Tilkynntar aukaverkanir eftir bólusetningarnar eru orðnar 1.217!

1805

Það er alltaf fróðlegt að fylgjast með fjölgun tilkynntra aukaverkana milli daga.

Í dag, þriðjudaginn 18. maí eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.217, voru 1.182 í gær, svo þetta er fjölgun um 35.

Pfizer var með 423 tilkynningar, þar af 15 andlát og 24 aðrar alvarlegar.

Nú eru þær orðnar 434. Fjölgun um 11.

Moderna var með 212, þar af 8 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 220. Fjölgun um 8.

AstraZeneka var með 488, þar af 1 andlát og 27 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 497. Fjölgun um 9.

Janssen var með 59. Nú eru þær orðnar 66.
Fjölgun um 7.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 75, þar af 16 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 18 frá mánudeginum 10. maí. Eins og sjá má á vefsíðu Lyfjastofnunar, þá er skilgreiningin á alvarlegum aukaverkunum vegna lyfja þessi:

"Alvarleg aukaverkun er aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum og jafnframt aukaverkun eða óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða eða veldur ólæknandi eða langvarandi sjúkdómseinkennum hjá dýrum."

Engar upplýsingar fást frá stofnuninni frekar en fyrri daginn um í hverju þessar tilkynntu alvarlegu aukaverkanir felast þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, en það virðist augljóst að 75 manneskjur hafi orðið alvarlega veikar í kjölfar bólusetninganna, fyrir utan þessar 16 manneskjur sem eru þegar látnar.

Á s.l. sjö mánuðum hefur ENGIN manneskja látist úr Covid, svo hvers vegna liggur svona gríðarlega á að bólusetja alla núna?

Og merkilegt nokk, Jóhannes Kristinsson læknir hélt því fram á spjallþræði í gær að þessar tölur Lyfjastofnunar væru falsaðar! Sjá meira um það hér.

Og þrátt fyrir að tilkynningarnar séu nú orðnar 1.217, þá er því enn haldið fram að ávinningurinn af bólusetningunum með þessum mRNA líftæknilyfjum sé meiri en áhættan.

Hvernig verður þetta í framtíðinni þegar það "verður nauðsynlegt" að bólusetja fólk gegn nýjum og nýjum afbrigðum?

Er ekki bara langbest fyrir flesta að styrkja ónæmiskerfið og leyfa því að gera það sem það kann, að vernda okkur gegn utanaðkomandi árásum?

Það vekur furðu að lítið sem ekkert hefur verið talað um ónæmiskerfið í þessum heimsfaraldri, heldur aðeins sagt að einhver bóluefni geti komið okkur út úr honum.

Eitt er víst, að ansi mörgum spurningum er ósvarað vegna alls sem viðkemur þessum faraldri!  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband