20.4.2024 | 18:00
Hvers konar manneskja getur haft svona skelfilega skoðun?
Hvernig getur henni sem þriggja barna móður þótt í lagi að drepa barn sem jafnvel komið er að fæðingu, og hver er munurinn á því að drepa fullburða barn í móðurkviði, eða þegar það er nýfætt?
Ég ætla að leyfa mér að stórefast um að flestar konur, kannski sérstaklega þær sem hafa reynsluna af því að ganga með og fæða börn séu sammála þessu, og ekki karlmenn heldur.
Og myndu íslenskir læknar vilja taka að sér að fremja drápin á fullburða börnum?
En hvað með rétt barnsins til að fæðast og lifa?
Þá lýsti Katrín því yfir að hún teldi rétt að konur hefðu rétt til þess að eyða fóstrum allt fram að fæðingu, en hefðbundin meðganga er talin 37 til 42 vikur. Segist hún treysta konum til að taka réttar ákvarðanir um líkama sinn og að engri konu sé það léttbært að láta eyða fóstri.
Það eru konur sem ganga með börn, ekki "fólk"!
En lögin eru uppfull af lagabálkum þar sem við treystum ekki fólki. Þetta er væntanlega ekki eina málið þar sem við treystum fólki ekki. Fólk getur líka tekið hræðilegar og svívirðilegar ákvarðanir og ríkið bregst við eða reynir að koma í veg fyrir slíkt.
Ja, það er eins og ég segi með þessar ákvarðanir að þær eru ekki teknar af léttúð, þegar fólk ákveður að fara í þungunarrof. Þess vegna vil ég ekki tala um slíkar ákvarðanir sem svívirðilegar, eins og að ráðast í glæpi eða eitthvað slíkt.
En mörgum þætti það svívirðilegt að deyða barn degi fyrir fæðingu.
Ég held líka að það sé ekki raunin og bendi á reynsluna af lögunum, svarar Katrín.
Manneskja sem hefur svona ógeðfellt viðhorf til lífsins á ekkert erindi á Bessastaði að mínu mati, og örugglega margra annarra líka, svo það er gott að hún skyldi vera spurð að þessu svona í byrjun kosningabaráttunnar.
Ef henni þykir ekkert tiltökumál að láta drepa ungabörn, hverju öðru getum við þá búist við af henni?
Sagt er að hún hafi mikið fylgi meðal eldri borgara, en ég á bágt með að trúa því.
Rifjum aðeins upp orð hennar frá 2017:
Stjórnvöld eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlætinu, sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri-grænna, í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra. Hún sagði núverandi ríkisstjórn gera ráð fyrir að öryrkjar og aldraðir hokruðu áfram og byggju við skammarleg kjör. Á sama tíma dygðu lægstu laun ekki til framfærslu og fólk á lægstu launum væri beðið um að vera þakklátt fyrir 20 þúsund krónur því hlutfallslega væri það ekki lítið.
Restina af froðunni má lesa hér.
Það voru til nægir peningar í ríkiskassanum til að verja 5-6 milljörðum í þessi "bóluefni", álíka upphæð til að senda til stríðsreksturs í öðru landi, og gleymum ekki montráðstefnunni í Hörpu í fyrra sem kostaði eitthvað álíka.
Hvað þá milljarðatugirnir sem fara á ári hverju í flóttamannahítina. Allt hefur þetta gerst í forsætisráðherratíð hennar!
Og gamla fólkið og fátækir bíða enn, sjö árum síðar ...
Nýleg skrif mín þar sem Katrín kemur við sögu:
- Nei takk, ég vil ekki svona manneskju í embætti forseta Íslands!
- Á forseti Íslands að verja hagsmuni Íslendinga, eða ókjörinna erlendra alþjóðastofnana?
- Viljum við fulltrúa WEF og Davos Klíkunnar á Bessastaði?
- Sameinuðu þjóðirnar og heimsmarkmiðin 17
Margir halda því fram að búið sé að ákveða að hún verði næsti forseti Íslands, og kæmi það mér hreint ekkert á óvart, enda fáum við ekkert að vita um hvað fram fer bak við tjöldin í þessu blessaða gjörspillta landi okkar.
En kjósum einhverja allt aðra en fólk sem er að vinna fyrir ókjörnar alþjóðastofnanir sem þykjast "ætla að bjarga heiminum fyrir okkur", en eru í raun að koma á einni alheimsstjórn.
Vill engin tímamörk á fóstureyðingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég er auðvitað sammála þér, hvað þá voðalegu tilhugsun snertir, að Katrín Jakobsdóttir verði kjörin sem Forseti Íslands.
Katrín hefur ítrekað sýnt það og sannað í verkum sínum og skoðunum að hún ber fremur aðra hagsmuni fyrir brjósti, en velsæld íslensku þjóðarinnar.
Jónatan Karlsson, 20.4.2024 kl. 19:17
Sæll Jónatan,
Já einmitt, tilhugsunin um það er alveg skelfileg.
En er einhver fótur fyrir þessu meinta fylgi hennar?
Við vitum alveg hvernig fjölmiðlarnir hegða sér, og svo mætti líka velta fyrir sér áreiðanleika þessara skoðanakannana.
En það er óhrekjanleg staðreynd að hún hefur í forsætisráðherratíð sinni valdið þjóð sinni miklum skaða með þjónkun hennar við þessa erlendu djöfla!
Kristín Inga Þormar, 20.4.2024 kl. 19:48
Sæl Kristín Inga, ég er þér hjartanlega sammála, Katrín á ekkert erindi á Bessastaði.
Verð einnig að taka fram að ég hlustaði á þætti þína á Útvarpi Sögu, meiriháttar fróðleikur sem þar kom fram.
Tómas Ibsen Halldórsson, 20.4.2024 kl. 20:42
Sæll Tómas,
Ég var að sjá að hún hugsar sér að sitja átta til tólf ár á Bessastöðum!
En gaman að þú skyldir hlusta á þættina, við erum búin að fá alveg svakalega góð og jákvæð viðbrögð við þeim, þarna kom margt fram sem fólk hafði ekki hugmynd um.
Við verðum með framhald næsta miðvikudag þar sem við höldum áfram með þessi skelfilegu heimsmarkmið og ýmislegt fleira, svo ég hvet sem flesta til að hlusta!
Kristín Inga Þormar, 20.4.2024 kl. 21:14
Takk fyrir frábæran pistil að venju.
Þessi manneskja sem elítan og RUV ætla að setja
sem forseta er bara hreint út sagt alveg ga,ga.
Ef þjóðin kýs manneskju sem styður morð á börnum, og þá á við
fram að fæðingu, þá er eitthvað mikið að þjóðinni.
Hér er smá blogg sem ég setti út og tend við hvert orð..
Kata mun fara svo sparlega með málsskotsréttinn að hann verður
ALDREI notaður. Hún samþykkti ICESAFE svo gott sem án þess að
lesa samningin. Hún var ekki sátt með Ólaf Ragnar þegar hann
veitti þjóðinni þennan rétt. Flestir ef ekki allir sem smaþykktu
ICESAFE voru sama sinnis. Nú höfum við þrjá frambjóðendur sem
vildu Íslandi allt illt í kjölfar ICESAFE.
Kata, Baldur og Halla. Ef fólk kýs einn af þessum frambjóðendum
til forseta var allt sem vannst með kosningunum sem Ólafur Ragngar
veitti okkur til einskis unnið.
Er það virkilega það sem fólk vill.??
Sigurður Kristján Hjaltested, 20.4.2024 kl. 22:00
Sæll Sigurður og þakka þér kærlega fyrir.
Já ég vil bara ekki trúa því að þjóðin vilji svona manneskju sem forseta okkar.
Flott blogg hjá þér, ég er alveg sammála þér að við megum alls ekki að fá svona fólk inn á Bessastaði.
En ætli fólk láti stjórnast af umfjöllun fjölmiðla um frambjóðendurna og þessum skoðanakönnunum?
Ég óttast því miður að svo verði.
Kristín Inga Þormar, 20.4.2024 kl. 22:37
Hvað ef einhverjir hvalveiðimenn færu að taka kálfa úr mæðrum og selja ?
Hvað mundu hvalveiðiandstæðingar kalla það ?
Loncexter, 21.4.2024 kl. 00:29
Sæll Loncexter,
Jæja segðu, eða fjarlægja þá og drepa? Það yrði allt vitlaust hjá hvalveiðiandstæðingum og veiðimennirnir kallaðir morðingjar.
Ætli Katrín liti ekki á þetta sem hreina viðurstyggð?
Kristín Inga Þormar, 21.4.2024 kl. 09:59
Hún er kommúnisti.
Ef kommúnistar geta ekki myrt börn í móðurkviði, þá skera þeir undan börnunum þegar þau eru fædd.
Svo er fólk bara tekið af lífi ef það hentar ekki að hafa lifandi lengur, til að "spara í heilbrigðiskerfinu."
Ásgrímur Hartmannsson, 22.4.2024 kl. 19:25
Sæll Ásgrímur,
Þetta er allt partur af þessum skelfilegu 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (Agenda 2030) og þessara illvirkja sem eru í óðaönn við að koma á einni alheimsstjórn.
Katrín sagði í ræðu í fyrrasumar að hraða þyrfti á innleiðingu þessara markmiða hér á landi.
Kristín Inga Þormar, 22.4.2024 kl. 20:32
Af hverju voru læknarnir að eyða tíma í að bjarga ,,ekkibarni" eins og Kata heldur fram ?
Bjargað úr móðurkviði eftir árás á Rafah - RÚV.is (ruv.is)
Loncexter, 23.4.2024 kl. 14:18
Sæll aftur Loncexter,
Úff, ég var ekki búin að sjá þessa hræðilega sorglegu frétt úr þessu ömurlega stríði.
Hvað hefði Katrín sagt ef hún hefði verið spurð hvort bjarga ætti þessu barni?
Mér sýnast læknarnir þarna hafa siðferðið í lagi með því að gera allt sem þeir gátu til að bjarga því.
Kristín Inga Þormar, 23.4.2024 kl. 14:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.