23.11.2021 | 14:04
Er sóttvarnalæknir líka orðinn efnahagsráðgjafi?
Hræðsluáróðurinn er að komast á eitthvað nýtt stig núna, aðgerðirnar snúast ekki lengur um að vernda okkar brothætta heilbrigðiskerfi, heldur til að koma í veg fyrir að þjóðfélagið fari á hliðina. Fyrirtæki gætu lamast (eins og stúlkurnar eftir sprauturnar?) ef við höldum ekki samstöðu og virðum sóttvarnaraðgerðir, segir Þórólfur.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir mikilvægt að halda samstöðu og virða sóttvarnaraðgerðir því annars getum við fengið faraldurinn yfir okkur af fullum þunga og allt farið í óefni. Spítalinn hætti að geta sinnt sjúklingum með viðunandi hætti og mikilvæg starfsemi geti lamast.
Fékkstu ekki heiðursorðu 17. júní í fyrra fyrir "vel unnin störf"? Er hægt að skila svona heiðursmerkjum?
Hann vonast til að mótmæli, eins og nú eiga sér stað víða um Evrópu, vegna hertra sóttvarnaraðgerða, muni ekki eiga sér stað hér á landi.
Ég vona svo sannarlega ekki. Íslendingar hafa séð alveg það er sem skiptir máli og ef menn fara að mótmæla og taka ekki þátt, þá fáum við bara faraldurinn yfir okkur.
Hafðu engar áhyggjur Þórólfur, flestir Íslendingar fylgjast ekki með, eða trúa ekki erlendum fréttaflutningi, bara þér - og Kára.
Mikilvæg starfsemi lamast, eins og til dæmis hjá Orkuveitunni, rafmagnsveitum og ég veit ekki hvað og hvað. Allt sem við byggjum okkar líf á mun lamast út af útbreiddum veikindum. Þannig fólk þarf aðeins að horfa á þetta, segir Þórólfur í samtali við mbl.is
Þegar allt sprautaða fólkið er orðið veikt eins og til dæmis í Ísrael eða á Gíbraltar? Lestu þessa grein, Ísland er meira að segja nefnt á nafn þar.
Eins og staðan er núna get ekki séð að það sé mikið um takmarkandi aðgerðir. Fólk getur gert nánast það sem það vill. Ég held við ættum að horfa á það og ef okkur tekst að ná kúrvunni niður þá eigum við bara að gleðjast yfir því og vera sammála um það.
Þessari eins og hálfs árs tveggja vikna kúrvu? Mikið er gott að eiga trúverðuga vísindamenn að.
Tíðrætt hefur verið um að vernda heilbrigðiskerfið og spítalann og þau rök gjarnan gefin fyrir hertum aðgerðum, en aðgerðir voru síðast hertar hér á landi fyrir rúmri viku. Þá aðallega í formi hertra samkomutakmarkana og grímuskyldu. Þá hafði yfirstjórn spítalans kallað eftir hertum aðgerðum í fjölmiðlum.
Þessu illa rekna heilbrigðiskerfi sem fer á hliðina á hverju einasta ári hvort eð er? Og hvaða "nýju" vísindi dúkkuðu allt í einu upp, manstu þegar þú sagðir í júní í fyrra að grímur gerðu ekkert gagn, svo tókstu á núll einni 180 gráðu beygju og skelltir á okkur grímuskyldu?
Aðspurður segir Þórólfur hins vegar erfitt að segja til um það hvort við værum í vægari aðgerðum hér á landi ef staðan á spítalanum væri betri; gjörgæslurými fleiri, mönnunarvandi ekki til staðar og hann hefði meira bolmagn til að bregðast við fjölgun smita. Enda séu fleiri þættir sem þarf að horfa til.
Hefði ekki verið nær að verja þessum milljörðum sem búið er að setja í "bóluefnin" og PCR prófin í að efla heilbrigðiskerfið?
22 einstaklingar liggja nú inni á Landspítalanum með covid-19, þar af þrír á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Þórólfur segir mikilvægt að ná þessum tölum niður og bendir á að spítalinn sé enn á hættustigi. Hann er bara í verulega erfiðum málum þegar á heildina er litið.
Við þurfum að reyna að koma tölunum neðar niður. Það er líka fullt af veiku fólki þarna úti. Við erum með 1.700 til 1.800 manns í eftirliti á covid-göngudeildinni og sumir eru ansi veikir. Þannig við erum ekki bara að tala um hvað það liggja margir á gjörgæslu, það er svolítið toppurinn á ísjakanum.
Hvað eru margir hinna ansi veiku sprautaðir? Varstu búinn að frétta að mest bólusettu löndin eru með mestu veikindin og dauðsföllin? Eða að Bretar eru farnir að sjá í gegnum sprautuóðan forsætisráðherra sinn?
En hafðu engar áhyggjur samt, landinn dýrkar þig ennþá.
102 greindust með covid-19 innanlands í gær og hefur smitum farið fækkandi síðustu daga. Smittölur náðu hámarki í faraldrinum hingað til í síðustu viku þegar smit fóru yfir 200 á einum degi.
Gott að heyra, fór kannski sýnatökum veiruhræddra sprautaðra Íslendinga fækkandi?
Þórólfur segir mögulegt að við séum búin að ná toppnum í þessari bylgju þó vissulega séu enn dreifð smit um allt land. Mér sýnist þetta vera að mjakast niður og kannski er ég að vonast til þess líka, en við þurfum bara að sjá. Við sjáum hvað gerðist í sumar, það tók okkur um mánuð að komast niður í um 50 smit, eða eitthvað svoleiðis, og kannski verður staðan svipuð núna. Það þarf samt ekki mikið að gerast til að við fáum allt í einu kúrvuna aftur upp, hópsmit í einhverjum skóla eða á vinnustað. En heildarþróunin sýnist mér vera sú að þetta sé að mjakast niður.
Hefurðu séð myndina Groundhog Day?
Hann segir því ljóst að aðgerðirnar séu að virka og augljóst að fólk sé að passa sig. Það sem er jákvætt líka er að við sjáum að hlutfall þeirra sem eru í sóttkví við greiningu er aðeins að aukast líka, þannig það eru nokkur jákvæð merki um að kannski sé þetta aðeins að láta sig. En það er kannski fullsnemmt og kannski er þetta óskhyggja, en ég vona að þetta sé raunverulegt.
Mikið er gott að vita að þú hugsar svona ægilega "vel" um líf og heilsu okkar kæri Þórólfur, og þú átt heiður skilinn fyrir að bæta áhyggjum af efnahagsmálum landsins á þínar herðar líka!
Ertu nokkuð með símanúmerið hjá sprautustrætónum?
Svona í restina
Nýjustu tölur um aukaverkanir eru 5.606 þegar þetta er skrifað (5.595 í gær), þar af 201 lífsógnandi og 32 andlát.
Þórólfur og Kári geta ekki beðið eftir því að byrja að sprauta 5-11 ára börnin líka, það má bara aldrei gerast! Fólk þarf að fara að gera sínar eigin rannsóknir, ekkert barn hefur dáið úr pestinni, en allir fara á hliðina núna ef krakki fær hor í nös.
Hafa krakkar aldrei áður fengið kvef eða pestir á haustin? Fattiði ekki heilaþvottinn á ykkur ennþá?
Athugasemdir
Spurði enginn sóttvarnalækni um meintan árangur aðgerða þegar smittala dagsins endaði í yfir 200? Vonandi ekki því þá gæti Sótta dottið í hug að aðgerðirnar séu ekki nógu harðar.
En það er von.
Um 100% eldri en sextugt á Íslandi fóru í sprautu.
Um 85-93% 16-59 ára fóru í sprautu.
Um 75% 11-15 ára fóru í sprautu.
Kannski sleppa 35% 5-11 ára við sprautu sem þýðir því miður að 65% aldurshópsins fær vinsamlega fylgd í stóran sal með sérstökum "panic rooms" tilbúnum til að róa taugar fyrir eða eftir eða bæði.
Geir Ágústsson, 23.11.2021 kl. 20:47
Sæll Geir,
Allar spurningar sem hann fær eru bara kattarmjálm sem hann gæti svarað bæði afturábak og áfram og upp úr svefni.
En enginn má koma þeirri hugmynd inn hjá honum að aðgerðirnar séu ekki nógu harðar, guð forði okkur frá því, hann gæti fengið þá dillu í hausinn að setja upp einangrunarbúðir fyrir ósprautaða eins og verið er að reisa í mörgum löndum!
Ég á þá ósk heitasta að hægt verði að forða 5-11 ára börnunum frá þessum eitursprautum, ég á einmitt barnabarn í þeim aldurshópi.
Ég er ekkert að segja þetta út í loftið, ég er búin að sjá nógu margar sannanir fyrir skaðsemi þessara hroðalegu eiturefna, í rauninni allt of margar.
Kristín Inga Þormar, 23.11.2021 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.