Nýjustu tölur um aukaverkanir, og staðfesting á að verið er að ljúga að okkur um þessi "bóluefni"!

Í dag, þriðjudaginn 22. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.740, voru 1.733 í gær, svo þetta er fjölgun um 7.

Pfizer var með 661 tilkynningar, þar af 20 andlát og 35 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 662. Fjölgun um 1.

Moderna var með 309, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 311. Fjölgun um 2.

AstraZeneka var með 616, þar af 3 andlát og 46 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 619. Fjölgun um 3.

Janssen var með 147, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 148. Fjölgun um 1.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 120, þar af 23 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 79 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 920 síðan þá.

Það vekur athygli að fjöldi tilkynninga frá í gær er "aðeins" 7, en þar af eru 2 alvarlegar.

Breskir læknar skrifa bréf

Sífellt fleiri sannanir eru að koma fram um skaðsemi þessara tilraunaefna. Þar sem nú er búið að hálfbólusetja 39 milljón manns í Bretlandi og fullbólusetja 24 milljónir, er til nægilega mikið af gögnum til að fá yfirsýn yfir aukaverkanir.

Þetta kemur fram í bréfi var sent af The Evidence-Based Medicine Consultancy Group til breska lyfjaeftirlitsins, þar sem farið er fram á að þessum "bólusetningum" sé samstundis hætt, því til rökstuðnings er vitnað í opinber gögn um tilkynntar aukaverkanir og andlát.

Það er löngu orðið ljóst að aukaverkanirnar eru orðnar margfalt meiri af þessum tilraunalyfjum en öllum bóluefnum samanlagt í sögunni hingað til!

Hér má sjá:

  • Bleeding, Clotting and Ischaemic ADRs
  • Immune System ADRs
  • "Pain" ADRs
  • Neurological ADRs
  • ADRs involving loss of Sight, Hearing, Speech or Smell
  • Pregnancy ADRs
  • Pathogenic priming, multisystem inflammatory disease and autoimmunity
  • Allergic reactions and anaphylaxis
  • Antibody dependent enhancement
  • Activation of latent viral infections
  • Neurodegeneration and prion diseases
  • Emergence of novel variants of SARSCoV2
  • Integration of the spike protein gene into the human DNA

"It is now apparent that these products in the blood stream are toxic to humans. An immediate halt to the vaccination programme is required whilst a full and independent safety analysis is undertaken to investigate the full extent of the harms, which the UK Yellow Card data suggest include thromboembolism, multisystem inflammatory disease, immune suppression, autoimmunity and anaphylaxis, as well as Antibody Dependent Enhancement (ADE)."

The report concludes: "The MHRA now has more than enough evidence on the Yellow Card system to declare the COVID-19 vaccines unsafe for use in humans. Preparation should be made to scale up humanitarian efforts to assist those harmed by the COVID-19 vaccines and to anticipate and ameliorate medium to longer term effects. As the mechanism for harms from the vaccines appears to be similar to COVID-19 itself, this includes engaging with numerous international doctors and scientists with expertise in successfully treating COVID-19.

"There are at least 3 urgent questions that need to be answered by the MHRA:

  1. How many people have died within 28 days of vaccination?
  2. How many people have been hospitalised within 28 days of vaccination?
  3. How many people have been disabled by the vaccination?"

Hér er stutt vídeó þar sem meðal annars er spurt hvort það sé nauðsynlegt að sprauta allt mannkynið núna með einhverju tilraunaefni, þegar lífslíkur af veikindum vegna veirunnar eru eins miklar og þær eru.

Þórólfur og Ragnheiður ljúga blákalt!

Í dag stendur til að bólusetja 10.000 manns með Janssen. Í þessari frétt segir meðal annars:

„Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu,“ útskýrir Þórólfur. „Og það eru bara tveir kostir í boði, annaðhvort að fá Covid eða að fá bólusetningu,“ bætir hann við.

Þannig að ungar konur ættu ekki að hræðast bólusetningu með Janssen?

„Nei, nei,“ segir Þórólfur.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, tekur í sama streng og Þórólfur. „Öll bóluefnin eru góð,“ segir Ragnheiður. „Við erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð,“ bætir hún við. (áherslubreyting mín).

Sjáiði hvað Þórólfur og Ragnheiður eru að segja þarna? Getið þið treyst og trúað orði af því sem þetta fólk segir lengur?

Klárlega ekki! Verst bara að stærstur hluti þjóðarinnar treystir ennþá þríeykinu og íslenskum stjórnvöldum, og lofar þetta fólk fyrir hversu "vel því hafi tekist að leiða okkur út úr þessum faraldri"!

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Já, Þórólfur útskýrir:

Það geta verið aukaverkanir með þessum bóluefnum, þær eru mjög sjaldgæfar og miklu sjaldgæfari heldur en af Covid-sýkingu.

Enn málið er bara það, sem Þórólfur segir ekki frá , að aukaverkanirnar af völdum bóluefnanna  sýna sig að vera miklu hættulegri heldur en að smitast af Covid og á það sérstakleg við um yngra fólkið sem er verið að herja á með sprautuna þessar vikurnar.

Og heyra á endemi það sem Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir lætur hafa eftir sér:

Öll bóluefnin eru góðVið erum að tala um aukaverkanir sem eru svo örlitlar að það er örugglega meiri hætta af því að bara fara út í búð.

Telur hún sig vera með tölur yfir það að fleiri en 1.740 einstaklingar hafi slasast í búðarferðum  frá því að byrjað var að bólusetja, þar af yfir 120 alvarleg slys og yfir 23 dauðsföll?  Maður hefur ekkert heyrt af slíku í fjölmiðlum!  Nei, vitaskuld ekki, enda er þetta gaspur hennar bara grímulaus áróður til þess gerður að lokka yngra fólkið í sprautuna.

Þar sem eimitt það fólk er í miklu meiri hættu að veikjast alvarlega í kjölfar bóluefnanna heldur en af Covid-19 þá er þessi áróður algerlega siðlaus af hálfu þessar konu sem titlar sig framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.  Og þar sem það er skylda hennar skv. lögum að vara fólk við mögulegum aukaverkunum af bóluefnum þá er þetta um leið alvarlegt lögbrot að gera svona lítið úr hættunni af þessum tlraunabóluefnum. Alvarlegum aukaverkunum sem eru orðnar hlutfallslega margfalt fleiri en áður hefur þekkst frá því farið var að bólusetja gegn umgangspestum og almenning óraði ekki fyrir.

Daníel Sigurðsson, 22.6.2021 kl. 21:53

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Daníel,

Ég varð eiginlega orðlaus þegar ég sá þessa frétt! Þarna opinberaði þetta fólk algjörlega sinn einbeitta brotavilja, og þau eru að brjóta mörg lög með þessum lygum sínum.

Hér á landi SKAL bólusetja alla gegn pest sem 99,7% fólks lifir veikindi af, og aldrei áður hafa jafn margir örkumlast eða dáið eftir bólusetningar eins og á þessum örfáu mánuðum síðan þessar eiturgjafir hófust.

Það sorglega er að fólk virðist lítið kippa sér upp við þetta, enda fá þessar aukaverkanir ekkert pláss í fjölmiðlunum.

Ég hef verið vænd um lygar fyrir að blogga um opinberar tölur, fólk segir ekkert mark takandi á einhverjum bloggara úti í bæ, en tölurnar tala sínu máli, og ég veit að þær eru miklu fleiri en tilkynnt er um.

Og nú á að fara að bólusetja börnin, og byrja á þeim sem eru með undirliggjandi sjúkdóma!

Kristín Inga Þormar, 22.6.2021 kl. 22:28

3 Smámynd: Tryggvi Helgason

Þetta virðist vera skipulagt "alheims-samsæri" lyfjarisanna, ofurríkra peninga-sjúgara og lækna sem fá smá-aukapening í vasann, fyrir að "mokka" með.

Ég held að allir hljóti að muna eftir því, þegar Þórólfur og Kári hnakkrifust út af því, hvor þeirra væri "aðal-páfinn" fyrir Fæser lyfjarisann, og þar með hvor ætti að fá stærri "fúlgur" í vasann.

Að lokum þá mun koma að því, að öll þessi spilaborg hrynur og allir þeir sem stóðu að þessu samsæri munu standa berskjaldaðir, og þeir hinir sömu munu verða sóttir til saka, og munu fá sinn dóm.!

Tryggvi Helgason, 23.6.2021 kl. 22:38

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tryggvi,

Við erum lítill minnihluti sem að mati margra aðila, erum víst að breiða út einhvern falsáróður gegn þessum "bóluefnum" sem eiga víst að vernda okkur gegn veikindum vegna veiru sem 99,7% fólks lifir veikindi af.

Spilaborgin er þegar byrjuð að hrynja og við erum búin að standa Þórólf og og Ragnheiði yfirhjúkku að skelfilegum lygum varðandi þessi svokölluðu bóluefni, eins og sjá má í bloggi minu í gær um daglegu aukaverkanirnar.

Það er kominn tími til að fólk átti sig á að þetta ástand hefur aldrei snúist um að verjast einhverri veiru, heldur eitthvað miklu stærra og skelfilegra.

Kristín Inga Þormar, 24.6.2021 kl. 09:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband