Ár hinna mörgu tilviljana, óháðir sérfræðingar finna sjaldnast tengsl milli bólusetninga og andláta!

Alveg er magnað að lesa hverja fréttina af annarri, bæði innlendar og erlendar um andlát í kjölfar þessara svokölluðu bólusetninga.

Það skiptir engu máli hvort um kornungar manneskjur er að ræða, eða háaldraðar það finnast víst nánast aldrei nein tengsl þarna á milli.

Í þessari frétt sem birtist á RÚV.is í dag segir:

"Óháðir sérfræðingar í lyflækningum telja ólíklegt að rekja megi fjögur af þeim dauðsföllum sem þeir skoðuðu til bólusetningar. Eitt andlát er flokkað sem ólíklegt til mögulegt. Í nær öllum þeim tilvikum sem skoðuð voru var hægt að tengja andlát eða blóðtappa undirliggjandi sjúkdómi eða áhættuþáttum. Einn greindist með svokallaðan VITT-sjúkdóm sem átti stóran þátt í því að Norðmenn og Danir hættu að nota bóluefni AstraZeneca."

Í þessari frétt frá Írlandi er fjallað um andlát 12 eldri sjúklinga eftir sprauturnar, þau voru að sjálfsögðu öldruð og með alls konar undirliggjandi sjúkdóma (sem var aldrei minnst á þegar gamla fólkið dó hér í fyrra!)

"The regulator said that in all these deaths, the patients had underlying conditions and/or concurrent illness with a small number having tested positive for Covid-19.

Reports of the deaths have been “carefully reviewed and based on the information provided it is not considered that the vaccine played a contributory role in these events,” the HPRA said in its latest safety update on Covid-19 vaccines.

“It can be expected that fatalities due to progression of underlying disease or natural causes will continue to occur, including following vaccination. However, this does not meant that the deaths were caused by the vaccine.”

39 ára maður lést sex dögum eftir sprautuna, og að sjálfsögðu engin tengsl þar á milli að mati írskra heilbrigðisyfirvalda og þessara keyptu og spilltu "fact checkers".

"However, any link between his death and the injection was debunked by Irish health authorities and the Journal Fact Checker."

41 árs portúgölsk kona var látin tveim dögum eftir Pfizer sprautuna.

"But no cause of death has yet been determined and the authorities said they will follow the usual procedures to work out what happened.

An autopsy is expected to take place imminently and there is currently no evidence to suggest her death is linked to the vaccine."

Ég er búin að lesa gríðarlega margar svona fréttir undanfarna mánuði, og nánast alltaf er tekið fram að líklega séu engin tengsl þarna á milli.

Ég fjallaði aðeins um þessa óháðu sérfræðinga í gær og í öðru bloggi um tilkynntar aukaverkanir og andlát í Evrópu

Eru öll þessi 13.867 andlát í Evrópu bara tómar tilviljanir líka?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband