15.8.2024 | 18:55
Apabólubullið, og grafarþögn Willums
Ætli það sé hlaupin einhver örvænting í herbúðir Alþjóðaheilbrigðismála-
krimmanna, og að þeir séu að reyna að hraða hinum illu plönum sínum?
Ég kalla þá (WHO) gjarnan þessu nafni, enda eru þetta glæpasamtök sem hafa allt annað en heilsu og heilbrigði mannkynsins að leiðarljósi.
Ég ætla ekkert að fjalla neitt um það hér, enda tel ég mig hafa sýnt rækilega fram á þetta í eldri bloggum, set nokkra hlekki á þau hér neðanmáls.
Ég vissi að það stæði til að halda neyðarfund þann 14. ágúst um hvort lýsa ætti yfir neyðarástandi vegna mpox (apabólu), og sagði einhvers staðar að ég vonaði bara að neyðarástandi yrði lýst yfir, því þá ættu allir að sjá hversu galið og fáránlegt það væri.
Það eru aðallega tví- eða samkynhneigðir menn sem stunda óábyrgt kynlíf með öðrum mönnum sem eru áhættuhópur, ekki aðrir.
Einn ágætur bandarískur sóttvarnalæknir að nafni Paul Alexander tekur oft hressilega til orða þegar hann talar um allar blekkingarnar í kringum Covid, PCR prófin og þessi svokölluðu Covid bóluefni, og er þessi pistill hans um þetta apabólubull engin undantekning.
Skv. frétt í Mbl í gær:
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur lýst yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna vaxandi fjölda tilfella apabólu í Afríku.
Greint er frá því að ástandið fari versnandi.
Í dag hittist neyðarnefndin og greindi mér frá því að, að þeirra mati, væri ástandið orðið að neyðartilviki er snýr að alþjóðalýðheilsu. Ég hef hlýtt þeirra ráðum, sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Frá því í september hefur tilfellum apabólu í Austur-Kongó fjölgað vegna veirustofns sem greinst hefur í nálægum Afríkuríkjum.
Húmor á sterum árið 2022
Það var virkilega skemmtilegt að fylgjast með því árið 2022 þegar Tedros vildi endilega lýsa yfir apabólufaraldri, og fékk það í gegn þrátt fyrir mótmæli.
Að fylgjast með viðbrögðum netverja um heim allan var eiginlega bara veisla, þetta var dregið þvílíkt sundur og saman í gríni og háði að "faraldurinn" bara fjaraði smám saman út.
Líklegast var grínið besta bóluefnið, það eina virkaði á þennan "ógurlega vágest".
Þess vegna er ég bara fegin að þeir eru aftur komnir á gamalkunnar slóðir, netverjar munu örugglega ekkert ætla að láta sitt eftir liggja frekar núna en síðast.
Aumingja Tedros
Tedros segist hafa miklar áhyggjur af því að apabólan breiðist víðar út um Afríku og jafnvel til annarra heimsálfa.
Neyðarástand, smit, áhyggjur, útbreiðsla, bóluefni, hversu margir láti lífið. Allt þetta eru gamalkunnir frasar sem við ættum að vera farin að þekkja allt of vel.
En óttumst eigi, með sameiginlega átaki lyfjakrimmanna, Bill Gates og WHO (þar sem miklir fjármunir munu koma við sögu), mun verða hægt að kveða þennan hugsanlega skelfilega faraldur niður, áður en hann breiðist út um allan heiminn:
Unnt er að hefta útbreiðsluna með bóluefni en í Afríku er það illfáanlegt og yfirleitt ekki gefið nema í hópum sem eru í mikilli hættu á að hafa smitast.
Við þurfum öflugra eftirlit og PENINGA!
Fréttatilkynningin frá WHO
Framkvæmdastjóri WHO, Dr Tedros Adhanom Ghebreyesus, hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjölgun mpox í Lýðveldinu Kongó (DRC) og vaxandi fjölda landa í Afríku feli í sér neyðarástand fyrir lýðheilsu sem sé alþjóðlegt áhyggjuefni (PHEIC) samkvæmt alþjóðlegum heilbrigðisreglum ( 2005) (IHR).
Yfirlýsing Dr Tedros kom að ráði IHR neyðarnefndar óháðra sérfræðinga sem hittust fyrr um daginn til að fara yfir gögn sem lögð voru fram af sérfræðingum frá WHO og viðkomandi löndum. Nefndin upplýsti framkvæmdastjórann um að hún telji uppgang mpox vera PHEIC, sem gæti dreift sér frekar um lönd í Afríku og hugsanlega utan álfunnar.
WHO gerir ráð fyrir tafarlausri fjárþörf upp á 15 milljónir Bandaríkjadala í upphafi til að styðja við eftirlit, viðbúnað og viðbragðsaðgerðir.
Nema hvað, að sjálfsögðu "þurfa" þau meiri peninga. Umreiknað í íslenskar krónur, þá eru það rétt um 2.1 milljarður sem þau fara fram á frá fjármögnunaraðilum og löndum. (Í hvaða vasa skyldu þeir peningar renna?)
Læknir að nafni Maria Van Kerkhove sem stýrir faraldursmálum hjá WHO sagði við þetta tilefni að herða yrði eftirlit með fólki, undir því yfirskini að það sé til að ná tökum á faraldrinum.
En staldrið aðeins við hér. Lesið pistilinn hans Dr. Alexander hér að ofan, og þá sjáið þið að það er hvorki þörf á eftirliti né bóluefnum út af þessu apabólubulli, þarna liggja aðrar myrkari og djöfullegri áætlanir að baki hjá WHO.
Stofnunin vinnur hörðum höndum að lævísu valdaráni í 194 aðildarlöndum sínum, eins og sjá má af tilraunum þeirra til yfirtöku á heilbrigðis- og farsóttamálum heimsins.
Næsta skref verður lögleiðing þessara svokölluðu bóluefnapassa, sem á að byrja að prufukeyra í nokkrum löndum í september. Kynnið ykkur hvað þetta mun þýða fyrir okkur og frelsi okkar, sem smám saman er verið að svipta okkur!
Grafarþögn Willums
Hér á landi ríkir grafarþögn um þennan skelfilega yfirvofandi samning í öllum helstu meginstraumsmiðlunum, og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra lætur ekki ná í sig til viðtals um þetta hjá reyndri útvarpsmanneskju hér á landi, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir!
Það vekur óneitanlega upp spurningar um hvort hann hafi eitthvað að fela, eða hafi slæma samvisku.
Þetta er gríðarlega alvarlegt mál, og óboðlegt að hann sem heilbrigðismálaráðerra komi sér endalaust undan því að svara spurningum um hvort hann ætli fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að samþykkja fyrirætlanir Alþjóðaheilbrigðismálakrimmanna eða ekki!
Hvorki hann, ríkisstjórnin né þingmenn geta borið fyrir sig að vita ekkert um þennan samning, allt þetta fólk er búið að fá nægilegt magn efnis og sönnunargagna sent til sín til þess að kynna sér alvarleika málsins.
Hvers vegna gerir þetta fólk ekki neitt, til hvers situr það á Alþingi, ef ekki til að vinna að hagsmunum kjósenda sinna?
Nú er nóg komið, við þurfum að sameinast um að segja hingað og ekki lengra!
Og í guðanna bænum, ekki falla eina ferðina enn fyrir þessum hræðsluáróðri, lygum og þvættingi, gerið heldur stólpagrín að þessu bulli, því það er lang árangursríkasta og besta bóluefnið, og í raun eina "bóluefnið" sem raunverulega er "safe and effective".
Ef þið gerið það ekki, þá munum við enda undir fasísku alræði alheimsstjórnarinnar sem verið er að reyna að koma á, og þá verður ekki aftur snúið. Við munum verða neydd til að búa undir rafrænu eftirliti í 15 mínútna fangelsisborgum, og fá ekkert að éta nema gervimat og pöddur.
Er þetta framtíðin sem þið viljið sjá fyrir ykkur og afkomendur ykkar?
Ítarefni:
- Just found out why the Moneypox vaccine is being pushed
- WHO Triggers Emergency Use Listing for Monkeypox Vaccines
- We currently face 4 Disease Xs: Bird Flu, Monkeypox, African Swine Fever (in pigs only) and Dengue. All are being hyped and there are human vaccines for the 3 human diseases
- 2021 Monkeypox Tabletop Exercise predicted a 2022 pandemic and implemented the NO REGRETS POLICY
- WHO, scientists call for urgent action on mpox strain
- Faucis institute hid mpox gain-of-function plans from Congress and the media
Eldri bloggfærslur mínar:
- Rýnt í drögin að heimsfaraldurssáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
- Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur verið skipuð sendiherra "velsældar"hagkerfis verkefnis WHO!
- Hinar djöfullegu áætlanir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um börnin!
- Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin er þegar farin að herða krumlurnar!
- Ert þú samþykk/ur því að hryðjuverkamaður fái algjört einræði yfir heilbrigðismálum þjóðarinnar - og alls heimsins?
- Ætlar fólk að falla fyrir þessu eina ferðina enn?
Fyrsta tilfellið greinist utan Afríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:11 | Facebook
Athugasemdir
Danska lyfjafyrirtækið Bavarian Nordic, sem framleiðir bóluefni gegn MPX veirunni - apabólu - vill fá leyfi til að bólusetja unglinga á aldrinum tólf til sautján ára. Fyrirtækið er það eina sem framleiðir bóluefni gegn MPX, en það er aðeins ætlað fyrir fullorðna.
Vill leyfa MPX bóluefni fyrir ungt fólk
Kristín Inga Þormar, 16.8.2024 kl. 16:26
Það þarf líka að halda á lofti hvers vegna þetta heitir "Apabóla."
Upprunnið úr öpum.
Smitast við kynmök.
Do the math.
Svo óttast þessi Tredros hjá WHO að smitast... jæja...
Ásgrímur Hartmannsson, 17.8.2024 kl. 02:35
Sæll Ásgrímur,
Hvers vegna var nafninu breytt úr monkeypox í mpox, var það ekki vegna þess að fyrra nafnið var svo dásamleg uppspretta að gríni að þessu bölvaða bulli?
Ég var að enda við að lesa langan íslenskan þráð á FB þar sem fólk er að lýsa hræðslu sinni við þetta.
Einn segir: Við þyrftum að heyra frá landlækni, ekki seinna en strax! Útbreiðslan er óhugnanlega hröð.
Annar segir: Alþjóðarheilbrigðsstofnun lýsti yfir alþjóðavá vegna útbreiðslu apabólufaralds í gær 🙁
Það er bara sorglegt að sjá hversu margir eru ennþá fljótir að detta í hræðslugírinn, og dettur ekki í hug að gera sínar eigin rannsóknir, heldur trúir ennþá bara öllu því sem okkur er sagt í meginstraumsruslmiðlunum.
Kristín Inga Þormar, 17.8.2024 kl. 08:27
Þetta er nú allur "faraldurinn"!:
"Most cases are mild, and only 20 of the infections reported in Ireland resulted in admission to hospital. No deaths occurred."
Mpox patient had 75 sexual partners in three weeks before symptoms developed, study finds
Kristín Inga Þormar, 17.8.2024 kl. 08:33
Æfing í viðbrögðum við apabólufaraldri var haldin akkúrat einu ári áður en þeir lýstu yfir faraldri árið 2022, rétt eins og haldin var æfing í heimsfaraldri rétt fyrir Covid.
Today Monkeypox International Emergency Was Declared By WHO. Monkeypox Tabletop Exercise Document from 2021 Looks Just Like COVID Preplanned Event 201. Please Read The Gameplan
Kristín Inga Þormar, 17.8.2024 kl. 09:24
Þingmenn og gjörðir þeirra er eitthvað sem ég óttast mest.
Apabóla, fellibylir og eldgos eru bara peanuts við hliðina á íslenskum ráðamönnum.
Loncexter, 24.8.2024 kl. 17:56
Sæll Loncexter,
Ég hef oftar en einu sinni og oftar en tvisvar spurt í bloggunum mínum hvaða öflum íslenskir ráðamenn þjóna, því það blasir við öllum sem vilja sjá, að það er svo sannarlega ekki okkur þjóðinni.
Kristín Inga Þormar, 25.8.2024 kl. 10:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.