Hvers vegna við eigum ekki að trúa öllu sem við lesum og sjáum í meginstraumsfjölmiðlunum!

Annað hvort er fréttamennskan útdauð starfsgrein, eða henni er stýrt af utanaðkomandi hagsmunaöflum.

Það má greinilega sjá í þessu stutta vídeói frá 2018 hér fyrir neðan, þar sem sjá má fjölda fréttalesara frá mismunandi sjónvarpsstöðvum (Fox, ABC, CBS og NBC) lesa upp nákvæmlega sömu fréttina af lesvélunum sínum!

Það fyndna er að handritið þeirra segir að samfélagsmiðlarnir stofni lýðræðinu í hættu með falsfréttum, sem þeir eru svo greinilega sjálfir að flytja.

Og hér má sjá valdamikið fólk segja nánast í einum rómi að nú sé tíminn til að "Build Back Better", og meira að segja hin unga Greta Thunberg líka!

 

Þessi vídeó, og tvö önnur eru bara fáein dæmi um hvernig fréttirnar eru matreiddar ofan í okkur, í nafni "lýðræðisins".

Síðan þessi "heimsfaraldur" skaut upp kollinum, þá hafa nánast allar fréttir þessara miðla verið á sama veg, að hræða nánast líftóruna úr fólki með stöðugum, og oft (yfirleitt?) fölskum æsifréttum.

Ritskoðunin í dag er alveg skelfileg, raddir óháðra vísindamanna fá ekki að heyrast, og er miskunnarlaust eytt úr af samfélagsmiðlum, leitarvélum og YouTube. Og þeir sem tjá sig um þessi mál t.d. á Facebook eru líka miskunnarlaust ritskoðaðir.

Ef maður vill fá öðruvísi fréttir um þessi svokölluðu bóluefni, og hinar "hliðarnar" á þessum faraldri þá verður maður að leita annað.

Nú ætla ég að pósta þessu bloggi inn á Facebook vegg minn, og kannski tekst það núna án athugasemda frá þeim. En þegar ég nefni eitthvað bóluefni á nafn hér í blogginu, fæ ég oftar en ekki viðvörun frá þeim um að þessi efni hafi undirgengist gríðarmiklar rannsóknir og séu örugg.

Og svo er vísað á heimasíðu WHO því til "sönnunar". Allir sem hafa kynnt sér málin vita að þetta er glæpastofnun sem er stjórnað af manni sem hefur ekki læknisfræðimenntun, og situr undir ákærum um þjóðarmorð í eigin landi.

Þessi stofnun er að stóru leyti fjármögnuð af einum ríkasta manni heims sem elskar bóluefni, og er heldur ekki læknir.

Sóttvarnarlæknir okkar hefur sagt oftar en einu sinni að hann fylgi tilmælum þessarar stofnunar!

Og þrátt fyrir að fjöldi andláta og aukaverkana sé orðinn alveg skelfilegur, bæði úti í heimi og hér á landi líka, þá stendur til að bólusetja að minnsta kosti 20.000 manns hér á landi núna í vikunni.

Það er bara staðreynd að fjölmiðlar ljúga, eða segja ekki frá öllum hliðum mála, líka þeir íslensku.

“All the world’s a stage.”—William Shakespeare

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ég vil meina að 78% af öllum fjölmiðlum hér á jörðu er stjórnað af leynisamtökum 

sem að kallat New World Order / Illumanati.

og að þeir standa einnig á bak við þessar bólusetningar/ eitur bras: 

 Þetta snýst allt um SÁLFRÆÐIHERNAÐ

í gegnum sjónvarp, fjölmiðla og menningarstjórnun.

 

Greindarvísitala þjóða er þannig barinn niður með óbeinum hætti án þess að fjöldinn átti sig á því sjálfur.

 

Afleiðing þessarar "SLÆMU ORKU" sem að send er í gegnum sjónvörp heimsins skapar allskyns andlega kvilla sem að leiða síðan til líkamlegra kvilla og þannig eru heilu þjóðirnar gerðar að fávísum aumingjum!!!!:

 

=Það er of mikið af fánýtum fróðleik og klippingarnar á myndefninu eru svo hraðar að það er heilaskemmandi að horfa í sjónvarpið:

 

Ég myndi segja að 78% af sjónvarpsdagskránni á rúv sé nú þegar "DARK SITE": =Stöðugt er alið á rugli, ótta, ringulreið og glæpaþáttaraðirnar koma á færiböndum inn í sjónvarpsdagskrárnar:

 

Ég myndi t.d. mæla með þessum hlekk: 

https://www.youtube.com/watch?v=6i_msSDvzbg&t=1s

Ég myndi einnig mæla með þessari þáttaröð sem að segir frá illum geimverum sem að líta nákvæmlega út eins og aðrir jarðarbúar nema að þeir eru bara 78% mennskir og stefna ða heimsyfirráðum á bak við tjöldin:

Þessir þættir eru gerðir til að vara okkur við slíkum heimsyfirráðum:

https://www.youtube.com/watch?v=LqM7MQ6IG_s

Þó að þessar veru séu til í raun og veru og gangi nú þegar um á meðal okkar;

---------------------------------------------------------------------------

að þá er mikilvægt að gefa fólk VON um að það geti líka verið til 100% mennskt og vinveitt fólk í geimnum sem að er að vara okkur við illu geimgestunum.

Ég held t.d. úti þessari síðu sem að segir okkur frá

GÓÐU GEIMGESTUNUM SEM AÐ ER HÉR TIL AÐ HJÁLPA OKKUR: 

Ég skora á fólk að skoða þessa heimasíðu frá upphafi: 

https://www.vetrarbrautin.com

Jón Þórhallsson, 20.6.2021 kl. 19:37

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Jón,

Maður er alltaf að sjá það betur og betur hvað það er mikil spilling í heiminum, og að við lifum endalaust undir einhverjum ógnum um yfirvofandi hryðjuverk, loftslagshlýnun og alls konar drápspestir og fleira.

Það er löngu búið að sýna fram á hversu mikið okkur er stjórnað í gegnum fjölmiðla, tísku, tónlist, bíómyndir og aðra afþreyingu, og þetta byrjar þegar við erum börn, og nú sérstaklega á síðustu áratugum síðan aðgengið að þessu varð svona almennt.

Þeir sem hafa kynnt sér "söguna" bakvið þennan meinta heimsfaraldur eru löngu búnir að sjá sannanir fyrir því að þetta er búið að eiga sér langan aðdraganda, og það er hreint engin tilviljun að nú sé "nauðsynlegt" að sprauta einhverjum tilraunaefnum í allt mannkyn gegn veiru sem 99,7% manns lifa veikindi af.

Ég hef þó lítið sett mig inn mál um geimverur, en því skyldi ekki vera líf á öðrum hnöttum en bara hér á þessari einu jörð?

Kristín Inga Þormar, 20.6.2021 kl. 22:52

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þær ganga nú þegar um á meðal okkar og það eru m.a. þær

sem að eru að knésetja jarðarbúa með óbeinum hætti í gegnum fjölmiðla: 

Children of the Matrix

Jón Þórhallsson, 21.6.2021 kl. 08:37

4 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Það kemur allt vonandi í ljós í fyllingu tímans. smile

Kristín Inga Þormar, 21.6.2021 kl. 09:50

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ég skora á alla að skoða þetta myndband: 

https://www.facebook.com/TheInfographicsShow/videos/503710147662877/

Jón Þórhallsson, 21.6.2021 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband