Tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.733, og hvað í ósköpunum er "Human Augmentation"?

Í dag, mánudaginn 21. júní eru tilkynntar aukaverkanir komnar upp í 1.733, voru 1.707 á föstudaginn, svo þetta er fjölgun um 26.

Pfizer var með 650 tilkynningar, þar af 20 andlát og 34 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 661. Fjölgun um 11.

Moderna var með 305, þar af 13 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 309. Fjölgun um 4.

AstraZeneka var með 613, þar af 3 andlát og 45 aðrar alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 616. Fjölgun um 3.

Janssen var með 139, þar af 3 alvarlegar.
Nú eru þær orðnar 147. Fjölgun um 8.

Alvarlegar aukaverkanir eru nú 118, þar af 23 tilkynnt andlát, og alvarlegum aukaverkunum fjölgaði um 77 frá 30. apríl. (30. apríl voru þær 41), og heildarfjölgun tilkynninga er 913 síðan þá.

Lyfjastofnun er farin að birta á mánudögum aukaverkanir sem eru sendar inn í Eurovigilance gagnagrunninn, og þær má sjá undir þessum súluritum sem segja okkur ekki mikið. Þessar aukaverkanir eru óhugnanlegar, og óskiljanlegt er hvers vegna þessum "bólusetningum" er ekki tafarlaust hætt. Nei nei, það á víst að sprauta 20.000 manns í vikunni!

Hvað er verið að gera mannkyninu núna?

Sjáið hvað er á vef bresku ríkisstjórnarinnar segir hinn breski Hugo.

Breska varnarmálaráðuneytið birti nýlega grein með yfirskriftinni "Human Augmentation - The Dawn of a New Paradigm".

Þar segir meðal annars um "Human Augmentation (HA)":

"HA will become increasingly relevant in the future because it is the binding agent between the unique skills of humans and machines. The winners of future wars will not be those with the most advanced technology, but those who can most effectively integrate the unique skills of both human and machine.

The growing significance of human-machine teaming is already widely acknowledged but this has so far been discussed from a technology-centric perspective. This HA project represents the missing part of the puzzle."

Til útskýringar á máli sínu birti það þetta 110 blaðsíðna skjal:

Human Augmentation – The Dawn of a New Paradigm Strategic Implications Project

Efst í skjalinu er mynd af mannshönd sem snertir hönd vélmennis, og mynd af DNA þar á milli.

Þar á eftir kemur Þessi fyrirvari (disclaimer): "The content of this publication does not represent the official policy or strategy of the UK government or that of the UK's Ministry of Defence (MOD)".

Nú jæja, ráðuneytið hefur kannski ekkert betra við tímann að gera en semja 110 blaðsíðna "skáldsögu", samt er skjalið undirritað af einhverjum (væntanlega) háttsettum mönnum.

Mannkynið virðist ekki vera nógu fullkomið eins og það er, það hefur verið að þróast síðastliðin 6 milljón ár og nú er svo komið að það sé í "okkar höndum" að ákveða hvernig móta eigi frekari þróun þess.

Þarna segir meðal annars á bls. 20: "Human augmentation includes chemical, physical and biological augmentation and the modification of the human but, it is not exclusively about adding "things" to the human, it also includes applying scientific insight to areas such as sleep management and personalised nutrition to improve performance".

Þetta hljómar spennandi, er það ekki?

En svona grínlaust, þá er þetta skelfileg lesning! Þetta er látið líta út sem byltingarkenndar framfarir fyrir mannkynið, en hvern langar að enda sem mennskt vélmenni?

Vaknið, elsku fólk!

Það er bara sorgleg staðreynd að fólk þarf að fara að átta sig á að það skall ekki á neinn náttúrulegur heimsfaraldur sem nauðsynlegt væri að bólusetja allt mannkyn gegn með genabreytandi tilraunalyfjum, sem virðast partur af þessari áætlun um "að bæta" mannkynið.

Fólk sem búið er að reyna í langan tíma að vara aðra við því sem er raunverulega í gangi í heiminum í dag hefur þurft að sitja undir háðsglósum, dónaskap og alls konar óþverra frá samborgurum sínum, sem trúa fjölmiðlunum í blindni.

Ég mæli með að þið horfið á þennan hugrakka breska fyrrum lögreglumann sem gekk inn á lögreglustöð til að tilkynna glæpina sem verið er að fremja gagnvart mannkyninu núna!

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

"Vaknið, elsku fólk!

Það er bara sorgleg staðreynd að fólk þarf að fara að átta sig á að það skall ekki á neinn náttúrulegur heimsfaraldur sem nauðsynlegt væri að bólusetja allt mannkyn gegn með genabreytandi tilraunalyfjum, sem virðast partur af þessari áætlun um "að bæta" mannkynið.

Fólk sem búið er að reyna í langan tíma að vara aðra við því sem er raunverulega í gangi í heiminum í dag hefur þurft að sitja undir háðsglósum, dónaskap og alls konar óþverra frá samborgurum sínum, sem trúa fjölmiðlunum í blindni.

Ég mæli með að þið horfið á þennan hugrakka breska fyrrum lögreglumann sem gekk inn á lögreglustöð til að tilkynna glæpina sem verið er að fremja gagnvart mannkyninu núna!"

Mikið er ég sammála þér Kristín Inga, blindan sem fólk er haldið er svo sorglegt að horfa uppá, öllu trúað sem kemur frá fjölmiðlum og allar mótsagnirnar sem koma frá "sérfræðingunum" fær fólk ekki einu sinni til að hugsa. Og af hverju eru bresk stjórnvöld að auglýsa eftir aðilum sem væru tilbúnir að taka að sér og geyma fjölda líka og það til næstu fjögurra ára????? Hvað ætli sé framundan?????

Tómas Ibsen Halldórsson, 21.6.2021 kl. 13:06

2 Smámynd: Kristín Inga Þormar

Sæll Tómas,

Já það er mjög sorglegt að horfa upp á þetta vera að raungerast í dag. Ég veit hreinlega ekki hvað þarf til að fólk vakni.

Kristín Inga Þormar, 21.6.2021 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband