Fjöldi andláta í kjölfar bólusetninganna er farinn að slaga hátt upp í Covid dauðsföllin!

Og það aðeins á tæpum fimm mánuðum, meðan ENGINN hefur látist úr veirunni í sjö mánuði.

Hvers vegna birtast fréttir um þessi andlát ekki um leið eins og þegar einhver dó úr Covid í fyrra?

Við munum öll eftir kertum skreyttu tilkynningunum þegar gamalmennin dóu.

Þá var aldrei talað um að þau væru öldruð og með undirliggjandi sjúkdóma, en rík áhersla er lögð á það núna.

"Í svörum Lyfja­stofnunar við fyrir­spurn Frétta­blaðsins kemur fram að af þeim al­var­legum til­kynningum sem hafa borist varða 20 and­lát og 23 blóð­tappa en í þeim til­kynningum er ekki vitað um hvort um or­saka­sam­hengi sé að ræða milli bólu­setningar og til­kynntra at­vika. Tíu til­kynningar um blóð­tappa hafa borist fyrir bólu­efni Pfizer, ein fyrir bólu­efni Moderna, og tólf fyrir AstraZene­ca."

Nei að sjálfsögðu er aldrei neitt vitað um orsakasamhengi núna. Ef þessar tilraunabólusetningar eru svona svakalega öruggar og góðar, hvernig stendur þá á því að búið er að tilkynna um 1.276 aukaverkanir eftir þær?

Og getur einhver bent á ávinninginn umfram áhættuna sem stöðugt er haldið fram?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband