Nú verðið þið hinir sofandi Íslendingar að vakna, annars munuð þið leyfa það að við verðum svipt öllu!

Hafið þið ekkert fylgst með því sem er að eiga sér stað í nágrannalöndum okkar sem og löndum eins og Nýja Sjálandi og Ástralíu?

Gamli nasisminn og fasisminn sem aldrei áttu að fá að endurtaka sig, hafa hafið innreið sína að fullu í þessum löndum!

Ef þið neitið að vakna til raunveruleikans, þá er hvorki ykkur né okkur sem þjóð viðbjargandi, og það mun algjörlega skrifast á ykkur að þjóðinni verði fækkað með eitursprautum sem voru akkúrat hannaðar til þess - að skaða og drepa fólk, meira að segja börn í móðurkviði!

Hvers vegna haldið þið að ég og aðrir séum að verja okkar prívat tíma til að afla upplýsinga til að færa ykkur sannanir fyrir því að þessi svokölluðu "bóluefni" séu efnavopn sem voru hönnuð til að drepa okkur og fækka mannkyninu? Haldið þið að við höfum ekkert betra við tíma okkar að gera?

Staðreyndin er bara sú að við sem erum löngu vöknuð, erum mörg hver búin að skrifa um þennan hrylling, færa fjölmiðlum, skólastjórnendum, öllum alþingismönnum og öllum þeim sem stjórna umræðunni um þennan meinta "heimsfaraldur", ótal sannanir fyrir blekkingunum sem í gangi eru.

En viðbrögðin eru yfirleitt alltaf á sama vegu, þau eru lítil sem engin.

Ég fékk nýlega athugasemd við bloggfærslu frá vel menntuðum eldri herramanni sem er virkur hér á Moggablogginu, sem fann málflutningi mínum allt til foráttu og skrifaði sjálfur sérstaka bloggfærslu um það mér til minnkunar sem mér var bent á.

Ég hef aldrei fylgst með bloggum þessa manns, en sá að sólarhring eftir bloggfærslu hans hafði hann hvorki fengið læk né undirtektir við málflutning sinn.

Gera má líklega ráð fyrir því að hann, þrátt fyrir sína menntun og lífsreynslu hafi samt sem áður fallið fyrir lygunum og óttaáróðrinum, enda sýnist mér hann hafa skrifað neikvæðan póst um mig og mína gagnrýni á Kára Stefánsson sem hann hefur greinilega í guðatölu.

Breskur útfararstjóri sem tjáir sig aftur

1208o

Hér er breski útfararstjórinn John O’Looney sem gerðist uppljóstrari eftir það sem hann upplifði í sínu starfi, aftur að vekja athygli á gríðarlegri aukningu í dauðsföllum í Bretlandi sem felur meðal annars í sér blóðtappa, heilablóðföll, hjartaáföll og heilablæðingar. (Hefur einhver fylgst með öllum fótboltaköppunum sem eru að detta núna niður í leik og jafnvel deyja?)

Ef einhver ætti að vera með puttann á púlsinum, þá er það manneskja sem vinnur við að taka á móti látnu fólki og búa það til útfarar.

Hann segir líka eitthvað sem kemur ekkert á óvart, að útfararstjórum hafi verið mútað og verið þrýst á að fela raunverulegar ástæður andláta.

Hann segist hafa séð núna fleiri andlát vegna blóðtappa á þessu ári en á öllum sínum 14 ára ferli samanlagt.

Horfið á þetta: UK funeral director sends chilling message about sharp rise in Covid-19 vaccine deaths.

Ég skrifaði um þennan sama mann 12. júlí síðastliðinn, þar sem hann sagði að það hafi ekki verið nein fjölgun útfara í Bretlandi fyrir en þessar tilraunabólusetningar hófust.

Í sama bloggi skrifaði ég líka um fjölda tilkynntra aukaverkana hér á landi, og þann dag voru þær 2.123, þar af 107 alvarlegar og 26 andlát.

Landlæknir okkar lúrði í einhverja mánuði á nokkur þúsund tilkynntum aukaverkunum sem var smátt og smátt bætt inn. Hvers vegna gerði Alma það?

Nú eru þær komnar upp í 5.808, þar af 251 alvarleg, og þeim fjölgar með hverjum deginum síðan bústin sem á annað hundrað þúsund Íslendinga hafa hlaupið í.

Óóó, það er komið upp enn eitt "afbrigðið", Þórólfur hefur voðalega miklar áhyggjur og lofar að bústið sé svarið.

