18.6.2023 | 20:44
Fögnum komu Trúðsins!
Þær gleðifréttir bárust nú fyrir helgi að Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada verður sérstakur (heiðurs?)gestur á samfundi forsætisráðherra Norðurlandanna sem verður haldinn í Vestmannaeyjum dagana 25. - 26. júní.
Þetta er mjög vel til fundið hjá Katrínu, enda hafa kynni þeirra verið með miklum ágætum í mörg ár.
Þessi mynd var birt á Twitter síðu hennar 4. desember árið 2019, og sýnir þau í þungum þönkum yfir einhverju alvarlegu málefni.
Eitt af þemum fundarins verður svokallaður viðnámsþróttur samfélaga - án þess að það sé útskýrt frekar, en ekki er ólíklegt að forsætisráðherra vor kynni þar glæsilega nýútkomna skýrslu sína um Vansældarhagkerfið á Íslandi.
Hann mun væntanlega koma á einkaþotu sinni, enda er tími hans dýrmætari en minn og þinn. Þess má geta að hann er vel menntaður, löngu útskrifaður úr "Young Global Leaders" skóla Klaus Schwab, sem við vitum að berst nú hörðum höndum við að bjarga mannkyninu frá loftslagsvánni, faröldrum og öðrum ógnum sem steðja að okkur - eða eru væntanlegar samkvæmt vísindalegum lestrum af vel pússuðum kristalsspákúlum þeirra.
Umsögnin um hann á heimasíðu The World Economic Forum (WEF) er afskaplega falleg og hjartnæm, og þar segir meðal annars að sýn hans fyrir Kanada sé sú að þar eigi allir að hafa sömu tækifæri í lífinu.
Enda er hann dýrkaður og dáður í heimalandinu.
Hér fyrir neðan má sjá mynd af öðru heiðursfólki sem útskrifað er úr sama skóla, og samkvæmt því sem Klaus Schwab segir sjálfur, er (sem betur fer!) búið að koma útskriftarnemunum fyrir í ríkisstjórnum margra þjóða.
Sá hinn sami sagði að heimsfaraldurinn skapaði einstakt tækifæri til að enduræsa heiminn. Við getum verið þakklát fyrir að einhverjir nenni að taka það að sér fyrir okkur.
Framganga Trudeau og ríkisstjórnar hans í heimsfaraldrinum ógurlega var til stakrar fyrirmyndar eins og sjá má í þessari stuttu upprifjun, og að sjálfsögðu tók hann föstum tökum öllum falsfréttunum um drápspestina ógurlegu, og kallaði fólk réttilega álhatta sem voru með einhverjar samsæriskenningar um hana.
Sömu sögu má segja um kanadíska lækna sem voru eitthvað að röfla yfir því að vera bannað að tjá sig eða rökræða um opinberu aðgerðirnar í heimsfaraldrinum. Þvílík frekja í þessu liði!
Talandi um frekju, þá fór þessi prestur út yfir öll mörk þegar hann dirfðist að halda messur í trássi við sóttvarnalögin, og var hann að sjálfsögðu handtekinn!
Eða þetta lið sem reyndi að reka blessaðan manninn úr bænum þegar hann kom í kurteisisheimsókn þangað!
Svona tók hann af festu á sóttvörnum í febrúar árið 2021
Forsætisráðherrann Justin Trudeau tilkynnti á föstudag að allir borgarar sem snúa aftur til Kanada yrðu að gangast undir nýjar ferðatakmarkanir sem myndu sjá til þess að þeir yrðu fluttir í einangrunaraðstöðu og gengjust undir Covid próf og að þeir myndu geta farið ef prófið væri neikvætt.
Ef þeir reyndust jákvæðir ætti að flytja þá á aðra ótilgreinda einangrunaraðstöðu þar sem þeir þyrftu að ljúka 14 daga sóttkví. Hann sagði einnig að stjórnvöld myndu rukka hvern ferðamenn um $2.000 til að standa straum af kostnaði af prófunum, gistingu og mat.
Sömu festu sýndu sem betur fer margir skólafélagar hans í sínum löndum, enda var jú alveg skelfilegur drápsfaraldur í gangi með lífslíkur upp á ca 99% væri maður ekki með marga undirliggjandi sjúkdóma eða hvort eð er kominn á grafarbakkann.
Þegar langþráðu bóluefnin komu loksins, þá var hann ekkert mikið að flækja málin og setti bólusetningarskyldu á opinbera starfsmenn, flug- og lestarfarþega, og þá sem störfuðu við að keyra vörur milli landa.
Að sjálfsögðu setti hann bólusetningarskyldu á sjálfan sig og lét margsprauta og bústa sig.
Fleiri starfsstéttir urðu auðvitað líka að undirgangast þessar skyldubólusetningar, og þeir sem skildu ekki nauðsyn þess að láta sprauta sig fengu eðli málssins samkvæmt að heyra það.
Líka þessi læknir sem var eitthvað að sá efasemdum í huga fólks um ágæti bólusetninganna og tala um einhverjar aukaverkanir. Hann var rekinn úr starfi sínu á bráðamóttökunni, og gott ef hann var ekki sviptur læknaleyfinu síðar.
Þeir sem litu á þetta sem harðstjórn skildu ekki að þetta snérist að sjálfsögðu einungis um að tryggja öryggi borgaranna, bjarga lífum og flýta fyrir því að koma þjóðinni út úr faraldrinum.
Það komst í heimsfréttirnar í fyrra þegar óforskammaðir flutningabílstjórar mótmæltu skyldubólusetningunum og öðrum hömlunum, söfnuðust saman í tugþúsundavís og mynduðu langar raðir.
Aumingja Trudeau varð að hrökklast með fjölskylduna í felur út af þessu!
Áfallið varð líklega til þess að hann steingleymdi því blessaður að hafa skyldað fólk í sprauturnar góðu, heldur hafi hann aðeins kosið að hvetja Kanadamenn til að láta bólusetja sig.
En svo steingleymdi hann því líka að hafa sagt það, og sagði hér að skyldubólusetningarnar væru leiðin til að forðast frekari takmarkanir.
Þetta neyðarástand með flutningabílstjórana kallaði vitaskuld á setningu neyðarlaga í landinu, og frystingu á greiðslum sem safnað var til stuðnings þeim. Reyndar varð hann að bakka með neyðarlögin stuttu síðar út af einhverri óþarfa afskiptasemi í einhverjum þingmanni.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru um glæstan starfsferil Justins Trudeau forsætisráðherra Kanada. Öll hin afrekin hans væru efni í miklu lengri pistil.
Við skulum því taka því fagnandi að hann skuli heiðra okkur með komu sinni til landsins, ég er sannfærð um að hann muni geta uppfrætt norrænu forsætisráðherrana um hvernig best sé að stjórna þjóðum sínum - að forskrift Klaus Schwab leiðtoga hans, og stofnanda WEF.
Obbosí
Ég sé að ég mismælti mig í fyrirsögninni og kallaði Trudeau trúð, en einhverra hluta vegna sat það í mér, ég hlýt að hafa lesið það einhvers staðar.
Ég vona að WEF Kata vinkona hans erfi það ekki við mig.
Bloggar | Breytt 19.6.2023 kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)