Stefnan er að sprauta 10.700 manns í vikunni, 7.700 skammtar af Pfizer eru ætlaðir aðstandendum langveikra barna (kallað hringbólusetningar), og 3.000 skammtar af AstraZeneka eru ætlaðir í endurbólusetningar.
Tilkynntar aukaverkanir vegna AstraZeneka í Evrópu
Á samantekt sem sjá má er hér, má sjá 2.102 andlát og 208.873 tilkynntar aukaverkanir vegna þessa efnis í Evrópu.
Þetta eru ekki upplýsingar sem eru ætlaðar okkar augum hér á landi, heldur eru víst ægilega bjartir tímar framundan að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Meira fjör í næstu viku!
"Ragnheiður segir að meiri kraftur verði í bólusetningum í næstu viku. Ekki liggi fyrir nákvæmar tölur eins og er en það er bjartara fram undan.
Fleiri skammtar koma af Pfizer og frá Moderna. Ragnheiður segir að sendingarnar frá þeim lyfjaframleiðendum fari stækkandi.
Þá verður meira fjör, segir Ragnheiður Ósk".
En hvað finnst ykkur, eruð þið sammála því sem okkur er sagt hér á landi, að ávinningurinn af þessum bólusetningum sé meiri en áhættan, nú þegar búið er að tilkynna um 1.276 aukaverkanir, þar af 20 andlát og 60 aðrar sem geta verið lífsógnandi?
Hringbólusetning hefst í vikunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.