir og jafnvel reknir?

Sjáðu til dæmis herferðina núna gegn Guðmundi Karli Snæbjörnssyni (Kalla Snæ) lækni!

Kristín Inga Þormar, 6.7.2021 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband