Upp komast svik um síðir, og nú eru til beinharðar sannanir um þau!

Fyrir tilstilli hugrakks uppljóstrara í Bandaríkjunum, er búið að opinbera í fyrsta skipti frumgögn um raunverulegan fjölda andláta í kjölfar sprautanna, og sannanir fyrir því að Remdesivir er stórhættulegt lyf sem veldur nýrnabilun og oft dauða í kjölfarið.

"Attorney Thomas Renz Releases Stunning Data from Never Before Seen Vaccine Injury/Death Tracking System"

Lögmaðurinn Thomas Renz hefur verið ötull í baráttunni fyrir því að fletta ofan af svikunum í kringum þennan "heimsfaraldur".

Hann kom fram á ReAwaken America Tour í Michigan á dögunum og fór meðal annars yfir hvernig tölur um aukaverkanir og andlát eftir sprauturnar eru vandlega faldar og skipulega logið um þær. Hér má sjá línurit frá VAERS sem sýnir fjölda andláta þar í landi eftir sprauturnar.

2909i

 

Ekki nóg með það, hann hann sýnir okkur líka gögn um að 25,9% sjúklinga sem fengu Remdesivir létust, og athugið, þetta lyf fékk á sínum tíma skilyrt leyfi frá Lyfjastofnun Íslands!

Hvort það er enn notað hér á landi veit ég ekki, hins vegar vill stofnunin ekki leyfa Ivermectin sem löngu er búið að sanna gildi sitt.

Látnir innan 14 daga frá "bólusetningunum"

"That data from the Medicare Tracking System reveals that 19,400 people less than 80 years old have died within 14 days of receiving the COVID-19 Vaccine.

In addition, 28,065 people have died that are over the age of 80 within 14 days of receiving the Covid-19 vaccine.

The Total number of American Citizens that died within 14 days of receiving the COVID-19 vaccine is 48,465 according to hard data revealed in the Medicare Tracking System."

Hann biðlar til samlanda sinna að dreifa þessum upplýsingum út um allt. Við erum búin að ná þeim segir hann, allt sem við höfum í höndunum er hægt að sannreyna.

Hér á Íslandi

2909jVið skulum gera okkur grein fyrir því að það sem hann fjallar um hér má heimfæra upp á Ísland, sömu lygarnar, sama þöggunin, sömu spilltu stjórnvöldin.

Ég var að renna í gegnum vefsíðu Lyfjastofnunar áðan og þegar neðst á síðuna var komið, blasti þetta við mér, Gæði - Traust - Þjónusta.

Þvílík öfugmæli hef ég aldrei séð áður held ég! Þessi stofnun neitar læknum um að ávísa lyfi sem ótal rannsóknir sýna að hafa gefið mjög góða raun í veikindum fólks, og ber við litlum rannsóknum á því.

Þessi stofnun hefur líka ítrekað logið til um fjölda aukaverkana og hvers eðlis þær eru, og segir nánast alltaf að ekkert bendi til tenginga milli sprautanna og aukaverkananna.

Hvað ætli margir Covid sjúklingar hér á landi hafi verið settir í öndunarvélar og fengið Remdesivir, og hvað ætli margir hafi ekki lifað það af?

Þetta er ein af ótal mörgum spurningum sem er ósvarað hér á landi. Það er tími til kominn að fara stoppa þetta heimsfaraldurs blæti hans Þórólfs, það er enginn heimsfaraldur í gangi, og var aldrei, en var réttlættur með fölsku jákvæðu PCR prófunum.

Dánartölur hafa verið stórkostlega falsaðar (líka hér á landi?) um heim allan, enda fá læknar og sjúkrahús ríkulega greitt fyrir það, allt til að hræða mannkynið til að láta sprauta sig með genabreytandi líftæknilyfjum.

Þetta er heimsfaraldur óttaáróðurs og lygafrétta í öllum meginstraumsfjölmiðlunum, líka þeim íslensku sem hafa aldrei fært okkur sannar fréttir um hvað raunverulega er í gangi í heiminum í dag.

Það er bara staðreynd, og því miður hafa Íslendingar upp til hópa ekki hugmynd um hvað er gerast, því það birtist aldrei á RÚV. Enda fjölmenntu þeir í Laugarvaxhöllina þegar boðunin kom, og sumir eru þegar orðnir þrísprautaðir.

Ætli þeir hafi hugmynd um að þeir séu að taka þátt í stærstu lyfjatilraun sem gerð hefur verið í heiminum? Ég stórefa það.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Af hverju heldur þú að youtube sé að ritskoða svona efni?
Vegna þess að það er rangt?

Það er að hlaupa einhver örvænting í þá, held ég.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.9.2021 kl. 21:57

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Ásgrímur,

Allt efni sem er ekki hliðhollt hinum eina leyfða málstað er ritskoðað og ekki leyft á þessum helstu miðlum.

Ég birti til dæmis bloggið á Facebook vegg mínum, og að sjálfsögðu er búið að setja viðvörun undir það vegna þess að ég tala um Ivermectin þar.

En vonandi hefurðu rétt fyrir þér með örvæntinguna hjá þessu óþverraliði öllu, því spilaborgin er að hrynja, og það all hressilega sem betur fer!

Kristín Inga Þormar, 29.9.2021 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband