Þrjú andlát tilkynnt í ágúst eftir tilraunabóluefnin, andlát Íslendinga eru orðin fleiri en úr pestinni sjálfri, eða þrjátíu talsins!

Nú er Lyfjastofnun búin að staðfesta 30 andlát eftir sprauturnar, að sjálfsögðu með hefðbundnu fyrirvörunum:

"Að svo komnu er ekkert sem bendir til orsakasamhengis milli tilkynntra andláta og bólusetninga gegn COVID-19."

  • Átta tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í janúar 2021.
  • Tvær tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í febrúar 2021.
  • Fimm tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í mars 2021.
  • Ein tilkynning um andlát í kjölfar bólusetningar barst í apríl 2021.
  • Fjórar tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar bárust í maí 2021.
  • Sex tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar hafa borist í júní 2021.
  • Ein tilkynning um andlát í kjölfar bólusetningar barst í júlí 2021.
  • Þrjár tilkynningar um andlát í kjölfar bólusetningar hafa borist í ágúst 2021.

Hefðu þrjár manneskjur látist "úr Covid" í ágúst væri að sjálfsögðu búið að birta þrjár kertum skreyttar tilkynningar.

Mikilvægt að Janssen fólk fari í örvun...

... sagði Þórólfur í Fréttablaðinu þann 18. ágúst.

"Að­spurður um hvort það sé á­hyggju­efni að færri séu að koma en voru boðaðir segir Þór­ólfur svo vera þar sem gögnin sýna greini­lega að bólu­setning komi í veg fyrir smit og sér­stak­lega al­var­leg veikindi. Þá séu al­var­legar auka­verkanir fá­tíðar eftir bólu­setningu, mikið fá­tíðari en af Co­vid-sýkingu."

Ertu að grínast Þórólfur, eða ljúga eins og venjulega? Hvar eru þessi gögn sem þú vitnar í? Eru 30 dauðsföll á 8 mánuðum, 160 lífsógnandi aukaverkanir og 1.900 hundruð konur með aukaverkanir í móðurlífinu svo fátt eitt sé nefnt eitthvað sem tekur ekki að nefna?

Tilkynntum afleiðingum þessara "góðu og öruggu" tilraunaefna fjölgaði úr 2.982 í gær í 2.998 í dag, eða um 16, og alvarlegum fjölgaði um 3, úr 187 í 190!

2508„Við erum að sjá að flestir bólu­settir sem eru að greinast með smit voru bólu­settir með Jans­sen bólu­efninu þannig það er mjög mikil­vægt að efla þeirra varnir enn frekar með því að gefa þeim örvunar­skammt,“ segir Þór­ólfur í sam­tali við Frétta­blaðið.

Já einmitt Þórólfur, þrjár konur lömuðust eftir þessar "örvunar"sprautur ykkar og ein fékk andlitslömun og þekkti hvorki mann sitt né barn í kjölfarið.

Nuremberg lögin

Það er verið að brjóta mannréttindi og lög á okkur á fleiri vegu en við getum ímyndað okkur núna, og flestir hafa ekki hugmynd um að þeir séu þátttakendur í lyfjatilraun sem stendur til 2023!

Þessi lög voru samin af gefnu tilefni árið 1948 til að koma í veg fyrir að sagan endurtæki sig.

Liður 10: During the course of the experiment the scientist in charge must be prepared to terminate the experiment at any stage, if he has probable cause to believe that a continuation of the experiment is likely to result in injury, disability, or death the the experimental subject.

0504j

Þórólfur, Alma, Kári og þið læknarnir og hjúkrunarfólk sem eruð búin að blekkja nánast alla þjóðina með lygum um eðli þessara efna sem eru ekki einu sinni bóluefni eins og við þekkjum þau, hvað varð um eiðinn sem þið sóruð?

FYRST, EKKI SKAÐA!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband