Hversu öruggt er Moderna bóluefnið - og hvað vitum við um innihald þess?

Prófaðu að leita að "simple ingredients of the moderna vaccine".

Prófaðu svo að gera leit að innihaldsefninu SM-102, og farðu inn á þessa síðu, caymenchem.com.

Ef þú smellir á Download Safety Data, þá muntu sækja skjal sem sýnir innihald þessa efnis, og allar viðvararnirnar vegna notkunar á því.

Spurðu svo sjálfa/n þig, viltu láta sprauta þig með einhverju tilraunabóluefni sem inniheldur hugsanlega eitthvað sem getur meðal annars valdið krabbameini, skaða á ófæddu barni þínu, skemmdum á taugakerfinu, nýrum, lifur og öndunarfærunum?

Og athugaðu eitt, Moderna hefur aldrei áður framleitt nein bóluefni, en nú er það einhverra hluta vegna í fararbroddi með eitthvað bóluefni sem á að koma okkur út úr þessum meinta faraldri!

Ef þú gúgglar þetta, þá muntu líka finna staðhæfingar um að þetta sé ekki rétt, ég fann t.d. eina slíka á miðli sem er kostaður af hagsmunaaðilum bólusetninga.

En kjarni máls míns er, að við höfum ekki hugmynd um hvað er í öllum þessum bóluefnum sem verið er að dæla í mannkynið núna, og það vegna veiru sem 99,7% fólks lifir veikindi af.

Það er sorglegt að fólk skuli ekki leita sér upplýsinga áður en það lætur sprauta sig með einhverju sem á að verja það gegn covid, en samt þó ekki!

Fólk virðist bara skunda í Höllina þegar boðið kemur, sem er lögbrot því þessar bólusetningar eiga að vera frjálsar, og ég veit um margt fólk sem hefur farið vegna þrýstings ættingja og vinnuveitenda.

Fullbólusettir eru að greinast með og deyja "úr covid", en það er efni í annan bloggpóst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Bill Gates hefur margoft lýst því yfir að allt of margt mannfólk væri á jörðinni, því þyrfti að fækka verulega.

Þessi sami maður hefur verið í fararbroddi þeirra sem vilja að öll heimsbyggðin verði bólusett og byrjaði hann að tala fyrir því fyrir mörgum árum. BG er stór eigandi flestra þessara lyfjafyrirtækja og halar inn enn meiri auð en hann nú þegar getur státað af.

Hversu margir íslenskir stjórnmálamenn og embættismenn ætli hafi þegið brauðmola sem fallið hafa af borðum hans???

Þessi siðspillti maður sem aldrei lauk háskólanámi hvað þá heldur að hann sé vísindamaður, efnafræðingur, læknir eða hafi vit á því sem hann er að tala um, maður sem aldrei hefur verið kosinn af neinum til að fara með forráð yfir þeim málaflokkum sem veirurannsóknir eða bóluefni snúast um, en hann virðist ráða meiru en hann hefur hæfileika til og það allt í nafni meintra auðæfa sinna.

BG er ekki velkominn til Indlands þar sem sviðin jörð er eftir hann er hann lét gera tilraunabólusetningar á ungum stúlkum þar sem um 400þúsund urðu örkumla auk þess sem fjöldi (ég man ekki fjöldann, en hann skipti þúsundum) bólusettra dóu í kjölfar bólusetninga hans.

Tómas Ibsen Halldórsson, 20.5.2021 kl. 13:10

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Alveg hárrétt hjá þér Tómas, og hann er einn stærsti fjármögnunaraðili einkafyrirtækisins WHO, sem er stýrt af manni sem er ekki heldur læknir, og situr undir ásökunum um þjóðarmorð í eigin landi.

Okkar eigin sóttvarnarlæknir hefur margoft sagt að hann fylgi tilmælum þessa apparats!

Það er margbúið að senda sóttvarnaryfirvöldum, stjórnvöldum, blaðamönnum og fleirum upplýsingar um (hugsanlega) skaðsemi þessara tilraunabóluefna, en aldrei fást nein svör eða viðbrögð, og ekki stendur til að upplýsa þjóðina um bóluefnasamningana vegna einhverra einkahagsmuna. Það er grafalvarlegt að mínu mati.

Og svo er Bill búinn að vara við fleiri og verri faröldrum sem eiga víst eftir að koma í framtíðinni, en hann hefur að sjálfsögðu lausnina, ennþá meiri og tíðari bólusetningar á mannkyninu!

Kristín Inga Þormar, 20.5.2021 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband