21.8.2022 | 21:18
Skelfileg aukning krabbameina í heiminum eftir "bólusetningarnar" - hvernig er staðan á Íslandi?
Ég horfði nýlega á viðtal við lækni sem starfar í Svíþjóð. Hún er yfirlæknir meinafræðideildar í háskólanum í Lundi, og hefur starfað í því fagi síðastliðin 25 ár, þar af 18 ár með sérstaka áherslu á brjóstakrabbamein.
Hún hefur rannsakað þúsundir krufninga og sýna af brjóstakrabbameinum, og er þar af leiðandi komin með gríðarlega þekkingu á þróun og ferlum þessara meina.
En allt breyttist eftir að farið var að "bólusetja" fólk árið 2021.
Hún sagði meðal annars þetta:
- Aldur - Meðalaldur sýnanna sem hún fékk lækkaði, með aukningu á fjölda sýna frá fólki á aldrinum 30-50.
- Stærð Það var áður óvenjulegt fyrir Dr. Kruger að finna æxli sem var 3 cm að stærð. Í þessu nýja umhverfi sér hún reglulega æxli sem eru 4 cm, 8 cm, 10 cm og einstaka sinnum 12 cm. 2 vikum áður fann hún 16 cm æxli sem fyllti heilt brjóst.
- Mörg æxli Dr. Kruger er farin að sjá fleiri tilfelli þar sem mörg æxli vaxa hjá sama sjúklingi, stundum jafnvel í báðum brjóstum. Hún fjallaði um 3 tilfelli á þriggja vikna tímabili þar sem sjúklingar voru með vaxandi æxli í mörgum líffærum. Einn var með æxli í brjósti, brisi og lungum innan nokkurra mánaða frá því að hann var bólusettur.
- Endurupptaka - Það hefur verið fjölgun á sjúklingum sem hafa verið í bata vegna krabbameins í mörg ár, en fá skyndilega illvíga endurkomu þess stuttu eftir bólusetningu.
Turbo-Cancer - We Have a Problem
Viðtalið má finna hér, þar sem hún segir líka meðal annars frá áhugaleysi yfirvalda og kollega hennar á rannsóknum hennar á aukningu krabbameina eftir sprauturnar.
Hún endaði viðtalið á því að segja að hún hafi farið í læknisfræði til að hjálpa fólki, en nú líði henni eins og verið sé að drepa fólk fyrir augunum á henni og það sé ekkert sem hún geti gert.
Frekari heimildir um krabbamein eftir sprauturnar:
- Idaho doctor reports a 20 times increase of cancer in vaccinated patients
- Thousands report developing abnormal tumors following COVID shots
- U.S. Government data confirms a 143.233% increase in Cancer cases due to COVID Vaccination
- The COVID-19 mRNA Vaccines cause Cancer; heres the evidence
- What do you think happened in early 2021?
- Official Government Reports prove the COVID Vaccines cause Cancer
- COVID Vaccines are at least 75x deadlier than all other Vaccines combined according to Medicine Regulators
- Mjög fróðlegt viðtal við Dr. Ryan Cole: These Arent Normal Cancers: What Doctors Are Seeing After COVID Shots
Stop the Shots!
Hér er ákall yfir 40 lækna um að stöðva þessar "bólusetningar".
Hvar eru íslensku læknarnir, er enginn nema Guðmundur Karl Snæbjörnsson (Kalli Snæ) sem þorir að tjá sig opinberlega um þessi svokölluðu "bóluefni" og allar aukaverkanirnar eftir þær sem eru núna orðnar um 6.200?
Eru íslenskir læknar blindir og heyrnarlausir - eða bara gungur?
Staðan hér á Íslandi?
Það hlýtur að blasa við að þar sem fólk var sprautað með sömu genabreytandi líftæknilyfjunum (sem eru ranglega kölluð bóluefni) hér á landi og annars staðar, að það hafi sömu afleiðingar fyrir marga hér á landi.
Ég veit um að minnsta kosti fjórar íslenskar konur sem eru að glíma við (brjósta)krabbamein núna, sumar við mjög illvíg. Eru þetta bara tómar tilviljanir, eins og hjá öllum sem létust hér á landi eftir sprauturnar?
Eru þær allar sprautaðar? Ég veit það ekki, en þykir það ekkert ólíklegt miðað við að stærstur hluti þjóðarinnar er tví- eða jafnvel þrísprautaður.
Ég hef að minnsta kosti aldrei áður vitað um svona margar manneskjur með krabbamein á sama tíma, allar vel undir sextugu.
Mun einhver íslenskur meinafræðingur eða læknir eins og Dr. Kruger stíga fram á næstunni og segja frá aukningu í krabbameinum, óútskýrðum skyndiandlátum, hjartaáföllum, heilablóðföllum, hjartavöðvabólgu, eða öðrum þekktum aukaverkunum eftir sprauturnar?
Því miður eru hverfandi líkur á því, hér á landi er allt þaggað niður, eða nánast afneitað.
Íslendingar sofa margir hverjir ennþá vært í faðmi fráfarandi sóttvarnalæknis sem ásamt fleirum dásömuðu "bóluefnin" og nörruðu stærsta hluta þjóðarinnar í sprauturnar, og það sem verra er, líka börn og unglinga.
Mér er fyrirmunað að skilja hvernig þetta fólk geti sofið á nóttunni.
Athugasemdir
Þakka þér fyrir þessa grein þína Kristín. Ég tek heilshugar undir síðustu setningu þína.
Slæmir hlutir gerast þegar "gott" fólk þegir er það verður vart við verk hins illa og þegir til að bjarga eigin skinni.
Tómas Ibsen Halldórsson, 21.8.2022 kl. 22:41
Sæll Tómas,
Já það er ótrúlegt að hugsa til þess að fólk geti bara þagað og litið í hina áttina.
Kristín Inga Þormar, 22.8.2022 kl. 08:07
Mig grunaði þetta svosem í upphafi.
Svo fóru einhverjir guttar á netinu að segja mér að krabbinn væri alvöru - það var fyrir meira en ári núna.
Þetta er ekki nýtt, bara meiri upplýsingar, meiri staðfesting á rökstuddum grun.
Ég er búinn að vera að segja vinnufélögunum að það verði eki lengur hægt að klóra yfir hann í byrjun næsta sumars, það verði svo mikill krabbi þá.
Loftslagsbreytingum verður kennt um.
Ásgrímur Hartmannsson, 22.8.2022 kl. 22:26
Sæll Ásgrímur,
Flest, ef ekki allt sem alvöru vísindafólk byrjaði að vara við í fyrra virðist vera að koma fram, en allt flokkað sem samsæriskenningar og áróður.
Sprauturnar eru öruggar og áhrifaríkar (Safe and effective) er okkur enn sagt á samfélagsmiðlum ef við dirfumst að birta eitthvað gegn hinum eina leyfða málstað.
Ég bloggaði í júlí um kostulegar tilraunir til þess að fela hjartaáföllin eftir "bólusetningarnar", og þar á meðal birti ég skjáskot af vægast sagt ógeðfelldri "frétt" um að loftslagsbreytingarnar breyttu börnum í móðurkviði, og gerðu þau viðkvæmari fyrir hjartasjúkdómum.
Þessir vitfirringar nota allar leiðir til að reyna að blekkja fólk, og í leiðinni að svíkja milljarða af skattpeningum okkar í "bóluefnin", og þessa svokölluðu loftslagsvá.
Kristín Inga Þormar, 23.8.2022 kl. 08:39
Alveg sturlað góð fréttaumfjöllun að venju. Þú lætur hefðbundna blaðamenn líta út eins og ólæsa og óskrifandi bleiubörn.
Geir Ágústsson, 25.8.2022 kl. 16:11
Sæll Geir,
Þakka þér kærlega fyrir þessi fallegu orð í minn garð!
Hvað get ég annað gert nú þegar ótvíræðar sannanir um skaðsemi þessara genabreytandi tilraunalyfja eru komnar fram?
Flest, ef ekki allt sem heiðarlegir læknar og vísindamenn voru búnir að vara við að gæti gerst, er því miður að raungerast.
Og þetta á bara eftir að versna, því miður, en áfram skal haldið að sprauta fólk!
Kristín Inga Þormar, 25.8.2022 kl. 18:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.