Fullbólusett íslensk stúlka greindist með nýja "afbrigðið" um daginn eftir að hafa "greinst og veikst" af fyrra afbrigði aðeins mánuði áður.

Það fylgir ekki sögunni hvort hún hafi verið búin að fara í bústið áður, en ég gat ekki á mér setið og póstaði þessari frétt á FB vegg mínum og hvatti alla ósprautaða (í smá gríni) til að drífa sig í sprauturnar svo aumingja stelpan þyrfti ekki að veikjast einu sinni enn.

En þetta er víst allt okkur þeim ósprautuðu að kenna....

Þið meðvirku og heilaþvegnu Íslendingar

Viðhorf ykkar meðvirkra Íslendinga verður væntanlega til þess að ósprautuð 12 ára dótturdóttir mín mun ekki komast á fótboltamót í útlöndum á næsta ári, því krafist er að allar stelpurnar hafi verið sprautaðar með þessum genabreytandi tilraunalyfjum sem eru hreint engin bóluefni eins og við höfum þekkt þau hingað til.

Svo, bara skammist ykkar þið heilaþvegnu Íslendingar sem hafið leyft að súrefnishamlandi grímum sé troðið upp á andlit barnanna okkar og leyft að þau séu sprautuð með efnum sem sannanlega drepa þau eins og okkur fullorðna fólkið líka.

Ég nenni ekki neinni meðvirkni lengur. Hingað til hef ég kurteislega reynt að benda ykkur á að ekki sé allt sem sýnist í þessum meinta "heimsfaraldri", og alltaf með gögnum máli mínu til staðfestingar.

Ég hef verið svo lánssöm að skrif mín hafa náð til margra, svo vonandi hef ég og þau hin öll sem eru líka að reyna að vekja fólk náð að vekja fleira fólk, en það virðist samt ekki vera nóg til að hrista upp í fólki og fá það til að gera sínar eigin rannsóknir.

Svo ég segi bara aftur, það verðið þið hinir sofandi Íslendingar sem munu leyfa því að við verðum svipt öllu!

Hefur eitthvert ykkar sögu að segja?

Það sem sárvantar hér á landi er að fólk þori að stíga fram og segja frá aukaverkunum eftir sprauturnar, eða skyndileg andlát ástvina sinna, jafnvel ungs og heilbrigðs fólks sem varð bráðkvatt stuttu eftir sprauturnar.

Ég kallaði eftir frásögnum í sumar og skrifaði meðal annars sorglega sögu aldraðra foreldra manns sem voru þvinguð í sprauturnar.

Ef einhver vill stíga fram, jafnvel nafnlaust, þá vildi ég gjarnan fá að skrifa ykkar sögu í fullri samvinnu við ykkur.

Þið getið sent mér skilaboð á Facebook veggnum mínum sem er á mínu nafni.

Ég sjálf er komin vel yfir miðjan aldur og hef gert nánast allt sem mig hefur langað til í þessu lífi, en ég mun aldrei hætta að berjast fyrir því að mín börn og barnabörn - eða allra ykkar hinna, fái að lifa án allra þessara skelfilegu áætlana sem búið er að ákveða fyrir hönd okkar allra, að okkur forspurðum.

1208h

Ítarefni:

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ást.

Guðjón E. Hreinberg, 8.12.2021 kl. 23:07

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Guðjón,

Ég geri ráð fyrir að þú sért með þessu að lýsa velþóknun þinni yfir þessari færslu minni.

Ég veit að þú ert bróðir minn í þessari erfiðu og skelfilegu baráttu gegn þessum hryllingi sem er að eiga sér stað núna, svo ég segi bara ást á móti.

Kristín Inga Þormar, 8.12.2021 kl. 23:47

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Aldeilis vel skrifað og mikið lesið,ætli einhverjir af þeim fjölmörgu sem eru þegar búnir að lesa pistilinn,viti ekki að þetta er laukrétt.Mér finnst eins og ég sé í bófahasar ef ég skrifa hérna stafkrók,þess vegna hugðist ég prófa að svara Guðjóni eins og hefði gert fyrir 12-13 árum!   Nei ég er svo alræmd að best þótti að þurrka þennan uppryfjunar pistil út.-- -- Það þýðir ekki að vera á þessum miðli,kannski best að komast inn á þann sem Trump notar (hvort hann á hann eður ei,hef ekki hugmund um það  

Helga Kristjánsdóttir, 9.12.2021 kl. 00:23

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæl Helga,

Þakka þér kærlega fyrir, já ég veit að margir viti að þetta sé laukrétt, og svo munu líklega einhverjir telja mig snarruglaðan samsæriskenningarsmið, en það skiptir mig engu máli.

Margir bíða spenntir eftir nýja samfélagsmiðlinum hans Trump sem mun leyfa þær umræður sem flestir aðrir banna, það verður gaman þegar hann kemst í loftið.

Kristín Inga Þormar, 9.12.2021 kl. 09:51

5 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Það er mjög athygslivert á covid.is að allt að þriðjungur 50 og eldri er ekki búinn að fara í 3ju sprautu. Þannig að það ætti að vera einhver von um að fólk sé að vakna.

Held að margir hafi farið í tvær sprautur til að sjá hvað gerist en þegar kom boð um 3ju þá stoppar fólk og hugsar. Það er eitthvað svo kolrangt við þetta.

Rúnar Már Bragason, 9.12.2021 kl. 12:21

6 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Rúnar,

Já ég hef heyrt frá fólki í kringum mig að ættingjar og vinir kæri sig ekki um fleiri sprautur, og vonandi að ef það sama fólk á börn á aldrinum 5-11 ára, að það neiti að láta sprauta þau líka!

Kristín Inga Þormar, 9.12.2021 kl. 12:32

7 Smámynd: Þröstur R.

Stundum gleymum við að spyrja einföldustu spurninga þangað til einhver minnist á það að fyrrabragði. En þegar þessi einfalda spurning er spurð þá er ekki eins auðvelt að svara henni.

Þröstur R., 9.12.2021 kl. 15:21

8 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Þröstur,

Já þetta er góð og verðug spurning, það væri fróðlegt að vita hvort einhver hefði svör við henni!

Kristín Inga Þormar, 9.12.2021 kl. 16:28

9 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Hvað er þetta?

https://x22report.com/#    https://x22report.com/

Official X22 Report Accounts

X22 Report is not on YouTube
X22 Report is not on Twitter
X22 Report is not on Facebook
X22 Report is not on Instagram
X22 Report is not on Gettr
X22 Report is not using Paypal

 


Official X22 Accounts

Private Secure Server

 

Video
Rumble
Bitchute
Clouthub

Social
Telegram
Gab
Parler
Minds
Steemit

Official Account Page

 

X22 Report Spotlight Audio

Mask Facts

Jónas Gunnlaugsson, 9.12.2021 kl. 16:52

10 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jónas,

Takk fyrir þetta, ég hef ekki séð þessa síðu fyrr, það verður gaman að skoða hana og sjá hvort hún sé með eitthvað áhugavert efni.

Kristín Inga Þormar, 9.12.2021 kl. 17:40

11 Smámynd: Loncexter

Einn glöggskarpur maður útí bæ er að hringja í vini og vandamenn sem hafa fengið sprautur, og ráðleggur þeim að taka út allann sparnað sem það getur og hætta að borga í langtímasjóði og ganga vel frá erfðarmálum, svo hrægammarnir nái því ekki öllu þegar þetta fólk fellur frá langt fyrir tímann ! Góð hugmynd þetta.

Loncexter, 9.12.2021 kl. 19:09

12 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Loncexter,

Já þetta er örugglega mjög góð hugmynd, ég er búin að lesa eitthvað um að allir sjóðir heimsins séu orðnir tómir því hrægammarnir séu búnir að stela þeim, og að það sé ein af ástæðunum fyrir því að þessi "heimsfaraldur" skall á núna.

Ég ætla samt ekkert að fullyrða um það, hef ekki (enn) kynnt mér það nógu vel til að fara að skrifa um það.

Kristín Inga Þormar, 9.12.2021 kl. 21:57

13 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Peningur er aðeins bókhald og bókhald þá aðeins tala. 

Bankinn átti ekkert í húsinu sem hann tók til sín 2008 

Fasteignirnar voru aðeins í eign framkvæmda getu þjóðarinnar. 

Peningurinn, seðillinn er aðeins prentuð inneignar nóta hjá framleiðslu getu þjóðarinnar. 

Allt kemur frá huga og höndum fólksins. 

Ef ekki er framleiðsla og tekjur af útflutningi, til að kaupa erlendar vörur, er ekkert. 

Þá er ekkert gagn í seðlinum, tölunni á kortinu, það er aðeins bókhald. 

Allt kemur frá huga og höndum fólksins, það er Jóns og Gunnu. 

Egilsstaðir, 09.12.2021   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 12.12.2021 kl. 22:02

14 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jónas,

Alveg hárrétt hjá þér, takk fyrir þetta!

Kristín Inga Þormar, 12.12.2021 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband